Lagasafn.  Íslensk lög 12. apríl 2024.  Útgáfa 154b.  Prenta í tveimur dálkum.


[Lög um Samgöngustofu, stjórnsýslustofnun samgöngumála]1)

2012 nr. 119 30. nóvember


   1)L. 59/2013, 41. gr.
Ferill málsins á Alþingi.   Frumvarp til laga.

Tóku gildi 5. desember 2012 og komu til framkvæmda 1. júlí 2013. Breytt með: L. 59/2013 (tóku gildi 1. júlí 2013). L. 76/2015 (tóku gildi 22. júlí 2015). L. 115/2015 (tóku gildi 16. des. 2015). L. 25/2018 (tóku gildi 15. maí 2018). L. 47/2018 (tóku gildi 26. maí 2018). L. 150/2018 (tóku gildi 8. jan. 2019). L. 71/2019 (tóku gildi 5. júlí 2019). L. 74/2019 (tóku gildi 1. okt. 2020 skv. augl. A 79/2020 nema 1. gr. og 1. og 2. tölul. 12. gr. sem tóku gildi 5. júlí 2019). L. 80/2022 (tóku gildi 14. júlí 2022 nema b-liður 2. mgr. 170. gr., b-liður 1. mgr. 171. gr. hvað varðar samevrópska u-rýmisþjónustu og c-liður 1. mgr. 171. gr. sem tóku gildi 26. jan. 2023 og d-liður 258. gr. sem tók gildi 1. jan. 2023; EES-samningurinn: XIII. viðauki reglugerð 2027/97, 889/2002, tilskipun 2000/79/EB, 2009/12/EB).

Ef í lögum þessum er getið um ráðherra eða ráðuneyti án þess að málefnasvið sé tilgreint sérstaklega eða til þess vísað, er átt við innviðaráðherra eða innviðaráðuneyti sem fer með lög þessi. Upplýsingar um málefnasvið ráðuneyta skv. forsetaúrskurði er að finna hér.

I. kafli. Almenn ákvæði.
1. gr. Hlutverk og markmið.
[Samgöngustofa]1) er sérstök ríkisstofnun sem heyrir undir yfirstjórn ráðherra.
[Samgöngustofa]1) fer með stjórnsýslu samgöngumála samkvæmt lögum þessum og öðrum lögum sem stofnunin starfar eftir. Stofnunin annast stjórnsýslu og eftirlit er lýtur að:
   1. flugmálum,
   2. hafnamálum og málum sem varða sjóvarnir,
   3. siglingamálum,
   4. umferðarmálum,
   5. vegamálum.
[Samgöngustofa]1) skal með starfsemi sinni stuðla að öruggum, sjálfbærum, greiðum og hagkvæmum samgöngum. Þá skal stofnunin stuðla að því að samgöngur þróist í samræmi við samfélagsleg og umhverfisleg markmið.
[Samgöngustofa]1) annast framkvæmd laga á þeim sviðum sem undir hana heyra, sbr. 2. mgr., samkvæmt nánari fyrirmælum þeirra laga.
[Samgöngustofu er heimil vinnsla persónuupplýsinga, þar á meðal upplýsinga um heilsufar og [notkun geðvirkra efna og lyfja],2) upplýsinga um refsiverða háttsemi og annarra upplýsinga sem hinn skráði lætur í té, í þeim tilgangi að sinna lögbundnu hlutverki sínu samkvæmt lögum þessum að uppfylltum skilyrðum laga um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga.]3)
   1)L. 59/2013, 41. gr. 2)L. 80/2022, 258. gr. 3)L. 150/2018, 3. gr.
2. gr. Skipulag stofnunar o.fl.
Ráðherra skipar forstjóra stofnunarinnar til fimm ára í senn og staðfestir skipurit hennar.
Forstjóri ber ábyrgð á starfsemi og rekstri stofnunarinnar, mótar helstu áherslur, verkefni og starfshætti og annast daglega stjórn hennar.
Forstjóri ræður annað starfsfólk til stofnunarinnar.
[Samgöngustofa]1) skal árlega birta skýrslu um starfsemi sína.
[Ráðherra er heimilt að kveða nánar á um hlutverk og starfshætti Samgöngustofu með reglugerð.2)]1)
   1)L. 59/2013, 41. gr. 2)Rg. 580/2017. Rg. 870/2018.
3. gr. Samvinna og samráð.
[Samgöngustofa]1) skal hafa samvinnu og samráð við þá aðila, félög, samtök og stofnanir sem tengjast starfsemi hennar.
Ráðherra getur sett á stofn fagráð með fulltrúum stofnunarinnar, hagsmunaaðila og annarra aðila í þeim tilgangi að vera vettvangur samráðs og upplýsingaskipta á fagsviðum stofnunarinnar. [Ráðherra er heimilt að setja reglugerð um starfsemi fagráðs á starfssviði Samgöngustofu.]1)
   1)L. 59/2013, 41. gr.

II. kafli. Verkefni.
4. gr. Almennt.
[Samgöngustofa]1) skal vera ráðgefandi fyrir ráðherra, veita honum aðstoð við undirbúning að setningu laga og reglugerða á starfssviði sínu og aðstoða við stefnumótun og ákvarðanatöku í samgöngumálum.
2)
2)
[Samgöngustofa]1) tekur þátt í gerð samgönguáætlunar.
[Samgöngustofa]1) skal annast fræðslu og upplýsingamiðlun um samgöngumál eftir því sem við á.
[Samgöngustofa]1) annast rekstur tölvu- og upplýsingakerfa er lúta að starfsemi stofnunarinnar.
[Samgöngustofa]1) tekur afstöðu til tillagna sem berast frá rannsóknarnefnd samgönguslysa.
[Samgöngustofa]1) heldur slysaskrá á sviði samgangna.
[Samgöngustofa]1) skal annast önnur verkefni sem stofnuninni eru falin samkvæmt ákvörðun ráðherra.
   1)L. 59/2013, 41. gr. 1)L. 80/2022, 258. gr.
5. gr. Eftirlit með samgöngumannvirkjum.
[Samgöngustofa]1) hefur eftirlit með að fylgt sé kröfum um öryggi samgöngumannvirkja og öryggisstjórnun við rekstur þeirra.
[Samgöngustofa]1) annast öryggisúttekt á samgöngumannvirkjum.
   1)L. 59/2013, 41. gr.
6. gr. Eftirlitsskyld starfsemi, rannsóknarheimildir o.fl.
[Samgöngustofa]1) skal hafa eftirlit með því að starfsemi, umferð og flutningar sem henni er að lögum falið að hafa eftirlit með, séu í samræmi við lög, reglugerðir, reglur eða samþykktir sem um viðkomandi starfsemi gilda.
[Samgöngustofu]1) er við athugun á rekstri og starfsemi eftirlitsskyldra aðila heimill aðgangur að starfsstöðvum eftirlitsskylds aðila og öðrum stöðum sem nauðsynlegt er til að sinna eftirliti að mati stofnunarinnar. [Samgöngustofu]1) er einnig heimill aðgangur að ökutæki, loftfari, skipi og öðru samgöngutæki, sem og búnaði þeirra og farmi til vettvangsathugana, úttekta og skoðana sem stofnunin telur nauðsynlegar í þágu eftirlits. Stofnunin getur einnig lagt hald á þau gögn og muni sem hún telur nauðsyn á í þágu eftirlits.
[Samgöngustofu]1) er heimilt að fyrirskipa stöðvun og kyrrsetningu ökutækja, loftfara, skipa og annarra samgöngutækja eins og nauðsyn kann að vera á í þágu eftirlits og að gera allar nauðsynlegar athuganir á þeim, búnaði þeirra og farmi. [Samgöngustofa]1) getur látið færa samgöngutæki til athugunar á þann stað sem henta þykir hverju sinni í þágu eftirlits.
Eftirlitsskyldum aðila er skylt að fara eftir fyrirmælum [Samgöngustofu]1) um eftirlit og veita upplýsingar og aðgang að þeim gögnum í vörslu hans sem [Samgöngustofa]1) gerir kröfu um í þágu eftirlits.
Eftirlitsskyldum aðilum er skylt að veita [Samgöngustofu]1) upplýsingar um starfsemi sína og aðgang að þeim gögnum í vörslu þeirra er varða starfsemina og [Samgöngustofa]1) telur nauðsyn á að fá aðgang að.
Eftirlitsskyldur aðili skal án fyrirvara geta sýnt fram á að hann uppfylli skilyrði leyfisveitingar og, ef með þarf, gangast undir þau próf sem [Samgöngustofu]1) er heimilt að krefjast að gengist sé undir.
[Samgöngustofu]1) er heimilt að leita aðstoðar lögreglu við eftirlit og öflun nauðsynlegra upplýsinga í þágu eftirlits. Stofnunin getur krafist upplýsinga og gagna frá öðru stjórnvaldi, óháð þagnarskyldu þess, ef slíkt er nauðsynlegt til að unnt sé að sinna lögbundnu eftirliti.
Um eftirlitsheimildir [Samgöngustofu]1) fer að öðru leyti eftir ákvæðum þeirra laga sem um viðkomandi starfsemi gilda, svo og annarra laga eftir því sem við á.
   1)L. 59/2013, 41. gr.
7. gr. Verkefni tengd samgöngum á landi.
[Samgöngustofa]1) skal m.a.:
   1. annast skráningu ökutækja í ökutækjaskrá,
   2. annast eftirlit með ökutækjum, ástandi þeirra og skráningu, stærð og þyngd, hleðslu og frágangi farms,
   3. annast eftirlit með aksturs- og hvíldartíma ökumanna,
   4. annast ökupróf, veita leyfi til að starfrækja ökuskóla og hafa umsjón með ökunámi og eftirlit með ökukennslu,
   5. veita leyfi til að annast skoðun ökutækja og hafa eftirlit með þeirri starfsemi,
   6. annast skráningu umferðarslysa,
   7. annast útgáfu leyfa vegna ökugerða og hafa eftirlit með þeim,
   8. veita undanþágur frá ákvæðum laga um stærð og þyngd ökutækja, að fengnu samþykki Vegagerðarinnar,
   9. veita rekstrar- og atvinnuleyfi til fólks- og farmflutninga á landi,
   10. annast eftirlit með framkvæmd samninga um ríkisstyrktar almenningssamgöngur.
   1)L. 59/2013, 41. gr.
8. gr. Verkefni tengd loftferðum.
[Samgöngustofa skal annast þau verkefni og eftirlit á sviði loftferða sem kveðið er á um í lögum um loftferðir.]1)
Með gögn og aðrar upplýsingar, sem [Samgöngustofa]2) aflar við eftirlit með flugstarfsemi eða af öðrum ástæðum, skal fara sem trúnaðarmál. Það sama gildir um gögn sem rekstrarleyfishafar afhenda stofnuninni og varða rekstrarleyfi þeirra.
   1)L. 80/2022, 258. gr. 2)L. 59/2013, 41. gr.
9. gr. Verkefni tengd siglingum.
[Samgöngustofa]1) skal m.a.:
   1. annast eftirlit með skipum, þar á meðal mælingu þeirra og skráningu,
   2. annast mál er varða varnir gegn mengun sjávar að því leyti sem slíkt varðar skip og búnað þeirra, samkvæmt reglum sem ráðherra umhverfismála setur,
   3. fylgjast með rannsókn sjóslysa og veita aðstoð við rannsókn þeirra og rita umsögn um sjópróf til ríkissaksóknara,
   4. annast mál er varða siglinga- og sjómannalög að því leyti sem þau tengjast skipum, skráningu þeirra og búnaði, siglingaöryggi og öðrum málum sem ráðuneytið kann að fela stofnuninni varðandi siglingar og áhafnir skipa,
   5. annast málefni er varða siglingavernd,
   6. gefa út skírteini til einstaklinga og veita heimildir til hvers konar reksturs sem skilgreindur er í sérlögum og reglugerðum settum á grundvelli þeirra,
   7. annast stjórnsýsluverkefni hafnalaga, laga um sjóvarnir, laga um vitamál og laga um vaktstöð siglinga.
   1)L. 59/2013, 41. gr.
[9. gr. a. Birting alþjóðlegra reglna á sviði siglinga.
Viðaukar og kóðar við alþjóðasamninga á sviði siglinga, sem Ísland er aðili að, skulu birtir á vef Samgöngustofu, enda hafi meginefni viðkomandi alþjóðasamninga verið birt í C-deild Stjórnartíðinda. Einnig skal birta á vef Samgöngustofu dreifibréf og leiðbeiningarreglur sem Alþjóðasiglingamálastofnunin eða önnur alþjóðastofnun gefur út til nánari skýringar á framkvæmd viðkomandi alþjóðasamninga. Heimilt er að birta eingöngu erlendan frumtexta af viðaukum, kóðum, dreifibréfum og leiðbeiningarreglum.
Við birtingu skv. 1. mgr. skal útgáfudagur tilgreindur. Fyrirmælum sem felast í viðaukum, kóðum, dreifibréfum og leiðbeiningarreglum skal ekki beitt fyrr en birting hefur farið fram á vef Samgöngustofu, nema þau geymi ákvæði algerlega einkamálaeðlis og aðilar hafi komið sér saman um að skipti þeirra fari eftir óbirtum fyrirmælum. Fyrirmælin skulu binda alla frá og með deginum eftir birtingu þeirra á vef Samgöngustofu ef þau geyma ekki aðrar ákvarðanir um gildistöku sína.
Þeim sem þess óska skal gefinn kostur á að fá sendar tilkynningar frá Samgöngustofu þegar birtir eru nýir viðaukar eða kóðar, auk dreifibréfa og leiðbeiningarreglna, eða þeim breytt.
Ráðherra er heimilt að kveða nánar á um efni þessarar greinar í reglugerð.]1)
   1)L. 25/2018, 1. gr.
10. gr. Alþjóðlegt samstarf.
[Samgöngustofa]1) tekur þátt í alþjóðlegu samstarfi og mótun alþjóðareglna á starfssviði sínu eftir því sem kveðið er á um í lögum, alþjóðasamningum eða með ákvörðun ríkisstjórnar. Stofnunin skal m.a.:
   1. annast undirbúning samninga við erlend ríki og alþjóðastofnanir og eftir atvikum gerð slíkra samninga,
   2. vinna að innleiðingu og framfylgd alþjóðasamninga og EES-gerða,
   3. hafa eftirlit með að Ísland uppfylli á hverjum tíma þær skuldbindingar sem mælt er fyrir um í alþjóðasamningum og annast undirbúning og þátttöku í alþjóðlegum úttektum.
[Ráðherra er heimilt að setja reglugerð um innleiðingu EES-gerða sem varða stofnun og störf Siglingaöryggisstofnunar Evrópu (EMSA).
Ráðherra er einnig heimilt að setja reglugerð um innleiðingu EES-gerða sem varða verkefni á sviði Siglingaöryggisstofnunar Evrópu og stofnuninni hafa verið falin á grundvelli stofngerða hennar, sbr. 2. mgr.]2)
   1)L. 59/2013, 41. gr. 2)L. 76/2015, 1. gr.
11. gr. Rannsóknir og þróunarstarf.
[Samgöngustofa]1) tekur þátt í og annast rannsóknir, greiningu og þróun á starfssviði sínu.
Ráðherra skal setja reglugerð um hlutverk [Samgöngustofu]1) á sviði rannsókna, greiningar og þróunar.
   1)L. 59/2013, 41. gr.

III. kafli. Gjaldtaka o.fl.
12. gr. Gjaldtaka.
Leggja skal á sérstakt umferðaröryggisgjald …1) að fjárhæð 500 kr. og greiðist það við almenna skoðun ökutækis, skráningu ökutækis og skráningu eigendaskipta að ökutæki. Ráðherra setur reglur2) um innheimtu gjaldsins og um skil þess í ríkissjóð.
3)
[Gjöld samkvæmt þessari grein renna í ríkissjóð.]1)
3)
   1)L. 47/2018, 9. gr. 2)Rg. 681/1995, sbr. 1406/2021. 3)L. 80/2022, 259. gr.
13. gr. Þjónustugjöld samkvæmt gjaldskrá.
[Samgöngustofu]1) er heimilt að innheimta þjónustugjöld vegna:
   1. útgáfu skírteina/korta og heimilda einstaklinga, breytinga, endurnýjunar og endurútgáfu, mats og vottunar á gögnum er fylgja umsókn; einnig skal heimilt að innheimta gjald fyrir tiltekin skírteini og heimildir á grundvelli tímagjalds,
   2. útgáfu starfsleyfa, heimilda og skírteina/korta lögaðila, breytinga á leyfum og skírteinum, endurnýjunar og endurútgáfu heimilda, útgáfu skírteina og undanþágna slíkrar útgáfu, mats og vottunar á gögnum er fylgja umsókn fyrir hverja klukkustund sem matið tekur; einnig skal heimilt að innheimta gjald fyrir tiltekin starfsleyfi, skírteini, undanþágur og heimildir á grundvelli tímagjalds; heimilt skal að krefja umsækjanda um fyrirframgreiðslu vegna yfirferðar gagna og samskipta meðan á mats- og vottunarferli stendur og fyrir tímabundna innlögn skírteina skal greiða gjald,
   3. skráningar, afskráningar og breytingar á eigenda- og umráðaskiptum loftfars, ökutækis, skips og vegna útgáfu skipsskjala,
   4. skoðana á skipum og búnaði þeirra, eftirlits með viðgerðum og nýsmíði og breytinga þeirra,
   5. skráningar og skoðunar köfunarbúnaðar og próftöku til köfunarréttinda,
   6. flugverndar, siglingaverndar, staðfestingar áhættumats og verndaráætlunar og námskeiða fyrir hafnargæslumenn og verndarfulltrúa,
   7. eftirlits með skráðum loftförum, skipum og sjálfvirkum tilkynningarskyldukerfum skipa,
   8. eftirlits með handhafa heimilda, starfsleyfa og skírteina/korta útgefinna af [Samgöngustofu],1)
   9. próftöku, hæfni- og akstursmats, þ.e. til framkvæmdar prófa, skriflegra og/eða verklegra, eða yfirferðar og eftirlits með próftöku og hæfni/akstursmati, mats og vottunar á gögnum er fylgja umsókn um námskeiðahald fyrir hverja klukkustund sem matið tekur,
   10. skráningarmerkja og skoðunarmiða,
   11. [heimilda sem tengjast einstökum atburðum og afgreiðslum, svo sem flugsýningum, flugkeppnum, fallhlífarstökki, lágflugi, listflugi, flugeldasýningum og yfirflugi með takmarkað lofthæfisvottorð],2)
   12. ökunámsbóka,
   13. samhæfingar eða samstarfs við erlend stjórnvöld í þágu eftirlitsskylds aðila, þ.m.t. vegna samningagerðar, yfirferðar samninga og framsals eftirlits, samkvæmt gjaldi á hverja unna klukkustund,
   14. sölu á sérhæfðri þjónustu vegna lögmæltra verkefna á starfssviði stofnunarinnar, þ.m.t. sérstakrar þjónustu sem óskað er vegna vottunar, viðurkenningar, prófunar eða veitingar heimilda, samkvæmt gjaldi á hverja unna klukkustund,
   15. [útgáfu hvers konar vottorða fyrir loftfar],2)
   16. verkefna sem kveðið er á um í sérlögum sem gilda um starfsemi stofnunarinnar,
   [17. skráningar flugrekenda/umráðenda ómannaðra loftfara,
   18. skráningar hluta og tækja sem farið geta um loftið en eru ekki loftför,
   19. úrskurða á sviði neytendamála.]2)
Við ákvörðun gjalda skal leggja til grundvallar kostnað vegna launa og launatengdra gjalda, framleiðslu, aksturs, þjálfunar og endurmenntunar, aðkeyptrar sérfræðiþjónustu, húsnæðis, starfsaðstöðu, fjarskiptabúnaðar og tækja, stjórnunar- og stoðþjónustu og alþjóðlegrar samvinnu í þágu samgangna auk ferða og uppihalds og útlagðs kostnaðar, svo sem við ferðir, uppihald og aðkeypta sérfræðiþjónustu í þágu eftirlitsskylds aðila. Fjárhæð gjalda tekur mið af þeim kostnaði sem almennt hlýst af eftirliti og þjónustu.
Gjaldskráin skal staðfest af ráðherra og birt í B-deild Stjórnartíðinda.
Sé óskað eftir þjónustu utan hefðbundins skrifstofutíma skal greiða fyrir vinnu starfsmanns samkvæmt útseldum taxta með álagi samkvæmt gjaldskrá [Samgöngustofu].1)
   1)L. 59/2013, 41. gr. 2)L. 80/2022, 258. gr.
14. gr. Tekjur.
[Samgöngustofu]1) er heimilt að hafa tekjur af sérhæfðri þjónustu og verksamningum, svo og af rannsóknarstarfsemi og þróunarverkefnum.
Gjaldtaka skv. 1. mgr. skal ákveðin í viðmiðunargjaldskrá sem [Samgöngustofa]1) setur.
Þann hluta starfsemi [Samgöngustofu]1) sem rekinn er á viðskiptagrundvelli á samkeppnismarkaði skal skilja fjárhagslega frá öðrum þáttum rekstrarins og skal endurgjald taka mið af markaðsverði. Sala á þjónustu skal byggjast á samningum.
Ráðherra staðfestir gjaldskrá samkvæmt þessari grein.
   1)L. 59/2013, 41. gr.
15. gr. Aðfararhæfi gjaldtöku.
Gjöld [Samgöngustofu]1) skv. 13. gr. eru aðfararhæf án undangengins dóms eða sáttar.
   1)L. 59/2013, 41. gr.

IV. kafli. Ýmis ákvæði.
16. gr. Framsal eftirlits o.fl.
[Samgöngustofa]1) getur með samningi, að undangengnu samþykki ráðherra, falið öðrum stjórnvöldum, viðurkenndu flokkunarfélagi, skoðunarstofum eða öðrum aðilum einstaka þætti eftirlits samkvæmt lögum þessum.
[Samgöngustofu]1) er heimilt, með samþykki ráðherra, að kaupa og fara með hlut ríkisins í rannsóknar- og þróunarfyrirtækjum. Jafnframt er stofnuninni heimilt að bjóða fram sérþekkingu á alþjóðamarkaði og afla tekna með útflutningi sérfræðiþekkingar sem hún býr yfir.
   1)L. 59/2013, 41. gr.
17. gr. Þvingunarúrræði.
Heimilt er [Samgöngustofu]1) að fella úr gildi og afturkalla því til staðfestingar leyfi, heimildir, viðurkenningar eða skírteini, sem veitt hafa verið, ef hún telur að viðkomandi aðili fullnægi ekki lengur skilyrðum sem kveðið er á um í leyfi, heimild, viðurkenningu eða skírteini eða að hann hafi brotið í mikilvægum atriðum ákvæði laga og reglna sem um starfsemina eða réttindin gilda. Sama gildir ef aðili telst ófær um að sinna þeirri starfsemi sem leyfið, heimildin, viðurkenningin eða skírteinið nær til. Svipting og afturköllun geta verið bundin við tiltekna hluta leyfisins, heimildarinnar, viðurkenningarinnar eða skírteinisins.
Um þvingunarúrræði [Samgöngustofu]1) fer að öðru leyti eftir ákvæðum sérlaga sem stofnunin starfar eftir, svo og annarra laga eftir því sem við á.
   1)L. 59/2013, 41. gr.
18. gr. Kæruheimild o.fl.
Ákvarðanir [Samgöngustofu]1) sæta kæru til ráðherra í samræmi við ákvæði stjórnsýslulaga [nema lög mæli fyrir um annað].2)
Telji notandi samgönguþjónustu eða aðrir að leyfisskyldur aðili brjóti gegn skyldum sínum samkvæmt lögum sem stofnunin starfar eftir, reglum settum samkvæmt þeim eða gegn skilyrðum sem mælt er fyrir um í leyfi getur hlutaðeigandi beint kvörtun til stofnunarinnar sem skal láta málið til sín taka ef við á.
Starfsmenn [Samgöngustofu]1) mega ekki vera stjórnarmenn eða starfsmenn félaga eða annarra aðila sem þeir hafa eftirlit með. Þeir mega ekki vera í hagsmuna- eða fjárhagstengslum við slíka aðila eða samtök þeirra.
   1)L. 59/2013, 41. gr. 2)L. 80/2022, 258. gr.
19. gr. Þagnarskylda og veiting upplýsinga.
[Á starfsmönnum Samgöngustofu hvílir þagnarskylda skv. X. kafla stjórnsýslulaga. [Sama gildir um aðra sem vinna verkefni í þágu stofnunarinnar.]1)]2)
[Samgöngustofu]3) er heimilt að safna saman, vinna úr og birta tölfræðilegar upplýsingar um samgöngumál og skulu þeir sem reka leyfisbundna starfsemi skyldir til að láta í té slíkar upplýsingar ef eftir er leitað.
Þrátt fyrir lagaákvæði um þagnarskyldu má veita eftirlitsstjórnvöldum annarra ríkja og eftirlitsaðilum á vegum viðurkenndra alþjóðasamtaka, sem Ísland er aðili að, upplýsingar sé það liður í samstarfi ríkja um eftirlit með starfsemi eftirlitsskyldra aðila og slík upplýsingagjöf er nauðsynleg til að unnt sé að framfylgja eftirlitinu.
   1)L. 80/2022, 258. gr. 2)L. 71/2019, 5. gr. 3)L. 59/2013, 41. gr.
20. gr. Gildistaka.
Lög þessi öðlast þegar gildi en koma ekki til framkvæmda fyrr en 1. júlí 2013.

Ákvæði til bráðabirgða.
   1. Starfsmönnum stofnana sem sinnt hafa þeim verkefnum sem munu heyra undir [Samgöngustofu]1) samkvæmt lögum þessum og eru í starfi við gildistöku laga þessara skal boðið starf hjá hinni nýju stofnun. Um réttarvernd starfsmanna til starfa hjá [Samgöngustofu]1) fer eftir ákvæðum laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, nr. 70/1996, með síðari breytingum, og laga um réttarstöðu starfsmanna við aðilaskipti að fyrirtækjum, nr. 72/2002, eins og við á hverju sinni. Ákvæði 7. gr. laga nr. 70/1996, um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, gilda ekki um störf sem ráðið er í samkvæmt þessum tölulið.
   2. Þrátt fyrir 1. tölul. þessa ákvæðis verða embætti starfsmanna þeirra stofnana sem sameinast í [Samgöngustofu]1) lögð niður þegar lög þessi koma til framkvæmda. Ráðherra er heimilt að taka ákvörðun um að flytja forstöðumann úr hópi núverandi forstöðumanna samgöngustofnananna í embætti forstjóra [Samgöngustofu],1) sbr. 36. gr. laga nr. 70/1996. Þeim embættismönnum sem ekki hljóta áframhaldandi skipun skulu boðin störf í [Samgöngustofu]1) eða Vegagerðinni.
   1)L. 59/2013, 41. gr.