Lagasafn. Íslensk lög 17. janúar 2026. Útgáfa 157a. Prenta í tveimur dálkum.
Lög um vernd mikilvægra innviða á Reykjanesskaga
2023 nr. 84 14. nóvember
Ferill málsins á Alþingi. Frumvarp til laga.
Tóku gildi 14. nóvember 2023 nema 4. gr. sem tók gildi
1. janúar 2024. Lögin falla úr gildi 31. desember 2026 nema 1.–3. gr. og
3. mgr. 5. gr. sem féllu úr gildi 1. janúar 2026. Breytt með:
L. 135/2024 (tóku gildi 1. jan. 2025).
1. gr. …1)
1)Greinin féll úr gildi 1. jan. 2026 skv. 1. mgr. 5. gr.
2. gr. …1)
1)Greinin féll úr gildi 1. jan. 2026 skv. 1. mgr. 5. gr.
3. gr. …1)
1)Greinin féll úr gildi 1. jan. 2026 skv. 1. mgr. 5. gr.
4. gr. Forvarnagjald.
Leggja skal árlegt gjald á allar húseignir sem nemur 0,08‰ af brunabótamati samkvæmt lögum um brunatryggingar. Tekjur af gjaldinu renna í ríkissjóð.
Vátryggingafélög innheimta gjaldið með iðgjöldum skv. 3. mgr. 11. gr. laga um Náttúruhamfaratryggingu Íslands, nr. 55/1992, og gilda 3. og 5. mgr. 11. gr. þeirra laga um innheimtu þess. Álagning gjaldsins skal ekki hafa áhrif til hækkunar á innheimtuþóknun til vátryggingafélaga.
Ráðherra sem fer með ríkisfjármál getur kveðið nánar á um framkvæmd
þessarar greinar í reglugerð,1) þar á meðal um innheimtu
gjalds.
1)Rg. 1663/2024.
5. gr. Gildistaka o.fl.
Lög þessi öðlast þegar gildi, utan 4. gr. sem öðlast gildi 1. janúar 2024, og falla brott 31. desember 2026. Þó skulu ákvæði 1.–3. gr. og 3. mgr. þessarar greinar falla úr gildi [1. janúar 2026].1)
Þrátt fyrir 2. mgr. 8. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað binda lög þessi alla þegar við birtingu.
…2)
1)L. 135/2024, 2. gr. 2)Málsgreinin féll úr gildi 1. jan. 2026 skv. 1. mgr.