Lagasafn.  Íslensk lög 12. apríl 2024.  Útgáfa 154b.  Prenta í tveimur dálkum.


Lög um þingfararkaup alþingismanna og þingfararkostnað

1995 nr. 88 28. júní


Ferill málsins á Alþingi.   Frumvarp til laga.

Tóku gildi 1. júlí 1995. Breytt með: L. 119/1995 (tóku gildi 22. nóv. 1995). L. 104/1996 (tóku gildi 27. júní 1996). L. 138/2003 (tóku gildi 30. des. 2003). L. 141/2003 (tóku gildi 30. des. 2003). L. 129/2004 (tóku gildi 31. des. 2005). L. 47/2006 (tóku gildi 1. júlí 2006). L. 8/2008 (tóku gildi 14. mars 2008). L. 84/2011 (tóku gildi 30. júní 2011 nema 1. gr. og c-liður 14. gr. sem tók gildi 1. sept. 2012). L. 85/2012 (tóku gildi 11. sept. 2012 nema 2. málsl. b-liðar 12. gr. sem tók gildi 1. sept. 2013). L. 135/2018 (tóku gildi 1. jan. 2019). L. 79/2019 (tóku gildi 6. júlí 2019; komu til framkvæmda skv. fyrirmælum í brbákv., sbr. einnig l. 25/2020, 20. gr.). L. 144/2020 (tóku gildi 1. jan. 2021). L. 94/2021 (tóku gildi 9. júlí 2021). L. 52/2023 (tóku gildi 28. júní 2023).


I. kafli. Þingfararkaup.
1. gr.
Greiða skal alþingismanni mánaðarlega þingfararkaup úr ríkissjóði. Þingfararkaup greiðist frá fyrsta degi eftir kjördag og til síðasta dags þess mánaðar er kjörtímabili eða þingsetu lýkur. Kaupið greiðist fyrsta hvers mánaðar fyrir fram.
2. gr.
Forseti Alþingis nýtur sömu launa- og starfskjara og ráðherrar.
3. gr.
[Varaforsetar Alþingis fá greitt 15% álag á þingfararkaup.
Þeir alþingismenn, sem eru formenn stjórnmálaflokka, sem hlotið hafa a.m.k. þrjá þingmenn kjörna, og eru ekki jafnframt ráðherrar, fá greitt 50% álag á þingfararkaup. Formenn þingnefnda, sbr. 13. gr. þingskapa, og formenn þingflokka fá greitt 15% álag á þingfararkaup. [Fyrsti varaformaður fastanefndar fær 10% álag á þingfararkaup og annar varaformaður 5% álag. Enn fremur er heimilt að greiða formanni sérnefndar, svo og varaformönnum, sambærilegt álag eða hluta þess ef sérstök ástæða er til.]1) Enginn getur fengið nema eina álagsgreiðslu samkvæmt þessari málsgrein.]2)
   1)L. 84/2011, 42. gr. 2)L. 141/2003, 23. gr.
4. gr.
Alþingismaður á rétt á leyfi frá opinberu starfi, sem hann gegnir, í allt að fimm ár. Afsali hann sér starfinu eftir fimm ára leyfi á hann að öðru jöfnu forgang í allt að fimm ár frá þeim tíma að sambærilegri stöðu hjá hinu opinbera.
Nú gegnir alþingismaður starfi hjá ríki eða ríkisstofnun með þingmennsku og skal hann þá njóta launa fyrir það starf samkvæmt mati viðkomandi ráðuneytis, þó aldrei hærri en 50%.
5. gr.
[Ráðherra á rétt til greiðslna samkvæmt lögum þessum nema skv. [7.–9. gr.]1)
Ráðherra á rétt á biðlaunum úr ríkissjóði er hann lætur af embætti. Biðlaun jafnhá ráðherralaunum eru þá greidd í þrjá mánuði. Eftir ráðherrastörf í samfellt eitt ár eða lengur eru greidd biðlaun í sex mánuði. Ákvæði 2. mgr. [14. gr.]2) gilda um biðlaunagreiðslur samkvæmt þessari grein.]3)
   1)L. 79/2019, 2. gr. 2)L. 8/2008, 1. gr. 3)L. 141/2003, 23. gr.

II. kafli. Þingfararkostnaður.
Húsnæðis- og dvalarkostnaður.
6. gr.
Greiða skal alþingismanni fyrir kjördæmi utan [Reykjavíkurkjördæma suður og norður og Suðvesturkjördæmis]1) mánaðarlega húsnæðis- og dvalarkostnað til þess að hafa dvalarstað í Reykjavík eða grennd, eigi hann heimili utan [Reykjavíkurkjördæma suður og norður og Suðvesturkjördæmis],1) eða til þess að hafa starfs- eða dvalaraðstöðu í kjördæmi sínu eigi hann heimili utan kjördæmisins.
Alþingismaður, sem á heimili utan [Reykjavíkurkjördæma suður og norður og Suðvesturkjördæmis]1) en fer að jafnaði milli heimilis og Reykjavíkur um þingtímann, á rétt á að fá endurgreiddan ferðakostnað, auk þriðjungs af greiðslu skv. 1. mgr. mánaðarlega.
Haldi alþingismaður, sem á aðalheimili utan [Reykjavíkurkjördæma suður og norður og Suðvesturkjördæmis],1) [annað heimili í Reykjavíkurkjördæmi suður eða norður eða Suðvesturkjördæmi]1) er heimilt, meðan svo stendur, að greiða honum álag, allt að 40%, á fjárhæð skv. 1. mgr.
   1)L. 138/2003, 1. gr.
Ferðakostnaður.
7. gr.
Alþingismaður fær mánaðarlega fjárhæð til greiðslu kostnaðar við ferðalög innan kjördæmis hans. Enn fremur skal endurgreiða alþingismanni ferðakostnað milli heimilis eða starfsstöðvar og Reykjavíkur.
Endurgreiða skal alþingismanni kostnað við aðrar ferðir er hann þarf að fara innan lands í tengslum við störf sín, svo og gisti- og dvalarkostnað í þeim ferðum. Heimilt er að ákveða að kostnaður við ferðir umfram tiltekna vegalengd frá heimili eða starfsstöð innan kjördæmis verði endurgreiddur þrátt fyrir ákvæði 1. mgr.
[Réttur þingmanns skv. 1. og 2. mgr., sem sækist eftir endurkjöri, fellur niður þegar sex vikur eru til kjördags. Þó má ákveða í reglum forsætisnefndar að heimilt sé að endurgreiða alþingismanni ferðakostnað á þessu tímabili ef um er að ræða viðburði eða ferðir á vegum Alþingis eða þegar Alþingi er enn að störfum og þingmaður tekur þátt í störfum þess.]1)
   1)L. 94/2021, 1. gr.
8. gr.
Alþingi greiðir kostnað við ferðir sem alþingismaður fer á vegum þingsins til útlanda.
Almennur starfskostnaður.
9. gr.
Alþingi leggur alþingismanni til almenna skrifstofuaðstöðu og nauðsynlegan búnað og greiðir kostnað af því. Endurgreiða skal alþingismanni símakostnað.
Endurgreiða skal alþingismönnum annan starfskostnað samkvæmt reglum sem forsætisnefnd setur. Heimilt er að greiða starfskostnað samkvæmt þessari málsgrein sem fasta fjárhæð í stað endurgreiðslu samkvæmt reikningum.

III. kafli. Önnur starfskjör.
[Starfsmenn þingflokka og aðstoðarmenn formanna stjórnmálaflokka.]1)
   1)L. 135/2018, 1. gr.
[10. gr.
[Heimilt er að ráða starfsmenn fyrir þingflokka, eftir því sem fé er veitt til á fjárlögum hvers árs, til þess að aðstoða þingmenn í störfum þeirra. Um þá gilda lög nr. 70/1996, um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, að undanskildum ákvæðum 7., 21., 44. og 45. gr. Þá gilda ákvæði 5. gr. laga nr. 139/2003, um tímabundna ráðningu starfsmanna, ekki um starfsmenn þingflokka.
Formaður þingflokks stýrir daglegum störfum starfsmanna þingflokks og skiptir með þeim verkum. Þingflokkar skulu gera skriflega starfslýsingu fyrir starfsmenn sína.
Skrifstofustjóri Alþingis ræður starfsmenn þingflokka að fenginni tillögu þingflokks og þegar við á segir skrifstofustjóri þeim upp störfum. Um laun og önnur starfskjör starfsmanna þingflokka fer samkvæmt kjarasamningi starfsmanna Alþingis og forseta Alþingis, sbr. 3. gr. laga nr. 94/1986, um kjarasamninga opinberra starfsmanna.
Skrifstofustjóri Alþingis er í fyrirsvari gagnvart starfsmönnum þingflokka þegar fjallað er um réttindi og skyldur þeirra samkvæmt lögum nr. 70/1996, og starfsskilyrði samkvæmt öðrum lögum, stjórnvaldsfyrirmælum og kjarasamningi. Skrifstofa Alþingis annast framkvæmd og umsýslu með ráðningarsamningum starfsmanna þingflokka.
Formönnum stjórnmálaflokka, sem eiga sæti á Alþingi og eru ekki jafnframt ráðherrar, er heimilt að ráða sér aðstoðarmann í fullt starf. Um kjör aðstoðarmanns formanns stjórnmálaflokks og starfsaðstöðu fer samkvæmt sömu reglum og gilda fyrir starfsmenn þingflokka.
Í reglum forsætisnefndar má setja nánari fyrirmæli um ráðningu starfsmanna þingflokka og aðstoðarmanna formanna stjórnmálaflokka, aðstöðu þeirra, starfslok o.fl.]1)]2)
   1)L. 135/2018, 1. gr. 2)L. 8/2008, 2. gr.
Forföll alþingismanna og greiðslur til varaþingmanna.
[11. gr.]1)
Nú þarf alþingismaður að vera fjarverandi vegna starfa á vegum ríkisstjórnar, sem fulltrúi Alþingis eða í öðrum opinberum erindum, í a.m.k. fimm [þingdaga samkvæmt starfsáætlun]2) eða lengur, og varamaður tekur sæti hans á Alþingi á meðan, [sbr. 2. mgr. 65. gr.]2) þingskapalaga, og skal hann þá eigi að síður halda þingfararkaupi og öðrum föstum greiðslum meðan forföll vara. Forsætisnefnd getur sett nánari reglur um framkvæmd þessa ákvæðis og er þá heimilt að víkja frá ákvæðum þessarar málsgreinar um lágmarkstíma fjarveru ef sérstaklega stendur á og fyrir liggur beiðni þingflokks þar að lútandi. [Jafnframt er heimilt að greiða þingmanni, sem víkur af þingi um sinn en uppfyllir ekki skilyrði um lágmarksfjarveru skv. 1. málsl., þingfararkaup og aðrar fastar greiðslur fyrir þá daga sem hann kann að vera í opinberum erindum þann tíma sem fjarvera hans varir og varamaður hans á sæti á þinginu.]2)
Hverfi þingmaður af þingi um sinn vegna slyss eða veikinda fær hann þingfararkaup og aðrar fastar greiðslur samkvæmt lögum þessum eigi að síður allt að einu ári. [Sama gildir um nauðsynlega umönnun í alvarlegum veikindum eða eftir slys barns eða náins aðstandanda, samkvæmt nánari reglum sem forsætisnefnd setur.]2)
Nú er þingmaður forfallaður af öðrum ástæðum en getur í 1. og 2. mgr. og varamaður tekur sæti hans á þingi, og missir hann þá þingfararkaups og annarra kjara þann tíma sem hann er fjarverandi.
   1)L. 8/2008, 2. gr. 2)L. 85/2012, 29. gr.
[12. gr.]1)
Varaþingmaður fær greitt þingfararkaup skv. 1. gr. meðan hann situr á Alþingi og endurgreiddan þingfararkostnað samkvæmt lögum þessum eftir nánari reglum sem forsætisnefnd setur.
[Varaþingmaður, sem fær leyfi frá starfi sínu meðan hann á sæti á Alþingi og fær greitt þingfararkaup, á rétt á greiðslu sem svarar ávinnslu orlofslauna í því starfi sem hann annars gegnir.]2)
   1)L. 8/2008, 2. gr. 2)L. 85/2012, 29. gr.
Fæðingarorlof og tryggingar.
[13. gr.]1)
[Alþingismaður á rétt á fæðingar- og foreldraorlofi og fer um lengd þess og greiðslur meðan það varir samkvæmt [lögum um fæðingar- og foreldraorlof].2) Þeir alþingismenn sem halda tvö heimili og fá álag á húsnæðis- og dvalarkostnað, sbr. 3. mgr. 6. gr., halda þó greiðslum skv. 1. mgr. 6. gr.
Alþingismaður nýtur slysa- og ferðatrygginga.
Forsætisnefnd getur sett nánari reglur um framkvæmd og greiðslur samkvæmt þessari grein.]3)
   1)L. 8/2008, 2. gr. 2)L. 144/2020, 59. gr. 3)L. 138/2003, 2. gr.
[Aðrar greiðslur.]1)
   1)L. 85/2012, 29. gr.
[13. gr. a.
[Í reglum forsætisnefndar um þingfararkostnað má kveða á um að reglur um almenn starfskjör sem gilda um embættismenn þar sem laun eru ákveðin í sérákvæðum, sbr. 2. mgr. 39. gr. laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, gildi einnig um alþingismenn, eftir því sem við getur átt.]1)]2)
   1)L. 79/2019, 3. gr. 2)L. 85/2012, 29. gr.
Biðlaun.
[14. gr.]1)
Alþingismaður á rétt á biðlaunum er hann lætur af þingmennsku. Biðlaun jafnhá þingfararkaupi skv. 1. gr. skal þá greiða í þrjá mánuði. Eftir þingsetu í tvö kjörtímabil eða lengur skal þó greiða biðlaun í sex mánuði.
[Nú tekur alþingismaður, er nýtur biðlauna skv. 1. mgr., við starfi í þjónustu ríkisins eða annars aðila áður en þriggja eða sex mánaða tímabilið er liðið og skulu þá launagreiðslur samkvæmt þessari grein falla niður ef laun þau er nýja starfinu fylgja eru jöfn eða hærri en biðlaunagreiðslur til hans. Ef launin í nýja starfinu eru lægri skal greiða honum launamismuninn til loka þriggja eða sex mánaða tímabilsins.]2)
   1)L. 8/2008, 2. gr. 2)L. 104/1996, 1. gr.

IV. kafli. Ákvörðun þingfararkaups og þingfararkostnaðar.
[15. gr.]1)
[Þingfararkaup skv. 1. gr. nemur 1.101.194 kr. á mánuði. Þingfararkaup skal taka breytingum 1. júlí ár hvert. Hagstofa Íslands reiknar og birtir fyrir 1. júní hlutfallslega breytingu á meðaltali reglulegra launa starfsmanna ríkisins fyrir næstliðið almanaksár. Við mat á launabreytingum aflar Hagstofan skýrslna og gagna sem hún telur nauðsynleg og gerir jafnframt eigin kjararannsóknir eftir því sem hún telur þörf á. Við launaafgreiðslu fyrir júlí uppfærir Fjársýsla ríkisins krónutölufjárhæð til samræmis við tölur Hagstofunnar.]2)
[Forsætisnefnd Alþingis ákveður aðrar greiðslur samkvæmt lögum þessum og setur nánari reglur um þær.]3)
   1)L. 8/2008, 2. gr. 2)L. 79/2019, 4. gr., sbr. einnig brbákv. í s.l. 3)L. 8/2008, 3. gr.
[16. gr.]1)
Skrifstofa Alþingis úrskurðar um reikninga þá sem alþingismanni skulu endurgreiddir samkvæmt lögum þessum. Vilji alþingismaður ekki una úrskurði skrifstofunnar getur hann skotið honum til forsætisnefndar sem fellir endanlegan úrskurð.
Ef vafi leikur á um rétt alþingismanns samkvæmt lögum þessum sker forsætisnefnd úr.
   1)L. 8/2008, 2. gr.
[17. gr.]1)
[Greiðsla þingfararkostnaðar skv. 6. og 7. gr. er framtalsskyld, sbr. [lög nr. 90/2003, um tekjuskatt],2) en ekki skattskyld. Um greiðslur skv. 8. gr. fer eftir þeim reglum sem ríkisskattstjóri setur.]3)
   1)L. 8/2008, 2. gr. 2)L. 129/2004, 114. gr. 3)L. 119/1995, 1. gr.

V. kafli. Gildistaka.
[18. gr.]1)
Lög þessi öðlast gildi 1. júlí 1995.
   1)L. 8/2008, 2. gr.

[Ákvæði til bráðabirgða.
I.
[Ráðningarsamningar sem formenn stjórnmálaflokka, sem eiga sæti á Alþingi og eru ekki jafnframt ráðherrar, hafa gert á grundvelli eldri laga og reglna forsætisnefndar um aðstoðarmenn þingmanna halda gildi sínu við gildistöku laga þessara.]1)]2)
   1)L. 135/2018, 2. gr. 2)L. 138/2003, brbákv.
[II.
Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. 15. gr. skal þingfararkaup hækka um 2,5% frá og með 1. júlí 2023 í stað hækkunar samkvæmt ákvæðinu hinn 1. júlí 2023.]1)
   1)L. 52/2023, 2. gr.