Lagasafn.  Íslensk lög 12. apríl 2024.  Útgáfa 154b.  Prenta í tveimur dálkum.


Lög um umhverfis- og auðlindaskatta

2009 nr. 129 23. desember


Ferill málsins á Alþingi.   Frumvarp til laga.

Tóku gildi 1. janúar 2010. Breytt með: L. 164/2010 (tóku gildi 1. jan. 2011 nema 2., 6., 22. og 26. gr. sem tóku gildi 31. des. 2010; komu til framkvæmda skv. fyrirmælum í 29. gr.). L. 126/2011 (tóku gildi 30. sept. 2011). L. 164/2011 (tóku gildi 30. des. 2011 nema 1.–2., 4.–5., 7., 15.–21., 24.–27., 29.–30. og 34.–39. gr. sem tóku gildi 1. jan. 2012; komu til framkvæmda skv. fyrirmælum í 40. gr.). L. 146/2012 (tóku gildi 1. jan. 2013 nema a- og d-liður 2. gr. sem tóku ekki gildi, sbr. l. 79/2013, 1. gr., og c-liður 2. gr. og 34. gr. sem tóku gildi 1. júlí 2013; komu til framkvæmda skv. fyrirmælum í 35. gr.). L. 140/2013 (tóku gildi 31. des. 2013 nema 1.–2., 4.–12., 16.–18., 23.–29., 31.–32., 34.–38. og 40.–48. gr. sem tóku gildi 1. jan. 2014 og 21. gr. sem tók gildi 1. jan. 2016; komu til framkvæmda skv. fyrirmælum í 49. gr.). L. 46/2014 (tóku gildi 1. júní 2014). L. 124/2014 (tóku gildi 1. jan. 2015 nema 3. gr. sem tók gildi 31. des. 2014 og a–d-, f–h- og j–l-liðir 1. gr. sem tóku gildi 1. jan. 2016; komu til framkvæmda skv. fyrirmælum í 11. gr.). L. 125/2015 (tóku gildi 1. jan. 2016 nema 2., 4.–5., 8., 24., 31., 37., 45., 48.–52., 54.–55. og 57.–58. gr. sem tóku gildi 31. des. 2015 og a–d-liður 1. gr., 6.–7., 13. og 15. gr. sem tóku gildi 1. jan. 2017; komu til framkvæmda skv. fyrirmælum í 59. gr.). L. 126/2016 (tóku gildi 1. jan. 2017 nema 1., 2., c-liður 8., 9., 18., r-liður 19., 20., 22.–24., 28., 29., 41., 58., 60. og 61. gr. sem tóku gildi 31. des. 2016, s-liður 19. gr. sem tók gildi 1. apríl 2017 og 10. gr. sem tók gildi 1. sept. 2017; komu til framkvæmda skv. fyrirmælum í 62. gr.). L. 59/2017 (tóku gildi 21. júní 2017 nema 4., 9.–11., 16. og 18.–25. gr. sem tóku gildi 1. jan. 2017, b- og c-liður 2. gr. og 6. gr. sem tóku gildi 1. jan. 2018 og 3. gr. sem tók gildi 1. jan. 2019 skv. l. 96/2017, 48. gr.; komu til framkvæmda skv. fyrirmælum í 26. gr.). L. 96/2017 (tóku gildi 31. des. 2017 nema 1., 11., 13., 14., 17.–27., 31.–35. og 38.–46. gr. sem tóku gildi 1. jan. 2018; komu til framkvæmda skv. fyrirmælum í 49. gr.). L. 138/2018 (tóku gildi 28. des. 2018 nema 1.–13., 17., 19., 23.–28. og 31. gr. sem tóku gildi 1. jan. 2019; komu til framkvæmda skv. fyrirmælum í 32. gr.). L. 142/2018 (tóku gildi 1. jan. 2019; komu til framkvæmda skv. fyrirmælum í 48. gr., sbr. einnig brbákv. í s.l.). L. 135/2019 (tóku gildi 1. jan. 2020 nema 16. gr. sem tók gildi 24. des. 2019; komu til framkvæmda skv. fyrirmælum í 42. gr.). L. 141/2019 (tóku gildi 1. jan. 2020). L. 33/2020 (tóku gildi 15. maí 2020; komu til framkvæmda skv. fyrirmælum í 35. gr.). L. 133/2020 (tóku gildi 1. jan. 2021 nema 37. og 38. gr. sem tóku gildi 17. des. 2020; komu til framkvæmda skv. fyrirmælum í 40. gr.). L. 131/2021 (tóku gildi 1. jan. 2022 nema d-liður 20. gr. sem tók gildi 31. des. 2021; komu til framkvæmda skv. fyrirmælum í 61. gr.). L. 133/2021 (tóku gildi 31. des. 2021 nema 3. gr. og 9.–19. gr. sem tóku gildi 1. jan. 2022; um lagaskil sjá 26. gr.). L. 129/2022 (tóku gildi 1. jan. 2023 nema a-liður 31. gr. sem tekur gildi 1. mars 2023 og 37. og 60. gr. sem tóku gildi 31. des. 2022; komu til framkvæmda skv. fyrirmælum í 68. gr., sbr. einnig brbákv. í s.l.). L. 100/2023 (tóku gildi 1. jan. 2024 nema 31., 32. og 38. gr. sem tóku gildi 30. des. 2023; koma til framkvæmda skv. fyrirmælum í 39. gr.).

Ef í lögum þessum er getið um ráðherra eða ráðuneyti án þess að málefnasvið sé tilgreint sérstaklega eða til þess vísað, er átt við fjármála- og efnahagsráðherra eða fjármála- og efnahagsráðuneyti sem fer með lög þessi. Upplýsingar um málefnasvið ráðuneyta skv. forsetaúrskurði er að finna hér.

I. kafli.
[Kolefnisgjald á kolefni af jarðefnauppruna.]1)
   1)L. 146/2012, 15. gr.
1. gr.
[Greiða skal í ríkissjóð kolefnisgjald af eldsneyti sem inniheldur kolefni af jarðefnauppruna og notað er á fljótandi eða loftkenndu formi eða í iðnaðarferlum þannig að sú notkun leiði til losunar koltvísýrings í andrúmsloftið. Með eldsneyti sem inniheldur kolefni af jarðefnauppruna á fljótandi eða loftkenndu formi er átt við gas- og dísilolíu, bensín, brennsluolíu og jarðolíugas og annað loftkennt kolvatnsefni.
Fjárhæð kolefnisgjalds skal vera [13,45 kr.]1) á hvern lítra af gas- og dísilolíu, [11,70 kr.]1) á hvern lítra af bensíni, [16,50 kr.]1) á hvert kílógramm af brennsluolíu og [14,65 kr.]1) á hvert kílógramm af jarðolíugasi og öðru loftkenndu kolvatnsefni.]2)
   1)L. 100/2023, 1. gr. 2)L. 146/2012, 15. gr.
Gjaldskyldir aðilar.
2. gr.
Gjaldskyldir aðilar samkvæmt lögum þessum eru:
   1. Allir þeir sem flytja til landsins vöru sem gjaldskyld er samkvæmt lögum þessum, hvort sem er til endursölu eða eigin nota.
   2. Allir þeir sem framleiða hér á landi vöru sem gjaldskyld er samkvæmt lögum þessum, vinna að framleiðslu hennar eða setja saman, hvort sem er til endursölu eða eigin nota.
[Aðilar sem eiga rétt á endurgreiðslu virðisaukaskatts skv. 10. mgr. 42. gr. laga um virðisaukaskatt, nr. 50/1988, eru undanþegnir gjaldskyldu í samræmi við sérlög eða ákvæði alþjóðasamninga eða tvíhliða samninga.]1)
Gjaldskyldum aðilum ber að standa skil á kolefnisgjaldi við tollafgreiðslu ef um innflutning er að ræða en við afhendingu í tilviki innlendrar framleiðslu eða aðvinnslu.
   1)L. 59/2017, 23. gr.
Álagning, innheimta, eftirlit o.fl.
3. gr.
[Tollyfirvöld]1) annast álagningu …2) kolefnisgjalds samkvæmt lögum þessum og [hafa]1) með höndum eftirlit.
Gjöld, sem lögð eru á samkvæmt lögum þessum, mynda gjaldstofn til virðisaukaskatts.
[Ríkisskattstjóri annast innheimtu kolefnisgjalds.]2)
   1)L. 141/2019, 64. gr. 2)L. 142/2018, 39. gr.
Ýmis ákvæði.
4. gr.
Að því leyti sem eigi er kveðið á um gjaldskyldu, álagningu, úrskurð um flokkun til gjaldskyldu, eftirlit, innheimtu, vörslusviptingu, uppboð, sektir, viðurlög, refsingar og aðra framkvæmd varðandi kolefnisgjald, skv. I. kafla laga þessara, skulu gilda ákvæði tollalaga, nr. 88/2005, [um innfluttar vörur og ákvæði laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, um innlendar framleiðsluvörur],1) eftir því sem við getur átt, svo og reglugerða og annarra fyrirmæla settra samkvæmt þeim.
Ráðherra getur með reglugerð sett nánari fyrirmæli um framkvæmd laga þessara.
   1)L. 124/2014, 4. gr.

II. kafli.
Skattur af raforku og heitu vatni.
5. gr.
Greiða skal í ríkissjóð sérstakan skatt af seldri raforku og heitu vatni eins og nánar er kveðið á um í lögum þessum.
1)
Fjárhæð skatts af heitu vatni skal vera 2,0% af smásöluverði á heitu vatni.
Heimilt er að miða innheimtu skatts af raforku og heitu vatni við áætlaða sölu.
   1)L. 146/2012, 17. gr.
Skattskyldir aðilar.
6. gr.
Skattskyldan nær til þeirra aðila sem selja raforku og heitt vatn á síðasta stigi viðskipta, þ.e. sölu til notenda, en notandi telst vera sá sem endurselur ekki raforku eða heitt vatn.
Undanþegnir skattskyldu skv. 1. mgr. eru þeir sem selja raforku eða heitt vatn fyrir minna en [2.000.000 kr. á hverju 12 mánaða tímabili frá því að starfsemi hefst].1)
Ríkisskattstjóri heldur skrá yfir skattskylda aðila samkvæmt þessari grein. Skattskyldir aðilar skulu ótilkvaddir senda ríkisskattstjóra tilkynningu um skattskylda starfsemi áður en starfsemi hefst.
   1)L. 133/2021, 9. gr.
7. gr.
Til skattskyldrar sölu eða afhendingar telst ekki:
   1. Raforka eða heitt vatn sem afhent er öðrum skattskyldum aðila.
   2. Raforka eða heitt vatn sem afhent er eða notað eingöngu til framleiðslu á raforku eða heitu vatni til endursölu.
Ráðherra er með reglugerð heimilt að kveða nánar á um skilyrði og framkvæmd vegna undanþágu frá greiðslu skatts af raforku og heitu vatni.
8. gr.
Skattskyldir aðilar skulu við sölu eða afhendingu á raforku eða heitu vatni gefa út sölureikning þar sem eftirfarandi upplýsingar koma fram:
   1. Útgáfudagur.
   2. Útgáfustaður.
   3. Afhendingarstaður ef annar en útgáfustaður.
   4. Nafn og kennitala seljanda.
   5. Nafn og kennitala kaupanda.
   6. Magn, einingarverð og heildarverð á raforku eða heitu vatni.
Auk upplýsinga sem tilgreindar eru í 1. mgr. skal á sölureikningi koma fram hvort skattur af raforku og heitu vatni sé lagður á og hver fjárhæð hans er. Um varðveislu sölureikninga gilda ákvæði laga nr. 145/1994, um bókhald.
Álagning.
9. gr.
Ríkisskattstjóri annast álagningu skatts af raforku og heitu vatni á þá aðila sem skráningarskyldir eru skv. 6. gr., vegna sölu þeirra á raforku eða heitu vatni.
Uppgjör og innheimta.
10. gr.
Skylda til að innheimta skatt af raforku og heitu vatni og standa skil á honum í ríkissjóð hvílir á þeim aðilum sem selja raforku eða heitt vatn til endanlegra notenda, í samræmi við ákvæði raforkulaga, nr. 65/2003, og orkulaga, nr. 58/1967.
Skattskyldir aðilar sem hlotið hafa skráningu skv. 6. gr. skulu greiða skatt af raforku og heitu vatni fyrir hvert uppgjörstímabil miðað við sölu.
Við uppgjör skatts af raforku og heitu vatni má draga frá fjárhæð sem nemur sannanlega töpuðum útistandandi kröfum eða ofgreiddum skatti, sbr. 4. mgr. 5. gr., af raforku og heitu vatni sem áður hefur verið skilað í ríkissjóð.
Uppgjörstímabil og skýrslur.
11. gr.
Uppgjörstímabil skatts af raforku og heitu vatni er tveir mánuðir, janúar og febrúar, mars og apríl, maí og júní, júlí og ágúst, september og október, nóvember og desember. Gjalddagi er fimmti dagur annars mánaðar eftir lok uppgjörstímabils. Beri gjalddaga upp á helgidag eða almennan frídag færist hann yfir á næsta virka dag á eftir. Eigi síðar en á gjalddaga skulu skattskyldir aðilar, sem hlotið hafa skráningu skv. 6. gr., ótilkvaddir skila innheimtumanni ríkissjóðs skýrslu yfir magn gjaldskyldrar raforku og heits vatns á uppgjörstímabilinu og standa skil á greiðslu skattsins. [Ráðherra]1) kveður í reglugerð á um greiðslustaði, greiðslufyrirkomulag og efni skýrslu, þar á meðal hvernig rafrænum skilum á skýrslu og greiðslu skuli háttað.
   1)L. 126/2011, 517. gr.
Ýmis ákvæði …1)
   1)L. 135/2019, 36. gr.
12. gr.
Að því leyti sem eigi er ákveðið í lögum þessum um álagningu, tilhögun bókhalds, eftirlit, upplýsingaskyldu, viðurlög, kærur og aðra framkvæmd varðandi skatt af raforku og heitu vatni, skv. II. kafla laga þessara, skulu gilda, eftir því sem við geta átt, ákvæði laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt.
Skattur, sem lagður er á samkvæmt lögum þessum, myndar gjaldstofn til virðisaukaskatts.

[III. kafli.]1)
   1)L. 135/2019, 37. gr.
[Skattlagning flúoraðra gróðurhúsalofttegunda.]1)
   1)L. 135/2019, 37. gr.
[13. gr.
Skattskyldir aðilar skulu greiða í ríkissjóð sérstakan skatt á hvert kíló af flúoruðum gróðurhúsalofttegundum sem fluttar eru til landsins eftir því sem nánar er kveðið á um í þessum kafla. Með flúoruðum gróðurhúsalofttegundum er átt við vetnisflúorkolefni, perflúorkolefni, brennisteinshexaflúoríð og aðrar gróðurhúsalofttegundir sem innihalda flúor eða blöndur sem innihalda einhver þessara efna.
Fjárhæð skatts á hvert kíló flúoraðrar gróðurhúsalofttegundar skal vera eftirfarandi:
Tollnr. (IS)IðnaðarheitiSkattur
2812.9010Brennisteinshexaflúoríð (SF6)10.000 kr./kg
3824.7810Blanda R404A9.805 kr./kg
3824.7811Blanda R407C4.435 kr./kg
3824.7812Blanda R407F4.563 kr./kg
3824.7813Blanda R410A5.220 kr./kg
3824.7814Blanda R422A7.858 kr./kg
3824.7815Blanda R422D6.823 kr./kg
3824.7816Blanda R428A9.018 kr./kg
3824.7817Blanda R434A8.113 kr./kg
3824.7818Blanda R437A4.513 kr./kg
3824.7819Blanda R438A5.663 kr./kg
3824.7820Blanda R448A3.468 kr./kg
3824.7821Blanda R449A3.493 kr./kg
3824.7822Blanda R5079.963 kr./kg
3824.7823Blanda R508B10.000 kr./kg
3824.7824Blanda R452A5.350 kr./kg
2903.3941HFC-1258.750 kr./kg
2903.3942HFC-1342.750 kr./kg
2903.3943HFC-134a3.575 kr./kg
2903.3944HFC-143883 kr./kg
2903.3945HFC-143a10.000 kr./kg
2903.3946HFC-152133 kr./kg
2903.3947HFC-152a310 kr./kg
2903.3948HFC-16130 kr./kg
2903.3949HFC-227ea8.050 kr./kg
2903.3950HFC-2310.000 kr./kg
2903.3951HFC-236cb3.350 kr./kg
2903.3952HFC-236ea3.425 kr./kg
2903.3953HFC-236fa10.000 kr./kg
2903.3954HFC-245ca1.733 kr./kg
2903.3955HFC-245fa2.575 kr./kg
2903.3956HFC-321.688 kr./kg
2903.3957HFC-365 mfc1.985 kr./kg
2903.3958HFC-41230 kr./kg
2903.3959HFC-43-10 mee4.100 kr./kg
2903.3960PFC-11610.000 kr./kg
2903.3961PFC-1410.000 kr./kg
2903.3962PFC-21810.000 kr./kg
2903.3963PFC-3-1-10 (R-31-10)10.000 kr./kg
2903.3964PFC-4-1-12 (R-41-12)10.000 kr./kg
2903.3965PFC-5-1-14 (R-51-14)10.000 kr./kg
2903.8910PFC-c-31810.000 kr./kg
Sé um að ræða innflutning á flúoruðum gróðurhúsalofttegundum öðrum en þeim sem tilteknar eru í 2. mgr. skal greiða skatt miðað við eftirfarandi forsendur:
   1. Fyrir flúoraðar gróðurhúsalofttegundir sem ekki eru tilteknar í 2. mgr. skal greiða skatt að fjárhæð 10.000 kr./kg.
   2. Fyrir blöndur sem ekki eru tilteknar í 2. mgr. skal reikna fjárhæð skatts út frá hlutföllum þeirra efna sem blandan samanstendur af.
   3. Fyrir aðrar blöndur sem ekki eru tilteknar í 2. mgr. og ekki er hægt að beita ákvæði 2. tölul. um skal greiða skatt að fjárhæð 10.000 kr./kg.]1)
   1)L. 135/2019, 37. gr.
[Skattskyldir aðilar.]1)
   1)L. 135/2019, 37. gr.
[14. gr.
Skattskyldir aðilar samkvæmt lögum þessum eru allir þeir sem flytja til landsins flúoraðar gróðurhúsalofttegundir sem falla undir ákvæði 13. gr.
Skattskyldum aðilum ber að standa skil á skattinum við tollafgreiðslu.]1)
   1)L. 135/2019, 37. gr.
[Álagning og innheimta.]1)
   1)L. 135/2019, 37. gr.
[15. gr.
Tollyfirvöld annast álagningu samkvæmt þessum kafla.
Skattur, sem lagður er á samkvæmt þessum kafla, myndar stofn til virðisaukaskatts.
Ríkisskattstjóri annast innheimtu samkvæmt þessum kafla.]1)
   1)L. 135/2019, 37. gr.
[Endurgreiðsla vegna útflutnings.]1)
   1)L. 33/2020, 34. gr.
[15. gr. a.
Þegar sannanlega er flutt úr landi flúoruð gróðurhúsalofttegund skv. 13. gr., sem skattur var sannanlega greiddur af við innflutning, getur skattskyldur aðili sótt um endurgreiðslu á þeim skatti hafi ekki liðið meira en 12 mánuðir frá tollafgreiðslu hennar, frá og með 1. janúar 2020.
Aðili sem óskar endurgreiðslu skv. 1. mgr. skal, innan sex mánaða frá því að vara er flutt úr landi, sækja um endurgreiðslu í sérstakri skýrslu til tollyfirvalda, á því formi sem þau ákveða, þar sem m.a. eru tilgreind tollskrárnúmer flúoraðrar gróðurhúsalofttegundar, sá kílóafjöldi sem fluttur var inn undir því númeri og fjárhæð þess skatts sem sannanlega var greiddur við innflutning viðkomandi vöru. Leggja skal fram þær upplýsingar og gögn sem nauðsynleg eru til afgreiðslu umsóknar, svo sem staðfestingu tollyfirvalda á inn- og útflutningi og staðfestingu á greiðslu skattsins.
Fjárhæð sem sótt er um endurgreiðslu á hverju sinni skal vera að lágmarki 10.000 kr. Fallist tollyfirvöld á umsóknina án frekari skýringa skal endurgreiðsla fara fram eigi síðar en 30 dögum eftir að umsókn er lögð fram, enda hafi fullnægjandi upplýsingar og gögn fylgt henni.]1)
   1)L. 33/2020, 34. gr.
[Ýmis ákvæði.]1)
   1)L. 135/2019, 37. gr.
[16. gr.
Að svo miklu leyti sem ekki er á annan veg kveðið á um í þessum kafla skulu ákvæði tollalaga, nr. 88/2005, eiga við um álagningu, innheimtu, tilhögun bókhalds, eftirlit, upplýsingaskyldu, viðurlög, kærur og aðra framkvæmd skattheimtu samkvæmt þessum kafla.
Ráðherra getur með reglugerð sett nánari fyrirmæli um framkvæmd þessa kafla.]1)
   1)L. 135/2019, 37. gr.
[17. gr.]1)
Lög þessi öðlast gildi 1. janúar 2010. [2. mgr. 5. gr. laganna, skattur af raforku, fellur úr gildi 31. desember 2015.]2)
   1)L. 135/2019, 37. gr. 2)L. 146/2012, 17. gr.

[Ákvæði til bráðabirgða.
I.
Þrátt fyrir ákvæði 2. mgr. 1. gr. skal fjárhæð kolefnisgjalds vera 10,40 kr. á hvern lítra af gas- og dísilolíu, 9,10 kr. á hvern lítra af bensíni, 12,80 kr. á hvert kílógramm af brennsluolíu og 11,40 kr. á hvert kílógramm af jarðolíugasi og öðru loftkenndu kolvatnsefni til 1. janúar 2020.]1)
   1)L. 138/2018, 2. gr.
[II.
Þrátt fyrir ákvæði 13. gr. skal á árinu 2020 greiða helming þeirra fjárhæða skatts sem þar eru tilteknar af flúoruðum gróðurhúsalofttegundum sem fluttar eru til landsins.]1)
   1)L. 135/2019, 38. gr.