Lagasafn.  Íslensk lög 12. apríl 2024.  Útgáfa 154b.  Prenta í tveimur dálkum.


Lög um þjóðsöng Íslendinga

1983 nr. 7 8. mars


Ferill málsins á Alþingi.   Frumvarp til laga.

Tóku gildi 25. mars 1983. Breytt með: L. 82/1998 (tóku gildi 1. okt. 1998). L. 88/2008 (tóku gildi 1. jan. 2009 nema brbákv. VII sem tók gildi 21. júní 2008). L. 126/2011 (tóku gildi 30. sept. 2011).

Ef í lögum þessum er getið um ráðherra eða ráðuneyti án þess að málefnasvið sé tilgreint sérstaklega eða til þess vísað, er átt við forsætisráðherra eða forsætisráðuneyti sem fer með lög þessi. Upplýsingar um málefnasvið ráðuneyta skv. forsetaúrskurði er að finna hér.

1. gr.
Þjóðsöngur Íslendinga er „Ó Guð vors lands“, ljóð eftir Matthías Jochumsson og lag Sveinbjörns Sveinbjörnssonar.
2. gr.
Þjóðsöngurinn er eign íslensku þjóðarinnar, og fer [ráðuneytið]1) með umráð yfir útgáfurétti á honum.
   1)L. 126/2011, 96. gr.
3. gr.
Þjóðsönginn skal ekki flytja eða birta í annarri mynd en hinni upprunalegu gerð. Ekki er heimilt að nota þjóðsönginn á nokkurn hátt í viðskipta- eða auglýsingaskyni.
4. gr.
Nú rís ágreiningur um rétta notkun þjóðsöngsins og sker þá [ráðherra]1) úr.
   1)L. 126/2011, 96. gr.
5. gr.
Með forsetaúrskurði skal setja nánari ákvæði um notkun þjóðsöngsins, ef þörf þykir.
6. gr.
Brot gegn ákvæðum laga þessara varða sektum eða [fangelsi allt að 2 árum].1)2)
   1)L. 82/1998, 171. gr. 2)L. 88/2008, 233. gr.