Lagasafn.  Íslensk lög 20. apríl 2026.  Útgáfa 157b.  Prenta í tveimur dálkum.


Lög um verndar- og orkunýtingaráætlun

2011 nr. 48 16. maí


Ferill málsins á Alþingi.   Frumvarp til laga.

1.–3. gr. tóku gildi 20. maí 2011 en að öðru leyti tóku lögin gildi 14. janúar 2013 þegar Alþingi samþykkti tillögu til þingsályktunar skv. 3. gr. Breytt með: L. 126/2011 (tóku gildi 30. sept. 2011). L. 157/2012 (tóku gildi 3. jan. 2013). L. 60/2013 (tóku gildi 15. nóv. 2015). L. 68/2022 (tóku gildi 13. júlí 2022). L. 87/2024 (tóku gildi 11. júlí 2024 nema 6.–11. og 13. gr. sem tóku gildi 1. jan. 2026). L. 110/2024 (tóku gildi 1. jan. 2025 nema 3. mgr. 2. gr. sem tók gildi 1. jan. 2026; um lagaskil sjá 7. gr. og brbákv.). L. 111/2024 (tóku gildi 1. jan. 2025; um lagaskil sjá 5. gr. og brbákv.). L. 11/2026 (tóku gildi 5. mars 2026; um lagaskil sjá 68. gr. og brbákv.). L. 17/2026 (tóku gildi 12. mars 2026).

Ef í lögum þessum er getið um ráðherra eða ráðuneyti án þess að málefnasvið sé tilgreint sérstaklega eða til þess vísað, er átt við umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra eða umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti sem fer með lög þessi. Upplýsingar um málefnasvið ráðuneyta skv. forsetaúrskurði.

1. gr. Markmið.
Markmið laga þessara er að [afmarka og vernda þau svæði landsins sem undanskilja á orkuframleiðslu og]1) tryggja að nýting landsvæða þar sem er að finna [virkjunarhugmyndir]1) byggist á langtímasjónarmiðum og heildstæðu hagsmunamati þar sem tekið er tillit til verndargildis náttúru og menningarsögulegra minja, [markmiða og skuldbindinga stjórnvalda um líffræðilega fjölbreytni, orkuöryggi almennings og orkuskipti, stefnu stjórnvalda um orkuöflun],1) hagkvæmni og arðsemi ólíkra nýtingarkosta og annarra gilda sem varða þjóðarhag, svo og hagsmuna þeirra sem nýta þessi sömu gæði, með sjálfbæra þróun að leiðarljósi.
   1)L. 17/2026, 1. gr.
2. gr. Gildissvið og skilgreiningar.
Lög þessi ná til landsvæða þar sem er að finna [virkjunarhugmyndir]1) til orkuvinnslu, jafnt innan eignarlanda sem þjóðlendna.
Eftirfarandi merking skal lögð í þessi hugtök:
   [1. Áhrifasvæði: Virkjunarsvæði og svæði fyrir utan það sem ætla má að verði fyrir áhrifum virkjunar.]1)
   [2.]1) Eignarland: Landsvæði, þ.m.t. innan netlaga í stöðuvötnum og sjó, sem er háð einkaeignarrétti þannig að eigandi landsins fer með öll venjuleg eignarráð þess innan þeirra marka sem lög segja til um á hverjum tíma.
   [3.]1) Fallvatn: Rennandi vatn í afmörkuðum farvegi, þó að tíma- og staðbreytilegur sé.
   [4.]1) Háhitasvæði: Jarðhitakerfi þar sem hitastig grunnvatnsforðans er 200°C eða hærra á 1.000 metra dýpi eða ofar.
   [5.]1) Orkurannsóknir: Rannsóknir sem tengjast virkjun til orkuvinnslu sem fram fara á grundvelli laga um rannsóknir og nýtingu á auðlindum í jörðu.
   [6. Verndarsvæði: Afmarkað og hnitsett svæði innan áhrifasvæðis sem verkefnisstjórn telur ástæðu til að friðlýsa gagnvart orkuvinnslu skv. 1. mgr. 6. gr.
   7. Virkjunarhugmynd: Tillaga um virkjun til orkuvinnslu á tilgreindu virkjunarsvæði.]1)
   [8.]1) [Virkjunarkostur: Virkjunarhugmynd á tilgreindu virkjunarsvæði sem flokkuð hefur verið í orkunýtingarflokk.]1)
   [9. Virkjunarsvæði: Svæði sem gert er ráð fyrir að verði raskað vegna fyrirhugaðrar virkjunar.]1)
   [10.]1) Yfirborðsrannsóknir: Kortlagning náttúrusvæða, landslags, lífríkis, vatnafars og jarðfræði. Jarðfræðirannsóknir skiptast í rannsóknir á jarðfræði, jarðefnafræði og jarðeðlisfræði sem byggjast á sýnatöku á gasi, vatni og bergi, mælingu með tækjum á yfirborði og grunnum borunum til að ná bergsýnum, mælingu á berghita og stöðu grunnvatns, með léttum bortækjum sem skilja ekki eftir sig nein verksummerki.
   [11.]1) Þjóðlendur: Landsvæði utan eignarlanda þótt einstaklingar eða lögaðilar kunni að eiga þar takmörkuð eignarréttindi, [sbr. 1. gr. laga um þjóðlendur].2)
   1)L. 17/2026, 2. gr. 2)L. 87/2024, 16. gr.
3. gr. Verndar- og orkunýtingaráætlun.
[Ráðherra leggur í samráði og samvinnu við þann ráðherra sem fer með orkumál fram á Alþingi tillögu til þingsályktunar eða tillögu til breytingar á þingsályktun um áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða sem byggð er á tillögum verkefnisstjórnar, sbr. 10. gr.]1)
Í verndar- og orkunýtingaráætlun er á grundvelli sjónarmiða sem fram koma í 4. mgr. mótuð stefna um hvort landsvæði þar sem er að finna [virkjunarhugmyndir]1) megi nýta til orkuvinnslu eða hvort ástæða sé til að friðlýsa þau eða kanna frekar. [Virkjunarhugmyndir]1) á viðkomandi svæðum eru samkvæmt því [flokkaðar]1) í orkunýtingarflokk, verndarflokk eða biðflokk.
Verndar- og orkunýtingaráætlun tekur til landsvæða, [virkjunarhugmynda]1) og virkjunarkosta sem verkefnisstjórn skv. 8. gr. hefur fjallað um og hafa uppsett rafafl 10 MW eða meira eða uppsett varmaafl 50 MW eða meira. [Hún tekur þó ekki til stækkunar á virkjun sem sökum stærðar fellur undir verndar- og orkunýtingaráætlun nema stækkunin feli í sér að svæði sem ekki hefur verið raskað af viðkomandi virkjun verði raskað að mati [Umhverfis- og orkustofnunar].2) Stofnunin skal leita umsagna [Náttúruverndarstofnunar]3) og [Náttúrufræðistofnunar]1) áður en hún tekur ákvörðun samkvæmt ákvæði þessu.]4) Verndar- og orkunýtingaráætlun tekur ekki til landsvæða [í A-hluta náttúruminjaskrár, sbr. lög um náttúruvernd]5) nema tiltekið sé í friðlýsingarskilmálum að virkjunarframkvæmdir séu heimilar á viðkomandi svæði.
Í verndar- og orkunýtingaráætlun skal í samræmi við markmið laga þessara lagt mat á verndar- og orkunýtingargildi landsvæða og efnahagsleg, umhverfisleg og samfélagsleg áhrif nýtingar, þ.m.t. verndunar. Í verndar- og orkunýtingaráætlun skal tekið mið af vatnaáætlun samkvæmt lögum um stjórn vatnamála. [Þá skal tekið mið af stefnu stjórnvalda um öflun raforku við flokkun virkjunarhugmynda í verndar- og orkunýtingaráætlun.]1)
   1)L. 17/2026, 3. gr. 2)L. 110/2024, 8. gr. 3)L. 111/2024, 6. gr. 4)L. 68/2022, 1. gr. 5)L. 60/2013, 95. gr.
4. gr. Orkunýtingarflokkur.
Í orkunýtingarflokk verndar- og orkunýtingaráætlunar falla virkjunarkostir sem er áætlað á grundvelli sjónarmiða sem fram koma í 4. mgr. 3. gr. að ráðast megi í.
Stjórnvöldum er heimilt að veita leyfi tengd orkurannsóknum og orkuvinnslu vegna virkjunarkosta sem eru í orkunýtingarflokki. Þá eru orkurannsóknir sem lögum samkvæmt geta farið fram án leyfis stjórnvalda heimilar vegna virkjunarkostanna. [Sé ekki á annan veg mælt fyrir í lögum er öðrum stjórnvöldum heimilt að hefja undirbúningsvinnu við útgáfu leyfa eða taka aðrar lögbundnar ákvarðanir vegna virkjunarframkvæmda, telji þau ástæðu til.]1)
   1)L. 17/2026, 4. gr.
5. gr. Biðflokkur.
[Í biðflokk verndar- og orkunýtingaráætlunar falla virkjunarhugmyndir sem ekki hefur verið ákveðið hvort falla skuli í orkunýtingarflokk eða verndarflokk, svo sem þegar talið er að frekari upplýsinga eða greininga sé þörf.]1)
Stjórnvöldum er ekki heimilt að veita leyfi tengd orkuvinnslu vegna [virkjunarhugmynda]1) sem eru í biðflokki.
Heimilt er að veita leyfi tengd orkurannsóknum og stunda orkurannsóknir sem ekki eru leyfisskyldar vegna [virkjunarhugmynda]1) í biðflokki enda séu framkvæmdir vegna þeirra ekki matsskyldar samkvæmt lögum um [umhverfismat framkvæmda og áætlana]1) eða háðar mati á umhverfisáhrifum samkvæmt ákvörðun [Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar]2) eða, þegar við á, úrskurði ráðherra. [Teljist matsskyldar orkurannsóknir nauðsynlegar til að hægt sé að flokka virkjunarhugmynd samkvæmt lögum þessum er ráðherra heimilt, að fenginni umsögn frá verkefnisstjórn, að veita undanþágu frá banni þessarar greinar við slíkum rannsóknum að fengnu mati á umhverfisáhrifum þeirra.]1)
1)
   1)L. 17/2026, 5. gr. 2)L. 11/2026, 46. gr.
6. gr. Verndarflokkur.
Í verndarflokk verndar- og orkunýtingaráætlunar falla [virkjunarhugmyndir og verndarsvæði]1) sem ástæða er talin til að friðlýsa gagnvart orkuvinnslu að teknu tilliti til sjónarmiða sem fram koma í 4. mgr. 3. gr.
[Afmarka skal fyrirhuguð verndarsvæði einstakra virkjunarhugmynda með kortlagningu og hnitsetningu og skal kortlagningin vera hluti af ályktunartexta verndarflokks áætlunarinnar skv. 1. mgr. 3. gr. Verndarsvæðin byggjast á mati á verndargildi og verndarþörf náttúruminja, jarðminja eða menningarminja innan svæðanna og geta náð yfir hluta vatnasviðs eða fallvatns eða jafnvel heil vatnasvið. Þegar um jarðhitasvæði er að ræða geta verndarsvæði náð yfir hluta jarðhitasvæðis eða heil jarðhitasvæði.]1)
Stjórnvöldum er ekki heimilt að veita leyfi tengd orkurannsóknum eða orkuvinnslu vegna [virkjunarhugmynda]1) sem eru í verndarflokki eða eru á svæðum sem ástæða er talin til að friðlýsa gagnvart orkuvinnslu. Þá eru aðrar orkurannsóknir sem ekki eru leyfisskyldar einnig óheimilar.
Þrátt fyrir [3. mgr.]1) er unnt að fengnu samþykki [Náttúruverndarstofnunar]2) [og umsögn [Náttúrufræðistofnunar]1)]3) að heimila yfirborðsrannsóknir á svæðum í verndarflokki.
Stjórnvöld skulu þegar Alþingi hefur samþykkt verndar- og orkunýtingaráætlun hefja undirbúning að friðlýsingu landsvæða sem ástæða þykir til að friðlýsa gagnvart orkuvinnslu samkvæmt verndarflokki áætlunarinnar. Um friðlýsingu vegna náttúruverndar fer samkvæmt lögum um náttúruvernd en um friðlýsingu vegna menningarsögulegra minja fer samkvæmt [lögum um menningarminjar].1)
   1)L. 17/2026, 6. gr. 2)L. 111/2024, 6. gr. 3)L. 60/2013, 95. gr.
7. gr. Skipulagsáætlanir.
Verndar- og orkunýtingaráætlun er bindandi við gerð skipulagsáætlana. Sveitarstjórnir skulu samræma gildandi svæðis-, aðal- og deiliskipulagsáætlanir verndar- og orkunýtingaráætluninni innan fjögurra ára frá samþykkt hennar, sbr. þó 2. mgr.
Sveitarstjórnum er heimilt að fresta ákvörðun um landnotkun samkvæmt verndar- og orkunýtingaráætlun í allt að [sex]1) ár og skal tilkynna slíka ákvörðun til [Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar]2) innan árs frá samþykkt verndar- og orkunýtingaráætlunar. Skal meðan fresturinn stendur fara með þann kost eins og kosti í biðflokki. Að fresti liðnum skal skipulag viðkomandi svæðis samræmt þágildandi verndar- og orkunýtingaráætlun. Sveitarstjórn getur þó óskað eftir heimild [Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar]2) til þess að fresta að hámarki til [eins árs]1) í viðbót ákvörðun um landnotkun enda séu fyrir því gildar ástæður. Áður en [Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun]2) tekur afstöðu til erindis sveitarstjórnar skal hún óska umsagnar verkefnisstjórnar skv. 8. gr. um erindið. Ákvörðun [Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar]2) um frestun er ekki kæranleg til [þess ráðherra er fer með skipulagsmál].3)
   1)L. 17/2026, 7. gr. 2)L. 11/2026, 46. gr. 3)L. 126/2011, 543. gr.
8. gr. Verkefnisstjórn.
Ráðherra skipar sex manna verkefnisstjórn til fjögurra ára í senn sem er ráðherra til ráðgjafar við undirbúning að gerð tillagna fyrir verndar- og orkunýtingaráætlun samkvæmt lögum þessum. Tveir stjórnarmenn eru tilnefndir af [þeim ráðherra er fer með [orkumál],1)]2) einn af [þeim ráðherra er fer með málefni menningarminja]2) og einn af Sambandi íslenskra sveitarfélaga, og tveir eru án tilnefningar og skal annar þeirra skipaður formaður stjórnarinnar. Sömu aðilar tilnefna jafnmarga varamenn sem eru skipaðir með sama hætti.
   1)L. 157/2012, 24. gr. 2)L. 126/2011, 543. gr.
9. gr. Verksvið verkefnisstjórnar.
Verkefnisstjórn annast upplýsingasöfnun, faglegt mat, sbr. 4. mgr. 3. gr., og gerð tillagna til ráðherra vegna verndar- og orkunýtingaráætlunar og er samráðsvettvangur vegna hennar. Verkefnisstjórn skal skipa faghópa með sérfræðingum á viðeigandi sviðum sem fari yfir virkjunaráform hver frá sínum sjónarhóli, meti þá með stigagjöf og geri tillögur til verkefnisstjórnar. Fjöldi faghópa og skipan þeirra verður ákveðin af verkefnisstjórninni. [Verkefnisstjórn skal í upphafi starfs, í samráði við formenn einstakra faghópa, skipuleggja umfang skoðunar og afmörkun þeirra áhrifasvæða sem koma eiga til skoðunar vegna einstakra virkjunarhugmynda.]1)
Beiðni um að verkefnisstjórn fjalli um [virkjunarhugmynd]1) skal send [Umhverfis- og orkustofnun].2) Beiðninni skal fylgja lýsing á fyrirhugaðri virkjun, áætluðum virkjunarstað, [áætluðu áhrifasvæði],1) helstu mannvirkjum og öðrum framkvæmdum sem henni tengjast og eftir því sem kostur er áætlun um afl og orkugetu og stofn- og rekstrarkostnað virkjunar. Um þetta skal nánar fyrir mælt í reglugerð.3) [Ef virkjunarhugmynd er að mati Umhverfis- og orkustofnunar nægilega skilgreind í samræmi við þessa grein og ákvæði í reglugerð skal verkefnisstjórn fá hana til umfjöllunar innan fjögurra vikna. Að öðrum kosti skal Umhverfis- og orkustofnun svo fljótt sem verða má tilkynna umsækjanda hvað upp á vantar og óska eftir þeim viðbótargögnum eða viðbótarupplýsingum sem á skortir til að unnt sé að taka fyrirhugaða virkjun til umfjöllunar. Eftir að fullnægjandi viðbótargögn berast stofnuninni skal beiðnin ásamt meðfylgjandi gögnum send verkefnisstjórn innan fjögurra vikna frá móttöku þeirra. Umhverfis- og orkustofnun getur einnig að eigin frumkvæði og að uppfylltum sömu kröfum til gagna og upplýsinga falið verkefnisstjórn að fjalla um virkjunarhugmyndir.]1)
Verkefnisstjórn fjallar um [virkjunarhugmyndir]1) skv. 2. mgr. og þau landsvæði sem viðkomandi [virkjunarhugmyndir]1) hafa áhrif á að hennar mati. Verkefnisstjórn getur að eigin frumkvæði eða samkvæmt beiðni endurmetið [virkjunarhugmyndir]1) og landsvæði sem gildandi áætlun nær til og lagt til breytingar á henni [telji verkefnisstjórn að forsendur hafi breyst, svo sem vegna nýrra eða betri upplýsinga eða tækninýjunga sem geta haft áhrif á upphaflega flokkun].1) Það á þó ekki við ef gefið hefur verið út leyfi til viðkomandi virkjunar samkvæmt raforkulögum eða lögum um rannsóknir og nýtingu á auðlindum í jörðu eða friðlýsing skv. [5. mgr.]1) 6. gr. bannar framkvæmdina.
   1)L. 17/2026, 8. gr. 2)L. 110/2024, 8. gr. 3)Rg. 530/2014.
10. gr. Verklag og málsmeðferð.
Verkefnisstjórn byggir faglegt mat sitt á upplýsingum sem fyrir liggja um þætti sem taka skal tillit til í verndar- og orkunýtingaráætlun og beitir við það samræmdum viðmiðum og almennt viðurkenndum aðferðum. Vinna faghópa er lögð til grundvallar matinu. [Rannsóknir og upplýsingaöflun verkefnisstjórnar og faghópa skal taka mið af því að um heildstætt frummat er að ræða. Markmið upplýsingaöflunar skal því fyrst og fremst vera að búa til heildarmynd af verndar- og nýtingargildi landsvæða og áhrifum orkunýtingar. Vinnslutími einstakra tillagna hjá faghópum skal að jafnaði ekki vera lengri en 12 mánuðir nema verkefnisstjórn fallist á annað.]1) Verkefnisstjórn skal leita umsagnar [Náttúruverndarstofnunar, Minjastofnunar Íslands],2) [Náttúrufræðistofnunar, Skipulagsstofnunar, Landsnets]1) og Ferðamálastofu um hvort fyrirliggjandi gögn varðandi [einstakar virkjunarhugmyndir]1) eru nægjanleg til að meta þá þætti sem taka skal tillit til í verndar- og orkunýtingaráætluninni. [Telji verkefnisstjórn, þrátt fyrir 2. mgr. 9. gr., að virkjunarhugmynd sé ekki nægilega skilgreind eða að meðfylgjandi gögn uppfylli ekki skilyrði greinarinnar skal verkefnisstjórn, innan fjögurra vikna, fara fram á að Umhverfis- og orkustofnun afli þeirra viðbótargagna eða viðbótarupplýsinga sem þörf er á. Sama gildir ef slíkar breytingar verða á virkjunarhugmynd umsækjanda að þörf er á viðbótargögnum og upplýsingum við matsferli verkefnisstjórnar.]1) Teljist gögn ófullnægjandi [að öðru leyti]1) skal verkefnisstjórn láta safna viðbótargögnum og vinna úr þeim áður en eiginlegt matsferli hefst.
Verkefnisstjórn skal leita eftir samráði og faglegri aðstoð hjá viðkomandi stofnunum og stjórnvöldum ríkis og sveitarfélaga, félagasamtökum, hagsmunaaðilum og öðrum aðilum. Þá skal verkefnisstjórn miðla upplýsingum um starf sitt með opinberum hætti. Verkefnisstjórn skal hafa samráð við [Umhverfis- og orkustofnun]3) til að tryggja samræmi verndar- og orkunýtingaráætlunar og vatnaáætlunar samkvæmt lögum um stjórn vatnamála. [Áður en gerð er tillaga um flokkun virkjunarhugmyndar í nýtingarflokk áætlunarinnar skal liggja fyrir greinargerð um áætluð áhrif framkvæmda á umhverfismarkmið þeirra vatnshlota sem verða fyrir beinum og óbeinum áhrifum af framkvæmdunum.]1)
Að fengnum [fullnægjandi]1) niðurstöðum faghópa vinnur verkefnisstjórn [innan fjögurra mánaða]1) drög að tillögum um flokkun [virkjunarhugmynda]1) og afmörkun virkjunar- og verndarsvæða í samræmi við flokkunina. …1) [Að því búnu kynnir verkefnisstjórnin tillögur að verndar- og orkunýtingaráætlun og auglýsir þær opinberlega á landsvísu, í Lögbirtingablaðinu og á vef sínum þar sem leita skal samráðs og umsagna um tillögurnar hjá almenningi, stjórnvöldum, félagasamtökum og hagsmunaaðilum.]1) Í auglýsingunni skal koma fram hvar má nálgast tillögur verkefnisstjórnar og öllum gefinn kostur á að koma á framfæri athugasemdum með tilgreindum hætti og innan ákveðins frests sem skal ekki vera skemmri en tólf vikur frá birtingu auglýsingar.
Að loknu samráðs- og kynningarferli, og að loknu umhverfismati í samræmi við [lög um umhverfismat framkvæmda og áætlana],1) leggur verkefnisstjórn [innan fjögurra vikna]1) fyrir ráðherra rökstuddar tillögur um flokkun virkjunarkosta og afmörkun landsvæða í samræmi við flokkunina.
Ráðherra tekur tillögur verkefnisstjórnar til skoðunar og gengur frá tillögu um verndar- og orkunýtingaráætlun í samræmi við 3. gr. [Ef lagðar eru til breytingar á tillögu verkefnisstjórnar skal leita umsagna þeirra aðila sem greinir í 3. mgr. og þeim veittur sex vikna frestur áður en tillaga að verndar- og orkunýtingaráætlun er lögð fram á Alþingi.]1) [Ráðherra skal leggja tillöguna fyrir Alþingi innan fjögurra mánaða frá því að honum berst tillagan frá verkefnisstjórn eða innan sex og hálfs mánaðar frá því að honum berst tillagan hafi hann lagt til breytingar á tillögu verkefnisstjórnar og þá að loknum sex vikna umsagnarfresti um breytingartillöguna. Sé Alþingi ekki að störfum við lok framangreindra tímamarka skal ráðherra leggja tillöguna fram þegar þing kemur saman á ný eða við upphaf næsta þings.]1)
Að fengnum tillögum verkefnisstjórnar setur ráðherra, í samráði við [þann ráðherra er fer með [orkumál],4)]5) reglur6) um hvernig verkefnisstjórn skuli starfa, þ.m.t. um upplýsingaöflun, viðmið og matsaðferðir. Reglurnar skulu birtar í Stjórnartíðindum.
   1)L. 17/2026, 9. gr. 2)L. 111/2024, 6. gr. 3)L. 110/2024, 8. gr. 4)L. 157/2012, 24. gr. 5)L. 126/2011, 543. gr. 6)Starfsrgl. 515/2015.
11. gr. Meðferð upplýsinga.
Um afhendingu gagna og upplýsinga sem verkefnisstjórn eða þeir sem fyrir hana starfa öðlast fer samkvæmt upplýsingalögum.
12. gr. Reglugerð.
[Ráðherra]1) getur mælt nánar fyrir um framkvæmd laga þessara í reglugerð.
   1)L. 126/2011, 543. gr.
13. gr. Gildistaka.
1.–3. gr. laga þessara taka þegar gildi. Að öðru leyti taka lögin gildi þegar Alþingi hefur samþykkt tillögu til þingsályktunar skv. 3. gr., sbr. ákvæði til bráðabirgða.
Ákvæði til bráðabirgða.
I.
Tillaga til þingsályktunar skv. 3. gr. skal fyrst lögð fram á Alþingi þegar fyrir liggja tillögur verkefnisstjórnar um rammaáætlun um nýtingu vatnsafls og jarðvarma sem skipuð var af iðnaðarráðherra í samráði við umhverfisráðherra 24. ágúst 2007.
Áður en tillaga til þingsályktunar er lögð fram á Alþingi skal ráðherra kynna hana þeim aðilum sem greinir í 3. mgr. 10. gr. og gefa öllum kost á að koma á framfæri athugasemdum með tilgreindum hætti. Fara skal fram umhverfismat á tillögunni í samræmi við lög nr. 105/2006, um umhverfismat áætlana.
Þegar tillaga til þingsályktunar skv. 3. gr. hefur verið samþykkt af Alþingi skal [ráðherra]1) skipa verkefnisstjórn skv. 8. gr.
[Ráðherra]2) skal skipa vinnuhóp til að skoða og gera tillögu um aðferðafræði við að meta verðgildi náttúrunnar.
   1)L. 126/2011, 543. gr. 2)L. 157/2012, 24. gr.
[II.
Náttúrufræðistofnun skal innan þriggja ára frá gildistöku ákvæðis þessa vinna samantekt á jarðhitasvæðum, ám, vatnsföllum eða vatnasviðum landsins sem hafa hátt verndargildi með tilliti til laga um náttúruvernd, nr. 60/2013, en geta borið virkjun umfram 10 MW að uppsettu rafafli eða uppsettu varmaafli 50 MW eða meira og ekki hafa verið flokkuð í nýtingarflokk eða biðflokk gildandi verndar- og orkunýtingaráætlunar. Samantektin skal ekki taka til þeirra svæða sem berast verkefnisstjórn til meðferðar eftir gildistöku ákvæðis þessa. Samantektin skal byggjast á gögnum sem þegar liggja fyrir um svæðin. Að fenginni samantekt Náttúrufræðistofnunar getur ráðherra lagt til að umrædd svæði eða ákveðinn hluti þeirra falli í verndarflokk áætlunarinnar. Leggi ráðherra til að umrædd svæði falli í verndarflokk verndar- og orkunýtingaráætlunar samkvæmt þessu ákvæði skulu tillögurnar kynntar almenningi í samræmi við 3. mgr. 10. gr.]1)
   1)L. 17/2026, 10. gr.