Lagasafn.  Íslensk lög 12. apríl 2024.  Útgáfa 154b.  Prenta í tveimur dálkum.


Lög um matvæli

1995 nr. 93 28. júní


Ferill málsins á Alþingi.   Frumvarp til laga.

Tóku gildi 30. júní 1995. Breytt með: L. 169/2000 (tóku gildi 29. des. 2000). L. 164/2002 (tóku gildi 1. jan. 2003). L. 17/2003 (tóku gildi 1. júlí 2003). L. 76/2005 (tóku gildi 1. jan. 2006). L. 68/2006 (tóku gildi 30. júní 2006). L. 167/2007 (tóku gildi 1. jan. 2008). L. 29/2008 (tóku gildi 19. apríl 2008). L. 143/2009 (tóku gildi 1. mars 2010 nema II.–IV. kafli sem tóku gildi 1. nóv. 2011 (utan 43. gr. í IV. kafla sem tók gildi 1. mars 2010) og 54. og 55. gr. og 9. efnismgr. 63. gr. sem tóku gildi 1. mars 2011; EES-samningurinn: I. og II. viðauki reglugerð 178/2002). L. 126/2011 (tóku gildi 30. sept. 2011). L. 19/2012 (tóku gildi 16. mars 2012). L. 31/2012 (tóku gildi 10. maí 2012). L. 76/2012 (tóku gildi 5. júlí 2012). L. 143/2013 (tóku gildi 31. des. 2013). L. 40/2016 (tóku gildi 2. júní 2016). L. 33/2018 (tóku gildi 1. jan. 2019 nema a-liður 2. gr. sem tók gildi 1. jan. 2022 skv. l. 101/2020, 15. gr.). L. 90/2018 (tóku gildi 15. júlí 2018; EES-samningurinn: XI. viðauki reglugerð 2016/679). L. 71/2019 (tóku gildi 5. júlí 2019). L. 93/2019 (tóku gildi 1. jan. 2020 nema 4., 10. og 11. gr. sem tóku gildi 16. júlí 2019). L. 141/2019 (tóku gildi 1. jan. 2020). L. 144/2019 (tóku gildi 21. des. 2019, birt í Stjtíð. 27. des. 2019). L. 101/2020 (tóku gildi 23. júlí 2020). L. 71/2021 (tóku gildi 29. júní 2021 nema 29. gr. sem tók gildi 1. júlí 2021). L. 51/2022 (tóku gildi 8. júlí 2022; EES-samningurinn: II. viðauki reglugerð 2018/848).

Ef í lögum þessum er getið um ráðherra eða ráðuneyti án þess að málefnasvið sé tilgreint sérstaklega eða til þess vísað, er átt við matvælaráðherra eða matvælaráðuneyti sem fer með lög þessi. Upplýsingar um málefnasvið ráðuneyta skv. forsetaúrskurði er að finna hér.

I. kafli. Tilgangur og gildissvið.
1. gr.
Tilgangur laganna er að tryggja, svo sem kostur er, gæði, öryggi og hollustu matvæla og að merkingar og aðrar upplýsingar um þau séu réttar og fullnægjandi. [Jafnframt skal tryggja að Ísland verði í fararbroddi í aðgerðum til að koma í veg fyrir útbreiðslu sýklalyfjaónæmra baktería með matvælum og koma í veg fyrir að nýir smitsjúkdómar og ákveðnar tegundir sýklalyfjaónæmra baktería berist til landsins.]1) [Þessu skal ná með innra eftirliti, áhættugreiningu, rekjanleika afurða og vara, varúðaraðgerðum, fræðslu, upplýsingamiðlun, rannsóknum, neytendavernd og opinberu eftirliti.]2)
   1)L. 93/2019, 5. gr. 2)L. 143/2009, 1. gr.
2. gr.
[Lög þessi taka til framleiðslu og dreifingar matvæla á öllum stigum, [þ.m.t. lífrænnar framleiðslu].1) Þau taka ekki til frumframleiðslu til einkanota eða til vinnslu, meðferðar eða geymslu á matvælum til einkaneyslu. Lögin ná þó til allra [matvælasnertiefna]2) á einkaheimilum. Lögin taka til [opinbers eftirlits]3) hérlendis og um borð í skipum í höfnum og á leið til hafna hérlendis. Sama á við um loftför á flugvöllum hérlendis.
[Ráðherra er heimilt að víkja frá einstökum ákvæðum laga þessara þegar um er að ræða:
   a. aðila sem framleiða og markaðssetja matvæli þar sem starfsemi er ekki samfelld heldur tilfallandi, lýtur ekki sérstöku skipulagi og er ekki rekin í eigin hagnaðarskyni,
   b. framleiðendur sem framleiða og markaðssetja frumframleiðsluvörur í litlu magni beint til neytenda eða til staðbundins smásölufyrirtækis sem afhendir matvæli beint til neytenda,
   c. framleiðendur sem framleiða og markaðssetja vörur, sem eru unnar úr eigin frumframleiðslu, beint til neytenda, enda sé um takmarkaða, árstíðabundna eða tilfallandi starfsemi að ræða,
   d. framleiðendur sem framleiða matvæli með aðferðum sem er hefð fyrir hérlendis.
Ráðherra setur með reglugerð4) nánari ákvæði um þessa starfsemi, svo sem um hvaða starfsemi er að ræða, hvað telst staðbundin starfsemi, skilyrði fyrir slíkri starfsemi, opinbert eftirlit og hvaða reglur um framleiðslu, markaðssetningu, hollustuhætti, merkingar, umbúðir, rekjanleika, geymslu og flutning gilda um slík matvæli.]5)
Lyf, sbr. lyfjalög, eru undanþegin ákvæðum þessara laga. Þó gilda lög þessi um matvæli, þ.m.t. fæðubótarefni, sem innihalda lyf. Tóbak, sbr. lög um tóbaksvarnir, og vímuefni, önnur en áfengi, sbr. lög um ávana- og fíkniefni, eru undanþegin ákvæðum þessara laga. Það sama gildir um plöntur, fyrir uppskeru, sbr. lög um varnir gegn sjúkdómum og meindýrum á plöntum, fóður, sbr. lög um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru, og lifandi dýr nema þau séu alin til markaðssetningar til manneldis.]6)
   1)L. 51/2022, 1. gr. 2)L. 144/2019, 1. gr. 3)L. 144/2019, 7. gr. 4)Rg. 580/2012, sbr. 41/2013, 665/2014 og 732/2020. Rg. 856/2016. Rg. 846/2023. 5)L. 31/2012, 1. gr. 6)L. 143/2009, 2. gr.
3. gr.
Þannig skal staðið að framleiðslu og dreifingu matvæla að þau valdi ekki heilsutjóni og að ekki sé beitt blekkingum í viðskiptum með þau.

II. kafli. [Orðskýringar.]1)
   1)L. 144/2019, 3. gr.
4. gr.
[Í lögum þessum er merking eftirtalinna orða og hugtaka sem hér segir:
   [1. Aðlögun að lífrænni framleiðslu er umbreyting frá framleiðslu sem ekki er lífræn til lífrænnar framleiðslu á tilteknu tímabili.]1)
   [2.]1) Aðskotaefni eru efni sem sett eru í matvæli, berast í þau eða myndast í þeim og breyta eiginleikum, samsetningu, gæðum eða hollustu þeirra. Hér er m.a. átt við vaxtaraukandi efni og lyfjaleifar.
   [3.]1) Aukefni eru efni sem notuð eru við tilbúning matvæla til að hafa áhrif á geymsluþol, lit, lykt, bragð eða aðra eiginleika þeirra.
   [4.]1) Áhættuflokkun er greining opinbers eftirlits í matvælafyrirtækjum á völdum þáttum sem hafa áhrif á áhættu fyrir neytendur en áhættuflokkur segir til um grunneftirlitsþörf matvælafyrirtækis.
   [5.]1) Áhættugreining er ferli sem er samsett af þremur innbyrðis tengdum þáttum, þ.e. áhættumati, áhættustjórnun og áhættukynningu.
   [6.]1) Bragðefni eru efni sem notuð eru til að hafa áhrif á bragðeiginleika matvæla og teljast ekki til aukefna.
   [7.]1) Bætiefni eru vítamín, steinefni, þ.m.t. snefilefni, og lífsnauðsynlegar fitu- og amínósýrur.
   [8.]1) Dreifing er hvers konar flutningur, framboð og afhending, þ.m.t. innflutningur, útflutningur og sala. Hér er einnig átt við geymslu og annað sem tengist dreifingu, sbr. ákvæði IV. kafla.
   [9.]1) Faggilding er formleg staðfesting á því að starfsemi rannsóknastofa (prófunarstofa), vottunarstofa og eftirlitsaðila fari fram samkvæmt settum reglum. Markmiðið er að sannreyna hæfni, kunnáttu og áreiðanleika viðkomandi.
   [10.]1) Framleiðsla er meðferð hráefnis, vinnsla, pökkun og matreiðsla. Hér er einnig átt við húsnæði, störf, hreinlæti og heilbrigði starfsfólks og annað sem tengist framleiðslu, svo og matvælasnertiefni, sbr. ákvæði IV. kafla.
   [11.]1) Frumframleiðsla er framleiðsla, eldi eða ræktun undirstöðuafurða ásamt uppskeru, mjöltum og eldi dýra fram að slátrun. Frumframleiðsla tekur einnig til dýra og fiskveiða og nýtingar villigróðurs.
   [12.]1) Fæðubótarefni eru matvæli sem eru ætluð sem viðbót við venjulegt fæði og eru með hátt hlutfall af vítamínum, steinefnum eða annars konar efnum sem hafa næringar- eða lífeðlisfræðileg áhrif.
   [13.]1) Hráefni eru öll efni, önnur en bætiefni, aukefni, bragðefni og varnarefni, sem notuð eru við framleiðslu matvæla.
   [14.]1) Innra eftirlit er eftirlit á vegum framleiðanda eða dreifanda í þeim tilgangi að tryggja gæði, öryggi og hollustu vörunnar.
   [15.]1) Kjötmatsmaður er hver sá sem hefur fengið viðurkenningu ráðuneytisins.
   [16. Lífræn framleiðsla og tengd vottun er notkun framleiðsluaðferða, þ.m.t. á aðlögunartímanum, á öllum stigum framleiðslu, vinnslu og dreifingar í samræmi við reglugerð (ESB) 2018/848, svo sem kveðið er á um í reglugerð sem ráðherra setur með heimild skv. 31. gr. a.]1)
   [17.]1) Markaðssetning er að hafa umráð yfir matvælum með sölu fyrir augum, þ.m.t. að bjóða þau til sölu eða afhendingar í öðru formi, gegn gjaldi eða endurgjaldslaust, og sjálf salan, dreifingin eða önnur form afhendingar.
   [18.]1) Matvælafyrirtæki er fyrirtæki eða einstaklingur sem rekur starfsemi í tengslum við framleiðslu, vinnslu eða dreifingu matvæla á einhverju stigi, hvort sem það starfar í ágóðaskyni eður ei, og hvort sem það er einkarekið eða opinbert fyrirtæki.
   [19.]1) Matvælasnertiefni eru allar umbúðir, ílát, áhöld, tækjabúnaður, borðbúnaður og öll efni sem slíkir hlutir eru samsettir úr og geta komist í snertingu við matvæli.
   [20.]1) Matvæli eru hvers konar efni eða vörur, hvort sem þau eru fullunnin, unnin að hluta eða óunnin, sem fólki er ætlað að neyta eða sem eðlilegt er að vænta að fólk neyti. Hugtakið tekur einnig til drykkja, tyggigúmmís og hvers kyns efna, þ.m.t. neysluvatns, sem bætt er af ásettu ráði í matvæli við framleiðslu þeirra, vinnslu eða meðferð, svo og fæðubótarefna.
   [21.]1) Neysluvatn er vatn í upphaflegu ástandi eða eftir meðhöndlun, án tillits til uppruna þess og hvort sem það kemur úr dreifikerfi, tönkum, flöskum eða öðrum ílátum, og er ætlað til neyslu eða matargerðar, einnig allt vatn sem notað er í matvælafyrirtækjum, nema unnt sé að sýna fram á að gæði þess vatns sem notað er hafi ekki áhrif á heilnæmi framleiðslunnar.
   [22.]1) Neytandi er sá sem notar matvæli ekki sem lið í rekstri eða starfsemi matvælafyrirtækis.
   [23.]1) Opinber dýralæknir er héraðsdýralæknir eða annar dýralæknir samkvæmt ákvörðun Matvælastofnunar sem annast opinbert eftirlit.
   [24.]1) Opinberir eftirlitsaðilar eru Matvælastofnun eða heilbrigðisnefndir sveitarfélaga í samræmi við 6. og 22. gr.
   [25.]1) Opinbert eftirlit er eftirlit á vegum stjórnvalda í þeim tilgangi að tryggja að framfylgt sé ákvæðum laga og reglna um matvæli og stuðla að fræðslu og upplýsingamiðlun.
   [26.]1) Rekjanleiki er sá möguleiki að rekja uppruna og feril matvæla, dýra sem gefa af sér afurðir til manneldis og matvælasnertiefna sem nota á eða vænst er að notuð verði í gegnum öll stig framleiðslu, vinnslu og dreifingar.
   [27.]1) Rekstraraðili er einstaklingur eða lögaðili sem er ábyrgur fyrir því að farið sé að kröfum samkvæmt lögum og stjórnvaldsfyrirmælum um matvæli í matvælafyrirtækjum undir hans stjórn. Stjórnandi matvælafyrirtækis telst rekstraraðili þess.
   [28.]1) Smásala er meðhöndlun og/eða vinnsla matvæla og geymsla þeirra á staðnum þar sem þau eru seld eða afhent neytanda, þ.m.t. dreifingarstöðvar, matsölufyrirtæki, mötuneyti starfsfólks, veitingahús og önnur samsvarandi matarþjónusta ásamt verslunum og dreifingarstöðvum stórmarkaða og heildsölumarkaðir.
   [29.]1) Stjórnandi matvælafyrirtækis er einstaklingur eða lögaðili sem er ábyrgur fyrir því að farið sé að kröfum samkvæmt lögum og stjórnvaldsfyrirmælum um matvæli í matvælafyrirtækjum undir hans stjórn.
   [30.]1) Umbúðir eru allar umbúðir sem umlykja eða hafa að geyma matvæli eða efni sem notuð eru við framleiðslu matvæla.
   [31.]1) Varnarefni eru efni sem notuð eru m.a. gegn illgresi, sveppum og meindýrum við framleiðslu og við geymslu matvæla.
   [32.]1) Önnur opinber starfsemi er starfsemi önnur en opinbert eftirlit sem opinberir eftirlitsaðilar, einstaklingar eða aðilar, sem hefur verið úthlutað tilteknum öðrum opinberum verkefnum, inna af hendi, svo sem veiting leyfa eða samþykkis og útgáfa opinberra vottorða eða opinberra staðfestinga.
   [33.]1) Örverur eru lífverur sem geta valdið skemmdum í matvælum eða verið heilsuspillandi vegna neyslu þeirra, en einnig eru tilteknar örverur notaðar við framleiðslu matvæla.]2)
   1)L. 51/2022, 2. gr. 2)L. 144/2019, 2. gr.

III. kafli. Stjórn og skipan.
5. gr.
[[Ráðherra]1) fer með yfirstjórn mála samkvæmt lögum þessum. Matvælastofnun er ráðherra til ráðgjafar.]2)
   1)L. 126/2011, 212. gr. 2)L. 167/2007, 34. gr.
6. gr.
[Matvælastofnun annast opinbert eftirlit samkvæmt lögum þessum með:
   a. [allri frumframleiðslu matvæla, annarra en matjurta],1)
   [b. innflutningi og útflutningi búfjárafurða,
   c. kjötvinnslum og kjötpökkunarstöðvum, að undanskildum kjötvinnslum sem starfræktar eru í smásöluverslunum,
   d. mjólkurstöðvum og eggjavinnslu.]2)
   [e.]2) smitsjúkdómum búfjár,
   [f.]2) meðferð, skoðun og mati á sláturafurðum,
   [g.]2) heilbrigðisskoðun eldisfisks,
   [h.]2) meðferð, flutningi, geymslu, vinnslu og dreifingu sjávarafurða, að undanskilinni smásölu,
   [i.]2) innflutningi annarra matvæla en getið er í [a–h-lið],2)
   [j. innflutningi [matvælasnertiefna]3)],4)
   [k. lífrænni framleiðslu, að undanskilinni smásölu].5)]6)
   1)L. 40/2016, 1. gr. 2)L. 143/2009, 4. gr. 3)L. 144/2019, 1. gr. 4)L. 143/2013, 1. gr. 5)L. 51/2022, 3. gr. 6)L. 167/2007, 35. gr.
7. gr.1)
   1)L. 167/2007, 36. gr.
8. gr.1)
   1)L. 167/2007, 37. gr.

IV. kafli. [Matvælaöryggi, framleiðsla, markaðssetning og rekjanleiki.]1)
   1)L. 143/2009, 10. gr.
[8. gr. a.
Óheimilt er að markaðssetja matvæli sem ekki eru örugg, þ.e. heilsuspillandi eða óhæf til neyslu.
Við ákvörðun um hvort matvæli séu örugg skal hafa hliðsjón í fyrsta lagi af því hvernig neytendur nota matvælin venjulega á hverju stigi framleiðslu og dreifingar og í öðru lagi af upplýsingum sem neytendum eru veittar, þ.m.t. upplýsingum á merkimiða, eða öðrum upplýsingum sem neytendur hafa almennt aðgang að, þar sem fram kemur hvernig þeir geti forðast tiltekin matvæli eða tiltekinn matvælaflokk sem getur haft skaðleg áhrif á heilsuna.
Við ákvörðun um hvort matvæli séu heilsuspillandi skal hafa hliðsjón í fyrsta lagi af líklegum, bráðum áhrifum og/eða skammtímaáhrifum og/eða langtímaáhrifum þessara matvæla á heilsu þeirra sem neyta þeirra og einnig á næstu kynslóðir, í öðru lagi líklegum, uppsöfnuðum eituráhrifum og í þriðja lagi sérstöku næmi ákveðins hóps neytenda fyrir tilteknum matvælum ef matvælin eru ætluð þeim hópi.
Við ákvörðun um hvort matvæli séu óhæf til neyslu skal hafa hliðsjón af því hvort matvælin séu óviðunandi til neyslu með tilliti til fyrirhugaðrar notkunar eða vegna mengunar eða vegna þess að þau eru rotin, spillt eða skemmd.
Stjórnandi matvælafyrirtækis, sbr. 8. gr. b, og opinberir eftirlitsaðilar samkvæmt lögum þessum skulu í störfum sínum tryggja eins og kostur er að ekki berist á markað matvæli sem geta valdið matarsjúkdómum. Til að tryggja ýtrasta matvælaöryggi og vernda líf og heilsu manna og dýra skal ráðherra setja reglugerð þar sem kveðið er almennt á um sýnatökur, vottorðagjöf og skilyrði markaðssetningar matvæla til að fyrirbyggja að þau geti valdið matarsjúkdómum.
[Óheimilt er að dreifa ómeðhöndluðum sláturafurðum alifugla á markaði nema sýnt sé fram á gagnvart opinberum eftirlitsaðilum að staðfest hafi verið með sýnatöku á eldistíma eða við slátrun að ekki hafi greinst kampýlóbakter í fuglunum. Nánar skal skilgreina í reglugerð hvað felst í meðhöndlun í skilningi ákvæðisins. Stjórnandi matvælafyrirtækis, sbr. 8. gr. b, skal leggja fram vottorð um niðurstöðu sýnatöku þess efnis að ekki hafi greinst kampýlóbakter í fuglunum á eldistímanum eða við slátrun eða sönnur fyrir viðeigandi meðferð sláturafurðanna sem leiðir til þess að magn kampýlóbakters minnki verulega eða hverfi. Ráðherra skal kveða nánar á um skilyrði samkvæmt ákvæði þessu í reglugerð.
Ráðherra er heimilt með reglugerð að kveða á um ráðstafanir í frumframleiðslu og dreifingu matvæla í því skyni að hefta útbreiðslu sýklalyfjaónæmra bakteríustofna.]1)]2)
   1)L. 93/2019, 6. gr. 2)L. 143/2009, 5. gr.
[8. gr. b.
Stjórnandi matvælafyrirtækis ber ábyrgð á að uppfylltar séu kröfur laga og stjórnvaldsreglna sem gilda um starfsemi þess á hverjum tíma. Stjórnandi ber ábyrgð á öllum stigum framleiðslu og dreifingar í fyrirtækjum undir hans stjórn og skal sannprófa að þessum kröfum sé fullnægt.]1)
   1)L. 143/2009, 5. gr.
[8. gr. c.
Ef stjórnandi matvælafyrirtækis álítur eða hefur ástæðu til að álíta að matvæli, sem hann hefur flutt inn, framleitt eða dreift, séu ekki í samræmi við kröfur um öryggi matvæla og hann hefur ekki lengur beint forræði yfir þeim skal hann tafarlaust gera ráðstafanir til að taka umrædd matvæli af markaðnum og tilkynna það hlutaðeigandi opinberum eftirlitsaðila. Ef varan er komin í hendur neytenda skal stjórnandinn upplýsa þá á skilvirkan og nákvæman hátt um ástæðurnar fyrir því að varan var tekin af markaðnum og, ef nauðsyn krefur, innkalla vörur sem neytendum hafa þegar verið afhentar ef aðrar ráðstafanir nægja ekki til þess að tryggja víðtæka heilsuvernd.
Álíti stjórnandi matvælafyrirtækis eða hafi hann ástæðu til að álíta að tiltekin matvæli, sem hann hefur markaðssett, geti verið heilsuspillandi skal hann þegar í stað tilkynna það hlutaðeigandi opinberum eftirlitsaðila. Stjórnendur skulu tilkynna yfirvöldum um aðgerðir til að fyrirbyggja hættu fyrir neytandann og jafnframt eiga allt það samstarf við yfirvöld sem dregið getur úr eða eytt áhættu vegna viðkomandi matvæla.]1)
   1)L. 143/2009, 5. gr.
9. gr.
[Matvælafyrirtæki skulu hafa starfsleyfi frá viðkomandi opinberum eftirlitsaðila, sbr. 20. gr., og skulu þau sækja um starfsleyfi áður en starfsemi hefst. [Matvælafyrirtæki sem annast frumframleiðslu matjurta þurfa ekki starfsleyfi en skulu tilkynna heilbrigðisnefnd um starfsemi sína. Matvælafyrirtæki sem stunda sauðfjár- eða hrossarækt þurfa ekki starfsleyfi en skulu tilkynna Matvælastofnun um starfsemi sína áður en hún hefst. [Matvælafyrirtæki sem stunda fiskveiðar sem eingöngu falla undir frumframleiðslu og eru með gilt veiðileyfi samkvæmt lögum um stjórn fiskveiða þurfa hvorki starfsleyfi né þurfa að tilkynna Matvælastofnun um starfsemi sína áður en hún hefst.]1) [Matvælafyrirtæki sem starfrækja fiskeldisstöðvar og eru með gilt rekstrarleyfi samkvæmt lögum um fiskeldi þurfa ekki starfsleyfi fyrir frumframleiðslu og er ekki skylt að tilkynna slíka framleiðslu til Matvælastofnunar áður en hún hefst.]2) Matvælafyrirtæki sem framleiða kapla-, geita- eða sauðamjólk skulu hafa starfsleyfi. Matvælafyrirtæki sem annast frumframleiðslu spíra skulu hafa starfsleyfi.]3)
Gefa skal út starfsleyfi …2) enda uppfylli starfsemin skilyrði laga og stjórnvaldsreglna sem um hana gilda. Óheimilt er að hefja starfsleyfisskylda starfsemi hafi starfsleyfi fyrir hana ekki verið gefið út. Stjórnanda ber að veita opinberum eftirlitsaðila upplýsingar um fyrirhugaðar breytingar á starfsemi sem varðað geta ákvæði starfsleyfis með hæfilegum fyrirvara. Opinberum eftirlitsaðila er heimilt að endurskoða starfsleyfi …2) vegna breyttra forsendna, svo sem ef breytingar verða á rekstrinum, vegna tækniþróunar eða breytinga á reglum um öryggi matvæla eða framkvæmd [opinbers eftirlits].4)
Þrátt fyrir 2. mgr. er heimilt að gefa út starfsleyfi til bráðabirgða þannig að matvælafyrirtæki gefist ráðrúm til nauðsynlegra úrbóta á starfsemi sinni enda sé um smávægilegar athugasemdir opinbers eftirlitsaðila að ræða.
Í starfsleyfi skal tilgreina stjórnanda og staðsetningu starfsemi, tegund hennar, skilyrði …2) og endurskoðun starfsleyfis, auk ákvæða um eftirlit, umgengni, hreinlæti og innra eftirlit eftir því sem við á hverju sinni.
Þrátt fyrir skilgreiningu á matvælafyrirtæki í 4. gr. er [Matvælastofnun]2) heimilt að undanskilja frá starfsleyfis- eða tilkynningarskyldu aðila sem halda búfé en ekki í ágóðaskyni en þeir skulu þó uppfylla önnur skilyrði þessara laga og stjórnvaldsreglna sem settar eru með heimild í þeim.
Í sérlögum er heimilt að kveða á um sérstök skilyrði fyrir útgáfu starfsleyfis fyrir starfsemi einstakra matvælafyrirtækja.
Ef einnig er kveðið á um starfs- eða vinnsluleyfisskyldu í sérlögum eða lögum um eftirlit með fóðri fyrir starfsemi sem fellur undir ákvæði þessara laga er opinberum eftirlitsaðila heimilt að gefa út eitt starfsleyfi á grundvelli hvorra tveggja laganna.]5)
   1)L. 144/2019, 4. gr. 2)L. 101/2020, 7. gr. 3)L. 40/2016, 2. gr. 4)L. 144/2019, 7. gr. 5)L. 143/2009, 6. gr.
10. gr.
[Matvælafyrirtæki skulu haga starfsemi sinni í samræmi við reglur um almenna hollustuhætti og tryggja að matvæli óhreinkist ekki eða spillist á annan hátt.
Stjórnendur matvælafyrirtækja bera ábyrgð á því að sett sé á fót og starfrækt innra eftirlit með starfseminni, byggt á meginreglum hættugreiningar, til að fyrirbyggja að matvæli geti valdið matarsjúkdómum og til þess að tryggja að matvæli séu að öðru leyti í samræmi við ákvæði laga þessara og reglugerða settra samkvæmt þeim. Innra eftirlit fyrirtækisins skal miðast við eðli og umfang starfseminnar og byggjast á reglum sem ráðherra ákveður í reglugerð. Starfsfólk, sem starfar við framleiðslu matvæla eða dreifir þeim, skal gæta hreinlætis við störf sín. Það skal hafa þekkingu á meðferð matvæla. Stjórnendur matvælafyrirtækja bera ábyrgð á að starfsfólkinu sé veitt fræðsla. Ráðherra er heimilt að setja reglur um að þeir sem starfa við framleiðslu og dreifingu matvæla skuli sækja námskeið um meðferð matvæla þar sem sérstök áhersla er lögð á innra eftirlit og öryggi matvæla. Ef opinberir aðilar annast námskeiðahald er heimilt að taka gjald sem nemur raunkostnaði við það.]1)
Þeim sem haldnir eru sjúkdómum, sem hætta er á að geti dreifst með matvælum, er óheimilt að starfa við meðferð matvæla. Eftirlitsaðilar, sbr. IX. kafla laganna, geta að höfðu samráði við landlækni gert kröfu um reglubundna heilsufarsskoðun starfsfólks. [Eftirlitsaðilar skulu einnig með öðrum hætti vinna að því að fyrirbyggja að matvæli geti valdið heilsutjóni og skulu grípa til viðeigandi ráðstafana ef vart verður við matarsjúkdóma eða smithættu.]2)
   1)L. 143/2009, 7. gr. 2)L. 169/2000, 1. gr.
11. gr.
Óheimilt er að hafa matvæli á boðstólum eða dreifa þeim þannig að þau blekki kaupanda að því er varðar uppruna, tegund, gæðaflokkun, samsetningu, magn, eðli eða áhrif. [Óheimilt er að flytja til landsins eða markaðssetja matvæli, þ.m.t. fæðubótarefni, sem innihalda lyf samkvæmt skilgreiningu lyfjalaga. Leiki vafi á því hvort einstök efnasambönd teljist lyf sker Lyfjastofnun úr.]1)
Ráðherra skal með reglugerð setja ákvæði um með hvaða hætti hafa má matvæli á boðstólum eða dreifa á annan hátt þannig að gefið sé í skyn að varan sé sérstaklega ætluð tilteknum hópum, með vísan til aldurs, sjúkdóma eða annarra ástæðna.
   1)L. 143/2009, 8. gr.
12. gr.
Matvæli, sem finnast á framleiðslustað eða í húsakynnum framleiðslustaðar, skulu talin framleidd þar nema annað verði sannað. Matvæli teljast jafnframt höfð á boðstólum á dreifingarstað ef þau er þar að finna.
Á sama hátt skulu efni, hlutir og annað, sem tengist framleiðslu matvæla, talin notuð við framleiðslu ef þau er að finna á framleiðslustað. Jafnframt telst slíkur varningur hafður á boðstólum á dreifingarstað ef hann er þar að finna.
Ákvæði greinarinnar eiga ekki við ef sannanlega er um sýni af tilbúinni vöru að ræða eða þegar eftirlitsaðila hefur verið tilkynnt um að unnið sé að vöruþróun.
13. gr.
Matvæli skal geyma þannig að þau verði ekki fyrir skemmdum eða spillist á annan hátt. Geymsluskilyrði skulu vera í samræmi við ákvæði sem sett eru með reglugerðum1) um geymslu matvæla og er framleiðandi eða eftir atvikum dreifandi ábyrgur fyrir geymslu vörunnar.
Eigandi eða umráðandi flutningatækis er ábyrgur fyrir því að tækið uppfylli þær kröfur sem settar eru um flutning matvæla.
[13. gr. a.
Á öllum stigum framleiðslu og dreifingar skal vera fyrir hendi möguleiki á að rekja feril matvæla, dýra sem gefa af sér afurðir til manneldis og hvers kyns efna sem nota á eða vænst er að verði notuð í matvæli.
Stjórnendur matvælafyrirtækja skulu geta tilgreint alla einstaklinga og lögaðila sem hafa afhent þeim matvæli, dýr sem gefa af sér afurðir til manneldis eða hvers kyns efni sem nota á eða vænst er að verði notuð í matvæli. Einnig skulu stjórnendur geta tilgreint fyrirtæki sem þeir hafa afhent vörur sínar. Í þessu skyni skulu umræddir stjórnendur hafa yfir að ráða kerfum og verklagsreglum til að gera framangreindar upplýsingar aðgengilegar opinberum eftirlitsaðilum að beiðni þeirra. Þá skulu matvæli vera merkt og auðkennd á viðeigandi hátt til að auðveldara verði að rekja feril þeirra með aðstoð viðeigandi skjala eða upplýsinga í samræmi við framangreindar kröfur.]1)
   1)L. 143/2009, 9. gr.

[IV. kafli A. Slátrun og sláturafurðir.]1)
   1)L. 144/2019, 5. gr.
[13. gr. b.
Sláturdýrum sem slátra á í því skyni að dreifa afurðum á markaði skal slátra í sláturhúsum með starfsleyfi. Í starfsleyfi skal tilgreind hámarksdagslátrun.
Eigendum búfjár er heimilt að slátra búfé sínu til eigin neyslu. Ráðherra er heimilt að setja reglur um töku og sendingu sýna til rannsókna úr þessum dýrum og afurðum samkvæmt tillögum Matvælastofnunar.
Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. er ráðherra heimilt að kveða nánar á um dreifingu sláturafurða á markað í reglugerð.]1)
   1)L. 144/2019, 5. gr.
[13. gr. c.
Heilbrigðisskoðun skal fara fram á öllum sláturdýrum áður en slátrað er í sláturhúsum.]1)
   1)L. 144/2019, 5. gr.
[13. gr. d.
Sláturdýr mega ekki vera haldin sjúkdómi né bera leifar lyfja eða annarra aðskotaefna sem geta verið hættuleg heilsu neytenda.
Ráðherra er heimilt að setja reglur um í hvaða tilvikum og hvernig skuli staðið að slátrun á slösuðum dýrum utan sláturhúsa að fengnum tillögum frá Matvælastofnun. Óheimilt er að koma með sýnilega sjúk dýr í sláturhús til förgunar. Auk þess er óheimilt að flytja sjálfdauðar skepnur og afurðir af þeim í sláturhús, kjötgeymslur og kjötvinnslustöðvar.
Sláturdýr sem komin eru í sláturhúsrétt má ekki flytja þaðan til lífs heldur skal þeim slátrað, nema til komi leyfi Matvælastofnunar.
Í reglugerð skal nánar kveðið á um:
   a. rannsóknir og eftirlit með sláturdýrum til að tryggja heilnæmi og heilbrigði afurðanna,
   b. söfnun gagna og nauðsynlega sýnatöku úr sláturdýrum á lögbýlum til að kanna útbreiðslu sjúkdóma, smitefna og aðskotaefna, þ.m.t. vaxtaraukandi efna,
   c. hvernig hátta skal sýnatöku úr sláturafurðum varðandi örverumengun, lyfjaleifar, vaxtaraukandi efni og önnur aðskotaefni,
   d. geymslu, meðferð og ráðstöfun á sýktum sláturafurðum og sláturúrgangi.]1)
   1)L. 144/2019, 5. gr.
[13. gr. e.
Opinber dýralæknir annast heilbrigðisskoðun og sér um að fram fari merking á sláturafurðum. Heimilt er að fela öðrum heilbrigðisskoðun sem hafa til þess næga þekkingu og þjálfun enda starfi þeir undir eftirliti og á ábyrgð opinbers dýralæknis.]1)
   1)L. 144/2019, 5. gr.
[13. gr. f.
Kjötmatsmenn skulu meta allar sláturafurðir sem dreift er á markað. Þær skulu flokkaðar og merktar eftir tegundum og gæðum samkvæmt reglugerð. Kjötmatsmenn gæta þess, í samvinnu við opinbera dýralækna, að reglum um slátrun og sláturhús sé fylgt, einkum að því er varðar hreinlega og góða meðferð sláturafurða. Sláturleyfishafar greiða allan kostnað af starfi kjötmatsmanna.
Heimilt er að óska eftir yfirmati á sláturafurðum og skal rökstudd beiðni þar um send Matvælastofnun.
Um störf og skyldur kjötmatsmanna skal kveðið á með reglugerð sem ráðherra setur að höfðu samráði við hagsmunaaðila.
Matvælastofnun samræmir mat og flokkun á sláturafurðum. Matvælastofnun getur einnig, eftir því sem þörf er á, gert athugun á sláturafurðum sem ætlaðar eru til dreifingar innan lands eða á erlendan markað.
Til að standa straum af kostnaði við yfirmat samkvæmt lögum þessum skal innheimta sérstakt gjald. Gjald þetta, sem sláturleyfishafar greiða, skal vera 0,55 kr. á hvert kíló kjöts sem innvegið er í sláturhúsi. Ráðherra er heimilt að kveða nánar á um innheimtu gjaldsins með reglugerð.
Ráðherra setur reglugerð um gæðamat, flokkun og merkingu á sláturafurðum að fengnum tillögum Matvælastofnunar.
[Ráðherra er heimilt með setningu reglugerðar að víkja frá ákvæðum 1.–6. mgr. varðandi mat sláturafurða sem framleiddar eru í litlum sláturhúsum.]1)]2)
   1)L. 71/2021, 39. gr. 2)L. 144/2019, 5. gr.

[IV. kafli B. Lífræn framleiðsla.]1)
   1)L. 51/2022, 4. gr.
[13. gr. g.
Óheimilt er að nota hvers kyns orð, orðmyndir, hugtök, myndir eða tákn sem vísa til lífrænnar framleiðslu á merkingum umbúða, í auglýsingaefni eða viðskiptaskjölum nema framleiðslan uppfylli skilyrði í reglugerð um lífræna framleiðslu og hafi hlotið vottun til notkunar á vörumerki til lífrænnar framleiðslu frá lögbæru yfirvaldi eða vottunarstofu, sbr. 23. gr.]1)
   1)L. 51/2022, 4. gr.
[13. gr. h.
Um tíðni eftirlits með lífrænni framleiðslu gilda ákvæði reglugerðar sem ráðherra setur, sbr. 1. mgr. 31. gr. a.]1)
   1)L. 51/2022, 4. gr.
[13. gr. i.
Heimilt er að fella tímabundið úr gildi eða afturkalla vottorð um lífræna framleiðslu að hluta eða í heild þegar ekki er farið eftir ákvæðum reglugerða um lífræna framleiðslu og notkun framleiðsluaðferða sem ráðherra setur, sbr. 5. mgr. 31. gr. a.]1)
   1)L. 51/2022, 4. gr.

V. kafli. Umbúðir og merking þeirra.
14. gr.
[Heilbrigðisnefnd hefur opinbert eftirlit með framleiðslu og dreifingu [matvælasnertiefna],1) að undanskildum innflutningi, sbr. 6. gr.
Þeir sem framleiða eða flytja inn [matvælasnertiefni]1) skulu tilkynna heilbrigðisnefnd um starfsemi sína áður en hún hefst.
Þeim sem framleiða, flytja inn eða dreifa [matvælasnertiefnum]1) er skylt að gæta þess á öllum stigum að vörur þeirra spilli ekki þeim matvælum sem þær eru ætlaðar fyrir þannig að þau stofni heilbrigði manna í hættu, gæði þeirra rýrni eða matvælin teljist óneysluhæf. Matvælaframleiðendur bera sömu skyldur. Ráðherra er heimilt að setja reglugerð2) um efnainnihald og viðmiðunarmörk fyrir [matvælasnertiefni].1)
Rekjanleika [matvælasnertiefna]1) skal tryggja á öllum stigum. Ráðherra er heimilt með reglugerð að setja nánari ákvæði um skyldu framleiðenda, innflutningsaðila og dreifingaraðila til að hafa kerfi og verklagsreglur sem tryggja rekjanleika [matvælasnertiefna]1) til að auðvelda eftirlit, innköllun gallaðra vara, miðlun upplýsinga til neytenda og matvælaframleiðenda og til að ákvarða ábyrgð á hinni gölluðu vöru.
Þegar eftirlitsaðili hefur rökstudda ástæðu til að ætla að þeir sem framleiða, flytja inn eða dreifa [matvælasnertiefnum]1) hafi brotið gegn skyldum sínum skv. 3. mgr. er eftirlitsaðila heimilt að takmarka eða stöðva dreifingu viðkomandi vöru. Sama á við þegar eftirlitsaðili á grundvelli nýrra upplýsinga eða endurmats á fyrirliggjandi upplýsingum hefur rökstudda ástæðu til að ætla að notkun [matvælasnertiefna]1) stofni heilbrigði manna í hættu, valdi óviðunandi breytingum á samsetningu matvæla, spilli skynmatseiginleikum þannig að matvælin teljist óneysluhæf eða rýri gæði þeirra á annan hátt.]3)
   1)L. 144/2019, 1. gr. 2)Rg. 398/2008. Rg. 698/2008. Rg. 34/2009. 3)L. 143/2013, 2. gr.
15. gr.
Matvælaumbúðir skulu merktar með nafni og heimilisfangi framleiðanda matvælanna eða dreifanda þeirra. Þá skal heiti vörunnar koma fram ásamt upplýsingum um innihald, geymsluskilyrði, geymsluþol og nettóþyngd eða lagarmál.
Ráðherra er heimilt með reglugerð1) að setja nánari ákvæði um umbúðamerkingar þar sem m.a. koma fram kröfur um að á umbúðum séu upplýsingar um styrk einstakra efna, næringarefnagildi, ástand vöru og þá meðhöndlun sem vara hefur fengið í framleiðslu. Enn fremur er ráðherra heimilt að undanþiggja tilteknar vörutegundir eða vöruflokka einstökum ákvæðum um umbúðamerkingar.
   1)Rg. 1294/2014, sbr. 138/2015 og 181/2015. Rg. 684/2015, sbr. 948/2015. Rg. 482/2017.

VI. kafli. Sérreglur um efnainnihald.
16. gr.
Ráðherra er heimilt með reglugerð1) að setja ákvæði um heiti, framleiðslu og samsetningu matvæla, þegar slíkt er talið nauðsynlegt, til að stuðla að heilbrigði eða til að tryggja hagsmuni framleiðenda og neytenda.
Þegar vöruheiti er bundið við tiltekna vörutegund samkvæmt þessari grein er ekki heimilt að nota sama heiti á aðrar vörur eða veita einhverjar þær upplýsingar sem gætu orðið til þess að neytendur villtust á vörunni og öðrum vörum sem hafa annan uppruna eða aðra samsetningu.
   1)Rg. 674/1998. Rg. 542/2000, sbr. 667/2002. Rg. 605/2000, sbr. 519/2009. Rg. 520/2009, sbr. 401/2014.
17. gr.
Ráðherra skal með reglugerðum1) setja ákvæði um notkun aukefna, bragðefna, varnarefna og bætiefna við framleiðslu matvæla og um leyfilegt magn aðskotaefna í matvælum.
Óheimilt er að nota vaxtaraukandi efni til framleiðslu á matvælum, nema til þess hafi verið veitt sérstök undanþága í reglugerð.
[Í matvæli til dreifingar hér á landi og í öðrum EES-ríkjum má einungis nota þau aukefni sem lög og stjórnvaldsreglur leyfa og í því magni sem þar er heimilað. Í matvæli sem ætluð eru til útflutnings til ríkis utan Evrópska efnahagssvæðisins má einungis nota þau aukefni og í því magni sem leyft er í viðkomandi ríki.]2)
   1)Rg. 587/1993, sbr. 305/2001 og 848/2003. Rg. 526/2006, sbr. 855/2007. 2)L. 144/2019, 6. gr.

VII. kafli. [Framkvæmd, neytendavernd og fræðslustarfsemi.]1)
   1)L. 143/2009, 12. gr.
18. gr.
Til þess að tryggja framkvæmd laga þessara setur [ráðherra]1) reglugerð2) um atriði sem lög þessi ná til. Þar skal m.a. kveðið nánar á um framleiðslu og dreifingu matvæla, efnainnihald, viðmiðunarmörk fyrir örverur, umbúðir, [opinbert eftirlit]3) og matvælarannsóknir.
   1)L. 167/2007, 38. gr. 2)Rg. 557/1993, sbr. 1183/2007. Rg. 587/1993, sbr. 305/2001, 848/2003, 413/2005, 1316/2008 og 906/2008. Rg. 392/1995, sbr. 983/2011 og 472/2017. Rg. 674/1998, sbr. 596/2008. Rg. 542/2000, sbr. 667/2002. Rg. 605/2000, sbr. 519/2009. Rg. 341/2001, sbr. 1013/2001 og 163/2003. Rg. 536/2001, sbr. 570/2018. Rg. 798/2002. Rg. 288/2003, sbr. 479/2017. Rg. 366/2003. Rg. 502/2003. Rg. 656/2003. Rg. 661/2003. Rg. 662/2003. Rg. 736/2003, sbr. 860/2003, 410/2004, 563/2005, 236/2007, 268/2010 og 883/2010. Rg. 846/2003. Rg. 405/2004, sbr. 1097/2004. Rg. 411/2004, sbr. 56/2005 og 269/2010. Rg. 425/2004. Rg. 624/2004, sbr. 684/2005, 399/2007, 651/2012, 209/2016, 211/2021 og 1284/2021. Rg. 331/2005. Rg. 439/2005. Rg. 508/2005. Rg. 439/2006. Rg. 526/2006, sbr. 566/2007 og 855/2007. Rg. 555/2006. Rg. 237/2007. Rg. 1289/2007. Rg. 1307/2007. Rg. 398/2008. Rg. 568/2008, sbr. 396/2013 og 466/2016. Rg. 618/2008, sbr. 1363/2021. Rg. 672/2008, sbr. 1089/2008, 753/2017, 981/2017, 322/2018, 1374/2021 og 1446/2022. Rg. 697/2008. Rg. 698/2008. Rg. 790/2008. Rg. 925/2008. Rg. 34/2009. Rg. 489/2009, sbr. 533/2018. Rg. 520/2009, sbr. 1042/2009 og 401/2014. Rg. 708/2009. Rg. 104/2010, sbr. 850/2012, 352/2013, 463/2014 og 1081/2019. Rg. 172/2010. Rg. 865/2010. Rg. 570/2012, sbr. 760/2012. Rg. 851/2012, sbr. 1201/2016. Rg. 220/2013. Rg. 221/2013. Rg. 271/2013. Rg. 272/2013. Rg. 273/2013. Rg. 975/2013, sbr. 1074/2016. Rg. 560/2014, sbr. 840/2014, 480/2015, 707/2015, 811/2015, 1031/2015, 188/2016, 259/2016, 915/2016, 906/2017, 1076/2018, 277/2019, 1337/2019, 59/2020, 207/2020, 233/2020, 333/2020, 839/2020, 996/2020, 1344/2020, 12/2021, 152/2021, 231/2021, 406/2021, 475/2021 og 579/2021. Rg. 167/2015, sbr. 354/2015, 956/2015, 12/2016, 412/2016, 480/2016, 1047/2016, 330/2017, 464/2017, 470/2017, 743/2017, 357/2018, 173/2019, 513/2019, 788/2019, 1149/2020, 207/2021, 536/2021, 1287/2021, 1246/2023 og 1503/2023. Rg. 170/2015. Rg. 187/2016. Rg. 315/2017. Rg. 811/2018. Rg. 520/2019. Rg. 486/2020. Rg. 487/2020, sbr. 1039/2022. Rg. 488/2020. Rg. 490/2020. Rg. 501/2020. Rg. 502/2020, sbr. 8/2021. Rg. 503/2020. Rg. 504/2020. Rg. 506/2020. Rg. 507/2020, sbr. 733/2020, 1343/2020, 474/2021, 57/2022, 1037/2022, 146/2023 og 153/2024. Rg. 508/2020. Rg. 509/2020, sbr. 15/2021, 269/2021 og 528/2021. Rg. 516/2020. Rg. 16/2021. Rg. 580/2021, sbr. 61/2022, 383/2022, 443/2022, 524/2022, 525/2022, 711/2022, 927/2022, 1031/2022, 1143/2022, 1236/2022, 1393/2022, 1547/2022, 261/2023, 1125/2023, 1201/2023, 1307/2023, 1678/2023, 130/2024, 152/2024, 161/2024, 218/2024, 235/2024, 349/2024, 385/2024, 386/2024, 450/2024 og 450/2024. Rg. 581/2021, sbr. 453/2022, 715/2022, 1202/2023 og 162/2024. Rg. 637/2021, sbr. 1548/2022 og 1123/2023. Rg. 1377/2021, sbr. 708/2022 og 1041/2022. Rg. 454/2022, sbr. 721/2022, 1032/2022, 1472/2022, 262/2023, 262/2023, 1124/2023, 1713/2023 og 236/2024. Rg. 1607/2022, sbr. 1166/2023. 3)L. 144/2019, 7. gr.
[18. gr. a.
Leitast skal við að vernda hagsmuni neytenda og gefa neytendum kost á upplýstu vali með tilliti til matvælanna sem þeir neyta. Þannig skal leitast við að fyrirbyggja framleiðslu og markaðssetningu svikinna matvæla, sviksamlegar eða villandi starfsvenjur og aðrar starfsvenjur sem gætu villt um fyrir neytendum.
Óheimilt er að villa um fyrir neytendum með merkingu, auglýsingu og framsetningu matvæla, þ.m.t. lögun þeirra, útliti eða umbúðum og umbúðaefni, hvernig þeim er fyrir komið og í hvaða umhverfi þau eru sýnd, sem og upplýsingum sem eru veittar um þau.]1)
   1)L. 143/2009, 11. gr.
[18. gr. b.
Ráðherra er heimilt með reglugerð1) að setja ákvæði um að matvælafyrirtæki geti merkt matvæli sem þau framleiða eða dreifa með viðurkenndri áherslumerkingu sem gefi til kynna að matvælin séu í samræmi við stefnu stjórnvalda um manneldismarkmið, af miklum gæðum eða hafi önnur sameiginleg einkenni.
Í reglugerðinni skal kveðið á um gerð merkinga og hvaða kröfur eru gerðar fyrir notkun þeirra, í hvaða tilgangi heimilt sé að nota þær, gæðaviðmið, kröfur til framleiðslu og verkunar, hvernig eftirliti skuli háttað, ábyrgð matvælafyrirtækja, skráningu, kostnað við eftirlit og annað er varðar notkun þeirra.
Við undirbúning setningar reglugerðar skal ráðherra leita álits landlæknisembættisins.]2)
   1)Rg. 333/2021. 2)L. 19/2012, 1. gr.
19. gr.
[Matvælastofnun skal sjá um að halda uppi fræðslu fyrir almenning um þau málefni sem lög þessi ná til. Jafnframt skal stofnunin vinna að eflingu fræðslustarfs fyrir þá sem starfa við framleiðslu og dreifingu matvæla og veita ráðgjöf við gerð námsefnis fyrir kennslu um matvæli og meðferð þeirra, sbr. 2. mgr.]1)
[Það ráðuneyti er fer með fræðslumál]2) setur ákvæði í námskrá eftir því sem við á um kennslu í matreiðslu, örverufræði, matvælafræði, næringarfræði og um neytendamálefni, hefur eftirlit með fræðslunni og fylgist með því að fullnægjandi aðstaða sé fyrir hendi.
   1)L. 167/2007, 39. gr. 2)L. 126/2011, 212. gr.

VIII. kafli. Leyfisveitingar.
20. gr.
[Framleiðsla og dreifing matvæla er háð leyfi heilbrigðisnefndar skv. 9. gr. Þegar ákvæði þessi eiga við um starfsemi sem er undir opinberu eftirliti Matvælastofnunar skv. 6. gr. er leyfisveiting í höndum þeirrar stofnunar.]1)
Leyfisveiting og endurnýjun leyfa er háð því að eftirlits- og leyfisgjald hafi verið greitt, sbr. og 25. og 26. gr., og leyfi til framleiðslu og dreifingar matvæla má fella úr gildi ef sá sem slíkt leyfi hefur gerist sekur um ítrekuð eða alvarleg brot á lögum þessum, reglugerðum eða fyrirmælum settum samkvæmt þeim.
Þeir sem annast leyfisveitingu geta endurskoðað veitt leyfi ef framleiðandi eða dreifandi ráðgerir að taka í notkun framleiðslutækni sem ekki hefur áður verið almennt í notkun og skal viðkomandi eftirliti tilkynnt um slíkar fyrirætlanir.
   1)L. 143/2009, 13. gr.
21. gr.1)
   1)L. 167/2007, 41. gr.

IX. kafli. [Opinbert eftirlit.]1)
   1)L. 144/2019, 12. gr.
22. gr.
[Heilbrigðisnefnd hefur undir yfirumsjón Matvælastofnunar opinbert eftirlit með framleiðslu og dreifingu matvæla. Matvælastofnun hefur þó opinbert eftirlit með matvælum sem falla undir ákvæði 6. gr. Matvælastofnun skráir nauðsynlegar upplýsingar um framleiðslu og dreifingu matvæla vegna [opinbers eftirlits].1) Matvælastofnun skal hafa aðgang að niðurstöðum úr sýnatökum heilbrigðisnefnda sveitarfélaganna. Þá er ráðherra heimilt að fela stofnuninni eftirlit með afmörkuðum þáttum.]2)
[Ef bæði Matvælastofnun og heilbrigðisnefnd hafa eftirlitsskyldur með sama matvælafyrirtæki, sbr. 1. mgr. þessarar greinar, skal ráðherra úrskurða [um verkaskiptingu framangreindra stjórnvalda um opinbert eftirlit og leyfisveitingar skv. 20. gr.]3)
Opinberum eftirlitsaðilum er heimilt að fela hver öðrum að annast tiltekin verkefni sem eru á verksviði þessara aðila samkvæmt lögum þessum.
Flutningur verkefna skv. 3. mgr. getur einnig tekið til ákvarðana um þvingunarúrræði og viðurlög skv. 30. gr. og 30. gr. a – 30. gr. d og gjaldtöku fyrir eftirlitið skv. 25. gr.
Ráðherra setur í reglugerð nánari ákvæði um framkvæmd framsals á eftirliti.
[Opinbert eftirlit]1) skal m.a. byggjast á áhættugreiningu og skal áhættumat unnið á hlutlausan og gagnsæjan hátt á grundvelli vísindalegra upplýsinga og gagna. Í þessum tilgangi skipar ráðherra ráðgefandi nefnd sem veitir vísindalega ráðgjöf um áhættumat að beiðni ráðherra eða Matvælastofnunar. …3)
[Tíðni opinbers eftirlits skal vera regluleg og í réttu hlutfalli við áhættu, að teknu tilliti til niðurstaðna úr eftirliti og samkvæmt eftirlitsáætlunum. Eftirlitsaðilar skulu áhættuflokka matvælafyrirtæki og flokka þau eftir frammistöðu samkvæmt niðurstöðum úr eftirliti. Ráðherra setur í reglugerð nánari ákvæði um slíka flokkun. Heimilt er að draga úr tíðni eftirlits hjá matvælafyrirtæki sem hefur vottun frá faggiltum aðila um að innra eftirlit fyrirtækisins uppfylli kröfur laga og reglna. [Um tíðni eftirlits með lífrænni vottun gilda ákvæði 13. gr. h.]4)]3)
Matvælastofnun hefur yfirumsjón með [opinberu eftirliti]1) og skal sjá um að vöktun og rannsóknir vegna þessa eftirlits séu framkvæmdar. Í yfirumsjón felst samræming [opinbers eftirlits]1) þannig að framkvæmdin sé með sama hætti á landinu öllu.
Matvælastofnun skal koma á samvinnu þeirra er að málum þessum starfa og skal í slíkum tilvikum sérstaklega gæta að hagkvæmni í eftirliti og fyrirbyggja tvíverknað og skörun eftir því sem frekast er unnt. Stofnunin skal hafa nána samvinnu við heilbrigðisnefndir og heilbrigðisfulltrúa og veita þá ráðgjöf og þjónustu varðandi [opinbert eftirlit]1) sem hún getur og aðstæður krefjast. [Matvælastofnun og heilbrigðisnefndir sveitarfélaga skulu halda sameiginlega fundi reglulega og eigi sjaldnar en tvisvar á ári.]5) Þá skal stofnunin vinna að samræmingu krafna sem gerðar eru til starfsemi á sviði [opinbers eftirlits]1) og að því að slíkum kröfum sé framfylgt. Til þess að stuðla sem best að því að þessu markmiði verði náð gefur stofnunin út leiðbeiningar og viðmiðunarreglur um framkvæmdina sem heilbrigðisnefndum ber að fylgja.]6)
[Heilbrigðisnefndir sveitarfélaga skulu skrá og birta upplýsingar um [opinbert eftirlit]1) með sama hætti og Matvælastofnun gerir á grundvelli þessara laga og reglugerða um þau efni sem settar eru samkvæmt lögunum.]5)
[Að fenginni tillögu Matvælastofnunar er ráðherra heimilt að fela stofnuninni að annast framkvæmd sýnatöku hjá matvælafyrirtækjum, sbr. 4. gr.]7)
   1)L. 144/2019, 7. gr. 2)L. 167/2007, 42. gr. 3)L. 144/2019, 8. gr. 4)L. 51/2022, 5. gr. 5)L. 33/2018, 1. gr. 6)L. 143/2009, 14. gr. 7)L. 93/2019, 7. gr.
23. gr.
[[Opinberum eftirlitsaðilum er heimilt að fela aðilum sem hlotið hafa faggildingu samkvæmt lögum um faggildingu og einstaklingum að annast tiltekin verkefni við framkvæmd opinbers eftirlits samkvæmt lögum þessum og skal gerður um það sérstakur samningur í hverju tilviki. Auk þess er opinberum eftirlitsaðilum heimilt að tilnefna rannsóknastofur með faggildingu til að framkvæma greiningar og prófanir. Aðilar sem falin hafa verið slík verkefni skulu bundnir þagnarskyldu um það sem þeir fá vitneskju um við framkvæmd eftirlitsins og leynt á að fara. Ráðherra setur reglugerð sem kveður á um úthlutun aðila og tilnefningu rannsóknastofa.]1)
Faggiltir aðilar skulu rækja eftirlit sitt á vegum opinbers eftirlitsaðila sem fylgist með starfi þeirra og sannreynir að þeir ræki skyldur sínar á fullnægjandi hátt, enda skulu þeir veita honum upplýsingar um starfsemi og ástand fyrirtækja á þann hátt sem hann ákveður.
Verði misbrestur á að hinir faggiltu aðilar ræki almennt skyldur sínar samkvæmt samningi sínum við opinberan eftirlitsaðila, vanræki þeir upplýsingaskyldu sína eða gefi rangar upplýsingar veitir hann þeim áminningu eða riftir við þá samningi ef sakir eru miklar.
Ráðherra setur með reglugerð nánari ákvæði um skilyrði og störf faggiltra aðila samkvæmt lögum þessum og enn fremur um gerð samninga.
Jafnframt getur ráðherra sett reglur um hvernig innra eftirlit matvælafyrirtækja, sem starfrækt er samkvæmt vottuðu gæðakerfi, getur verið þáttur í [opinberu eftirliti].2)
Þá er ráðherra heimilt að ákveða að tilteknar rannsóknastofur, sem hlotið hafa faggildingu á viðkomandi rannsóknar- eða prófunarsviði, skuli vera tilvísunarrannsóknastofur.]3)
   1)L. 144/2019, 9. gr. 2)L. 144/2019, 7. gr. 3)L. 143/2009, 15. gr.
[23. gr. a.
Opinberum eftirlitsaðilum er heimilt að úthluta tilteknum opinberum verkefnum til einstaklinga eða til lögaðila þegar um er að ræða verkefni sem tengjast annarri opinberri starfsemi. Ráðherra skal kveða nánar á um skilyrði samkvæmt ákvæði þessu í reglugerð.]1)
   1)L. 144/2019, 10. gr.
24. gr.
[Opinbert eftirlit skal fara fram án þess að tilkynnt sé um það fyrir fram nema rök séu fyrir hendi um mikilvægi slíkrar tilkynningar áður en eftirlitið er framkvæmt. Fari eftirlitið fram að beiðni matvælafyrirtækis hefur opinber eftirlitsaðili heimild til þess að taka ákvörðun um hvort eftirlitið verði framkvæmt að undangenginni tilkynningu eða ekki.
Matvælafyrirtækjum er skylt að láta opinberum eftirlitsaðilum og þeim sem sinna annarri opinberri starfsemi endurgjaldslaust í té nauðsynleg sýni til rannsókna og veita þeim allar upplýsingar sem nauðsynlegar teljast við framkvæmd eftirlitsins. Jafnframt er skylt að veita óhindraðan aðgang til opinbers eftirlits eða annarrar opinberrar starfsemi að þeim stöðum þar sem framleiðsla eða dreifing matvæla á sér stað að því marki sem nauðsynlegt er vegna framkvæmdar opinbers eftirlits eða annarrar opinberrar starfsemi. Að því marki sem nauðsynlegt er vegna framkvæmdar opinbers eftirlits eða annarrar opinberrar starfsemi skal stjórnandi matvælafyrirtækis veita opinberum eftirlitsaðila eða aðila sem sinnir annarri opinberri starfsemi aðgang að:
   a. búnaði, tækjum sem nýtt eru til flutninga, athafnasvæðum sem og öðrum stöðum undir stjórn matvælafyrirtækis og umhverfi þeirra,
   b. tölvuvæddum upplýsingastjórnunarkerfum matvælafyrirtækis,
   c. dýrum og vörum undir stjórn matvælafyrirtækis,
   d. skjölum og öðrum upplýsingum sem máli skipta,
   e. upplýsingum um heiti matvælafyrirtækis og félagsform og
   f. upplýsingum um starfsemi matvælafyrirtækis, þ.m.t. starfsemi sem fer fram með fjarsamskiptamiðlum, og staði sem eru undir stjórn matvælafyrirtækis.
Eftirlitsaðilar eru bundnir þagnarskyldu um atriði sem varða framleiðslu- og verslunarleynd sem þeir kunna að komast að við leyfisveitingar, sbr. VIII. kafla, og framkvæmd eftirlits.
Heilbrigðisnefnd, aðilar sem hafa faggildingu og fara með tiltekin eftirlitsverkefni og matvælafyrirtæki skulu tilkynna Matvælastofnun ef gögn sem þessir aðilar hafa undir höndum eða aðrar ástæður benda til hættu á heilsutjóni vegna neyslu matvæla. Sama tilkynningarskylda á við um þá sem starfa við rannsóknir og greiningu ef þeir greina í sýnum úr matvælum eða umhverfi matvælafyrirtækja örverur sem geta valdið sjúkdómum í mönnum sem eru tilkynningarskyldir samkvæmt ákvæðum sóttvarnalaga eða reglna settra með stoð í þeim lögum.]1)
   1)L. 144/2019, 11. gr.

X. kafli. Rekstrarkostnaður og gjaldtaka.
25. gr.
[[Fyrir eftirlit samkvæmt lögum þessum skulu matvælafyrirtæki eða þeir sem framleiða, flytja inn eða dreifa matvælasnertiefnum greiða eftirlitsgjald sem ekki er hærra en nemur raunkostnaði við eftirlitið til að standa straum af eftirtöldum kostnaðarþáttum við það:
   a. launum starfsfólks og launatengdum kostnaði, þ.m.t. aðstoðar- og skrifstofufólks sem tekur þátt í framkvæmd opinbers eftirlits,
   b. kostnaði við aðstöðu og búnað, þ.m.t. viðhalds- og tryggingakostnaði og öðrum tengdum kostnaði,
   c. kostnaði við rekstrarvörur og áhöld,
   d. kostnaði við þjónustu sem aðilar, sem hafa fengið úthlutað tilteknum opinberum eftirlitsverkefnum, gjaldfæra á opinbera eftirlitsaðila vegna opinbers eftirlits,
   e. kostnaði við þjálfun starfsfólks, sem um getur í a-lið, að undanskilinni þjálfun sem er nauðsynleg til að hljóta réttindi og hæfni sem þarf til að vera ráðinn til starfa hjá opinberum eftirlitsaðilum,
   f. kostnaði við ferðalög starfsfólks, sem um getur í a-lið, sem og tengdum framfærslukostnaði,
   g. kostnaði vegna sýnatöku opinberra eftirlitsaðila og kostnaði sem opinberar rannsóknastofur innheimta vegna sýnatöku, greiningar, prófunar og sjúkdómsgreininga sem framkvæmdar eru á opinberum rannsóknastofum.
Ráðherra er heimilt með reglugerð að setja reglur um kostnað og útreikning raunkostnaðar vegna opinbers eftirlits.]1)
Opinber eftirlitsaðili framkvæmir viðbótareftirlit, þar á meðal rannsóknir, með matvælum þegar tiltekin starfsemi matvælafyrirtækis eða matvæli eru ekki talin uppfylla þær almennu og eðlilegu kröfur sem gerðar eru til meðferðar eða heilbrigðis matvæla vegna vísbendinga um smitefni, mengun eða brot gegn heilbrigðis- eða starfsreglum eða skyldra atvika. Raunkostnað af viðbótareftirliti ber matvælafyrirtæki. Framkvæma má viðbótareftirlit þrátt fyrir að afurðir eða vara hafi þegar hlotið heilbrigðisvottun. [Ákvæði þetta tekur jafnframt til viðbótareftirlits með aðilum sem framleiða, flytja inn eða dreifa [matvælasnertiefnum].2)]3)
Ráðherra er heimilt að setja reglugerð um framkvæmd og inntak eftirlits opinberra eftirlitsaðila og skal hann gefa út gjaldskrá fyrir eftirlit Matvælastofnunar að fengnum tillögum stofnunarinnar. Með sama hætti skulu sveitarfélögin gefa út gjaldskrá fyrir eftirlitsskylda starfsemi heilbrigðisnefnda vegna [opinbers eftirlits].4)
[Miða skal við að gjaldskrá fyrir heilbrigðisskoðun í sláturhúsi verði gefin út einu sinni á ári og taki mið af rekstraruppgjöri eftirlits fyrir heilt rekstrarár.]1)
Við gerð reglugerðar og gjaldskrár opinberra eftirlitsaðila skal taka tillit til eftirfarandi atriða:
   a. hvers konar fyrirtæki um er að ræða og viðkomandi áhættuþátta,
   b. hagsmuna fyrirtækja með litla framleiðslu,
   c. hefðbundinna aðferða við framleiðslu, vinnslu og dreifingu,
   d. þarfa fyrirtækja með aðsetur á svæðum sem líða fyrir tilteknar landfræðilegar takmarkanir.
[Matvælastofnun]5) skal afla umsagnar hlutaðeigandi hagsmunasamtaka og kynna þeim efni og forsendur reglugerðar og/eða gjaldskrár [stofnunarinnar]5) með a.m.k. eins mánaðar fyrirvara. Hafi umsagnir þeirra ekki borist [Matvælastofnun]5) að mánuði liðnum er [ráðherra]5) þó heimilt að setja reglugerð og gjaldskrá án umsagna þeirra.
Eftirlitsgjald skal greiða samkvæmt framlögðum reikningi opinbers eftirlitsaðila.
Innheimta má eftirlitsgjaldið með fjárnámi án undangengins dóms eða sáttar. Opinberum eftirlitsaðilum er heimilt að krefjast dráttarvaxta af ógreiddri fjárkröfu vegna eftirlits frá og með gjalddaga fram að greiðsludegi.
Ákvæði þessarar greinar gilda eftir því sem við á um innheimtu gjalds fyrir eftirlit á landamærastöðvum með innflutningi frá ríkjum utan Evrópska efnahagssvæðisins.
Þá skulu ákvæði þessarar greinar einnig gilda eftir því sem við á um eftirlitsgjöld opinbers eftirlitsaðila vegna eftirlits sem hann felur faggiltum aðilum að framkvæma skv. 23. gr.]6)
   1)L. 144/2019, 13. gr. 2)L. 144/2019, 1. gr. 3)L. 143/2013, 3. gr. 4)L. 144/2019, 7. gr. 5)L. 101/2020, 8. gr. 6)L. 143/2009, 17. gr.
26. gr.
[[Ráðherra]1) skal setja gjaldskrá vegna útgáfu starfsleyfa og vottorða skv. VIII. og IX. kafla laganna, svo og vegna skráningar og móttöku umsókna um heimild til notkunar aukefna og annarra slíkra leyfisveitinga. Gjaldskrá skal taka mið af kostnaði sem hlýst af útgáfu starfsleyfa og vottorða, skráningu og móttöku umsókna og leyfisveitingum og má ákvörðun gjalds ekki vera hærri en sá kostnaður.]2)
   1)L. 167/2007, 46. gr. 2)L. 169/2000, 4. gr.
27. gr.1)
   1)L. 143/2009, 18. gr.
[27. gr. a.
[Matvælastofnun er heimil skyndiskoðun og sýnataka til rannsókna á búfjár- og sjávarafurðum sem fluttar eru til Íslands frá ríkjum innan Evrópska efnahagssvæðisins. Henni er jafnframt heimilt að annast eftirlit þegar rökstuddur grunur er um að matvæli séu heilsuspillandi eða óhæf til neyslu eða geti valdið dýrasjúkdómum.]1) Þegar nauðsyn krefur getur opinber eftirlitsaðili lagt fyrir stjórnanda matvælafyrirtækis að hann tilkynni honum, með hæfilegum fyrirvara, um flutning matvæla til landsins frá EES-ríkjum.
Viðtakandi búfjár- og sjávarafurða skal halda dagbók yfir mótteknar sendingar og ganga úr skugga um að samræmi sé milli þeirra og meðfylgjandi skjala. Varðveita skal vottorð og önnur skilríki þeim viðkomandi í eitt ár svo að unnt sé að framvísa þeim að kröfu opinbers eftirlitsaðila.]2)
   1)L. 93/2019, 8. gr. 2)L. 143/2009, 19. gr.
[27. gr. b.
Allur innflutningur búfjárafurða, sjávarafurða og lifandi ferskvatns- eða sjávardýra frá ríkjum utan Evrópska efnahagssvæðisins skal fara um landamærastöðvar.
[Tilkynna skal Matvælastofnun fyrir fram um slíkan innflutning með þeim hætti sem áskilið er í reglugerðum sem settar eru með stoð í lögum þessum.]1)
Á landamærastöðvum eða í þeim höfnum sem heimild hafa fengið fyrir innflutningi skal fara fram athugun á skjölum og samanburður á þeim og sendingu til að sannreyna uppruna hennar og ákvörðunarstað.
Matvælastofnun skal kanna ástand afurðanna og taka sýni til rannsóknar á rannsóknastofu. Skal Matvælastofnun í þeim efnum fylgja gildandi reglum um tíðni skoðunar og sýnatökur. Komi í ljós við skynmat eða rannsókn að þær séu óhæfar til manneldis skal eyða þeim. Heimilt er þó að endursenda afurðina að fengnu leyfi yfirvalda í framleiðslulandi eða taka hana til annarra nota enda sé það talið öruggt.
Innflytjandi er ábyrgur fyrir þeim kostnaði sem getur fallið til við að endursenda vöru, geyma hana, taka til annarra nota eða eyða henni.
Um innflutning sjávarafurða og lifandi sjávardýra vísast að öðru leyti til 22. og 23. gr. og 25.–27. gr. laga nr. 55/1998, um meðferð, vinnslu og dreifingu sjávarafurða.]2)
   1)L. 144/2019, 14. gr. 2)L. 143/2009, 19. gr.
[27. gr. c.
Matvælafyrirtæki sem markaðssetja matvæli sem falla undir ákvæði 27. gr. a og 27. gr. b skulu starfrækja innra eftirlit og byggja á hættugreiningu, sbr. ákvæði 10. gr., til að fyrirbyggja að matvæli geti valdið matarsjúkdómum og til þess að tryggja að matvæli séu að öðru leyti í samræmi við ákvæði laga þessara og reglugerða settra samkvæmt þeim.]1)
   1)L. 143/2009, 19. gr.
[27. gr. d.
Matvælastofnun er heimill rafrænn aðgangur að farmskrárupplýsingum úr upplýsingakerfum tollyfirvalda vegna eftirlits með þeim vörum sem 27. gr. a og 27. gr. b ná til. Matvælastofnun og starfsmenn hennar skulu meðhöndla upplýsingar, sem veittar eru samkvæmt þessari grein, sem trúnaðarupplýsingar og í samræmi við lög um persónuvernd [og vinnslu persónuupplýsinga].1) Stofnunin og starfsmennirnir bera jafnframt sömu þagnarskyldu og starfsmenn [tollyfirvalda]2) samkvæmt ákvæðum tollalaga.]3)
   1)L. 90/2018, 54. gr. 2)L. 141/2019, 47. gr. 3)L. 76/2012, 1. gr.

[X. kafli A. Önnur ákvæði.]1)
   1)L. 144/2019, 15. gr.
[27. gr. e.
Til að tryggja að opinberir eftirlitsaðilar fari að tilskildum ákvæðum laga þessara og stjórnvaldsreglum settum samkvæmt þeim skulu þeir framkvæma innri úttektir eða láta framkvæma úttektir á sjálfum sér og skulu gera viðeigandi ráðstafanir í ljósi niðurstaðna úr úttektunum.
Eftirlitsstofnun EFTA er heimilt að gera úttektir á opinberu eftirliti og annarri opinberri starfsemi á Íslandi.]1)
   1)L. 144/2019, 15. gr.
[27. gr. f.
Matvælastofnun er heimilt að skila niðurstöðum opinbers eftirlits og ársskýrslum inn í upplýsingakerfi Evrópusambandsins.]1)
   1)L. 144/2019, 15. gr.

XI. kafli. [Varúðarráðstafanir, þvingunarúrræði og valdsvið.]1)
   1)L. 143/2009, 25. gr.
28. gr.
[Þegar hætta er talin á að matvæli geti valdið alvarlegu heilsutjóni er ráðherra heimilt að fyrirskipa nauðsynlegar varúðar- og varnaraðgerðir.
Í sérstökum tilvikum þar sem mat á fyrirliggjandi upplýsingum leiðir í ljós möguleika á heilsuspillandi áhrifum en vísindaleg óvissa ríkir áfram er ráðherra heimilt að samþykkja nauðsynlegar bráðabirgðaráðstafanir til að tryggja heilsu almennings vegna hugsanlegra heilsuspillandi áhrifa.
Ráðstafanir, sem eru samþykktar á grundvelli 2. mgr., skulu vera í réttu hlutfalli við markmið þeirra og ekki hamla viðskiptum meira en nauðsynlegt er. Ráðstafanirnar skulu endurskoðaðar innan eðlilegs tíma miðað við eðli þeirrar áhættu fyrir líf eða heilsu manna sem greind hefur verið og þá tegund vísindalegra upplýsinga sem þarf til að eyða vísindalegri óvissu og til að framkvæma umfangsmeira áhættumat.
Varúðar- og varnaraðgerðir geta náð til alls landsins eða hluta þess. Skal ráðherra hafa samráð við Matvælastofnun og sóttvarnalækni áður en til aðgerða er gripið.]1)
   1)L. 143/2009, 20. gr.
[28. gr. a.
Leiki rökstuddur grunur á að tiltekin matvæli hafi í för með sér áhættu fyrir heilbrigði manna skulu hlutaðeigandi opinberir eftirlitsaðilar upplýsa almenning um eðli áhættunnar fyrir heilsu manna. Slíkar ráðstafanir opinbers eftirlitsaðila skulu miðast við eðli, alvarleika og umfang þeirrar áhættu sem um er að ræða. Tilgreina skal eins nákvæmlega og unnt er matvælin sem um er að ræða, tegund matvæla, þá áhættu sem kann að vera á ferðum og ráðstafanir sem hafa verið gerðar eða verða gerðar á næstunni til að fyrirbyggja, draga úr eða eyða þessari áhættu.
Ráðherra er heimilt að setja reglugerð1) um opinbera birtingu niðurstaðna vegna eftirlits sem fram fer skv. 1. mgr.
[[Heimilt er að birta]2) opinberlega upplýsingar um flokkun fyrirtækja eftir frammistöðu þeirra samkvæmt matvælaeftirliti, sbr. 7. mgr. 22. gr. Heimilt er einnig að ákveða birtingu á eftirlitsskýrslum sem flokkunin byggist á. Ráðherra ákveður með reglugerð með hvaða hætti frammistöðuflokkun er birt. Hann getur ákveðið að birta flokkunina í heild en einnig að birta aðeins lista yfir fyrirtæki sem flokkast í tiltekinn flokk eða flokka. Einnig skal kveðið á um í reglugerð hvort birta skuli eftirlitsskýrslurnar. Þá skal ráðherra setja með reglugerð reglur um birtingu niðurstaðna almenns matvælaeftirlits eða upplýsinga sem falla undir 18. gr. a. Ráðherra getur m.a. ákveðið í reglugerðinni að kæra fresti ekki réttaráhrifum opinberrar birtingar og jafnframt ákveðið að vissar upplýsingar skuli ekki birtar. Slíkar reglur skulu kveða á um framsetningu og inntak birtingarinnar, m.a. að birtingin sé rafræn og á hvaða tímamarki skuli birta slíkar upplýsingar.]3)
[Eftirlitsaðilar skulu greina opinberlega frá ákvörðunum sem fela í sér:
   a. stöðvun eða verulega takmörkun á starfsemi matvælafyrirtækis,
   b. sölustöðvun og innköllun á vörum sem teljast ekki öruggar til neyslu,
   c. áminningu og álagningu dagsekta.]3)]4)
   1)Rg. 320/2012. 2)L. 71/2021, 38. gr. 3)L. 33/2018, 2. gr. 4)L. 143/2009, 21. gr.
29. gr.
[Leiki grunur á að ákvæði laga þessara eða reglugerða settra samkvæmt þeim séu brotin er unnt að tilkynna um brot eða miðla gögnum um brot til opinbers eftirlitsaðila. Opinber eftirlitsaðili skal kanna hvort tilkynning sé á rökum reist og grípa til viðeigandi ráðstafana á grundvelli laganna ef þörf er talin á.
Matvælafyrirtæki er óheimilt að láta aðila sem hefur tilkynnt um brot eða miðlað gögnum skv. 1. mgr. sæta óréttlátri meðferð.
Opinber eftirlitsaðili skal gæta leyndar um persónuupplýsingar sem berast um þann sem tilkynnir um brot eða miðlar gögnum skv. 1. mgr. nema viðkomandi veiti afdráttarlaust samþykki sitt.]1)
   1)L. 144/2019, 17. gr.
30. gr.
[Opinberum eftirlitsaðila er heimilt að stöðva starfsemi að hluta eða í heild ef rökstuddur grunur er um að matvæli séu heilsuspillandi, óhæf til neyslu eða valdi tjóni á öðrum hagsmunum.
Sama gildir ef um er að ræða starfsemi sem er stunduð án tilskilins leyfis eða tilkynningarskyldu hefur ekki verið sinnt skv. 9. gr.
Einnig er opinberum eftirlitsaðila heimilt að gefa fyrirmæli um afmengun matvæla, stöðva eða takmarka framleiðslu og markaðssetningu matvæla og leggja hald á þau þegar rökstuddur grunur er um að matvælin uppfylli ekki ákvæði laga þessara eða stjórnvaldsreglna settra samkvæmt þeim. Þegar opinberir eftirlitsaðilar leggja hald á matvæli er þeim heimil förgun þeirra sé það talið nauðsynlegt.
Þá getur opinber eftirlitsaðili jafnframt, til að knýja á um aðgerðir samkvæmt lögum þessum, stjórnvaldsreglum eða eigin fyrirmælum samkvæmt þessum ákvæðum, beitt eftirfarandi aðgerðum:
   a. veitt áminningu,
   b. veitt áminningu og tilhlýðilegan frest til úrbóta.
Stöðvun starfsemi og förgun á vörum skal því aðeins beitt að um alvarlegt tilvik eða ítrekað brot sé að ræða eða ef aðilar sinna ekki úrbótum innan tiltekins frests og er heimilt að leita aðstoðar lögreglu ef með þarf. Sé um slík brot að ræða getur opinber eftirlitsaðili afturkallað leyfi viðkomandi matvælafyrirtækis til reksturs skv. 9. gr., sbr. 20. gr.]1)
   1)L. 143/2009, 23. gr.
[30. gr. a.
Þegar stjórnandi sinnir ekki fyrirmælum innan tiltekins frests getur opinber eftirlitsaðili ákveðið matvælafyrirtæki dagsektir þar til úrbætur hafa verið framkvæmdar. Dagsektir sem Matvælastofnun ákveður renna í ríkissjóð en dagsektir sem heilbrigðisnefndir sveitarfélaganna ákveða skulu renna til rekstraraðila heilbrigðiseftirlits á viðkomandi svæði. Hámark dagsekta skal ákveðið í reglugerð1) sem ráðherra setur. Jafnframt er opinberum eftirlitsaðila heimilt að láta vinna verk á kostnað hins vinnuskylda ef fyrirmæli um framkvæmd eru vanrækt og skal kostnaður þá greiddur til bráðabirgða af viðkomandi opinberum eftirlitsaðila en innheimtast síðar hjá hlutaðeigandi matvælafyrirtæki. Kostnað og dagsektir má innheimta með fjárnámi án undanfarandi dóms eða sáttar.]2)
   1)Rg. 767/2010. 2)L. 143/2009, 23. gr.
[30. gr. b.
Opinberum eftirlitsaðila skal heimill aðgangur til skoðunar og eftirlits, þar á meðal töku sýna og myndatöku, að öllum þeim stöðum sem lög þessi og stjórnvaldsreglur ná yfir og er heimilt að leita aðstoðar lögreglu ef með þarf. Einnig er opinberum eftirlitsaðila heimilt að taka sýni þar sem starfsemi fer fram og lög þessi og stjórnvaldsreglur settar samkvæmt þeim ná til.
[Opinberum eftirlitsaðila er heimilt að taka sýni úr vöru sem boðin er til sölu á fjarsamskiptamiðlum án þess að tilkynnt sé um sýnatökuna fyrr en opinber eftirlitsaðili er kominn með sýnin í sína vörslu.]1)
Stjórnendum er skylt að veita aðstoð við framkvæmd eftirlitsins og veita allar upplýsingar sem nauðsynlegar eru vegna eftirlits með framkvæmd laganna og ber þeim endurgjaldslaust að afhenda sýni sem talin eru nauðsynleg vegna eftirlits. Þá getur opinber eftirlitsaðili ákveðið að matvælafyrirtæki skuli greiða allan kostnað vegna þvingunarúrræða sem framkvæmd eru samkvæmt lögum þessum og má innheimta slíkan kostnað með fjárnámi án dóms eða sáttar.]2)
   1)L. 144/2019, 18. gr. 2)L. 143/2009, 23. gr.
[30. gr. c.
Telji Matvælastofnun svo alvarlega hættu stafa af tiltekinni starfrækslu eða notkun að aðgerð þoli enga bið er henni heimilt til bráðabirgða að stöðva starfsemi eða notkun þegar í stað, með aðstoð lögreglu ef þurfa þykir, en tilkynna skal það hlutaðeigandi heilbrigðisnefnd.
Matvælastofnun skal sjá um samhæfingu aðgerða samkvæmt lögum þessum þegar upp kemur bráð eða alvarleg matarsýking, matareitrun eða önnur vá svipaðs eðlis. Heilbrigðisnefndir sveitarfélaga skulu þegar í stað tilkynna Matvælastofnun um slík mál og skal stofnunin að höfðu samráði við viðkomandi heilbrigðisnefnd taka ákvörðun um nauðsynlegar ráðstafanir. Starfsmenn Matvælastofnunar og heilbrigðisnefndir skulu jafnframt tilkynna um slík mál til yfirlæknis viðkomandi heilsugæslu og sóttvarnalæknis, sbr. 4. og 5. mgr. 4. gr. og 1. mgr. 11. gr. sóttvarnalaga, nr. 19/1997.]1)
   1)L. 143/2009, 23. gr.
[30. gr. d.
Við meðferð mála skv. 30. gr., 30. gr. a, 30. gr. b og 30. gr. c skal fara eftir ákvæðum stjórnsýslulaga og öðrum reglum stjórnsýsluréttar. [Kæra vegna stjórnsýsluákvörðunar í tengslum við eftirlit með innflutningi dýraafurða og lifandi ferskvatns- og sjávareldisdýra sem koma til landsins frá ríkjum utan Evrópska efnahagssvæðisins, sbr. 27. gr. b, skal þó borin fram innan fjögurra vikna frá því að aðila máls var tilkynnt um ákvörðunina.]1)]2)
   1)L. 76/2012, 2. gr. 2)L. 143/2009, 23. gr.
[[30. gr. e.]1)
Rísi ágreiningur milli heilbrigðisnefndar og sveitarstjórna um framkvæmd þessara laga skal vísa málinu til fullnaðarúrskurðar ráðherra. Sama gildir um ágreining milli Matvælastofnunar og heilbrigðisnefnda um framkvæmd laga þessara.]2)
   1)L. 143/2009, 24. gr. 2)L. 167/2007, 49. gr.

XII. kafli. [Viðurlög.]1)
   1)L. 143/2009, 27. gr.
[30. gr. f.
Opinberir eftirlitsaðilar geta lagt stjórnvaldssektir á matvælafyrirtæki sem brýtur gegn 6. mgr. 8. gr. a og reglugerðum og reglum sem settar eru á grundvelli laga þessara.
Við ákvörðun stjórnvaldssekta skal tekið tillit til allra atvika sem máli skipta, þ.m.t. eftirfarandi:
   a. alvarleika brots,
   b. hugsanlegra skaðlegra áhrifa brots á neytendur,
   c. hvað brotið hefur staðið yfir lengi,
   d. ávinnings matvælafyrirtækis af brotinu,
   e. stærðar og veltu matvælafyrirtækis,
   f. fyrri brota og hvort um ítrekað brot er að ræða.
Stjórnvaldssektir sem lagðar eru á matvælafyrirtæki, sbr. 4. gr., geta numið frá 25 þús. kr. til 25 millj. kr. Við ákvörðun sektarfjárhæðar skal líta til þess hvort um sé að ræða brot af ásetningi eða gáleysi. Ákvörðun um stjórnvaldssekt samkvæmt þessari grein er aðfararhæf og skulu sektirnar renna í ríkissjóð að frádregnum kostnaði við innheimtuna. Gjalddagi stjórnvaldssektar er 30 dögum eftir að ákvörðun um sektina var tekin. Sé stjórnvaldssekt ekki greidd innan 15 daga frá gjalddaga skal greiða dráttarvexti af fjárhæð sektarinnar frá gjalddaga. Um ákvörðun og útreikning dráttarvaxta fer eftir lögum um vexti og verðtryggingu. Stjórnvaldssektum verður beitt óháð því hvort lögbrot eru framin af ásetningi eða gáleysi.]1)
   1)L. 93/2019, 9. gr.
31. gr.
[Brot gegn ákvæðum þessara laga og stjórnvaldsreglum settum samkvæmt þeim varða sektum hvort sem þau eru framin af ásetningi eða stórfelldu gáleysi. Sé um stórfelld eða ítrekuð ásetningsbrot að ræða skulu þau að auki varða fangelsi allt að fjórum árum.
Sektir má ákvarða lögaðila þó að sök verði ekki sönnuð á stjórnanda eða starfsmenn hans eða aðra þá einstaklinga sem í þágu hans starfa, enda hafi brotið orðið eða getað orðið til hagsbóta fyrir lögaðilann. Þó skal lögaðili ekki sæta refsingu ef um óhapp er að ræða. Einnig má, með sömu skilyrðum, gera lögaðila sekt ef stjórnandi eða starfsmenn hans eða aðrir einstaklingar sem í þágu hans starfa gerast sekir um brot.
[Við ákvörðun refsinga við brotum gegn lögum þessum sem framin eru með sviksamlegum eða villandi viðskiptaháttum er heimilt að ákvarða sekt:
   1. út frá efnahagslegum ávinningi matvælafyrirtækis eða
   2. sem hlutfall af veltu matvælafyrirtækis.
Mál út af brotum samkvæmt þessari grein skulu sæta meðferð samkvæmt lögum um meðferð sakamála.]1)]2)
   1)L. 144/2019, 19. gr. 2)L. 143/2009, 26. gr.

XIII. kafli. [Reglugerðarheimild, gildistaka o.fl.]1)
   1)L. 143/2009, 29. gr.
[31. gr. a.
Ráðherra setur nánari ákvæði um framkvæmd þessara laga með reglugerðum.1) Þar skal m.a. kveðið nánar á um framleiðslu og markaðssetningu matvæla, hollustuhætti í matvælaiðnaði, rekjanleika matvæla og umbúða, merkingar matvæla, notkun fullyrðinga í merkingum matvæla, efnainnihald matvæla, viðmiðunarmörk fyrir örverufræðilega þætti og aðskotaefni, neysluvatn, umbúðir og pökkun, erfðabreytt matvæli og merkingar þeirra, [lífræna framleiðslu og merkingu lífrænna vara],2)3) [opinbert eftirlit],4) innra eftirlit matvælafyrirtækja, um sölu framleiðanda af eigin framleiðslu beint til neytenda, um innflutning dýraafurða frá þriðju ríkjum og starfsemi landamærastöðva, hraðviðvörunarkerfi og stjórnun vegna neyðartilvika og skipun ráðgefandi nefndar sem veitir vísindalega ráðgjöf um áhættumat.
Einnig er ráðherra heimilt að innleiða með reglugerð5) reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 178/2002, frá 28. janúar 2002, um almennar meginreglur og kröfur samkvæmt lögum um matvæli, um stofnun Matvælaöryggisstofnunar Evrópu og um málsmeðferð vegna öryggis matvæla, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar frá 27. október 2007 nr. 134/2007. Reglugerðir EB sem teknar verða upp í samninginn um Evrópska efnahagssvæðið og fela í sér breytingar eða viðbætur við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 178/2002, frá 28. janúar 2002, er einnig heimilt að innleiða með reglugerð.6) Sama gildir um reglugerðir sem settar eru með tilvísun í reglugerðina.
[Ráðherra er heimilt að innleiða með reglugerð7) reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) 852/2004 frá 29. apríl 2004 um hollustuhætti sem varða matvæli, reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 853/2004 frá 29. apríl 2004 um sérstakar reglur um hollustuhætti sem varða matvæli úr dýraríkinu og reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2017/625 frá 15. mars 2017 um opinbert eftirlit og aðra opinbera starfsemi sem miðar að því að tryggja að lögum um matvæli og fóður og reglum um heilbrigði og velferð dýra, plöntuheilbrigði og plöntuverndarvörur sé beitt, sbr. ákvarðanir sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 137/2007 frá 26. október 2007 og nr. 210/2019 frá 27. september 2019.]8) Reglugerðir EB sem teknar verða upp í samninginn um Evrópska efnahagssvæðið og fela í sér breytingar eða viðbætur við framangreindar reglugerðir Evrópuþingsins og ráðsins (EB) er einnig heimilt að innleiða með reglugerð.9) Sama gildir um reglugerðir sem settar eru með tilvísun í þessar reglugerðir EB.
Ráðherra er jafnframt heimilt að innleiða með reglugerð10) tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 2004/41/EB, frá 21. apríl 2004, um niðurfellingu tiltekinna tilskipana sem varða hollustuhætti í tengslum við matvælaiðnað og heilbrigðisskilyrði við framleiðslu og markaðssetningu tiltekinna afurða úr dýraríkinu sem eru ætlaðar til manneldis og um breytingu á [tilskipun ráðsins]8) 92/118/EBE og ákvörðun ráðsins 95/408/EB, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar frá 27. október 2007 nr. 137/2007.
[Ráðherra er heimilt að innleiða með reglugerð reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2018/848 frá 30. maí 2018 um lífræna framleiðslu og merkingu lífrænna vara og um niðurfellingu á reglugerð ráðsins (EB) nr. 834/2007, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 31/2022 frá 4. febrúar 2022.]2)
[Ráðherra er heimilt að vísa til erlendrar frumútgáfu reglugerða við innleiðingu reglugerða Evrópusambandsins sem teknar eru upp í samninginn um Evrópska efnahagssvæðið með einfaldaðri málsmeðferð. Birta skal erlendu frumútgáfuna í C-deild Stjórnartíðinda.]11)]12)
   1)Rg. 651/2001, sbr. 826/2023. Rg. 736/2003, sbr. 860/2003, 410/2004, 563/2005, 236/2007, 268/2010 og 883/2010. Rg. 411/2004, sbr. 56/2005 og 269/2010. Rg. 398/2008, sbr. 1362/2021. Rg. 672/2008, sbr. 264/2010, 758/2010, 839/2010, 357/2011, 632/2011, 967/2011, 169/2012, 347/2012, 509/2012, 537/2012, 907/2012, 400/2013, 871/2013, 1109/2013, 412/2014, 836/2014, 956/2014, 173/2015, 420/2015, 955/2015, 408/2016, 469/2016, 1045/2016, 319/2017, 419/2017, 469/2017, 753/2017, 981/2017, 322/2018, 504/2018, 894/2018, 405/2019, 516/2019, 1044/2019, 158/2020, 519/2020, 883/2020, 209/2021, 456/2021, 635/2021, 1132/2021, 1289/2021, 339/2022, 587/2022, 928/2022, 1446/2022, 620/2023, 1195/2023 og 1243/2023. Augl. 185/2010, sbr. augl. 790/2012. Rg. 265/2010, sbr. 346/2010, 718/2010, 825/2010, 869/2012, 403/2013, 232/2014, 835/2014, 184/2015, 358/2015, 418/2015, 468/2016, 1048/2016, 183/2017, 738/2017, 973/2017, 895/2018, 484/2020, 537/2021, 337/2022, 718/2022, 941/2022, 1445/2022, 1249/2023 og 1392/2023. Rg. 327/2010, sbr. 1166/2011, 914/2012, 453/2014, 964/2014, 989/2015, 1045/2017, 1048/2019, 124/2020, 206/2021, 1285/2021, 615/2023 og 1391/2023. Rg. 406/2010, sbr. 626/2011, 873/2013, 782/2019 og 1282/2021. Rg. 489/2010, sbr. 478/2017 og 1334/2019. Rg. 565/2010. Rg. 820/2010. Rg. 838/2010. Rg. 870/2010, sbr. 913/2012. Rg. 884/2010, sbr. 872/2012, 1042/2016, 1143/2020, 440/2022, 1245/2023 og 1389/2023. Rg. 311/2011, sbr. 517/2013. Rg. 168/2011, sbr. 1010/2011, 661/2012, 142/2013, 389/2014, 169/2015, 317/2017, 1333/2019 og 10/2021. Rg. 965/2011. Rg. 966/2011. Rg. 967/2011. Rg. 968/2011, sbr. 33/2016. Rg. 969/2011, sbr. 1016/2018. Rg. 970/2011, sbr. 215/2012. Rg. 971/2011. Rg. 972/2011, sbr. 89/2012 og 183/2012. Rg. 973/2011, sbr. 182/2012 og 227/2014. Rg. 974/2011. Rg. 975/2011, sbr. 336/2012. Rg. 976/2011. Rg. 977/2011, sbr. 226/2014. Rg. 978/2011, sbr. 1117/2011, 921/2012, 398/2013, 499/2013, 872/2013, 404/2014, 832/2014, 171/2015, 362/2015, 406/2015, 954/2015, 34/2016, 410/2016, 1044/2016, 736/2017, 971/2017, 330/2018, 500/2018, 558/2018, 1023/2018, 515/2019, 1045/2019, 882/2020, 208/2021, 538/2021, 169/2022, 338/2022, 709/2022, 938/2022, 619/2023, 1169/2023, 1501/2023 og 244/2024. Rg. 979/2011, sbr. 714/2022. Rg. 1008/2011. Rg. 1009/2011. Rg. 1011/2011, sbr. 371/2012, 137/2021 og 1208/2021. Rg. 1012/2011. Rg. 1013/2011. Rg. 1014/2011, sbr. 214/2012. Rg. 1015/2011. Rg. 1043/2011. Rg. 1048/2011. Rg. 1056/2011. Rg. 1077/2011. Rg. 1177/2011. Rg. 1189/2011. Rg. 30/2012. Rg. 41/2012, sbr. 356/2012, 1124/2013, 161/2014, 963/2014, 987/2015, 32/2016, 316/2017, 467/2017, 173/2018, 327/2018, 358/2018, 897/2018, 1074/2018, 172/2019, 881/2020, 1148/2020, 454/2021, 1057/2021 og 931/2022. Rg. 160/2012, sbr. 1075/2018 og 1306/2023. Rg. 168/2012, sbr. 372/2012. Rg. 171/2012. Rg. 172/2012, sbr. 410/2015. Rg. 181/2012. Rg. 211/2012. Rg. 212/2012, sbr. 370/2012 og 1332/2019. Rg. 217/2012. Rg. 254/2012. Rg. 272/2012. Rg. 346/2012. Rg. 369/2012. Rg. 373/2012. Rg. 374/2012, sbr. 871/2012, 231/2014, 168/2015, 986/2015, 324/2017, 974/2017, 498/2018, 1019/2018, 511/2019, 159/2020, 532/2021 og 248/2024. Rg. 448/2012, sbr. 462/2012 og 866/2014. Rg. 522/2012. Rg. 763/2012. Rg. 848/2012, sbr. 1054/2012. Rg. 851/2012, sbr. 1201/2016. Rg. 873/2012, sbr. 406/2013, 1365/2021 og 651/2022. Rg. 874/2012. Rg. 910/2012. Rg. 916/2012, sbr. 748/2016 og 1122/2023. Rg. 1020/2012. Rg. 220/2013. Rg. 221/2013. Rg. 349/2013. Rg. 371/2013. Rg. 372/2013, sbr. 1330/2019. Rg. 397/2013, sbr. 254/2014, 405/2014, 833/2014, 174/2015, 363/2015, 408/2015, 953/2015, 35/2016, 409/2016, 320/2017, 465/2017, 737/2017, 329/2018, 499/2018, 1022/2018, 514/2019, 455/2021, 535/2021, 716/2022, 618/2023, 1168/2023, 1502/2023, 113/2024 og 245/2024. Rg. 402/2013, sbr. 410/2014, 876/2014, 325/2017 og 1371/2021. Rg. 404/2013, sbr. 401/2019. Rg. 407/2013, sbr. 610/2023 og 1510/2023. Rg. 975/2013, sbr. 1074/2016. Rg. 1110/2013. Rg. 167/2014, sbr. 689/2021. Rg. 229/2014. Rg. 233/2014. Rg. 390/2014, sbr. 1336/2019 og 13/2021. Rg. 400/2014. Rg. 661/2014, sbr. 1331/2019. Rg. 831/2014, sbr. 238/2018, 924/2018, 269/2019 og 14/2021. Rg. 834/2014, sbr. 1052/2016, 1015/2018, 162/2020, 1283/2021, 333/2022, 613/2023, 1250/2023 og 1507/2023. Rg. 847/2014, sbr. 184/2016, 907/2017 og 667/2018. Rg. 877/2014. Rg. 886/2014, sbr. 145/2018. Rg. 907/2014, sbr. 958/2014, 569/2015, 186/2016, 231/2017, 936/2017, 86/2018, 820/2019, 1338/2019, 232/2020, 11/2021 og 11/2021. Rg. 954/2014. Rg. 965/2014. Rg. 966/2014, sbr. 1463/2022 og 114/2024. Rg. 1237/2014. Rg. 1294/2014, sbr. 138/2015 og 181/2015. Rg. 167/2015, sbr. 354/2015, 421/2015, 12/2016, 412/2016, 480/2016, 330/2017, 464/2017, 470/2017, 357/2018, 173/2019, 513/2019, 788/2019, 1047/2019, 207/2021, 536/2021, 1246/2023 og 1503/2023. Rg. 187/2015, sbr. 985/2015, 411/2016, 479/2016, 1043/2016, 226/2017, 739/2017, 359/2018, 1018/2018, 403/2019, 512/2019, 787/2019, 1046/2019, 534/2021, 335/2022, 939/2022 og 616/2023. Rg. 411/2015. Rg. 412/2015. Rg. 413/2015. Rg. 414/2015. Rg. 415/2015. Rg. 423/2015, sbr. 167/2017 og 163/2020. Rg. 684/2015, sbr. 948/2015. Rg. 949/2015. Rg. 951/2015. Rg. 952/2015. Rg. 36/2016. Rg. 37/2016. Rg. 38/2016. Rg. 39/2016. Rg. 147/2016, sbr. 174/2018 og 955/2019. Rg. 193/2016, sbr. 800/2017. Rg. 327/2016, sbr. 1204/2023. Rg. 415/2016. Rg. 418/2016. Rg. 467/2016. Rg. 476/2016. Rg. 477/2016, sbr. 1058/2021, 1364/2021 og 1196/2023. Rg. 1050/2016. Rg. 177/2017. Rg. 182/2017. Rg. 210/2017. Rg. 215/2017. Rg. 216/2017. Rg. 217/2017. Rg. 218/2017. Rg. 219/2017. Rg. 225/2017. Rg. 285/2017, sbr. 144/2018. Rg. 321/2017. Rg. 326/2017. Rg. 327/2017. Rg. 466/2017. Rg. 482/2017. Rg. 500/2017, sbr. 1018/2021. Rg. 674/2017, sbr. 879/2020, 205/2021, 530/2021, 441/2022 og 934/2022. Rg. 735/2017, sbr. 899/2018, 1017/2018, 1370/2021, 719/2022 og 611/2023. Rg. 975/2017. Rg. 976/2017. Rg. 977/2017. Rg. 978/2017. Rg. 979/2017. Rg. 980/2017. Rg. 1043/2017. Rg. 1049/2017. Rg. 324/2018. Rg. 900/2018, sbr. 175/2019, 402/2019, 783/2019, 929/2019, 1049/2019, 160/2020, 485/2020, 1146/2020, 202/2021, 453/2021, 531/2021, 1055/2021, 1286/2021, 336/2022, 720/2022, 940/2022, 1462/2022, 617/2023, 1167/2023, 1244/2023, 1504/2023, 1505/2023 og 246/2024. Rg. 923/2018. Rg. 1000/2018, sbr. 228/2022. Rg. 1020/2018. Rg. 1021/2018. Rg. 359/2019. Rg. 520/2019. Rg. 521/2019. Rg. 522/2019. Rg. 670/2019. Rg. 877/2019.Rg. 891/2019. Rg. 892/2019. Rg. 1050/2019. Rg. 1220/2019. Rg. 1251/2019. Rg. 234/2020, sbr. 489/2020, 451/2022, 937/2022 og 1038/2022. Rg. 284/2020. Rg. 285/2020. Rg. 286/2020. Rg. 287/2020. Rg. 288/2020. Rg. 370/2020. Rg. 371/2020, sbr. 442/2022. Rg. 372/2020. Rg. 373/2020. Rg. 374/2020. Rg. 375/2020. Rg. 483/2020, sbr. 7/2021, 932/2022 og 247/2024. Rg. 486/2020. Rg. 487/2020, sbr. 1039/2022. Rg. 488/2020. Rg. 490/2020. Rg. 501/2020. Rg. 502/2020, sbr. 8/2021. Rg. 503/2020. Rg. 504/2020. Rg. 505/2020. Rg. 506/2020. Rg. 507/2020, sbr. 733/2020, 1343/2020, 474/2021, 57/2022, 452/2022, 1037/2022, 146/2023 og 131/2024. Rg. 508/2020. Rg. 509/2020, sbr. 15/2021, 269/2021 og 528/2021. Rg. 515/2020, sbr. 936/2022. Rg. 516/2020. Rg. 840/2020, sbr. 151/2024. Rg. 1014/2020, sbr. 1142/2020, 527/2021 og 1281/2021. Rg. 1378/2020, sbr. 1042/2022. Rg. 16/2021. Rg. 266/2021, sbr. 1361/2021. Rg. 333/2021. Rg. 458/2021, sbr. 1512/2023. Rg. 462/2021, sbr. 634/2021, 1059/2021, 1369/2021, 717/2022, 1033/2022 og 283/2023. Rg. 464/2021, sbr. 1248/2023. Rg. 636/2021. Rg. 1069/2021. Rg. 1130/2021. Rg. 1207/2021. Rg. 450/2022, sbr. 712/2022, 929/2022, 1036/2022 og 125/2024. Rg. 713/2022, sbr. 163/2024. Rg. 942/2022, sbr. 1511/2023. Rg. 943/2022. Rg. 1034/2022. Rg. 1040/2022. Rg. 1137/2022. Rg. 203/2023, sbr. 1384/2023. Rg. 204/2023, sbr. 1197/2023, 1385/2023 og 249/2024. Rg. 205/2023, sbr. 1252/2023 og 1386/2023. Rg. 231/2023, sbr. 1253/2023. Rg. 232/2023, sbr. 1254/2023 og 1508/2023. Rg. 233/2023. Rg. 234/2023. Rg. 235/2023. Rg. 236/2023. Rg. 237/2023, sbr. 1203/2023. Rg. 238/2023. Rg. 239/2023. Rg. 240/2023. Rg. 241/2023. Rg. 242/2023, sbr. 1255/2023 og 1509/2023. Rg. 243/2023. Rg. 621/2023. Rg. 622/2023. Rg. 623/2023. Rg. 624/2023. Rg. 625/2023. Rg. 626/2023. Rg. 832/2023. Rg. 1170/2023. Rg. 1171/2023. Rg. 1172/2023. Rg. 1190/2023, sbr. 1387/2023. Rg. 1191/2023. Rg. 1192/2023. Rg. 1193/2023, sbr. 1388/2023. Rg. 1194/2023. Rg. 1234/2023. Rg. 1235/2023. Rg. 1236/2023. Rg. 1237/2023. Rg. 1239/2023. Rg. 1240/2023, sbr. 126/2024. Rg. 1242/2023. Rg. 1513/2023. Rg. 1514/2023. Rg. 1515/2023. Rg. 1516/2023. Rg. 115/2024. Rg. 124/2024. Rg. 127/2024, sbr. 196/2024. 2)L. 51/2022, 6. gr. 3)L. 143/2013, 4. gr. 4)L. 144/2019, 7. gr. 5)Rg. 102/2010, sbr. 720/2010, 755/2017 og 1367/2021. 6)Rg. 128/2010. Rg. 129/2010. Rg. 130/2010. 7)Rg. 103/2010, sbr. 506/2010, 133/2012, 1368/2021 og 1207/2023. Rg. 104/2010, sbr. 1005/2011, 21/2012, 166/2012, 528/2012, 579/2012, 850/2012, 906/2012, 352/2013, 370/2013, 407/2014, 463/2014, 873/2014, 188/2015, 417/2015, 983/2015, 478/2016, 166/2017, 744/2017, 505/2018, 171/2019, 518/2020, 444/2022, 935/2022 og 201/2023. Rg. 1155/2019. 8)L. 144/2019, 20. gr. 9)Rg. 134/2010, sbr. 904/2012. Rg. 135/2010, sbr. 136/2012, 167/2012, 457/2012, 875/2014, 961/2014, 182/2015, 289/2015, 786/2019 og 1147/2020. Rg. 266/2010. Rg. 270/2010, sbr. 112/2011 og 183/2015. 10)Rg. 729/2010. 11)L. 93/2019, 10. gr. 12)L. 143/2009, 28. gr.
32. gr.
Með lögum þessum, sem öðlast þegar gildi, falla úr gildi
[Ákvæði til bráðabirgða.1)]2)
   1)L. 144/2019, 21. gr. 2)L. 143/2009, 30. gr.