Lagasafn.  Íslensk lög 12. apríl 2024.  Útgáfa 154b.  Prenta í tveimur dálkum.


Lög um happdrætti Dvalarheimilis aldraðra sjómanna

1973 nr. 16 13. apríl


Ferill málsins á Alþingi.   Frumvarp til laga.

Tóku gildi 14. maí 1973. Breytt með: L. 53/1976 (tóku gildi 11. júní 1976). L. 24/1987 (tóku gildi 30. apríl 1987). L. 21/1997 (tóku gildi 30. apríl 1997). L. 129/2004 (tóku gildi 31. des. 2005). L. 147/2007 (tóku gildi 29. des. 2007). L. 162/2010 (tóku gildi 1. jan. 2011). L. 126/2011 (tóku gildi 30. sept. 2011). L. 126/2015 (tóku gildi 31. des. 2015).

Ef í lögum þessum er getið um ráðherra eða ráðuneyti án þess að málefnasvið sé tilgreint sérstaklega eða til þess vísað, er átt við dómsmálaráðherra eða dómsmálaráðuneyti sem fer með lög þessi. Upplýsingar um málefnasvið ráðuneyta skv. forsetaúrskurði er að finna hér.

1. gr.
Heimilt skal Dvalarheimili aldraðra sjómanna að stofna happdrætti um bifreiðar, bifhjól, báta, búnaðarvélar, íbúðarhús og einstakar íbúðir, húsbúnað, hljóðfæri, búpening, flugvélar og farmiða til ferðalaga.
Verð happdrættismiða skal ákveðið af ráðherra, að fengnum tillögum frá stjórn Dvalarheimilis aldraðra sjómanna.
2. gr.
[Dráttur skal fara fram í Reykjavík undir eftirliti nefndar, sem [ráðherra]1) skipar til þess. Nefndin leggur fullnaðarúrskurð á allan ágreining um lögmæti eða gildi dráttar, bæði meðan dráttur fer fram og eftir að honum er lokið. Kostnað af þessu ber happdrættið. Dregið skal mánaðarlega.]2)
   1)L. 126/2011, 59. gr. 2)L. 53/1976, 1. gr.
3. gr.
[[Heimild þessi gildir til 1. janúar 2034.]1)
Ágóði happdrættisins skal renna til byggingarframkvæmda fyrir aldraða á vegum Sjómannadagssamtakanna í Reykjavík og Hafnarfirði. Heimilt er stjórn samtakanna, sem sér um stjórn og daglegan rekstur happdrættisins, að veita styrk eða lán til annarra bygginga um land allt í þágu aldraðra, svo sem verndaðra þjónustuíbúða, umönnunar- og hjúkrunarheimila og þjónustumiðstöðva fyrir aldraða.]2)
   1)L. 126/2015, 3. gr. 2)L. 24/1987, 1. gr.
4. gr.
Vinningar í happdrætti þessu skulu undanþegnir hvers konar opinberum gjöldum …1)
   1)L. 129/2004, 40. gr.
5. gr.
Ráðherra setur með reglugerð1) nánari ákvæði um starfsemi happdrættisins, þar á meðal um endurskoðun ársreikninga happdrættisins …2)
   1)Rg. 148/2000, sbr. 238/2000, 268/2001, 837/2001, 210/2003, 311/2004, 306/2006, 401/2011, 278/2013, 344/2015, 925/2018, 347/2019 og 367/2022. 2)L. 24/1987, 2. gr.