Lagasafn.  Íslensk lög 12. apríl 2024.  Útgáfa 154b.  Prenta í tveimur dálkum.


Lög um samskiptaráðgjafa íþrótta- og æskulýðsstarfs

2019 nr. 45 25. maí


Ferill málsins á Alþingi.   Frumvarp til laga.

Tóku gildi 1. ágúst 2019 nema brbákv. I sem tók gildi 1. júní 2019. Breytt með: L. 61/2023 (tóku gildi 7. júlí 2023).

Ef í lögum þessum er getið um ráðherra eða ráðuneyti án þess að málefnasvið sé tilgreint sérstaklega eða til þess vísað, er átt við mennta- og barnamálaráðherra eða mennta- og barnamálaráðuneyti sem fer með lög þessi. Upplýsingar um málefnasvið ráðuneyta skv. forsetaúrskurði er að finna hér.

I. kafli. Gildissvið, markmið og orðskýringar.
1. gr. Gildissvið.
Starfssvið samskiptaráðgjafa íþrótta- og æskulýðsstarfs nær til skipulagðrar starfsemi eða starfsemi í tengslum við hana á vegum Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands, Ungmennafélags Íslands, æskulýðssamtaka sem starfa á grundvelli æskulýðslaga og aðila sem gera samning við það ráðuneyti sem fer með íþrótta- og æskulýðsmál um rekstrarframlag vegna sambærilegrar starfsemi.
2. gr. Markmið.
Markmið laga þessara er að íþrótta- og æskulýðsstarf fari fram í öruggu umhverfi og að börn, unglingar og fullorðnir, óháð kynferði eða stöðu að öðru leyti, geti stundað íþróttir eða æskulýðsstarf og leitað sér aðstoðar eða leitað réttar síns vegna atvika og misgerða sem eiga sér stað án þess að þurfa að óttast afleiðingarnar.
3. gr. Orðskýringar.
Með atvikum og misgerðum í lögum þessum er átt við andlegt, líkamlegt og kynferðislegt ofbeldi og áreitni, einelti og önnur sambærileg tilvik. Með því er átt við:
   1. Einelti: Síendurtekin hegðun sem almennt er til þess fallin að valda vanlíðan hjá þeim sem fyrir henni verður, svo sem að gera lítið úr, móðga, særa, hunsa eða ógna viðkomandi eða að valda honum ótta. Skoðanaágreiningur eða ágreiningur vegna ólíkra hagsmuna fellur ekki hér undir.
   2. Ofbeldi: Hvers kyns hegðun sem leiðir til eða getur leitt til líkamlegs eða sálræns skaða eða þjáninga þess sem fyrir henni verður, einnig hótun um slíkt, þvingun eða handahófskennd svipting frelsis.
   3. Kynbundin áreitni: Hegðun sem tengist kyni þess sem fyrir henni verður, er í óþökk viðkomandi og hefur þann tilgang eða þau áhrif að misbjóða virðingu viðkomandi og skapa aðstæður sem eru ógnandi, fjandsamlegar, niðurlægjandi, auðmýkjandi eða móðgandi fyrir viðkomandi.
   4. Kynferðisleg áreitni: Hvers kyns kynferðisleg hegðun í óþökk þess sem fyrir henni verður og hefur þann tilgang eða þau áhrif að misbjóða virðingu viðkomandi, einkum þegar hegðunin leiðir til ógnandi, fjandsamlegra, niðurlægjandi, auðmýkjandi eða móðgandi aðstæðna. Hegðunin getur verið orðbundin, táknræn og/eða líkamleg.

II. kafli. Starf samskiptaráðgjafa.
4. gr. Samskiptaráðgjafi íþrótta- og æskulýðsstarfs.
Ráðherra setur á fót starf samskiptaráðgjafa íþrótta- og æskulýðsstarfs til fimm ára í senn.
Samskiptaráðgjafi íþrótta- og æskulýðsstarfs skal hafa háskólamenntun og þekkingu sem nýtist í starfi.
5. gr. Hlutverk samskiptaráðgjafa íþrótta- og æskulýðsstarfs.
Samskiptaráðgjafi íþrótta- og æskulýðsstarfs hefur það hlutverk að bæta umgjörð samtaka og félaga, sem falla undir lög þessi, í samráði við þau. Hann skal stuðla að öryggi þeirra sem taka þátt í starfi þeirra samtaka og félaga.
Hlutverk sitt rækir hann m.a. með því að:
   1. Koma með virkum hætti á framfæri upplýsingum til þeirra, sem taka þátt í starfsemi þeirra félaga og samtaka sem falla undir lög þessi, um atvik og misgerðir í þeim tilgangi að auka þekkingu og stuðla að réttum viðbrögðum við þeim.
   2. Leiðbeina þeim einstaklingum sem til hans leita vegna atvika eða misgerða sem orðið hafa í skipulögðu starfi félaga og samtaka sem falla undir lög þessi eða í tengslum við það um þau úrræði sem standa til boða, hvernig kvörtun er komið á framfæri við rétt yfirvöld og eftir atvikum um þá þjónustu sem ríki og sveitarfélög bjóða upp á.
   [3. Afla upplýsinga vegna mála einstaklinga sem til hans leita þar sem greint er frá að viðkomandi hafi orðið fyrir atvikum eða misgerðum í tengslum við starfsemi sem fellur undir gildissvið laga þessara og að greiða leið slíkra mála, svo sem með útgáfu ráðgefandi álita til viðeigandi aðila.]1)
   [4.]1) Aðstoða samtök og félög sem falla undir lög þessi við að gera viðbragðsáætlanir vegna atvika og misgerða sem verða í starfi þeirra og stuðla að samræmingu á landsvísu, eftir atvikum í samráði við Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands, Ungmennafélag Íslands, æskulýðssamtök og önnur samtök.
   [5.]1) Veita ráðgjöf til þeirra sem taka þátt í starfsemi félaga og samtaka sem falla undir lög þessi um fyrirbyggjandi aðgerðir.
   [6.]1) Fylgjast með rannsóknum og þróun á verksviði samskiptaráðgjafa íþrótta- og æskulýðsstarfs og koma upplýsingum á framfæri við Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands, Ungmennafélag Íslands, æskulýðssamtök og önnur samtök sem falla undir lög þessi.
   [7.]1) Taka saman upplýsingar um starf samskiptaráðgjafa íþrótta- og æskulýðsstarfs og þær tilkynningar sem honum hafa borist á liðnu almanaksári.
   1)L. 61/2023, 1. gr.
6. gr. Framkvæmd starfs.
Samskiptaráðgjafi íþrótta- og æskulýðsstarfs er í störfum sínum óháður fyrirmælum frá öðrum. Ráðgjöf hans byggist á og er í samræmi við bestu þekkingu á hverjum tíma.
Hann skal árlega gefa skýrslu til ráðherra um starf samskiptaráðgjafa íþrótta- og æskulýðsstarfs á liðnu almanaksári.
Samskiptaráðgjafa íþrótta- og æskulýðsstarfs er ekki heimilt að innheimta gjald af notendum þjónustunnar sem hann veitir.
Hann skal gæta þess að persónuupplýsinga sé aflað með sanngjörnum, málefnalegum og lögmætum hætti og að öll meðferð þeirra sé í samræmi við vandaða vinnsluhætti persónuupplýsinga samkvæmt fyrirmælum laga um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga, nr. 90/2018, og lögum um opinber skjalasöfn, nr. 77/2014, með áorðnum breytingum. Hann skal einungis afla viðeigandi upplýsinga og ekki umfram það sem nauðsynlegt er miðað við tilgang þeirra og að þær séu áreiðanlegar og uppfærðar eftir þörfum.
[Samskiptaráðgjafa íþrótta- og æskulýðsstarfs er heimil vinnsla persónuupplýsinga sem nauðsynleg er til að hann geti sinnt hlutverki sínu á grundvelli laga þessara. Heimild þessi tekur til vinnslu viðkvæmra persónuupplýsinga og annarra upplýsinga viðkvæms eðlis, þ.m.t. heilsufarsupplýsinga og upplýsinga um félagslegar aðstæður einstaklinga, svo og upplýsinga um refsiverða háttsemi og ætlaða refsiverða háttsemi.
Að því marki sem nauðsynlegt er fyrir framkvæmd laga þessara er samskiptaráðgjafa íþrótta- og æskulýðsstarfs heimilt að miðla upplýsingum til þeirra aðila sem falla undir gildissvið laganna. Heimild þessi tekur til miðlunar viðkvæmra persónuupplýsinga og annarra upplýsinga viðkvæms eðlis, þ.m.t. heilsufarsupplýsinga og upplýsinga um félagslegar aðstæður einstaklinga, svo og upplýsinga um refsiverða háttsemi og ætlaða refsiverða háttsemi.]1)
   1)L. 61/2023, 2. gr.
7. gr. Þagnarskylda.
Samskiptaráðgjafa íþrótta- og æskulýðsstarfs er óheimilt að skýra frá þeim atriðum sem hann verður áskynja um í starfi sínu og leynt eiga að fara. Þagnarskylda helst þótt látið sé af starfi. [Samskiptaráðgjafi íþrótta- og æskulýðsstarfs er bundinn þagnarskyldu skv. X. kafla stjórnsýslulaga.]1)
Samþykki þess sem til hans leitar og eftir atvikum forsjáraðila leysir samskiptaráðgjafa íþrótta- og æskulýðsstarfs undan þagnarskyldu. Þagnarskylda nær ekki til atvika eða misgerða sem ber að tilkynna lögum samkvæmt, t.d. þegar tilkynningarskylda er fyrir hendi samkvæmt barnaverndarlögum, nr. 80/2002. Í þeim tilvikum ber samskiptaráðgjafanum skylda til að koma upplýsingum um atvik eða misgerðir á framfæri við þar til bær yfirvöld.
Samskiptaráðgjafi íþrótta- og æskulýðsstarfs getur, óháð þagnarskyldu viðkomandi aðila, krafið þá aðila sem skipuleggja eða bera ábyrgð á íþrótta- eða æskulýðsstarfi um allar þær upplýsingar sem hann metur nauðsynlegar til að hann geti sinnt hlutverki sínu og er viðkomandi aðilum þá skylt að láta honum í té umbeðnar upplýsingar.
   1)L. 61/2023, 3. gr.

III. kafli. Önnur ákvæði.
8. gr. Stjórnvaldsfyrirmæli.
Ráðherra skal með reglugerð setja nánari reglur um starf samskiptaráðgjafa íþrótta- og æskulýðsstarfs, m.a. um kynningarstarf, útgáfumál, starfshætti og starfsskilyrði samskiptaráðgjafa, svo sem starfshlutfall og staðsetningu. [Í reglugerðinni skal jafnframt fjallað um fræðslu um vinnslu og miðlun persónuupplýsinga.]1)
Ráðherra er heimilt að fela þriðja aðila með samningi að sinna hlutverki samskiptaráðgjafa íþrótta- og æskulýðsstarfs.
   1)L. 61/2023, 4. gr.
9. gr. Gildistaka og breyting á öðrum lögum.
Lög þessi öðlast gildi 1. ágúst 2019. Ákvæði til bráðabirgða I tekur þó þegar gildi.


Ákvæði til bráðabirgða.
I.
Ráðherra er heimilt að undirbúa gildistöku laga þessara m.a. með því að útvista starfi samskiptaráðgjafa íþrótta- og æskulýðsstarfs til þriðja aðila, auglýsa og ráða í starfið.
II.
Eftir 1. janúar 2024 skulu lög þessi endurskoðuð og getur ráðherra þá lagt niður starf samskiptaráðgjafa íþrótta- og æskulýðsstarfs að fenginni umsögn hagsmunaaðila.