Lagasafn. Íslensk lög 12. apríl 2024. Útgáfa 154b. Prenta í tveimur dálkum.
Lög um norrænan þróunarsjóð
1989 nr. 14 7. mars
Ferill málsins á Alþingi. Frumvarp til laga.
Tóku gildi 30. janúar 1989. Breytt með:
L. 129/2004 (tóku gildi 31. des. 2005).
1. gr.
Stofna skal norrænan þróunarsjóð samkvæmt samningi milli Danmerkur, Finnlands, Íslands, Noregs og Svíþjóðar um stofnun norræns þróunarsjóðs sem undirritaður var í Stokkhólmi 3. nóvember 1988.
2. gr.
Sjóðurinn skal undanþeginn ákvæðum laga nr. 63/1979, um skipan gjaldeyris- og viðskiptamála,1) svo og annarra laga er setja kunna hömlur á greiðslur í erlendum gjaldeyri eða gjaldeyrisviðskipti, að svo miklu leyti sem slík ákvæði hindra eða torvelda starfsemi sjóðsins eða efndir skuldbindinga hans.
1)Nú l. 87/1992.
3. gr.
Sjóðurinn skal vera undanþeginn aðstöðugjaldi, landsútsvari [og tekjuskatti],1) svo og öðrum gjöldum sem lögð kunna að vera á tekjur, eignir eða veltu til ríkis eða sveitarfélaga.
1)L. 129/2004, 80. gr.
4. gr.
Lánssamningar, sem sjóðurinn er aðili að, skulu vera undanþegnir stimpilgjöldum og öðrum gjöldum hins opinbera.
5. gr.
Lög þessi öðlast gildi um leið og samningur um norrænan þróunarsjóð.