Lagasafn.  Íslensk lög 12. apríl 2024.  Útgáfa 154b.  Prenta í tveimur dálkum.


Lög um Vísinda- og nýsköpunarráð

2022 nr. 137 29. desember


Ferill málsins á Alþingi.   Frumvarp til laga.

Tóku gildi 1. apríl 2023.
Ef í lögum þessum er getið um ráðherra eða ráðuneyti án þess að málefnasvið sé tilgreint sérstaklega eða til þess vísað, er átt við forsætisráðherra eða forsætisráðuneyti sem fer með lög þessi. Upplýsingar um málefnasvið ráðuneyta skv. forsetaúrskurði er að finna hér.

1. gr. Markmið.
Markmið laga þessara er að efla stefnumótun og samhæfingu á sviði vísinda, tækniþróunar og nýsköpunar hér á landi svo að styrkja megi íslenskt þekkingarsamfélag og auka samkeppnishæfni íslensks atvinnulífs.
2. gr. Hlutverk og skipan.
Vísinda- og nýsköpunarráð starfar sjálfstætt og fjallar um stöðu vísinda, tækniþróunar og nýsköpunar á Íslandi með tilvísun til alþjóðlegrar þróunar í stefnumótun á sviðinu, auk þess að vera ráðherranefnd um vísindi og nýsköpun og ráðherra sem fer með málefni vísinda og nýsköpunar til ráðgjafar. Vísinda- og nýsköpunarráð skal vinna að því að efla samfélagsumræðu um vísindi, tækniþróun og nýsköpun með fagleg og lýðræðisleg sjónarmið að leiðarljósi.
Ráðherra skipar, í samráði við ráðherra sem fer með málefni vísinda og nýsköpunar, níu fulltrúa í Vísinda- og nýsköpunarráð til fjögurra ára í senn á grundvelli tillagna tilnefningarnefndar, sbr. 5. gr., þar af einn sem formann ráðsins. Varamenn skulu tilnefndir og skipaðir með sama hætti. Ráðherra leggur tillögu um skipan ráðsins fyrir ráðherranefndina til kynningar.
3. gr. Stefnumótun.
Ráðherranefnd um vísindi og nýsköpun, sbr. 4. mgr. 9. gr. laga um Stjórnarráð Íslands, nr. 115/2011, samræmir stefnu stjórnvalda á sviði vísinda, tækniþróunar og nýsköpunar. Samræmda stefnu stjórnvalda skal birta í tvennu lagi, annars vegar framtíðarsýn til tíu ára sem endurskoðuð skal á fjögurra ára fresti og hins vegar aðgerðaáætlun til tveggja ára í senn. Ráðherranefndin skal að jafnaði halda tvo fundi árlega með Vísinda- og nýsköpunarráði.
Vísinda- og nýsköpunarráð skilar árlega skýrslu til ráðherra og ráðherra sem fer með málefni vísinda og nýsköpunar. Í skýrslunni skal fjallað um stöðu málaflokksins hér á landi í alþjóðlegu tilliti, um stefnumótun stjórnvalda og framfylgd hennar og helstu samfélagslegu áskoranir. Ráðherra sem fer með málefni vísinda skal leggja skýrsluna fram á Alþingi.
4. gr. Umsýsla.
Ráðuneyti sem fer með málefni vísinda fer með faglega umsýslu fyrir ráðherranefnd um vísindi og nýsköpun, undirbýr fundi Vísinda- og nýsköpunarráðs og ráðherranefndar og sinnir öðrum verkefnum sem tengjast stefnumótun, svo sem öflun upplýsinga og greiningu.
5. gr. Tilnefningarnefnd.
Hlutverk tilnefningarnefndar er að tilnefna fulltrúa til skipanar í Vísinda- og nýsköpunarráð. Við tilnefningu fulltrúa í ráðið skal tilnefningarnefnd hafa hlutverk ráðsins að leiðarljósi og leggja áherslu á að það sé skipað fólki með yfirgripsmikla þekkingu og reynslu á sviði vísinda, tækniþróunar og nýsköpunar.
Ráðherra skipar, að höfðu samráði við ráðherra sem fer með málefni vísinda og nýsköpunar, fimm einstaklinga í tilnefningarnefnd, tvo samkvæmt tilnefningu samstarfsnefndar háskólastigsins, einn samkvæmt tilnefningu Samtaka atvinnulífsins, einn samkvæmt tilnefningu samtaka launafólks og einn án tilnefningar og skal hann vera formaður.
6. gr. Reglugerðarheimild.
Ráðherra er heimilt með reglugerð að setja nánari ákvæði um framkvæmd laga þessara, þar á meðal um starfsemi og skipulag Vísinda- og nýsköpunarráðs og tilnefningarnefndar.
7. gr. Gildistaka.
Lög þessi öðlast gildi 1. apríl 2023.
8. gr. Breytingar á öðrum lögum.