Lagasafn.  Íslensk lög 12. apríl 2024.  Útgáfa 154b.  Prenta í tveimur dálkum.


Lög um greiðsluaðlögun einstaklinga

2010 nr. 101 2. júlí


Ferill málsins á Alþingi.   Frumvarp til laga.

Tóku gildi 1. ágúst 2010. Breytt með: L. 128/2010 (tóku gildi 19. okt. 2010). L. 135/2010 (tóku gildi 2. des. 2010). L. 162/2010 (tóku gildi 1. jan. 2011). L. 126/2011 (tóku gildi 30. sept. 2011). L. 85/2015 (tóku gildi 1. jan. 2016 nema 2. gr. og ákvæði til bráðabirgða I sem tóku gildi 24. júlí 2015). L. 90/2018 (tóku gildi 15. júlí 2018; EES-samningurinn: XI. viðauki reglugerð 2016/679). L. 48/2019 (tóku gildi 26. júní 2019). L. 45/2023 (tóku gildi 1. jan. 2024 nema 8. gr. og b-liður 9. gr. sem tóku gildi 21. júní 2023; um lagaskil sjá nánar 11. gr.). L. 21/2024 (tóku gildi 1. apríl 2024; um lagaskil sjá 31. gr.).

Ef í lögum þessum er getið um ráðherra eða ráðuneyti án þess að málefnasvið sé tilgreint sérstaklega eða til þess vísað, er átt við félags- og vinnumarkaðsráðherra eða félags- og vinnumarkaðsráðuneyti sem fer með lög þessi. Upplýsingar um málefnasvið ráðuneyta skv. forsetaúrskurði er að finna hér.

I. kafli. Almenn ákvæði.
1. gr. Markmið laganna.
Markmið laga þessara er að gera einstaklingum í verulegum greiðsluerfiðleikum kleift að endurskipuleggja fjármál sín og koma á jafnvægi milli skulda og greiðslugetu þannig að raunhæft sé að skuldari geti staðið við skuldbindingar sínar um fyrirsjáanlega framtíð.
Að uppfylltum skilyrðum laga þessara er einstaklingum heimilt í kjölfar gagnaöflunar að fara þess á leit við umboðsmann skuldara að hann samþykki umsókn um heimild til að leita eftir greiðsluaðlögun með samningi við kröfuhafa. Sá samningur getur bæði tekið til krafna sem tryggðar eru með veðrétti í eign skuldara og krafna sem engin slík trygging er fyrir eða einungis til krafna af öðrum hvorum meiði.
2. gr. Hverjir leitað geta greiðsluaðlögunar.
Einstaklingur sem sýnir fram á að hann sé eða verði um fyrirsjáanlega framtíð ófær um að standa í skilum með fjárskuldbindingar sínar getur leitað greiðsluaðlögunar í samræmi við lög þessi.
Einstaklingur telst ófær um að standa við fjárskuldbindingar sínar þegar ætla má að hann geti ekki eða eigi í verulegum erfiðleikum með að standa við fjárskuldbindingar sínar um fyrirséða framtíð með tilliti til eðlis skuldanna, eigna og fjárhagslegra og félagslegra aðstæðna hans að öðru leyti.
Hjón eða einstaklingar í óvígðri sambúð geta í sameiningu leitað greiðsluaðlögunar.
Þeir einir geta leitað greiðsluaðlögunar samkvæmt lögum þessum sem eiga lögheimili og eru búsettir hér á landi. Frá þessu skilyrði má þó víkja ef:
   a. [upplýsingar um fjárhagsstöðu skuldara erlendis liggja fyrir,
   b. einstaklingur skuldar ekki, eða í óverulegum mæli, erlendum kröfuhöfum,]1)
   [c. einstaklingur á ekki húsnæði eða aðrar eignir með umtalsvert verðgildi utan Íslands, nema ljóst sé að eignastaða valdi ekki vandkvæðum í greiðsluaðlögunarumleitunum.]1)
   1)L. 21/2024, 1. gr.
3. gr. Kröfur sem greiðsluaðlögun tekur til.
Greiðsluaðlögun tekur til allra annarra krafna á hendur skuldara en þeirra sem hér greinir:
   a. krafna sem orðið hafa til eftir að umsókn um greiðsluaðlögun hefur verið [samþykkt skv. 7. gr.],1)
   b. krafna um annað en peningagreiðslu sem verður fullnægt eftir aðalefni sínu,
   c. krafna sem nytu stöðu skv. 109., 110. eða 112. gr. laga um gjaldþrotaskipti o.fl. ef bú skuldara hefði verið tekið til gjaldþrotaskipta á þeim degi sem umsókn hans um greiðsluaðlögun var [samþykkt en sá dagur sem umsókn um greiðsluaðlögun barst umboðsmanni skuldara telst vera frestdagur í skilningi laga um gjaldþrotaskipti o.fl.],1)
   d.–e.1)
   f. fésekta sem ákveðnar hafa verið með dómi eða af stjórnvaldi eða með sátt áður en umsókn um greiðsluaðlögun var tekin til greina, krafna um vangoldinn virðisaukaskatt, krafna um afdregna vangoldna staðgreiðslu opinberra gjalda og krafna um skaðabætur vegna tjóns sem samkvæmt dómi hefur verið valdið með refsiverðu athæfi, [að öðru leyti en því að ákveða má að greitt verði af þeim kröfum í samræmi við d-lið 1. mgr. 21. gr. Þá má ákveða að veittur sé gjaldfrestur á þeim á tímabili greiðsluaðlögunar, að undanskildum fésektum],1)
   g. [krafna Lánasjóðs íslenskra námsmanna vegna námslána]2) að öðru leyti en því að ákveða má við greiðsluaðlögun að afborganir af þeim og vextir falli niður á greiðsluaðlögunartíma. [Þeim greiðslum sem falla niður á greiðsluaðlögunartíma ásamt vanskilaþætti kröfunnar, sem var tilkominn við gildistöku samnings, skal bæta við höfuðstól kröfunnar. Virkar kröfur vegna ábyrgðarskuldbindinga á námslánum sem og almenn skuldabréf sem stofnuð eru vegna vanskila, ofgreiðslu námslána eða markaðskjaralána teljast ekki kröfur vegna námslána],1)
   [h. krafna viðskiptabanka vegna tímabundinnar fyrirgreiðslu sem námsmanni er veitt vegna framfærslu á grundvelli væntanlegs láns frá Lánasjóði íslenskra námsmanna, enda hafi samhliða verið samið um að láninu skuli ráðstafa að fullu til uppgjörs á fyrirgreiðslu viðskiptabankans. Ef umsækjandi fullnægir ekki skilyrðum lánasjóðsins um framvindu náms skal farið með fyrirgreiðslu viðskiptabanka, eða eftir atvikum þann hluta hennar sem ekki fæst greiddur með láni frá sjóðnum, sem samningskröfu og tekur greiðsluaðlögun þá til kröfunnar],2)
   [i.]2) uppsafnaðra skulda við opinbera aðila vegna meðlags og fer um uppsafnaða skuld samkvæmt ívilnunarúrræðum [laga um innheimtu meðlaga o.fl.]3) [Þó er heimilt að ákveða að greitt verði af þeim kröfum í samræmi við d-lið 1. mgr. 21. gr. eða að veittur sé gjaldfrestur á þeim á tímabili greiðsluaðlögunar],1)
   [j. krafna sem stofnast hafa erlendis].1)
[Kröfuhafi]4) skuldarans getur afsalað sér réttindum skv. 1. mgr. þannig að greiðsluaðlögun hafi áhrif á kröfu hans, en það skal gert með skriflegri yfirlýsingu sem gerð er við undirbúning umsóknar um greiðsluaðlögun eða meðan á umleitunum til hennar stendur. Binda má slíka yfirlýsingu því skilyrði að hún feli því aðeins í sér endanlegt réttindaafsal að greiðsluaðlögun nái fram að ganga.
Greiðsluaðlögun leiðir til brottfalls skulda sem yrði skipað í skuldaröð skv. 114. gr. laga um gjaldþrotaskipti o.fl. ef bú skuldarans hefði verið tekið til gjaldþrotaskipta.
1)
   1)L. 21/2024, 3. gr. 2)L. 135/2010, 2. gr. 3)L. 45/2023, 12. gr. 4)L. 21/2024, 2. gr.

II. kafli. Heimild til að leita greiðsluaðlögunar.
4. gr. Umsókn um greiðsluaðlögun.
Skuldari skal leggja umsókn um greiðsluaðlögun fram hjá umboðsmanni skuldara. Í umsókninni skal koma fram:
   1. Fullt nafn skuldara, kennitala hans, lögheimili og dvalarstaður ef hann er annar en lögheimili.
   2. Sundurliðaðar upplýsingar um eignir skuldara.
   3. Sundurliðaðar upplýsingar um fjárhæð skulda sem þegar eru gjaldfallnar, svo og fjárhæð ógjaldfallinna skulda og ábyrgða og eftir atvikum upplýsingar um afborgunarkjör, gjalddaga, vexti og verðtryggingu þeirra.
   4. Hverjar tekjur skuldara eru, hvort sem er af vinnu eða öðrum sökum, og upplýsingar um af hvaða samningum eða öðru tekjurnar ráðast, svo og hvort horfur séu á að breytingar verði á tekjum eða atvinnuhögum. Jafnframt skal greina hvort hann muni hafa aðra fjármuni en vinnutekjur sínar til að greiða af skuldum, svo sem vegna sölu eigna eða fjárframlaga annarra.
   5. Hvort skuldari hafi borið ótakmarkaða ábyrgð á atvinnustarfsemi, einn eða í félagi við aðra, og ef svo er, hve stór hluti skulda hans stafi frá atvinnurekstrinum.
   6. Mat skuldara á meðaltali mánaðarlegra útgjalda sinna, þar á meðal vegna framfærslu, opinberra gjalda, húsnæðis og afborgana af skuldum.
   7. Mat skuldara með hliðsjón af framansögðu á því hversu háa fjárhæð hann geti greitt mánaðarlega til að standa við skuldbindingar sínar.
   8. Lýsing skuldara á því hvað valdið hafi skuldastöðu hans og hvers vegna hann geti ekki eða sjái ekki fram á að geta staðið að fullu við skuldbindingar sínar.
   9. Hvort einhverjar ráðstafanir hafi verið gerðar sem kynnu að vera riftanlegar við gjaldþrotaskipti á búi skuldara.
   10. Hverjir kunna að vera ábyrgðarmenn skuldara, samskuldarar eða hafa veitt veð fyrir skuldum hans og hvort hann beri sjálfur ábyrgð á skuldbindingum annarra.
   11.1)
1)
Umsókninni skulu fylgja gögn til staðfestingar þeim upplýsingum sem hún hefur að geyma …1) og síðustu fjögur skattframtöl skuldara.
Skuldari á rétt á endurgjaldslausri aðstoð frá umboðsmanni skuldara við að semja umsókn um greiðsluaðlögun og afla gagna í samræmi við ákvæði laga þessara. Skuldari skal þó jafnan sjálfur útvega nauðsynleg gögn og koma þeim til umboðsmanns skuldara.
1)
   1)L. 48/2019, 8. gr.
5. gr. Rannsóknarskylda umboðsmanns skuldara.
Umboðsmaður skuldara skal ganga úr skugga um að í umsókn skuldara komi fram allar nauðsynlegar upplýsingar og getur hann ef þörf krefur krafist þess að skuldari staðfesti upplýsingarnar með skriflegum gögnum.
[Á því stigi málsmeðferðar sem við á hverju sinni skal umboðsmaður skuldara óska eftir öllum nauðsynlegum upplýsingum frá skuldara, opinberum aðilum og einkaaðilum, svo sem um tekjur, gjöld, eignir, skuldir, ábyrgðir, framfærslu- og húsnæðiskostnað og framferði skuldarans. Ber aðilum skv. 1. málsl. að veita umboðsmanni skuldara umbeðnar upplýsingar án endurgjalds búi þeir yfir þeim. Upplýsingaöflun umboðsmanns skuldara er háð því skilyrði að hún sé nauðsynleg til að hann geti sinnt hlutverki sínu samkvæmt lögum. Umboðsmanni skuldara ber að upplýsa skuldara um fyrirhugaða upplýsingaöflun í samræmi við 2. mgr. 17. gr. laga um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga, nr. 90/2018, sbr. 14. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2016/679.]1)
   1)L. 48/2019, 9. gr.
6. gr. Aðstæður sem geta komið í veg fyrir að greiðsluaðlögun verði heimiluð.
[Synja skal um heimild til greiðsluaðlögunar, nema sérstakar aðstæður séu fyrir hendi, ef:
   a. fyrirliggjandi gögn sýna ekki fram á að skuldari uppfylli skilyrði laga þessara til að leita greiðsluaðlögunar,
   b. fyrirliggjandi gögn gefa ekki nægilega glögga mynd af því hvernig fjárhagur skuldara hefur verið, hver fjárhagur skuldara er við vinnslu umsóknar eða hver er væntanleg þróun fjárhags hans á tímabili greiðsluaðlögunar,
   c. óleyst fjárhagsleg málefni hindra að greiðsluaðlögunarumleitanir nái fram að ganga,
   d. aðstæður benda til að skuldari hafi á óheiðarlegan hátt stofnað til skulda með það að markmiði að leita greiðsluaðlögunar vegna þeirra eða gert aðrar fjárhagslegar ráðstafanir sem teljast óhæfilegar,
   e. skuldari hefur stofnað til skulda eftir að hann sótti um aðstoð hjá umboðsmanni skuldara og ekki er um að ræða eðlilega lántöku til endurfjármögnunar, til framfærslu eða öflunar nauðsynlegs íbúðarhúsnæðis,
   f. skuldari hefur veitt rangar eða villandi upplýsingar um aðstæður sem eru mikilsverðar í málinu eða látið hjá líða að veita slíkar upplýsingar,
   g. skuldari hefur áður fengið samning um greiðsluaðlögun eða nauðasamning til greiðsluaðlögunar,
   h. skuldari hefur hagað fjármálum sínum á verulega ámælisverðan hátt eða tekið fjárhagslega áhættu sem ekki var í samræmi við fjárhagsstöðu hans á þeim tíma sem til fjárhagsskuldbindingarinnar var stofnað,
   i. skuldari hefur á ámælisverðan hátt stofnað til óhóflegra skattkrafna,
   j. skuldari hefur efnt til fjárfestinga sem hefðu verið riftanlegar við gjaldþrotaskipti eða gert ráðstafanir sem hefðu verið riftanlegar,
   k. skuldari hefur á ámælisverðan hátt látið undir höfuð leggjast að standa við skuldbindingar sínar eftir því sem honum var framast unnt,
   l. bú skuldara hefur verið tekið til gjaldþrotaskipta samkvæmt úrskurði héraðsdómara og skiptameðferð er ekki lokið eða gjaldþrotaskiptum á búi skuldara hefur verið lokið en fyrningarfrestur samkvæmt lögum um gjaldþrotaskipti o.fl. er ekki liðinn,
   m. fyrri greiðsluaðlögunarumleitanir hafa verið felldar niður skv. 15. gr.,
   n. umboðsmaður skuldara metur það svo að greiðsluaðlögun sé ekki fallin til að leysa greiðsluvanda umsækjanda vegna krafna sem falla utan greiðsluaðlögunar.]1)
   1)L. 21/2024, 4. gr.
7. gr. Ákvörðun um greiðsluaðlögun.
Umboðsmaður skuldara skal taka ákvörðun um afgreiðslu á umsókn skuldara innan tveggja vikna frá því að hún liggur fyrir fullbúin [að mati umboðsmanns skuldara].1) [Umsókninni skal fylgja yfirlýsing skuldara um að hann hafi kynnt sér áhrif frestunar greiðslna skv. 11. gr.]1)
Samþykki umboðsmaður skuldara umsóknina skal hann upplýsa skuldara um skyldur hans skv. 12. gr.
[Hafi umboðsmaður skuldara samþykkt umsókn um greiðsluaðlögun þegar skuldari hefur gildan nauðasamning til greiðsluaðlögunar, [g-lið]1) 6. gr., fellur nauðasamningur sjálfkrafa úr gildi og skal umboðsmaður tilkynna kröfuhöfum og sýslumanni um ógildinguna.]2)
Ekki er unnt að kæra ákvörðun umboðsmanns skuldara um samþykki á umsókn. Ef umboðsmaður skuldara synjar skuldara um heimild til að leita greiðsluaðlögunar getur skuldari kært þá ákvörðun til [úrskurðarnefndar velferðarmála]3) innan [tveggja vikna]2) frá því að honum berst tilkynning um ákvörðun umboðsmanns skuldara.
Skuldari getur hvenær sem er á tímabili greiðsluaðlögunarumleitana dregið umsókn sína um greiðsluaðlögun til baka og fellur þá niður greiðslufrestur skv. 11. gr. Hafi umsjónarmaður verið skipaður skal hann tilkynna þeim kröfuhöfum sem vitað er um ákvörðun skuldara um að draga umsókn til baka. Hafi umsjónarmaður ekki verið skipaður skal umboðsmaður skuldara tilkynna um þetta.
   1)L. 21/2024, 5. gr. 2)L. 135/2010, 4. gr. 3)L. 85/2015, 13. gr.
8. gr. Tímabil greiðsluaðlögunarumleitana.
Með samþykki umboðsmanns skuldara á umsókn um greiðsluaðlögun hefst tímabil greiðsluaðlögunarumleitana [og skal það að jafnaði ekki vera lengra en fjórir mánuðir nema sérstakar aðstæður krefji].1)
   1)L. 21/2024, 6. gr.

III. kafli. Upphaf greiðsluaðlögunarumleitana.
9. gr. Skipun umsjónarmanns.
Hafi umboðsmaður skuldara samþykkt umsókn um greiðsluaðlögun skal hann þegar í stað skipa umsjónarmann með greiðsluaðlögun [að undangengnu mati á hæfi skv. 2. mgr.]1) Umsjónarmaður getur verið starfsmaður umboðsmanns skuldara og skal hann þá hafa lokið embættisprófi eða meistaraprófi í lögfræði, en ella skal hann vera lögmaður sem umboðsmaður skuldara ræður til verksins.
[Ákvæði II. kafla stjórnsýslulaga, nr. 37/1993, með síðari breytingum, um sérstakt hæfi gilda um hæfi umsjónarmanns til meðferðar máls. Áður en starfsmaður umboðsmanns skuldara eða lögmaður skv. 2. málsl. 1. mgr. er skipaður umsjónarmaður skal hann leggja mat á hvort hann sé hæfur til meðferðar viðkomandi máls. Viti hann um ástæður er kunna að valda vanhæfi hans skal hann án tafar vekja athygli umboðsmanns skuldara á þeim. Umboðsmaður skuldara metur að fengnum athugasemdum frá viðkomandi hvort hann sé hæfur til meðferðar máls. Verði umsjónarmanni á síðari stigum máls kunnugt um ástæður er kunna að valda vanhæfi hans skal hann án tafar vekja athygli umboðsmanns skuldara á þeim.
Telji umboðsmaður skuldara umsjónarmann vanhæfan eða ekki geta annast meðferð máls af öðrum ástæðum skal hann afturkalla skipun umsjónarmanns. Áður en umboðsmaður skuldara tekur ákvörðun um afturköllun skipunar skal hann veita umsjónarmanni færi á að koma að athugasemdum sínum, enda liggi ekki fyrir í gögnum málsins afstaða hans og rök fyrir henni eða slíkt sé augljóslega óþarft. Umboðsmaður skuldara skal tilkynna skuldara um afturköllun skipunar umsjónarmanns. Við afturköllun skipunar skv. 1. mgr. skal umsjónarmaður án tafar afhenda umboðsmanni skuldara öll gögn er hann hefur undir höndum og málið varða. Umboðsmaður skuldara skal án tafar skipa nýjan umsjónarmann.]1)
   1)L. 21/2024, 7. gr.
10. gr. Innköllun til [kröfuhafa].1)
Umsjónarmaður skal tafarlaust eftir skipun sína gefa út og fá birta tvívegis í Lögbirtingablaði innköllun þar sem skorað er á þá, sem telja sig eiga kröfur á hendur skuldaranum, að lýsa kröfum fyrir umsjónarmanni innan [þriggja]2) vikna frá því að innköllunin birtist fyrra sinni. [Ef sérstakar ástæður mæla með því getur umboðsmaður skuldara ákveðið að framangreindur frestur skuli vera fjórar vikur.]2)
[Í innköllun skal koma fram nafn skuldarans, kennitala og heimilisfang, að honum hafi verið veitt heimild til að leita greiðsluaðlögunar með ákvörðun umboðsmanns skuldara tiltekinn dag og áskorun til kröfuhafa um að lýsa kröfum sínum með sendingu eða afhendingu kröfulýsinga, rafrænt eða í bréfpósti á tiltekinn stað, innan tilgreinds kröfulýsingarfrests.
Kröfulýsing skal vera skrifleg þar sem tekið skal fram að um kröfulýsingu sé að ræða og í hvers þágu hún sé gerð, svo ekki verði um villst. Í henni skal tilgreina kröfu svo skýrt sem verða má, svo sem heildarfjárhæð kröfu, ásamt sundurliðun höfuðstóls, vaxta, dráttarvaxta og innheimtukostnaðar, ásamt afborgunarfjárhæðum ef þær eru til staðar. Í kröfulýsingu skal tilgreint reikningsnúmer, komi til þess að greitt verði af kröfu á tímabili greiðsluaðlögunar. Þau gögn skulu fylgja kröfulýsingu sem kröfur eru studdar við. Ef kröfulýsing telst ekki fullnægja framangreindum kröfum skal umsjónarmaður skora á kröfuhafa að bæta úr, ella getur umsjónarmaður metið kröfuna vanlýsta.
Umsjónarmaður skal staðfesta móttöku kröfulýsingar ef eftir því er leitað.]2)
Nú nýtur [kröfuhafi]1) veðréttar eða ábyrgðar annars aðila fyrir kröfum á hendur skuldaranum án þess að veðið eða ábyrgðin taki til ákveðinnar skuldar, og skal þá [kröfuhafi]1) tiltaka í kröfulýsingu hvaða skuld eigi þar undir.
Vanlýst krafa skal falla undir greiðsluaðlögunina, en viðkomandi kröfuhafa er þá ekki heimilt að hafa afskipti af greiðsluaðlögunarumleitunum [og er hann bundinn af niðurstöðu þeirra].2)
[Sé kröfuhafi ósammála þeirri niðurstöðu umsjónarmanns að um vanlýsta kröfu sé að ræða er honum heimilt að beina ágreiningnum til úrskurðarnefndar velferðarmála innan tveggja vikna frá því að honum var tilkynnt um niðurstöðuna. Úrskurðarnefndin skal taka afstöðu, innan fjögurra vikna, til þess hvort kröfulýsing teljist vanlýst á grundvelli fyrirliggjandi gagna.]2)
[Þeim kröfuhöfum sem vitað er um, auk ábyrgðarmanna og samskuldara skuldara, skal kunngert að greiðsluaðlögunarumleitanir séu hafnar með því að umsjónarmaður sendir þeim afrit af innkölluninni. Ásamt því að senda afrit af innköllun skal umsjónarmaður tilkynna kröfuhöfum um frestun greiðslna skv. 11. gr. Ábyrgðarmenn og samskuldarar skulu jafnframt upplýstir um frestun greiðslna og heimild sína til greiðslu krafna á meðan frestun greiðslna stendur yfir.]2)
[Fjárhagsupplýsingastofum er óheimilt að skrá upplýsingar um innkallanir, sem gefnar eru út á grundvelli þessa ákvæðis, í vanskilaskrá eða annars konar gagnasafn sem miðlað er. Þá er óheimilt að nýta upplýsingar um innkallanir í þágu skýrslu um lánshæfi að liðnu einu ári frá því að innköllun var gefin út í Lögbirtingablaði.]2)
   1)L. 21/2024, 2. gr. 2)L. 21/2024, 8. gr.
11. gr. Frestun greiðslna á meðan leitað er greiðsluaðlögunar.
[Þann dag er umboðsmaður skuldara tekur ákvörðun um samþykki umsóknar skv. 7. gr. hefst tímabundin frestun greiðslna óháð því hvort greiðsluaðlögun tekur til viðkomandi krafna skv. 3. gr., sbr. þó 3. mgr.]1) Á meðan á frestun greiðslna stendur er [kröfuhöfum]2) óheimilt að:
   a. krefjast eða taka við greiðslu á kröfum sínum,
   b. gjaldfella skuldir samkvæmt samningsbundnum heimildum,
   c. gera fjárnám, kyrrsetningu eða löggeymslu í eigum skuldarans eða fá þær seldar nauðungarsölu,
   d. fá bú skuldarans tekið til gjaldþrotaskipta,
   e. [neita skuldara vegna fyrri vanefnda um vörur og þjónustu, sem skuldari þarf á að halda og fellur undir framfærslukostnað í greiðsluaðlögunarumleitunum, gegn greiðslu sem a-liður tekur ekki til eða viðunandi tryggingum],1)
   f. krefjast greiðslu hjá ábyrgðarmanni skuldarans [eða ráðast í hvers konar aðgerðir til innheimtu kröfu],3)
   [g. ráðast í hvers konar aðgerðir til innheimtu krafna sem tryggðar eru með veði í fasteign þriðja aðila.]3)
[Á meðan á frestun greiðslna stendur falla almennir vextir á kröfur, sem þær hefðu borið samkvæmt samningsskilmálum, en ekki dráttarvextir. Vextirnir eru ekki gjaldkræfir á meðan á frestun stendur. Þá er óheimilt að leggja á kröfurnar vanskilagjöld eða annan innheimtukostnað. Framangreint gildir óháð niðurstöðu greiðsluaðlögunarumleitana.]1)
Frestun greiðslna nær ekki til krafna sem verða til eftir að [umsókn um greiðsluaðlögun hefur verið samþykkt skv. 7. gr.]1)
[Sá tími sem frestun greiðslna er í gildi skal vera undanskilinn lögbundnum fyrningarfresti krafna sem 1. mgr. tekur til.]1)
[Taki kröfuhafi við greiðslu frá skuldara á kröfu í andstöðu við 1. mgr., á meðan á frestun stendur, ber honum að endurgreiða greidda fjárhæð án nokkurra tafa, nema um kröfur skv. f-lið 1. mgr. 3. gr. sé að ræða.
Ábyrgðarmanni skuldarans og samskuldara er heimilt að greiða af kröfum á meðan á frestun greiðslna stendur.]1)
   1)L. 21/2024, 9. gr. 2)L. 21/2024, 2. gr. 3)L. 135/2010, 5. gr.
12. gr. Skyldur skuldara við greiðsluaðlögun.
Á meðan leitað er greiðsluaðlögunar skal skuldari:
   a. leggja til hliðar af launum og öðrum tekjum sínum það fé sem er umfram það sem hann þarf til að sjá sér og fjölskyldu sinni farborða [samkvæmt útreiknuðum framfærslukostnaði frá umboðsmanni skuldara],1)
   b. segja upp leigusamningum og öðrum samningum um útgjöld í framtíðinni sem ekki tengjast vöru og þjónustu sem er nauðsynleg honum eða heimili hans til lífsviðurværis eða eðlilegs heimilishalds,
   c. ekki láta af hendi eða veðsetja eignir og verðmæti sem gagnast geta [kröfuhöfum]2) sem greiðsla,
   d. ekki stofna til nýrra skulda eða gera aðrar ráðstafanir sem gætu skaðað hagsmuni [kröfuhafa]2) [nema skuldbinding sem stofnað er til sé nauðsynleg til að sjá skuldara og fjölskyldu hans farborða].3)
Telji umsjónarmaður skuldara hafa brugðist skyldum sínum skv. 1. mgr. skal umsjónarmaður óska þess við umboðsmann skuldara að greiðsluaðlögunarumleitanir verði felldar niður skv. 15. gr.
   1)L. 21/2024, 10. gr. 2)L. 21/2024, 2. gr. 3)L. 135/2010, 6. gr.
13. gr. Sala eigna skuldara.
Umsjónarmaður getur ákveðið að selja skuli þær eignir skuldara sem umsjónarmaður telur af sanngirni og með hliðsjón af greiðslugetu og fjölskylduaðstæðum að skuldari geti verið án. Ef umsjónarmanni þykir ástæða til getur hann leitað afstöðu [kröfuhafa]1) áður en slík ákvörðun er tekin.
Eignir skal selja með þeim hætti að tryggt sé að sem hæst verð fáist fyrir þær. [Ef um fasteign er að ræða skal umsjónarmaður fela löggiltum fasteignasala, sem skuldari velur, að annast söluna.]2) Umsjónarmaður ákveður hvernig sala fer fram [á öðrum eignum]2) og annast söluna sjálfur, nema hann feli það öðrum. Er skuldara skylt að annast söluna ef umsjónarmaður ákveður það.
[Umsjónarmaður skal leitast við að eign fari í sölu á tímabili greiðsluaðlögunarumleitana. Seljist eign ekki á því tímabili getur umsjónarmaður ákveðið að selja skuli eign á tímabili greiðsluaðlögunar. Heimilt er að umboðsmaður skuldara taki við hlutverki umsjónarmanns skv. 4. og 5. mgr. á tímabili greiðsluaðlögunar, hafi eftirlit með sölunni sem og aðstoði skuldara vegna sölunnar samkvæmt nánari fyrirmælum samnings til greiðsluaðlögunar.]2)
Umsjónarmaður skal gera þeim sem njóta veðréttar í eign skuldarans viðvart um ákvörðun um sölu hennar …2). Þegar fram er komið tilboð í eignina sem umsjónarmaður, [að höfðu samráði við þann sem annast sölu eignar],2) telur fært að taka skal hann tafarlaust kynna það fyrir þeim veðhöfum í eigninni sem ekki mundu fá fullnustu krafna sinna af söluverðinu og gefa þeim kost á að gera hærra boð eða ganga eftir atvikum inn í fram komið boð. Skulu veðhafar hafa frest í þessu skyni svo lengi sem boð er skuldbindandi fyrir tilboðsgjafa.
[Að sölu lokinni falla niður þau veðréttindi sem ekki fékkst greitt upp í af söluandvirðinu. Kröfuhafa er skylt að hlutast til um afmáningu veðréttinda af fasteigninni strax í kjölfar sölunnar. Sinni kröfuhafi ekki þeirri skyldu sinni skal sýslumaður afmá veðréttindin að beiðni umsjónarmanns eða umboðsmanns skuldara, gegn staðfestingu um greiðsluaðlögun skuldara og afriti samnings um söluna.]2)
Framfylgi skuldari ekki ákvörðun umsjónarmanns skv. 1. mgr. eða komi hann með einhverjum hætti í veg fyrir fyrirhugaða sölu eigna skal umsjónarmaður óska þess við umboðsmann skuldara að greiðsluaðlögunarumleitanir skuldara verði felldar niður skv. 15. gr. [Umsjónarmaður skal jafnframt óska eftir niðurfellingu greiðsluaðlögunarumleitana skv. 15. gr. ef sameigandi eignar neitar sölu eða kemur á einhvern hátt í veg fyrir fyrirhugaða sölu.]2)
   1)L. 21/2024, 2. gr. 2)L. 21/2024, 11. gr.
14. gr. Mat á eignum sem skuldari heldur eftir.
Umsjónarmaður skal eftir þörfum afla mats á verðmæti þeirra eigna sem skuldara er ekki gert að selja [og ber þá umboðsmaður skuldara kostnað sem hlýst af slíku verðmati].1)
[Kröfuhafi]2) sem ekki unir mati sem umsjónarmaður aflar getur á eigin kostnað fengið dómkvaddan mann til að meta verðmæti eignar. Sé slíkrar matsgerðar aflað skal hún ráða niðurstöðu um verðmæti eignarinnar.
   1)L. 21/2024, 12. gr. 2)L. 21/2024, 2. gr.
15. gr. Niðurfelling greiðsluaðlögunarumleitana.
Ef fram koma upplýsingar sem ætla má að hindri að greiðsluaðlögun sé heimil á grundvelli laga þessara skal umsjónarmaður tilkynna um slíkt til umboðsmanns skuldara sem í kjölfarið tekur afstöðu til málsins með rökstuddri ákvörðun. Skuldara skal gefið tækifæri til að láta álit sitt í ljós áður en slík ákvörðun er tekin. Ákvörðun umboðsmanns skuldara um niðurfellingu greiðsluaðlögunarumleitana getur skuldari kært til [úrskurðarnefndar velferðarmála]1) innan [tveggja vikna]2) frá því að ákvörðunin barst honum og skal þá tímabil greiðsluaðlögunarumleitana standa þar til niðurstaða [úrskurðarnefndar]1) liggur fyrir.
Umboðsmaður skuldara skal tilkynna þekktum [kröfuhöfum]3) um niðurfellingu greiðsluaðlögunarumleitana.
   1)L. 85/2015, 13. gr. 2)L. 135/2010, 7. gr. 3)L. 21/2024, 2. gr.

IV. kafli. Samningur um greiðsluaðlögun.
16. gr. Frumvarp til samnings um greiðsluaðlögun.
Umsjónarmaður skal, eins fljótt og auðið er eftir að kröfulýsingarfrestur er liðinn, gera frumvarp til samnings um greiðsluaðlögun. Frumvarpið skal samið í samráði við skuldara. [Sýni skuldari ekki samstarfsvilja eða samþykki hann ekki tillögur umsjónarmanns sem eru í samræmi við lög þessi skal umsjónarmaður óska þess við umboðsmann skuldara að greiðsluaðlögunarumleitanir verði felldar niður skv. 15. gr.]1)
Í frumvarpi til samnings um greiðsluaðlögun skal kveðið á um lengd greiðsluaðlögunartímabils, en það skal að jafnaði vera eitt til þrjú ár frá því að samningur tekur gildi. Tiltaka skal viðeigandi upplýsingar til að gefa heildarmynd af fjárhag og greiðslugetu skuldara, m.a. upplýsingar um tekjur, skuldir, eignir og mánaðarleg útgjöld. [Í frumvarpi er jafnframt heimilt að tilgreina nauðsynlegar viðkvæmar persónuupplýsingar, m.a. um heilsufar og félagslegar aðstæður, hafi þær þýðingu fyrir greiðsluaðlögunarumleitanir.]1) Þá skal fylgja listi yfir allar kröfur sem vitað er um og tillaga umsjónarmanns um hvernig farið verði með kröfurnar, í samræmi við 3. og 21. gr. Jafnframt skal tiltaka allar verðmætar eignir sem skal selja eða halda eftir og verðmæti þeirra, sbr. 13. og 14. gr. Þá skal koma fram í frumvarpinu sá frestur sem [kröfuhafar]2) hafa til að taka afstöðu til þess.
Frumvarp umsjónarmanns skal vera á þann veg að framfærsla skuldara og fjölskyldu hans sé tryggð og að raunhæft megi telja að öðru leyti að hann geti staðið við skuldbindingar sínar, endurskipulagt fjármál sín og komið á jafnvægi milli skulda og greiðslugetu.
Feli frumvarp umsjónarmanns í sér að skuldari inni af hendi reglulegar afborganir á tilteknu tímabili skal umsjónarmaður miða við að skuldari haldi eftir svo miklu af tekjum sínum að dugi til að sjá honum og heimilisfólki hans farborða og þeim einstaklingum sem hann hefur framfærsluskyldu við samkvæmt lögum. Skal umsjónarmaður notast við framfærsluviðmið sem umboðsmaður skuldara setur. Ef skuldari hefur rétt til umgengni við börn skal tekið tillit til eðlilegra útgjalda í tengslum við hana.
[Afborgunarfjárhæð skv. 4. mgr. skal vera föst krónutala.]1)
Ef umsjónarmaður telur það nauðsynlegt eða [kröfuhafi]2) krefst þess getur hann boðað til sérstaks fundar með þeim og skuldara til að ræða greiðsluaðlögunina áður en frumvarp til samnings um greiðsluaðlögun er gert. Sé ástæða til skulu einnig boðaðir á fundinn ábyrgðarmenn skuldara, samskuldarar hans og þeir sem veitt hafa veð í eignum sínum til tryggingar kröfu á hendur skuldaranum.
   1)L. 21/2024, 13. gr. 2)L. 21/2024, 2. gr.
17. gr. Samþykki samnings um greiðsluaðlögun.
[Umsjónarmaður sendir frumvarp til samnings um greiðsluaðlögun á sannanlegan hátt til allra kröfuhafa sem lýst hafa kröfu skv. 10. gr. og málið varðar. Umsjónarmaður sendir samhliða kröfuhöfum sem ekki lýstu kröfu tilkynningu um að greiðsluaðlögunarumleitanir gagnvart kröfuhöfum séu hafnar. Kröfuhöfum skal gefinn tveggja vikna frestur til að taka afstöðu til frumvarpsins frá því að það er sent og skal skýrlega koma fram í frumvarpi hvenær fresturinn er á enda. Ef sérstakar ástæður mæla með því getur umsjónarmaður ákveðið að framangreindur frestur skuli vera þrjár vikur.]1)
Umsjónarmaður skal að eigin frumkvæði leitast við að fá samþykki [kröfuhafa]2) fyrir frumvarpi til samnings um greiðsluaðlögun.
Hafi [kröfuhafi]2) athugasemdir við frumvarpið eða leggist hann gegn því skal hann láta umsjónarmanni í té skriflegan rökstuðning fyrir afstöðu sinni innan frestsins sem hann nýtur til að taka afstöðu til frumvarpsins. Komi ekki á þennan hátt fram upplýsingar sem valdið geta niðurfellingu umleitana til greiðsluaðlögunar skal umsjónarmaður leitast við að fá [kröfuhafa]2) til að endurskoða afstöðu sína, eftir atvikum með því að gera í samráði við skuldara breytingar á frumvarpinu sem skal þá sent öðrum [kröfuhöfum]2) á nýjan leik. …1)
Frumvarp til samnings um greiðsluaðlögun telst samþykkt þegar allir [kröfuhafar]2) sem málið snertir hafa samþykkt það. [Kröfuhafi]2) sem hefur fengið [sent frumvarpið]1) í samræmi við 1. mgr. og hefur ekki lýst yfir við umsjónarmann að hann leggist gegn frumvarpinu áður en [fresturinn skv. 1. mgr.]1) rann út telst hafa samþykkt það.
Ef frumvarp til samnings um greiðsluaðlögun telst samþykkt skulu skuldari, umsjónarmaður og umboðsmaður skuldara undirrita það og tekur samningurinn þá þegar gildi. Hann skal þegar í stað sendur öllum [kröfuhöfum sem lýst hafa kröfu skv. 10. gr. og málið varðar].1) [Þeir kröfuhafar sem lýstu ekki kröfu skv. 10. gr. fá senda samantekt um niðurstöðu samnings. Ábyrgðarmenn og samskuldarar fá senda tilkynningu um að samningur hafi tekið gildi og hver niðurstaða samnings er gagnvart kröfum er þá varðar.]1)
[Ef skuldari undirritar ekki samning innan tveggja vikna frá því að samningur er sendur honum til undirritunar og veitir ekki fullnægjandi skýringar á ástæðum þess skal umsjónarmaður óska eftir niðurfellingu greiðsluaðlögunarumleitana skv. 15. gr.
Þrátt fyrir h-lið 1. mgr. 3. gr. getur skuldari óskað eftir því við umsjónarmann að hann upplýsi þekkta erlenda kröfuhafa um niðurstöðu samnings um greiðsluaðlögun.
Umboðsmanni skuldara er heimilt að leiðrétta bersýnilegar villur í frumvarpi eða gera nauðsynlegar óverulegar breytingar á greiðsluáætlun, eftir að frumvarp telst samþykkt skv. 4. mgr., enda tilkynni hann kröfuhöfum og skuldara um þær breytingar án ástæðulauss dráttar.]1)
   1)L. 21/2024, 14. gr. 2)L. 21/2024, 2. gr.

V. kafli. Undirbúningur nauðasamningsumleitana til greiðsluaðlögunar og greiðsluaðlögunar fasteignaveðkrafna á íbúðarhúsnæði.
18. gr. Ákvörðun um að leita nauðasamnings og greiðsluaðlögunar fasteignaveðkrafna.
Nú hefur samningur ekki tekist um greiðsluaðlögun eftir ákvæðum IV. kafla, en skuldari hefur lýst yfir við umsjónarmann að hann vilji leita nauðasamnings í því skyni og eftir atvikum greiðsluaðlögunar fasteignaveðkrafna á íbúðarhúsnæði. Skal umsjónarmaður þá innan tveggja vikna taka rökstudda afstöðu til þess í skriflegri greinargerð hvort hann mæli með því að nauðasamningur eða greiðsluaðlögun fasteignaveðkrafna komist á, en áður skal hann gefa skuldaranum kost á að endurskoða frumvarp til samnings um greiðsluaðlögun í ljósi athugasemda sem [kröfuhafar]1) gerðu við það. Við mat á því hvort mælt sé með að nauðasamningur eða greiðsluaðlögun fasteignaveðkrafna komist á skal umsjónarmaður meðal annars líta til þess hvort nokkuð hafi komið fram sem í öndverðu hefði átt að standa í vegi greiðsluaðlögunar, …2) hvort skuldari hafi sinnt skyldum sínum skv. 12. gr. og staðið að öðru leyti heiðarlega að verki við umleitanir til greiðsluaðlögunar, hvort raunhæft sé að hann muni geta staðið við skuldbindingar sínar að fenginni greiðsluaðlögun og hvert sé viðhorf þeirra [kröfuhafa]1) sem látið hafa umleitanir til hennar til sín taka. [Í greinargerð er heimilt að tilgreina nauðsynlegar viðkvæmar persónuupplýsingar, m.a. um heilsufar og félagslegar aðstæður, hafi þær þýðingu við framangreint mat umsjónarmanns.]2)
Mæli umsjónarmaður gegn því að nauðasamningur eða greiðsluaðlögun fasteignaveðkrafna komist á skal hann tilkynna það skuldara tafarlaust. Skuldari getur skotið þeirri ákvörðun til [úrskurðarnefndar velferðarmála]3) innan [tveggja vikna]4) frá því að ákvörðun var tekin og skal nefndin taka afstöðu til kærunnar innan tveggja vikna. Staðfesti nefndin ákvörðun umsjónarmanns lýkur greiðsluaðlögunarumleitunum þá þegar og skal umboðsmaður skuldara tilkynna þekktum [kröfuhöfum]1) skuldarans um þau málalok. Hrindi [úrskurðarnefndin]3) ákvörðun umsjónarmanns skal hann fara svo að sem í 19. og 20. gr. segir.
Meðan beðið er ákvörðunar skv. 1. eða 2. mgr. um hvort leitað skuli nauðasamnings og eftir atvikum greiðsluaðlögunar fasteignaveðkrafna haldast áhrif greiðsluaðlögunarumleitana skv. 11. gr. Sé síðan eftir því leitað skulu þau áhrif standa áfram þar til þeirri málaleitan lýkur.
   1)L. 21/2024, 2. gr. 2)L. 21/2024, 15. gr. 3)L. 85/2015, 13. gr. 4)L. 135/2010, 7. gr.
19. gr. Frumvarp til nauðasamnings til greiðsluaðlögunar.
Þegar afráðið er að leita nauðasamnings til greiðsluaðlögunar skal umsjónarmaður innan tveggja vikna gera frumvarp til samningsins sem taka skal til annarra krafna á hendur skuldara en þeirra sem tryggðar eru með veði eða annars konar tryggingarréttindum í eignum hans …1) [Í frumvarpinu skal tiltaka, eftir því sem við á, sömu upplýsingar og komu fram í frumvarpi til samnings um greiðsluaðlögun, sbr. 2. mgr. 16. gr.]1)
Frumvarp skv. 1. mgr. skal ásamt greinargerð umsjónarmanns og eftir atvikum úrskurði [úrskurðarnefndar velferðarmála]2) skv. 18. gr. sent til allra þekktra [kröfuhafa]3) skuldarans.
Um framhald máls fer samkvæmt því sem mælt er fyrir um í X. kafla a laga um gjaldþrotaskipti o.fl.
   1)L. 21/2024, 16. gr. 2)L. 85/2015, 13. gr. 3)L. 21/2024, 2. gr.
20. gr. Frumvarp til greiðsluaðlögunar fasteignaveðkrafna á íbúðarhúsnæði.
Þegar afráðið er að leita greiðsluaðlögunar fasteignaveðkrafna á íbúðarhúsnæði, hvort sem það er gert samhliða því að leita nauðasamnings skv. 19. gr. eða án þess, skal umsjónarmaður gera frumvarp til slíkrar greiðsluaðlögunar og boða veðhafa innan tveggja vikna til fundar eftir fyrirmælum 5. gr. laga um tímabundna greiðsluaðlögun fasteignaveðkrafna á íbúðarhúsnæði. Um framhald máls fer samkvæmt því sem mælt er fyrir um í þeim lögum án þess að dómsúrskurður gangi um heimild til greiðsluaðlögunar, en umsjónarmaður sem skipaður hefur verið skv. 9. gr. skal gegna hlutverki umsjónarmanns eftir reglum þeirra laga.

VI. kafli. [Greiðsla til kröfuhafa.]1)
   1)L. 21/2024, 19. gr.
21. gr. [Skipting greiðslna milli kröfuhafa.
Afborgunarfjárhæð sem skipta skal milli kröfuhafa á tímabili greiðsluaðlögunar samkvæmt samningi um greiðsluaðlögun skiptist á eftirfarandi hátt:
   a. Ef skuldari heldur eftir fasteign sem veðkröfur á hendur honum hvíla á skal hann gera full skil á kröfum sem lögveðs- eða lögtaksréttur er fyrir og gjaldfallnar voru áður en umsókn um greiðsluaðlögun var samþykkt. Þegar full skil hafa verið gerð á þeim kröfum skal skuldari greiða mánaðarlegar raunafborganir af veðkröfum, sem eru innan verðmætis fasteignar skv. 14. gr., eftir veðröð. Falli veðkrafa að hluta til innan verðmætis fasteignar skv. 14. gr. skal skuldari greiða samsvarandi hlutfall af raunafborgun veðkröfunnar.
   b. Ef skuldari heldur eftir lausafjármunum sem veðkröfur á hendur honum hvíla á skal hann gera full skil á kröfum sem lögveðs- eða lögtaksréttur er fyrir og gjaldfallnar voru áður en umsókn um greiðsluaðlögun var samþykkt. Þegar full skil hafa verið gerð á þeim kröfum skal skuldari greiða mánaðarlegar raunafborganir af veðkröfum, sem eru innan verðmætis lausafjármunar skv. 14. gr., eftir veðröð. Falli veðkrafa að hluta til innan verðmætis lausafjármunar skv. 14. gr. skal skuldari greiða samsvarandi hlutfall af raunafborgun veðkröfunnar.
   c. Kröfur sem greiðsluaðlögun tekur ekki til skv. 1. mgr. 3. gr. skulu greiddar að fullu, annaðhvort strax í upphafi greiðsluaðlögunar eða í samræmi við samkomulag við hlutaðeigandi kröfuhafa. Þó má ákveða að kröfur skv. f- og i-lið 1. mgr. 3. gr. skuli greiddar skv. d-lið þessa ákvæðis, þjóni það hagsmunum skuldara.
   d. Óveðtryggðar kröfur og sá hluti veðkrafna sem er yfir verðmæti eignar skv. 14. gr. skulu greiddar hlutfallslega eftir fjárhæð krafna.
Kröfuhafar sem eiga kröfur sem falla undir a–c-lið 1. mgr. hafa forgang til greiðslna skv. 1. mgr. Umsjónarmanni er jafnframt heimilt að leggja til að óverulegar óveðtryggðar kröfur skuli greiddar að fullu komi til greiðslna skv. d-lið 1. mgr.
Hafi skuldari lagt til hliðar fjármuni skv. a-lið 1. mgr. 12. gr., eða ráðstafa þarf annars konar eingreiðslu, skal umsjónarmaður ákveða skiptingu þeirra milli kröfuhafa með hliðsjón af reglum 1. mgr. og 2. mgr. sem og hagsmunum skuldara, með einni greiðslu í upphafi tímabils greiðsluaðlögunar.
Umboðsmaður skuldara skal sjá til þess í tæka tíð áður en komið er að fyrsta gjalddaga samkvæmt samningi um greiðsluaðlögun að fjármálafyrirtæki miðli greiðslum samkvæmt honum.
Umboðsmaður skuldara hefur heimild til að óska eftir upplýsingum frá hlutaðeigandi fjármálafyrirtæki sem annast greiðslumiðlun um hvort skuldari hafi staðið við greiðslur samkvæmt samningi um greiðsluaðlögun.]1)
   1)L. 21/2024, 17. gr.
22. gr. [Gjaldfrestur eða lægri afborganir veðlána.
Þrátt fyrir ákvæði a- og b-liðar 1. mgr. 21. gr. er umsjónarmanni heimilt að leggja til í frumvarpi til samnings um greiðsluaðlögun að greiddar séu tímabundið lægri mánaðargreiðslur af veðkröfum eða að veittur sé gjaldfrestur á þeim ef óveruleg eða engin greiðslugeta er til staðar, ef uppi eru sérstakar eða tímabundnar aðstæður. Skal tímabil breytts greiðslufyrirkomulags samkvæmt þessu ákvæði alla jafna ekki vera lengra en eitt ár.]1)
   1)L. 21/2024, 18. gr.
23. gr. Ábyrgðarkröfur.
Ef skuldari er skuldbundinn til að greiða fé samkvæmt ábyrgðaryfirlýsingu sem hann hefur gefið áður en umsókn um greiðsluaðlögun var samþykkt, en skylda samkvæmt þeirri yfirlýsingu er enn ekki virk þegar samningur um greiðsluaðlögun tekur gildi, skal ekki gert ráð fyrir skuldbindingunni við greiðsluaðlögunina. Verði ábyrgðarskuldbinding virk síðar skal farið eftir ákvæðum laga þessara um breytingar á greiðsluaðlögun eins og við getur átt. Skuldara ber þó ekki að greiða meira af þeirri skuld sem hann hefur tekið ábyrgð á en nemur því hlutfalli af óveðtryggðum kröfum sem honum ber að greiða samkvæmt greiðsluaðlöguninni.

[VI. kafli A. Afmáning veðbanda og meðferð krafna í greiðsluaðlögun.
   1)L. 21/2024, 20. gr.
[23. gr. a. Afmáning veðbanda.
Áður en frumvarp til samnings um greiðsluaðlögun er sent til kröfuhafa skv. 17. gr. getur skuldari óskað eftir því við umsjónarmann að veðréttindi sem standa til tryggingar uppreiknuðum eftirstöðvum veðkrafna á fasteign og nema hærri fjárhæð en svarar til verðmætis fasteignarinnar, sbr. 3. og 4. mgr., verði afmáð af eigninni. Til þess að umsjónarmaður fallist á beiðnina þarf að vera ljóst á grundvelli greiðslumats að skuldari verði um fyrirséða framtíð ófær um að standa í fullum skilum með greiðslu allra veðskulda, en geti þó staðið í fullum skilum með þær veðskuldir sem hvíla á eigninni í kjölfar afmáningar veðréttinda.
Afmáning veðréttinda skv. 1. mgr. getur eingöngu varðað fasteign þar sem skuldari heldur heimili og hefur skráð lögheimili. Ekki er heimilt að víkja frá þessu skilyrði nema með samþykki þeirra veðhafa sem hafa hagsmuna að gæta og þegar skuldari hefur lýst því yfir að hann hyggist hefja búsetu að nýju í fasteign. Ef skuldari á fasteign í óskiptri sameign með öðrum sem hefur ekki leitað greiðsluaðlögunar er ekki hægt að leita afmáningar veðréttinda á fasteigninni.
Í kjölfar beiðni skv. 1. mgr. skal umsjónarmaður óska eftir að löggiltur fasteignasali meti verðmæti fasteignar og ber þá umboðsmaður skuldara kostnað sem hlýst af slíku verðmati. Verðmatið skal lagt til grundvallar nema skuldari og veðhafar sem hafa hagsmuna að gæta af niðurstöðu þess vilji afla á sinn kostnað annars verðmats. Skal þá meðaltal allra verðmata lagt til grundvallar.
Veðhafar sem hafa hagsmuna að gæta geta, innan viku frá því að niðurstaða um verðmat fasteignar skv. 3. mgr. lá fyrir, lýst því yfir við umsjónarmann að þeir hyggist á sinn kostnað afla matsgerðar dómkvaddra matsmanna á verðmæti fasteignarinnar. Sé aflað slíkrar matsgerðar gildir niðurstaða hennar um verðmæti fasteignar.
Ef umsjónarmaður telur að skilyrði 1. mgr. séu ekki uppfyllt ber honum að tilkynna skuldara um þá ákvörðun. Skuldari getur kært þá ákvörðun til úrskurðarnefndar velferðarmála innan tveggja vikna frá því að ákvörðunin barst honum og skal nefndin taka afstöðu til kærunnar innan fjögurra vikna. Ef umsjónarmaður telur að skilyrði 1. mgr. séu uppfyllt ber honum að tilkynna það skuldara og veðhöfum sem hafa hagsmuna að gæta af þeirri ákvörðun. Hlutaðeigandi veðhafar geta kært þá ákvörðun til úrskurðarnefndar velferðarmála innan tveggja vikna frá því að ákvörðunin barst þeim og skal nefndin taka afstöðu til kærunnar innan fjögurra vikna.
Ef það er niðurstaða umsjónarmanns og eftir atvikum úrskurðarnefndar velferðarmála að skuldari uppfylli skilyrði til að fá veðréttindi afmáð af eigninni, sbr. 1. mgr., skal umsjónarmaður óska eftir að sýslumaður hlutist til um afmáninguna, fáist frumvarp skuldara til greiðsluaðlögunar samþykkt og að því gefnu að skuldari hafi staðið við skyldur sínar samkvæmt samningi. Beiðni um afmáningu veðréttinda skal send til sýslumanns að loknu greiðsluaðlögunartímabili. Með beiðni umsjónarmanns til sýslumanns skulu fylgja gögn um mat á verðmæti fasteignar skv. 3. eða 4. mgr., ákvörðun umsjónarmanns um að skuldari uppfylli skilyrði ákvæðis þessa og eftir atvikum úrskurður úrskurðarnefndar velferðarmála skv. 5. mgr. Sýslumaður skal þá afmá af fasteigninni veðréttindi sem standa utan þeirra marka í veðröð sem greinir í 1. mgr. Standi veðkrafa að hluta innan þeirra marka og að hluta utan skal eftirstöðvum hennar skipt að tiltölu því til samræmis og ákveður þá sýslumaður nýjan höfuðstól skuldarinnar sem veðréttindi eru fyrir. Skal sýslumaður gera yfirlýsingu sem þinglýst skal á eignina en fyrir hana greiðist ekkert gjald.
Að lokinni afmáningu veðréttinda verða þær veðkröfur sem aflétt er af fasteign að óveðtryggðum kröfum og fer um þær eins og aðrar óveðtryggðar kröfur samkvæmt samningi um greiðsluaðlögun.]1)
   1)L. 21/2024, 20. gr.
[23. gr. b. Meðferð óveðtryggðra krafna.
Heimilt er með greiðsluaðlögun að kveða á um algera eftirgjöf óveðtryggðra krafna, hlutfallslega lækkun þeirra, gjaldfrest á þeim, skilmálabreytingar, greiðslu þeirra með hlutdeild í afborgunarfjárhæð sem greiðist með ákveðnu millibili á tilteknu tímabili, breytt form á greiðslu óveðtryggðra krafna eða allt framangreint í senn.]1)
   1)L. 21/2024, 20. gr.
[23. gr. c. Efndir krafna.
Kröfur teljast vera efndar á tímabili greiðsluaðlögunar hvort sem skuldari greiðir af þeim í samræmi við greiðsluáætlun samnings eða veittur er gjaldfrestur á þeim.]1)
   1)L. 21/2024, 20. gr.

VII. kafli. Breyting, riftun eða ógilding samnings um greiðsluaðlögun.
24. gr. Breyting á samningi um greiðsluaðlögun að kröfu skuldara.
[Skuldari getur óskað eftir því við umboðsmann skuldara að hann samþykki að veittur sé gjaldfrestur á allt að þremur gjalddögum samkvæmt samningi, án þess að breytingin sé borin undir kröfuhafa, ef upp koma sérstakar eða ófyrirsjáanlegar aðstæður sem veikja getu hans til að uppfylla skyldur samkvæmt samningi. Skal þá tímabil greiðsluaðlögunar lengjast sem nemur þeim gjalddögum sem veittur er frestur á. Beiðni um slíka breytingu skal berast umboðsmanni skuldara áður en tímabil greiðsluaðlögunar er á enda. Umboðsmaður skuldara skal taka ákvörðun um breytinguna innan tveggja vikna frá því að beiðni berst. Ákvörðun umboðsmanns skuldara um synjun á beiðninni getur skuldari kært til úrskurðarnefndar velferðarmála innan tveggja vikna frá því að ákvörðun barst honum.
Sé þörf á annars konar breytingu en 1. mgr. heimilar getur skuldari óskað eftir því við umboðsmann skuldara, áður en tímabil greiðsluaðlögunar er á enda, að hann hafi milligöngu um breytingu á samningi gagnvart kröfuhöfum, ef upp koma sérstakar eða ófyrirsjáanlegar aðstæður sem veikja getu hans til að uppfylla skyldur samkvæmt samningi eða sem leiða til þess að breyta þurfi að öðru leyti skilmálum samnings.
Umboðsmaður skuldara skal taka ákvörðun um hvort hefja skuli milligöngu um samningaviðræður við kröfuhafa innan mánaðar frá því að beiðni berst skv. 2. mgr. Ákvörðun umboðsmanns skuldara um synjun á beiðninni getur skuldari kært til úrskurðarnefndar velferðarmála innan tveggja vikna frá því að ákvörðun barst honum.
Fallist umboðsmaður skuldara á að hefja milligöngu um samningaviðræður skal tillaga um breytingu samin í samráði við skuldara og í samræmi við ákvæði þessara laga. Tillaga um breytingu á samningi skal send til allra kröfuhafa sem lýstu kröfu skv. 10. gr. Í tillögu um breytingu á samningi er umboðsmanni skuldara heimilt að tilgreina nauðsynlegar viðkvæmar persónuupplýsingar hafi þær þýðingu í samningaviðræðum. Kröfuhöfum skal gefinn tveggja vikna frestur til að taka afstöðu til tillögunnar frá því að hún var send. Hafi kröfuhafi athugasemdir við tillöguna eða leggist hann gegn henni skal hann láta umboðsmanni skuldara í té skriflegan rökstuðning fyrir afstöðu sinni innan frestsins sem hann nýtur til að taka afstöðu til tillögunnar. Kröfuhafi sem hefur fengið senda tillöguna og hefur ekki lýst yfir við umboðsmann skuldara að hann leggist gegn tillögunni áður en tveggja vikna fresturinn rann út telst hafa samþykkt hana. Ef tillagan telst samþykkt tekur hún þá þegar gildi. Skal tilkynning um breytingu samnings send til allra kröfuhafa.
Ef tillagan telst ekki samþykkt getur skuldari lagt fram kröfu til umboðsmanns skuldara að skilmálum samnings verði breytt í samræmi við tillöguna sem send var til kröfuhafa. Umboðsmaður skuldara skal taka ákvörðun um kröfuna innan tveggja vikna frá því að hún barst. Við mat á því hvort samþykkja beri kröfu skuldara skal umboðsmaður skuldara líta til þess hvort komið hafi fram upplýsingar sem leiða til þess að hafna beri breytingunni og hvert sé viðhorf þeirra kröfuhafa sem hafa andmælt tillögunni. Umboðsmanni skuldara er heimilt að tilgreina nauðsynlegar viðkvæmar persónuupplýsingar í ákvörðun hafi þær haft þýðingu við matið. Ákvörðun umboðsmanns skuldara geta skuldari eða kröfuhafar sem lýstu kröfu skv. 10. gr. kært til úrskurðarnefndar velferðarmála innan tveggja vikna frá því að ákvörðun barst þeim. Að fengnum úrskurði nefndarinnar er heimilt að höfða einkamál til ógildingar á ákvörðuninni.
Verði skuldara á tímabili greiðsluaðlögunar gert kunnugt um kröfu sem stofnaðist áður en umsókn hans um greiðsluaðlögun var samþykkt verður krafan felld undir greiðsluaðlögunina, ef umboðsmaður skuldara telur það hafa óveruleg áhrif gagnvart öðrum kröfuhöfum. Sé greiðslum miðlað samkvæmt samningi skal einungis greiða af kröfunni frá þeim tíma sem krafan var kynnt skuldara og þá í samræmi við það sem greitt er af samsvarandi kröfum. Umboðsmaður skuldara skal senda tilkynningu til kröfuhafa um breytinguna. Ef það er mat umboðsmanns skuldara að það sé íþyngjandi gagnvart kröfuhöfum að fella slíka kröfu undir greiðsluaðlögunina án samþykkis kröfuhafa getur skuldari lagt fram beiðni í samræmi við 2. mgr.
Hafi fjárhagsstaða skuldara batnað á þann veg að skuldari hefur tök á að greiða að fullu allar kröfur sem greiðsluaðlögunarsamningur tekur til er honum heimilt að óska eftir því við umboðsmann skuldara að samningi verði breytt því til samræmis. Skal umboðsmaður skuldara senda ákvörðun um breytingu samnings til allra kröfuhafa að fenginni staðfestingu frá skuldara um bættan fjárhag.
Skuldara er heimilt, án milligöngu umboðsmanns skuldara, að ná fram breytingum á samningi um greiðsluaðlögun með samningum við alla kröfuhafa, hvort sem þeir lýstu kröfu skv. 10. gr. eða ekki. Ef kröfuhafar fallast á breytingu samnings skal skuldari veita umboðsmanni skuldara staðfestingu á að samkomulag hafi náðst við alla kröfuhafa. Umboðsmaður skuldara skal svo í kjölfarið senda tilkynningu um breytingu samnings til allra kröfuhafa og tekur hún þá þegar gildi.]1)
   1)L. 21/2024, 21. gr.
25. gr. [Breyting á samningi um greiðsluaðlögun að kröfu kröfuhafa.
Kröfuhafi, sem greiðsluaðlögun tekur til, getur krafist þess að gerð verði breyting á samningi um greiðsluaðlögun ef fjárhagsstaða skuldara batnar umtalsvert á greiðsluaðlögunartímabilinu. Hafi fjárhagsstaðan batnað vegna þess að skuldari hefur fengið í hendur háa fjárhæð getur kröfuhafi krafist þess að samningnum verði breytt á þann veg að skuldara sé skylt að skipta fénu að hluta eða að fullu milli kröfuhafa. Umboðsmaður skuldara skal taka ákvörðun um kröfuna innan mánaðar frá því að hún berst. Ákvörðun umboðsmanns skuldara geta skuldari og kröfuhafar kært til úrskurðarnefndar velferðarmála innan tveggja vikna frá því að ákvörðun barst þeim.
Ef upp koma aðstæður sem veita kröfuhöfum rétt til að krefjast breytinga á samningi um greiðsluaðlögun skv. 1. mgr. skal skuldari innan eins mánaðar og á tryggan hátt upplýsa kröfuhafa um þær aðstæður.]1)
   1)L. 21/2024, 22. gr.
26. gr. [Ógilding samnings um greiðsluaðlögun.
Samningur um greiðsluaðlögun fellur sjálfkrafa úr gildi ef vanskil hafa verið á samningi í sex mánuði og ekki liggur fyrir að skuldari hafi óskað eftir breytingu á samningi. Umboðsmaður skuldara skal tilkynna kröfuhöfum um ógildingu samnings að fengnum upplýsingum um vanskil skuldara frá hlutaðeigandi fjármálafyrirtæki sem annast miðlun greiðslna.
Samningur um greiðsluaðlögun fellur sjálfkrafa úr gildi ef skuldari fellur frá á tímabili greiðsluaðlögunar. Ef samningur er ógiltur af þeim sökum er óheimilt að leggja dráttarvexti eða annan innheimtukostnað á kröfur sem samningur tekur til vegna þess tímabils sem greiðsluaðlögun stóð yfir hafi skuldari staðið við greiðslur samkvæmt samningnum.
Samningur um greiðsluaðlögun fellur sjálfkrafa úr gildi ef skuldari fær heimild til greiðslustöðvunar eða til að leita nauðasamnings eða bú hans er tekið til gjaldþrotaskipta.
Kröfuhöfum er heimilt að hafa uppi kröfu um riftun eða ógildingu samnings um greiðsluaðlögun fyrir dómi í einkamáli á hendur skuldaranum. Sé fallist á slíka kröfu ber kröfuhafa að tilkynna umboðsmanni skuldara um það. Umboðsmanni skuldara er heimilt að tilkynna öðrum kröfuhöfum um niðurstöðuna.]1)
   1)L. 21/2024, 23. gr.
27. gr.1)
   1)L. 21/2024, 24. gr.

VIII. kafli. Ýmis ákvæði.
28. gr. Skráning greiðsluaðlögunar o.fl.
[Þegar umboðsmaður skuldara hefur samþykkt umsókn skuldara um greiðsluaðlögun skal hann þá þegar óska eftir því að athugasemd um samþykki á umsókn skuldara um greiðsluaðlögun verði skráð í þinglýsingabækur, eftir því sem við á. Slík skráning ber ekki þinglýsingagjöld. [Þegar tímabundin frestun greiðslna skv. 11. gr. fellur niður skal umboðsmaður skuldara óska eftir aflýsingu athugasemdarinnar.]1)]2)
Umboðsmaður skuldara skal halda skrá yfir alla sem fengið hafa heimild til að leita greiðsluaðlögunar.
1)
   1)L. 21/2024, 25. gr. 2)L. 135/2010, 8. gr.
29. gr. [Brottfall tímabundinnar frestunar greiðslna.
Tímabundin frestun greiðslna skv. 11. gr. fellur niður þegar:
   a. Skuldari dregur umsókn sína um greiðsluaðlögun til baka skv. 5. mgr. 7. gr.
   b. Umboðsmaður skuldara tekur ákvörðun um niðurfellingu greiðsluaðlögunarumleitana skv. 15. gr. Hafi skuldari kært ákvörðunina haldast áhrif 11. gr. þar til niðurstaða úrskurðarnefndar liggur fyrir.
   c. Samningur um greiðsluaðlögun hefur ekki komist á og skuldari hefur lýst því yfir við umsjónarmann að hann vilji ekki leita nauðasamnings eða eftir atvikum greiðsluaðlögunar fasteignaveðkrafna á íbúðarhúsnæði.
   d. Samningur um greiðsluaðlögun tekur gildi skv. 5. mgr. 17. gr.
   e. Umsjónarmaður mælir gegn því að nauðasamningur eða greiðsluaðlögun fasteignaveðkrafna komist á skv. 2. mgr. 18. gr. Hafi skuldari kært ákvörðunina haldast áhrif 11. gr. þar til niðurstaða úrskurðarnefndar liggur fyrir.
   f. Nauðasamningur til greiðsluaðlögunar eða tímabundin greiðsluaðlögun fasteignaveðkrafna tekur gildi.
   g. Skuldari fellur frá.
Umboðsmaður skuldara skal tilkynna kröfuhöfum þegar tímabundin frestun greiðslna fellur niður skv. 1. mgr., að undanskildum tilfellum skv. d- og f-lið. Þá skal umboðsmaður skuldara tilkynna ábyrgðarmönnum og samskuldurum þegar tímabundin frestun greiðslna fellur niður skv. 1. mgr.]1)
   1)L. 21/2024, 26. gr.
30. gr. Greiðsla kostnaðar.
Umboðsmaður skuldara ber kostnað við meðferð umsóknar um greiðsluaðlögun og störf umsjónarmanna. [Kröfuhafar]1) bera þann kostnað sem á þá fellur af meðferð umsóknar um greiðsluaðlögun og framkvæmd hennar, [m.a. af endurútreikningi krafna við lok greiðsluaðlögunar].2) Kostnaður af sölu eignar greiðist af söluandvirði hennar.
   1)L. 21/2024, 2. gr. 2)L. 21/2024, 27. gr.
31. gr. Kröfur sem hefur ekki verið tilkynnt um.
Kröfur sem urðu til áður en umsókn um greiðsluaðlögun var samþykkt og skuldari hefur ekki verið krafinn um á greiðsluaðlögunartímabilinu falla niður þegar því lýkur.
32. gr. [Kærur til úrskurðarnefndar velferðarmála.
Heimilt er að skjóta ákvörðunum samkvæmt ákvæðum laga þessara til úrskurðarnefndar velferðarmála, sbr. lög um úrskurðarnefnd velferðarmála.]1)
   1)L. 85/2015, 13. gr.
33. gr. Áhrif greiðsluaðlögunar á rétt skuldara til greiðslna eða aðstoðar frá ríki eða sveitarfélögum.
Sá hluti skulda sem felldur er niður samkvæmt greiðsluaðlögun skerðir ekki rétt skuldara til hvers konar greiðslna eða aðstoðar frá ríki eða sveitarfélögum.
34. gr. [Meðferð persónuupplýsinga.
Við meðferð persónuupplýsinga sem aflað er skal embætti umboðsmanns skuldara gæta þess að uppfyllt séu skilyrði laga um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga. Embættið skal tryggja að fyllsta öryggis sé gætt við sendingu og meðferð upplýsinga og setja skal öryggisstefnu, framkvæma áhættumat og gera aðrar öryggisráðstafanir til samræmis við lög um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga og reglur sem settar hafa verið á grundvelli þeirra.]1)
   1)L. 21/2024, 28. gr.
[34. gr. a. Heimild innheimtuaðila sekta.
Samningur um greiðsluaðlögun takmarkar ekki heimildir innheimtuaðila sekta samkvæmt ákvæðum laga um fullnustu refsinga, þ.m.t. til að beita innheimtuúrræðum og taka ákvörðun um að vararefsing sektar skuli afplánuð.]1)
   1)L. 21/2024, 29. gr.
35. gr. Gildistaka.
Lög þessi öðlast gildi 1. ágúst 2010.
36. gr. Breytingar á öðrum lögum.

Ákvæði til bráðabirgða.
I. …1)    1)L. 21/2024, 30. gr.
[II. …1)]2)    1)L. 21/2024, 30. gr. 2)L. 128/2010, 1. gr.