Lagasafn. Íslensk lög 1. september 2026. Útgáfa 157c. Prenta í tveimur dálkum.
Lög um Stofnun atvinnuveganna
2026 nr. 85 2. júlí
Ferill málsins á Alþingi. Frumvarp til laga.
Taka gildi 1. janúar 2027; um lagaskil sjá 9. gr. og brbákv.
Ef í lögum þessum er getið um ráðherra eða ráðuneyti án þess að málefnasvið sé tilgreint sérstaklega eða til þess vísað, er átt við atvinnuvegaráðherra eða atvinnuvegaráðuneyti sem fer með lög þessi. Upplýsingar um málefnasvið ráðuneyta skv. forsetaúrskurði.
1. gr. Stofnunin.
Stofnun atvinnuveganna er ríkisstofnun undir yfirstjórn ráðherra.
2. gr. Hlutverk.
Stofnunin skal starfa að stjórnsýsluverkefnum á sviði sjávarútvegs, stjórnar fiskveiða, lagareldis, lax- og silungsveiði, fiskræktar, matvælamála, dýravelferðar og heilbrigðis dýra og plantna svo sem nánar er kveðið á um í lögum.
Stofnunin skal fylgjast með fiskverði og uppgjöri á aflahlut sjómanna og stuðla að réttu og eðlilegu uppgjöri á aflahlut sjómanna í samræmi við ákvæði laga um skiptaverð og úrskurðarnefnd sjómanna og útvegsmanna.
Stofnunin annast daglega stjórnsýslu samkvæmt lögum þessum, öðrum lögum sem stofnunin starfar eftir og alþjóðlegum skuldbindingum sem snerta viðfangsefni stofnunarinnar.
3. gr. Skipulag.
Ráðherra skipar forstjóra stofnunarinnar til fimm ára í senn. Skal hann hafa háskólamenntun sem nýtist í starfi. Forstjóri ber ábyrgð á starfsemi og rekstri stofnunarinnar, mótar helstu áherslur, verkefni og starfshætti og annast daglega stjórn hennar og ræður starfsmenn.
Stofnunin skal árlega gera áætlun um störf stofnunarinnar, birta skýrslu um starfsemi sína og setja stefnu um starfsemina og meginverkefni í samræmi við ákvæði laga um opinber fjármál.
Hjá stofnuninni skal starfa yfirdýralæknir sem ráðinn er af forstjóra. Hann skal vera menntaður dýralæknir með íslenskt starfsleyfi. Yfirdýralæknir skal hafa umsjón með málaflokkum sem varða heilbrigði og velferð dýra, súnur og lyfjaónæmi og málefnum dýralækna og dýrahjúkrunarfræðinga. Hann skal sinna þeim verkefnum sem honum eru falin í lögum, stjórnvaldsfyrirmælum og eftir atvikum af forstjóra stofnunarinnar. Þá skal yfirdýralæknir vera fulltrúi Íslands í alþjóðasamskiptum á sviði dýraheilbrigðis og dýravelferðar. Forstjóri skal sjá til þess að yfirdýralæknir njóti faglegs sjálfstæðis í þeim verkefnum sem honum eru falin. Ráðherra skal kveða nánar á um hlutverk yfirdýralæknis í reglugerð.
Innan stofnunarinnar skal rekin sérstök eining með tilteknum starfsmönnum sem fara með hlutverk samkvæmt lögum um skiptaverð og úrskurðarnefnd sjómanna og útvegsmanna.
Ráðherra er heimilt að kveða nánar á um skipulag og starfsemi stofnunarinnar í reglugerð.
4. gr. Verkefni.
Stofnunin skal fara með stjórnsýslu og eftirlit í samræmi við lög, m.a. á sviði sjávarútvegs og stjórnar fiskveiða, lagareldis, lax- og silungsveiði, fiskræktar, matvæla, dýraheilbrigðis, dýravelferðar, dýralækna og heilbrigðisstarfsfólks dýra, jarðræktar, fóðurs, sóttvarna, súna, sýklalyfjaónæmis og viðbragðsáætlana, kjötmats og inn- og útflutningseftirlits.
Stofnunin skal einnig m.a.:
a. veita ráðherra ráðgjöf um þá málaflokka sem falla undir starfssvið stofnunarinnar, þ.m.t. aðstoð við stefnumótun, undirbúning laga og stjórnvaldsfyrirmæla og alþjóðlegt samstarf,
b. veita öðrum stjórnvöldum ráðgjöf og umsagnir um mál á starfssviði stofnunarinnar,
c. vinna að samræmingu og skilvirkni opinbers eftirlits á starfssviði sínu,
d. vinna að aðgengi fyrir íslenskar afurðir að erlendum mörkuðum,
e. veita hagsmunaaðilum og almenningi fræðslu um málefni á starfssviði stofnunarinnar,
f. annast söfnun, úrvinnslu og útgáfu upplýsinga á málefnasviði stofnunarinnar,
g. sinna öðrum verkefnum sem stofnuninni eru falin með lögum, reglugerðum eða ákvörðun ráðherra,
h. annast daglega stjórnsýslu samkvæmt lögum þessum, öðrum lögum sem stofnunin starfar eftir og alþjóðlegum skuldbindingum sem snerta viðfangsefni stofnunarinnar.
5. gr. Samningar um afmörkuð verkefni og framkvæmd eftirlits.
Stofnun atvinnuveganna er heimilt að semja við aðra aðila, þar á meðal Umhverfis- og orkustofnun, um afmörkuð verkefni sem stofnuninni er falið að annast enda sé ekki um að ræða starfsemi sem felur í sér vald til að taka ákvarðanir er lúta að réttindum og skyldum aðila.
Ráðherra getur ákveðið að stofnunin skuli með samningi fela aðilum að annast afmarkaða hluta af lögbundnu eftirliti fyrir sína hönd.
Aðilar skv. 1. og 2. mgr. skulu eftir atvikum hafa fullnægjandi menntun, starfsréttindi eða viðeigandi faggildingu. Ráðherra er heimilt að kveða nánar á um í reglugerð hvaða kröfur skuli gerðar hverju sinni til aðila sem fara með eftirlit.
Aðilar skv. 1. og 2. mgr. og starfsmenn þeirra eru bundnir þagnarskyldu skv. X. kafla stjórnsýslulaga, nr. 37/1993.
Um samning skv. 1. og 2. mgr. fer eftir 40. gr. laga um opinber fjármál, nr. 123/2015, að því leyti sem strangari eða ítarlegri kröfur koma ekki fram í lögum þessum eða öðrum lögum sem stofnunin starfar eftir og mæla fyrir um eftirlit.
6. gr. Vinnsla persónuupplýsinga.
Stofnuninni er heimilt að vinna upplýsingar sem aflað er í eftirlitstilgangi eða til söfnunar, úrvinnslu og útgáfu upplýsinga á málefnasviði stofnunarinnar í samræmi við hlutverk hennar, að uppfylltum skilyrðum laga um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga.
7. gr. Gjaldskrá.
Ráðherra staðfestir, að fengnum tillögum stofnunarinnar, gjaldskrá fyrir þjónustu og eftirlit sem stofnuninni er falið að sinna samkvæmt lögum þessum, öðrum lögum sem stofnunin starfar eftir og reglugerðum settum samkvæmt þeim. Gjaldskrá skal birt í B-deild Stjórnartíðinda.
8. gr.
Stofnun atvinnuveganna skal hafa starfsfólk sem staðsett er á höfuðborgarsvæðinu, Vesturlandi, Vestfjörðum, Norðurlandi vestra, Norðurlandi eystra, Austurlandi og Suðurlandi.
9. gr. Gildistaka.
Lög þessi öðlast gildi 1. janúar 2027.
Við gildistöku laga þessara skulu Matvælastofnun, Fiskistofa og Verðlagsstofa skiptaverðs lagðar niður og tekur Stofnun atvinnuveganna við hlutverki, verkefnum, réttindum og skyldum, eignum og skuldbindingum stofnananna. …
Embætti fiskistofustjóra, forstjóra Matvælastofnunar, forstöðumanns Verðlagsstofu skiptaverðs og embætti yfirdýralæknis eru lögð niður við gildistöku laga þessara.
Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. er ráðherra heimilt að skipa forstjóra nýrrar stofnunar fyrir gildistöku þessara laga og skal hann hafa heimild til að undirbúa gildistöku laganna og starfsemi nýrrar stofnunar.
Breytingar á öðrum lögum við gildistöku laga þessara.
10.–52. gr. …
Ákvæði til bráðabirgða.
Staða forstjóra Matvælastofnunar, fiskistofustjóra, forstöðumanns Verðlagsstofu skiptaverðs og embætti yfirdýralæknis, sem og öll önnur störf hjá Matvælastofnun, Fiskistofu og Verðlagsstofu skiptaverðs eru lögð niður frá og með 1. janúar 2027. Starfsfólk Matvælastofnunar, Fiskistofu og Verðlagsstofu skiptaverðs, annað en forstjóri Matvælastofnunar, fiskistofustjóri og forstöðumaður Verðlagsstofu skiptaverðs, sem er í starfi við gildistöku laga þessara, sinnir þeim verkefnum sem færast til nýrrar stofnunar samkvæmt lögum og uppfyllir hæfisskilyrði og önnur lögbundin skilyrði til starfsins, skal eiga forgangsrétt til starfa hjá Stofnun atvinnuveganna þegar hún tekur til starfa 1. janúar 2027.
Starfsfólk heilbrigðisnefnda sveitarfélaga, sem unnið hefur við eftirlit með matvælum og uppfyllir lögbundin skilyrði til starfsins sem og skilyrði laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, nr. 70/1996, skal eiga forgangsrétt til starfa hjá nýrri stofnun. Ákvæði þetta á ekki við um starfsfólk heilbrigðisnefnda sveitarfélaga sem eingöngu hefur sinnt eftirliti með hollustuháttum og mengunarvörnum eða öðrum störfum hjá heilbrigðisnefndum.
Með forgangsrétti skv. 1. og 2. mgr. er átt við að auglýsingaskylda skv. 7. gr. laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, nr. 70/1996, eigi ekki við. Forstjóri Stofnunar atvinnuveganna skal auglýsa stöður meðal starfsmanna sem njóta forgangs skv. 2. mgr. og gefa þeim kost á að sækja um störf hjá hinni nýju stofnun. Sækist fleiri eftir starfi hjá stofnuninni en sem nemur fjölda stöðugilda sem í boði verða við eftirlit með matvælum skal fara fram mat á hæfni þeirra sem sækjast eftir starfi og skal sá hæfasti ráðinn. Forstjóra er heimilt að ganga frá ráðningarsamningum fyrir gildistöku laga þessara. Ákvæði þetta gildir aðeins um þá starfsmenn heilbrigðisnefnda sem falla undir 2. mgr. og eru við störf þegar lög þessi eru birt. Forgangsréttur til starfa skv. 2. mgr. fellur brott þremur mánuðum frá gildistöku laganna.
Starfsfólk Matvælastofnunar, Fiskistofu og Verðlagsstofu skiptaverðs sem ráðið verður til starfa hjá nýrri stofnun heldur réttindum sem það hefur áunnið sér til námsleyfis og um lengdan uppsagnarfrest samkvæmt kjarasamningum þar sem miðað er við samfellt starf hjá sömu stofnun. Í tilviki starfsfólks heilbrigðisnefnda sveitarfélaga, sem ráðið verður til nýrrar stofnunar, skal starfsaldur þess í fráfarandi starfi fyrir heilbrigðisnefnd teljast til starfsaldurs hjá nýrri stofnun hvað varðar rétt til námsleyfis og lengd uppsagnarfrests samkvæmt kjarasamningum þar sem miðað er við samfellt starf hjá sömu stofnun. Að öðru leyti gilda ákvæði gildandi kjarasamninga um inntak réttindanna.
Um rétt starfsfólks til starfa hjá nýrri stofnun fer eftir ákvæðum laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, nr. 70/1996. Ákvæði um auglýsingaskyldu skv. 7. gr. þeirra laga gilda ekki við ráðstöfun starfa samkvæmt þessu ákvæði.
Þrátt fyrir ákvæði 9. gr. er Fiskistofu og Matvælastofnun heimilt að samkeyra gagnagrunna eftir samþykkt laga þessara.