Lagasafn.  Íslensk lög 12. apríl 2024.  Útgáfa 154b.  Prenta í tveimur dálkum.


Lög um norrænt fjármögnunarfélag á sviði umhverfisverndar

1990 nr. 102 12. desember


Ferill málsins á Alþingi.   Frumvarp til laga.

Tóku gildi 19. desember 1990. Breytt með: L. 129/2004 (tóku gildi 31. des. 2005).


1. gr.
Stofna skal norrænt fjármögnunarfélag samkvæmt samningi milli Danmerkur, Finnlands, Íslands, Noregs og Svíþjóðar um stofnun norræns fjármögnunarfélags á sviði umhverfismála sem undirritaður var í Reykjavík 2. mars 1990.
2. gr.
Félagið skal undanþegið ákvæðum laga nr. 63/1979, um skipan gjaldeyris- og viðskiptamála,1) svo og annarra laga er setja kunna hömlur á greiðslur í erlendum gjaldeyri eða gjaldeyrisviðskipti, að svo miklu leyti sem slík ákvæði hindra eða torvelda starfsemi félagsins eða efndir skuldbindinga þess.
   1)l. 87/1992.
3. gr.
Félagið skal undanþegið aðstöðugjaldi, landsútsvari [og tekjuskatti],1) svo og öðrum gjöldum sem lögð kunna að vera á tekjur, eignir eða veltu til ríkis eða sveitarfélaga.
   1)L. 129/2004, 82. gr.
4. gr.
Lánssamningar, sem félagið er aðili að, skulu vera undanþegnir stimpilgjöldum og öðrum gjöldum hins opinbera.
5. gr.
Lög þessi öðlast gildi þegar í stað.