Lagasafn.  Íslensk lög 12. apríl 2024.  Útgáfa 154b.  Prenta í tveimur dálkum.


[Lög um Matís ohf.]1)

2006 nr. 68 14. júní


   1)L. 71/2021, 31. gr.
Ferill málsins á Alţingi.   Frumvarp til laga.

Tóku gildi 30. júní 2006. Breytt međ: L. 126/2011 (tóku gildi 30. sept. 2011). L. 88/2020 (tóku gildi 22. júlí 2020 nema 14. gr. sem tók gildi 1. jan. 2021). L. 71/2021 (tóku gildi 29. júní 2021 nema 29. gr. sem tók gildi 1. júlí 2021).


1. gr.
Ríkisstjórninni er heimilt ađ stofna hlutafélag …1) um rekstur Rannsóknastofnunar fiskiđnađarins, Matvćlarannsókna Keldnaholti, sbr. samstarfssamning milli Iđntćknistofnunar og Landbúnađarháskólans, og rannsóknastofu Umhverfisstofnunar.
Viđ stofnun félagsins skal allt hlutafé ţess vera í eigu íslenska ríkisins og stofnfé ákveđiđ í fjárlögum.
   1)L. 71/2021, 28. gr.
2. gr.
Tilgangur félagsins er ađ sinna rannsóknum og nýsköpun á sviđi matvćla í ţágu atvinnulífsins, lýđheilsu og matvćlaöryggis og fjármálalegri umsýslu á grundvelli laga og reglugerđa sem um ţetta gilda, svo og ađ reka ađra skylda starfsemi.
Tilgangi og verkefnum félagsins skal nánar lýst í samţykktum ţess. Heimilt er félaginu ađ stofna nýtt félag eđa félög sem verđi í eigu ţess til ađ annast ákveđna ţćtti starfseminnar. Ţá skal ţví einnig heimilt ađ standa ađ stofnun og gerast eignarađili ađ öđrum félögum og fyrirtćkjum.
Félaginu er heimilt ađ gera samninga viđ ađra ađila til ađ ná tilgangi sínum á sem hagkvćmastan hátt skv. 1. mgr.
3. gr.
Ákvćđi laga um hlutafélög gilda um félagiđ ef ekki er kveđiđ á um annađ í lögum ţessum.
4. gr.
Stjórn félagsins skal skipuđ [fimm fulltrúum].1) Ţeir skulu kosnir á ađalfundi ár hvert. [Ráđherra]2) fer međ eignarhlut ríkissjóđs í félaginu.
   1)L. 71/2021, 29. gr. 2)L. 126/2011, 432. gr.
5. gr.
Ţegar starfsemi Rannsóknastofnunar fiskiđnađarins, Matvćlarannsókna Keldnaholti og rannsóknastofu Umhverfisstofnunar verđur lögđ niđur, sbr. 1. gr., fer um réttindi og skyldur starfsmanna ţeirra eftir lögum nr. 70/1996, um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, međ síđari breytingum, og lögum nr. 72/2002, um réttarstöđu starfsmanna viđ ađilaskipti ađ fyrirtćkjum, eftir ţví sem viđ á. Félagiđ skal bjóđa störf öllum starfsmönnum framangreindra ríkisstofnana.
Um biđlaunarétt, sem kann ađ hafa fylgt störfum í framangreindum ríkisstofnunum, gilda ákvćđi laga nr. 70/1996, um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins.
6. gr.
Starfsmađur Rannsóknastofnunar fiskiđnađarins, Matvćlarannsókna Keldnaholti eđa rannsóknastofu Umhverfisstofnunar, sem hefur áunniđ sér rétt til lífeyrisgreiđslna skv. 24. gr. laga nr. 1/1997, um Lífeyrissjóđ starfsmanna ríkisins, og rćđst til starfa hjá hlutafélaginu međ minnst ţriggja mánađa uppsagnarfresti í hálft starf eđa meira getur ekki hafiđ töku lífeyris fyrr en hann lćtur af ţví starfi.
7. gr.
[Matís ohf.]1) er skylt ađ halda uppi tilskilinni öryggisţjónustu á sviđi matvćlarannsókna í ţágu landsmanna sem nánar er skilgreind í samningi viđ félagiđ. Félaginu er skylt ađ framkvćma rannsóknir vegna matvćlaeftirlits á vegum hins opinbera eftir ţví sem nánar kveđur á í samningi.
   1)L. 71/2021, 30. gr.
8. gr.
Félagiđ skal hefja rekstur 1. janúar 2007.
9. gr.
Lög ţessi öđlast ţegar gildi.
10. gr.
Ákvćđi til bráđabirgđa.
I.–III.1)
   1)L. 88/2020, 12. gr.
IV.
Ţrátt fyrir ákvćđi 8. gr. er heimilt ađ viđhalda Rannsóknastofnun fiskiđnađarins sem lögađila án starfsemi vegna uppgjörs og ađildar ađ samningum sem ákvörđun hefur veriđ tekin um fyrir 1. janúar 2007.