Lagasafn.  Íslensk lög 12. apríl 2024.  Útgáfa 154b.  Prenta í tveimur dálkum.


Lög um heimild fyrir ríkisstjórnina til að samþykkja hækkun á kvóta Íslands hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum og til að staðfesta fyrir Íslands hönd breytingar á stofnskrá sjóðsins

2012 nr. 5 1. febrúar


Ferill málsins á Alþingi.   Frumvarp til laga.

Tóku gildi 7. febúar 2012.

1. gr.
Ríkisstjórninni er heimilt að semja um hækkun á kvóta Íslands hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum úr 117,6 milljónum SDR í 321,8 milljónir SDR. Seðlabanki Íslands skal leggja fram það fé sem þarf til hækkunar kvótans, sbr. 2. mgr. 21. gr. laga nr. 36/2001, um Seðlabanka Íslands.
2. gr.
Ríkisstjórninni er heimilt fyrir Íslands hönd að samþykkja breytingar á stofnskrá Alþjóðagjaldeyrissjóðsins sem varða fyrirkomulag á framkvæmdastjórn hans og voru samþykktar af sjóðráði sjóðsins 15. desember 2010.
3. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.