Lagasafn.  Íslensk lög 12. apríl 2024.  Útgáfa 154b.  Prenta í tveimur dálkum.


Vopnalög

1998 nr. 16 25. mars


Ferill málsins á Alþingi.   Frumvarp til laga.

Tóku gildi 1. september 1998. Breytt með: L. 82/1998 (tóku gildi 1. okt. 1998). L. 19/1999 (tóku gildi 24. mars 1999). L. 24/2007 (tóku gildi 29. mars 2007). L. 124/2008 (tóku gildi 1. okt. 2008). L. 77/2011 (tóku gildi 29. júní 2011). L. 77/2015 (tóku gildi 22. júlí 2015; EES-samningurinn: II. viðauki tilskipun 2007/23/EB, 2008/43/EB). L. 33/2017 (tóku gildi 16. júní 2017; EES-samningurinn: II. viðauki reglugerð 98/2013). L. 137/2019 (tóku gildi 31. des. 2019). L. 141/2019 (tóku gildi 1. jan. 2020). L. 18/2021 (tóku gildi 1. okt. 2021). L. 67/2023 (tóku gildi 8. júlí 2023). L. 11/2024 (tóku gildi 24. febr. 2024 nema 1.–4. og 6. mgr. 20. gr. sem taka gildi 24. júní 2024; um lagaskil sjá 31. gr.).

Ef í lögum þessum er getið um ráðherra eða ráðuneyti án þess að málefnasvið sé tilgreint sérstaklega eða til þess vísað, er átt við dómsmálaráðherra eða dómsmálaráðuneyti sem fer með lög þessi. Upplýsingar um málefnasvið ráðuneyta skv. forsetaúrskurði er að finna hér.

I. kafli. Gildissvið laganna.
1. gr.
Með vopni er í lögum þessum átt við hvert það tæki eða efni sem unnt er að beita til að deyða eða skaða heilsu manna eða dýra tímabundið eða varanlega, enda sé með tilliti til aðstæðna ástæða til að ætla að fyrirhugað sé að nota tækið eða efnið í slíkum tilgangi.
Með skotvopni er í lögum þessum átt við vopn eða tæki sem hægt er með sprengikrafti, samanþjöppuðu lofti eða á annan sambærilegan hátt að skjóta úr kúlum, höglum eða öðrum skeytum.
[Með nauðsynlegum íhlutum skotvopna í lögum þessum er átt við hlaup, ramma, láshús, bæði efra og neðra, þar sem við á, sleða, hólk fyrir skothylki, bolta eða loku fyrir hleðsluhólf sem eru aðskildir hlutar en teljast til sama flokks og þau skotvopn sem þeir eru festir við eða þeim er ætlað að vera festir við.
Með varanlega óvirku skotvopni í lögum þessum er átt við skotvopn sem hefur verið gert endanlega ónothæft með því að gera það óvirkt og tryggt hefur verið að allir nauðsynlegir íhlutir skotvopnsins hafi verið gerðir ónothæfir til frambúðar og að ógerlegt sé að fjarlægja þá, skipta þeim út eða breyta þannig að unnt sé að gera skotvopnið virkt á nokkurn hátt.]1)
Með skotfærum er í lögum þessum átt við hvers konar skot eða skeyti sem gerð eru til að skjóta úr skotvopnum.
Með sprengiefni er í lögum þessum átt við fast eða fljótandi efni eða efnablöndu sem hefur þann eiginleika að geta sprungið við högg, þrýsting eða hita, svo og kveikiefni, svo sem hvellhettur og kveikiþræði.
Með skoteldum er í lögum þessum átt við [hvers konar hluti sem innihalda efni eða efnablöndu, þ.e. annað sprengiefni en greinir í 4. mgr., sem getur sprungið og ætlað er, með íkveikju eða á annan hátt, að gefa frá sér hita, ljós, hljóð, lofttegund eða reyk með útvermnum, sjálfbærum efnaferlum].2)
[Með forefnum til sprengiefnagerðar er í lögum þessum átt við efni og/eða blöndur sem sæta takmörkunum eða eru tilkynningarskyld og hægt er að misnota til ólöglegrar framleiðslu sprengiefna, og sem talin eru upp í reglugerð sem ráðherra setur til innleiðingar á ákvæðum reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 98/2013 um markaðssetningu og notkun forefna sprengiefna.]3)
Ráðherra er heimilt með reglugerð að ákveða nánar en um getur í 2.–5. mgr. hvaða efni og tæki skuli teljast skotvopn, skotfæri, sprengiefni eða skoteldar og kveða nánar á um flokkun þeirra.
   1)L. 11/2024, 1. gr. 2)L. 77/2015, 1. gr. 3)L. 33/2017, 1. gr.
2. gr.
Ákvæði laga þessara gilda um:
   a. skotvopn,
   [b. nauðsynlega íhluti skotvopna],1)
   [c.]1) skotfæri,
   [d.]1) sprengiefni [og forefni til sprengiefnagerðar],2)
   [e.]1) skotelda,
   [f.]1) önnur vopn, svo sem hnúajárn, örvaboga, högg-, stungu- eða eggvopn, rafmagnsvopn, gasvopn og táragasefni,
   [g.]1) efni og tæki sem samkvæmt skilgreiningu 1. gr. teljast ekki til skotvopna, skotfæra, sprengiefna eða skotelda en hafa svipaða eiginleika og verkanir …1)
   [h.]1) eftirlíkingar þeirra vopna sem getur í [a–g-lið].1)
   [i. óvirk skotvopn].1)
Ákvæði laganna gilda einnig um einstaka hluta þeirra efna og tækja sem tilgreind eru í 1. mgr., svo sem …1) hvellhettur og púður.
Ráðherra skal setja í reglugerð nánari ákvæði um meðferð og notkun vopna sem greinir í 1. og 2. mgr. Þar er m.a. heimilt að kveða á um bann við einstökum vopnum.
   1)L. 11/2024, 2. gr. 2)L. 33/2017, 2. gr.
3. gr.
Lög þessi gilda ekki um vopn, tæki og efni skv. 1. og 2. gr. sem eru í eigu Landhelgisgæslu, lögreglu, fangelsa eða erlendra lögreglumanna eða öryggisvarða sem starfa undir stjórn lögreglu. Ráðherra setur um þau sérstakar reglur.1)
Ákvæði laganna gilda ekki um eftirgreind tæki og efni, en ráðherra getur sett um þau sérstakar reglur:2)
   a. naglabyssur og skothamra sem ætluð eru til að nota í byggingariðnaði,
   b. línubyssur og tilheyrandi skotfæri, merkjabyssur eða önnur slík skotvopn og skotelda sem eingöngu eru notaðir við björgunarstörf,
   c. vopn og tæki sem eingöngu eru notuð við aflífun dýra í löggiltum sláturhúsum,
   d. önnur tæki og efni sem valda óverulegri hættu samkvæmt ákvörðun ráðherra.
   1)Augl. 157/2015. Rgl. 1740/2022. 2)Rgl. 464/2000.
[3. gr. a.
Ákvæði laga þessara gilda einnig um skotskýlingarbúnað annan en þann sem er í eigu Landhelgisgæslu, lögreglu, fangelsa eða erlendra lögreglumanna eða öryggisvarða sem starfa undir stjórn lögreglu. Með skotskýlingarbúnaði er átt við hlífðarbúnað, svo sem vesti og hjálma, sem markaðssettur er sem skotheldur og skal ráðherra setja ákvæði í reglugerð um hvaða búnaður fellur hér undir.
Enginn má flytja inn, versla með, eiga eða nota slíkan búnað nema með leyfi lögreglustjóra og skal ráðherra setja skilyrði um hvað þarf að uppfylla til þess að geta fengið slíkt leyfi og um skráningar á slíkum búnaði. Almennt skal miða við að slík leyfi til eignar og notkunar séu ekki veitt nema þegar einstaklingur þarf þess starfs síns vegna.]1)
   1)L. 11/2024, 3. gr.

II. kafli. Framleiðsla, innflutningur, útflutningur og verslun.
4. gr.
[Enginn má framleiða skotvopn, nauðsynlega íhluti, skotfæri eða sprengiefni nema með leyfi lögreglustjóra.]1) Áður en leyfi er veitt skal leita umsagnar …2) Vinnueftirlits ríkisins og slökkviliðsstjóra eða annarra yfirvalda er með brunamál fara.
Leyfi skv. 1. mgr. má aðeins veita þeim einstaklingi sem hefur skotvopnaleyfi og sýnir að öðru leyti fram á hæfni sína til framleiðslunnar.
Heimilt er að veita skráðu félagi eða firma leyfi skv. 1. mgr., enda tilnefni það einn starfsmann sinn eða fleiri sem fullnægja skilyrðum 2. mgr. til þess að annast framleiðsluna.
Handhafa skotvopnaleyfis er heimilt að fengnu leyfi lögreglustjóra að hlaða skothylki til eigin nota í þau skotvopn sem hann hefur leyfi fyrir, enda sé heimilt að nota slík skotfæri hér á landi. Skilyrði slíks leyfis eru að lögreglustjóri telji viðkomandi hafa nægilega þekkingu til þess að hlaða skothylki og fara með hleðslubúnað, að hann hafi haft skotvopnaleyfi í a.m.k. eitt ár og gengist undir námskeið í hleðslu skotfæra, en ríkislögreglustjóri þarf að samþykkja námsefni og fyrirkomulag slíkra námskeiða. Í leyfi skal koma fram hversu mikið magn af púðri, hvellhettum og skothylkjum leyfishafa er heimilt að kaupa.
Ráðherra setur í reglugerð nánari ákvæði um réttindi og skyldur framleiðanda [og hvaða hæfni hann skal búa yfir]1) samkvæmt þessari grein, þar með talið um framleiðslu, búnað framleiðsluhúsnæðis og nauðsynlegar öryggisreglur. Áður en slík reglugerð er sett skal haft samráð við Vinnueftirlit ríkisins og [Húsnæðis- og mannvirkjastofnun].1)
   1)L. 11/2024, 4. gr. 2)L. 24/2007, 11. gr.
5. gr.
Enginn má flytja til landsins skotvopn, [nauðsynlega íhluti],1) skotfæri [eða sprengiefni]2) [í atvinnuskyni nema með leyfi lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu].3) Leyfi til verslunar með skotvopn, [nauðsynlega íhluti],1) skotfæri [eða sprengiefni]2) skv. 7. gr. felur jafnframt í sér leyfi til innflutnings á þeim vörum. …3) Áður en leyfi er veitt til innflutnings skotvopna [eða nauðsynlegra íhluta]1) skal leita umsagnar …3) slökkviliðsstjóra eða annarra yfirvalda er með brunamál fara. Sé sótt um leyfi til innflutnings á sprengiefni skal og leita umsagnar Vinnueftirlits ríkisins.
[Lögreglustjóra]3) er heimilt að veita þeim sem hafa skotvopnaleyfi leyfi til innflutnings skotvopna, [nauðsynlegra íhluta]1) og skotfæra til eigin nota samkvæmt nánari ákvæðum sem ráðherra setur í reglugerð.
[Óheimilt er að flytja til landsins eða framleiða skotvopn nema þau séu merkt skýrum, varanlegum og einstökum merkingum. Hið sama á við um innflutning og framleiðslu á nauðsynlegum íhlutum skotvopna. Sé nauðsynlegur íhlutur of smár til að merkja hann í samræmi við þetta skal hann a.m.k. merktur raðnúmeri, stafakóða eða stafrænum kóða. Þá skal hver grunnpakkning fullbúinna skotfæra einnig merkt.]1)
Óheimilt er að flytja inn eða framleiða:
   a. sjálfvirka eða hálfsjálfvirka skammbyssu,
   b. sjálfvirkan eða hálfsjálfvirkan riffil,
   c. sjálfvirka haglabyssu,
   d. hálfsjálfvirka eða handhlaðna fjölskota haglabyssu með skothylkjahólfum sem tekur fleiri en tvö skothylki nema henni hafi verið breytt til samræmis við þennan áskilnað.
[Þrátt fyrir a- og b-lið getur lögreglustjóri heimilað að flytja inn hálfsjálfvirkar skammbyssur og hálfsjálfvirka riffla, séu vopnin sérhönnuð og sannanlega ætluð til íþróttaiðkunar. Þá er heimilt með leyfi lögreglustjóra að framleiða vopn samkvæmt þessari málsgrein til útflutnings.]1)
Innflutningur og framleiðsla á eftirlíkingum vopna er bannaður, enda sé ástæða til að ætla að erfitt sé að greina þær frá fyrirmyndinni. [Þegar um notkun í samræmi við 2. mgr. 14. gr. ræðir getur lögreglustjóri heimilað innflutning eða framleiðslu eftirlíkinga.]1)
Óheimilt er að flytja til landsins, framleiða eða eiga sérstaklega hættulegar tegundir vopna, eða hluta þeirra, sem eingöngu eru ætluð til nota í hernaði, svo og slík skotfæri, skotelda og sprengiefni.
1)
Ráðherra setur í reglugerð4) nánari ákvæði um framkvæmd innflutnings samkvæmt þessari grein, m.a. um staðfestingu lögreglustjóra á vörureikningum áður en tollafgreiðsla fer fram, um innflutning þeirra efna og tækja sem greind eru í 3.–6. mgr. og eftirlíkinga þeirra. Í reglugerðinni er einnig heimilt að ákveða nánar hvaða efni og tæki megi flytja til landsins og um prófun þeirra, merkingar og gæðaeftirlit.
   1)L. 11/2024, 5. gr. 2)L. 77/2015, 2. gr. 3)L. 24/2007, 12. gr. 4)Rg. 787/1998, sbr. 199/2023.
[5. gr. a.
Sá sem framleiðir, flytur inn, flytur út eða verslar með sprengiefni skal sjá til þess að sprengiefni, þ.m.t. smæstu einingar þess, sé sérstaklega auðkennt með sérstökum auðkennum og að upplýsingar um sprengiefnið séu skráðar samkvæmt nánari fyrirmælum í reglugerð svo að rekja megi feril þess.]1)
   1)L. 77/2015, 3. gr.
6. gr.
[Enginn má flytja úr landi skotvopn, [nauðsynlega íhluti],1) skotfæri [eða sprengiefni]2) nema með leyfi lögreglustjóra, enda liggi fyrir staðfesting frá þar til bærum yfirvöldum um heimild fyrir innflutningi. Ákvæði þetta á aðeins við þegar um varanlegan útflutning er að ræða.]3)
Ekki þarf leyfi fyrir greindum tækjum og efnum sem flutt eru úr landi með skipum eða flugförum ef þessar vörur teljast vera nauðsynlegur búnaður skips eða flugfars.
   1)L. 11/2024, 6. gr. 2)L. 77/2015, 2. gr. 3)L. 24/2007, 13. gr.
[6. gr. a.
Enginn má flytja úr landi hergögn og varnartengdar vörur eins og þær eru skilgreindar í reglugerð skv. 8. mgr. nema með leyfi ráðherra sem fer með utanríkismál, eða þess sem hann felur heimildarveitinguna.
Leyfisveiting skv. 1. mgr. tekur einnig til véla, tækja, eða annars sem er sérstaklega hannað eða breytt til framleiðslu, þróunar eða nota á hergögnum og varnartengdum vörum, sbr. 1. mgr.
Enginn má flytja úr landi tækni eða hugbúnað til þróunar, framleiðslu eða nota á hlutum, sbr. 1. og 2. mgr., nema með leyfi ráðherra sem fer með utanríkismál, eða þess sem hann felur leyfisveitinguna. Leyfisskylda samkvæmt þessari málsgrein tekur einnig til flutnings á hugbúnaði eða tækni með rafrænum miðlum, þ.m.t. með bréfsíma, síma, tölvupósti eða á annan rafrænan hátt. Það felur einnig í sér að gera slíkan hugbúnað og tækni tiltæk á rafrænu formi eða munnlega yfirfærslu þegar tækni er lýst í gegnum talflutningsmiðil fyrir einstakling eða lögaðila í öðru ríki.
Leyfisskylda skv. 1., 2. og 3. mgr. tekur einnig til umflutnings í skilningi tollalaga, endurútflutnings, gegnumferðar, umfermingar og miðlunar.
Óheimilt er að flytja hergögn og varnartengdar vörur eins og þær eru skilgreindar í reglugerð skv. 8. mgr. með íslenskum loftförum hvar sem þau eru stödd nema með leyfi ráðherra sem fer með utanríkismál, eða þess sem hann felur leyfisveitinguna. Hafi útflytjandi þegar fengið leyfi til útflutnings skv. 1. mgr. þarf ekki að sækja um leyfi til ráðherra samkvæmt þessari málsgrein.
Ekki skal veita leyfi samkvæmt þessari grein gangi leyfisveitingin gegn gildandi þvingunaraðgerðum, ráðstöfunum sem öryggisráð Sameinuðu þjóðanna hefur samþykkt í samræmi við VII. kafla sáttmála hinna Sameinuðu þjóða, einkum ráðstöfunum varðandi vopnasölubann, eða viðeigandi alþjóðlegum skuldbindingum samkvæmt alþjóðasamningum sem Ísland á aðild að.
Ekki skal veita leyfi samkvæmt þessari grein ef ætla má, þegar leyfi er veitt, að hergögnin, varnartengdu vörurnar eða hlutirnir verði notaðir til þess að fremja alvarleg mannréttindabrot eða hópmorð, glæpi gegn mannúð, stríðsglæpi eða glæpi gegn friði.
Ráðherra, að höfðu samráði við ráðherra sem fer með utanríkismál, skal láta birta í B-deild Stjórnartíðinda lista yfir hergögn og varnartengdar vörur, sbr. 1. mgr. Gefi Evrópusambandið út lista yfir hergögn eða varnartengdar vörur er ráðherra heimilt í reglugerð að vísa til hans á vefsetri Stjórnartíðinda Evrópusambandsins og telst það lögmæt birting. Í reglugerð er ráðherra heimilt að kveða á um að breytingar eða uppfærslur lista öðlist sjálfkrafa gildi við uppfærslu eða breytingar á vefsetri Stjórnartíðinda Evrópusambandsins.
Ráðherra, að höfðu samráði við ráðherra sem fer með utanríkismál, skal setja í reglugerð nánari ákvæði um framkvæmd þessarar greinar, þ.m.t. um heimild til útgáfu almennra leyfa, heildarleyfa og stakra leyfa til útflutnings, umsóknir um leyfi og þau gögn og vottorð sem fylgja skulu umsóknum eða sem heimilt er að afla vegna þeirra, undanþágur frá leyfisskyldu og gildistíma leyfa.]1)
   1)L. 67/2023, 29. gr.
7. gr.
[Enginn má versla með skotvopn, nauðsynlega íhluti, skotfæri, varanlega óvirk skotvopn og eftirlíkingar eða sprengiefni nema að fengnu leyfi lögreglustjóra.]1)
Leyfi skv. 1. mgr. má aðeins veita þeim einstaklingi sem hefur verslunarleyfi og skotvopnaleyfi …1)
Leyfi skv. 1. mgr. má veita skrásettu firma eða félagi sem hefur verslunarleyfi, enda tilnefni firmað eða félagið mann sem fullnægi skilyrðum 2. mgr. og hafi umsjón með daglegri verslun og ábyrgist vörslu varanna ásamt stjórnendum firmans eða félagsins.
[Sá sem hefur leyfi skv. 1. mgr. hefur heimild til að hafa í umboðssölu skotvopn, nauðsynlega íhluti og skotfæri í eigu einstaklinga.]1)
Aðeins skal veita þeim leyfi skv. 1. mgr. sem hafa til umráða fullnægjandi húsnæði til þess að geyma í þargreindar vörur. Ráðherra setur í reglugerð ákvæði um slíkt húsnæði og um vörslu varanna.
Áður en leyfi skv. 1. mgr. er veitt skal leita umsagnar viðkomandi …2) slökkviliðsstjóra eða annarra yfirvalda sem með brunamál fara.
Leyfi skv. 1. mgr. skal ekki veita til lengri tíma en fimm ára eða til skemmri tíma ef ástæða þykir til að mati [lögreglustjóra].2)
[Ráðherra skal setja nánari skilyrði í reglugerð fyrir því að mega versla með skotvopn, svo sem hvaða tegund skotvopnaleyfis þeim sem verslar með skotvopn er skylt að hafa og hæfni sem viðkomandi skal búa yfir.]1)
   1)L. 11/2024, 7. gr. 2)L. 24/2007, 14. gr.
8. gr.
[Lögreglustjóra]1) er heimilt að veita leyfi til reksturs skotvopnaleigu, [að fullnægðum skilyrðum 7. gr. um leyfi til verslunar með skotvopn].2)
Ráðherra skal setja reglugerð um rekstur skotvopnaleigu og þar skal m.a. kveða nánar á um skilyrði sem leigutaki og leigusali skulu fullnægja, svo og um starfsemina að öðru leyti.
[Leyfi skv. 1. mgr. skal ekki veita til lengri tíma en fimm ára eða til skemmri tíma ef ástæða þykir til að mati lögreglustjóra.]2)
   1)L. 24/2007, 15. gr. 2)L. 11/2024, 8. gr.
9. gr.
[Verslunareigandi, innflytjandi eða framleiðandi skotvopna, nauðsynlegra íhluta, skotfæra og sprengiefna skal halda færslubók yfir keypt og seld skotvopn, nauðsynlega íhluti og skotfæri og skal skrá númer skotvopnaleyfis kaupanda við kaup á skotfærum.]1) Skal hann gefa viðkomandi lögreglustjóra, hvenær sem hann óskar þess, nákvæmar upplýsingar um seldar vörur og óseldar vörubirgðir.
Lögreglustjóri getur, hvenær sem er og án sérstakrar heimildar, krafist þess að fá aðgang að húsnæði þar sem skotvopn, skotfæri, [nauðsynlegir íhlutir]1)2) eða sprengiefni er framleitt eða þar sem birgðir af þessum vörum eru geymdar.
   1)L. 11/2024, 9. gr. 2)L. 77/2015, 5. gr.
10. gr.
Sá sem hefur fengið leyfi til að versla með skotvopn, skotfæri [eða sprengiefni]1) eða leyfi til reksturs skotvopnaleigu má ekki selja eða á annan hátt afhenda þargreindar vörur öðrum en þeim sem sýnir skilríki fyrir því að hann megi kaupa eða taka á móti vörunum.
Óheimilt er að afhenda kaupanda skotfæri í önnur vopn en þau sem hann hefur heimild til að nota samkvæmt skilríkjum þeim sem hann framvísar skv. 1. mgr. Sama gildir um kaup á púðri og nauðsynlegum hlutum til hleðslu skotfæra skv. 2. mgr. 2. gr.
Ráðherra er heimilt í reglugerð að setja takmarkanir á magn skotfæra sem einstaklingi er heimilt að kaupa.
   1)L. 77/2015, 2. gr.
11. gr.
Þeim sem hefur leyfi til verslunar með skotvopn, skotfæri eða sprengiefni eða reksturs skotvopnaleigu og þeim sem hefur leyfi til sýninga og söfnunar skv. 15. gr. er ekki heimilt að nota greindar vörur nema með leyfi viðkomandi lögreglustjóra.

III. kafli. Meðferð skotvopna og skotfæra.
12. gr.
[Lögreglustjóri veitir skotvopnaleyfi. Skilyrði fyrir veitingu skotvopnaleyfis eru:
   a. að hafa náð 20 ára aldri og hafa ekki verið sviptur sjálfræði,
   b. að hafa hvorki gerst brotlegur við ákvæði laga þessara, almennra hegningarlaga, áfengislaga, laga um ávana- og fíkniefni, laga um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum, né hafa gerst brotlegur við ákvæði umferðarlaga um akstur undir áhrifum áfengis, fíkniefna eða annarra lyfja eða ítrekað gerst brotlegur við ákvæði um ölvunarbrot samkvæmt reglum settum á grundvelli laga um lögreglusamþykktir,
   c. að hafa nægilega kunnáttu til þess að fara með skotvopn, vera andlega heilbrigður og að öðru leyti hæfur til þess að fara með skotvopn; við mat á þessu er lögreglu heimilt að líta til brotaferils og háttsemi samkvæmt sakaskrá og málaskrá lögreglu,
   d. að hafa staðist námskeið í meðferð og notkun skotvopna.
Lögreglustjóri getur veitt skotvopnaleyfi þótt viðkomandi hafi brotið ákvæði laga þeirra sem tilgreind eru í b-lið 1. mgr. ef brot er smávægilegt eða langt um liðið frá því að brot var framið. Að liðnum tveimur árum frá því að brot var framið eða einstaklingur var sviptur skotvopnaleyfi getur lögreglustjóri þó veitt leyfi, enda hafi refsing ekki farið fram úr sektum eða fangelsi allt að 6 mánuðum og ekki verið um að ræða árásar- eða ofbeldisbrot, brot á lögum um ávana- og fíkniefni, ítrekuð ölvunarbrot, ítrekuð brot gegn ákvæðum umferðarlaga um akstur undir áhrifum áfengis, fíkniefna eða annarra lyfja eða brot á lögum um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum eða lögum þessum.
Ef umsækjandi um leyfi er ríkisborgari eða lögaðili annars ríkis innan Evrópska efnahagssvæðisins eða aðildarríkis stofnsamnings Fríverslunarsamtaka Evrópu skal umsókn beint til lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu. Hið sama gildir um ríkisborgara Færeyja og lögaðila þar í landi.
Lögreglustjóri getur veitt manni búsettum erlendis tímabundið leyfi fyrir skotvopni, enda fullnægi viðkomandi skilyrðum 1. mgr. um skotvopnaleyfi.
Skotvopnaleyfi skal vera rafrænt. Í því skal tilgreina nafn, kennitölu og heimilisfang leyfishafa. Þar skal vera nýleg ljósmynd af leyfishafa. Einnig skal tilgreina nákvæmlega hvers konar skotvopn leyfishafa er heimilt að eiga eða nota samkvæmt öðrum ákvæðum laga þessara. Lögreglustjóra er heimilt að setja sérstök skilyrði fyrir leyfi telji hann þess þörf.
Skotvopnaleyfi skal ekki gefið út til lengri tíma en fimm ára í senn og til skemmri tíma ef ástæða þykir. Við endurnýjun skotvopnaleyfis er lögreglustjóra heimilt að kanna hæfni umsækjanda.
Ráðherra setur í reglugerð ákvæði um námskeið og próf skv. d-lið 1. mgr., þ.m.t. námskeiðs- og prófagjöld sem ákveðin eru að fengnum tillögum ríkislögreglustjóra, en einnig um hversu langur tími má líða frá því að próf var tekið og þar til skotvopnaleyfi er veitt. Ráðherra skal jafnframt setja ákvæði um hvað skal koma fram í skotvopnaleyfi en þar skal þó a.m.k. koma fram hvaða skotvopn eru í eigu leyfishafa, gerð þeirra, landsnúmer og eintaksnúmer framleiðanda. Jafnframt er heimilt að setja í reglugerð ákvæði um að í skotvopnaleyfi skuli koma fram hvaða nauðsynlegu íhlutir og aðrir íhlutir eru í eigu skotvopnaleyfishafa. Þá skal ráðherra einnig setja í reglugerð nánari ákvæði um tímabundið skotvopnaleyfi skv. 4. mgr.]1)
   1)L. 11/2024, 10. gr.
13. gr.
[Enginn má eiga eða nota skotvopn, nauðsynlega íhluti og skotfæri nema hafa til þess tilskilin leyfi eða heimildir. Hið sama gildir um varanlega óvirk skotvopn og eftirlíkingar skotvopna. Skotvopn sem heimilt er að veita leyfi fyrir skiptast í fimm flokka og fer eftir skotvopnaréttindum einstaklinga hvaða skotvopn þeim er heimilt að nota. Alltaf þarf sérstakt leyfi lögreglustjóra til að eiga vopn.
Í A-flokk skotvopna falla minni rifflar og handhlaðnar haglabyssur. Ráðherra skal setja í reglugerð ákvæði um hvaða skotvopn falla þar undir.
   1. Einstaklingur sem er með skotvopnaleyfi skv. 12. gr. hefur skotvopnaréttindi A og hefur heimild til að nota skotvopn sem fellur í A-flokk til veiða og íþróttaiðkunar.
   2. Lögreglustjóra er heimilt að veita einstaklingi með skotvopnaréttindi A leyfi til að eiga vopn í A-flokki til veiða og íþróttaiðkunar.
Í B-flokk skotvopna falla stærri rifflar og hálfsjálfvirkar haglabyssur. Ráðherra skal setja í reglugerð ákvæði um hvaða skotvopn falla hér undir.
   1. Lögreglustjóra er heimilt að veita einstaklingi skotvopnaréttindi B sem er með og hefur haft skotvopnaleyfi í a.m.k. eitt ár þar á undan. Ráðherra er heimilt að setja skilyrði um námskeið og próf sem viðkomandi þarf að hafa lokið.
   2. Einstaklingur sem er með skotvopnaréttindi B hefur heimild til að nota skotvopn sem falla í B-flokk til veiða og íþróttaiðkunar.
   3. Lögreglustjóra er heimilt að veita einstaklingi með skotvopnaréttindi B leyfi til að eiga vopn í B-flokki til veiða og íþróttaiðkunar.
Í C-flokk skotvopna falla loftskammbyssur. Ráðherra skal setja í reglugerð ákvæði um hvaða skotvopn falla þar undir.
   1. Lögreglustjóra er heimilt að veita einstaklingi sem hefur skotvopnaleyfi og hefur verið virkur meðlimur í viðurkenndu skotfélagi í a.m.k. eitt ár skotvopnaréttindi C. Ráðherra er heimilt að setja skilyrði um námskeið og próf sem viðkomandi þarf að hafa lokið og skal ráðherra jafnframt setja í reglugerð ákvæði um skilyrði.
   2. Einstaklingur sem er með skotvopnaréttindi C hefur heimild til að nota skotvopn sem falla í C-flokk til íþróttaiðkunar.
   3. Lögreglustjóra er heimilt að veita einstaklingi með skotvopnaréttindi C leyfi til að eiga vopn í C-flokki til íþróttaiðkunar.
Í D-flokk skotvopna falla íþróttaskammbyssur og íþróttarifflar. Ráðherra skal setja í reglugerð ákvæði um hvaða skotvopn falla hér undir.
   1. Lögreglustjóra er heimilt að veita einstaklingi skotvopnaréttindi D sem er með og hefur haft skotvopnaréttindi C í tvö ár þar á undan og hefur verið virkur meðlimur í viðurkenndu skotfélagi. Ráðherra er heimilt að setja skilyrði um námskeið og próf sem viðkomandi þarf að hafa lokið.
   2. Einstaklingur sem er með skotvopnaréttindi D hefur heimild til að nota skotvopn sem falla í D-flokk til íþróttaiðkunar.
   3. Lögreglustjóra er heimilt að veita einstaklingi með skotvopnaréttindi D leyfi til að eiga vopn í D-flokki til íþróttaiðkunar.
Í S-flokk falla skotvopn sem flutt hafa verið inn til landsins á grundvelli undanþágu sökum ótvíræðs söfnunargildis þeirra vegna aldurs eða tengsla við sögu landsins og vopn sem teljast safnvopn af öðrum sérstökum ástæðum.
   1. Lögreglustjóra er heimilt að veita einstaklingi skotvopnaréttindi S sem er með og hefur haft skotvopnaréttindi B í a.m.k. tíu ár þar á undan. Ráðherra er heimilt að setja skilyrði um námskeið og próf sem viðkomandi þarf að hafa lokið.
   2. Lögreglustjóra er heimilt að veita einstaklingi með skotvopnaréttindi S leyfi til að eiga vopn í S-flokki til söfnunar.
   3. Heimilt er samkvæmt leyfi lögreglustjóra að nota slíkt safnvopn tímabundið á ákveðnum svæðum samkvæmt reglugerð sem ráðherra setur.
Einstaklingum er heimilt að eiga skotfæri og nauðsynlega íhluti og varanlega óvirk skotvopn í samræmi við skotvopnaréttindi sín og setur ráðherra nánari ákvæði um skotfæri í reglugerð, svo sem um fjölda skotfæra sem heimilt er að eiga.
Þrátt fyrir 1. mgr. er þeim sem hafa átt skotvopn, nauðsynlega íhluti og skotfæri á grundvelli skotvopnaleyfis heimilt að vera skráðir eigendur þeirra áfram eftir að skotvopnaleyfi rennur út og er ekki endurnýjað meðan þau eru í umboðssölu þar sem heimilt er að versla með slík skotvopn, nauðsynlega íhluti og skotfæri.]1)
   1)L. 11/2024, 11. gr.
14. gr.
[Lögreglustjóri getur veitt félagi, fyrirtæki eða stofnun leyfi til að eiga skotvopn, nauðsynlega íhluti eða skotfæri ef slíkur aðili þarf nauðsynlega á því að halda vegna starfseminnar, t.d. vegna aflífunar dýra. Skal þá tilnefna einstakling sem má nota skotvopnið fyrir hönd félagsins og skal sá annast vörslu þess, nauðsynlegra íhluta og tilheyrandi skotfæra. Skal sá hinn sami hafa skotvopnaréttindi í B-flokki.
Lögreglustjóri getur veitt einstaklingi leyfi til að eiga og nota skotvopn, nauðsynlega íhluti og skotfæri af sömu ástæðu og greinir í 1. mgr. Skal viðkomandi hafa skotvopnaréttindi í B-flokki.
Lögreglustjóri getur veitt félagi, fyrirtæki eða stofnun leyfi til að eiga eftirlíkingu skotvopns ef slíkur aðili þarf nauðsynlega á því að halda vegna starfsemi sinnar, t.d. vegna kvikmyndagerðar. Með eftirlíkingu skotvopns er átt við hvers konar hlut eða tæki sem líkist vopni eða vopnagerð þannig að mögulega sé ekki í fljótu bragði eða úr fjarlægð unnt að greina að ekki sé um raunverulegt vopn að ræða. Skal tilnefna einstakling sem má nota skotvopnið og fara með það fyrir hönd félagsins og skal sá annast vörslu þess. Skal sá hinn sami hafa skotvopnaréttindi í B-flokki og er öðrum heimilt að nota eftirlíkinguna vegna starfs síns, undir stjórn þess sem tilnefndur er til að nota og fara með eftirlíkinguna.]1)
   1)L. 11/2024, 12. gr.
15. gr.
[Lögreglustjóri getur heimilað samtökum eða opinberu safni að eiga og varðveita skotvopn til söfnunar. Í slíku tilviki skal tilnefna einstakling sem skal annast vörslu vopnsins eða vopnanna og skal sá einstaklingur hafa skotvopnaréttindi í S-flokki.
Ráðherra setur í reglugerð nánari ákvæði um þessi atriði, svo sem um hvaða skilyrði samtök eða opinber söfn þurfa að uppfylla til að geta fengið leyfi samkvæmt þessari grein og hversu langan tíma er heimilt að veita slíkt leyfi.]1)
   1)L. 11/2024, 13. gr.
16. gr.
[Skotvopni, nauðsynlegum íhlutum og skotfærum sem eru hluti dánarbús samkvæmt lögum um skipti á dánarbúum o.fl., nr. 20/1991, skal ráðstafað án tafar til aðila sem hefur leyfi til að eiga eða versla með slík vopn. Hið sama á við um varanlega óvirk skotvopn og nauðsynlega íhluti sem og eftirlíkingar skotvopna.]1)
   1)L. 11/2024, 14. gr.
17. gr.
[Lögreglustjóri getur heimilað viðurkenndu skotfélagi sem hefur iðkun skotfimi að markmiði leyfi til að eiga skotvopn, nauðsynlega íhluti og skotfæri í flokki A, B, C og D til æfinga og keppni. Í slíku tilviki skal tilnefna einn eða fleiri aðila sem heimilt er að sjá um vörslu skotvopnsins eða skotvopnanna, nauðsynlegra íhluta og tilheyrandi skotfæra. Skal sá aðili sem tilnefndur er hafa skotvopnaréttindi í þeim flokki eða flokkum sem vopnin heyra undir. Félögin skulu jafnframt tilnefna einn eða fleiri skotstjóra fyrir hvert starfsár.
Ráðherra skal setja í reglugerð ákvæði um hvað telst vera viðurkennt skotfélag og í hversu langan tíma slík heimild gildir og ákvæði um hvaða skilyrði einstaklingur þarf að uppfylla til að teljast virkur meðlimur í slíku félagi. Ráðherra skal sömuleiðis setja í reglugerð ákvæði um atriði sem félag þarf að uppfylla til að fá leyfi, ákvæði um skipun stjórnar og ábyrgð hennar og skilyrði fyrir setu í stjórn og ákvæði um skotstjóra, tilnefningu þeirra og ábyrgð þeirra og skilyrði fyrir því að verða skotstjóri.
Heimilt er skotfélagi að leyfa einstaklingi að nota skotvopn og skotfæri til íþróttaiðkunar eða keppni undir stjórn skotstjóra þrátt fyrir að viðkomandi sé yngri en 20 ára eða þrátt fyrir að viðkomandi hafi ekki skotvopnaleyfi. Ráðherra skal setja í reglugerð ákvæði um lágmarksaldur til að nota hverja tegund skotvopna til íþróttaiðkunar samkvæmt þessu ákvæði og um önnur skilyrði til slíkrar íþróttaiðkunar.]1)
   1)L. 11/2024, 15. gr.
18. gr.
[Halda skal sérstaka skotvopnaskrá fyrir landið í heild. Í hana skal skrá öll skotvopn og nauðsynlega íhluti þeirra. Hið sama á við um varanlega óvirk skotvopn og eftirlíkingar.
Í skotvopnaskrá skal skrá öll skotvopnaleyfi og skotvopnaréttindi. Jafnframt skal skrá öll leyfi sem eru gefin út af lögreglu á grundvelli laga þessara um framleiðslu, innflutning, útflutning, verslun og leigu á skotvopnum, nauðsynlegum íhlutum og skotfærum, eftirlíkingum og varanlega óvirkum skotvopnum og önnur leyfi til að meðhöndla skotvopn.
Í skotvopnaskrá skal skrá hver er eigandi skotvopna, nauðsynlegra íhluta, skotfæra, varanlega óvirkra skotvopna og eftirlíkinga skotvopna eða hver er ábyrgðarmaður þeirra og vörsluaðili.
Í skotvopnaskrá skal skrá ef skotvopn er gert varanlega óvirkt og ef skotvopni hefur verið breytt með leyfi lögreglu. Jafnframt skal skrá í skotvopnaskrá þegar skotvopni er fargað.
Hafi skotvopn týnst eða því verið stolið eða það eyðilagst skal skrá það í skotvopnaskrá.
Nánar skal kveðið á um skráningu í reglugerð sem ráðherra setur, m.a. um hvaða persónuupplýsingar eigi að koma fram við skráningu.]1)
   1)L. 11/2024, 16. gr.
[18. gr. a.
Skráning eftir að skotvopni eða nauðsynlegum íhlutum hefur verið fargað skv. 4. mgr. 18. gr. skal varðveitt í 30 ár. Lögreglustjóri hefur heimild til að fá aðgang að upplýsingum samkvæmt þessari málsgrein í 30 ár vegna refsimáls eða eftirlits. Lögreglustjóri hefur heimild til að fá aðgang að slíkri skrá í 10 ár ef það er vegna afturköllunar leyfis og það sama gildir um tollyfirvöld.]1)
   1)L. 11/2024, 17. gr.
19. gr.
Eiganda skotvopns er óheimilt að selja, gefa eða afhenda á annan hátt skotvopn til eignar, nema viðtakandi sýni fram á að hann hafi leyfi lögreglustjóra til að eiga það eða nota.
Eiganda skotvopns er heimilt að lána það manni til tímabundinna afnota sem leyfi hefur til að nota sams konar skotvopn. Ráðherra setur í reglugerð nánari ákvæði um slík afnot.
[Týnist skotvopn eða sé því stolið skal eigandi þess tilkynna lögreglu um það þegar í stað. Hið sama á við ef skotvopn eyðileggst.]1)
   1)L. 11/2024, 18. gr.
20. gr.
Hver sá sem fer með eða notar skotvopn skal hafa skotvopnaleyfi meðferðis og sýna það þegar lögregla krefst þess. Nú sýnir maður ekki skotvopnaleyfi og getur þá lögregla tekið vopnið í sína vörslu til bráðabirgða þar til viðkomandi leggur fram skilríki fyrir því að hann hafi heimild til þess að nota vopnið.
Nú er viðkomandi með vopnið að láni eða á leigu og skal hann þá leggja fram skriflega heimild eiganda skotvopnsins því til sönnunar.
21. gr.
Sá sem fer með eða notar skotvopn skal ætíð gæta fyllstu varúðar. Óheimilt er að bera skotvopn á almannafæri. Við burð og flutning á skotvopnum milli staða skulu þau vera óhlaðin og í umbúðum. [Við burð og flutning á varanlega óvirkum skotvopnum og eftirlíkingum skotvopna skulu þau vera í umbúðum.]1) Óheimilt er að bera [skotvopn, varanlega óvirk skotvopn og eftirlíkingar skotvopna]1) á sér innanklæða.
Þeim sem er undir áhrifum áfengis eða annarra vímugjafa er óheimil meðferð skotvopns.
Þegar ástæða er til að ætla að maður hafi brotið framangreind ákvæði getur lögregla fært hann til læknisrannsóknar, þar á meðal blóð- og þvagrannsóknar, og er honum þá skylt að hlíta þeirri meðferð sem heilbrigðisstarfsmaður telur nauðsynlega vegna rannsóknarinnar.
Ekki má hleypa af skoti á vegi, yfir veg, úr ökutæki, á almannafæri eða annars staðar þar sem hætta getur stafað af, nema nauðsyn krefji.
Ekki má hleypa af skoti á annars manns landi eða skjóta yfir annars manns land án leyfis landeiganda eða ábúanda nema lög mæli öðruvísi fyrir um. Mál út af broti á ákvæðum þessarar málsgreinar skal því aðeins höfða að sá krefjist sem misgert var við.
   1)L. 11/2024, 19. gr.
22. gr.
Ekki má afhenda öðrum skotfæri en þeim sem skráður er fyrir því skotvopni sem þau eru ætluð fyrir, enda framvísi viðkomandi leyfi fyrir skotvopninu. Ráðherra getur sett nánari ákvæði um afhendingu skotfæra í reglugerð, þar á meðal um bann við einstökum gerðum skotfæra.
23. gr.
[Eigandi eða vörsluaðili skotvopns, nauðsynlegra íhluta, skotfæra, varanlega óvirkra skotvopna eða eftirlíkinga skotvopna skal ábyrgjast vörslu þeirra þannig að óviðkomandi aðili nái ekki til þeirra.
Þegar skotvopn, nauðsynlegir íhlutir og/eða skotfæri eru ekki í notkun skulu skotvopn og nauðsynlegir íhlutir annars vegar og skotfæri hins vegar geymd í sérútbúnum vopnaskáp sem samþykktur er af lögreglustjóra. Skotvopn í eigu einstaklinga skulu geymd á lögheimili viðkomandi. Séu skotvopn og skotfæri geymd í sama vopnaskáp skulu skotfærin vera í sérstakri læstri hirslu innan hans. Eftirlíkingar skotvopna skal einnig geyma í sérútbúnum vopnaskáp.
Hver eigandi eða vörsluaðili skotvopns, nauðsynlegs íhlutar eða eftirlíkingar skotvopns skal hafa yfir að ráða sérútbúnum vopnaskáp skv. 2. mgr. sem rúmar þau tæki sem eru í eigu hans eða hann er ábyrgur fyrir.
Skotvopn í eigu skotfélaga skulu vera varðveitt í húsnæði sem er búið þjófavörn og vaktað af viðurkenndu öryggisfyrirtæki. Hið sama á við um safnvopn.
Þeim sem varðveitir skotvopn, nauðsynlega íhluti, skotfæri, varanlega óvirk skotvopn eða eftirlíkingar skotvopna er skylt, þegar lögregla krefst þess, að veita aðgengi að húsnæði eða hverjum öðrum þeim stað þar sem skotvopn, nauðsynlegir íhlutir eða skotfæri eru varðveitt og framvísa skotvopnum, nauðsynlegum íhlutum og skotfærum lögreglu til skoðunar. Lögreglu er heimilt slíkt eftirlit án sérstaks tilefnis, hið minnsta einu sinni á hverju leyfistímabili.
Ráðherra er heimilt að setja ákvæði í reglugerð um gerð, útfærslu og frágang skotvopnaskápa. Þá er ráðherra einnig heimilt að setja í reglugerð ákvæði um undanþágu frá því að hver einstaklingur eigi skáp fyrir skotvopn sín, nauðsynlega íhluti, skotfæri og eftirlíkingar skotvopna, t.d. þegar einstaklingar á sama lögheimili eiga þessa hluti og geta deilt skáp. Einnig er heimilt að setja í reglugerð undanþágu frá því að skotvopn skuli geymd á lögheimili einstaklinga. Þá er ráðherra heimilt að setja í reglugerð skilyrði um hvað telst vera viðurkennt öryggisfyrirtæki skv. 4. mgr. og um undanþágu frá því að vopn skuli vöktuð af slíku fyrirtæki.]1)
   1)L. 11/2024, 20. gr.; 1.–4. og 6. mgr. taka gildi 24. júní 2024.
24. gr.
Skotfélagi eða öðrum er óheimilt að efna til skotkeppni eða skotæfinga á öðru svæði en lögreglustjóri hefur leyft að notað verði til slíkrar starfsemi.
Ráðherra setur í reglugerð nánari ákvæði um gerð og búnað skotsvæða, þar með talið um geymslu skotvopna og skotfæra. Samráð skal haft við Vinnueftirlit ríkisins og [Húsnæðis- og mannvirkjastofnun]1) áður en slíkar reglur eru settar.
Áður en leyfi skv. 1. mgr. er veitt skal lögreglustjóri leita umsagnar sveitarstjórnar, Vinnueftirlits ríkisins og [Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar].1)
   1)L. 11/2024, 21. gr.
25. gr.
[Enginn má gera við skotvopn og nauðsynlega íhluti eða gera skotvopn varanlega óvirk nema að fengnu leyfi lögreglustjóra. Hið sama á við um förgun skotvopna.
Allar breytingar, svo sem á lásgerð, mögulegum skotfjölda eða aukabúnaði sem hefur áhrif á eiginleika skotvopns eða verkan, eru óheimilar nema með leyfi lögreglustjóra.
Leyfi til að gera við, gera varanlega óvirk, farga eða breyta skotvopnum og nauðsynlegum íhlutum skv. 1. og 2. mgr. má aðeins veita þeim einstaklingi sem hefur skotvopnaleyfi og sýnir fram á hæfni sína að öðru leyti. Slíkt leyfi skal ekki gefið út til lengri tíma en fimm ára eða til skemmri tíma ef ástæða þykir til að mati lögreglustjóra. Ráðherra setur í reglugerð nánari skilyrði, svo sem um viðurkennt nám eða reynslu.
Þegar skotvopn hefur verið gert varanlega óvirkt skal fara með vopnið til lögreglu til skoðunar sem skal skoða og fara yfir vopnið og tryggja að það hafi verið gert varanlega óvirkt á sannanlegan hátt. Lögreglu ber að gefa út vottorð þessu til staðfestingar og merkja hið varanlega óvirka skotvopn. Ráðherra hefur heimild til að setja nánari ákvæði í reglugerð um vottorð þessi og merkingar.]1)
   1)L. 11/2024, 22. gr.

IV. kafli. Meðferð sprengiefnis.
26. gr.
Enginn má kaupa sprengiefni nema að fengnu leyfi lögreglustjóra. Leyfið veitir lögreglustjóri í því umdæmi þar sem leyfisbeiðandi hefur lögheimili. Ef umsækjandi er lögaðili veitir lögreglustjóri leyfið þar sem starfsstöð umsækjandans er. [Ef umsækjandi er ríkisborgari eða lögaðili annars ríkis innan Evrópska efnahagssvæðisins eða aðildarríkis stofnsamnings Fríverslunarsamtaka Evrópu skal umsókn um leyfi beint til lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu. Hið sama gildir um ríkisborgara Færeyja og lögaðila þar í landi.]1)
Aðeins má veita þeim leyfi til þess að kaupa sprengiefni sem sýnir fram á að honum sé það nauðsynlegt.
Leyfi samkvæmt þessari grein skal gefið út fyrir ákveðinni tegund og magni sprengiefnis.
Eigandi sprengiefnis skal ábyrgjast vörslur þess og sjá um að óviðkomandi nái ekki til þess.
Þegar lögaðili fær leyfi skv. 1. mgr. skal hann að jafnaði tilnefna ákveðinn mann eða menn sem annist vörslur sprengiefnisins.
Þeim sem fengið hefur leyfi til þess að kaupa sprengiefni er óheimilt að afhenda það öðrum nema með leyfi lögreglustjóra.
   1)L. 77/2011, 13. gr.
27. gr.
Sá einn má fara með sprengiefni og annast sprengingar sem fengið hefur til þess leyfi lögreglustjóra. Leyfið veitir lögreglustjóri í því umdæmi þar sem umsækjandi á lögheimili og gildir það í fimm ár frá útgáfudegi. [Ef umsækjandi er ríkisborgari eða lögaðili annars ríkis innan Evrópska efnahagssvæðisins eða aðildarríkis stofnsamnings Fríverslunarsamtaka Evrópu skal umsókn um leyfi beint til lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu. Hið sama gildir um ríkisborgara Færeyja og lögaðila þar í landi.]1)
Aðeins má veita þeim leyfi skv. 1. mgr. sem að mati Vinnueftirlits ríkisins hefur næga kunnáttu til þess að fara með sprengiefni eftir nánari ákvæðum sem ráðherra setur í reglugerð.
Sá sem fer með og notar sprengiefni skal ætíð gæta fyllstu varúðar.
[Óheimilt er að búa til, varðveita, hafa í fórum sínum, selja, flytja til landsins eða flytja úr landi heimatilbúnar sprengjur.]2)
   1)L. 77/2011, 13. gr. 2)L. 33/2017, 3. gr.
[27. gr. a.
Almennum borgurum er óheimilt, í öðru skyni en vegna atvinnugreinar sinnar, viðskipta eða starfsgreinar, að hafa í fórum sínum og nota forefni til sprengiefnagerðar, sem sæta takmörkunum, í meiri styrkleika en viðmiðunarmörk samkvæmt reglugerð kveða á um.
Ráðherra getur í reglugerð ákveðið að heimila almennum borgurum að hafa í fórum sínum og nota tiltekin efni skv. 1. mgr. í styrkleika yfir viðmiðunarmörkum að því tilskildu að sá sem gerir efnin aðgengileg skrái öll viðskipti í samræmi við 27. gr. c.
Ráðherra getur ákveðið að skrá skuli öll viðskipti með forefni [skv. 8. mgr.]1) 1. gr. í samræmi við 27. gr. c.]2)
   1)L. 11/2024, 23. gr. 2)L. 33/2017, 4. gr.
[27. gr. b.
Sá sem framleiðir, flytur inn, flytur út eða verslar með forefni til sprengiefnagerðar getur áskilið sér rétt til að hafna grunsamlegum viðskiptum. Skylt er að tilkynna viðskiptin, eða tilraun til slíkra viðskipta, þar á meðal grunsamlegar fyrirspurnir, án óþarfa tafa, þ.m.t., ef mögulegt er, upplýsingar um deili á viðskiptamanninum, til tengiliðar á landsvísu sem ákveðinn er af ráðherra í reglugerð. Aðeins er skylt að tilkynna ef gildar ástæður eru til að ætla að fyrirhuguð viðskipti með eitt eða fleiri efni sem talin eru upp í reglugerð, eða blöndur eða efni sem innihalda þau, séu grunsamleg viðskipti með hliðsjón af öllum aðstæðum og einkum þegar tilvonandi viðskiptamaður:
   a. virðist óskýr varðandi fyrirhugaða notkun efnisins eða blöndunnar,
   b. virðist ekki vita hver fyrirhuguð notkun efnisins eða blöndunnar er eða getur ekki útskýrt það þannig að trúanlegt sé,
   c. hyggst kaupa efni í magni, samsetningu eða styrkleika sem er ekki algengt til einkanota,
   d. er ekki viljugur til að sýna fram á hver hann er eða hvar hann býr eða
   e. fer fram á að greiða með óvenjulegum hætti, þ.m.t. háar fjárhæðir í reiðufé.
Skylt er að tilkynna um hvarf eða þjófnað á sprengiefni eða miklu magni af forefnum til sprengiefnagerðar sem talin eru upp í reglugerð skv. a- og b-lið 27. gr. d, og blöndum eða efnum sem innihalda þau, til tengiliðar á landsvísu sem ákveðinn er af ráðherra í reglugerð.]1)
   1)L. 33/2017, 4. gr.
[27. gr. c.
Nú ákveður ráðherra með reglugerð að viðskipti með forefni til sprengiefnagerðar skuli vera skráningarskyld eða að tiltekin forefni sem háð eru takmörkunum verði aðgengileg almennum borgurum í styrkleika yfir viðmiðunarmörkum og skulu þá þeir sem gera efnin aðgengileg halda skrá yfir viðskipti með efnin. Viðskiptamenn skulu gera grein fyrir hverjir þeir eru með því að sýna lögleg skilríki.
Í skránni skulu a.m.k. vera eftirfarandi upplýsingar:
   a. nafn, heimilisfang og, eftir atvikum, annaðhvort kennitala viðskiptamanns eða tegund og númer skilríkis,
   b. heiti efnisins eða blöndunnar, þ.m.t. styrkleiki,
   c. magn efnisins eða blöndunnar,
   d. yfirlýsing viðskiptamanns um fyrirhugaða notkun efnisins eða blöndunnar,
   e. dagsetning og staður viðskiptanna,
   f. undirskrift viðskiptamanns.
Skráin skal geymd í fimm ár frá viðskiptadegi. Lögreglustjóri eða [tollyfirvöld geta],1) hvenær sem er og án sérstakrar heimildar, krafist þess að fá aðgang að skránni.
Skráin skal geymd á pappír eða öðrum varanlegum miðli og skal aðgengileg til skoðunar hvenær sem er allt tímabilið sem kveðið er á um í 3. mgr. Öll gögn sem geymd eru rafrænt skulu:
   a. vera í samræmi við snið og innihald samsvarandi pappírsskjala og
   b. vera tiltæk hvenær sem er allt tímabilið sem kveðið er á um í 3. mgr.
Leyfisveitendur skulu senda tengilið á landsvísu sem ákveðinn er af ráðherra í reglugerð yfirlit yfir útgefin leyfi einu sinni á ári en oftar sé þess óskað.]2)
   1)L. 141/2019, 77. gr. 2)L. 33/2017, 4. gr.
[27. gr. d.
Ráðherra setur reglugerð1) um forefni til sprengiefnagerðar sem getur m.a. kveðið á um:
   a. tegundir forefna sem sæta takmörkunum,
   b. tegundir forefna sem sæta eingöngu tilkynningarskyldu,
   c. tegundir forefna sem sæta skráningarskyldu,
   d. viðmiðunar- og styrkleikamörk,
   e. skráningu forefna og tilkynningarskyldu,
   f. tengilið á landsvísu,
   g. eftirlit,
   h. heimatilbúnar sprengjur,
   i. merkingar.]2)
   1)Rg. 510/2018, sbr. 1056/2018. 2)L. 33/2017, 4. gr.
28. gr.
Sprengiefni skal geyma í sérstakri sprengiefnageymslu.
Ráðherra skal setja í reglugerð1) ákvæði um geymslu á sprengiefni, um flutning á því og meðferð þess. Áður en slík reglugerð er sett skal leita eftir tillögum frá [Húsnæðis- og mannvirkjastofnun]2) og Vinnueftirliti ríkisins.
   1)Rg. 510/2018, sbr. 1056/2018. 2)L. 11/2024, 21. gr.
29. gr.
Nú finnst sprengiefni eða hlutir, sem ætla má að hafi að geyma sprengiefni, rekið á land eða á víðavangi og skal þá finnandi, landeigandi eða ábúandi þegar tilkynna lögreglustjóra um fundinn.

V. kafli. Meðferð annarra vopna.
30. gr.
Vopnaburður á almannafæri er bannaður. Heimilt er að bera á sér bitvopn þar sem eðlilegt og sjálfsagt getur talist, svo sem við vinnu eða veiðar eða í öðrum tilvikum þegar engin hætta er því samfara.
Bannað er að flytja til landsins, framleiða, eignast eða hafa í vörslum sínum:
   a. bitvopn ef blaðið er lengra en 12 sm, enda sé það ekki ætlað til notkunar við heimilishald eða atvinnu,
   b. fjaðrahníf, fjaðrarýting, fallhníf, fallrýting, stunguvopn eða önnur slík vopn,
   c. höggvopn, svo sem hnúajárn, gaddakylfu, felukylfu, kylfu sem ekki er ætluð til íþróttaiðkunar eða önnur slík vopn, svo og rafmagnsvopn,
   d. sverð, sem eru sambland högg- og bitvopna,
   e. kaststjörnu, kasthníf eða önnur slík vopn,
   f. lásboga, langboga, slöngubyssu eða önnur slík vopn, svo og örvarodda. Þetta tekur þó ekki til boga sem ætlaðir eru til æfinga eða keppni í bogfimi.
Heimilt er að víkja frá banni 2. mgr. með leyfi ríkislögreglustjóra ef vopn hefur söfnunargildi eða sérstakar ástæður mæla með. [Ríkislögreglustjóra er heimilt að fela öðrum lögreglustjóra að annast framkvæmd þessara leyfisveitinga.]1)
Öðrum en lögreglu er óheimilt að flytja til landsins, framleiða eða eignast handjárn og fótajárn úr málmi eða öðru efni. [Sama gildir um úðavopn, svo sem gasvopn og táragasvopn.]2)
   1)L. 11/2024, 24. gr. 2)L. 24/2007, 19. gr.
31. gr.
Barni yngra en 16 ára má ekki selja eða afhenda örvaboga með meiri togkrafti en 7 kg eða oddhvassar örvar.

VI. kafli. [Framleiðsla, inn- og útflutningur, verslun og meðferð skotelda.]1)
   1)L. 77/2015, 6. gr.
[32. gr.
Enginn má flytja inn, flytja út eða versla með skotelda nema með leyfi lögreglustjóra. Áður en leyfi er veitt skal leita umsagnar Vinnueftirlits ríkisins og slökkviliðsstjóra.
Leyfi skv. 1. mgr. má veita þeim einstaklingi sem hefur verslunarleyfi, sérþekkingu á skoteldum eftir nánari reglum sem ráðherra setur og hefur til umráða fullnægjandi húsnæði til þess að geyma skotelda.
Enginn má framleiða skotelda nema með leyfi lögreglustjóra. Áður en leyfi er veitt skal leita umsagnar Vinnueftirlits ríkisins og slökkviliðsstjóra. Skilyrði fyrir því að fá leyfi til framleiðslu skotelda eru þau að viðkomandi:
   a. hafi náð 20 ára aldri og hafi ekki verið sviptur sjálfræði,
   b. hafi ekki gerst brotlegur við ákvæði almennra hegningarlaga, áfengislaga og laga um ávana- og fíkniefni,
   c. hafi nægjanlega kunnáttu til þess að fara með skotelda, sé andlega heilbrigður og að öðru leyti hæfur til þess að fara með skotelda,
   d. hafi hlotið faggildingu samkvæmt lögum um faggildingu o.fl.
Leyfi samkvæmt kafla þessum gilda í fimm ár. Ráðherra er heimilt að ákveða í reglugerð að leyfishafi skuli sækja námskeið og gangast undir próf áður en réttindi hans eru endurnýjuð.
Óheimilt er að veita lögaðila leyfi skv. 1. og 3. mgr. nema hann tilnefni einn starfsmann sinn sem fullnægir skilyrðum 2. mgr. eða eftir atvikum 3. mgr. til þess að annast framleiðslu, innflutning, útflutning eða verslun með skotelda. Skal hann hafa umsjón með daglegri starfsemi, svo og með geymslu og annarri meðferð skoteldanna. Telst hann ábyrgur fyrir meðferð og vörslu skoteldanna ásamt stjórnendum lögaðilans.
Í sérstökum tilvikum er heimilt að veita félagasamtökum leyfi til að selja skotelda í smásölu.
Um ábyrgð á framleiðslu skotelda fer samkvæmt lögum um skaðsemisábyrgð.
Sá sem framleiðir, flytur inn eða verslar með skotelda skal sjá til þess að skoteldavörur séu merktar með sýnilegum, læsilegum og óafmáanlegum hætti á íslensku. Vörur sem eru fluttar úr landi skal með sama hætti merkja á því tungumáli sem teljast verður opinbert tungumál í því landi þar sem varan er seld.
Framleiðendur og innflytjendur skotelda skulu halda skrá yfir framleidda og innflutta skotelda svo sem nánar er ákveðið í reglugerð. Skrárnar skal varðveita í 10 ár eftir að vara er sett á markað.
Sá sem framleiðir, flytur inn eða verslar með skotelda skal veita viðkomandi lögreglustjóra og [Húsnæðis- og mannvirkjastofnun],1) hvenær sem þess er óskað, aðgang að birgðabókhaldi og nákvæmar upplýsingar um framleiðsluna, seldar vörur og óseldar birgðir. Þá getur lögreglustjóri, hvenær sem er og án sérstakrar heimildar, krafist þess að fá aðgang að húsnæði þar sem framleiddir eru skoteldar eða birgðir af þeim geymdar.
Ekki þarf leyfi fyrir útflutningi skotelda ef þeir eru fluttir úr landi með skipum eða flugförum og skoteldarnir teljast nauðsynlegur búnaður skips eða flugfars.]2)
   1)L. 18/2021, 9. gr. 2)L. 77/2015, 6. gr.
[33. gr.
Þeir sem fara með skotelda skulu ætíð gæta fyllstu varúðar. Einungis má selja, framleiða og markaðssetja skotelda sem uppfylla kröfur laga þessara og reglna sem settar eru samkvæmt þeim.
Framleiðendur skotelda skulu tryggja að þeir samrýmist þeim öryggiskröfum, m.a. um CE-samræmismerkingu, sem gerðar eru í reglugerð um skotelda o.fl. og einnig reglum sem settar eru í samevrópskum stöðlum og vísað er til í Stjórnartíðindum eða reglugerðum sem ráðherra er heimilt að setja samkvæmt lögum þessum. Ef framleiðandi skotelda er utan Evrópska efnahagssvæðisins er innflytjandi þeirra ábyrgur fyrir því að skoteldarnir uppfylli þessar kröfur í samræmi við gildandi lög og reglur sem kveða á um ábyrgð innflytjanda og dreifingaraðila á vöru.
Gerðarviðurkenning skotelda skal fara fram hjá tilkynntum aðila sem hefur rétt til að veita slíka viðurkenningu á grundvelli tilskipana, laga og reglugerða sem um hana gilda innan Evrópska efnahagssvæðisins.
Nú verður alvarlegt slys af völdum skotelda og skal þá bráðamóttaka sjúkrahúss þegar í stað tilkynna það til lögreglu og [Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar].1)
Skylt er að tilkynna [Húsnæðis- og mannvirkjastofnun]1) þegar vart verður gallaðra skotelda í umferð. [Húsnæðis- og mannvirkjastofnun]1) sendir og tekur við Rapex-tilkynningum vegna innköllunar á skoteldum á Evrópska efnahagssvæðinu.
Öll sala á skoteldum til almennings er óheimil nema að fengnu söluleyfi og samþykki lögreglustjóra varðandi staðsetningu og aðstæður á sölustað. Hið sama gildir um aðrar starfsstöðvar, svo sem geymslur fyrir skotelda til styttri eða lengri tíma. Dreifingaraðilar bera ábyrgð og kostnað af förgun skotelda eftir síðasta söludag eða vegna ákvörðunar um að skoteldar séu teknir af markaði.]2)
   1)L. 18/2021, 9. gr. 2)L. 77/2015, 6. gr.
[33. gr. a.
[Húsnæðis- og mannvirkjastofnun]1) fer með markaðseftirlit með skoteldum í samræmi við ákvæði laga þessara og reglna settra samkvæmt þeim.
[Húsnæðis- og mannvirkjastofnun]1) annast eftirlit með því að farið sé að ákvæðum 33. gr.
Um skyldur framleiðanda og dreifingaraðila, þ.m.t. skyldur til að tilkynna tafarlaust um innköllun vöru af markaði, eftirlit og málsmeðferð, fer að öðru leyti eftir lögum um öryggi vöru og opinbera markaðsgæslu, svo og lögum um skaðsemisábyrgð, eftir því sem við getur átt.
[Ákvarðanir Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar sem teknar eru á grundvelli laga þessara sæta kæru til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála. Ákvörðun verður ekki borin undir dómstóla fyrr en úrskurður nefndarinnar liggur fyrir. Ef aðili unir ekki úrskurði nefndarinnar getur hann höfðað mál til ógildingar fyrir dómstólum. Höfða skal mál innan sex mánaða frá því að aðili fékk vitneskju um úrskurð nefndarinnar. Málshöfðun frestar ekki gildistöku úrskurðar nefndarinnar eða heimild til aðfarar. Um aðild, kærufrest, málsmeðferð og annað er varðar kæruna fer að öðru leyti samkvæmt lögum um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála.]2)]3)
   1)L. 18/2021, 9. gr. 2)L. 18/2021, 10. gr. 3)L. 77/2015, 6. gr.
[33. gr. b.
Ráðherra setur í reglugerð nánari ákvæði um eftirtalin atriði að fenginni umsögn [Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar],1)2) og Vinnueftirlits ríkisins:
   a. réttindi og skyldur innflytjanda, útflytjanda og dreifingaraðila samkvæmt kafla þessum,
   b. skilyrði fyrir leyfisveitingu og flokkun réttinda,
   c. námskeið í meðferð og notkun skotelda,
   d. sölu og meðferð skotelda, þar á meðal um aldurstakmörk og bann við skoteldum sem teljast skaðlegir,
   e. framleiðslu skotelda og búnað framleiðslu- og geymsluhúsnæðis, svo og nauðsynlegar öryggisreglur,
   f. hve mikið af skoteldum framleiðanda, innflytjanda og seljanda efnis er heimilt að hafa í umráðum sínum á hverjum tíma,
   g. húsnæði fyrir sölu skotelda.]3)
   1)L. 137/2019, 19. gr. 2)L. 18/2021, 11. gr. 3)L. 77/2015, 6. gr.

VII. kafli. Refsingar, eignaupptaka o.fl.
34. gr.
Leyfi samkvæmt lögum þessum getur [lögreglustjóri]1) afturkallað hvenær sem er ef ekki teljast lengur vera fyrir hendi nauðsynleg skilyrði fyrir leyfinu, leyfishafi hefur ekki farið eftir settum fyrirmælum eða ætla má að leyfishafi muni fara óforsvaranlega með efni og tæki sem leyfið tekur til.
1)
Lögreglustjóra er heimilt að afturkalla leyfi til bráðabirgða án fyrirvara [þegar vafi leikur á að skilyrði fyrir skotvopnaleyfi séu uppfyllt].1) [Slík ákvörðun skal ekki gilda lengur en þrjá mánuði. Ákvörðunin má þó gilda lengur ef mál til endanlegrar afturköllunar hefur verið tekið til meðferðar eða ef mál sem varð til þess að leyfi viðkomandi var afturkallað til bráðabirgða er til meðferðar hjá lögreglu, ákæruvaldi eða dómstólum.]1)
Nú er húsnæði, framleiðsluháttum eða vörslu vara ábótavant að mati lögreglustjóra og getur hann þá til bráðabirgða og án fyrirvara lagt hald á skotvopn, skotfæri, skotelda eða sprengiefni. Sama á við um önnur vopn samkvæmt lögum þessum.
   1)L. 11/2024, 25. gr.
35. gr.
[Þegar leyfi samkvæmt lögum þessum er afturkallað skal sá sem missir leyfið skila án tafar þeim vopnum, efnum og tækjum sem hann hefur í vörslum sínum á grundvelli leyfisins. Að öðrum kosti er lögreglu heimilt að taka í sína vörslu þessi vopn, tæki og efni. Hið sama á við þegar einstaklingur fær synjun um endurnýjun á skotvopnaleyfi sínu. Heimilt er þó með leyfi lögreglu að setja þau vopn, efni og tæki sem viðkomandi á í umboðssölu skv. 4. mgr. 7. gr.]1)
Þegar ekki eru fyrir hendi skilyrði til eignaupptöku getur lögreglustjóri að liðnum einum mánuði frá leyfissviptingu ákveðið að selja greindan varning en að sex mánuðum liðnum ef um skotvopn er að ræða. Við sölumeðferð skal svo sem kostur er haft samráð við eiganda varningsins. Söluandvirði að frádregnum kostnaði skal renna til eiganda.
Nú telur lögreglustjóri vopn, efni eða tæki svo lélegt og verðlaust eða verðlítið að ekki sé rétt að selja það og skal þá eyðileggja það eða gera óvirkt án greiðslu bóta til handa eiganda.
   1)L. 11/2024, 26. gr.
36. gr.
Brot gegn lögum þessum og reglum sem settar verða samkvæmt þeim varða sektum …1) eða fangelsi allt að 4 árum, nema þyngri refsing liggi við eftir öðrum lögum. [Stórfelld brot eða [ítrekuð]2) varða fangelsi allt að 6 árum. Með stórfelldu broti er m.a. átt við brot sem er framið í sambandi við atvinnustarfsemi eða varðar mörg eða sérstaklega hættuleg vopn, efni eða tæki eða mikið magn sprengiefnis eða skotelda, enn fremur ef hætta eða tjón hefur hlotist af broti.]3)
[Gera má lögaðila sekt samkvæmt reglum II. kafla A almennra hegningarlaga fyrir brot gegn lögum þessum og reglum sem settar eru samkvæmt þeim.]3)
Tilraun og hlutdeild í brotum á lögum þessum og reglum settum samkvæmt þeim eru refsiverð skv. III. kafla almennra hegningarlaga.
   1)L. 82/1998, 242. gr. 2)L. 11/2024, 27. gr. 3)L. 77/2015, 7. gr.
37. gr.
Skotvopn, skotfæri, sprengiefni og skotelda, sem flutt hafa verið til landsins eða framleidd eru í landinu án heimildar eða finnast vörslulaus eða í vörslu manns án heimildar, skal gera upptæk til ríkissjóðs. Jafnframt skal gera upptæk með sama hætti önnur vopn sem ólögmæt teljast samkvæmt lögum þessum og reglum settum samkvæmt þeim.
Nú fremur maður brot með nefndum tækjum eða efnum og skilyrði til upptöku þeirra er fyrir hendi, og er þá heimilt, ef brot er stórfellt, að gera einnig upptæk önnur slík tæki og efni sem sökunautur hefur leyfi fyrir. [Þá er heimilt, ef um stórfellt brot á lögum þessum er að ræða, að gera upptæk önnur slík tæki og efni sem lög þessi taka til eða viðkomandi hefur leyfi fyrir.]1)
Að öðru leyti skal fara um eignaupptöku samkvæmt ákvæðum …1) almennra hegningarlaga.
Ríkislögreglustjóri ákvarðar hvernig geymslu og ráðstöfun þeirra vopna er háttað sem haldlögð eru vegna afturköllunar leyfis eða gerð eru upptæk samkvæmt kafla þessum.
   1)L. 11/2024, 28. gr.

VIII. kafli. Ýmis ákvæði.
38. gr.1)
   1)L. 11/2024, 29. gr.
[39. gr. Innleiðing.
Lög þessi fela í sér innleiðingu á tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2007/23/EB frá 23. maí 2007 um að setja á markað flugeldavörur og tilskipun framkvæmdastjórnarinnar 2008/43/EB frá 4. apríl 2008 um að koma á, samkvæmt tilskipun ráðsins 93/15/EBE, kerfi til að auðkenna og rekja sprengiefni til almennra nota, eins og þær voru teknar upp í samninginn um Evrópska efnahagssvæðið með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 119/2010 frá 10. nóvember 2010 um breytingu á II. viðauka við EES-samninginn frá 2. maí 1992.
[Lög þessi fela í sér innleiðingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 98/2013 frá 15. janúar 2013 um markaðssetningu og notkun forefna sprengiefna, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 269/2014 frá 12. desember 2014.]1)]2)
   1)L. 33/2017, 5. gr. 2)L. 77/2015, 8. gr.
[40. gr.]1)
Ráðherra getur sett í reglugerð2) nánari ákvæði um framkvæmd laga þessara.
[Ráðherra er heimilt að setja í reglugerð tímabundin ákvæði um innköllun skotvopna, nauðsynlegra íhluta, skotfæra og annarra vopna þar sem einstaklingum, fyrirtækjum, samtökum, félögum og öðrum er heimilt að skila til lögreglu, þeim að refsilausu, vopnum sem ekki eru skráð í samræmi við lög þessi eða í löglegri vörslu. Jafnframt er ráðherra heimilt að setja í reglugerð tímabundið ákvæði samtímis um skráningu þessara skotvopna í samræmi við lög þessi.]3)
   1)L. 77/2015, 8. gr. 2)Rg. 787/1998, sbr. 688/2003, 162/2007, 433/2007, 846/2007, 540/2008, 964/2008, 258/2010 og 832/2016. Rg. 414/2017, sbr. 1511/2021. Rg. 510/2018, sbr. 1056/2018. 3)L. 11/2024, 30. gr.
[41. gr.]1)
Lög þessi öðlast gildi 1. september 1998.
   1)L. 77/2015, 8. gr.
[Ákvæði til bráðabirgða.
Framleiðendur og innflytjendur skv. 2. og 3. mgr. 33. gr. um CE-samræmismerkingu og gerðarviðurkenningu skulu hafa lagað sig að reglunum eigi síðar en 15. janúar 2017. Ákvæði þetta gildir ekki um skotelda sem eru framleiddir hér á landi.
Óheimilt er að selja skotelda sem fluttir hafa verið inn fyrir 1. janúar 2015 og uppfylla ekki skilyrði 2. mgr. 33. gr. um CE-samræmismerkingu til landa innan Evrópska efnahagssvæðisins.]1)
   1)L. 77/2015, 9. gr.