Lagasafn.  Íslensk lög 12. apríl 2024.  Útgáfa 154b.  Prenta í tveimur dálkum.


Lög um Stjórnarráð Íslands

2011 nr. 115 23. september


Ferill málsins á Alþingi.   Frumvarp til laga.

Tóku gildi 28. september 2011. Breytt með: L. 173/2011 (tóku gildi 30. des. 2011). L. 115/2012 (tóku gildi 2. nóv. 2012). L. 82/2015 (tóku gildi 23. júlí 2015 nema síðari málsliður 1. gr. sem tók gildi 1. sept. 2015). L. 130/2016 (tóku gildi 1. júlí 2017). L. 79/2019 (tóku gildi 6. júlí 2019; komu til framkvæmda skv. fyrirmælum í brbákv., sbr. einnig l. 25/2020, 20. gr.). L. 137/2022 (tóku gildi 1. apríl 2023). L. 52/2023 (tóku gildi 28. júní 2023).


I. kafli. Um Stjórnarráð Íslands.
1. gr.
Ráðherrar í ríkisstjórn Íslands og ráðuneyti þeirra mynda Stjórnarráð Íslands. Ráðherrar fara með og bera ábyrgð á stjórnarframkvæmdum öllum, hver á sínu málefnasviði. Sá ráðherra sem forseti Íslands hefur skipað til forsætis í ríkisstjórn Íslands nefnist forsætisráðherra.
Ráðherrar starfa í umboði Alþingis. Forsætisráðherra er skylt að biðjast lausnar fyrir sig og ráðuneyti sitt ef tillaga um vantraust á ríkisstjórn er samþykkt á Alþingi. Samþykki Alþingi tillögu um vantraust á einstakan ráðherra í ríkisstjórn er forsætisráðherra skylt að gera tillögu til forseta um að viðkomandi ráðherra verði leystur frá embætti.
2. gr.
Stjórnarráð Íslands skiptist í ráðuneyti. Ráðuneyti eru skrifstofur ráðherra og æðstu stjórnvöld framkvæmdarvaldsins hvert á sínu málefnasviði. Ákveða skal fjölda ráðuneyta og heiti þeirra með forsetaúrskurði, sbr. 15. gr. stjórnarskrárinnar, samkvæmt tillögu forsætisráðherra. Tillagan skal lögð fyrir Alþingi í formi þingsályktunartillögu sem komi þegar til umræðu og afgreiðslu áður en forsetaúrskurður er gefinn út.
Stjórnarráð Íslands hefur aðsetur í Reykjavík.
[Ráðherra kveður á um aðsetur stofnunar sem undir hann heyrir, nema á annan veg sé mælt í lögum. Áður en ákvörðun um flutning á aðsetri stofnunar er tekin skal ráðherra gefa Alþingi skýrslu um fyrirhugaðan flutning.]1)
   1)L. 82/2015, 1. gr.

II. kafli. [Um skipan og laun ráðherra og verkaskiptingu milli þeirra.]1)
   1)L. 79/2019, 6. gr.
3. gr.
Forseti Íslands skipar forsætisráðherra. Forseti Íslands skipar aðra ráðherra samkvæmt tillögu forsætisráðherra. Forseti Íslands veitir forsætisráðherra og ráðuneyti hans sem og einstökum ráðherrum lausn frá embætti samkvæmt tillögu forsætisráðherra.
[Laun forsætisráðherra nema 2.021.825 kr. á mánuði en laun annarra ráðherra 1.826.273 kr. á mánuði. Launin skulu taka breytingum 1. júlí ár hvert. Hagstofa Íslands reiknar og birtir fyrir 1. júní hlutfallslega breytingu á meðaltali reglulegra launa starfsmanna ríkisins fyrir næstliðið almanaksár. Við mat á launabreytingum aflar Hagstofan skýrslna og gagna sem hún telur nauðsynleg og gerir jafnframt eigin kjararannsóknir eftir því sem hún telur þörf á. Við launaafgreiðslu fyrir júlí uppfærir Fjársýsla ríkisins krónutölufjárhæð til samræmis við tölur Hagstofunnar.]1)
   1)L. 79/2019, 5. gr., sbr. einnig brbákv. í s.l.
4. gr.
Stjórnarmálefni ber undir ráðuneyti eftir ákvæðum forsetaúrskurðar, sbr. 15. gr. stjórnarskrárinnar, sem kveðinn er upp samkvæmt tillögu forsætisráðherra.
Við skiptingu stjórnarmálefna á milli ráðuneyta skv. 1. mgr. skal þess jafnan gætt, að teknu tilliti til skiptingar Stjórnarráðsins í ráðuneyti skv. 2. gr., að eðlislík stjórnarmálefni heyri undir sama ráðuneyti.
Heimilt er að fela sama ráðherra að fara með fleiri en eitt ráðuneyti á hverjum tíma.
Komi upp vafi eða ágreiningur um það undir hvaða ráðuneyti stjórnarmálefni heyrir sker forsætisráðherra úr.
5. gr.
Nú er stjórnarmálefni flutt milli ráðuneyta, sbr. 4. gr., og skal þá ljúka meðferð ólokinna stjórnsýslumála í því ráðuneyti sem við málefni tekur.

III. kafli. Um ríkisstjórn og samhæfingu starfa á milli ráðherra.
6. gr.
Ríkisstjórnarfundi skal halda um eftirfarandi mál:
   1. Nýmæli í lögum, þ.e. lagafrumvörp sem ráðherrar hyggjast leggja fram á Alþingi sem stjórnarfrumvörp, og önnur málefni sem bera á upp fyrir forseta Íslands til staðfestingar, þ.m.t. tillögur til þingsályktana.
   2. Mikilvæg stjórnarmálefni. Til mikilvægra stjórnarmálefna teljast t.d. reglugerðir og yfirlýsingar sem taldar eru fela í sér mikilvæga stefnumörkun eða áherslubreytingar eða ef sýnt þykir að reglugerð eða yfirlýsing geti haft áhrif á útgjöld ríkissjóðs umfram fjárheimildir eða á efnahagsmál almennt. [Til mikilvægra stjórnarmálefna teljast jafnframt m.a. upplýsingar um fundi sem ráðherrar eiga um mikilvæg málefni með aðilum úr stjórnkerfinu eða utan þess eða þegar þeim sem fulltrúum ríkisstjórnarinnar eru veittar mikilvægar upplýsingar eða kynnt mikilsverð málefni sem ástæða er til að ætla að eigi erindi við ríkisstjórnina í heild sinni.]1)
   3. Önnur mál sem ráðherrar óska eftir að bera þar upp.
1)
[Öllum málum sem ráðherrar bera upp í ríkisstjórn skal fylgja sérstakt minnisblað ráðherra til ríkisstjórnar þar sem meginatriði máls eru rakin og helstu sjónarmið sem að baki liggja. Ef óskað er eftir samþykki ríkisstjórnar skal setja þar fram skýrt orðaða tillögu. Þegar sérstaklega stendur á er heimilt með samþykki forsætisráðherra að víkja frá skyldu til að leggja mál fram skriflega.]2)
Forsætisráðherra stýrir ríkisstjórnarfundum.
   1)L. 82/2015, 2. gr. 2)L. 115/2012, 1. gr.
7. gr.
Forsætisráðherra felur starfsmanni forsætisráðuneytisins að gegna störfum ritara ríkisstjórnar.
Í fundargerðir ríkisstjórnar skulu færðar niðurstöður, skýrt frá frásögnum og tilkynningum ráðherra auk þess sem greint skal frá umræðuefni, ef ekki er á því formleg niðurstaða, og bókuð afstaða samkvæmt sérstakri ósk ráðherra. [Ef afgreiðsla máls byggist á öðrum sjónarmiðum en þeim sem lýst er í minnisblaði ráðherra, sbr. 3. mgr. 6. gr., eða í öðrum framlögðum gögnum skal gera grein fyrir þeim í fundargerð.]1)
Fundargerðir skulu staðfestar af forsætisráðherra og dreift til annarra ráðherra þegar staðfesting liggur fyrir. Komi fram athugasemd við fundargerð frá ráðherra skal hún skráð í fundargerð næsta fundar.
[Dagskrá ríkisstjórnarfunda skal gerð opinber að fundi loknum, kynnt fjölmiðlum með tilkynningu og birt á vefsvæði Stjórnarráðs Íslands. Sá ráðherra sem ber ábyrgð á dagskrármáli gerir nánari grein fyrir efnisatriðum þess samkvæmt nánari ákvörðun ríkisstjórnarinnar, að eigin frumkvæði eða samkvæmt fyrirspurnum þar um. Heimilt er að undanskilja dagskrármál birtingu ef þau varða málefni sem eru undanþegin upplýsingarétti almennings samkvæmt upplýsingalögum, þegar umfjöllun ríkisstjórnar er ólokið, endanleg ákvörðun í máli liggur ekki fyrir eða þegar aðrar málefnalegar ástæður réttlæta að vikið sé frá meginreglunni um birtingu að mati ríkisstjórnarinnar. Um aðgang að gögnum ríkisstjórnar fer samkvæmt ákvæðum upplýsingalaga.]1)
Um störf ríkisstjórnar fer að öðru leyti eftir starfsreglum2) sem ríkisstjórnin setur sér.
   1)L. 115/2012, 2. gr. 2)Rgl. 791/2018.
8. gr.
Forsætisráðherra ber að gæta þess að verkaskipting á milli ráðherra, sbr. 4. gr., sé eins skýr og kostur er. Ráðherrar skulu leitast við að samhæfa stefnu og aðgerðir ráðuneyta þegar málefni og málefnasvið skarast. Forsætisráðherra skal beita sér fyrir því að stefna og aðgerðir ráðherra á einstökum sviðum séu samhæfðar ef á þarf að halda.
9. gr.
Forsætisráðherra getur ákveðið, með samþykki ríkisstjórnar, að skipa ráðherranefndir til að fjalla um einstök mál eða málaflokka.
Forsætisráðherra stýrir fundum ráðherranefnda eða felur öðrum ráðherra að stýra fundum ráðherranefndar.
Þótt ráðherra hafi tekið mál upp í ráðherranefnd leysir það hann ekki undan skyldu til að bera mál upp í ríkisstjórn, sbr. 6. gr.
[Auk ráðherranefnda sem starfa á hverjum tíma samkvæmt ákvörðun forsætisráðherra, sbr. 1. mgr., skulu ávallt vera starfandi ráðherranefnd um ríkisfjármál, [ráðherranefnd um efnahagsmál og ráðherranefnd um vísindi og nýsköpun].1) Forsætisráðherra og sá ráðherra sem fer með fjárreiður ríkisins eiga fast sæti í ráðherranefnd um ríkisfjármál. Forsætisráðherra og sá ráðherra sem fer með málefni hagstjórnar og fjármálastöðugleika eiga fast sæti í ráðherranefnd um efnahagsmál. [Forsætisráðherra, sá ráðherra sem fer með fjárreiður ríkisins, sá ráðherra sem fer með vísindamál, málefni atvinnuþróunar og nýsköpunar og sá ráðherra sem fer með fræðslumál eiga fast sæti í ráðherranefnd um vísindi og nýsköpun.]1) Að öðru leyti gilda sömu reglur um ráðherranefndir um ríkisfjármál, [efnahagsmál og vísindi og nýsköpun]1) og um aðrar ráðherranefndir skv. 1. mgr.]2)
   1)L. 137/2022, 8. gr. 2)L. 82/2015, 3. gr.
10. gr.
Í fundargerðir ráðherranefndar skulu færðar niðurstöður, skýrt frá frásögnum og tilkynningum ráðherra auk þess sem greint skal frá umræðuefni, ef ekki er á því formleg niðurstaða, og bókuð afstaða samkvæmt sérstakri ósk ráðherra.
Fundargerðir skulu staðfestar af forsætisráðherra, eða þeim ráðherra sem forsætisráðherra hefur falið að stýra ráðherranefnd, og dreift til annarra ráðherra í ráðherranefnd þegar staðfesting liggur fyrir. Komi fram athugasemd við fundargerð frá ráðherra skal hún skráð í fundargerð næsta fundar.
Forsætisráðherra setur reglur1) um störf ráðherranefnda að höfðu samráði við ríkisstjórn.
   1)Rgl. 166/2013.
11. gr.
[Færa skal skrá um formleg samskipti og fundi, sem og óformleg samskipti ef þau teljast mikilvæg, milli ráðuneyta Stjórnarráðsins sem og við aðila utan þess.]1)
Forsætisráðherra setur reglur2) um skráninguna.
   1)L. 82/2015, 4. gr. 2)Rgl. 320/2016.

IV. kafli. Um stjórnunar- og eftirlitsheimildir ráðherra.
12. gr.
Ráðherra fer með yfirstjórn stjórnvalda sem hafa á hendi framkvæmd stjórnarmálefna er undir [hann]1) heyra, enda leiði ekki af lögum að stjórnvald skuli vera sjálfstætt gagnvart ráðherra.
Í yfirstjórn skv. 1. mgr. felst m.a. að ráðherra getur gefið stjórnvaldi almenn og sérstök fyrirmæli um starfrækslu á verkefnum þess, fjárreiður og meðferð eigna, sbr. þó 3. mgr. 13. gr., enda mæli lög eða eðli máls því ekki í mót.
Ráðherra er heimilt að láta í té óbindandi álit sem þýðingu geta haft til leiðbeiningar fyrir stjórnarframkvæmd á málefnasviði hans, enda leiði ekki af lögum eða eðli máls að honum sé það óheimilt.
   1)L. 82/2015, 5. gr.
13. gr.
Ráðherra skal hafa eftirlit með starfrækslu, fjárreiðum og eignum á vegum stjórnvalda sem heyra undir almennar stjórnunarheimildir hans.
Ráðherra skal enn fremur hafa almennt eftirlit með starfrækslu, fjárreiðum og eignum þeirra sjálfstæðu stjórnvalda sem heyra stjórnarfarslega undir hann. Eftirlit með sjálfstæðum stjórnvöldum tekur ekki til málsmeðferðar eða ákvarðana í einstökum málum.
Hafi eign á vegum stjórnvalds verið lögð undir annan ráðherra, sbr. 4. gr., en þann sem stjórnvald heyrir stjórnarfarslega undir fer sá ráðherra með almennt eftirlit með þeirri eign, sbr. 15. gr.
14. gr.
Ráðherra getur krafið stjórnvald, sem heyrir undir yfirstjórn hans, um hverjar þær upplýsingar og skýringar sem honum er þörf á til að sinna yfirstjórnarhlutverki sínu.
Ráðherra getur krafið sjálfstæð stjórnvöld, sem heyra stjórnarfarslega undir hann, um hverjar þær upplýsingar og skýringar sem þörf er á til að sinna eftirliti skv. 13. gr. og öðrum lögmæltum skyldum ráðherra.
Ef nauðsynlegt reynist í þessu sambandi að afhenda ráðherra upplýsingar sem almennar eða sérstakar þagnarskyldureglur taka til eru hann og ráðuneyti hans bundin þagnarskyldu með sama hætti og í þeim reglum greinir.
15. gr.
Ráðherra skal hafa almennt eftirlit með þeim eignum ríkisins, þar á meðal eign í einkaréttarlegum lögaðilum, sem til viðkomandi ráðherra hafa verið lagðar.

V. kafli. Um innra skipulag ráðuneyta og starfsmannahald.
16. gr.
Ráðuneytisstjórar stýra ráðuneytum undir yfirstjórn ráðherra. Í forföllum ráðuneytisstjóra gegnir staðgengill störfum ráðuneytisstjóra. Staðgengill ráðuneytisstjóra skal koma úr röðum skrifstofustjóra samkvæmt ákvörðun ráðuneytisstjóra.
Ráðuneytisstjóri forsætisráðuneytisins skal jafnframt því embætti gegna störfum ritara ríkisráðs Íslands.
[Laun ráðuneytisstjóra forsætisráðuneytisins nema 1.817.643 kr. á mánuði og þar af skal greiðsla fyrir yfirvinnu og álag sem starfinu fylgir nema 478.600 kr. á mánuði. Laun annarra ráðuneytisstjóra nema 1.725.433 kr. á mánuði og þar af skal greiðsla fyrir yfirvinnu og álag sem starfinu fylgir nema 430.740 kr. á mánuði. Launin skulu taka breytingum 1. júlí ár hvert. Hagstofa Íslands reiknar og birtir fyrir 1. júní hlutfallslega breytingu á meðaltali reglulegra launa starfsmanna ríkisins fyrir næstliðið almanaksár. Við mat á launabreytingum aflar Hagstofan skýrslna og gagna sem hún telur nauðsynleg og gerir jafnframt eigin kjararannsóknir eftir því sem hún telur þörf á. Við launaafgreiðslu fyrir júlí uppfærir Fjársýsla ríkisins krónutölufjárhæð til samræmis við tölur Hagstofunnar.]1)
   1)L. 79/2019, 7. gr., sbr. einnig brbákv. í s.l.
17. gr.
[Ráðherra skal skipuleggja aðalskrifstofu ráðuneytis með því að skipta henni upp í fagskrifstofur og skal hverri skrifstofu stýrt af skrifstofustjóra undir yfirstjórn ráðuneytisstjóra. Jafnframt er heimilt að setja á fót sérstakar starfseiningar og ráðuneytisstofnanir sem eru starfræktar sem hluti af ráðuneyti. Slíkum starfseiningum stýrir embættismaður, í skilningi laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, undir yfirstjórn ráðuneytisstjóra.]1)
   1)L. 82/2015, 6. gr.
18. gr.
Ráðherra skipar ráðuneytisstjóra og skrifstofustjóra að fengnu mati hæfnisnefndar, sbr. 19. gr. Aðrir starfsmenn eru ráðnir.
Ráðherra setur ráðuneytisstjóra og aðstoðarmanni ráðherra erindisbréf og ráðuneytisstjórar setja skrifstofustjórum erindisbréf, þar sem meðal annars skal kveðið á um starfssvið þeirra og starfsskyldur. Forsætisráðuneytið skal gefa út leiðbeinandi erindisbréf fyrir ráðuneytisstjóra, skrifstofustjóra og aðstoðarmenn ráðherra í Stjórnarráði Íslands.
19. gr.
Við skipun í embætti ráðuneytisstjóra og skrifstofustjóra í ráðuneytum skv. 18. gr., sbr. þó 21. gr., skal ráðherra skipa þriggja manna nefnd til að meta hæfni umsækjenda um embættið.
Niðurstaða hæfnisnefndar er ráðgefandi við skipun í embætti. Forsætisráðherra setur reglur1) um hæfnisnefndir þar sem m.a. er fjallað um skipun nefndar, hæfi nefndarmanna svo og verkefni og málsmeðferð.
   1)Rgl. 393/2012.
20. gr.
Ráðherra skal leita álits ráðuneytis til að tryggja að ákvarðanir og athafnir hans séu lögum samkvæmt.
Starfsmenn ráðuneyta skulu í samræmi við stöðu sína og hlutverk veita ráðherra réttar upplýsingar og ráðgjöf sem byggist á staðreyndum og faglegu mati á valkostum þannig að hann geti sinnt lögbundnu hlutverki sínu og stefnumótun.
21. gr.
Um heimildir ráðherra til að flytja embættismenn á milli embætta innan Stjórnarráðs Íslands fer samkvæmt lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins og öðrum lögum eftir því sem við á.
Enn fremur er heimilt að starfsmenn sem ráðnir eru ótímabundið til starfa í ráðuneyti flytjist á milli ráðuneyta um afmarkaðan tíma eða varanlega enda liggi fyrir samþykki beggja ráðherra fyrir flutningnum og starfsmannsins sjálfs.
[Við flutning stjórnarmálefna milli ráðuneyta, sbr. 1. mgr. 4. gr., skal flytja fjárheimildir og starfsmenn milli ráðuneyta að því marki sem eðlilegt er talið að teknu tilliti til umfangs verkefna og aðstæðna. Viðkomandi ráðuneyti skulu gera með sér samkomulag um flutning fjárheimilda og starfsmanna milli ráðuneyta skv. 1. málsl. Ráðherra sem fer með fjármál ríkisins setur viðmið um fjárhæðir vegna flutnings stjórnarmálefna milli ráðuneyta. Takist samkomulag ekki innan tveggja vikna frá því að forsetaúrskurður skv. 1. mgr. 4. gr. er gefinn út sker forsætisráðherra úr.]1)
Nú flytjast stjórnarmálefni milli ráðuneyta, sbr. 4. gr., og skal þá bjóða hlutaðeigandi starfsmönnum að sinna þeim áfram í því ráðuneyti er tekur við málefninu. Við flutninginn verða ekki breytingar á starfskjörum starfsmanna.
Ákvæði um auglýsingaskyldu í lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins eiga ekki við um flutning embættismanna og starfsmanna samkvæmt þessari grein.
Forsætisráðherra getur sett nánari reglur um tilhögun flutnings starfsmanna innan Stjórnarráðsins.
   1)L. 82/2015, 7. gr.
22. gr.
Ráðherrum er heimilt að ráða til starfa í ráðuneyti sínu aðstoðarmann eða aðstoðarmenn. Aðstoðarmenn sem eru ráðnir til starfa í Stjórnarráði Íslands skulu á hverjum tíma ekki vera fleiri en nemur tveimur fyrir hvern ráðherra en heimilt er samkvæmt ákvörðun ríkisstjórnar að ráða þrjá til viðbótar ef þörf krefur. Ákvæði um auglýsingaskyldu í lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins eiga ekki við um ráðningu aðstoðarmanna. Aðstoðarmaður ráðherra gegnir störfum fyrir ráðherra svo lengi sem ráðherra ákveður, þó ekki lengur en ráðherra sjálfur.
Aðstoðarmaður ráðherra heyrir beint undir ráðherra. Meginhlutverk aðstoðarmanns ráðherra er að vinna að stefnumótun á málefnasviði ráðuneytis undir yfirstjórn ráðherra og í samvinnu við ráðuneytisstjóra. Aðstoðarmanni ráðherra er óheimilt að rita undir stjórnvaldserindi fyrir hönd ráðherra.
Um laun og starfskjör aðstoðarmanna ráðherra fer samkvæmt [kjörum skrifstofustjóra].1)
Aðstoðarmaður ráðherra á rétt á biðlaunum í þrjá mánuði eftir að hann lætur af starfi. Hafi aðstoðarmaður áður verið ríkisstarfsmaður á hann rétt á að hverfa aftur til fyrra starfs síns eða annars starfs eigi lakara að föstum launum í þjónustu ríkisins. Þiggi fyrrverandi aðstoðarmaður ráðherra laun vegna annarra starfa á því tímabili sem hann á rétt á biðlaunum vegna fyrri starfa sinna sem aðstoðarmaður skerðast biðlaunin sem þeim launum nemur.
   1)L. 130/2016, 8. gr.
23. gr.
Um réttindi og skyldur embættismanna og starfsmanna Stjórnarráðs Íslands fer að öðru leyti samkvæmt lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins og öðrum lögum eftir því sem við á.

VI. kafli. Um siðferðileg viðmið í starfsemi Stjórnarráðs Íslands.
24. gr.
Forsætisráðherra staðfestir siðareglur1) fyrir starfsmenn Stjórnarráðs Íslands. Við undirbúning reglnanna skal hafa samráð við starfsmenn sem í hlut eiga og leita eftir tillögum frá Siðfræðistofnun Háskóla Íslands. Einstökum ráðuneytum er heimilt að útfæra siðareglurnar nánar með hliðsjón af sérstökum verkefnum sem þau sinna. Heimilt er forsætisráðherra að setja sérstakar siðareglur fyrir aðstoðarmenn ráðherra, sbr. 22. gr.
Ríkisstjórn samþykkir siðareglur2) fyrir ráðherra. Forsætisráðherra undirritar siðareglurnar fyrir hönd ríkisstjórnar og birtir þær. Við undirbúning þeirra skal leita eftir tillögum frá Siðfræðistofnun Háskóla Íslands.
Siðareglur skal birta almenningi á aðgengilegan hátt.
   1)Siðargl. 1080/2023. 2)Siðargl. 1346/2023.
25. gr.
[Forsætisráðuneytið gefur stjórnvöldum ráð um túlkun siðareglna þegar eftir því er leitað, stendur fyrir fræðslu um þær innan Stjórnarráðsins og fylgist með að þær nái tilgangi sínum.
Til þess að tryggja samræmi við störf umboðsmanns Alþingis og Ríkisendurskoðunar skal ráðuneytið hafa reglulegt samráð við þau embætti.]1)
   1)L. 82/2015, 8. gr.

VII. kafli. Málstefna.
26. gr.
Forsætisráðherra mótar Stjórnarráðinu málstefnu í samráði við Íslenska málnefnd og eftir atvikum málnefnd um íslenskt táknmál. Þar skal koma fram að öll gögn liggi fyrir á íslensku svo sem kostur er og gerð grein fyrir heimilum undantekningum á þeirri reglu. Þar skulu settar reglur um notkun íslensks táknmáls og íslensks punktaleturs í gögnum og starfsemi Stjórnarráðsins. Enn fremur skal koma fram hver gögn liggja að jafnaði fyrir í erlendum málbúningi og hvaða tungumál þar er um að ræða. Þá skal þar setja reglur um rétt manna af erlendum uppruna til samskipta við Stjórnarráðið á annarri tungu en íslensku.
Mál það sem er notað í starfsemi Stjórnarráðsins eða á vegum þess skal vera vandað, einfalt og skýrt.

VIII. kafli. Önnur ákvæði.
27. gr.
Forsætisráðherra er heimilt með reglugerð að setja nánari ákvæði um framkvæmd laga þessara.
[Ráðherra sem fer með starfsmannamál ríkisins setur almennar reglur um starfskostnað og önnur starfskjör ráðherra í samráði við forsætisráðherra. Í reglunum skal m.a. gæta samræmis við rétt alþingismanna og formanna stjórnmálaflokka sem sæti eiga á Alþingi til greiðslu kostnaðar vegna stjórnmálalegra starfa þeirra, sbr. ákvæði laga um þingfararkaup alþingismanna og þingfararkostnað sem og reglna sem forsætisnefnd Alþingis setur á grundvelli þeirra laga.]1)
   1)L. 79/2019, 8. gr.
28. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.
1)
   1)L. 115/2012, 3. gr.

Ákvæði til bráðabirgða.
I.
Þrátt fyrir ákvæði 2. gr. skal ákveða fjölda ráðuneyta og heiti þeirra með forsetaúrskurði, samkvæmt tillögu forsætisráðherra, við gildistöku laga þessara án undanfarandi þingsályktunartillögu og fjöldi þeirra og heiti skulu vera óbreytt frá því sem er við gildistökuna.
II.
Þrátt fyrir ákvæði 2. málsl. 1. mgr. 28. gr. skal 5. gr. laga nr. 73/1969 halda gildi sínu til 1. maí 2012.
[III.
Þrátt fyrir ákvæði 2. mgr. 3. gr. og 3. mgr. 16. gr. skulu laun forsætisráðherra, annarra ráðherra og ráðuneytisstjóra hækka um 2,5% frá og með 1. júlí 2023 í stað hækkunar samkvæmt ákvæðunum hinn 1. júlí 2023.]1)
   1)L. 52/2023, 3. gr.