Lagasafn.  Íslensk lög 12. apríl 2024.  Útgáfa 154b.  Prenta í tveimur dálkum.


Lög um minnstu mynteiningu við álagningu og innheimtu opinberra gjalda

1980 nr. 79 23. desember


Ferill málsins á Alþingi.   Frumvarp til laga.

Tóku gildi 1. janúar 1981.

1. gr.
Allir skattar og opinber gjöld svo og greiðslur til opinberra aðila fyrir hvers konar leyfisbréf, skírteini, skráningar og vottorð, hvort sem þær eru innheimtar samkvæmt aukatekjulögum eða öðrum heimildum, skulu lögð á í heilum krónum þannig að lægri fjárhæð en 50 aura skal færa niður í næstu heila krónu en 50 aura eða hærri fjárhæð skal hækka upp í næstu heila krónu.
2. gr.
Innheimta á gjöldum skv. 1. gr. skal einnig fara fram í heilum krónum þannig að innheimtuaðila er óskylt að taka við greiðslum í minni einingum en heilum krónum.
3. gr.