Lagasafn.  Íslensk lög 12. apríl 2024.  Útgáfa 154b.  Prenta í tveimur dálkum.


Lög um Stofnun Vilhjálms Stefánssonar og samvinnunefnd um málefni norðurslóða

1997 nr. 81 26. maí


Ferill málsins á Alþingi.   Frumvarp til laga.

Tóku gildi 6. júní 1997. Breytt með: L. 102/2004 (tóku gildi 2. júlí 2004). L. 126/2011 (tóku gildi 30. sept. 2011).

Ef í lögum þessum er getið um ráðherra eða ráðuneyti án þess að málefnasvið sé tilgreint sérstaklega eða til þess vísað, er átt við umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra eða umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti sem fer með lög þessi. Upplýsingar um málefnasvið ráðuneyta skv. forsetaúrskurði er að finna hér.

1. gr.
Stofnun Vilhjálms Stefánssonar er sjálfstæð ríkisstofnun undir yfirstjórn [ráðherra].1)
Stofnunin er samstarfsvettvangur þeirra sem sinna málefnum norðurslóða hér á landi og er ætlað að efla umhverfisrannsóknir á norðurslóðum og stuðla að sjálfbærri þróun og efla þátttöku Íslendinga í alþjóðasamstarfi á því sviði.
Stofnunin hefur aðsetur á Akureyri.
   1)L. 126/2011, 248. gr.
2. gr.
Stofnun Vilhjálms Stefánssonar skal leitast við að ná markmiðum sínum með því að:
   a. safna og miðla upplýsingum um málefni norðurslóða,
   b. stuðla að því að umhverfisrannsóknir á norðurslóðum séu samræmdar og gera tillögur um forgangsröð þeirra,
   c. miðla fræðslu um málefni norðurslóða til skóla og almennings,
   d. vera stjórnvöldum til ráðgjafar um málefni norðurslóða, einkum umhverfisvernd og sjálfbæra þróun,
   e. annast samstarf við sambærilegar stofnanir erlendis, t.d. um rekstur fjölþjóðlegra verkefna,
   f. skapa aðstöðu fyrir fræðimenn sem stunda rannsóknarstörf á fræðasviði stofnunarinnar og
   g. sinna öðrum verkefnum samkvæmt ákvörðun ráðherra.
3. gr.1)
   1)L. 102/2004, 1. gr.
4. gr.
[[Ráðherra]1) skipar forstöðumann Stofnunar Vilhjálms Stefánssonar til fimm ára í senn. Forstöðumaður skal hafa háskólamenntun og hafa stundað rannsóknir sem tengjast fræðisviði stofnunarinnar.
Forstöðumaður fer með stjórn stofnunarinnar, hefur umsjón með rekstri hennar og ræður aðra starfsmenn.]2)
   1)L. 126/2011, 248. gr. 2)L. 102/2004, 2. gr.
5. gr.
[Ráðherra]1) skipar samvinnunefnd um málefni norðurslóða til fjögurra ára í senn. Í nefndinni skulu eiga sæti aðilar tilnefndir af stofnunum og samtökum sem hafa með höndum verkefni er tengjast norðurslóðarannsóknum. Um fjölda nefndarmanna og samsetningu fer samkvæmt reglugerð2) sem ráðherra setur. [Ráðherra]1) skipar formann nefndarinnar án tilnefningar.
Hlutverk nefndarinnar er að leitast við að treysta og efla samstarf hlutaðeigandi aðila um rannsóknir á norðurslóðum og málefni stofnunar Vilhjálms Stefánssonar.
   1)L. 126/2011, 248. gr. 2)Rg. 554/2005.
6. gr.
[Ráðherra]1) getur, að fengnum tillögum samvinnunefndar um málefni norðurslóða, sett reglugerð um nánari framkvæmd laga þessara.
   1)L. 126/2011, 248. gr.
7. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.