Lagasafn.  Íslensk lög 12. apríl 2024.  Útgáfa 154b.  Prenta í tveimur dálkum.


Lög um friðhelgi og forréttindi alþjóðastofnana

1992 nr. 98 9. desember


Ferill málsins á Alþingi.   Frumvarp til laga.

Tóku gildi 11. desember 1992. Breytt með: L. 126/2011 (tóku gildi 30. sept. 2011). L. 80/2022 (tóku gildi 14. júlí 2022 nema b-liður 2. mgr. 170. gr., b-liður 1. mgr. 171. gr. hvað varðar samevrópska u-rýmisþjónustu og c-liður 1. mgr. 171. gr. sem tóku gildi 26. jan. 2023 og d-liður 258. gr. sem tók gildi 1. jan. 2023; EES-samningurinn: XIII. viðauki reglugerð 2027/97, 889/2002, tilskipun 2000/79/EB, 2009/12/EB). L. 67/2023 (tóku gildi 8. júlí 2023).

Ef í lögum þessum er getið um ráðherra eða ráðuneyti án þess að málefnasvið sé tilgreint sérstaklega eða til þess vísað, er átt við utanríkisráðherra eða utanríkisráðuneyti sem fer með lög þessi. Upplýsingar um málefnasvið ráðuneyta skv. forsetaúrskurði er að finna hér.

1. gr.
Alþjóðastofnanir skulu njóta þeirrar friðhelgi og þeirra forréttinda hér á landi sem kveðið er á um í alþjóðasamningum sem öðlast hafa stjórnskipulegt gildi að því er Ísland varðar.
Eftirtaldir skulu einnig njóta friðhelgi og forréttinda samkvæmt samningum þessum hér á landi:
   1. starfslið alþjóðastofnana,
   2. þeir sem koma fram eða starfa á vegum alþjóðastofnana,
   3. fulltrúar, sendimenn og erindrekar aðila að alþjóðastofnunum,
   4. þeir sem taka þátt í rekstri mála fyrir alþjóðastofnunum og
   5. fjölskyldur þeirra sem getið er í 1.–4. tölul.
[Eftirlitsmenn og aðrir aðilar sem starfa á grundvelli alþjóðasamninga sem Ísland er aðili að skulu njóta friðhelgi og forréttinda hér á landi í samræmi við viðkomandi alþjóðasamning.]1)
   1)L. 67/2023, 29. gr.
[1. gr. a.
Laun og launatengdar greiðslur embættismanna og starfsmanna stofnana Evrópusambandsins njóta skattfrelsis hér á landi, þ.m.t. eftirlaun og greiðslur til eftirlifandi maka og barna.]1)
   1)L. 80/2022, 261. gr.
2. gr.
[Ráðherra]1) setur nánari reglur um framkvæmd laga þessara.
   1)L. 126/2011, 171. gr.
3. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.