Lagasafn.  Íslensk lög 12. apríl 2024.  Útgáfa 154b.  Prenta í tveimur dálkum.


Lög um vegtengingu um utanverðan Hvalfjörð

1990 nr. 45 16. maí


Ferill málsins á Alþingi.   Frumvarp til laga.

Tóku gildi 22. maí 1990. Breytt með: L. 162/2010 (tóku gildi 1. jan. 2011). L. 126/2011 (tóku gildi 30. sept. 2011). L. 59/2013 (tóku gildi 1. júlí 2013).

Ef í lögum þessum er getið um ráðherra eða ráðuneyti án þess að málefnasvið sé tilgreint sérstaklega eða til þess vísað, er átt við innviðaráðherra eða innviðaráðuneyti sem fer með lög þessi. Upplýsingar um málefnasvið ráðuneyta skv. forsetaúrskurði er að finna hér.

1. gr.
Ríkisstjórninni er heimilt að fela hlutafélagi, sem stofnað yrði í því skyni, að annast að nokkru eða öllu leyti undirbúning, fjármögnun og framkvæmdir við vegtengingu um utanverðan Hvalfjörð, svo og rekstur um tiltekinn tíma.
2. gr.
Nánari ákvæði um gerð, rekstur, tilhögun mannvirkja, gjaldtökutíma og önnur atriði, sem þurfa þykir, skulu vera í samningi sem [ráðherra]1) gerir við framkvæmdaaðila. Slíkur samningur öðlast ekki gildi fyrr en hann hefur hlotið staðfestingu Alþingis.
   1)L. 126/2011, 140. gr.
3. gr.
Til að bera kostnað af framkvæmdum og rekstri samkvæmt lögum þessum skal hlutafélagi skv. 1. gr. heimilt að taka umferðargjald af vegtengingu um utanverðan Hvalfjörð enda liggi fyrir samningar við [ráðherra]1) um verkefnið og rétt til gjaldtökunnar.
   1)L. 162/2010, 210. gr.
4. gr.
[Samgöngustofa]1) skal hafa eftirlit með að gerð og rekstur mannvirkja samkvæmt lögum þessum sé á viðunandi hátt. Sé um vanrækslu að ræða að dómi [Samgöngustofu]1) skal hún gefa veghaldara fyrirmæli um að framkvæma nauðsynlegar úrbætur innan hæfilegs frests.
   1)L. 59/2013, 6. gr.
5. gr.
Þegar vegtengingu um utanverðan Hvalfjörð er lokið skal vegurinn teljast til þjóðvega samkvæmt ákvæðum vegalaga með þeim undantekningum sem lög þessi ákveða. Ef samkomulag næst ekki um kaup á landi og efni sem þörf verður á vegna framkvæmda samkvæmt lögum þessum heimilast [Samgöngustofu]1) eignarnám samkvæmt X. kafla vegalaga.
   1)L. 59/2013, 6. gr.
6. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.