Lagasafn.  Íslensk lög 12. apríl 2024.  Útgáfa 154b.  Prenta í tveimur dálkum.


Lög um Slysavarnaskóla sjómanna

1991 nr. 33 19. mars


Ferill málsins á Alþingi.   Frumvarp til laga.

Tóku gildi 17. apríl 1990 (á að vera 17. apríl 1991). Breytt með: L. 162/2010 (tóku gildi 1. jan. 2011). L. 126/2011 (tóku gildi 30. sept. 2011). L. 81/2022 (tóku gildi 14. júlí 2022).

Ef í lögum þessum er getið um ráðherra eða ráðuneyti án þess að málefnasvið sé tilgreint sérstaklega eða til þess vísað, er átt við innviðaráðherra eða innviðaráðuneyti sem fer með lög þessi. Upplýsingar um málefnasvið ráðuneyta skv. forsetaúrskurði er að finna hér.

1. gr.
[Slysavarnafélagið Landsbjörg]1) skal starfrækja Slysavarnaskóla sjómanna og fer Slysavarnafélagið með yfirstjórn skólans er starfar á vegum þess og ábyrgð.
Markmið skólans er að auka öryggi sjómanna með fræðslu og þjálfun í meðferð björgunar- og öryggisbúnaðar og almennri fræðslu um slysavarnir á sjó.
[Slysavarnafélagið Landsbjörg skal halda fjárreiðum skólans aðskildum frá öðrum rekstri og starfsemi félagsins og er í þeim tilgangi heimilt að hafa rekstur skólans í sérstöku félagi.]1)
   1)L. 81/2022, 1. gr.
2. gr.
Slysavarnaskóli sjómanna skal halda námskeið fyrir starfandi og verðandi sjómenn um öryggis- og björgunarmál á helstu útgerðarstöðum landsins og annast öryggis- og slysavarnafræðslu fyrir nemendur í skipstjórnar- og vélstjórnarnámi.
Aðalkennslugreinar skólans eru: Fræðsla um öryggismál, slysavarnir, björgunaraðferðir, skyndihjálp, flutningur sjúkra og slasaðra, meðferð björgunarbúnaðar, slökkvibúnaðar og reykköfunartækja.
3. gr.
[Ráðherra]1) skipar fimm manna skólanefnd Slysavarnaskóla sjómanna til fjögurra ára í senn. Einn skal tilnefndur af Sjómannasambandi Íslands, einn af [Félagi skipstjórnarmanna]2) og þrír tilnefndir af [Slysavarnafélaginu Landsbjörg].2) Ráðherra skipar einn fulltrúa [Slysavarnafélagsins Landsbjargar]2) formann skólanefndar.
Meginhlutverk skólanefndar er að [vera ráðgefandi um fagleg]2) málefni Slysavarnaskólans …2). Skólanefnd gerir, að fenginni umsögn öryggisfræðslunefndar sjómanna, tillögur til stjórnar [Slysavarnafélagsins Landsbjargar]2) um námskeiðahald, námsskrá og lengd námskeiða á vegum skólans.
   1)L. 126/2011, 155. gr. 2)L. 81/2022, 2. gr.
4. gr.
[Slysavarnafélagið Landsbjörg]1) ræður skólastjóra Slysavarnaskóla sjómanna, [að fenginni umsögn skólanefndar],1) en um mannaráðningar fer samkvæmt lögum [félagsins].1)
   1)L. 81/2022, 3. gr.
5. gr.
Kostnaður við rekstur skólans skal greiddur úr ríkissjóði [samkvæmt þjónustusamningi].1)1)
   1)L. 81/2022, 4. gr.
6. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.
Ákvæði til bráðabirgða.