Lagasafn.  Íslensk lög 12. apríl 2024.  Útgáfa 154b.  Prenta í tveimur dálkum.


[Lög um skattskyldu lánastofnana]1)

1982 nr. 65 19. maí


   1)L. 56/1994, 4. gr.
Ferill málsins á Alþingi.   Frumvarp til laga.

Tóku gildi 19. maí 1982; komu til framkvæmda skv. fyrirmælum í 7. gr. Breytt með: L. 51/1984 (tóku gildi 13. júní 1984; komu til framkvæmda skv. fyrirmælum í 4. gr.). L. 99/1988 (tóku gildi 30. des. 1988; komu til framkvæmda skv. fyrirmælum í 3. gr.). L. 48/1992 (tóku gildi 10. júní 1992; komu til framkvæmda skv. fyrirmælum í 5. gr., sbr. og l. 143/1995). L. 56/1994 (tóku gildi 1. jan. 1995; komu til framkvæmda skv. fyrirmælum í 5. gr.). L. 153/1994 (tóku gildi 1. jan. 1995; komu til framkvæmda skv. fyrirmælum í 2. gr.). L. 129/2004 (tóku gildi 31. des. 2005). L. 150/2006 (tóku gildi 30. des. 2006). L. 31/2020 (tóku gildi 7. maí 2020).

Ef í lögum þessum er getið um ráðherra eða ráðuneyti án þess að málefnasvið sé tilgreint sérstaklega eða til þess vísað, er átt við fjármála- og efnahagsráðherra eða fjármála- og efnahagsráðuneyti sem fer með lög þessi. Upplýsingar um málefnasvið ráðuneyta skv. forsetaúrskurði er að finna hér.

1. gr.
[[[Lánastofnanir aðrar en eignarleigufyrirtæki],1) sbr. þó 2. gr., skulu með þeim takmörkunum, er síðar greinir, skyld til að greiða tekjuskatt af öllum tekjum sínum hvar sem þeirra er aflað [í samræmi við ákvæði laga um tekjuskatt].2)
1)
Lögbundin framlög, sem opinberir fjárfestingarlánasjóðir skv. 1. mgr. fá frá ríkissjóði eða sveitarfélögum, sem og lögbundnar tekjur þeirra aðrar, teljast ekki til tekjuskattsstofns viðkomandi sjóðs.]3)
Skattskyldan tekur til þessara aðila sem lögaðila skv. 2. gr. [laga nr. 90/2003, um tekjuskatt],2) þrátt fyrir undanþáguákvæði 4. gr. sömu laga eða ákvæði annarra laga sem kunna að hafa undanþegið einstakar stofnanir opinberum gjöldum og sköttum.]4)
   1)L. 56/1994, 1. gr. 2)L. 129/2004, 43. gr. 3)L. 48/1992, 1. gr. 4)L. 99/1988, 1. gr.
2. gr.
[[Til skattskyldra tekna …1) skv. 1. gr. teljast þó ekki tekjur …1) Byggðastofnunar, Byggingarsjóðs ríkisins, Byggingarsjóðs verkamanna, Framkvæmdasjóðs Íslands, Framkvæmdasjóðs fatlaðra, Framkvæmdasjóðs aldraðra, [Matvælasjóðs],2) Lánasjóðs sveitarfélaga [ohf.]3) og Lánasjóðs Vestur-Norðurlanda.]4) Séu sjóðir þessir hluti af eða tengdir annarri skattskyldri starfsemi samkvæmt lögum þessum skal fjárhagur þeirra greinilega aðskilinn.]5)
   1)L. 129/2004, 44. gr. 2)L. 31/2020, 3. gr. 3)L. 150/2006, 5. gr. 4)L. 48/1992, 2. gr. 5)L. 99/1988, 2. gr.
3. gr.
[Heimildir til niðurfærslu viðskiptaskulda í [2. málsl. 3. tölul. 1. mgr. 31. gr. og 2. og 3. málsl. 5. tölul. 73. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt],1) gilda ekki um skattskylda aðila samkvæmt lögum þessum.
Frá tekjum aðila sem skattskyldir eru samkvæmt lögum þessum má draga þau almennu og sérstöku framlög í afskriftareikning útlána sem gjaldfærð eru í rekstrarreikningi í samræmi við gildandi reglur um ársreikning þessara aðila. Staða afskriftareiknings útlána í árslok dregst frá við uppgjör á [eignum og skuldum].1)
Færsla á tillögum í afskriftareikning innan eigin fjár er ekki heimilt að draga frá tekjum. Þessi eiginfjárreikningur skal ekki dreginn frá við uppgjör á [eignum og skuldum].1)]2)
   1)L. 129/2004, 45. gr. 2)L. 56/1994, 2. gr.
4. gr.
Sé sparisjóði slitið, þannig að hann sé algjörlega sameinaður öðrum sparisjóði, ríkisstofnun eða hlutafélagi þá skulu slitin sjálf ekki hafa í för með sér skattskyldar tekjur fyrir þann aðila sem við tekur og heldur ekki fyrir þann sem slitið var. Við slíkan samruna skal sá aðili, er við tekur, taka við öllum skattaréttarlegum skyldum og réttindum þess sparisjóðs sem slitið var.
5. gr.1)
   1)L. 129/2004, 46. gr.
6. gr.
[Lánastofnanir skulu undanþegnar stimpilgjaldi af fjárskuldbindingum sem þær kunna að taka á sig.]1)
   1)L. 56/1994, 3. gr.
[7. gr.]1)
Ráðherra er heimilt að kveða nánar á um framkvæmd laga þessara með reglugerð.
   1)L. 48/1992, 3. gr.
[8. gr.]1)
Lög þessi öðlast þegar gildi …2)
   1)L. 48/1992, 3. gr. 2)Sjá þó l. 143/1995, um gildistöku laganna gagnvart Iðnþróunarsjóði.
Ákvæði til bráðabirgða.

[Á því ári þegar lög þessi öðlast gildi skulu viðskiptabankar og sparisjóðir samkvæmt þeim leysa upp og færa til skattskyldra tekna þá upphæð sem stendur á afskriftareikningi útlána sem byggist á ákvæði 3. gr. laga nr. 65/1982, sbr. 2. gr. laga nr. 51/1984. Miða skal tekjufærslu við stöðu reikningsins 31. desember [1994].1) Ákvæði 1. gr. laga þessara skulu síðan gilda um skattaleg reikningsskil viðkomandi skattaðila frá því tímamarki.]2)
   1)L. 153/1994, 1. gr. 2)L. 56/1994, brbákv.