Lagasafn.  Íslensk lög 12. apríl 2024.  Útgáfa 154b.  Prenta í tveimur dálkum.


Lög um rannsóknarnefndir

2011 nr. 68 16. júní


Ferill málsins á Alþingi.   Frumvarp til laga.

Tóku gildi 25. júní 2011. Breytt með: L. 84/2011 (tóku gildi 30. júní 2011 nema 1. gr. og c-liður 14. gr. sem tóku gildi 1. sept. 2012). L. 158/2012 (tóku gildi 3. jan. 2013). L. 77/2014 (tóku gildi 12. júní 2014). L. 47/2016 (tóku gildi 11. júní 2016). L. 117/2016 (tóku gildi 1. jan. 2018, nema 52., 53., 75., 76. og 79.–81. gr. sem tóku gildi 28. okt. 2016). L. 90/2018 (tóku gildi 15. júlí 2018; EES-samningurinn: XI. viðauki reglugerð 2016/679). L. 71/2019 (tóku gildi 5. júlí 2019). L. 72/2019 (tóku gildi 5. júlí 2019 nema 9. gr. sem tók gildi 1. jan. 2021; EES-samningurinn: XX. viðauki tilskipun 2003/4/EB).


Skipun rannsóknarnefndar.
1. gr.
[Forseti Alþingis skipar rannsóknarnefnd á vegum Alþingis ef þingið samþykkir ályktun þar um til þess að rannsaka málsatvik í mikilvægu máli sem varðar almenning.
Nefnd sú sem fer með eftirlit Alþingis með framkvæmdarvaldinu leggur mat á og gerir tillögu til Alþingis um hvenær rétt sé að skipa rannsóknarnefnd samkvæmt lögum þessum. Við undirbúning slíkrar tillögu og áður en hún er lögð fram skal sérstaklega leggja mat á tilefni og grundvöll rannsóknar, hvert sé mögulegt umfang hennar og afmörkun og hvort önnur úrræði séu tiltæk. Þá skal nefndin enn fremur leggja mat á fjölda nefndarmanna og hvaða kröfur eigi að gera til faglegrar þekkingar þeirra og áætla kostnað.
Áður en tillaga um skipun rannsóknarnefndar er lögð fram skal leita umsagnar forseta Alþingis um þau atriði sem tilgreind eru í 2. mgr. Við undirbúning hennar er forseta Alþingis heimilt að leita umsagnar ríkisendurskoðanda og umboðsmanns Alþingis um tillöguna.
Ef tillaga um skipun rannsóknarnefndar kemur ekki frá þeirri nefnd sem fer með eftirlit Alþingis með framkvæmdarvaldinu, sbr. 2. mgr., skal, að lokinni fyrri umræðu, vísa henni til þeirrar nefndar til athugunar sem gefur þinginu álit sitt um hana að fenginni umsögn forseta Alþingis, sbr. 3. mgr., áður en greidd eru atkvæði um tillöguna við síðari umræðu.]1)
   1)L. 47/2016, 1. gr.
2. gr.
[Fjöldi nefndarmanna skal ákveðinn í ályktun Alþingis. Heimilt er að fela einum einstaklingi rannsókn máls ef rök mæla með því. Forseti Alþingis velur formann og afmarkar umboð nefndar, hvort tveggja í samráði við forsætisnefnd og nefnd þá sem fer með eftirlit Alþingis með framkvæmdarvaldinu, sbr. 2. mgr. 1. gr. Forfallist nefndarmaður eða ef hann getur ekki af öðrum ástæðum sinnt starfinu getur forseti Alþingis skipað annan mann til þess að taka sæti í nefndinni.
Formaður rannsóknarnefndar skal vera lögfræðingur. Fari einn maður með rannsókn máls skal hann enn fremur vera lögfræðingur. Hann skal uppfylla starfsgengisskilyrði héraðsdómara samkvæmt lögum um dómstóla, en að undanskildum ákvæðum um hámarksaldur, sbr. [5. mgr. 52. gr.]1) þeirra laga.
Sé rannsóknarnefnd falið að meta lögfræðileg atriði sem geta varpað ljósi á það hvort einstaklingar skuli sæta ábyrgð skulu nefndarmenn vera þrír hið minnsta.
Dómara, sem skipaður er til setu í rannsóknarnefnd, skal veitt leyfi frá störfum dómsins meðan nefndin starfar.
Opinber starfsmaður, sem skipaður er til setu í rannsóknarnefnd eða starfar fyrir slíka nefnd, á rétt á launalausu leyfi þann tíma sem nefndin starfar.
Sá sem starfar fyrir rannsóknarnefnd, sbr. 4. og 5. mgr., heldur réttindum sem hann hefur áunnið sér á grundvelli laga eða kjarasamninga og frekari ávinnslu þeirra, þ.m.t. lífeyrisréttindum.]2)
   1)L. 117/2016, 19. gr. 2)L. 47/2016, 2. gr.
3. gr.
[Rannsóknarnefnd getur ráðið starfsmenn sér til aðstoðar. Forseti Alþingis staðfestir ráðningu þeirra og ákveður þeim laun. Hann útvegar rannsóknarnefnd jafnframt annan mannafla og aðbúnað sem er nauðsynlegur við rannsóknina.]1)
Þrátt fyrir ákvæði 7. gr. laga …1) um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins er heimilt að ráða starfsmenn til starfa hjá rannsóknarnefnd án auglýsingar. Lögin gilda að öðru leyti um réttindi og skyldur starfsmannanna.
[Forseti Alþingis ákveður nefndarmönnum laun fyrir störf þeirra og önnur starfskjör.
Kostnaður af starfi rannsóknarnefndar greiðist úr ríkissjóði í samræmi við fjárheimildir hverju sinni.]1)
   1)L. 47/2016, 3. gr.
Sjálfstæði og hæfi nefndarmanna.
4. gr.
Rannsóknarnefnd er í störfum sínum óháð fyrirmælum frá öðrum, þar með talið Alþingi. Skulu nefndarmenn jafnframt vera óhlutdrægir og óvilhallir gagnvart þeim stofnunum, fyrirtækjum, einstaklingum og öðrum sem nefndin hefur til athugunar. Sama á við um starfsmenn og aðstoðarmenn rannsóknarnefndarinnar að öðru leyti. Rannsóknarnefnd sker úr um hæfi starfsmanna nefndarinnar.
[Um sérstakt hæfi nefndarmanna og starfsmanna fer eftir sömu reglum og fram koma í 3. gr. stjórnsýslulaga.]1)
Nú verður ágreiningur um sérstakt hæfi nefndarmanns og sker þá rannsóknarnefnd úr, sbr. 5. gr. stjórnsýslulaga …1). Til forseta Alþingis verður skotið ágreiningi um almennt hæfi nefndarmanns.
   1)L. 47/2016, 4. gr.
[Verkefni rannsóknarnefndar og tilkynningar.]1)
   1)L. 47/2016, 5. gr.
5. gr.
[Meginhlutverk rannsóknarnefndar er að afla upplýsinga og gera grein fyrir málsatvikum í máli, sbr. 1. mgr. 1. gr. Verkefni rannsóknarnefndar skal skýrt afmarkað í umboði hennar, sbr. 1. mgr. 2. gr.
Rannsóknarnefnd má fela það verkefni að gefa álit sitt á því hvort til staðar kunni að vera lögfræðileg atriði sem gætu varpað ljósi á hvort tilefni sé til þess að þar til bær stjórnvöld kanni grundvöll ábyrgðar einstaklinga eða lögaðila. Vakni grunur við rannsókn nefndarinnar um að refsiverð háttsemi hafi átt sér stað tilkynnir hún ríkissaksóknara það sem ákveður hvort rannsaka beri málið í samræmi við lög um meðferð sakamála. Ef nefndin telur að ætla megi að opinber starfsmaður hafi gerst brotlegur við starfsskyldur sínar samkvæmt ákvæðum laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, eða ákvæðum annarra laga sem gilda um störf hans, skal hún tilkynna viðkomandi forstöðumanni þar um og hlutaðeigandi ráðuneyti.
Ekki er skylt að gefa viðkomandi kost á að tjá sig sérstaklega um þá ákvörðun rannsóknarnefndar að senda mál til ríkissaksóknara eða tilkynna það forstöðumanni eða ráðuneyti, sbr. 2. mgr. Upplýsingar um slíkar tilkynningar skulu birtar í skýrslu rannsóknarnefndar.
Rannsóknarnefnd, sem gefa skal álit sitt á stjórnsýslu ráðherra, sbr. 2. mgr., verður ekki falið að meta ábyrgð ráðherra samkvæmt lögum um ráðherraábyrgð. Henni er þó heimilt að vekja athygli nefndar sem fer með eftirlit Alþingis með framkvæmdarvaldinu á málsatvikum sem kunna að gefa Alþingi tilefni til að kanna grundvöll ábyrgðar ráðherra.]1)
   1)L. 47/2016, 5. gr.
Framkvæmd rannsóknar.
6. gr.
[Formaður stýrir starfi rannsóknarnefndar.]1) Rannsóknarnefnd metur sjálf hvort fundir nefndarinnar séu opnir eða lokaðir. Rannsóknarnefnd skal færa gerðabók á fundum sínum.
Rannsóknarnefnd skal leitast við að upplýsa mál eins vel og unnt er. Nefndin ákveður sjálf, innan þess ramma sem umboð hennar og lög þessi leyfa, hvernig framkvæmd rannsóknar skal hagað með það að markmiði að mál það sem til athugunar er verði sem best upplýst. Nefndin kallar í því skyni eftir þeim upplýsingum um málið sem hún telur nauðsynlegar.
Við ákvarðanir nefndarinnar um framkvæmd rannsóknarinnar ræður afl atkvæða úrslitum mála. Verði ágreiningur um einstök atriði í niðurstöðum hennar geta einstakir nefndarmenn gert sérstaklega grein fyrir afstöðu sinni í bókun.
[Rannsóknarnefnd skal beita heimildum sínum til öflunar gagna og upplýsinga skv. 7. og 8. gr. í þágu lögmætra markmiða sem tengjast rannsókn nefndarinnar og gæta þess að ganga ekki lengra en nauðsyn krefur.]1)
   1)L. 47/2016, 6. gr.
Öflun gagna og upplýsinga.
7. gr.
Sérhverjum, jafnt einstaklingum, stofnunum sem lögaðilum, er skylt að verða við kröfu rannsóknarnefndarinnar um að láta í té gögn sem hún fer fram á. Með gögnum er m.a. átt við skýrslur, skrár, minnisblöð, bókanir, samninga, álit sérfræðinga og önnur gögn sem nefndin óskar eftir í þágu rannsóknarinnar, hvort sem þau eru prentuð (skrifleg) eða á rafrænu formi.
Sömu aðilum og greinir í 1. mgr. er jafnframt skylt að verða við óskum rannsóknarnefndar um að skýra skriflega frá athöfnum sínum og svara skriflega fyrirspurnum hennar.
Skylt er að verða við kröfu rannsóknarnefndar um afhendingu gagna og að veita upplýsingar þótt þær séu háðar þagnarskyldu. Sama gildir um upplýsingar sem óheimilt er að lögum að veita fyrir dómi nema með samþykki ráðherra, forstöðumanns eða annars yfirmanns viðkomandi, jafnt hjá hinu opinbera sem einkafyrirtæki.
Lögmaður, endurskoðandi eða annar aðstoðarmaður verður þó ekki krafinn upplýsinga, sem honum hefur verið trúað fyrir út af rannsókn nefndarinnar, nema með leyfi þess sem í hlut á. Ákvæði a- og b-liðar 2. mgr., 3. mgr. og 4. mgr. 119. gr. laga …1) um meðferð sakamála gilda enn fremur um upplýsingagjöf þeirra sem þar eru tilgreindir. Dómari sker úr um upplýsingaskyldu þeirra og verður mál af því tagi rekið skv. 5. mgr. þessarar greinar.
Nú verður ágreiningur um afhendingu gagna, skýringa eða skriflegra svara, sbr. 1.–3. mgr., og getur rannsóknarnefnd þá leitað um hann úrskurðar héraðsdóms á grundvelli XV. kafla laga um meðferð sakamála. Lögregla skal veita nefndinni liðsinni við að framfylgja slíkum dómsúrskurði. Heimilt er að kæra úrskurðinn til [Landsréttar]2) innan þriggja sólarhringa frá uppkvaðningu hans. [Um kæru á úrskurði Landsréttar gilda ákvæði XXXII. kafla laga um meðferð sakamála.]2)
Í þágu rannsóknar er rannsóknarnefnd heimilt að beita ákvæði 73. gr. laga um meðferð sakamála til að varna því að gögnum sé fargað og skal lögregla framfylgja þeirri ákvörðun.
[Gögn skulu afhent á því formi sem rannsóknarnefnd ákveður innan tilgreinds tíma og án endurgjalds. Þegar krafa beinist að aðila sem er til rannsóknar, sbr. [2. mgr.]1) 5. gr., og þegar sérstaklega stendur á, getur rannsóknarnefnd ákveðið að kostnaður af afhendingu gagna greiðist að hluta eða að öllu leyti af nefndinni, sbr. [4. mgr.]1) 3. gr.]3)
Rannsóknarnefnd á frjálsan aðgang að öllum starfsstöðvum stjórnvalda og til rannsókna á aðstæðum í þágu þess verkefnis sem henni hefur verið falið. Starfsmenn stjórnvalda og þeir aðilar sem rannsókn tekur til, sbr. [2. mgr.]1) 5. gr., skulu láta rannsóknarnefnd í té alla nauðsynlega aðstoð vegna starfa hennar.
   1)L. 47/2016, 7. gr. 1)L. 117/2016, 20. gr. 3)L. 158/2012, 2. gr.
8. gr.
Rannsóknarnefnd getur kallað einstaklinga til skýrslugjafar og skulu þeir sem gefa skýrslu segja satt og rétt frá fyrir nefndinni. Formaður stýrir skýrslutökum en getur falið öðrum nefndarmanni það. Þá getur hann falið starfsmanni nefndarinnar eða öðrum er vinna að rannsókninni að beina spurningum að þeim sem gefur skýrslu. Taka skal upp á hljóð- eða myndband það sem fram fer við skýrslutöku eða varðveita það með öðrum tryggilegum hætti.
Ef þeir sem kallaðir eru fyrir rannsóknarnefnd til skýrslutöku verða ekki við ósk nefndarinnar þar um getur nefndin óskað þess að héraðsdómari kveðji mann fyrir dóm til að bera vitni telji hún það nauðsynlegt í þágu rannsóknar málsins. Um kvaðningu og skýrslugjöf og aðra framkvæmd skal fara eftir ákvæðum laga um meðferð sakamála eftir því sem við á. Ákveða má að skýrsla sé gefin fyrir luktum dyrum.
Vernd uppljóstrara.
9. gr.
Óheimilt er að láta einstakling gjalda þess ef hann veitir í góðri trú rannsóknarnefnd upplýsingar sem hafa þýðingu fyrir rannsóknina.
Undir 1. mgr. fellur sú háttsemi að rýra réttindi, segja upp samningi, slíta honum eða láta einstakling gjalda þess á annan hátt að hann hafi látið rannsóknarnefnd í té upplýsingar sem þýðingu hafa fyrir rannsókn. Séu leiddar líkur að því skal gagnaðili sýna fram á að ákvörðun sé reist á öðrum forsendum en þeim að hann hafi veitt rannsóknarnefnd upplýsingar.
Ef einstaklingur hefur frumkvæði að því að láta rannsóknarnefnd í té upplýsingar eða gögn sem tengjast stjórnsýslu ríkis og sveitarfélaga, opinberri stofnun, fyrirtæki, móður- eða dótturfyrirtæki þess eða fyrirtækjum sem það er í viðskiptum við eða stjórnendum þeirra og óskar eftir því að hann sæti ekki ákæru, þótt upplýsingarnar eða gögnin leiði líkur að refsiverðu broti hans sjálfs, er rannsóknarnefnd heimilt að óska eftir því við ríkissaksóknara að hann ákveði að hlutaðeigandi sæti ekki ákæru. Ef um opinberan starfsmann er að ræða getur rannsóknarnefnd, af sama tilefni, óskað eftir því við forstöðumann eða ráðuneyti að hlutaðeigandi verði ekki látinn sæta viðurlögum vegna brota á starfsskyldum.
Skilyrði ákvörðunar skv. 3. mgr. eru að upplýsingar eða gögn tengist refsiverðu broti í opinberri stjórnsýslu eða broti á opinberum starfsskyldum og talið sé líklegt að þessar upplýsingar eða gögn geti haft verulega þýðingu fyrir rannsókn nefndarinnar samkvæmt lögum þessum eða séu mikilvæg viðbót við fyrirliggjandi sönnunargögn. Ef upplýsingar eða gögn tengjast refsiverðu broti er jafnframt skilyrði fyrir beitingu þessarar heimildar að rökstuddur grunur sé uppi um það að mati ríkissaksóknara að upplýsingar eða gögn tengist alvarlegu broti, fyrirséð sé að sök þess sem lætur slíkt í té sé mun minni en sök þess eða þeirra sem gögnin eða upplýsingarnar beinast gegn og ástæða sé til að ætla að án þeirra muni reynast torvelt að færa fram fullnægjandi sönnur fyrir broti.
Réttarstaða einstaklinga fyrir rannsóknarnefnd.
10. gr.
Sá sem til rannsóknar er, sbr. [2. mgr.]1) 5. gr., á rétt á aðstoðarmanni að eigin vali á öllum stigum rannsóknar. Ef rök mæla sérstaklega með því getur nefndin ákveðið að kostnaður við störf aðstoðarmanns skuli greiddur af nefndinni. Ákvörðun nefndarinnar þar um má kæra til forseta Alþingis innan þriggja vikna frá því að hún var kunngjörð þeim sem í hlut á.
Sá sem til rannsóknar er, sbr. [2. mgr.]1) 5. gr., skal, á meðan það ekki skaðar rannsóknarhagsmuni, hafa aðgang að gögnum málsins og vera upplýstur um þau atriði sem til skoðunar eru hjá nefndinni hvað hann varðar og teljast mikilvæg fyrir mál hans. Heimilt er að takmarka aðgang að gögnum ef þau hafa jafnframt að geyma upplýsingar um einkamálefni annarra, enda vegi þeir hagsmunir sem mæla með því að upplýsingunum sé haldið leyndum þyngra en hagsmunir þess sem fer fram á aðgang að gögnunum.
Að skýrslutöku og gagnaöflun lokinni skal þeim sem til rannsóknar er og ætla má að sætt geti ábyrgð, sbr. [2. mgr.]1) 5. gr., gert kleift að tjá sig um þá málavexti og lagatúlkun sem rannsóknarnefnd íhugar að fjalla um í skýrslu sinni. Nefndin veitir viðkomandi hæfilegan frest til að gera skriflega athugasemd við þessi atriði.
Skylda til afhendingar gagna og til að láta af hendi upplýsingar og svör, sbr. 7. gr., og til að láta af hendi upplýsingar við skýrslugjöf, sbr. 8. gr., er þó ekki fyrir hendi ef ætla má að í henni geti falist játning eða bending um að sá sem beðinn er um að afhenda gögnin eða láta af hendi upplýsingar hafi framið refsiverðan verknað eða atriði sem valdi honum siðferðislegum hnekki eða tilfinnanlegu fjárhagstjóni. Sama á við ef ætla má að afhending gagna eða veiting upplýsinga hefði sömu afleiðingar fyrir einhvern þann sem tengist viðkomandi með þeim hætti sem segir í 1. og 2. mgr. 117. gr. laga …1) um meðferð sakamála. Gögn sem ráðherra eða starfsmaður stjórnsýslu hefur útbúið um störf sín verða þó ekki undanþegin afhendingu.
Ekki er heimilt að nota upplýsingar sem einstaklingur hefur veitt nefndinni sem sönnunargagn í sakamáli sem höfðað er gegn honum.
Ef maður lætur af ásetningi rannsóknarnefnd í té rangar eða villandi upplýsingar samkvæmt fyrirmælum laga þessara fer um refsingu fyrir slík brot skv. 145. og 146. gr. almennra hegningarlaga …1). Um slík mál skal fara samkvæmt lögum um meðferð sakamála.
   1)L. 47/2016, 8. gr.
Þagnarskylda.
11. gr.
[Á nefndarmönnum og öðrum er vinna að rannsókn hvílir þagnarskylda skv. X. kafla stjórnsýslulaga.]1) Þagnarskyldan helst þótt nefndin hafi lokið störfum. Rannsóknarnefnd er þó heimilt að afhenda upplýsingar og gögn til sérfræðilegra ráðgjafa í þeim mæli sem nauðsynlegt er. Sama á við ef nefndin telur afhendingu slíkra upplýsinga nauðsynlega vegna gagnkvæmrar miðlunar upplýsinga og samstarfs við aðila erlendis sem sinna hliðstæðum rannsóknum og nefndin. Afhendi nefndin upplýsingar á grundvelli þessara heimilda hvílir þagnarskylda á þeim sem fær gögnin afhent.
Ákvæði 1. mgr. skal ekki standa því í vegi að rannsóknarnefnd geti birt upplýsingar sem annars væru háðar þagnarskyldu ef nefndin telur slíkt nauðsynlegt til að rökstyðja niðurstöður sínar. Nefndin skal þó því aðeins birta upplýsingar um persónuleg málefni einstaklinga, þ.m.t. fjármál þeirra, að almannahagsmunir af því að birta upplýsingarnar vegi þyngra en hagsmunir þess einstaklings sem í hlut á.
   1)L. 71/2019, 5. gr.
Upplýsingagjöf nefndar á starfstíma.
12. gr.
Rannsóknarnefnd ákveður sjálf hvaða upplýsingar eða tilkynningar hún birtir opinberlega um störf sín þar til hún hefur skilað lokaskýrslu sinni. Sama gildir um aðgang að gögnum sem nefndin aflar.
[Rannsóknarnefnd skal veita forseta Alþingis upplýsingar um rekstur og útgjöld rannsóknarnefndar.]1) Rannsóknarnefnd getur [enn fremur]1) veitt forseta Alþingis upplýsingar um framgang rannsóknarinnar meðan á henni stendur og getur forseti í tilefni af slíkri upplýsingagjöf og að höfðu samráði við forsætisnefnd gert Alþingi grein fyrir fram komnum upplýsingum ef æskilegt þykir.
Óheimilt er að veita aðgang að gögnum frá opinberum stofnunum sem rannsóknarnefnd hefur fengið afhent við rannsókn nema með samþykki nefndarinnar.
   1)L. 47/2016, 10. gr.
Skýrsla og starfslok rannsóknarnefndar.
13. gr.
Rannsóknarnefnd skilar forseta Alþingis skriflegri skýrslu með rökstuddum niðurstöðum rannsóknar sinnar þegar henni er lokið. Rannsóknarnefnd getur ákveðið að skila sérstökum skýrslum um einstaka hluta rannsóknarinnar eða áfangaskýrslum og skal haga meðferð þeirra á sama hátt og lokaskýrslu.
Forseti skal þegar í stað senda þeirri nefnd Alþingis sem fer með [eftirlit Alþingis með]1) framkvæmdarvaldinu lokaskýrslu nefndarinnar sem tekur ákvörðun um hvort hún skuli strax tekin til efnislegrar meðferðar í nefndinni eða að lokinni umræðu í þinginu. Skal nefnd sú sem fer með eftirlitshlutverk Alþingis að lokinni umfjöllun um skýrsluna gefa þinginu álit sitt um hana og leggja fram tillögur um úrvinnslu og meðferð niðurstaðna hennar.
Með birtingu lokaskýrslu lýkur störfum rannsóknarnefndarinnar. [Formaður rannsóknarnefndar skal þó afhenda forseta Alþingis reikningslegt uppgjör yfir störf rannsóknarnefndar og árita það innan þriggja mánaða frá því að nefndin lýkur störfum. Formaður rannsóknarnefndar ber ábyrgð á fjárreiðum nefndarinnar og er í fyrirsvari fyrir þær þar til endurskoðun á reikningslegu uppgjöri hefur farið fram. Hann ber jafnframt ábyrgð á frágangi skjala rannsóknarnefndar til varðveislu, sbr. 4. mgr.]1)
Að rannsókn nefndarinnar lokinni skulu gögn, sem aflað hefur verið við rannsóknina, færð Þjóðskjalasafni Íslands. [Um aðgang að þeim fer samkvæmt ákvæðum 39. gr. laga um opinber skjalasöfn.]1)
   1)L. 47/2016, 11. gr.
[Skaðleysi nefndarmanna.]1)
   1)L. 158/2012, 3. gr.
[[14. gr.]1)
Kröfum í einkamáli og málum skv. 2. og 3. tölul. 242. gr. almennra hegningarlaga …1) út af atriðum er koma fram í skýrslu rannsóknarnefndar eða öðrum skýrslum í tengslum við rannsóknina verður ekki beint gegn nefndarmönnum sem unnið hafa að rannsókninni. Sama gildir ef mál er höfðað út af málsmeðferð í tilefni af henni. Íslenska ríkið ber ábyrgð á athöfnum þeirra eftir almennum reglum hvort sem mál er höfðað fyrir innlendum eða erlendum dómstóli. Verði mál höfðað fyrir erlendum dómstóli gegn nefndarmanni, þrátt fyrir 1. málsl., greiðir íslenska ríkið allan kostnað hans við rekstur málsins og aðrar áfallnar kröfur af því tilefni.]2)
   1)L. 47/2016, 12. gr. 2)L. 158/2012, 3. gr., sbr. og 4. gr. s.l.
Lagatengsl, gildistaka o.fl.
[15. gr.]1)
Ákvæði upplýsingalaga og ákvæði [1. og 2. mgr. 17. gr. laga um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga]2) gilda ekki á meðan rannsóknarnefnd er að störfum. Sama gildir um ákvæði stjórnsýslulaga, nema sérstaklega sé til þeirra vísað í þessum lögum. Ekki er unnt að bera fram kvörtun um störf nefndarinnar við umboðsmann Alþingis.
[Ákvæði 1. mgr. gilda einnig frá því að rannsóknarnefnd hefur tilkynnt ákæruvaldi um grun um að refsiverð háttsemi hafi átt sér stað, sbr. 2. mgr. 5. gr., þar til ákæruvald hefur ákveðið að taka mál viðkomandi til meðferðar sem sakamál. Hafi mál verið fellt niður skulu þeir sem rannsókn beinist að njóta réttinda samkvæmt ákvæðum [1. og 2. mgr. 17. gr. laga um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga]2) og 14. gr. upplýsingalaga.]1)
Þegar rannsóknarnefnd hefur lokið störfum skulu þeir sem rannsókn hefur beinst að njóta réttinda samkvæmt ákvæðum [1. og 2. mgr. 17. gr. laga um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga]2) og [III. kafla upplýsingalaga],3) enda hafi ákæruvaldið ekki tekið mál viðkomandi til meðferðar sem sakamál. Fer þá um rétt til aðgangs að gögnum samkvæmt ákvæðum laga um meðferð slíkra mála. Um réttindi annarra til aðgangs að gögnum rannsóknarnefndar, þar á meðal þeirra sem hafa komið fyrir rannsóknarnefnd, veitt upplýsingar eða rannsóknarnefnd hefur aflað upplýsinga um, fer skv. 4. mgr. 13. gr. að gættum ákvæðum [laga um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga].2)
   1)L. 47/2016, 13. gr. 2)L. 90/2018, 54. gr. 3)L. 72/2019, 21. gr.
[16. gr.]1)
Lög þessi taka þegar gildi.
   1)L. 47/2016, 13. gr.
Ákvæði til bráðabirgða.
I.1)
   1)L. 84/2011, 41. gr.
II.
Þrátt fyrir ákvæði til bráðabirgða I skal forseti Alþingis, samkvæmt þingsályktun frá 17. desember 2010, skipa rannsóknarnefnd til þess að rannsaka starfsemi Íbúðalánasjóðs. Um störf nefndarinnar fer að öðru leyti eftir lögum þessum.
[III.
Er lög þessi hafa öðlast gildi skal stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd fjalla um ályktun Alþingis frá 7. nóvember 2012, um rannsókn á einkavæðingu Fjárfestingarbanka atvinnulífsins hf., Landsbanka Íslands hf. og Búnaðarbanka Íslands hf., í því skyni að tryggja að afmörkun og umfang rannsóknarinnar verði í samræmi við ákvæði laga þessara. Enn fremur skal nefndin tryggja að undirbúningur rannsóknarinnar fari fram skv. 2. og 3. mgr. 1. gr. Að lokinni umfjöllun nefndarinnar og eftir atvikum Alþingis skipar forseti Alþingis nefndina og afmarkar nánar umboð hennar í samráði við forsætisnefnd og stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd, sbr. 1. mgr. 2. gr.]1)
   1)L. 47/2016, 14. gr.