Lagasafn.  Íslensk lög 12. apríl 2024.  Útgáfa 154b.  Prenta í tveimur dálkum.


Lög um rétt nefndar samkvæmt ályktun Alþingis til aðgangs að opinberum gögnum um öryggismál

2006 nr. 127 9. október


Ferill málsins á Alþingi.   Frumvarp til laga.

Tóku gildi 13. október 2006. Breytt með: L. 72/2019 (tóku gildi 5. júlí 2019 nema 9. gr. sem tók gildi 1. jan. 2021; EES-samningurinn: XX. viðauki tilskipun 2003/4/EB).


1. gr.
Nefnd, sem skipuð var af forsætisráðherra 22. júní 2006 á grundvelli ályktunar Alþingis frá 3. júní 2006, um aðgang að opinberum gögnum um öryggismál, skal hafa frjálsan aðgang að öllum gögnum í vörslum stjórnvalda sem snerta öryggismál Íslands, innra og ytra öryggi, á árunum 1945–1991 til þess að gera tillögu um tilhögun á frjálsum aðgangi fræðimanna að þeim.
Þrátt fyrir lögmælta þagnarskyldu er öllum opinberum starfsmönnum skylt að svara fyrirspurnum nefndarinnar um verklag við öflun, skráningu og varðveislu upplýsinga um öryggismál Íslands á árunum 1945–1991. Hið sama gildir um opinbera starfsmenn sem látið hafa af störfum.
Nefndarmenn og starfsmaður nefndarinnar skv. 1. mgr. eru bundnir þagnarskyldu um viðkvæmar einkalífsupplýsingar sem þeir komast að í starfi sínu á vegum nefndarinnar. Hið sama gildir um upplýsingar um öryggismál Íslands sem varða enn þá virka öryggis- eða varnarhagsmuni Íslands.
[Upplýsingalög gilda ekki um störf nefndarinnar.]1)
Formaður nefndarinnar, sbr. 1. mgr. þessarar greinar, skal á starfstíma hennar gera forseta Alþingis og formönnum þingflokka grein fyrir framvindu verksins, sbr. síðari málsgrein ályktunar Alþingis frá 3. júní 2006.
   1)L. 72/2019, 21. gr.
2. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.