Lagasafn.  Íslensk lög 12. apríl 2024.  Útgáfa 154b.  Prenta í tveimur dálkum.


Lög um heimild fyrir ríkisstjórnina til þess að staðfesta fyrir Íslands hönd samning milli Norðurlanda um aðstoð í skattamálum

1990 nr. 46 8. maí


Ferill málsins á Alþingi.   Frumvarp til laga.

Tóku gildi 31. maí 1990.

1. gr.
Ríkisstjórninni er heimilt að staðfesta fyrir Íslands hönd samning milli Norðurlanda um aðstoð í skattamálum sem undirritaður var í Kaupmannahöfn 7. desember 1989 og prentaður er sem fylgiskjal með lögum þessum.1)
   1)Sjá Stjtíð. A 1990, bls. 77–84.
2. gr.
Þegar samningur sá, er um ræðir í 1. gr., hefur öðlast gildi að því er Ísland varðar skulu ákvæði hans hafa lagagildi hér á landi.
3. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.