Lagasafn.  Íslensk lög 12. apríl 2024.  Útgáfa 154b.  Prenta í tveimur dálkum.


[Lög um skráð trúfélög og lífsskoðunarfélög]1)

1999 nr. 108 28. desember


   1)L. 6/2013, 12. gr.
Ferill málsins á Alþingi.   Frumvarp til laga.

Tóku gildi 1. janúar 2000. Breytt með: L. 162/2010 (tóku gildi 1. jan. 2011). L. 126/2011 (tóku gildi 30. sept. 2011). L. 6/2013 (tóku gildi 1. jan. 2013, birt í Stjtíð. 13. febr. 2013). L. 145/2013 (tóku gildi 1. febr. 2014 nema 2.–4. mgr. 24. gr. sem tóku gildi 1. júní 2014).

Ef í lögum þessum er getið um ráðherra eða ráðuneyti án þess að málefnasvið sé tilgreint sérstaklega eða til þess vísað, er átt við dómsmálaráðherra eða dómsmálaráðuneyti sem fer með lög þessi. Upplýsingar um málefnasvið ráðuneyta skv. forsetaúrskurði er að finna hér.

I. kafli. [Almenn ákvæði um trúfélög og lífsskoðunarfélög.]1)
   1)L. 6/2013, 2. gr.
1. gr. Trúfrelsi.
Rétt eiga menn á að stofna trúfélög og iðka trú sína í samræmi við sannfæringu hvers og eins. Eigi má þó fremja neitt sem er gagnstætt góðu siðferði og allsherjarreglu. Á sama hátt eiga menn rétt á að stofna félög um hvers konar kenningar og lífsskoðanir, þ.m.t. um trúleysi.
Eigi er skylt að tilkynna stjórnvöldum um stofnun eða starfsemi trúfélaga eða annarra félaga um lífsskoðanir.
[Óheimilt er að taka upp heiti á trúfélag eða lífsskoðunarfélag sem er svo líkt heiti annars trúfélags eða lífsskoðunarfélags að misskilningi geti valdið.]1)
   1)L. 6/2013, 1. gr.

II. kafli. [Skráð trúfélög og lífsskoðunarfélög.]1)
   1)L. 6/2013, 11. gr.
2. gr. [Skráning trúfélags og lífsskoðunarfélags.]1)
[Heimilt er að skrá trúfélög utan þjóðkirkjunnar og lífsskoðunarfélög. Með skráningu fá trúfélög og lífsskoðunarfélög réttindi og skyldur sem lög ákveða.]1) [Sýslumaður]2) annast skráningu trúfélaga [og lífsskoðunarfélaga].1) Þegar trúfélag [eða lífsskoðunarfélag]1) hefur verið skráð skal [sýslumaður]2) láta því í té vottorð um skráninguna og auglýsa hana í Lögbirtingablaði. Réttaráhrif skráningar teljast frá birtingu tilkynningar í Lögbirtingablaði.
[Ráðherra er heimilt að ákveða að skráning trúfélaga og lífsskoðunarfélaga skv. 1. mgr. verði á hendi eins sýslumanns.3)
Ákvarðanir sýslumanns samkvæmt lögum þessum eru kæranlegar til ráðuneytis.]2)
   1)L. 6/2013, 3. gr. 2)L. 145/2013, 19. gr. 3)Rg. 106/2014, sbr. 1152/2014.
3. gr. Almennt skilyrði skráningar.
[Skilyrði fyrir skráningu trúfélags er að um sé að ræða félag sem leggur stund á átrúnað eða trú.]1)
[Skilyrði fyrir skráningu lífsskoðunarfélags er að um sé að ræða félag sem byggist á veraldlegum lífsskoðunum, miðar starfsemi sína við ákveðin siðferðisgildi og mannrækt og fjallar um siðfræði eða þekkingarfræði með skilgreindum hætti.]1)
[Enn fremur er það skilyrði skráningar trúfélags eða lífsskoðunarfélags að félagið hafi náð fótfestu, starfsemi þess sé virk og stöðug, tilgangur þess stríði ekki gegn lögum, góðu siðferði eða allsherjarreglu og að í félaginu sé kjarni félagsmanna sem taka þátt í starfsemi þess og styðja lífsgildi félagsins í samræmi við kenningar þær sem félagið er stofnað um og eiga til sóknar að gjalda hér á landi samkvæmt lögum um sóknargjöld o.fl. Þá er það skilyrði að félagið sjái um tilteknar athafnir, svo sem útfarir, giftingar, skírnir eða nafngjafir og fermingar eða aðrar hliðstæðar athafnir.]1)
[Ráðherra er heimilt að ákveða með reglugerð2) tiltekinn lágmarksfjölda félagsmanna til þess að heimilt sé að skrá trúfélag eða lífsskoðunarfélag samkvæmt lögum þessum.]1)
   1)L. 6/2013, 4. gr. 2)Rg. 106/2014.
4. gr. Umsókn um skráningu.
Trúfélag [eða lífsskoðunarfélag]1) sem óskar skráningar skal senda [sýslumanni]2) umsókn um skráningu. Með umsókn skulu fylgja upplýsingar um:
   1. [heiti félags og heimilisfang],1)
   2. nákvæmt félagatal, þar sem fram koma nöfn, kennitölur og heimili félagsmanna,
   3. [stefnuskrá og/eða trúarkenningar félagsins og tengsl þeirra við önnur trúarbrögð, trúarhreyfingar eða aðrar lífsskoðanir eða lífsskoðunarfélög],1)
   4. lög félagsins og allar aðrar reglur sem kunna að gilda um ráðstöfun fjármuna félagsins,
   5. nöfn stjórnarmanna og forstöðumanns,
   6. starfsemi félagsins, svo sem reglulegt samkomuhald eða annað sem gefur til kynna að starfsemi þess sé stöðug og virk.
[Sýslumaður]2) getur enn fremur, ef tilefni er til, óskað nánari upplýsinga um skipulag trúfélags [eða lífsskoðunarfélags],1) starfshætti, félagssvæði, skiptingu í söfnuði eða deildir ef því er að skipta.
Áður en trúfélag [eða lífsskoðunarfélag]1) er skráð skal félagið tilnefna forstöðumann sem er ábyrgur gagnvart [sýslumanni]2) fyrir því að farið sé að ákvæðum laga þessara. Um hæfi forstöðumanns gilda ákvæði 7. gr.
[Áður en leyfi er veitt til skráningar trúfélags eða lífsskoðunarfélags skal leita álits nefndar sem ráðherra skipar. Einn nefndarmaður er skipaður samkvæmt tilnefningu lagadeildar hér á landi á háskólastigi, og skal hann vera formaður nefndarinnar, annar tilnefndur af félags- og mannvísindadeild Háskóla Íslands, sá þriðji tilnefndur af guðfræði- og trúarbragðafræðideild Háskóla Íslands og sá fjórði tilnefndur af sagnfræði- og heimspekideild Háskóla Íslands. Falli atkvæði nefndarmanna jafnt skal atkvæði formanns nefndarinnar hafa tvöfalt vægi.]1)
   1)L. 6/2013, 5. gr. 2)L. 145/2013, 20. gr.
5. gr. [Eftirlit með skráðum trúfélögum og lífsskoðunarfélögum.]1)
Skráð [trúfélög og lífsskoðunarfélög skulu]1) árlega fyrir lok marsmánaðar senda [sýslumanni]2) skýrslu um starfsemi sína á næstliðnu ári og jafnframt gera grein fyrir breytingum sem orðið hafa á þeim atriðum sem upplýsingar ber að veita um í umsókn um skráningu. Sérstaklega skal gera grein fyrir breytingum á félagatali og ráðstöfun fjármuna [félags].1)
Tilkynna skal [sýslumanni]2) þegar í stað um skipun, flutning og starfslok forstöðumanns og um tilnefningu nýs forstöðumanns.
   1)L. 6/2013, 6. gr. 2)L. 145/2013, 20. gr.
6. gr. Skráning felld úr gildi.
Ef skilyrði skráningar eru ekki lengur fyrir hendi eða trúfélag [eða lífsskoðunarfélag]1) vanrækir skyldur sínar samkvæmt lögum skal [sýslumaður]2) veita félaginu skriflega viðvörun og setja því frest til að bæta úr því sem áfátt er. Skal fresturinn ekki vera skemmri en einn mánuður. Ef ekki er bætt úr því innan frestsins getur [sýslumaður]2) ákveðið að fella skráningu trúfélags [eða lífsskoðunarfélags]1) úr gildi. Áður en skráning er felld úr gildi skal gefa stjórn félags kost á að tjá sig um málið.
Þegar skráð trúfélag [eða lífsskoðunarfélag]1) er lagt niður eða starfar af öðrum ástæðum ekki lengur sem skráð trúfélag [eða lífsskoðunarfélag]1) er þeim sem annast vörslu embættisbóka, sem því er falið að færa, skylt að afhenda þær [sýslumanni].2) Embættisbækurnar skulu afhentar Þjóðskjalasafni til varðveislu eftir sömu reglum og gilda um önnur opinber gögn.
[Sýslumaður]2) skal auglýsa niðurfellingu skráningar í Lögbirtingablaði og miðast réttaráhrif hennar við það.
   1)L. 6/2013, 7. gr. 2)L. 145/2013, 20. gr.
7. gr. [Forstöðumenn skráðra trúfélaga og lífsskoðunarfélaga.]1)
Forstöðumaður skráðs trúfélags [eða lífsskoðunarfélags]1) skal ekki vera yngri en 25 ára. Hann skal að öðru leyti fullnægja almennum hæfisskilyrðum til að gegna störfum á vegum hins opinbera, öðrum en þeim sem varða ríkisfang. Enn fremur er skilyrði að forstöðumaður eigi til sóknar að gjalda hér á landi samkvæmt lögum um sóknargjöld.
Áður en forstöðumaður trúfélags [eða lífsskoðunarfélags]1) tekur til starfa skal hann senda [sýslumanni]2) skriflega yfirlýsingu um að hann muni vinna af samviskusemi þau störf sem honum eru í því starfi falin samkvæmt lögum.
Forstöðumaður skal færa þær embættisbækur sem [sýslumaður]2) fyrirskipar. Hann gefur jafnframt út fullgild embættisvottorð um það efni sem í embættisbækurnar er skráð og um þau embættisverk sem hann hefur unnið.
Forstöðumaður skráðs trúfélags [eða lífsskoðunarfélags]1) er háður ábyrgð opinbers starfsmanns í framkvæmd þeirra starfa sem honum eru falin samkvæmt ákvæðum laga. Vanræki hann skyldur sínar samkvæmt ákvæðum laga eða reglugerða settra samkvæmt þeim skal [sýslumaður]2) veita honum skriflega viðvörun og tilkynna það stjórn trúfélagsins [eða lífsskoðunarfélagsins].1) Ef ekki er bætt úr eða ef um mjög alvarlegt brot er að ræða getur [sýslumaður]2) svipt hann rétti til að framkvæma þau störf sem honum eru falin samkvæmt ákvæðum laga. Sama á við ef hann á annan hátt missir skilyrði til að gegna starfi forstöðumanns.
[Forstöðumönnum skráðra trúfélaga og lífsskoðunarfélaga er heimilt að tilnefna einstaklinga innan þess félags sem þeir veita forstöðu til að annast þau embættisverk sem forstöðumanni skráðs trúfélags eða lífsskoðunarfélags eru falin samkvæmt lögum. Um hæfi umræddra einstaklinga gilda sömu hæfisskilyrði og reglur og um forstöðumenn skv. 1.–3. mgr. [Sýslumaður]2) getur, samkvæmt umsókn forstöðumanns, veitt tilnefndum einstaklingum löggildingu til þess að gegna verkum forstöðumanns, en ekki lengur en til þriggja ára í senn. Tilnefndir einstaklingar skulu starfa á ábyrgð og í umboði forstöðumanns viðkomandi skráðs trúfélags eða lífsskoðunarfélags.
[Sýslumaður]2) skal upplýsa Þjóðskrá Íslands um þá einstaklinga innan skráðra trúfélaga og lífsskoðunarfélaga sem hafa heimild til þess að annast embættisverk forstöðumanns viðkomandi félags.]1)
   1)L. 6/2013, 8. gr. 2)L. 145/2013, 20. gr.
8. gr. [Aðild að skráðu trúfélagi eða lífsskoðunarfélagi.]1)
Þeir sem eru orðnir 16 ára að aldri geta tekið ákvörðun um inngöngu í skráð trúfélag [eða lífsskoðunarfélag]1) eða úrsögn úr trúfélagi [eða lífsskoðunarfélagi].1)
[Barn getur frá fæðingu heyrt til trúfélagi eða lífsskoðunarfélagi eða verið utan trúfélaga og lífsskoðunarfélaga með eftirfarandi hætti:
   1. Séu foreldrar barns í hjúskap eða skráðri sambúð við fæðingu þess skal það heyra til sama skráða trúfélagi eða lífsskoðunarfélagi og foreldrar þess en ella vera utan trúfélaga og lífsskoðunarfélaga ef það gildir um foreldrana.
   2. Ef foreldrar barns sem eru í hjúskap eða skráðri sambúð við fæðingu þess heyra ekki til sama skráða trúfélagi eða lífsskoðunarfélagi eða annað foreldrið er utan trúfélaga og lífsskoðunarfélaga skulu þeir taka sameiginlega ákvörðun um hvort og þá hvaða skráða trúfélagi eða lífsskoðunarfélagi barnið eigi að heyra til. Fram til þess tíma verður þessi staða barnsins ótilgreind.
   3. Ef foreldrar barns eru ekki í hjúskap eða skráðri sambúð þegar barn fæðist skal það heyra til sama skráða trúfélagi eða lífsskoðunarfélagi og það foreldri sem fer með forsjá þess en ella vera utan trúfélaga og lífsskoðunarfélaga ef það gildir um foreldrið.]1)
Það foreldri sem fer með forsjá barns tekur ákvörðun um inngöngu þess í eða úrsögn úr skráðu trúfélagi [eða lífsskoðunarfélagi].1) Ef foreldrar fara saman með forsjá barns taka þeir ákvörðun sameiginlega. Hafi barn náð 12 ára aldri skal leita álits þess um slíka ákvörðun.
Hafi forsjá barns verið falin öðrum en foreldrum á grundvelli laga tekur forsjáraðili ákvörðun um inngöngu þess í eða úrsögn úr skráðu trúfélagi [eða lífsskoðunarfélagi].1)
[Enginn má samtímis heyra til þjóðkirkjunni, skráðu trúfélagi utan þjóðkirkjunnar eða skráðu lífsskoðunarfélagi eða fleiri en einu skráðu trúfélagi utan þjóðkirkjunnar eða skráðu lífsskoðunarfélagi.]1)
   1)L. 6/2013, 9. gr.
9. gr. [Innganga og úrsögn úr trúfélagi eða lífsskoðunarfélagi og úrsögn úr þjóðkirkjunni.]1)
Um inngöngu í og aðild að trúfélagi [eða lífsskoðunarfélagi]1) gilda þau ákvæði sem lög og samþykktir þeirra mæla fyrir um. Forstöðumaður sem í hlut á skal gæta þess að skilyrðum laga sé fullnægt og að sá sem leitar inngöngu heyri ekki samtímis til öðru skráðu trúfélagi, [lífsskoðunarfélagi]1) eða þjóðkirkjunni.
Úrsögn úr skráðu trúfélagi, [lífsskoðunarfélagi]1) eða þjóðkirkjunni skal beint skriflega eða með persónulegri tilkynningu til forstöðumanns sem í hlut á en hann skal gæta þess að skilyrðum laganna sé fullnægt.
Forstöðumaður skal skrá inngöngu í eða úrsögn úr trúfélagi [eða lífsskoðunarfélagi]1) og láta í té vottorð því til staðfestu.
Að því leyti sem tilkynning til þjóðskrár um inngöngu í og úrsögn úr trúfélagi [eða lífsskoðunarfélagi]1) ræður skráningu vegna sérstakra atriða í sambandi við aðild að félagi, svo sem álagningar opinberra gjalda, ræðst gildistími í þeim atriðum af lögmætri tilkynningu til þjóðskrár. Geta þeir sem hlut eiga að máli annast slíka tilkynningu með framvísun vottorðs skv. 3. mgr.
   1)L. 6/2013, 10. gr.

III. kafli. Ýmis ákvæði.
10. gr.
Ráðherra er heimilt að setja í reglugerð1) nánari reglur um framkvæmd laga þessara.
   1)Rg. 106/2014, sbr. 1152/2014.
11. gr.
Ákvæði laga þessara gilda um starfsemi skráðra trúfélaga sem fengið hafa skráningu fyrir gildistöku þeirra.
12. gr.
Lög þessi öðlast gildi 1. janúar 2000.