Lagasafn.  Íslensk lög 12. apríl 2024.  Útgáfa 154b.  Prenta í tveimur dálkum.


Lög um Náttúruminjasafn Íslands

2007 nr. 35 27. mars


Ferill málsins á Alþingi.   Frumvarp til laga.

Tóku gildi 30. mars 2007. Breytt með: L. 126/2011 (tóku gildi 30. sept. 2011). L. 50/2023 (tóku gildi 28. júní 2023).

Ef í lögum þessum er getið um ráðherra eða ráðuneyti án þess að málefnasvið sé tilgreint sérstaklega eða til þess vísað, er átt við menningar- og viðskiptaráðherra eða menningar- og viðskiptaráðuneyti sem fer með lög þessi. Upplýsingar um málefnasvið ráðuneyta skv. forsetaúrskurði er að finna hér.

I. kafli. Markmið og hlutverk.
1. gr.
Náttúruminjasafn Íslands er eign íslenska ríkisins. Safnið er höfuðsafn á sviði náttúrufræða. Kostnaður af rekstri Náttúruminjasafnsins greiðist úr ríkissjóði eftir því sem ákveðið er í fjárlögum.
2. gr.
Hlutverk Náttúruminjasafns Íslands er að varpa ljósi á náttúru Íslands, náttúrusögu landsins, nýtingu náttúruauðlinda og náttúruvernd, auk þess að varpa ljósi á samspil manns og náttúru og á náttúru landsins í alþjóðlegu samhengi.
Náttúruminjasafnið safnar munum sem henta starfsemi þess, skráir þá og varðveitir. Safnið aflar upplýsinga sem veita yfirlit yfir náttúru Íslands og nýtingu náttúruauðlinda innan lands og utan og annast kynningu með sýningum og annarri fræðslustarfsemi með það að markmiði að veita sem víðtækasta sýn á íslenska náttúru. Safnið skal miðla fræðslu um íslenska náttúru til skóla, fjölmiðla og almennings. Safnið annast rannsóknir á starfssviði sínu.
Náttúruminjasafn Íslands veitir öðrum náttúruminjasöfnum ráðgjöf, stuðlar að samvinnu þeirra hér á landi og vinnur að samræmdri safnastefnu á sviði náttúrufræða.
Náttúruminjasafnið skal eiga samstarf við vísinda- og rannsóknastofnanir á sviði náttúrufræða á vegum ríkisins og annarra aðila.
3. gr.
Náttúrufræðistofnun Íslands er vísindalegur og faglegur bakhjarl Náttúruminjasafnsins. Stofnanirnar skulu hafa með sér náið samstarf sem skal grundvallast á sérstöku samkomulagi milli þeirra.
Safnkostur Náttúruminjasafns Íslands er ásamt vísindasöfnum Náttúrufræðistofnunar undirstaða fræðslu- og sýningarstarfsemi safnsins og rannsókna þess.

II. kafli. Skipulag og yfirstjórn.
4. gr.
[Ráðherra]1) fer með yfirstjórn Náttúruminjasafns Íslands.
   1)L. 126/2011, 449. gr.
5. gr.
[Ráðherra]1) skipar forstöðumann Náttúruminjasafns Íslands, safnstjóra, til fimm ára í senn. [Endurnýja má skipun safnstjóra einu sinni til næstu fimm ára.]2) Skal safnstjóri hafa háskólamenntun og staðgóða þekkingu á starfssviði safnsins. …2)
Safnstjóri er stjórnandi safnsins og mótar stefnu þess. Hann er ábyrgur gagnvart ráðherra fyrir fjárhagslegum rekstri og starfsemi safnsins.
   1)L. 126/2011, 449. gr. 2)L. 50/2023, 3. gr.

III. kafli. Ýmis ákvæði.
6. gr.
Safninu er heimilt að taka aðgangseyri. Þá er safninu heimilt að taka gjald fyrir lán á munum, ljósmyndun muna, afrit af ljósmyndum, sérunnar munaskrár og úttak tölvugagna, sérfræðilega heimildaþjónustu og fjölföldun hvers konar til þess að standa straum af kostnaði. Gjaldskrá fyrir þessa þjónustu skal háð samþykki [ráðherra].1)
   1)L. 126/2011, 449. gr.
7. gr.
[Ráðherra]1) er heimilt með reglugerð að setja nánari ákvæði um framkvæmd laga þessara.
   1)L. 126/2011, 449. gr.
8. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.

Ákvæði til bráðabirgða.
Gripir, sem við gildistöku laga þessara tilheyra Náttúrufræðistofnun Íslands og hafa fyrst og fremst sýningargildi, skulu eftir gildistöku laga þessara vera á forræði Náttúruminjasafns Íslands samkvæmt samkomulagi stofnananna, sbr. 3. gr.