Lagasafn.  Íslensk lög 12. apríl 2024.  Útgáfa 154b.  Prenta í tveimur dálkum.


Lög um Skákskóla Íslands

1990 nr. 76 17. maí


Ferill málsins á Alţingi.   Frumvarp til laga.

Tóku gildi 1. janúar 1991. Breytt međ: L. 126/2011 (tóku gildi 30. sept. 2011).

Ef í lögum ţessum er getiđ um ráđherra eđa ráđuneyti án ţess ađ málefnasviđ sé tilgreint sérstaklega eđa til ţess vísađ, er átt viđ mennta- og barnamálaráđherra eđa mennta- og barnamálaráđuneyti sem fer međ lög ţessi. Upplýsingar um málefnasviđ ráđuneyta skv. forsetaúrskurđi er ađ finna hér.

1. gr.
Á vegum Skáksambands Íslands og í samvinnu viđ [ráđuneytiđ]1) starfar skóli er nefnist Skákskóli Íslands.
   1)L. 126/2011, 146. gr.
2. gr.
Skólinn er starfrćktur í húsakynnum Skáksambands Íslands. Skal árlega veittur til hans styrkur á fjárlögum sem hér segir:
   a. Framlag sem nemi einu stöđugildi í 8. ţrepi 144. lfl. BHM.
   b. Rekstrarstyrkur sem nemi hćfilegri leigu fyrir afnot húsnćđis.
3. gr.
Hlutverk skólans er ađ annast skákkennslu og hafa á hendi hvers kyns frćđslu sem miđar ađ ţví ađ efla vöxt og viđgang skáklistarinnar á Íslandi. Skal skólinn m.a. halda námskeiđ úti á landi í samvinnu viđ skóla og taflfélög.
4. gr.
Skólastjórn Skákskóla Íslands skal skipuđ ţremur mönnum sem tilnefndir eru af eftirtöldum ađilum til ţriggja ára í senn: [Ráđherra]1) skipar einn, Skáksamband Íslands skipar tvo, ţar af annan í samráđi viđ Félag íslenskra stórmeistara.
Stjórnin skiptir sjálf međ sér verkum. Nánar skal kveđiđ á um verksviđ hennar í reglugerđ.
   1)L. 126/2011, 146. gr.
5. gr.
Skólastjórn rćđur skólastjóra Skákskóla Íslands sem annast rekstur skólans og rćđur til hans kennara međ samţykki stjórnar.
6. gr.
Skólinn skiptist í almenna deild og framhaldsdeild. Nám í almennum deildum skal auglýst og greiđa nemendur námsgjald fyrir. Í framhaldsdeild eru nemendur valdir á grundvelli inntökuprófs og skólavist ókeypis. Kennslu í framhaldsdeild annast skákmeistarar sem laun ţiggja samkvćmt lögum um launasjóđ stórmeistara í skák.
Í starfsemi skólans er skylt ađ gćta jafnréttis kynjanna í hvívetna.
Nánar skal kveđiđ á um starfsemi deilda og tilhögun kennslu í reglugerđ.1)
   1)Rg. 459/1990.
7. gr.
Til ađ standa straum af kostnađi viđ stofnun skólans skal veittur sérstakur styrkur á fjárlögum ársins 1991.
8. gr.
[Ráđherra]1) er heimilt ađ semja viđ önnur félagasamtök eđa einkaađila um rekstur skákskóla samkvćmt lögum ţessum.
   1)L. 126/2011, 146. gr.
9. gr.
Lög ţessi öđlast gildi 1. janúar 1991.