Lagasafn. Íslensk lög 12. apríl 2024. Útgáfa 154b. Prenta í tveimur dálkum.
Lög um framkvæmd alþjóðasamnings um gáma
1985 nr. 14 10. maí
Ferill málsins á Alþingi. Frumvarp til laga.
Tóku gildi 31. maí 1985.
1. gr.
Ráðherra þeim, sem fer með siglingamál, er heimilt að setja reglur1) til að framfylgja alþjóðasamningi, sem Ísland er aðili að, um gáma.
1)Rg. 624/1997.
2. gr.
Brot gegn reglum, sem settar verða samkvæmt lögum þessum, varða sektum.
3. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.