Lagasafn.  Íslensk lög 12. apríl 2024.  Útgáfa 154b.  Prenta í tveimur dálkum.


Lög um Heyrnar- og talmeinastöð

2007 nr. 42 27. mars


Ferill málsins á Alþingi.   Frumvarp til laga.

Tóku gildi 1. september 2007. Breytt með: L. 112/2008 (tóku gildi 1. okt. 2008 nema 12. tölul. 59. gr. sem tók gildi 25. sept. 2008; komu til framkvæmda skv. fyrirmælum í 2. mgr. 56. gr.). L. 162/2010 (tóku gildi 1. jan. 2011). L. 126/2011 (tóku gildi 30. sept. 2011). L. 90/2018 (tóku gildi 15. júlí 2018; EES-samningurinn: XI. viðauki reglugerð 2016/679).

Ef í lögum þessum er getið um ráðherra eða ráðuneyti án þess að málefnasvið sé tilgreint sérstaklega eða til þess vísað, er átt við heilbrigðisráðherra eða heilbrigðisráðuneyti sem fer með lög þessi. Upplýsingar um málefnasvið ráðuneyta skv. forsetaúrskurði er að finna hér.

1. gr.
Starfrækja skal Heyrnar- og talmeinastöð undir yfirstjórn [ráðherra].1)
   1)L. 126/2011, 453. gr.
2. gr.
Heyrnar- og talmeinastöð annast þjónustu við heyrnarlausa, heyrnarskerta og þá sem eru með heyrnar- og talmein. Hlutverk Heyrnar- og talmeinastöðvar er m.a.:
   1. Að sjá um heyrnarmælingar, greiningu og meðferð á heyrnar- og talmeinum.
   2. Að veita faglega ráðgjöf og annast þjálfun og endurhæfingu heyrnarlausra, heyrnarskertra og þeirra sem eru með heyrnar- og talmein.
   3. Að sinna forvörnum á starfssviði sínu í samvinnu við aðrar stofnanir eftir því sem við á.
   4. Að útvega hjálpartæki fyrir heyrnarskerta, heyrnarlausa og þá sem eru með heyrnar- og talmein og veita fræðslu og þjálfun í notkun þeirra. Stofnunin skal enn fremur sjá um viðhald og uppsetningu hjálpartækjanna.
   5. Að stunda rannsóknir og sinna fræðslu á starfssviði sínu. Stofnunin skal safna upplýsingum um alla þá sem eru heyrnarskertir, heyrnarlausir eða eru með heyrnar- og talmein og öðrum tölfræðilegum upplýsingum sem nýtast við rannsóknar- og þróunarstörf. Um söfnun upplýsinga skal fara samkvæmt lögum um persónuvernd og [vinnslu]1) persónuupplýsinga og reglum settum með stoð í þeim lögum og lögum um landlækni eftir því sem við á.
   1)L. 90/2018, 54. gr.
3. gr.
Ráðherra skipar forstjóra Heyrnar- og talmeinastöðvar til fimm ára í samræmi við ákvæði laga um heilbrigðisþjónustu. Forstjóri ræður aðra starfsmenn stofnunarinnar og skulu þeir hafa viðeigandi menntun á starfssviði stofnunarinnar. Heimilt er að kveða nánar á um menntunarskilyrði starfsmanna í reglugerð.
4. gr.
Við Heyrnar- og talmeinastöð skal vera fimm manna fagráð sem ráðherra skipar til fjögurra ára í senn. Fagráðið skal skipað þremur mönnum með menntun eða sérþekkingu á verksviði stofnunarinnar og tveimur fulltrúum notenda þjónustunnar. Fagráðið skal vera forstjóra til ráðuneytis um fagleg málefni og stefnumótun.
5. gr.
Ráðherra skal setja reglugerð1) um þátttöku ríkisins í kostnaði við hjálpartæki vegna heyrnar- og talmeina að höfðu samráði við Heyrnar- og talmeinastöð.
   1)Rg. 968/2015, sbr. 614/2022. Rg. 969/2015, sbr. 871/2017, 615/2022 og 969/2024.
6. gr.
Sjúkratryggður einstaklingur samkvæmt lögum um [sjúkratryggingar]1) skal greiða gjald fyrir þjónustu Heyrnar- og talmeinastöðvar sem hér segir:
   1. fyrir viðgerð á hjálpartækjum,
   2. fyrir sérfræðilæknisþjónustu og rannsóknir samkvæmt ákvæðum laga um [sjúkratryggingar]1) og reglum settum með stoð í þeim lögum,
   3. fyrir greiningu á máltruflun, komu vegna endurmats hjá talmeinafræðingi og aðrar talrannsóknir.
Fyrir heyrnarrannsókn á vinnustað skal greiða gjald sem standa skal undir kostnaði stofnunarinnar við rannsóknina.
Ráðherra setur reglugerð2) um gjaldtöku samkvæmt grein þessari að höfðu samráði við forstjóra og fagráð Heyrnar- og talmeinastöðvar. Skal gjaldskráin taka mið af kostnaði við þjónustu og framkvæmd einstakra verkefna. Heyrnar- og talmeinastöð innheimtir gjöld þessi.
Þeir sem ekki eru sjúkratryggðir hér á landi samkvæmt lögum um [sjúkratryggingar]1) skulu greiða gjald sem nemur kostnaði við veitta þjónustu í samræmi við reglugerð sem ráðherra setur, nema í gildi sé samningur um þjónustuna við það ríki sem þeir koma frá.
   1)L. 112/2008, 66. gr. 2)Rg. 968/2015, sbr. 614/2022.
7. gr.
Ráðherra er heimilt, í samræmi við ákvæði laga um heilbrigðisþjónustu, að fela öðrum aðilum með samningi að annast þá þjónustu sem greinir í 2. gr. eða hluta þeirrar þjónustu.
8. gr.
Ráðherra er heimilt í reglugerð1) að kveða nánar á um framkvæmd laga þessara.
   1)Rg. 968/2015, sbr. 614/2022. Rg. 1551/2023.
9. gr.
Lög þessi öðlast gildi 1. september 2007.