Lagasafn. Íslensk lög 17. janúar 2026. Útgáfa 157a. Prenta í tveimur dálkum.
Lög um byggingarsjóð Listasafns Íslands
1959 41 23. maí
Ferill málsins á Alþingi. Frumvarp til laga.
Tóku gildi 31. júlí 1959. Breytt með:
L. 126/2011 (tóku gildi 30. sept. 2011).
Ef í lögum þessum er getið um ráðherra eða ráðuneyti án þess að málefnasvið sé tilgreint sérstaklega eða til þess vísað, er átt við menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra eða menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti sem fer með lög þessi. Upplýsingar um málefnasvið ráðuneyta skv. forsetaúrskurði.
1. gr.
Stofna skal byggingarsjóð Listasafns Íslands. Stofnfé sjóðsins er það fé, sem Alþingi hefur lagt fram til að byggja vinnusal og íbúð fyrir Jóhannes Sveinsson Kjarval, listmálara.
2. gr.
Þangað til bygging húss fyrir Listasafn Íslands hefst, skal sjóðurinn varðveittur og ávaxtaður í Landsbanka Íslands.
[Ráðuneytið]1) birtir árlega í Stjórnartíðindum eða Lögbirtingablaði endurskoðaðan ársreikning sjóðsins.
1)L. 126/2011, 30. gr.