Lagasafn.  Íslensk lög 12. apríl 2024.  Útgáfa 154b.  Prenta í tveimur dálkum.


Lög um heimild til að fresta greiðslum vegna verðtryggðra íbúðalána

1983 nr. 81 28. desember


Ferill málsins á Alþingi.   Frumvarp til laga.

Tóku gildi 30. desember 1983.

1. gr.
Ríkisstjórnin getur að fengnum tillögum húsnæðismálastjórnar og Seðlabanka Íslands ákveðið að fresta skuli greiðslu á allt að 25% af samanlagðri fjárhæð afborgana, verðtryggingaþátta og vaxta verðtryggðra lána Byggingarsjóðs ríkisins og Byggingarsjóðs verkamanna og verðtryggðra íbúðalána banka og annarra lánastofnana, er gjaldfalla á tilteknu tímabili hér eftir, ef lántaki óskar.
Þeim greiðslum, sem frestað er samkvæmt framansögðu, skal bætt við höfuðstól lánsins og lánstíminn lengdur þannig að greiðslubyrði lánsins á hverjum tíma aukist ekki af þeim sökum og lánið sé með óbreyttum kjörum að öðru leyti svo og með hliðstæðum áfangagreiðslum og ella hefði verið.
2. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.