Lagasafn.  Íslensk lög 12. apríl 2024.  Útgáfa 154b.  Prenta í tveimur dálkum.


Lög um vaktstöð siglinga

2003 nr. 41 20. mars


Ferill málsins á Alþingi.   Frumvarp til laga.

Tóku gildi 3. apríl 2003. EES-samningurinn: XIII. viðauki tilskipun 2002/59/EB. Breytt með: L. 162/2010 (tóku gildi 1. jan. 2011). L. 126/2011 (tóku gildi 30. sept. 2011). L. 59/2013 (tóku gildi 1. júlí 2013). L. 119/2014 (tóku gildi 16. des. 2014). L. 81/2015 (tóku gildi 23. júlí 2015). L. 40/2017 (tóku gildi 17. júní 2017). L. 47/2018 (tóku gildi 26. maí 2018). L. 90/2018 (tóku gildi 15. júlí 2018; EES-samningurinn: XI. viðauki reglugerð 2016/679). L. 121/2018 (tóku gildi 12. des. 2018). L. 71/2019 (tóku gildi 5. júlí 2019). L. 86/2023 (tóku gildi 8. des. 2023).

Ef í lögum þessum er getið um ráðherra eða ráðuneyti án þess að málefnasvið sé tilgreint sérstaklega eða til þess vísað, er átt við innviðaráðherra eða innviðaráðuneyti sem fer með lög þessi. Upplýsingar um málefnasvið ráðuneyta skv. forsetaúrskurði er að finna hér.

I. kafli. Almenn ákvæði.
1. gr. Yfirstjórn.
[Ráðherra]1) fer með yfirstjórn mála er varða vaktstöð siglinga, en [Samgöngustofa og Vegagerðin fara]2) með framkvæmd þeirra svo sem nánar er kveðið á um í lögum þessum.
   1)L. 126/2011, 363. gr. 2)L. 59/2013, 22. gr.
2. gr. Markmið og hlutverk.
Markmið þessara laga er að tryggja öruggar siglingar í íslenskri efnahagslögsögu, öryggi skipa, farþega og áhafna [og siglingavernd]1) og efla varnir gegn mengun sjávar frá skipum, [greiða fyrir flutningum á sjó og draga úr stjórnsýslubyrði skipafélaga].2) Til að ná þessu markmiði skal [Vegagerðin]3) setja á fót vaktstöð siglinga sem veitir skipum sem sigla um íslenska efnahagslögsögu m.a. eftirfarandi öryggisþjónustu:
   a. vöktun og eftirlit sjálfvirks tilkynningarkerfis skipa (STK), þ.m.t. sjálfvirks alþjóðlegs auðkenningarkerfis skipa (AIS),
   b. móttöku og miðlun tilkynninga frá skipum sem flytja hættulegan og/eða mengandi varning,
   c. móttöku og miðlun neyðarkalla til viðeigandi aðila auk tilkynninga um óhöpp eða slys á sjó,
   d. móttöku og miðlun tilkynninga frá farþegaskipum vegna talningar og skráningar farþega,
   e. vöktun alþjóðlegs neyðar- og öryggisfjarskiptakerfis skipa (GMDSS) og ritstjórn fyrir þjónustu alþjóðlegs viðvörunarkerfis skipa (NAVTEX),
   f. skráningu skipa sem falla undir hafnarríkiseftirlit,
   g. móttöku tilkynninga og miðlun upplýsinga um bilanir í vitakerfinu og farartálma á sjó,
   [h. móttöku og miðlun upplýsinga samkvæmt lögum þessum og reglugerðum settum samkvæmt þeim um samræmda afhendingu og miðlun upplýsinga um flutninga á sjó,]2)
   [i. móttöku upplýsinga um úrgang og farmleifar skipa,
   j. vöktun og greiningu verndarupplýsinga í tilkynningum í SafeSeaNet-kerfinu],1)
   [k.]1) samskipti við hafnir sem [Samgöngustofa]3) hefur útnefnt sem [skipaafdrep],4)
   [l.]1) önnur verkefni í þágu þriðja aðila sem [Vegagerðin]3) heimilar,
   [m.]1) önnur verkefni sem [ráðherra]5) telur í þágu almannaheilla.
[Ef tilkynning berst ekki frá skipi á reglulegum tíma eða ef vaktstöð siglinga berast upplýsingar sem gefa tilefni til að ætla að ástæða sé til eftirgrennslunar, leitar eða björgunar skipa í íslenskri lögsögu skal hún þegar tilkynna Landhelgisgæslu Íslands um málið og skal Landhelgisgæsla Íslands, ef þörf krefur, virkja alla þá aðila sem lögum samkvæmt sjá um leit og björgun, þ.m.t. viðeigandi björgunarsveitir eftir atvikum.
Vegagerðinni er heimilt að fela Landhelgisgæslu Íslands að annast tiltekin verkefni vaktstöðvar siglinga samkvæmt lögum þessum. Vegagerðinni er jafnframt heimilt að gera þjónustusamning við aðra aðila um einstaka þætti reksturs vaktstöðvar siglinga.]1)
   1)L. 86/2023, 1. gr. 2)L. 40/2017, 15. gr. 3)L. 59/2013, 22. gr. 4)L. 119/2014, 12. gr. 5)L. 162/2010, 235. gr.
3. gr. Skilgreiningar.
Í lögum þessum merkir:
   1. Skip: Hvert það far sem er sex metrar á lengd eða lengra, mælt milli stafna, og notað á sjó.
   2. Leiðsögumaður: Hver sá sem fengið hefur skírteini til leiðsögu skipa um tiltekið svæði eða við tilteknar aðstæður.
   3. Leiðsöguskylda: Skylda til að hafa um borð leiðsögumann við siglingu skipa um tiltekið svæði eða við tilteknar aðstæður.
   4. Hafnsögumaður: Leiðsögumaður sem fengið hefur skírteini til leiðsögu skipa um tiltekið hafnarsvæði.
   5. Hafnsöguskylda: Skylda til að hafa um borð hafnsögumann við siglingu skipa um tiltekið hafnarsvæði eða við tilteknar aðstæður.
   6. Hafnarsvæði: Svæði við höfn sem nánar er tilgreint í reglugerð um viðkomandi höfn.
   7. Farmsendandi: Hver sá sem gerir samning við farmflytjanda um flutning á vörum á sjó eða samningurinn er gerður í hans nafni eða fyrir hans hönd.
   8. Umboðsmaður: Sá sem annast milligöngu útgerðar eða leigutaka skips og stjórnvalda.
   9. Hættulegur varningur: Hver sá varningur sem flokkaður er í IMDG-kóðanum, í 17. kafla IBC-kóðans eða í 19. kafla IGC-kóðans, þ.m.t. geislavirk efni sem vísað er til í INF-kóðanum.
   10. Mengandi varningur: Olíur samkvæmt skilgreiningu í I. viðauka við MARPOL, fljótandi eiturefni samkvæmt skilgreiningu II. viðauka við MARPOL og skaðleg efni samkvæmt skilgreiningu III. viðauka við MARPOL.

II. kafli. Tilkynningar skipa.
4. gr.
Tilkynningar sem skipum er skylt að senda samkvæmt ákvæðum þessara laga skulu sendar vaktstöð siglinga eða öðrum aðila eftir því sem nánar verður ákveðið í reglugerð.
A. Tilkynningar um staðsetningu skipa.
5. gr.
Tilgangur með sjálfvirku tilkynningarkerfi skipa er að tryggja að vitað sé hvaða skip eru á sjó og hver sé staðsetning þeirra og að tryggja skjót viðbrögð við eftirgrennslan, leit og björgun ef skip lendir í sjávarháska.
Heimilt er að nota upplýsingar vaktstöðvarinnar í öðrum tilgangi, t.d. við fiskveiðieftirlit, skipaeftirlit og eftirlit með mengun sjávar. [Vegagerðin]1) getur ákveðið og samið um að gjald komi fyrir aðgang að upplýsingum og/eða aðra þjónustu sem vaktstöðin veitir þriðja aðila.
Fyrir þjónustu í sjálfvirka tilkynningarkerfinu skal eigandi hvers skips greiða árgjald sem rennur [í ríkissjóð].2)
   1)L. 59/2013, 22. gr. 2)L. 47/2018, 42. gr.
6. gr.
Öll íslensk skip skulu tilkynna staðsetningu sína gegnum sjálfvirkt tilkynningarkerfi með tilteknu millibili eftir því sem nánar er ákveðið í reglugerð. Undanþegin ákvæðinu eru varðskip og skip sem ekki eru notuð í atvinnuskyni. Jafnframt er [ráðherra]1) heimilt að ákveða með reglugerð að skip sem stunda veiðar nálægt landi verði undanþegin ákvæðinu.
Erlend skip, sem sigla inn í íslenska efnahagslögsögu, skulu tilkynna um það. Í tilkynningunni skal koma fram nafn skips, heimahöfn, þjóðerni, eigandi skips og útgerðaraðili sé hann ekki eigandi, skipstjóri og umboðsmaður útgerðar hér á landi.
   1)L. 162/2010, 235. gr.
B. Tilkynningar um komu.
7. gr. Tilkynning áður en haldið er til hafnar.
Skip, 300 brúttótonn að stærð og stærri, nema varðskip og fiskiskip styttri en 45 metrar, sem eru á leið til hafnar skulu tilkynna komu sína til vaktstöðvar siglinga með tilteknum fyrirvara sem ákveðinn er í reglugerð.
[Farþegaskip, 300 brúttótonn að stærð og stærri, sem sigla milli íslenskra hafna, skulu tilkynna vaktstöð siglinga um áætlaða leið að næstu höfn með tilteknum fyrirvara. Jafnframt skulu þau með tilteknum fyrirvara tilkynna vaktstöðinni þegar þau hyggjast setja farþega í land utan hafna. Ráðherra skal með reglugerð mæla nánar fyrir um tilkynningarskyldu.]1)
   1)L. 86/2023, 2. gr.
C. Tilkynningar vegna hættulegs varnings.
8. gr. Tilkynning áður en haldið er til hafnar.
Öll skip, sem sigla inn í íslenska efnahagslögsögu með hættulegan eða mengandi varning í meira magni en tiltekið er í reglugerð, skulu með tilteknum fyrirvara sem ákveðinn skal í reglugerð tilkynna um komu sína og gefa upplýsingar m.a. um auðkenni skips, ákvörðunarhöfn, brottfarartíma skips, áætlaðan komutíma og rétt tækniheiti hættulegs eða mengandi varnings.
9. gr. Skyldur farmsendanda.
Ekki má bjóða hættulegan eða mengandi varning til flutnings með skipum eða taka hann um borð í íslenskri höfn nema skipstjóri eða rekstraraðili hafi í höndum yfirlýsingu með réttum tækniheitum varningsins, númerum Sameinuðu þjóðanna ef þau eru fyrir hendi, hættuflokki og magni slíks varnings og auðkennum hans ef hann er í flutningseiningum öðrum en tönkum.
Farmsendandi ber ábyrgð á að afhenda skipstjóra eða útgerð yfirlýsingu um að farmurinn sem boðinn er til flutnings sé raunverulega sá sem lýst er yfir skv. 1. mgr.
10. gr. Undanþágur.
[Samgöngustofa]1) má veita útgerðum í áætlunarsiglingum milli hafna innan lands undanþágu frá kröfum um tilkynningu skv. 8. gr. ef eftirtalin skilyrði eru uppfyllt:
   a. að útgerðin haldi og uppfæri skrá yfir skip sem stunda þessa flutninga og afhendi hana vaktstöð siglinga eftir því sem nánar er ákveðið í reglugerð og
   b. að upplýsingar um farm séu ætíð til reiðu.
Ef tvö eða fleiri aðildarríki Evrópska efnahagssvæðisins hafa samráð um alþjóðlegar áætlunarsiglingar sem eitt félag stundar geta þau í samráði veitt hlutaðeigandi félagi undanþágu í samræmi við kröfur sem kveðið er á um í þessari grein.
   1)L. 59/2013, 22. gr.
D. Tilkynningar um óhapp og slys á sjó.
11. gr. Tilkynning um óhöpp og slys á sjó.
Skipstjóri skips sem siglir um landhelgi eða efnahagslögsögu Íslands skal eftir því sem nánar er ákveðið í reglugerð tilkynna tafarlaust um sérhvert óhapp eða slys sem hefur áhrif á öryggi áhafnar, farþega og skips, ógnar öryggi í siglingum og kann að valda mengun sjávar eða stranda Íslands.

III. kafli. Hafnsaga og leiðsaga.
12. gr. Hafnsaga skipa.
[Hafnarstjórn er heimilt að mæla fyrir um hafnsögu og hafnsöguskyldu, sbr. þó 2. mgr.
Öll skip sem flytja hættulegan eða mengandi varning í farmrými eða á þilfari í meira magni en tiltekið er í reglugerð skulu hafa um borð leiðsögumann við siglingu um hafnarsvæði.
Hafnarstjórn er heimilt að veita skipstjóra skips undanþágu frá hafnsöguskyldu.
Hafnarstjórnir ráða hafnsögumenn.
Heimilt er að mæla nánar fyrir um hafnsögu og hafnsöguskyldu, undanþágu frá hafnsögu og skilyrði fyrir henni, skyldur og réttindi hafnsögumanna o.fl. í hafnarreglugerð, sbr. 1. mgr. 4. gr. hafnalaga.]1)
   1)L. 121/2018, 1. gr.
13. gr. Leiðsaga skipa.
Til að tryggja öryggi siglinga og varnir gegn mengun sjávar er [ráðherra]1) heimilt að ákveða með reglugerð að skip skuli hafa um borð leiðsögumann við siglingar um tiltekið svæði eða við tilteknar aðstæður. Ráðherra getur jafnframt með reglugerð2) falið vaktstöð siglinga að fara með leiðarstjórnun skipa um tiltekin svæði eða við tilteknar aðstæður.
[Samgöngustofa]3) gefur út skírteini fyrir leiðsögu- og hafnsögumenn. Skírteinið gildir fyrir tiltekið svæði til allt að fimm ára í senn, þó aldrei lengur en til 70 ára aldurs skírteinishafa. Um skírteinin skal nánar kveðið á í reglugerð.
Sá sem fullnægir eftirtöldum skilyrðum getur öðlast skírteini til að vera hafnsögu- og leiðsögumaður skipa:
   1. Er 25–69 ára að aldri.
   2. Hefur fullnægjandi heilbrigðisvottorð.
   3. Hefur lokið 2. stigs skipstjórnarnámi eða samsvarandi námi og hefur siglt sem skipstjóri eða stýrimaður á skipi um svæði sem tilgreint er á skírteininu og þekkir til hlítar siglingaleiðir á svæðinu.
   4. Hefur lokið námskeiði til að vera hafnsögu- og leiðsögumaður eftir því sem nánar segir í reglugerð.
Skilyrðum skv. 3. mgr. verður einnig að vera fullnægt eftir að skírteinið hefur verið gefið út.
[Samgöngustofu]3) er heimilt að veita tímabundna undanþágu frá skilyrðum skv. 3. mgr. þegar sérstaklega stendur á.
   1)L. 162/2010, 235. gr. 2)Rg. 524/2008, sbr. 361/2009 og 1195/2022. 3)L. 59/2013, 22. gr.
14. gr. [Réttindi og skyldur leiðsögumanns.
Leiðsögumaður ber ábyrgð á leiðsögu sinni. Leiðsögumaður skal leiðbeina og aðstoða stjórnanda skips þannig að komist sé á milli áfangastaða á öruggan hátt og án óþarfa tafa. Leiðsögumanni er óheimilt að yfirgefa skip fyrr en það er komið á áfangastað nema með leyfi skipstjóra. Leiðsögumaður skal aðstoða við að koma skipi í festar þegar slík aðstoð er ekki fyrir hendi í viðkomandi höfn.
Leiðsögumaður skal í starfi sínu aðstoða yfirvöld við framkvæmd starfa þeirra. Leiðsögumaður skal tafarlaust upplýsa viðeigandi yfirvöld um hættur eða annað sem kann að ógna öryggi skipa eða valda mengun hafs og stranda. Sérstök varúð skal viðhöfð til að hindra mengun hafs og stranda af völdum hættulegra efna. Leiðsögumaður skal reyna með öllum tiltækum ráðum að halda útbreiðslu mengunar í lágmarki.
Meðan leiðsögumaður dvelur um borð í skipi ber skipstjóra að sjá honum fyrir fæði.]1)
   1)L. 121/2018, 2. gr.
15. gr. Umboðsmaður skips.
Skylt er útgerð skips, sem siglir um íslenska efnahagslögsögu með hættulegan eða mengandi varning í farmrými eða á þilfari í meira magni en tiltekið er í reglugerð og áformar að hafa hér viðkomu, að hafa umboðsmann hér á landi. Sé skipið gert út af íslensku útgerðarfélagi telst útgerðin umboðsmaður. Umboðsmaður sér um að útvega leiðsögumenn til að fylgja skipinu.
Ef ástæða þykir til er heimilt að krefjast trygginga vegna hugsanlegs tjóns sem skipið kann að valda hér við land. Skal umboðsmaður skipsins hafa milligöngu um að leggja fram slíka tryggingu.
16. gr. Undanþágur.
Undanskilin ákvæðum laga þessara um hafnsögu, leiðsögu og umboðsmann eru skip sem leita hafnar vegna bráðrar hættu eða til að setja á land alvarlega sjúka menn eða slasaða.

[III. kafli A. Aðgangur erlendra ríkisskipa að íslensku yfirráðasvæði.]1)
   1)L. 81/2015, 2. gr.
[16. gr. a. Gildissvið.
Ákvæði þessa kafla gilda um erlend ríkisskip. Sá ráðherra sem fer með utanríkismál fer með framkvæmd þessa kafla.]1)
   1)L. 81/2015, 2. gr.
[16. gr. b. Aðgangur erlendra ríkisskipa.
Erlent ríkisskip má því aðeins koma inn á íslenskt yfirráðasvæði að til þess liggi formleg heimild. Þetta á þó ekki við er um friðsamlega ferð um landhelgina í skilningi hafréttarsamnings Sameinuðu þjóðanna frá 10. desember 1982 er að ræða.
Ráðherra ákveður á hvaða stöðum erlent ríkisskip getur átt viðkomu og hvernig ferðum þess skuli háttað innan íslensks yfirráðasvæðis.
Ráðherra getur hvenær sem er afturkallað leyfi til komu erlends ríkisskips eða ferðar um íslenskt yfirráðasvæði sem og ákveðið að erlent ríkisskip skuli yfirgefa íslenskt yfirráðasvæði fyrirvaralaust.
Ráðherra setur nánari reglur um komur og ferðir erlendra ríkisskipa, svo sem varðandi umsóknarfresti, leyfilegan búnað, hvaða starfsemi þau megi stunda og tilkynningarskyldu þeirra, svo og komur og dvöl áhafna og farþega ríkisskipa.]1)
   1)L. 81/2015, 2. gr.

[III. kafli B. Samræmd afhending og miðlun upplýsinga um flutninga á sjó.]1)
   1)L. 40/2017, 16. gr.
[16. gr. c. Afhending upplýsinga.
Skipum sem koma til hafnar eða láta úr höfn á Íslandi er skylt að fara eftir ákvæðum þessa kafla.
Skipstjóra, rekstraraðila eða umboðsmanni útgerðar er skylt að afhenda vaktstöð siglinga upplýsingar sem veita ber vegna komu og brottfarar skipa samkvæmt ákvæðum laga og stjórnvaldsfyrirmæla þar að lútandi með þeim hætti sem ráðherra ákveður í reglugerð.1)
Upplýsingarnar skulu veittar rafrænt innan þess tíma sem ráðherra ákveður í reglugerð.1)]2)
   1)Rg. 690/2000, sbr. 1191/2020. Rg. 619/2017, sbr. 625/2022. 2)L. 40/2017, 16. gr.
[16. gr. d. Miðlun upplýsinga.
Vaktstöð siglinga tekur við upplýsingum skv. 2. gr., varðveitir þær og framsendir til réttra stjórnvalda innan lands. Vaktstöð siglinga er undanþegin ákvæðum um aðgang að upplýsingum samkvæmt upplýsingalögum og stjórnsýslulögum hvað framsendar upplýsingar varðar.
Upplýsingarnar skulu vera aðgengilegar viðeigandi stjórnvöldum aðildarríkja samningsins um Evrópska efnahagssvæðið að því gefnu að þau hafi sambærilegar skyldur og samsvarandi íslensk stjórnvöld hvað varðar þagnarskyldu og vernd persónuupplýsinga.]1)
   1)L. 40/2017, 16. gr.
[16. gr. e. Þagnarskylda og meðferð upplýsinga.
[Starfsmenn vaktstöðvar siglinga eru bundnir þagnarskyldu skv. X. kafla stjórnsýslulaga.]1)
Um vinnslu persónuupplýsinga fer samkvæmt ákvæðum laga um persónuvernd og [vinnslu]2) persónuupplýsinga.]3)
   1)L. 71/2019, 5. gr. 2)L. 90/2018, 54. gr. 3)L. 40/2017, 16. gr.

IV. kafli. Önnur ákvæði.
17. gr. Reglugerð.
[Ráðherra]1) skal setja í reglugerð2) nánari ákvæði um framkvæmd laga þessara, þar á meðal um hafnsögu- og leiðsöguskyldu skipa, umboðsmann skipa og tilkynningar skipa, þ.m.t. um staðsetningu, flutning hættulegs eða mengandi varnings og óhöpp og slys.
[Ráðherra er enn fremur heimilt að setja reglugerðir um tilkynningarskyldu, hvort sem er vegna komu til hafnar eða brottfarar frá höfn, sem og um form tilkynninga, að því leyti sem það er nauðsynlegt vegna skuldbindinga samkvæmt samningnum um Evrópska efnahagssvæðið, sbr. lög nr. 2/1993.]3)
Greiða skal fyrir útgáfu skírteina samkvæmt lögum þessum og skulu þau gjöld standa undir kostnaði [Samgöngustofu]4) við afgreiðslu þeirra. Gjöld skulu ákveðin í gjaldskrá stofnunarinnar.
   1)L. 162/2010, 235. gr. 2)Rg. 320/1998. Rg. 690/2000, sbr. 1191/2020. Rg. 287/2005, sbr. 1183/2006. Rg. 290/2005, sbr. 1182/2006 og 438/2014. Rg. 292/2005. Rg. 294/2005. Rg. 584/2005. Rg. 633/2005. Rg. 981/2005. Rg. 982/2005. Rg. 983/2005. Rg. 989/2005. Rg. 1190/2005. Rg. 1191/2005. Rg. 34/2006. Rg. 275/2006, sbr. 499/2007. Rg. 283/2006. Rg. 882/2007. Rg. 244/2008. Rg. 512/2009. Rg. 798/2009. Rg. 775/2010. Rg. 423/2012. Rg. 1030/2012. Rg. 80/2013, sbr. 1179/2015. Rg. 638/2014. Rg. 619/2017, sbr. 625/2022. Rg. 1040/2018, sbr. 209/2022. Rg. 1300/2018. Rg. 835/2020. Rg. 50/2024. 1)L. 86/2023, 3. gr. 4)L. 59/2013, 22. gr.
18. gr. Viðurlög.
Brot gegn lögum þessum eða reglum sem settar eru samkvæmt þeim varða sektum eða fangelsi allt að tveimur árum. Beita skal ákvæðum almennra hegningarlaga um tilraun og hlutdeild.
Leiði brot á lögum þessum eða reglum settum samkvæmt þeim til skipstrands, áreksturs skipa eða annarra sjóslysa skal viðkomandi sæta refsingu og eftir atvikum réttindasviptingu til skipstjórnar eða vélstjórnar skv. 238. gr. siglingalaga, nr. 34/1985, með síðari breytingum.
Svipta skal skírteinishafa samkvæmt lögum þessum rétti til starfa þess sem skírteinið veitir ef hann gerist sekur um vítavert brot gegn lögum þessum eða reglum settum samkvæmt þeim, eða ef telja verður með hliðsjón af eðli brotsins eða annars framferðis hans sem skírteinishafa að varhugavert sé að hann neyti réttinda samkvæmt skírteininu.
Svipting starfsréttinda skal vera um ákveðinn tíma, eigi skemur en þrjá mánuði og ævilangt ef sakir eru miklar eða brot ítrekað.
[18. gr. a. Stjórnvaldssektir.
Vegagerðin getur lagt stjórnvaldssektir á einstakling eða lögaðila sem brýtur gegn eða uppfyllir ekki skilyrði eftirfarandi ákvæða og reglna sem settar eru samkvæmt þeim:
   a. 1. mgr. 7. gr. um tilkynningu um komu áður en haldið er til hafnar,
   b. 2. mgr. 7. gr. um tilkynningu um áætlaða leið að næstu höfn,
   c. 8. gr. um tilkynningu um komu með hættulegan eða mengandi varning,
   d. 1. mgr. 13. gr. um leiðsögu skipa og leiðarstjórnun,
   e. 2. mgr. 16. gr. c um afhendingu upplýsinga um komu og brottfarir skipa.
Landhelgisgæslu Íslands er heimilt að leggja á stjórnvaldssektir skv. 1. mgr. hafi henni verið falin tiltekin verkefni í samræmi við 3. mgr. 2. gr.
Stjórnvaldssektir sem lagðar eru á einstaklinga geta numið frá 25 þús. kr. til 200 þús. kr. Sektir sem lagðar eru á lögaðila geta numið frá 25 þús. kr. til 500 þús. kr.
Við ákvörðun um fjárhæð sekta skal m.a. taka tillit til þess hve lengi brot hefur staðið yfir, samstarfsvilja hins brotlega, hvort brot var framið af ásetningi eða gáleysi og hvort um ítrekað brot er að ræða. Vegagerðinni, og eftir atvikum Landhelgisgæslu Íslands, er heimilt að ákveða hærri sektir hafi aðili hagnast á broti. Skal upphæð stjórnvaldssektar þá ákveðin sem allt að tvöfalt margfeldi af þeim hagnaði sem aðili hefur aflað sér með broti gegn lögum þessum.
Gjalddagi stjórnvaldssektar er 30 dögum eftir að ákvörðun um sektina var tekin. Sé gjaldið ekki greitt innan mánaðar frá gjalddaga skal greiða ríkissjóði dráttarvexti skv. 6. gr. laga um vexti og verðtryggingu, nr. 38/2001, af þeirri fjárhæð sem gjaldfallin er frá gjalddaga.
Ákvörðun um stjórnvaldssekt er aðfararhæf án undangengins dóms eða sáttar. Stjórnvaldssektir renna í ríkissjóð, að frádregnum kostnaði við innheimtu.
Stjórnvaldssektum skal beitt óháð því hvort lögbrot eru framin af ásetningi eða gáleysi.
Aðili máls getur skotið ákvörðun um stjórnvaldssekt til ráðherra sem fer með samgöngumál innan þriggja mánaða frá því að aðila var tilkynnt um ákvörðunina. Málskot til ráðherra frestar aðför. Úrskurðir ráðherra um stjórnvaldssektir eru aðfararhæfir.]1)
   1)L. 86/2023, 4. gr.
19. gr.
[Samgöngustofu]1) er heimilt að afturkalla skírteini samkvæmt lögum þessum ef lögmætur handhafi þess fullnægir ekki lengur skilyrðum laganna til að öðlast slíkt skírteini eða vera skírteinishafi.
Nú telur [Samgöngustofa]1) að skilyrði skv. 3. mgr. 18. gr. séu fyrir hendi til sviptingar starfsréttinda og er stofnuninni þá heimilt að svipta viðkomandi aðila starfsréttindum til bráðabirgða. Skal slík svipting vera tímabundin eða ákvörðuð til þess tíma þegar endanleg ákvörðun dómstóls um sviptinguna liggur fyrir. Bráðabirgðasvipting samkvæmt ákvæði þessu skal dragast frá endanlegum sviptingartíma samkvæmt dómi.
   1)L. 59/2013, 22. gr.
20. gr. Gildistaka.
Lög þessi öðlast þegar gildi.