Lagasafn.  Íslensk lög 12. apríl 2024.  Útgáfa 154b.  Prenta í tveimur dálkum.


Lög um Söfnunarsjóð lífeyrisréttinda

1998 nr. 155 28. desember


Ferill málsins á Alþingi.   Frumvarp til laga.

Tóku gildi 1. janúar 1999. Breytt með: L. 129/2004 (tóku gildi 31. des. 2005). L. 141/2004 (tóku gildi 30. des. 2004). L. 65/2006 (tóku gildi 27. júní 2006). L. 167/2006 (tóku gildi 1. jan. 2007). L. 65/2010 (tóku gildi 27. júní 2010). L. 126/2011 (tóku gildi 30. sept. 2011). L. 74/2014 (tóku gildi 7. júní 2014). L. 27/2018 (tóku gildi 15. maí 2018 nema 1. gr. sem tók gildi 1. júlí 2020).

Ef í lögum þessum er getið um ráðherra eða ráðuneyti án þess að málefnasvið sé tilgreint sérstaklega eða til þess vísað, er átt við fjármála- og efnahagsráðherra eða fjármála- og efnahagsráðuneyti sem fer með lög þessi. Upplýsingar um málefnasvið ráðuneyta skv. forsetaúrskurði er að finna hér.

I. kafli. Heiti, hlutverk, aðild, stjórn og iðgjald.
1. gr.
Sjóðurinn heitir Söfnunarsjóður lífeyrisréttinda og starfar með því skipulagi og markmiði sem segir í lögum þessum og samþykktum sjóðsins.
Heimilt er að skipta sjóðnum í deildir eftir fjárfestingarstefnu, eftir því hvernig ávinnslu réttinda er háttað og eftir því hvort lífeyrisréttindi eru í sameign eða séreign.
Hlutverk sjóðsins er að tryggja sjóðfélögum, eftirlifandi mökum þeirra og börnum lífeyri samkvæmt ákvæðum laga þessara og samþykkta sjóðsins.
Heimili sjóðsins og varnarþing er í Reykjavík.
2. gr.
Skylda til greiðslu iðgjalds nær til allra launþega og þeirra sem stunda atvinnurekstur eða sjálfstæða starfsemi frá 16 ára til 70 ára aldurs og hafa ekki fullnægt tryggingarskyldu sinni með aðild að öðrum lífeyrissjóði og greiðslu iðgjalds til hans í samræmi við ákvæði laga nr. 129/1997, um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða.
3. gr.
[[Ráðherra skipar sjö stjórnarmenn og tvo varamenn í stjórn sjóðsins til fjögurra ára í senn. Skulu fjórir stjórnarmenn og einn varamaður skipaðir eftir tilnefningu stjórnar Landssamtaka lífeyrissjóða og þrír stjórnarmenn og einn varamaður skipaðir án tilnefningar. Einn þeirra stjórnarmanna sem skipaðir eru án tilnefningar skal vera formaður sjóðstjórnar en að öðru leyti skiptir stjórnin með sér verkum.]1) [Ráðherra]2) ákvarðar þóknun stjórnarmanna. Stjórnin skal halda gerðabók og rita í hana allar samþykktir sínar. Til þess að samþykkt sé lögmæt þarf meiri hluti stjórnarmanna að greiða henni atkvæði.]3)
   1)L. 27/2018, 1. gr. 2)L. 126/2011, 282. gr. 3)L. 141/2004, 1. gr.
4. gr.
Stjórn sjóðsins fer með yfirstjórn hans. Stjórnin skal fjalla um allar meiri háttar ákvarðanir varðandi stefnumótun sjóðsins og starfsemi. Hún skal sjá um að nægjanlegt eftirlit sé haft með bókhaldi og meðferð fjármuna sjóðsins. Stjórnin setur honum samþykktir í samræmi við ákvæði laga þessara og ákvæði laga nr. 129/1997, um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða.
5. gr.1)
   1)L. 27/2018, 2. gr.
6. gr.1)
   1)L. 27/2018, 2. gr.
7. gr.
Launagreiðanda ber að halda eftir iðgjöldum starfsmanna sinna og standa skil á þeim mánaðarlega ásamt eigin iðgjaldshluta. Gjalddagi iðgjalds hvers mánaðar er 10. næsta mánaðar og eindagi síðasta dag sama mánaðar. Hafi ekki verið greitt á eindaga skal innheimta hæstu vanskilavexti sem Seðlabanki Íslands heimilar innlánsstofnunum að taka frá gjalddaga til greiðsludags. Launagreiðanda og sjálfstæðum atvinnurekanda ber að tilkynna sjóðnum ef þeim ber ekki lengur að standa skil á lífeyrisiðgjaldi þar sem þeir hafa hætt starfsemi eða launþegar þeirra látið af störfum.
8. gr.
Stjórn sjóðsins er heimilt að innheimta þóknun allt að [4%]1) af iðgjaldi vegna innheimtu iðgjalda sem sjóðnum ber að innheimta í samræmi við 6. gr. laga nr. 129/1997. [Feli sjóðurinn þriðja aðila, sem til þess er bær, að annast innheimtu iðgjaldanna, enda hafi ekki verið orðið við áskorunum sjóðsins um greiðslu þeirra, skal kostnaður sem af því leiðir greiddur af þeim sem innheimtan beinist að.]2)
   1)L. 141/2004, 2. gr. 2)L. 74/2014, 1. gr.

II. kafli. 1)
   1)L. 27/2018, 3. gr.

III. kafli. Ýmis ákvæði.
14. gr.1)
   1)L. 27/2018, 4. gr.
15. gr.
Nánari ákvæði um skipulag sjóðsins og starfsemi hans skulu sett í samþykktir sem stjórn sjóðsins semur og staðfestar eru af [ráðherra]1) að fenginni umsögn Fjármálaeftirlitsins.
Sjóðurinn skal tilkynna Fjármálaeftirlitinu um breytingar á stjórn, framkvæmdastjóra, endurskoðanda og tryggingafræðingi.
   1)L. 126/2011, 282. gr.
16. gr.
Lög þessi öðlast gildi 1. janúar 1999.