Lagasafn.  Íslensk lög 12. apríl 2024.  Útgáfa 154b.  Prenta í tveimur dálkum.


Lög um lagagildi viðaukasamnings milli ríkisstjórnar Íslands og Alcan Holdings Switzerland Ltd. um álbræðslu við Straumsvík

2007 nr. 112 21. júní


Ferill málsins á Alþingi.   Frumvarp til laga.

Tóku gildi 3. júlí 2007.

1. gr.
Með lögum þessum staðfestist samningur milli ríkisstjórnar Íslands og Alcan Holdings Switzerland Ltd. (sem hefur yfirtekið réttindi og skyldur Alusuisse-Lonza Holding Ltd. að lögum), dags. 5. mars 2007, um viðauka við aðalsamning milli sömu aðila, dags. 28. mars 1966 (áður breyttan með viðaukum dags. 28. október 1969, 10. desember 1975, 5. nóvember 1984, 11. nóvember 1985 og 16. nóvember 1995), um byggingu og rekstur álbræðslu við Straumsvík, í lögsagnarumdæmi Hafnarfjarðar. Samningurinn er prentaður sem fylgiskjal með lögum þessum, á íslensku og ensku.1)
   1)Um samningstextann vísast í Stjtíð. A 2007.
2. gr.
Ákvæði viðaukasamnings þess sem um ræðir í 1. gr. skulu hafa lagagildi hér á landi.
3. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.