Lagasafn. Íslensk lög 12. apríl 2024. Útgáfa 154b. Prenta í tveimur dálkum.
Lög um heimild fyrir ríkisstjórnina til þess að fullgilda fyrir Íslands hönd samning milli Íslands, Danmerkur, Finnlands, Noregs og Svíþjóðar um gagnkvæma aðstoð í tollamálum
1980 nr. 94 31. desember
Ferill málsins á Alþingi. Frumvarp til laga.
Tóku gildi 2. janúar 1981. Breytt með:
L. 24/1990 (tóku gildi 18. maí 1990).
L. 126/2011 (tóku gildi 30. sept. 2011).
Ef í lögum þessum er getið um ráðherra eða ráðuneyti án þess að málefnasvið sé tilgreint sérstaklega eða til þess vísað, er átt við fjármála- og efnahagsráðherra eða fjármála- og efnahagsráðuneyti sem fer með lög þessi. Upplýsingar um málefnasvið ráðuneyta skv. forsetaúrskurði er að finna hér.
1. gr.
Ríkisstjórninni er heimilt að fullgilda fyrir Íslands hönd samning milli Íslands, Danmerkur, Finnlands, Noregs og Svíþjóðar um gagnkvæma aðstoð í tollamálum. Samningurinn er prentaður sem fylgiskjal með lögum þessum.1)
[Ríkisstjórninni er enn fremur heimilt að staðfesta breytingu á samningnum sem gerð var með samningi 3. ágúst 1989.]2)
1)Sjá Stjtíð. A 1980, bls. 241–344, sbr. l. 24/1990, 3. gr. 2)L. 24/1990, 1. gr.
2. gr.
[Ákvæði samningsins með áorðnum breytingum skulu hafa lagagildi hér á landi.]1)2)
1)L. 24/1990, 2. gr. 2)Augl. C 19/1981 og 12/1982.
3. gr.
[Ráðherra]1) setur nánari reglur um framkvæmd laga þessara.
1)L. 126/2011, 85. gr.