Lagasafn.  Íslensk lög 1. september 2026.  Útgáfa 157c.  Prenta í tveimur dálkum.


Lög um brottfararstöð

2026 nr. 48 11. júní


Ferill málsins á Alþingi.   Frumvarp til laga.

Tóku gildi 12. júní 2026 nema a-, b-, c-, e-, g-, h-, i-, k-, l-, m- og n-liður 1. tölul. 22. gr. sem taka gildi 1. desember 2026; um gildistöku sjá nánar 21. gr.
Ef í lögum þessum er getið um ráðherra eða ráðuneyti án þess að málefnasvið sé tilgreint sérstaklega eða til þess vísað, er átt við dómsmálaráðherra eða dómsmálaráðuneyti sem fer með lög þessi. Upplýsingar um málefnasvið ráðuneyta skv. forsetaúrskurði.

I. kafli. Almenn ákvæði.
1. gr. Gildissvið.
Lög þessi gilda um brottfararstöð og um réttindi og skyldur útlendinga sem þar eru vistaðir.
Stjórnsýslulög gilda þegar teknar eru stjórnvaldsákvarðanir samkvæmt lögum þessum nema annað leiði af lögunum.
2. gr. Orðskýringar.

   1. Agabrot: Brot á lögum þessum, reglugerðum og reglum sem settar eru á grundvelli þeirra og kveða á um skyldur vistmanna sem vistaðir eru á brottfararstöð.
   2. Agaviðurlög: Viðurlög við agabrotum vistmanna sem vistaðir eru á brottfararstöð.
   3. Barn: Einstaklingur undir 18 ára aldri.
   4. Brottfararstöð: Staður þar sem útlendingur sætir frelsisskerðingu samkvæmt lögum um útlendinga vegna ákvörðunar um að hann skuli yfirgefa landið og þegar mál sem getur leitt til slíkrar ákvörðunar er til meðferðar hjá stjórnvöldum.
   5. Einstaklingar í sérstaklega viðkvæmri stöðu: Einstaklingar sem vegna tiltekinna persónulegra eiginleika eða aðstæðna hafa sérþarfir sem taka þarf tillit til við meðferð máls, t.d. börn, fatlaðir einstaklingar, einstaklingar með geðraskanir, aldraðir einstaklingar, þungaðir einstaklingar, einstæðir foreldrar með ung börn, þolendur mansals, alvarlega veikir einstaklingar og einstaklingar sem hafa orðið fyrir pyndingum, kynfæralimlestingum, nauðgun eða öðru alvarlegu andlegu, líkamlegu eða kynferðislegu ofbeldi.
   6. Fylgdarlaust barn: Barn sem kemur fylgdarlaust á yfirráðasvæði ríkis, svo lengi sem það hefur ekki í reynd verið tekið í umsjá foreldra eða fullorðins einstaklings sem ber ábyrgð á því samkvæmt lögræðislögum. Þetta á einnig við ef barnið er skilið eftir án fylgdar eftir að það kemur á yfirráðasvæði ríkis.
   7. Heilbrigðisþjónusta: Hvers kyns heilsugæsla, lækningar, hjúkrun, almenn og sérhæfð sjúkrahúsþjónusta, sjúkraflutningar, hjálpartækjaþjónusta og þjónusta heilbrigðisstarfsmanna innan og utan heilbrigðisstofnana sem veitt er í því skyni að efla heilbrigði, fyrirbyggja, greina eða meðhöndla sjúkdóma og endurhæfa sjúklinga.
   8. Útlendingur: Einstaklingur sem hefur ekki íslenskan ríkisborgararétt.
   9. Vistmaður: Einstaklingur sem er vistaður á brottfararstöð.
3. gr. Rekstur og yfirstjórn.
Heimilt er að reka brottfararstöð á fleiri en einum stað.
Rekstur brottfararstöðvar hér á landi er á ábyrgð lögreglustjórans á Suðurnesjum.
Ráðherra fer með yfirstjórn laga þessara.
4. gr. Starfsfólk.
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum ræður starfsfólk brottfararstöðvar.
Starfsfólk skal hljóta viðeigandi þjálfun sem tekur mið af vistmönnum.

II. kafli. Brottfararstöð.
5. gr. Vistun á brottfararstöð.
Heimilt er að vista útlending á brottfararstöð samkvæmt skilyrðum laga um útlendinga, sbr. 105. gr. laganna.
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum tekur ákvörðun um hvar skuli vista einstakling skv. 1. mgr.
Lögreglustjóranum á Suðurnesjum er heimilt að flytja einstakling á milli brottfararstöðva. Einstaklingi skal tilkynnt fyrir fram um flutning með minnst sólarhrings fyrirvara og gerð grein fyrir ástæðum flutnings, nema hann teljist nauðsynlegur af öryggisástæðum eða vegna heilbrigðis viðkomandi.
6. gr. Upphaf vistunar.
Við upphaf vistunar skal taka mynd af einstaklingi og skrá fullt nafn, kyn, fæðingardag, þjóðerni, fæðingarland og/eða ríkisfangsleysi til samræmis við skilríki eða framburð hans, ásamt öðrum viðeigandi upplýsingum eins og tungumálum sem viðkomandi talar. Einnig skal skrá upplýsingar um hvenær einstaklingur var frelsissviptur, það stjórnvald sem tók ákvörðunina, grundvöll fyrir vistuninni, vistunartíma, vistunarstað og aðrar nauðsynlegar upplýsingar um mál viðkomandi.
Almennt skal heilbrigðisstarfsmaður skoða einstakling við komu á brottfararstöð og ef þörf krefur meðan á vistun stendur. Skrá skal upplýsingar um heilsufar viðkomandi og sjúkrasögu.
Heilbrigðisstarfsfólki er skylt að upplýsa lögreglustjórann á Suðurnesjum um sjúkdóma sem gætu varðað öryggi og heilsu annarra.
Við upphaf vistunar skal afhenda einstaklingi og kynna, á tungumáli sem hann skilur, þær reglur sem um vistunina gilda, réttindi og skyldur vistmanna, hvaða háttsemi varðar agaviðurlögum, um meðferð slíkra mála, heimild til að beina kvörtun til umboðsmanns Alþingis og rétt viðkomandi til að hafa samband við lögmann.
Við upphaf vistunar skal heimila einstaklingi að hafa samband við lögmann, skipaðan talsmann skv. 30. gr. laga um útlendinga, aðstandendur, fulltrúa heimalands síns og/eða viðurkennd mannúðar- eða mannréttindasamtök eins fljótt og auðið er.
7. gr. Vistarverur.
Heimilt er að hafa brottfararstöð deildaskipta.
Vistarverur karla og kvenna skulu vera aðskildar en samgangur þeirra almennt heimill í sameiginlegum rýmum, nema sérstakar aðstæður eða húsrými komi í veg fyrir það. Vistmanni er óheimilt að fara inn í herbergi vistmanns af öðru kyni.
Þrátt fyrir ákvæði 2. mgr. getur lögreglustjórinn á Suðurnesjum ákveðið annað ef brýnir hagsmunir vistmanns eða annarra vistmanna krefjast þess.
Fjölskyldum með börn skal séð fyrir sérstökum vistarverum sem tryggja fullnægjandi friðhelgi þeirra í húsnæði sem er eingöngu ætlað fjölskyldum með börn. Hver fjölskylda með börn skal hafa eigið afmarkað rými með að lágmarki svefnaðstöðu, tómstundasvæði innan- og utandyra, auk salernis- og eldunaraðstöðu.
Lögreglustjóranum á Suðurnesjum er heimilt að:
   a. leyfa vistmanni að hafa í vistarverum sínum tiltekinn búnað í samræmi við reglur um brottfararstöð,
   b. læsa herbergjum að næturlagi ef sérstakar ástæður mæla með því og læsa herbergjum á öðrum tímum af öryggisástæðum,
   c. kveða á um greiðslur bæði dagpeninga og fæðispeninga til vistmanna, m.a. með hliðsjón af aðbúnaði á brottfararstöð.
8. gr. Réttindi og skyldur vistmanna.
Þjónusta á brottfararstöð skal taka mið af þörfum og stöðu vistmanna. Einkum skal huga að aðstæðum einstaklinga í sérstaklega viðkvæmri stöðu.
Vistmenn skulu njóta nauðsynlegrar heilbrigðisþjónustu, þar á meðal vegna geðraskana og geðfötlunar. Taka skal tillit til þeirra sem hafa sérþarfir eða þurfa sérstaka aðstoð. Barnshafandi einstaklingar skulu fá aðgang að mæðravernd og fæðingarhjálp.
Vistmaður á rétt á að taka á móti gestum, hringja og taka á móti símtölum, senda og taka við bréfum, eins og aðstæður leyfa, til samræmis við lög þessi og reglur um brottfararstöð.
Vistmaður skal að jafnaði hafa aðgang að fjölmiðlum og eiga rétt á að umgangast aðra vistmenn ásamt því að eiga rétt á útiveru, að iðka tómstundastörf og líkamsrækt eftir því sem aðstæður leyfa, njóta friðhelgi einkalífs og iðka trú sína eða sið eins og unnt er til samræmis við lög þessi og reglur um brottfararstöð. Börn skulu eiga kost á að taka þátt í leikjum og afþreyingu sem hæfir aldri þeirra.
Vistmanni er skylt að hlýða fyrirmælum sem starfsfólk brottfararstöðvar gefur og er óheimilt að hindra það í að gegna skyldustörfum sínum.
9. gr. Takmarkanir á réttindum vistmanna.
Heimilt er að hafa eftirlit með heimsóknum, símtölum og bréfasendingum vistmanna skv. 3. mgr. 8. gr. og takmarka og skilyrða réttindi þeirra skv. 3. og 4. mgr. 8. gr. þegar það er nauðsynlegt til að viðhalda ró, góðri reglu og öryggi á brottfararstöð eða til að koma í veg fyrir refsiverðan verknað. Sama gildir um 3. mgr. 8. gr. þegar vistmaður er grunaður um að leyna eða halda eftir upplýsingum um auðkenni sitt, auðkenni annars útlendings eða dvalarstað annars útlendings.
Ákvörðun skv. 1. mgr. skal tekin með rökstuddri bókun og birt vistmanni.
10. gr. Neyðarástand.
Heimilt er að vista útlendinga annars staðar en á brottfararstöð ef þær aðstæður skapast að óvenjumargir útlendingar bíða brottflutnings og það veldur ófyrirséðu álagi á brottfararstöð og starfsfólk hennar. Óheimilt er að víkja frá 4. mgr. 7. gr. þrátt fyrir slíkar aðstæður.

III. kafli. Valdbeitingarheimildir, leit, agabrot o.fl.
11. gr. Heimild til valdbeitingar.
Starfsfólki brottfararstöðvar, sem hefur hlotið viðeigandi þjálfun í valdbeitingu og nýtur heimildar lögreglustjórans á Suðurnesjum til valdbeitingar, er heimilt að beita valdi við skyldustörf sín ef það telst nauðsynlegt til að:
   a. koma í veg fyrir strok,
   b. verjast yfirvofandi árás, yfirbuga grófa mótspyrnu, hindra að vistmaður skaði sjálfan sig eða aðra,
   c. koma í veg fyrir skemmdarverk,
   d. fylgja fyrirmælum sem vistmaður hunsar eða neitar að fara eftir.
Aldrei má ganga lengra í beitingu valds en þörf er á hverju sinni.
Óheimilt er að beita börn valdi nema það teljist nauðsynlegt til að ná lögmætum markmiðum, svo sem til verndar lífi, heilsu og þroska viðkomandi barns eða annarra vistmanna, lífi eða heilsu starfsmanna eða til verndar eignum. Starfsfólki er ekki heimilt að beita valdbeitingartækjum þegar barn á í hlut.
12. gr. Heimild til líkamsleitar.
Leita má á einstaklingi, í fötum hans og munum við upphaf vistunar á brottfararstöð, eftir heimsóknir og við almennt eftirlit til þess að koma í veg fyrir að hann hafi í vörslum sínum muni, svo sem vegabréf eða önnur ferðaskilríki, eða efni, sbr. 13. gr. Sama gildir þegar vistmaður er grunaður um að leyna eða halda eftir upplýsingum um auðkenni sitt, auðkenni annars útlendings eða dvalarstað annars útlendings.
Leit innan klæða skv. 1. mgr. skal framkvæmd af starfsmanni sem er sama kyns og sá sem leitað er á. Þó getur lögreglustjórinn á Suðurnesjum ákveðið annað ef brýnir hagsmunir vistmanns krefjast þess.
Ákvörðun um líkamsleit skal tekin með rökstuddri bókun. Skrifa skal skýrslu um leitina og þá muni eða efni sem kunna að hafa fundist og vistmanni er óheimilt að hafa á brottfararstöð.
Vistmaður nýtur ekki andmælaréttar áður en ákvörðun er tekin um líkamsleit.
13. gr. Heimild til leitar í vistarverum.
Leita má í vistarverum vistmanns ef grunur leikur á að þar sé að finna muni, svo sem vegabréf eða önnur ferðaskilríki, eða efni sem:
   a. refsivert er að hafa,
   b. tengjast refsiverðum verknaði,
   c. smyglað hefur verið inn,
   d. óheimilt er að hafa samkvæmt reglum um brottfararstöð.
Heimilt er að leita í vistarverum vistmanns við almennt eftirlit og skoða þær að öðru leyti þótt skilyrði 1. mgr. séu ekki uppfyllt.
Vistmaður skal að jafnaði vera viðstaddur leit í vistarverum. Heimilt er þó að víkja frá þessu skilyrði samkvæmt ákvörðun lögreglustjórans á Suðurnesjum.
Vistmanni skal skýrt frá ástæðum fyrir leit skv. 1. og 2. mgr. áður en hún fer fram nema sérstakar ástæður mæli gegn því.
Ákvörðun um leit skv. 1. og 2. mgr. skal tekin með rökstuddri bókun. Skrifa skal skýrslu um leitina og þá muni eða efni sem kunna að hafa fundist og vistmanni er óheimilt að hafa.
Vistmaður nýtur ekki andmælaréttar áður en ákvörðun er tekin um leit.
14. gr. Agabrot.
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum getur beitt vistmann agaviðurlögum vegna brota á lögum þessum, reglugerðum og reglum sem settar eru á grundvelli þeirra og kveða á um skyldur vistmanns, enda komi fram að brot á þeim varði agaviðurlögum.
15. gr. Agaviðurlög.
Agaviðurlög eru eftirtalin:
   a. skrifleg áminning,
   b. svipting búnaðar sem sérstakt leyfi þarf fyrir,
   c. takmörkun heimsókna, símtala og bréfaskipta um ákveðinn tíma,
   d. takmörkun útivistar og aðstöðu til íþróttaiðkunar um ákveðinn tíma.
Eingöngu má veita skriflega áminningu ef brot er smávægilegt og vistmaður hefur ekki áður framið agabrot.
Beita má fleiri agaviðurlögum en einum samhliða.
Áður en ákvörðun um agaviðurlög er tekin skulu málsatvik rannsökuð og skal vistmanni gefinn kostur á að kynna sér fyrirliggjandi gögn og koma sjónarmiðum sínum um þau á framfæri.
Ákvörðun um agaviðurlög skal rökstudd, bókuð og birt vistmanni í viðurvist vitnis.
Þrátt fyrir c-lið 1. mgr. er óheimilt að takmarka heimsóknir, símtöl eða bréfaskipti vistmanns við lögmann, opinberar stofnanir eða umboðsmann Alþingis.
Óheimilt er að beita barn agaviðurlögum.
16. gr. Aðskilnaður.
Heimilt er að aðskilja vistmann frá öðrum vistmönnum þegar það er nauðsynlegt:
   a. af öryggisástæðum,
   b. vegna yfirvofandi hættu sem lífi eða heilbrigði hans er búin,
   c. vegna hættu á að hann valdi meiri háttar spjöllum á eignum brottfararstöðvar,
   d. til að koma í veg fyrir strok,
   e. til að koma í veg fyrir að hann hvetji aðra til að brjóta reglur brottfararstöðvar,
   f. til að hindra að hann taki þátt í að útvega sér eða öðrum áfengi, önnur vímuefni eða lyf,
   g. til að afstýra að hann sýni öðrum yfirgang.
Aðskilnaður skal ekki vara lengur en nauðsyn krefur og aldrei lengur en sólarhring.
Þegar ákvörðun um aðskilnað er tekin skal kalla til lækni til að skoða vistmann.
Ákvörðun um aðskilnað samkvæmt ákvæði þessu skal tekin með rökstuddri bókun. Slík ákvörðun sætir ekki kæru.
Eingöngu er heimilt að aðskilja barn frá öðrum vistmönnum að uppfylltum ákvæðum a–c-liðar 1. mgr. í ýtrustu neyð og þegar ljóst er að aðrar vægari ráðstafanir duga ekki til.
Vistmaður nýtur ekki andmælaréttar áður en ákvörðun skv. 1. mgr. er tekin.
17. gr. Vistun í öryggisklefa.
Heimilt er að vista vistmann í öryggisklefa ef nauðsyn krefur til að koma í veg fyrir ofbeldi, hemja ofbeldisfullan mótþróa hans eða hindra að hann skaði sjálfan sig eða aðra.
Þegar vistmaður er vistaður í öryggisklefa er heimilt að nota belti, fót- og handreimar.
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum tekur ákvörðun um vistun í öryggisklefa og skal vistun og aðrar aðgerðir sem beitt er í tengslum við hana aldrei standa lengur en samræmist tilgangi vistunar og beitingar annarra aðgerða.
Þegar vistmaður er settur í öryggisklefa skal kalla til lækni til að skoða hann. Ef því verður við komið skal læknir skoða vistmann í öryggisklefa daglega.
Óheimilt er að vista barn í öryggisklefa.
Vistmaður nýtur ekki andmælaréttar áður en ákvörðun skv. 3. mgr. er tekin.
18. gr. Haldlagning og upptaka.
Lögreglustjóranum á Suðurnesjum er heimilt að leggja hald á og eftir atvikum gera upptæka muni eða efni sem óheimilt er að koma með, hafa í vörslum sínum eða búa til á brottfararstöð. Sama gildir um muni sem reynt hefur verið að smygla til vistmanns. Ekki er þó heimilt að gera upptæka eign grandlauss þriðja manns.
Lögreglustjóranum á Suðurnesjum er heimilt að gera upptæka muni sem finnast á brottfararstöð ef ekki er vitað hver eigandinn er.
19. gr. Kæruheimild.
Ákvarðanir samkvæmt lögum þessum eru kæranlegar til ráðherra nema annað sé tekið fram.
Kæra sem varðar ákvörðun um agaviðurlög skv. 15. gr. eða vistun í öryggisklefa skv. 17. gr. skal afgreidd innan fjögurra virkra daga frá því að kæran barst, ella fellur hin kærða ákvörðun úr gildi. Upphafsdagur frestsins telst vera næsti virki dagur á eftir þeim degi þegar kæran berst ráðuneytinu. Úrskurðarfresturinn gildir þó ekki ef kæran berst eftir að gildistími agaviðurlaga er liðinn eða ef agaviðurlög felast í áminningu. Ávallt skal þó leitast við að kveða upp úrskurð eins fljótt og auðið er.
Vistmaður á ekki rétt á aðgangi að málsgögnum sem innihalda upplýsingar um aðra vistmenn eða öryggisatriði tengd brottfararstöð.

IV. kafli. Reglugerðir, gildistaka o.fl.
20. gr. Reglugerðir.
Ráðherra setur reglugerð um nánari framkvæmd laga þessara, þar á meðal um:
   a. rekstur brottfararstöðvar, sbr. 3. gr.,
   b. viðeigandi þjálfun starfsfólks brottfararstöðvar, sbr. 4. gr.,
   c. vistarverur brottfararstöðvar, svo sem um deildaskiptingu, heimilaðan búnað og hvenær lögreglustjóranum á Suðurnesjum er heimilt að læsa herbergjum, sbr. 7. gr.,
   d. takmarkanir á réttindum vistmanna skv. 9. gr.,
   e. valdbeitingarheimildir starfsfólks, framkvæmd valdbeitingar, þar á meðal um beitingu valdbeitingartækja og þjálfun og hæfisskilyrði þeirra sem fara með slíkar heimildir, sbr. 11. gr.
Ráðherra er heimilt að setja reglugerð um nánari framkvæmd laga þessara, þar á meðal um:
   a. réttindi og skyldur starfsfólks, sbr. 4. gr.,
   b. ákvörðun um vistun á brottfararstöð, sbr. 5. gr.,
   c. upphaf vistunar, m.a. um skráningu og vinnslu persónuupplýsinga, sbr. 6. gr.,
   d. skilyrði þess að vistmönnum séu greiddir fæðispeningar og/eða dagpeningar og í hvaða tilvikum slíkar greiðslur kunni að koma til, sbr. 7. gr.,
   e. réttindi og skyldur vistmanna, svo sem aðstæður, aðbúnað, þjónustu og takmarkanir, sbr. 8. gr.,
   f. neyðarráðstafanir, sbr. 10. gr.,
   g. fyrirkomulag og ráðstafanir í tengslum við m.a. valdbeitingu, líkamsleit og leit í vistarverum, agaviðurlög, aðskilnað og vistun í öryggisklefa, haldlagningu og upptöku muna, sbr. 11.–18. gr.
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum skal setja reglur um brottfararstöð.
Reglur um öryggi brottfararstöðvar er óheimilt að birta opinberlega.
21. gr. Gildistaka.
Lög þessi öðlast þegar gildi. Brottfararstöð skal þó ekki taka til starfa fyrr en 1. desember 2026.
Þrátt fyrir 1. málsl. 1. mgr. skulu d-, f- og j-liður 1. tölul. 22. gr. taka gildi 12. júní 2026 en a-, b-, c-, e-, g-, h-, i-, k-, l-, m- og n-liður 1. tölul. 22. gr. taka gildi 1. desember 2026.
22. gr. Breyting á öðrum lögum. …
Ákvæði til bráðabirgða.
Ráðherra skal tólf mánuðum frá því að brottfararstöð tekur til starfa leggja fyrir Alþingi skýrslu um framkvæmd laga þessara sem og viðeigandi ákvæða laga um útlendinga, nr. 80/2016, sem varða vistun á brottfararstöð. Í skýrslunni skal meðal annars gera grein fyrir fjölda einstaklinga sem vistaðir hafa verið á brottfararstöð og tímalengd vistunar. Sérstaklega skal gera grein fyrir vistun fjölskyldna með börn á brottfararstöð, fjölda fjölskyldna og barna sem hafa verið vistuð á grundvelli laganna og tímalengd vistunar. Þá skal gera grein fyrir fjölda skipta sem valdbeitingarheimildum hafi verið beitt og hvers eðlis sú valdbeiting hafi verið sem og hvernig hafi reynt á önnur íþyngjandi úrræði samkvæmt lögunum, svo sem agaviðurlög. Gæta skal að því að upplýsingar um einstaklinga verði ekki persónugreinanlegar.