Lagasafn.  Íslensk lög 12. apríl 2024.  Útgáfa 154b.  Prenta í tveimur dálkum.


Lög um heimild fyrir ríkisstjórnina til þess að staðfesta fyrir Íslands hönd Norðurlandasamning um gagnkvæmi varðandi greiðslur vegna skertrar starfshæfni

1953 nr. 72 16. desember


Ferill málsins á Alþingi.   Frumvarp til laga.

Tóku gildi 31. desember 1953.

1. gr.
Ríkisstjórninni er heimilt að staðfesta fyrir Íslands hönd samning þann milli Íslands, Danmerkur, Finnlands, Noregs og Svíþjóðar um gagnkvæmi varðandi greiðslur vegna skertrar starfshæfni, sem undirritaður var á félagsmálaráðherrafundi Norðurlanda í Reykjavík 20. júlí 1953 og prentaður er sem fylgiskjal með lögum þessum.
2. gr.
Þegar samningur sá, er um ræðir í 1. gr., hefur verið staðfestur, skulu ákvæði hans hafa lagagildi hér á landi.

Fylgiskjal.1)
   1)Samningurinn, sem birtur var með l. 72/1953, er brottfallinn, sbr. samning sem birtur var með l. 53/1956, 37. gr. Sjá nú l. 46/1993 og samning sem birtur er með þeim lögum.