Lagasafn.  Íslensk lög 12. apríl 2024.  Útgáfa 154b.  Prenta í tveimur dálkum.


[Búvörulög]1)

1993 nr. 99 8. september


   1)L. 46/2015, 10. gr.
Upphaflega l. 46/1985. Tóku gildi 1. júlí 1985. Endurútgefin, sbr. 22. gr. l. 112/1992, sem l. 99/1993. Tóku gildi 9. september 1993. Breytt með: L. 126/1993 (tóku gildi 30. des. 1993). L. 129/1993 (tóku gildi 30. des. 1993). L. 34/1994 (tóku gildi 2. maí 1994). L. 85/1994 (tóku gildi 3. júní 1994). L. 141/1994 (tóku gildi 31. des. 1994). L. 87/1995 (tóku gildi 1. júlí 1995). L. 99/1995 (tóku gildi 5. júlí 1995). L. 121/1995 (tóku gildi 30. nóv. 1995). L. 124/1995 (tóku gildi 6. des. 1995, sjá þó 21. gr.). L. 147/1995 (tóku gildi 1. jan. 1996). L. 77/1997 (tóku gildi 6. júní 1997). L. 84/1997 (tóku gildi 1. jan. 1998; komu til framkvæmda skv. fyrirmælum í 7. gr.). L. 69/1998 (tóku gildi 24. júní 1998, sjá þó ákvæði til bráðabirgða). L. 130/1998 (tóku gildi 3. des. 1998, sjá þó ákvæði til bráðabirgða). L. 112/1999 (tóku gildi 1. jan. 2000). L. 88/2000 (tóku gildi 1. jan. 2001 nema 4. mgr. 7. gr. sem tók gildi 2. júní 2000). L. 84/2002 (tóku gildi 21. maí 2002). L. 101/2002 (tóku gildi 6. júní 2002 og gilda til 31. des. 2007). L. 82/2003 (tóku gildi 10. apríl 2003). L. 131/2003 (tóku gildi 1. jan. 2004). L. 61/2004 (tóku gildi 14. júní 2004 nema 3.–6. gr. sem tóku gildi 1. sept. 2005). L. 85/2004 (tóku gildi 18. júní 2004). L. 76/2005 (tóku gildi 1. jan. 2006). L. 119/2005 (tóku gildi 1. jan. 2006). L. 16/2007 (tóku gildi 3. mars 2007). L. 58/2007 (tóku gildi 1. jan. 2008; komu til framkvæmda skv. fyrirmælum í 24. gr.). L. 167/2007 (tóku gildi 1. jan. 2008). L. 88/2008 (tóku gildi 1. jan. 2009 nema brbákv. VII sem tók gildi 21. júní 2008). L. 173/2008 (tóku gildi 1. jan. 2009; komu til framkvæmda skv. fyrirmælum í 20. gr.). L. 67/2009 (tóku gildi 25. júní 2009). L. 98/2009 (tóku gildi 1. okt. 2009 nema 69. og 70. gr. sem tóku gildi 1. jan. 2010). L. 46/2010 (tóku gildi 29. maí 2010). L. 162/2010 (tóku gildi 1. jan. 2011). L. 74/2011 (tóku gildi 1. jan. 2012). L. 92/2011 (tóku gildi 1. júlí 2011). L. 126/2011 (tóku gildi 30. sept. 2011). L. 129/2012 (tóku gildi 1. jan. 2013). L. 160/2012 (tóku gildi 3. jan. 2013). L. 55/2013 (tóku gildi 1. jan. 2014). L. 140/2013 (tóku gildi 31. des. 2013 nema 1.–2., 4.–12., 16.–18., 23.–29., 31.–32., 34.–38. og 40.–48. gr. sem tóku gildi 1. jan. 2014 og 21. gr. sem tók gildi 1. jan. 2016; komu til framkvæmda skv. fyrirmælum í 49. gr.). L. 124/2014 (tóku gildi 1. jan. 2015 nema 3. gr. sem tók gildi 31. des. 2014 og a–d-, f–h- og j–l-liðir 1. gr. sem tóku gildi 1. jan. 2016; komu til framkvæmda skv. fyrirmælum í 11. gr.). L. 46/2015 (tóku gildi 11. júlí 2015). L. 60/2016 (tóku gildi 1. júlí 2016 nema 2. og 11. gr. sem tóku gildi 22. júní 2016). L. 102/2016 (tóku gildi 1. jan. 2017). L. 142/2018 (tóku gildi 1. jan. 2019; komu til framkvæmda skv. fyrirmælum í 48. gr., sbr. einnig brbákv. í s.l.). L. 155/2018 (tóku gildi 10. jan. 2019). L. 44/2019 (tóku gildi 1. jan. 2020 nema a-liður 3. gr. sem tók gildi 1. júní 2019 og c-liður 3. gr. og 8. gr. sem tóku gildi 1. sept. 2019). L. 84/2019 (tóku gildi 1. jan. 2020). L. 139/2019 (tóku gildi 1. jan. 2020). L. 152/2019 (tóku gildi 1. jan. 2020). L. 101/2020 (tóku gildi 23. júlí 2020). L. 126/2020 (tóku gildi 1. jan. 2021). L. 136/2020 (tóku gildi 22. des. 2020). L. 71/2021 (tóku gildi 29. júní 2021 nema 29. gr. sem tók gildi 1. júlí 2021). L. 133/2021 (tóku gildi 31. des. 2021 nema 3. gr. og 9.–19. gr. sem tóku gildi 1. jan. 2022; um lagaskil sjá 26. gr.). L. 128/2022 (tóku gildi 1. jan. 2023 nema 1., 2., 6. og 9. gr. sem tóku gildi 31. des. 2022). L. 66/2023 (tóku gildi 1. jan. 2024; um lagaskil sjá 6. gr. og brbákv.). L. 100/2023 (tóku gildi 1. jan. 2024 nema 31., 32. og 38. gr. sem tóku gildi 30. des. 2023; koma til framkvæmda skv. fyrirmælum í 39. gr.). L. 102/2023 (tóku gildi 1. jan. 2024 nema 8. gr. sem tekur gildi 1. jan. 2034, a-liður 11. gr. og 22. gr. sem taka gildi 1. jan. 2025 og 1. mgr. 27. gr. og 28. gr. sem tóku gildi 30. des. 2023; um lagaskil sjá 36. gr). L. 30/2024 (tóku gildi 6. apríl 2024).

Ef í lögum þessum er getið um ráðherra eða ráðuneyti án þess að málefnasvið sé tilgreint sérstaklega eða til þess vísað, er átt við matvælaráðherra eða matvælaráðuneyti sem fer með lög þessi. Upplýsingar um málefnasvið ráðuneyta skv. forsetaúrskurði er að finna hér.

I. kafli. Tilgangur laganna og orðaskýringar.
1. gr.
Tilgangur þessara laga er:
   a. að stuðla að framförum og aukinni hagkvæmni í búvöruframleiðslu og vinnslu og sölu búvara til hagsbóta fyrir framleiðendur og neytendur,
   b. að framleiðsla búvara til neyslu og iðnaðar verði í sem nánustu samræmi við þarfir þjóðarinnar og tryggi ávallt nægjanlegt vöruframboð við breytilegar aðstæður í landinu,
   c. að nýttir verði sölumöguleikar fyrir búvörur erlendis eftir því sem hagkvæmt er talið,
   d. að kjör þeirra sem landbúnað stunda verði í sem nánustu samræmi við kjör annarra stétta,
   e. að innlend aðföng nýtist sem mest við framleiðslu búvara, bæði með hliðsjón af framleiðsluöryggi og atvinnu,
   f. að stuðla að jöfnuði á milli framleiðenda í hverri búgrein hvað varðar afurðaverð og markað.
2. gr.
[Merking orða í lögum þessum er sem hér segir:
   [1. Afurðaskýrsluhald er skráning afurðaupplýsinga í miðlægan gagnagrunn um bústofn svo að unnt sé að rekja uppruna og afdrif allra gripa í hjörðinni á einfaldan og öruggan hátt, sem og upplýsinga um afurðir.]1)
   [2.]1) Afurðastöð er hver sá lögaðili eða einstaklingur sem tekur við afurðum úr höndum frumframleiðenda til vinnslu, flokkunar, pökkunar, geymslu, heildsölu eða dreifingar eða vinnur úr eða selur eigin frumframleiðslu umfram magn sem skilgreint er.
   [3.]1) Álagsgreiðsla er tiltekin fjárhæð sem greiðist fyrir gæðastýrða framleiðslu, sbr. 41. gr.
   [4.]1) Búvörur teljast í lögum þessum afurðir búfjár, þ.m.t. afurðir nautgripa, sauðfjár, hrossa, svína, alifugla og loðdýra, afurðir nytjajurta og afurðir hlunninda. Lög þessi taka ekki til afurða alifiska.
   [5.]1) Framleiðandi er hver sá sem á eigin vegum hefur með búvöruframleiðslu að gera, hvort sem er einstaklingur, lögaðili, aðili að félagsbúi eða ríkisbú.
   [6.]1) Garðyrkjubýli, gróðrarstöð og garðyrkjustöð merkir í lögum þessum lögaðila eða býli, með virðisaukaskattsskylda veltu, sem framleiðir grænmeti (útirækt/ylrækt), skrautjurtir, garðplöntur eða tré og runna.
   [7.]1) Greiðslumark lögbýlis er tiltekinn fjöldi ærgilda eða magn mjólkur mælt í lítrum sem ákveðið er fyrir hvert lögbýli og veitir rétt til beingreiðslu úr ríkissjóði.
   [8.]1) Gæðastýrð sauðfjárframleiðsla eru afurðir sem framleiddar eru samkvæmt kröfum í 41. gr.
   [9.]1) Heildargreiðslumark er fjöldi ærgilda eða tiltekið magn mjólkur mælt í lítrum sem ákveðið er í samræmi við samning skv. 30. gr. og skiptist milli lögbýla eftir greiðslumarki þeirra.
   [10. Innanlandsvog skilgreinir áætlaða þörf og eftirspurn innanlandsmarkaðar eftir kindakjöti.]1)
   [11.]1) Lögbýli eða jörð er í lögum þessum skilgreint skv. 2. gr. jarðalaga.
   [12. Nýliði er einstaklingur sem er á aldrinum 18–40 ára á því ári sem hann óskar eftir stuðningi og er að kaupa búrekstur eða hlut í búrekstri í fyrsta skipti eða hefur leigt eða keypt búrekstur á þremur undangengnum árum frá 1. janúar á umsóknarári að telja.]1)
   [13.]1) Verðlagsár er almanaksárið.
   [14.]1) Vetrarfóðraðar kindur eru ær, hrútar, sauðir og lömb sem sett eru á vetur og talin eru fram skv. 10. gr. laga um búfjárhald.]2)
   1)L. 44/2019, 1. gr. 2)L. 102/2016, 1. gr.

II. kafli. Yfirstjórn og samtök framleiðenda.
3. gr.
[[Ráðherra]1) fer með yfirstjórn þeirra mála sem lög þessi taka til, þar með talinn útflutning landbúnaðarvara. [Ráðherra er heimilt að framselja stjórnsýsluvald samkvæmt lögum þessum til stjórnvalds.]2)]3)
   1)L. 126/2011, 182. gr. 2)L. 84/2019, 8. gr. 3)L. 85/1994, 1. gr.
4. gr.
[Bændasamtök Íslands]1) fara með fyrirsvar framleiðenda búvara við framkvæmd laga þessara nema öðruvísi sé kveðið á um í lögum þessum.
Ráðherra getur, að fengnu samþykki [Bændasamtaka Íslands],1) viðurkennt einstök landssamtök framleiðenda búvara til að fara með fyrirsvar vegna framleiðenda í viðkomandi grein við gerð samninga skv. a-lið 1. mgr. 30. gr. og aðrar ákvarðanir samkvæmt lögum þessum.
[Bændasamtök Íslands]1) eða landssamtök skv. 2. mgr. skulu velja sér samninganefnd sem fer með umboð þeirra til samningsgerðar. …2)
Framleiðandi búvöru, sem lög þessi taka til, á rétt til að vera félagsmaður í [Bændasamtökum Íslands]1) eða viðurkenndum samtökum búvöruframleiðenda skv. 2. mgr. þessarar greinar eftir nánari reglum í samþykktum [Bændasamtaka Íslands].1)
Samningar, sem [Bændasamtök Íslands]1) eða viðurkennd samtök skv. 2. mgr. gera skv. a-lið 1. mgr. 30. gr., skulu vera bindandi fyrir framleiðendur viðkomandi búvara hvort sem þeir eru félagar í [Bændasamtökum Íslands],1) samtökum skv. 2. mgr. eða standa utan þessara félagssamtaka.
   1)L. 124/1995, 19. gr. 2)L. 102/2016, 2. gr.

III. kafli. [Framleiðendafélög.]1)
   1)L. 30/2024, 1. gr.
[5. gr.
Til framleiðendafélaga teljast aðeins félög sem eru fyrstu framleiðendur kjötafurða og afleiddra afurða og annast slátrun og/eða vinnslu kjötafurða og afleiddra afurða. Sama gildir um samtök slíkra félaga. Framleiðendafélag getur m.a. verið hlutafélag, einkahlutafélag, samvinnufélag eða sameignarfélag. Þá skal skýrt tekið fram í samþykktum félags sem starfar sem framleiðendafélag að tilgangur þess sé að starfa sem framleiðendafélag til samræmis við ákvæði 71. gr. A.]1)
   1)L. 30/2024, 1. gr.

IV. kafli. Um verðskráningu á búvörum.
7. gr.
[Verðlagsnefnd búvara, skipuð sex mönnum, ákveður afurðaverð til búvöruframleiðenda og verð búvara í heildsölu.
Samtök launþega tilnefna tvo fulltrúa í nefndina. Skal annar þeirra tilnefndur af stjórn Bandalags starfsmanna ríkis og bæja og hinn af stjórn Alþýðusambands Íslands. Noti annar aðilinn ekki tilnefningarrétt sinn færist réttur hans til hins.
Stjórn Bændasamtaka Íslands og stjórnir búgreinasamtaka, sem hlotið hafa viðurkenningu skv. 4. gr. og starfa fyrir búgreinafélög þeirra afurða sem verðlagðar eru hverju sinni, tilnefna tvo fulltrúa í nefndina sameiginlega. Skal annar þeirra tilnefndur til að fjalla eingöngu um verðmyndun til framleiðenda. Skal hann víkja úr nefndinni fyrir fulltrúa samtaka afurðastöðva í nefndinni þegar fjallað er um verðmyndun hjá afurðastöðvum.
Samtök afurðastöðva fyrir búvörur tilnefna tvo fulltrúa í nefndina. Skulu þeir tilnefndir þannig að í nefndinni starfi hverju sinni fulltrúar frá þeirri vinnslugrein sem um er rætt hverju sinni. Annar þessara fulltrúa skal tilnefndur til að starfa aðeins í nefndinni þegar nefndin fjallar um verðmyndun hjá afurðastöðvum og kemur í stað fulltrúa framleiðenda sem víkur sæti.
[Ráðherra]1) tilnefnir einn fulltrúa í nefndina og er hann formaður hennar. [Einnig tilnefnir ráðherra fulltrúa minni vinnslufyrirtækja mjólkur sem áheyrnarfulltrúa í nefndina og skal hann hafa tillögurétt.]2)
Varamenn skulu tilnefndir á sama hátt og aðalmenn. Ákvarðanir í nefndinni skulu teknar með einföldum meiri hluta atkvæða. Komi upp jöfn staða atkvæða sker atkvæði formanns úr um niðurstöðu.
[Verðlagsnefnd skal skipuð til tveggja ára í senn.]3) Nú notar einhver aðili ekki rétt sinn til tilnefningar og skal [ráðherra]1) þá tilnefna mann í nefndina í stað samtaka framleiðenda og samtaka afurðastöðva en [sá ráðherra er fer með málefni vinnumarkaðar]1) á sama hátt í stað samtaka launþega. …3)
Hagstofustjóri og [aðili skv. 3. gr. a laga nr. 63/1989, um hagþjónustu landbúnaðarins],4) skulu vera verðlagsnefnd til aðstoðar.]5)
   1)L. 126/2011, 182. gr. 2)L. 102/2016, 3. gr. 3)L. 101/2020, 5. gr. 4)L. 74/2011, 13. gr. 5)L. 69/1998, 1. gr.
8. gr.
[Verðlagsnefnd ákveður …1) lágmarksverð fyrir mjólk til framleiðenda sem miðast við 1. flokks mjólk með skilgreindu efnainnihaldi [nema annað sé tekið fram í samningi milli [ráðherra]2) f.h. ríkisstjórnar Íslands og Bændasamtaka Íslands].3) Hverri afurðastöð er heimilt að greiða framleiðendum hærra verð en lágmarksverð. Verðlagsnefnd ákveður leyfileg afföll af verði mjólkur sem ekki stenst kröfur sem 1. flokks mjólk. Ákvörðun um lágmarksverð mjólkur skal byggjast á gerð verðlagsgrundvallar fyrir bú af hagkvæmri stærð, með framleiðsluaðstöðu þar sem tekið er mið af opinberum heilbrigðis- og aðbúnaðarkröfum og hagkvæmum framleiðsluháttum. Áætlað vinnuframlag skili endurgjaldi hliðstæðu og gerist hjá starfsstéttum sem bera sambærilega ábyrgð á rekstri og mæta hliðstæðum kröfum um viðveru og færni. Ákvörðun verðlagsnefndar um lágmarksverð skal tekin til endurskoðunar innan verðlagsársins komi fram um það ósk í nefndinni. Framleiðslukostnaður á nautgripakjöti til framleiðenda skal metinn og skráður af verðlagsnefnd samhliða ákvörðun á lágmarksverði mjólkur. Heimilt er verðlagsnefnd að ákveða að skráning á verði nautgripakjöts falli niður. Landssambandi kúabænda er þá heimilt að gefa út viðmiðunarverð til framleiðenda fyrir einstaka flokka nautgripakjöts.
[Verðlagsnefnd metur framleiðslukostnað sauðfjárafurða fyrir meðalbú.]1) Miða skal við kostnaðarútreikninga er sýni áætlaða vinnuþörf, fjármagnskostnað, rekstrargjöld, launakostnað og afurðir meðalbús sem er rekið við eðlilegar framleiðsluaðstæður. Tilgreina skal ársvinnu á sauðfjárbúi af stærð sem miðað er við og virða endurgjald fyrir vinnuframlag til samræmis við kjör þeirra sem vinna sambærileg störf og hafa svipaða menntun, sérhæfni og ábyrgð í starfi á almennum vinnumarkaði. Mat verðlagsnefndar skal taka til endurskoðunar innan verðlagsársins komi fram um það ósk í nefndinni. Landssamtökum sauðfjárbænda er heimilt að gefa út viðmiðunarverð til framleiðenda fyrir einstaka flokka sauðfjárafurða.
Til ákvörðunar á framleiðendaverði annarra búvara en afurða sauðfjár og nautgripa skal verðlagsnefnd semja um verðlagsgrundvöll er sýni áætlaða vinnuþörf, fjármagnskostnað, rekstrargjöld, launakostnað og afurðir bús sem næst meðalbúi að stærð, sem er rekið við eðlilegar framleiðsluaðstæður, komi fram um það óskir frá Bændasamtökum Íslands og viðurkenndum samtökum búvöruframleiðenda í viðkomandi grein skv. 2. mgr. 4. gr. Tilgreina skal ársvinnu á búinu og virða endurgjald fyrir vinnuframlag til samræmis við kjör þeirra sem vinna sambærileg störf og hafa svipaða menntun, sérhæfni og ábyrgð í starfi á almennum vinnumarkaði. Verðlagsgrundvöllurinn gildir fyrir tvö ár í senn frá byrjun verðlagsárs og skal hann vera tilbúinn fyrir þann tíma ár hvert nema annað sé ákveðið með samkomulagi í verðlagsnefnd. Nefndinni er hvenær sem er heimilt að taka mið af verðlagsbreytingum vegna fjármagns- og rekstrarkostnaðar, svo og launabreytingum á tímabilinu, komi fram um það óskir í nefndinni. Verðlagsgrundvöllur hvers tímabils framlengist sjálfkrafa um tvö ár í senn ef honum er ekki sagt upp af fulltrúum samningsaðila með minnst þriggja mánaða fyrirvara. Nefndin getur þó komið sér saman um annan frest.
Við kostnaðarútreikninga skulu beinar greiðslur ríkissjóðs til framleiðenda teljast til tekna og koma til lækkunar á verði þeirra afurða sem beinar greiðslur taka til.]4)
   1)L. 102/2016, 4. gr. 2)L. 126/2011, 182. gr. 3)L. 61/2004, 1. gr. 4)L. 69/1998, 2. gr.
9.–10. gr.1)
   1)L. 69/1998, 18. gr.
11. gr.
[Hagstofa Íslands skal afla fullnægjandi gagna fyrir verðlagsnefnd um framleiðslukostnað búvara, tekjur annarra stétta og verð og verðbreytingar á einstökum kostnaðarliðum verðlagsgrundvallar. Verðlagsnefnd skal í samráði við Hagstofu Íslands setja reglur um öflun gagna.
[Aðili skv. 3. gr. a laga nr. 63/1989, um hagþjónustu landbúnaðarins],1) skal árlega afla rekstrarreikninga frá bændum, nægilega margra að dómi Hagstofu Íslands, er sýni raunverulegan framleiðslukostnað hinna ýmsu búvara. Skulu þeir vera tilbúnir og uppgerðir fyrir 15. júní ár hvert fyrir næsta ár á undan. Reikningar þessir skulu vera til afnota fyrir Hagstofu Íslands og verðlagsnefnd. [Aðili skv. 3. gr. a laga nr. 63/1989, um hagþjónustu landbúnaðarins],1) ásamt Hagstofu Íslands, skipuleggur þetta starf hennar í samráði við verðlagsnefnd.
Verðlagsnefnd getur ákveðið að efna til sérstakra rannsókna í því skyni að fá betri upplýsingar um þau atriði er máli skipta fyrir verðlagningu búvara. Skylt er að stofna til slíkra rannsókna ef þrír nefndarmenn eða fleiri krefjast þess. Skal nefndin í því efni leita samstarfs við Hagstofu Íslands, [aðila skv. 3. gr. a laga nr. 63/1989, um hagþjónustu landbúnaðarins],1) og aðrar opinberar stofnanir, svo og [Bændasamtök Íslands],2) að því leyti sem rannsóknirnar snerta starfssvið viðkomandi stofnana. Telji umræddar stofnanir sig ekki geta látið í té starfslið til þess að gera þær rannsóknir er verðlagsnefnd hefur ákveðið að fram skuli fara er nefndinni heimilt að ráða til þess nauðsynlegt starfslið, enda komi samþykki [ráðherra]3) til.
Skylt er einstaklingum, fyrirtækjum og stofnunum að láta þeim er rannsóknir gera í té nauðsynlegar upplýsingar að viðlögðum dagsektum sé upplýsingaskyldu ekki sinnt.]4)
   1)L. 74/2011, 14. gr. 2)L. 112/1999, 4. gr. 3)L. 126/2011, 182. gr. 4)L. 69/1998, 3. gr.
12. gr.1)
   1)L. 69/1998, 18. gr.
13. gr.
[Verðlagsnefnd ákveður heildsöluverð búvara sem verðlagðar eru skv. 8. gr., að teknu tilliti til afurðaverðs til framleiðenda og rökstuddra upplýsinga um kostnað við vinnslu og dreifingu búvara, nema annað sé tekið fram í samningi sem gerður er á grundvelli a-liðar 30. gr. laganna. [Verði samið um að falla frá ákvörðun um lágmarksverð á mjólk til framleiðenda samkvæmt heimild í 1. mgr. 8. gr. hefur slík ákvörðun ekki áhrif á heimild verðlagsnefndar til heildsöluverðlagningar á mjólkurafurðum.]1) Nefndin getur ákveðið að efna til sérstakra rannsókna í því skyni að fá betri upplýsingar um þau atriði er máli skipta fyrir ákvörðun heildsöluverðs á búvörum með hliðstæðum hætti og segir í 11. gr.
Verðlagsnefnd er, þrátt fyrir ákvæði 1. mgr., heimilt í samkomulagi um heildsöluverð að gera tilteknar fyrir fram ákveðnar framleiðnikröfur til afurðastöðva [og einstakra framleiðsluvara],2) enda sé það samhljóða ákvörðun nefndarinnar.
[Afurðastöð skal selja öðrum vinnsluaðilum mjólk og mjólkurafurðir á verði sem er í samræmi við 1. mgr. Söluskylda afurðastöðvar nemur allt að 20% af þeirri mjólk sem afurðastöðin tekur á móti frá frumframleiðendum.]2)
[Þrátt fyrir ákvæði samkeppnislaga er afurðastöðvum í mjólkuriðnaði heimilt að gera samninga sín á milli um verðtilfærslu milli tiltekinna afurða. Leggja skal slíka samninga fyrir verðlagsnefnd til upplýsingar.]3)]4)
   1)L. 61/2004, 2. gr. 2)L. 102/2016, 5. gr. 3)L. 85/2004, 1. gr. 4)L. 69/1998, 4. gr.
14. gr.1)
   1)L. 69/1998, 18. gr.
15. gr.
[Heimilt er verðlagsnefnd að breyta heildsöluverði á búvörum hafi orðið breytingar á afurðaverði til framleiðenda, sbr. 8. gr., eða rekstrarkostnaði og vinnulaunum við vinnslu búvara, komi fram um það ósk innan nefndarinnar.]1)
   1)L. 69/1998, 5. gr.
16. gr.
[Verðlagsnefnd getur ákveðið að undanskilja einstakar vörutegundir verðlagningarákvæðum skv. 13. gr. þegar samkeppni er að mati nefndarinnar næg til þess að tryggja æskilega verðmyndun og sanngjarnt verðlag.]1)
   1)L. 112/1999, 6. gr.
17. gr.
[Verðlagsnefnd annast verðskráningu þeirra búvara sem tekin er verðákvörðun um samkvæmt kafla þessum og auglýsir verðákvarðanir sínar.]1)
   1)L. 46/2015, 1. gr.
18. gr.1)
   1)L. 69/1998, 18. gr.

V. kafli. 1)
   1)L. 46/2015, 2. gr.

VI. kafli. Um greiðslu afurðaverðs.
28. gr.
Afurðastöð er skylt að haga greiðslum til framleiðanda fyrir innlagðar búvörur í samræmi við ákvæði þessara laga og þeirra samninga og ákvarðana sem teknar eru með heimild í þeim.
29. gr.
[Nú er ákveðið það magn mjólkur sem framleiðendum eru tryggðar beingreiðslur fyrir samkvæmt heimild í 30. gr. og verð hennar til framleiðanda er ákveðið skv. 8. gr. og er þá afurðastöð skylt að greiða framleiðanda fullt verð innan greiðslumarks samkvæmt gildandi verðlagsgrundvelli á innleggsdegi …1). Ber að inna greiðslu af hendi eigi síðar en 10. dag næsta mánaðar eftir innleggsmánuð. Heimilt er að semja um annan hátt á greiðslum en að framan greinir.
Taki [afurðastöð]2) við mjólk umfram greiðslumark framleiðanda sem verður utan heildargreiðslumarks við lokauppgjör skal samsvarandi magn mjólkurafurða markaðsfært erlendis á ábyrgð [afurðastöðvar]2) og framleiðanda. [Framkvæmdanefnd búvörusamninga]3) getur þó heimilað sölu þeirra innan lands ef gengið hefur á birgðir og skortur á mjólkurvörum er því fyrirsjáanlegur. Um greiðsluskyldu afurðastöðva fyrir innlegg umfram greiðslumark mjólkur, en innan efri marka þess, fer eftir gildandi samningum [ráðherra]4) og Bændasamtaka Íslands skv. a-lið 1. mgr. 30. gr. laganna.
5)
3)]6)
   1)L. 140/2013, 38. gr. 2)L. 102/2016, 6. gr. 3)L. 112/1999, 11. gr. 4)L. 126/2011, 182. gr. 5)L. 58/2007, 2. gr. 6)L. 124/1995, 10. gr.

VII. kafli. Um stjórn búvöruframleiðslunnar.
30. gr.
[Til þess að vinna að markmiðum stjórnvalda á hverjum tíma um framleiðslu búvara er ráðherra:
   a. heimilt að leita eftir samningum fyrir hönd ríkisstjórnarinnar við Bændasamtök Íslands um framleiðsluskilyrði, stuðning og stjórn á magni búvara. Heimilt er að semja til lengri tíma í einu og að binda samninga við einstakar búvörur. Ráðherra er heimilt í stað fyrrgreindra samninga að semja um beinar greiðslur ríkissjóðs til framleiðenda nautgripa- og sauðfjárafurða á lögbýlum og framleiðenda garðyrkjuafurða á garðyrkjubýlum,
   b. heimilt að ákveða mismunandi stuðningsgreiðslur eftir landsvæðum með tilliti til byggðasjónarmiða og mikilvægis einstakra búgreina á hverjum stað.
Heimilt er að mæla fyrir um endurskoðun samnings skv. 1. mgr. á samningstímanum þar sem metin eru áhrif og þróun samkvæmt samningi og teknar upp samningaviðræður að nýju teljist þess þörf.
Þeir framleiðendur einir fá greiðslur í samræmi við samning samkvæmt þessari grein sem stunda landbúnað á lögbýli eða garðyrkjubýli, [taka þátt í lögbundnu skýrsluhaldi með fullnægjandi skilum, sem eru skilgreind nánar í reglugerð],1) eru með virðisaukaskattsnúmer og starfsemi sem fellur undir atvinnugreinanúmer 01 og 02 í atvinnugreinaflokkun Hagstofu Íslands, sbr. ÍSAT2008, þó ekki starfsemi í undirflokkum 01.61, 01.62, 01.63, 01.64, 01.70 og 02.40.
Á hverju lögbýli eða garðyrkjubýli skal aðeins einn framleiðandi vera skráður handhafi greiðslna. Þó er einstaklingum í hjúskap eða óvígðri sambúð á hverju lögbýli heimilt að skrá tvo framleiðendur sem handhafa greiðslna. Þegar um fleiri sjálfstæða rekstraraðila er að ræða með aðskilinn búrekstur getur hver og einn þeirra verið handhafi greiðslna.]2)
   1)L. 44/2019, 2. gr. 2)L. 102/2016, 7. gr.
31. gr.
[Ráðherra skipar sex menn í framkvæmdanefnd búvörusamninga. Ráðherra tilnefnir tvo fulltrúa og skal annar þeirra vera formaður. Ráðherra sem fer með fjárreiður ríkisins tilnefnir einn fulltrúa og Bændasamtök Íslands tilnefna þrjá fulltrúa. Varamenn skulu tilnefndir og skipaðir á sama hátt.
Framkvæmdanefnd búvörusamninga er sjálfstæð í störfum sínum og setur sér starfsreglur.
Framkvæmdanefnd búvörusamninga er samráðsvettvangur samningsaðila um framkvæmd samninga skv. 30. gr. Nefndin er ráðherra til ráðgjafar við framkvæmd samninga skv. 30. gr. Hún tekur ákvarðanir um tilfærslur framlaga milli einstakra samningsliða og greiðslutilhögun framlaga.
Ákvarðanir í nefndinni skulu teknar með einföldum meiri hluta atkvæða. Séu ákvæði jöfn sker atkvæði formanns úr um niðurstöðu. Ákvarðanir framkvæmdanefndar búvörusamninga eru endanlegar á stjórnsýslustigi. Fundargerðir og ákvarðanir nefndarinnar skal birta opinberlega.]1)
   1)L. 102/2016, 8. gr.
32. gr.
[[Heimilt er að]1) ákveða að greiðslur í samræmi við samning skv. 30. gr. verði greiddar til framleiðanda óháð framleiðslu á lögbýli eða garðyrkjubýli ef framleiðsluskilyrði hafa raskast tímabundið vegna náttúruhamfara, þannig að búskapur hafi dregist saman eða fallið niður um tíma, t.d. vegna stórfellds öskufalls eða jökulflóða, vegna óvenjulegs veðurfars, alvarlegra búfjár- eða plöntusjúkdóma eða vegna þess að afurðasala frá býlinu hefur verið bönnuð af ástæðum sem hlutaðeigandi framleiðandi gat ekki haft áhrif á.
Nú hefur framleiðandi fengið greiddar bætur vegna tjóns sem hann á jafnframt rétt á að fá bætt með greiðslum samkvæmt þessu ákvæði og er þá heimilt að lækka greiðslurnar sem bótunum nemur. Jafnframt er ráðherra heimilt að áskilja að bætur sem framleiðandi kann að eiga rétt á síðar vegna tjónsins renni í ríkissjóð.
Ráðherra er heimilt að víkja frá ásetningshlutfalli skv. 3. mgr. 39. gr. á býlum þar sem framleiðsluskilyrði hafa raskast tímabundið skv. 1. mgr.
Um þær greiðslur sem eru framleiðslutengdar skal taka mið af meðaltalsframleiðslu síðustu þriggja ára fyrir röskun framleiðsluskilyrða. Þó er …1) heimilt að víkja frá þessu viðmiði ef málefnalegar ástæður eru fyrir því.
Heimilt er að binda ákvörðun um fyrirgreiðslu því skilyrði að bætur sem framleiðandi kann að eiga rétt á frá þriðja aðila renni sem fyrirgreiðslunni nemur í ríkissjóð.]2)
   1)L. 84/2019, 9. gr. 2)L. 102/2016, 9. gr.
33. gr.1)
   1)L. 160/2012, 2. gr., sbr. og brbákv. í s.l.
34. gr.1)
   1)L. 102/2016, 10. gr.

VIII. kafli. 1)
   1)L. 102/2016, 11. gr.

IX. kafli. [Um starfsskilyrði sauðfjárræktar 2017–2026.]1)
   1)L. 102/2016, 18. gr.
36. gr.
[Markmið með ákvæðum þessa kafla um starfsskilyrði sauðfjárræktar eru:
   a. að stuðla að áframhaldandi þróun í greininni og bættri afkomu,
   b. að treysta stoðir sauðfjárræktar í byggða- og atvinnulegu tilliti,
   c. að auðvelda nýliðun og nauðsynleg kynslóðaskipti sem tryggi að stuðningur ríkisins nýtist starfandi bændum á hverjum tíma,
   d. að stuðla að fjölbreyttu framboði gæðaafurða á sanngjörnu verði fyrir neytendur,
   e. að efla gæðastýrða sauðfjárframleiðslu og aðra þætti sem henni tengjast eins og velferð dýra, heilnæmi afurða, umhverfisvitund og sjálfbæra landnýtingu, og
   f. að efla markaðsstarf, nýsköpun og markaðsvitund í sauðfjárrækt.]1)
   1)L. 102/2016, 12. gr.
37. gr.
[Á tímabilinu frá 1. janúar 2017 til 31. desember 2026 greiðir íslenska ríkið framlög til sauðfjárræktar í samræmi við samning skv. 30. gr.
Enginn framleiðandi getur fengið hærri heildarframlög samkvæmt samningi um starfsskilyrði sauðfjárræktar en sem nemur 0,4% af heildarframlögum hvers árs.]1)
   1)L. 102/2016, 13. gr.
38. gr.
[Greiðslumark skal bundið við lögbýli. [Halda skal]1) skrá yfir rétthafa greiðslumarks lögbýla og handhafa beingreiðslna samkvæmt því. …2)
[Aðilaskipti að greiðslumarki eru óheimil frá 1. júní 2019. Þó er heimil tilfærsla greiðslumarks milli lögbýla í eigu sama aðila og við ábúendaskipti eða breytingu skráningar ef um hjón eða sambúðarfólk er að ræða. Ráðherra skal í reglugerð mæla fyrir um nánari framkvæmd og frekari skilyrði fyrir tilfærslu eða breytingu skráningar greiðslumarks. Tilfærsla greiðslumarks tekur ekki gildi fyrr en staðfesting Matvælastofnunar liggur fyrir.]3)
Sé ábúandi annar en eigandi lögbýlis þarf samþykki ábúanda og eiganda fyrir [tilfærslu]3) greiðslumarks.
[Handhafi greiðslumarks getur óskað eftir innlausn á greiðslumarki. Greiðslumark verður innleyst, selt og boðið til sölu á innlausnarvirði í gegnum markað ár hvert. Heimilt er að gefa ákveðnum hópum framleiðenda forgang við kaup á greiðslumarki sem boðið verður til sölu hverju sinni og skulu skilgreiningar á slíkum hópum útfærðar í reglugerð. Ríkið innleysir það greiðslumark sem selst ekki á markaðnum og fellur þá ærgildi greiðslumarksins niður. Nánara fyrirkomulag innlausnar og sölu greiðslumarks skal útfært í reglugerð.]3)
[Ábúanda eða leigutaka lögbýlis er heimilt að kaupa greiðslumark til skráningar á lögbýlið. Skal slíkt greiðslumark sérstaklega skráð á nafn leiguliða. Framsal á greiðslumarki samkvæmt þessari málsgrein er heimilt án samþykkis jarðareiganda.]4)
[Frá og með 1. janúar [2027]5) fellur greiðslumark úr gildi. Greiðslumark sem er óvirkt í þrjú ár samfellt á tímabilinu 1. janúar 2017 til 31. desember 2025 fellur niður.]2)]6)
   1)L. 84/2019, 10. gr. 2)L. 102/2016, 14. gr. 3)L. 44/2019, 3. gr. 4)L. 71/2021, 36. gr. 5)L. 102/2023, 30. gr. 6)L. 88/2000, 7. gr.
39. gr.
[[Beingreiðslur greiðast úr ríkissjóði til handhafa í samræmi við greiðslumark hvers lögbýlis eins og það er skráð á hverjum tíma.]1)
Réttur til beingreiðslna flyst milli aðila innan lögbýlis við ábúendaskipti og við breytingu skráningar ef um hjón eða sambúðarfólk er að ræða.
[Ráðherra skal í reglugerð ákveða lágmark ásetnings vetrarfóðraðra kinda fyrir hvert ærgildi greiðslumarks sem handhafi þarf að eiga til að fá fullar beingreiðslur.]2) Nái ásetningur ekki því lágmarki skerðast beingreiðslur hlutfallslega. [Ráðherra er heimilt að endurmeta framangreint hlutfall árlega, að fenginni tillögu framkvæmdanefndar búvörusamninga, með tilliti til innanlandsvogar og þróunar á framboði og eftirspurn sauðfjárafurða. Verði sú heimild nýtt skal ákvörðun liggja fyrir eigi síðar en 15. september vegna beingreiðslna næsta almanaksárs á eftir. Ekki er heimilt að lækka hlutfallið niður fyrir 0,5.]2) [Ef greiðslumarki lögbýlisins er skipt á fleiri en einn rekstraraðila skal miðað við greiðslumark og ásetning hvers rekstraraðila fyrir sig.]1) Á lögbýlum þar sem búfjárbeit kemur í veg fyrir eðlilega framkvæmd uppgræðslu eða veldur of miklu álagi á beitiland er ráðherra heimilt að ákveða lægra ásetningshlutfall að fenginni umsögn [Lands og skógar].3) Þá getur ráðherra ákveðið að víkja frá framangreindu ásetningshlutfalli hjá framleiðendum sem hafa skorið niður fé til útrýmingar sjúkdómum.
Falli beingreiðslur niður án þess að gerður hafi verið samningur um búskaparlok heldur viðkomandi lögbýli greiðslumarki sínu. Tilkynna skal [ráðherra]4) um búskaparáform fyrir 15. janúar ár hvert ef handhafi óskar eftir að fá beingreiðslur aftur að loknu hléi. Beingreiðslur greiðast handhafa frá og með 1. janúar ár hvert eftir að hléi lýkur.
[[Ráðherra]4) getur ákveðið að]1) skerða eða fella niður [greiðslur]5) ef sauðfjárbóndi gefur rangar upplýsingar um ásettan fjölda sauðfjár eða stundar ólöglega sölu eða dreifingu á kjöti af heimaslátruðu sauðfé eða brýtur á annan hátt reglur eða samningsbundin ákvæði um afsetningu afurða.
2)]6)
   1)L. 58/2007, 6. gr. 2)L. 44/2019, 4. gr. 3)L. 66/2023, 7. gr. 4)L. 84/2019, 11. gr. 5)L. 102/2016, 15. gr. 6)L. 88/2000, 8. gr.
40. gr.1)
   1)L. 58/2007, 7. gr.
41. gr.
[[[Framleiðandi sem á tímabilinu frá 1. janúar 2017 til 31. desember 2026 uppfyllir skilyrði um gæðastýrða framleiðslu á rétt á sérstakri álagsgreiðslu sem greiða skal fyrir allt framleitt kindakjöt sem ætlað er til innanlandsmarkaðar. Framleiðandi skal uppfylla kröfur um velferð búfjár, sjálfbæra landnýtingu og hollustu afurða. Áætluð þörf innanlandsmarkaðar er metin með hjálp innanlandsvogar.]1)
Gæðastýrð sauðfjárframleiðsla skal m.a. ná til landnota, aðbúnaðar og umhverfis, skýrsluhalds, jarðræktar, fóðrunar, heilsufars og lyfjanotkunar. Framleiðsluaðferðir og framleiðsluaðstæður skulu skjalfestar, svo sem með landbótaáætlun.]2)
3) [Ráðherra er heimilt að gera samninga við ríkisstofnanir og/eða einkaaðila um að annast verkefni við úttekt og eftirlit á landi sem nýtt er við gæðastýrða framleiðslu.]4)2)4)
[Tíðni eftirlits með framleiðendum í gæðastýrðri sauðfjárframleiðslu skal byggjast á áhættuflokkun, að teknu tilliti til niðurstaðna úr eftirliti og samkvæmt eftirlitsáætlun.]2)
Réttur framleiðenda til gæðastýringargreiðslna skv. 1. mgr. fellur niður uppfylli þeir ekki skilyrði um gæðastýrða sauðfjárframleiðslu samkvæmt lögum þessum og reglugerð.
[Framleiðendur sem hafa skorið niður gemlinga og fullorðið sauðfé á býli sínu að kröfu stjórnvalda til að varna útbreiðslu sauðfjársjúkdóma eiga rétt til greiðslna vegna gæðastýrðrar sauðfjárframleiðslu við kaup á allt að jafnmörgum líflömbum til endurnýjunar fjárstofnsins. Þessi réttur fellur niður um fyrstu áramót eftir að liðin eru tvö ár síðan heimilt var að taka fé að nýju á býlið. Við ákvörðun greiðslna skal miða við 16 kg fallþunga. Óheimilt er að framselja þennan rétt. …2)]5)
[Framkvæmdanefnd búvörusamninga er heimilt að ákvarða mismunandi stuðla í þeim tilgangi að greiða misháar álagsgreiðslur á einstaka flokka lambakjöts og ærkjöts og vegna mismunandi sláturtíma.]2)]6)
   1)L. 44/2019, 5. gr. 2)L. 102/2016, 16. gr. 3)L. 46/2015, 4. gr. 4)L. 167/2007, 27. gr. 5)L. 67/2009, 2. gr. 6)L. 58/2007, 8. gr.
42.–49. gr.1)
   1)L. 58/2007, 9.–16. gr.
[50. gr.]1)
[Allir þeir sem hafa greiðslumark til ráðstöfunar eða hagnýtingar eða hafa með höndum framleiðslu sauðfjárafurða eru háðir þeim breytingum á réttarstöðu sem lög þessi hafa í för með sér.]2)
3)
   1)L. 101/2002, 4. gr. 2)L. 124/1995, 18. gr. 3)L. 102/2016, 17. gr.

X. kafli. [Um starfsskilyrði nautgriparæktar 2017–2026.]1)
   1)L. 102/2016, 26. gr.
[51. gr.]1)
[Markmið ákvæða þessa kafla um starfsskilyrði nautgriparæktar eru:
   a. að almenn starfsskilyrði í framleiðslu og vinnslu nautgripaafurða og stuðningur ríkisins við greinina stuðli að áframhaldandi hagræðingu, bættri samkeppnishæfni og lægra vöruverði,
   b. að auðvelda nýliðun og nauðsynleg kynslóðaskipti sem tryggi að stuðningur ríkisins nýtist starfandi bændum á hverjum tíma,
   c. að stuðla að fjölbreyttu framboði gæðaafurða á sanngjörnu verði fyrir neytendur,
   d. að gætt sé sjónarmiða um velferð dýra og heilnæmi afurða,
   e. að greinin fái svigrúm til að búa sig undir aukna erlenda samkeppni og skapa aðstæður til að nýta sóknarfæri á erlendum mörkuðum, og
   f. að greinin geti endurnýjað framleiðsluaðstöðu í samræmi við auknar kröfur um aðbúnað og velferð dýra.]2)
   1)L. 101/2002, 4. gr. 2)L. 102/2016, 19. gr.
[52. gr.]1)
[Heildargreiðslumark mjólkur er tiltekið magn mjólkur, mælt í lítrum, sem beingreiðslur ríkissjóðs miðast við. Heildargreiðslumark mjólkur skal ákveðið …2) fyrir upphaf hvers verðlagsárs. [Við ákvörðun þess skal byggt á neyslu innlendra mjólkurvara sem farið hafa um afurðastöðvar undanfarið tólf mánaða tímabil og áætlun [ráðherra]3) fyrir komandi verðlagsár, að teknu tilliti til birgða. [Ráðherra]3) skal byggja áætlun fyrir komandi verðlagsár á upplýsingum frá afurðastöðvum.]4) Við mat á neyslu og birgðum skal miða við gildandi stuðla um samsetningu mjólkurafurða samkvæmt ákvörðun Framkvæmdanefndar búvörusamninga. Verði sala mjólkurafurða undir heildargreiðslumarki ársins þannig að birgðir aukist kemur mismunur til lækkunar á heildargreiðslumarki næsta árs. Á sama hátt hækkar heildargreiðslumark ef sala eykst. Birgðir sem verða til vegna framleiðslu einstakra mjólkurframleiðenda umfram heildargreiðslumark, sbr. 3. mgr., teljast ekki til birgða við ákvörðun heildargreiðslumarks.
2)
Framleiðsla mjólkur umfram greiðslumark skal fara á erlendan markað á ábyrgð hvers framleiðanda og viðkomandi afurðastöðvar. Framkvæmdanefnd búvörusamninga getur þó heimilað sölu þessara vara innan lands ef heildarframleiðsla verður minni en sala og birgðastaða gefa tilefni til.]5)
   1)L. 101/2002, 4. gr. 2)L. 102/2016, 20. gr. 2)L. 84/2019, 12. gr. 4)L. 46/2015, 5. gr. 5)L. 69/1998, 12. gr.
[53. gr.]1)
[Greiðslumark skal bundið við lögbýli. [Halda skal]2) skrá yfir greiðslumark lögbýla og handhafa réttar til beingreiðslu samkvæmt því. Þó er heimilt þegar um fleiri sjálfstæða aðila er að ræða sem standa að búinu að skrá þá sérstaklega.
3)
3)
Greiðslumark þar sem engin framleiðsla fer fram í a.m.k. eitt verðlagsár skal falla niður.]4)
   1)L. 101/2002, 4. gr. 2)L. 84/2019, 13. gr. 3)L. 139/2019, 1. gr. 4)L. 102/2016, 21. gr.
[54. gr.]1)
[Öll aðilaskipti að greiðslumarki mjólkur skulu fara fram á markaði. Þó er heimil tilfærsla greiðslumarks milli lögbýla í eigu sama aðila og við ábúendaskipti eða breytingu skráningar ef um hjón eða sambúðarfólk er að ræða. Ráðherra skal í reglugerð mæla fyrir um nánari framkvæmd markaðar með greiðslumark, forgang nýliða og frekari skilyrði fyrir tilfærslu eða breytingu skráningar greiðslumarks.]2)
[Ábúanda eða leigutaka lögbýlis er heimilt að kaupa greiðslumark til skráningar á lögbýlið. Skal slíkt greiðslumark sérstaklega skráð á nafn leiguliða. Framsal á greiðslumarki samkvæmt þessari málsgrein er heimilt án samþykkis jarðareiganda.]3)
   1)L. 101/2002, 4. gr. 2)L. 139/2019, 2. gr. 3)L. 71/2021, 37. gr.
[55. gr.]1)
[Á tímabilinu frá 1. janúar 2017 til 31. desember 2026 greiðir íslenska ríkið framlög til nautgriparæktar í samræmi við samning skv. 30. gr.
Enginn framleiðandi getur fengið hærri heildarframlög samkvæmt samningi um starfsskilyrði nautgriparæktar en sem nemur 0,7% af heildarframlögum hvers árs.
Greiðsla út á greiðslumark er stuðningur við framleiðslu og markað fyrir mjólkurafurðir, greiddur úr ríkissjóði til greiðslumarkshafa. Greiðsla út á greiðslumark er greidd mánaðarlega og ákveður framkvæmdanefnd búvörusamninga nánar greiðslutilhögun og fráviksmörk beingreiðslu fyrir upphaf hvers verðlagsárs, að fengnum tillögum Landssambands kúabænda.
Greiðslur út á innvegna mjólk eru greiddar mánaðarlega á alla innvegna mjólk óháð greiðslumarki og skal skipt í tólf jafna hluta þannig að jafnhá upphæð er greidd í hverjum mánuði óháð framleiðslumagni mánaðarins. Upphæð hvers mánaðar deilist jafnt á alla innvegna lítra í þeim mánuði.]2)
   1)L. 101/2002, 4. gr. 2)L. 102/2016, 23. gr.
[55. gr. A.
Ráðherra er heimilt að ráðstafa framlögum milli tiltekinna liða í samningi skv. 30. gr. til að bregðast við breytingum á framboði og eftirspurn á markaði, að fenginni tillögu framkvæmdanefndar búvörusamninga.]1)
   1)L. 102/2016, 24. gr.
[56. gr.]1)
2)
Allir þeir sem hafa …3) greiðslumark til ráðstöfunar eða hagnýtingar eða hafa með höndum framleiðslu mjólkur eru háðir þeim breytingum á réttarstöðu sem lög þessi hafa í för með sér.
3)
   1)L. 101/2002, 4. gr. 2)L. 58/2007, 19. gr. 3)L. 102/2016, 25. gr.

[XI. kafli. [Um starfsskilyrði framleiðenda garðyrkjuafurða 2017–2026.]1)]2)
   1)L. 102/2016, 32. gr. 2)L. 84/2002, 2. gr.
[[57. gr.]1)
[Markmið með ákvæðum þessa kafla um starfsskilyrði framleiðenda garðyrkjuafurða eru:
   a. að auka framboð og neyslu á garðyrkjuafurðum í samræmi við lýðheilsustefnu stjórnvalda og auka vitund um hollustu og heilbrigða lífshætti,
   b. að stuðla að fjölbreyttara framboði á garðyrkjuafurðum árið um kring á sanngjörnu verði fyrir neytendur,
   c. að auka fagmennsku, hagkvæmni og samkeppnishæfni innlendrar garðyrkjuframleiðslu,
   d. að treysta tekju- og starfsgrundvöll framleiðenda garðyrkjuafurða, og
   e. að styðja framleiðslu- og markaðsmöguleika innlendrar framleiðslu.]2)]3)
   1)L. 101/2002, 4. gr. 2)L. 102/2016, 27. gr. 3)L. 84/2002, 2. gr.
[[58. gr.]1)
[Á tímabilinu frá 1. janúar 2017 til 31. desember 2026 greiðir íslenska ríkið framlög til framleiðenda garðyrkjuafurða í samræmi við samning skv. 30. gr.
[Enginn framleiðandi getur fengið hærri heildarframlög samkvæmt samningi um starfsskilyrði framleiðenda garðyrkjuafurða en sem nemur 10% af heildarframlögum til beingreiðslna, að undanskildum beingreiðslum vegna flutnings- og dreifingarkostnaðar raforku. Hámarkið er reiknað af hverjum beingreiðsluflokki fyrir sig. Hámarksstuðningur af beingreiðslum vegna flutnings- og dreifingarkostnaðar raforku á hvern framleiðanda er 17,5% af heildarframlögum til þess beingreiðsluflokks.]2)
Heimilt er ráðherra að fela Matvælastofnun eða öðrum opinberum aðila að annast faglega umsjón með verkefnum sem samið er um skv. 1. mgr. og framkvæmd þeirra, enda sé skipulag þeirra og starfsreglur í samræmi við ákvæði laga.]3)]4)
   1)L. 101/2002, 4. gr. 2)L. 126/2020, 1. gr. 3)L. 102/2016, 28. gr. 4)L. 84/2002, 2. gr.
[[59. gr.]1)
Rétt til beingreiðslna eiga allir framleiðendur tegunda sem samið er um skv. [58. gr.]1) en réttur til beingreiðslna takmarkast jafnframt við að um sé að ræða viðskipti milli bókhaldsskyldra einstaklinga eða lögaðila með virðisaukaskattsskylda veltu samkvæmt lögum nr. 50/1988, um virðisaukaskatt.
[[Halda skal]2) skrá yfir rétthafa beingreiðslna samkvæmt þessum kafla.]3)4)]5)
   1)L. 101/2002, 4. gr. 2)L. 84/2019, 15. gr. 3)L. 46/2015, 6. gr. 4)L. 102/2016, 29. gr. 5)L. 84/2002, 2. gr.
[[60. gr.]1)
[Framleiðandi sem er umsækjandi um beingreiðslur skal leggja fram upplýsingar um afurð, verð og viðskiptakjör.
Ef framleiðandi verður ekki við kröfum skv. 1. mgr. skal réttur til beingreiðslna felldur niður þar til framleiðandi hefur gert fullnægjandi úrbætur innan ákveðinna tímamarka.]2)]3)
   1)L. 101/2002, 4. gr. 2)L. 102/2016, 30. gr. 3)L. 84/2002, 2. gr.
[[61. gr.]1)
2)
3)
[Ráðherra]4) setur með reglugerðum5) og öðrum stjórnvaldsreglum6) nánari ákvæði um framkvæmd þessa kafla.]7)
   1)L. 101/2002, 4. gr. 2)L. 58/2007, 20. gr. 3)L. 102/2016, 31. gr. 4)L. 126/2011, 182. gr. 5)Rg. 1273/2020 og 589/2022. 6)Rgl. 482/2002. 7)L. 84/2002, 2. gr.

[XII. kafli.]1) [Innflutningur landbúnaðarvara og úthlutun tollkvóta.]2)
   1)L. 84/2002, 2. gr. 2)L. 102/2016, 37. gr.
[62. gr.]1)2)
   1)L. 101/2002, 4. gr. 2)L. 112/1999, 18. gr.
[63. gr.]1)2)
   1)L. 101/2002, 4. gr. 2)L. 102/2016, 33. gr.
[64. gr.]1)
[Innflutningur landbúnaðarvara frá ríkjum, sem staðfest hafa aðild sína að samningnum um stofnun Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar, skal vera óheftur nema önnur lög takmarki. Með þeim takmörkunum sem leiðir af ákvæðum fríverslunar- og annarra milliríkjasamninga sem Ísland er aðili að er [ráðherra]2) heimilt að takmarka innflutning landbúnaðarvara frá ríkjum utan Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar á vörum þeim er greinir í viðaukum I og II með lögum þessum.
[Ráðherra]2) er einnig heimilt að banna innflutning á afurðum dýra og plantna sem gefin hafa verið vaxtaraukandi efni á framleiðsluskeiðinu eða kunna að fela í sér leifar lyfja og annarra aðskotaefna umfram það sem leyft er við framleiðslu hér á landi og geta verið hættuleg heilsu manna. [Ráðherra]2) ákveður með reglugerð3) á hvern hátt hagað skuli eftirliti með innflutningi afurðanna, sýnatöku og rannsóknum.]4)
   1)L. 101/2002, 4. gr. 2)L. 126/2011, 182. gr. 3)Rg. 1250/2019. 4)L. 87/1995, 18. gr.
[65. gr.]1)
[[Ráðherra]2) úthlutar tollkvótum fyrir landbúnaðarvörur samkvæmt viðaukum IIIA og B við [tollalög, nr. 88/2005],3) á þeim tollum sem tilgreindir eru í [12. gr.]3) í tollalögum. [Úthlutun tollkvóta samkvæmt viðauka IIIB nær aðeins til vara sem flokkast undir tollskrárnúmerin [0602.9081–9083, 0602.9088, 0602.9093, 0603.1100, 0603.1400, 0603.1906–1908, 0603.1911–1918 og 0603.1999]4) í 6. kafla tollskrár í viðauka I við tollalög. Um toll á aðrar vörur viðauka IIIB fer skv. 2. mgr. 12. gr. tollalaga.]5)
Úthlutun tollkvóta skal, eftir því sem við getur átt, vera í samræmi við samninginn um málsmeðferð við veitingu innflutningsleyfa sem birtur er í 1. viðauka A við samninginn um stofnun Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar.
[Heimilt er að skipta tollkvótum upp í einingar. Tollkvótum skal úthlutað til ákveðins tíma, allt að einu ári í senn. Heimilt er að endurúthluta tollkvótum sem ekki eru nýttir innan þess frests sem tilgreindur er við úthlutun kvótans. Berist umsóknir um meiri innflutning en sem nemur tollkvóta vörunnar skal leitað tilboða í heimildir til innflutnings samkvæmt tollkvótum og skal andvirðið þá renna í ríkissjóð. Til þess að tilboð teljist gilt er heimilt að fara fram á ábyrgðaryfirlýsingu eða staðgreiðslu tilboðs. Við útboð tollkvóta skulu valin hæstu verðtilboð í tiltekið magn þar til magni tollkvóta sem til ráðstöfunar er hefur verið náð. Verð tollkvótans fyrir öll valin verðtilboð ræðst að svo búnu af verði lægsta valda tilboðsins í hverjum vörulið. Gildir það verð þá jafnframt fyrir önnur hærri og valin tilboð sé þeim til að dreifa. Séu fleiri en einn þátttakandi með tilboð jöfn lægsta samþykkta tilboði skal úthlutað hlutfallslega. Auglýsa skal útboð tollkvóta.]6)
Um viðurlög við misnotkun tollkvóta í því skyni að fá ívilnun í tolli eða sköttum við innflutning á vörum sem ekki falla undir tollkvótann skal fara [skv. XXII. kafla tollalaga].3) Heimilt er að synja þeim um úthlutun tollkvóta sem gerst hefur sekur um misnotkun.
[Ráðherra]2) birtir í reglugerð þær reglur sem gilda um úthlutun tollkvóta samkvæmt þessari grein þar sem m.a. komi fram úthlutunarkvóti, innflutningstímabil, tollataxtar, viðurlög við misnotkun og aðrir skilmálar sem um innflutninginn skulu gilda.]7)
   1)L. 101/2002, 4. gr. 2)L. 126/2011, 182. gr. 3)L. 16/2007, 3. gr. 4)L. 136/2020, 1. gr. 5)L. 102/2016, 34. gr. 6)L. 152/2019, 1. gr. 7)L. 87/1995, 19. gr.
[[65. gr. A.]1)
[Eftirtaldar vörur sem falla undir viðauka IVA, IVB og V við tollalög bera toll skv. 3. mgr. 12. gr. tollalaga, nr. 88/2005, á þeim tímabilum sem kveðið er á um í eftirfarandi upptalningu:
   1. Vörur með tollskrárnúmerunum 0208.9003, 0208.9007, 0208.9008, 0208.9009, 0407.1100, 0407.1900, 0603.1202, 0603.1905, 0701.9001, 0703.9001, 0706.9002 og 0709.5100 frá 1. janúar til 31. desember ár hvert.
   2. Vörur með tollskrárnúmerunum 0704.1000 og 0709.4000 frá 1. janúar til 15. ágúst og 15. október til 31. desember ár hvert.
   3. Vörur með tollskrárnúmerinu 0704.9001 frá 1. janúar til 31. júlí ár hvert.
   4. Vörur með tollskrárnúmerinu 0706.1000 frá 15. apríl til 30. júní ár hvert.
   5. Vörur með tollskrárnúmerinu 0704.9002 frá 1. janúar til 31. júlí og 1. til 31. desember ár hvert.
   6. Vörur með tollskrárnúmerunum 0704.9003 og 0704.9004 frá 1. janúar til 30. júní og 15. október til 31. desember ár hvert.
Ráðherra skal á tveggja ára fresti endurmeta framangreindar vörur og tímabil og eftir atvikum leggja til breytingar.]2)]3)
   1)L. 101/2002, 4. gr. 2)L. 152/2019, 2. gr. 3)L. 87/1995, 20. gr.
[65. gr. B.
[Ráðherra]1) úthlutar tollkvótum sem tilgreindir eru í [5. mgr. 12. gr.]2) tollalaga er varða aðrar skuldbindingar Íslands um innflutning á landbúnaðarvörum í fríverslunar- og milliríkjasamningum en þær sem greinir í 65. gr. og 65. gr. A enda sé tollur lagður á vöruna sem magntollur eftir því sem í tollskrá í viðauka I við tollalög, nr. 88/2005, greinir. Úthlutun tollkvóta skal fara eftir ákvæðum 65. gr. [Þó skal ráðherra úthluta tollkvóta sem fellur undir vörulið 0406 samkvæmt tollskrá í viðauka I við tollalög eftir hlutkesti en hver aðili hljóti þó að hámarki 15% af heildarmagni ef viðkomandi vara er skráð í samræmi við reglur um vernd afurðarheita sem vísa til uppruna, landsvæðis eða hefðbundinnar sérstöðu.]2)
[Ráðherra]1) birtir í reglugerð þær reglur sem gilda um úthlutun tollkvóta samkvæmt þessari grein þar sem m.a. komi fram úthlutunarkvóti, innflutningstímabil, tolltaxtar, viðurlög við misnotkun, sbr. 4. mgr. 65. gr., og aðrir skilmálar sem um innflutninginn skulu gilda.]3)
   1)L. 126/2011, 182. gr. 2)L. 102/2016, 35. gr. 3)L. 16/2007, 5. gr.
[66. gr.]1)
[Ráðherra]2) getur með reglugerð ákveðið að mjólk og mjólkurvörur, egg, kartöflur, garðávextir og grænmeti, sem selja á innan lands eða flytja skal á erlendan markað, skuli metið, flokkað og merkt eftir tegundum, gæðum og uppruna enda fullnægi varan reglum um heilbrigði og hollustuhætti sem settar eru á grundvelli …3) [laga nr. 93 28. júní 1995, um matvæli].4)
Til að standa straum af kostnaði við mat samkvæmt þessari grein er ráðherra heimilt að láta innheimta sérstakt matsgjald af þeirri vöru sem matið tekur til og má gjaldið vera tiltekin krónutala á hverja þyngdareiningu eða hlutfall af verði vörunnar til framleiðanda. Matsgjaldið má þó aldrei vera hærra en sem nemur 1,5% af verði vörunnar til framleiðanda. Framleiðandi þeirrar vöru, sem tekin er til mats, er ábyrgur fyrir greiðslu matsgjalds. Gjald þetta má taka lögtaki. Heimilt er að ákveða að það skuli innheimt með búnaðarmálasjóðsgjaldi samkvæmt lögum nr. 41 15. maí 1990.5)
[Ráðherra]2) ákveður yfirstjórn mats þeirra búvara sem ákveðið er að taka til mats samkvæmt þessari grein.
Um löggildingu matsmanna fer eftir ákvæðum í reglugerð og er þar heimilt að ákveða að afurðastöð og söluaðilar skuli á sinn kostnað hafa í þjónustu sinni matsmenn til að framkvæma mat samkvæmt þessari grein. Þá eina má skipa eða löggilda sem matsmenn sem hafa góða þekkingu á viðkomandi búvöru og reynslu í öllu er varðar meðferð varanna og mat á þeim.
Í reglugerð skulu sett ákvæði um matsreglur, gæðaflokkun, framkvæmd mats, yfirmat og annað sem lýtur að matinu.
Afurðastöðvum og öðrum, sem annast sölumeðferð þeirra búvara sem mat samkvæmt þessari grein tekur til, er skylt að sjá matsmönnum fyrir aðstöðu til að framkvæma matið samkvæmt nánari reglum sem settar skulu í reglugerð.
Við verðlagningu búvara skal verð þeirra ákveðið mismunandi eftir tegunda- og gæðaflokkum sem ákveðnir eru samkvæmt þessari grein, [lögum nr. 96 27. maí 1997, um eldi og heilbrigði sláturdýra, slátrun, vinnslu, heilbrigðisskoðun og gæðamat á sláturafurðum],4) lögum nr. 57 16. maí 1990, um flokkun og mat á gærum og ull, og öðrum lögum og reglum um sama efni.
   1)L. 101/2002, 4. gr. 2)L. 126/2011, 182. gr. 3)L. 167/2007, 56. gr. 4)L. 88/2000, 13. gr. 5)l. 84/1997.
[67. gr.]1)
Þeir sem versla með búvörur skulu fullnægja skilyrðum laga og annarra ákvarðana yfirvalda um slíka starfsemi og hafa fullnægjandi aðstöðu til meðferðar, flutnings og geymslu þeirrar vöru sem þeir taka til sölumeðferðar samkvæmt reglum heilbrigðisyfirvalda.
Nú selur framleiðandi eigin búvöruframleiðslu til smásöluverslunar eða neytenda og er honum þá skylt að fullnægja ákvæðum laga og annarra ákvarðana yfirvalda um flokkun, mat, flutning, geymslu og annað sem lýtur að meðferð vörunnar.
Skylt er seljanda og kaupanda að veita [Matvælastofnun]2) allar umbeðnar upplýsingar um söluna, þar á meðal um uppruna vörunnar, svo að ganga megi úr skugga um að ofangreind skilyrði hafi verið uppfyllt.
   1)L. 101/2002, 4. gr. 2)L. 167/2007, 56. gr.
[68.–70. gr.]1)2)
   1)L. 101/2002, 4. gr. 2)L. 69/1998, 18. gr.
[71. gr.]1)
[Þrátt fyrir ákvæði samkeppnislaga er afurðastöðvum í mjólkuriðnaði heimilt að sameinast, gera með sér samkomulag um verkaskiptingu milli mjólkursamlaga að því er varðar framleiðslu einstakra mjólkurvara og hafa með sér annars konar samstarf til þess að halda niðri kostnaði við framleiðslu, geymslu og dreifingu mjólkurafurða.]2)
   1)L. 101/2002, 4. gr. 2)L. 85/2004, 2. gr.
[71. gr. A.
Þrátt fyrir ákvæði samkeppnislaga er framleiðendafélögum skv. 5. gr. heimilt að sameinast, gera með sér samkomulag um verkaskiptingu milli afurðastöðva að því er varðar framleiðslu einstakra kjötafurða og hafa með sér annars konar samstarf til þess að halda niðri kostnaði við framleiðslu, geymslu og dreifingu kjötvara.
Framleiðendafélög sem nýta sér heimild 1. mgr. skulu:
   a. safna afurðum frá framleiðendum á grundvelli sömu viðskiptakjara,
   b. selja öðrum vinnsluaðilum afurðir til frekari vinnslu á grundvelli sömu viðskiptakjara og dótturfélögum eða öðrum félögum sem framleiðendafélag hefur yfirráð yfir,
   c. ekki setja skorður við því að framleiðendur færi viðskipti sín til annars aðila,
   d. tryggja öllum framleiðendum rétt til að eiga einungis viðskipti við framleiðendafélag um afmarkaða þætti, svo sem slátrun og hlutun.
Samkeppniseftirlitið fer með eftirlit með framkvæmd 2. mgr.]1)
   1)L. 30/2024, 2. gr.
[72.–73. gr.]1)2)
   1)L. 101/2002, 4. gr. 2)L. 69/1998, 18. gr.
[74. gr.]1)2)
   1)L. 101/2002, 4. gr. 2)L. 58/2007, 21. gr.
[75. gr.]1)2)
   1)L. 101/2002, 4. gr. 2)L. 102/2016, 36. gr.
[76. gr.]1)
Þar sem afurðastöð búvara er í eigu aðila sem hefur með höndum annan rekstur er skylt að halda bókhaldi og fjárreiðum afurðastöðvarinnar aðgreindum frá öðrum rekstri viðkomandi aðila.
Þá getur [verðlagsnefnd búvöru]2) ákveðið að afurðastöðvar skuli setja reikninga sína upp með samræmdum hætti.
   1)L. 101/2002, 4. gr. 2)L. 69/1998, 16. gr.

[XIII. kafli.]1) Ýmis ákvæði.
   1)L. 84/2002, 2. gr.
[77. gr.]1)
[[Safna skal]2) upplýsingum og birta ár hvert skýrslu um framleiðslu búvara, vinnslu þeirra og sölu. Þá skal …2) gera áætlanir um framleiðslu og sölu búvara.
Skylt er öllum þeim er hafa með höndum vinnslu eða sölu búvara að láta [ráðherra]2) í té allar upplýsingar sem að gagni geta komið …2) og þeir geta veitt, þar með talið upplýsingar um verð búvöru til framleiðenda.]3)
   1)L. 101/2002, 4. gr. 2)L. 84/2019, 16. gr. 3)L. 46/2015, 8. gr.
[78. gr.]1)
Kostnaður við framkvæmd IV. kafla þessara laga greiðist úr ríkissjóði. Ráðherra ákveður þóknun nefndarmanna í verðlagsnefnd …2)
   1)L. 101/2002, 4. gr. 2)L. 69/1998, 16. gr.
[79. gr.]1)
[[Ráðherra]2) skal setja reglugerð um gæðastjórn í landbúnaðarframleiðslu. Í reglugerðinni skal lýst kröfum um gæðastjórn, vinnslu, geymslu og dreifingu íslenskra landbúnaðarafurða.]3)
   1)L. 101/2002, 4. gr. 2)L. 126/2011, 182. gr. 3)L. 124/1995, 20. gr.
[80. gr.]1)2)
   1)L. 101/2002, 4. gr. 2)L. 112/1999, 23. gr.
[81. gr.]1)
[Ráðherra skal í reglugerð2) mæla fyrir um nánari framkvæmd laga þessara, þar á meðal um:
   1. Stærðarmörk afurðastöðva vegna frumframleiðslu sinnar skv. 2. gr.
   2. Réttindi framleiðenda og skilyrði fyrir greiðslum skv. 30. gr.
   3. Framkvæmd vegna röskunar framleiðsluskilyrða og greiðslur og úttektir skv. 32. gr.
   4. Skilyrði fyrir greiðslum skv. 37. gr., greiðslumark sauðfjár, beingreiðslur fyrir sauðfé, ráðstöfun skertra og ónýttra beingreiðslna, hvernig þeim skuli ráðstafað og af hvaða opinbera aðila, innlausn greiðslumarks og aðilaskipti á greiðslumarki skv. IX. kafla.
   5. Gæðastýrða sauðfjárframleiðslu varðandi landnýtingarskilyrði, gæðakerfi, tilkynningar og fresti, kæruheimildir, eftirlit og úttektaraðila, landbótaáætlanir og tilhögun álagsgreiðslna skv. 41. gr.
   6. Heildargreiðslumark mjólkur og skiptingu þess á lögbýli, greiðslur út á greiðslumark og innvegna mjólk, innlausnarskyldu á greiðslumarki, aðilaskiptingu og skráningu þeirra og greiðslur til framleiðenda nautakjöts skv. X. kafla.
   7. Tilfærslur milli liða búvörusamninga skv. 30. gr., sbr. 55. gr. A.
   8. Beingreiðslur til framleiðenda garðyrkjuafurða, heildarfjárhæð beingreiðslna og skiptingu milli tegunda, fjárhæð á kíló, gæðaflokkun eftir tímabilum og önnur framlög til garðyrkju, framkvæmd og tilhögun skv. XI. kafla.
   9. Eftirlit með innflutningi afurða þar sem gefin hafa verið vaxtaraukandi efni á framleiðsluskeiði, sýnatökur og rannsóknir skv. 2. mgr. 64. gr.
   10. Úthlutun tollkvóta skv. 5. mgr. 65. gr., 5. mgr. 65. gr. A og 2. mgr. 65. gr. B.
   11. Eftirlit skv. 66. gr.
Ráðherra er heimilt að setja reglugerð um verkefni, valdsvið og starfsskilyrði framkvæmdanefndar búvörusamninga skv. 31. gr. [Þá er ráðherra heimilt að setja reglugerð um sérstök verkefni og stuðning sem fellur utan samninga sem gerðir eru á grundvelli 1. mgr. 30. gr.]3)]4)
   1)L. 101/2002, 4. gr. 2)Rg. 224/1994. Rg. 373/1993. Rg. 60/1994, sbr. 660/1994. Rg. 407/1997, sbr. 617/1997. Rg. 651/2001, sbr. 726/2004, 807/2006, 938/2014 og 639/2023. Rg. 511/2018. Rg. 430/2021, sbr. 319/2022, 589/2022 og 505/2023. Rg. 144/2022, sbr. 1332/2023. Rg. 348/2022, sbr. 1428/2022, 933/2023 og 1333/2023. Rg. 350/2024. 3)L. 100/2023, 33. gr. 4)L. 102/2016, 38. gr.
[82. gr.]1)
[Brot gegn lögum þessum og reglugerðum settum samkvæmt þeim varða sektum nema þyngri refsing liggi við samkvæmt öðrum lögum.]2)
Ef aðili, sem samkvæmt lögum þessum er skylt að gefa …3) skýrslu eða upplýsingar, tregðast við að láta þær í té má beita dagsektum [sem mega nema 20.000–100.000 kr. fyrir hvern dag].3)
[Ráðherra skal taka ákvörðun um álagningu dagsekta skv. 2. mgr. að fenginni tillögu þess aðila sem heimilt er að safna upplýsingum samkvæmt lögum þessum [ef við á].4) Dagsektir, að frádregnum kostnaði við álagningu og innheimtu, renna í ríkissjóð og má gera aðför til fullnustu þeirra án undangengins dóms eða sáttar.]3)
   1)L. 101/2002, 4. gr. 2)L. 88/2008, 234. gr. 3)L. 160/2012, 4. gr. 4)L. 84/2019, 17. gr.
[83. gr.]1)2)
   1)L. 101/2002, 4. gr. 2)L. 102/2016, 39. gr.
[84. gr.]1)2)
   1)L. 101/2002, 4. gr. 2)L. 102/2016, 39. gr.
[[85. gr.]1)2)]3)
   1)L. 101/2002, 4. gr. 2)L. 102/2016, 39. gr. 3)L. 126/1993, 2. gr.
[85. gr. A.1)]2)
   1)L. 44/2019, 7. gr. 2)L. 82/2003, 1. gr.
[[86. gr.]1)
[Ráðherra]2) getur ákveðið að lagður verði á tollur samkvæmt ákvæðum [138. gr.]3) tollalaga við innflutning á þeim vörum sem vísað er til í 1. mgr. 5. gr. samningsins um landbúnað í 1. viðauka A við samninginn um stofnun Alþjóðaviðskiptastofnunar og merktar eru SSG í viðauka IIA í tollalögum. Ráðherra setur reglugerð þar sem m.a. skal kveðið á um þær vörur sem álagningin tekur til, viðmiðanir um verð og magn skv. a- og b-liðum 1. mgr. 5. gr. samningsins um landbúnað.]4)
   1)L. 101/2002, 4. gr. 2)L. 126/2011, 182. gr. 3)L. 16/2007, 7. gr. 4)L. 87/1995, 23. gr.
[[87. gr.]1)2)]3)
   1)L. 101/2002, 4. gr. 2)L. 152/2019, 3. gr. 3)L. 87/1995, 24. gr.
Ákvæði til bráðabirgða.
A. []1)
   B.
   C.2)
   D. –F.
   [G. ]3)
   [H. ]4)
   [I. ]5)
   [J. ]6)
   [K.7)]8)
   [L. ]9)
   [M. ]10)
   [N.11)]12)
   [O.7)]13)
   [P.14)]15)
   [Q.7)]16)
   [R.14)]17)
   [S.14)]17)
   [T.18)]19)
   [U.7)
   Ú.7)]14)
   [V.7)]20)
   [W.7)
   X.7)]21)
   [Y.7)]22)
   [Z.7)]23)
   [AA.18)]24)
   [BB. Þrátt fyrir 3. mgr. 30. gr. og 1. mgr. 41. gr. er heimilt að gera aðlögunarsamninga við framleiðendur um nýja eða breytta starfsemi til sveita. Framleiðendur geta óskað eftir að gera slíka samninga fram til ársloka 2021. Aðlögunarsamningar sem gerðir verða árið 2019 gilda í fjögur ár en samningar gerðir síðar í þrjú ár. Þeir framleiðendur einir geta fengið stuðningsgreiðslur samkvæmt aðlögunarsamningi sem uppfylla skilyrði fyrir þeim. Ráðherra útfærir nánari skilyrði í reglugerð.]25)
   [CC. Ráðherra skal skipa starfshóp sem falið verði að fylgjast með þróun tollverndar í kjölfar þeirra breytinga sem gerðar voru á framkvæmd úthlutunar tollkvóta og tóku gildi 1. janúar 2020 og meta áhrif þeirra breytinga. Starfshópurinn skili ráðherra skýrslu í ársbyrjun 2022.]18)
   [DD. Þrátt fyrir 7.–9. málsl. 3. mgr. 65. gr. skal verð tollkvóta frá og með gildistöku ákvæðis þessa til 1. ágúst 2022 ráðast af fjárhæð tilboða hverju sinni. Kvótanum verður því fyrst úthlutað til hæstbjóðanda, svo til þess er næsthæst bauð og þannig koll af kolli uns tiltækum kvóta hefur verið úthlutað.]26)
   [EE. Þrátt fyrir 65. gr. A skulu eftirtaldar vörur sem falla undir viðauka IVA, IVB og V við tollalög bera toll skv. 3. mgr. 12. gr. tollalaga, nr. 88/2005, á þeim tímabilum sem kveðið er á um í eftirfarandi upptalningu [árin [2022, 2023 og 2024]27)]:28)
   1. Vörur með tollskrárnúmerinu 0709.4000 frá 1. janúar til 31. desember.
   2. Vörur með tollskrárnúmerunum 0704.1010, 0704.1021 og 0704.1029 frá 1. janúar til 15. ágúst og 1. október til 31. desember.
   3. Vörur með tollskrárnúmerinu 0704.9003 frá 1. janúar til 15. ágúst og 15. nóvember til 31. desember.
   4. Vörur með tollskrárnúmerinu 0704.9001 frá 1. janúar til 15. september og 15. desember til 31. desember.
   5. Vörur með tollskrárnúmerinu 0704.9002 frá 1. janúar til 31. ágúst og 15. desember til 31. desember.
   6. Vörur með tollskrárnúmerinu 0706.1000 frá 1. apríl til 31. ágúst.
   7. Vörur með tollskrárnúmerinu 0701.9009 frá 1. júní til 30. júní.]29)
   [FF. Fyrir lok árs 2028 skal ráðherra flytja Alþingi skýrslu þriggja óháðra sérfræðinga á sviði hagfræði og samkeppnisrekstrar um reynsluna af framkvæmd undanþágureglu 71. gr. A og meta áhrif hennar m.a. með hliðsjón af markmiðsákvæðum laganna. Meta skal sérstaklega hver ávinningur bænda og neytenda hefur verið.]30)
   1)L. 121/1995, 1. gr. 2)Ákvæðinu var breytt með l. 147/1995, 3. gr. 3)L. 85/1994, 3. gr. 4)L. 141/1994, 2. gr. 5)L. 87/1995, brbákv. I. 6)L. 87/1995, brbákv. II. 7)L. 102/2016, 41. gr. 8)L. 99/1995, brbákv., sbr. l. 124/1995, 21. gr. 9)L. 124/1995, brbákv. I. 10)L. 124/1995, brbákv. II. 11)L. 77/1997, 3. gr. 12)L. 124/1995, brbákv. III. 13)L. 130/1998, brbákv. 14)L. 58/2007, 23. gr. 15)L. 88/2000, brbákv. 16)L. 84/2002, brbákv. 17)L. 101/2002, 5. gr. 18)L. 152/2019, 4. gr. 19)L. 131/2003, 1. gr. 20)L. 173/2008, 2. gr. 21)L. 46/2010, 2. gr. 22)L. 140/2013, 39. gr. 23)L. 46/2015, 9. gr. 24)L. 102/2016, 42. gr. 25)L. 44/2019, 8. gr. 26)L. 136/2020, 2. gr. 27)L. 102/2023, 31. gr. 28)L. 128/2022, 5. gr. 29)L. 133/2021, 25. gr. 30)L. 30/2024, 3. gr.