Lagasafn.  Íslensk lög 12. apríl 2024.  Útgáfa 154b.  Prenta í tveimur dálkum.


Lög um náttúruvernd

2013 nr. 60 10. apríl


Ferill málsins á Alþingi.   Frumvarp til laga.

Tóku gildi 15. nóvember 2015. Breytt með: L. 23/2014 (tóku gildi 29. mars 2014). L. 34/2015 (tóku gildi 1. júlí 2015). L. 109/2015 (tóku gildi 14. nóv. 2015). L. 113/2015 (tóku gildi 1. júlí 2016). L. 60/2016 (tóku gildi 1. júlí 2016 nema 2. og 11. gr. sem tóku gildi 22. júní 2016). L. 155/2018 (tóku gildi 10. jan. 2019). L. 43/2020 (tóku gildi 29. maí 2020). L. 6/2021 (tóku gildi 17. febr. 2021; um lagaskil sjá brbákv.). L. 71/2021 (tóku gildi 29. júní 2021 nema 29. gr. sem tók gildi 1. júlí 2021). L. 111/2021 (tóku gildi 1. sept. 2021; komu til framkvæmda skv. fyrirmælum í 37. gr.; EES-samningurinn: XX. viðauki tilskipun 2001/42/EB, 2011/92/ESB, 2014/52/ESB). L. 35/2023 (tóku gildi 1. nóv. 2023). L. 38/2023 (tóku gildi 17. júní 2023). L. 66/2023 (tóku gildi 1. jan. 2024; um lagaskil sjá 6. gr. og brbákv.).

Ef í lögum þessum er getið um ráðherra eða ráðuneyti án þess að málefnasvið sé tilgreint sérstaklega eða til þess vísað, er átt við umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra eða umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti sem fer með lög þessi. Upplýsingar um málefnasvið ráðuneyta skv. forsetaúrskurði er að finna hér.

I. kafli. Markmið, gildissvið og skilgreiningar.
1. gr. Markmið laganna.
Markmið laga þessara er að vernda til framtíðar fjölbreytni íslenskrar náttúru, þar á meðal líffræðilega og jarðfræðilega fjölbreytni og fjölbreytni landslags. Þau eiga að tryggja eftir föngum þróun íslenskrar náttúru á eigin forsendum og verndun þess sem þar er sérstætt eða sögulegt og einnig stuðla að endurheimt raskaðra vistkerfa og auknu þoli íslenskra vistkerfa gegn náttúruhamförum og hnattrænum umhverfisbreytingum.
Lögin miða jafnframt að vernd og sjálfbærri nýtingu auðlinda og annarra náttúrugæða.
Lögin eiga að:
   a. stuðla að samskiptum manns og náttúru þannig að hvorki spillist líf eða land, loft eða lögur,
   b. auðvelda umgengni og kynni almennings af náttúru landsins og menningarminjum sem henni tengjast og efla þekkingu og fræðslu um náttúruna,
   c. tryggja rétt almennings til að fara um landið og njóta náttúrunnar og stuðla þannig að almennri útivist í sátt við náttúruna, landsmönnum til heilsubótar og velsældar.
2. gr. Verndarmarkmið fyrir vistgerðir, vistkerfi og tegundir.
Til að stuðla að vernd líffræðilegrar fjölbreytni skal stefnt að því:
   a. að viðhalda fjölbreytni vistgerða innan náttúrulegra útbreiðslusvæða þeirra með þeirri tegundafjölbreytni og þeim vistfræðilegu ferlum sem einkenna hverja vistgerð og tryggja ákjósanlega verndarstöðu einstakra vistgerða,
   b. að standa vörð um og efla vistkerfi landsins svo eðli þeirra, gerð og virkni sé tryggð til framtíðar,
   c. að varðveita tegundir lífvera og erfðafræðilega fjölbreytni þeirra og tryggja ákjósanlega verndarstöðu þeirra þannig að tegundirnar nái að viðhalda sér í lífvænlegum stofnum til lengri tíma á náttúrulegum búsvæðum sínum. Þetta markmið gildir ekki fyrir framandi tegundir.
3. gr. Verndarmarkmið fyrir jarðminjar, vatnasvæði, landslag og víðerni.
Til að stuðla að vernd jarðfræðilegrar fjölbreytni landsins og fjölbreytni landslags skal stefnt að því:
   a. að varðveita skipulega heildarmynd af jarðfræðilegum ferlum og fyrirbærum sem gefa samfellt yfirlit um jarðsögu landsins,
   b. að vernda jarðmyndanir sem eru sérstakar eða einstakar á lands- eða heimsvísu,
   c. að vernda vatnsfarvegi, fossa og stöðuvötn svo sem kostur er,
   d. að varðveita landslag sem er sérstætt eða fágætt eða sérlega verðmætt vegna fagurfræðilegs og/eða menningarlegs gildis,
   e. að standa vörð um óbyggð víðerni landsins.
4. gr. Gildissvið.
Lög þessi gilda á íslensku landi og í landhelgi og efnahagslögsögu, sbr. 1. og 3. gr. laga um landhelgi, efnahagslögsögu og landgrunn, nr. 41/1979, þar á meðal hafsbotninum.
Lög þessi breyta í engu ákvæðum löggjafar um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum, laga um lax- og silungsveiði eða löggjafar um umgengni um nytjastofna sjávar.
Ákvæði laga um Vatnajökulsþjóðgarð og þjóðgarðinn á Þingvöllum ganga framar ákvæðum laga þessara séu þau ósamþýðanleg.
5. gr. Skilgreiningar.
Í lögum þessum merkir:
   1. Alfaraleið: Leið sem farin er á vegum eða slóðum. Hugtakið utan alfaraleiðar á við um leið sem ekki tengist endilega vegum, slóðum eða stígum og getur legið um holt og móa.
   2. Ábyrgðartegund: Tegund sem Íslendingar bera sérstaka ábyrgð á vegna þess að stór hluti útbreiðslusvæðis tegundarinnar á Evrópu- eða heimsvísu er hér á landi eða stór hluti stofnsins á Evrópu- eða heimsvísu heldur hér til að staðaldri eða hluta úr ári.
   3. Ágeng framandi lífvera: Framandi lífvera sem veldur eða líklegt er að valdi rýrnun líffræðilegrar fjölbreytni.
   4. Berg: Samsafn steinda, oftast margra mismunandi steinda, sem finnst í náttúrunni og ekki hefur orðið til fyrir tilverknað mannsins. Berggler, svo sem hrafntinna og biksteinn, telst einnig til bergtegunda.
   5. Búsvæði: Þeir staðir eða svæði þar sem tegund getur þrifist.
   6. Byggð: Þau svæði sem ekki falla undir hugtakið óbyggðir.
   7. Eignarland: Landsvæði sem er háð einkaeignarrétti þannig að eigandi landsins fer með öll venjuleg eignarráð þess innan þeirra marka sem lög segja til um á hverjum tíma.
   8. Framandi lífverur: Tegund eða lægri flokkunareining, svo sem afbrigði, kyn eða stofn, þ.m.t. lífhlutar, kynfrumur, fræ, egg eða dreifingarform sem geta lifað af og fjölgað sér, sem menn hafa flutt vísvitandi eða óvitandi út fyrir sitt náttúrulega forna eða núverandi útbreiðslusvæði …1)
   9. Garðyrkja: Útiræktun eða ylræktun garðávaxta, trjáa, runna og annarra plantna til matar, skrauts eða annarra nytja á vel afmörkuðu svæði.
   10. Innflutningur lifandi lífvera: Flutningur lifandi lífvera af völdum manna til landsins eða á íslenskt hafsvæði frá löndum eða svæðum utan Íslands.
   11. Jarðfræðileg fjölbreytni: Breytileiki jarðfræðilegra fyrirbæra, jarðvegs og landmótunar, ferla og myndana. Hugtakið tekur til bergs, steinda, landforma, setlaga og jarðvegs ásamt þeim náttúrulegu ferlum sem mynda og móta þessa þætti.
   12. Landslag: Svæði sem fólk skynjar að hafi ákveðin einkenni sem eru tilkomin vegna virkni eða samspils náttúrulegra og/eða mannlegra þátta.
   13. Líffræðileg fjölbreytni: Breytileiki meðal lifandi vera á öllum skipulagsstigum lífs, þar á meðal í vistkerfum á landi, í sjó og í ferskvatni. Hugtakið tekur til vistfræðilegra tengsla milli vistkerfa og nær til fjölbreytni innan tegunda og milli tegunda og vistkerfa.
   14. Náttúru- og umhverfisverndarsamtök: Samtök sem hafa náttúru- og umhverfisvernd að meginmarkmiði. Þau skulu vera opin fyrir almennri aðild, gefa út ársskýrslur um starfsemi sína og hafa endurskoðað bókhald.
   15. Náttúruminjar: Náttúrufyrirbæri sem ákveðið hefur verið að vernda með friðlýsingu, friðun eða með öðrum hætti eða sem tekin hefur verið afstaða til að rétt sé að vernda.
   16. Náttúrumyndun: Einstakt fyrirbrigði í náttúrunni sem að jafnaði sker sig úr umhverfinu, t.d. foss, eldstöð, hellir, drangur, einstakt tré eða gamall skógarlundur.
   17. Náttúruverndarsvæði:
   a. Friðlýst svæði og afmörkuð búsvæði friðaðra tegunda sem vernduð eru skv. 1. mgr. [56. gr.]1)
   b. Svæði og náttúrumyndanir á B- og C-hluta náttúruminjaskrár, sbr. 33. gr.
   c. Afmörkuð svæði á landi og sjó sem njóta verndar samkvæmt öðrum lögum vegna náttúru eða landslags.
   18. Óbyggðir: Landsvæði þar sem fólk hefur ekki fasta búsetu og þar sem mannvirki eru ekki til staðar eða eru lítt áberandi.
   19. [Óbyggt víðerni: Svæði í óbyggðum sem er að jafnaði a.m.k. 25 km2 að stærð eða þannig að hægt sé að njóta þar einveru og náttúrunnar án truflunar af mannvirkjum eða umferð vélknúinna farartækja og [að jafnaði]2) í a.m.k. 5 km fjarlægð frá mannvirkjum og öðrum tæknilegum ummerkjum, svo sem raflínum, orkuverum, miðlunarlónum og uppbyggðum vegum.]1)
   20. [Ræktað land: Land sem er nýtt til framleiðslu nytjajurta með íhlutun, svo sem sléttun, þurrkun, áburðargjöf, jarðvinnslu, gróðursetningu, sáningu eða öðrum ræktunaraðgerðum. Land telst óræktað eftir langvarandi notkunarleysi. Lóð undir frístundahús í notkun telst ræktað land í skilningi laga þessara, sbr. 2. mgr. 1. gr. og 3. tölul. 2. gr. laga um frístundabyggð og leigu lóða undir frístundahús, nr. 75/2008.]1)
   21. Steind: Fast efni með ákveðna samsetningu, oftast kristallað, sem finnst sjálfstætt í náttúrunni og ekki hefur orðið til af manna völdum.
   22. Steingervingur: Leifar og steingerðar leifar lífveru eða för eftir hana sem finnast í jarðlögum.
   23. Tegund: Ákveðinn hópur lífvera sem afmarkaður er samkvæmt líffræðilegum viðmiðum.
   24. Útivistarsamtök: Samtök sem hafa útivist og umhverfisvernd að markmiði. Þau skulu vera opin fyrir almennri aðild, gefa út ársskýrslur um starfsemi sína og hafa endurskoðað bókhald.
   25. [Vegur: Til vega samkvæmt lögum þessum teljast þjóðvegir, sveitarfélagsvegir og einkavegir, svo sem þeir eru skilgreindir í vegalögum. Auk þess aðrir vegir utan flokkunarkerfis vegalaga sem skráðir eru í vegaskrá í samræmi við ákvæði 32. gr.]1)
   26. Vistgerðir: Staðir eða svæði með ákveðnum einkennum, t.d. hvað varðar gróður- og dýralíf, jarðveg og loftslag.
   27. Vistkerfi: Safn lífvera sem hafast við í afmörkuðu rými af tiltekinni gerð, ásamt öllum verkunum og gagnverkunum meðal lífveranna og tengslum þeirra við lífræna jafnt sem ólífræna umhverfisþætti sem tilheyra kerfinu, svo sem loft, vatn, jarðveg og sólarljós.
   28. [Þéttbýli: Þyrping húsa þar sem búa a.m.k. 50 manns og fjarlægð milli húsa fer að jafnaði ekki yfir 200 metra. Afmarka má þéttbýli með öðrum hætti í aðalskipulagi sveitarfélags.]1)
   29. Þjóðlenda: Landsvæði utan eignarlanda þó að einstaklingar eða lögaðilar kunni að eiga þar takmörkuð eignarréttindi, sbr. lög nr. 58/1998, um þjóðlendur og ákvörðun marka eignarlanda, þjóðlendna og afrétta.
   1)L. 109/2015, 1. gr. 2)L. 43/2020, 1. gr.

II. kafli. Meginreglur.
6. gr. Almenn aðgæsluskylda.
Öllum er skylt að ganga vel um náttúru landsins og sýna ýtrustu varúð þannig að henni verði ekki spillt. Við framkvæmdir, starfsemi, rekstur og önnur umsvif sem áhrif hafa á náttúruna skal gera allt sem með sanngirni má ætlast til svo komið verði í veg fyrir náttúruspjöll.
7. gr. Meginsjónarmið við ákvarðanatöku.
Við setningu stjórnvaldsfyrirmæla og töku ákvarðana sem áhrif hafa á náttúruna skulu stjórnvöld taka mið af þeim meginreglum og sjónarmiðum sem fram koma í 8.–11. gr. Þetta gildir einnig um stefnumótun og áætlanagerð stjórnvalda og félaga í eigu hins opinbera.
8. gr. Vísindalegur grundvöllur ákvarðanatöku.
Ákvarðanir stjórnvalda sem varða náttúruna skulu eins og kostur er byggjast á vísindalegri þekkingu á verndarstöðu og stofnstærð tegunda, útbreiðslu og verndarstöðu vistgerða og vistkerfa og jarðfræði landsins. Þá skal og tekið mið af því hver áhrif ákvörðunarinnar muni verða á þessa þætti. Krafan um þekkingu skal vera í samræmi við eðli ákvörðunar og væntanleg áhrif hennar á náttúruna.
9. gr. Varúðarregla.
[Þegar tekin er ákvörðun á grundvelli laga þessara, án þess að fyrir liggi með nægilegri vissu hvaða áhrif hún hefur á náttúruna, skal leitast við að koma í veg fyrir mögulegt og verulegt tjón á náttúruverðmætum.]1) Ef hætta er á alvarlegum eða óafturkræfum náttúruspjöllum skal skorti á vísindalegri þekkingu ekki beitt sem rökum til að fresta eða láta hjá líða að grípa til skilvirkra aðgerða sem geta komið í veg fyrir spjöllin eða dregið úr þeim.
   1)L. 109/2015, 2. gr.
10. gr. Mat á heildarálagi.
Áhrif á náttúru svæðis skal meta út frá heildarálagi sem á svæðinu er eða það kann að verða fyrir.
11. gr. Ábyrgð á kostnaði.
Framkvæmdaraðili skal bera kostnað af því að koma í veg fyrir eða takmarka spjöll á náttúrunni sem af framkvæmd hans hlýst að því marki sem það telst ekki ósanngjarnt með hliðsjón af eðli framkvæmdarinnar og tjónsins.
12. gr. Fræðsla.
Stjórnvöld náttúruverndarmála skulu með ráðgjöf, leiðbeiningum og fræðslu stuðla að því að markmiðum laga þessara verði náð.

III. kafli. Stjórn náttúruverndarmála.
13. gr. Yfirstjórn ráðherra og hlutverk stofnana.
Ráðherra fer með yfirstjórn náttúruverndarmála. Ráðherra gefur út náttúruminjaskrá og leggur fram á Alþingi, eigi sjaldnar en á fimm ára fresti, tillögu til þingsályktunar um framkvæmdaáætlun náttúruminjaskrár. Ráðherra ákveður friðlýsingu svæða og friðun vistkerfa, vistgerða og tegunda og tekur jafnframt ákvörðun um breytingu og afnám friðlýsingar og friðunar.
Umhverfisstofnun fer m.a. með eftirlit með framkvæmd laganna, veitir leyfi og umsagnir samkvæmt ákvæðum laganna, annast umsjón og rekstur náttúruverndarsvæða, ber ábyrgð á gerð [stjórnunar- og verndaráætlana]1) fyrir friðlýst svæði, sinnir fræðslu og veitir ráðherra ráðgjöf um náttúruverndarmál. Þá annast stofnunin undirbúning friðlýsinga, metur nauðsynlegar verndarráðstafanir á svæðum sem til greina kemur að setja á framkvæmdaáætlun og sér um kynningu tillögu að endurskoðaðri náttúruminjaskrá og úrvinnslu umsagna vegna hennar.
[Náttúrufræðistofnun Íslands annast m.a. skráningu náttúruminja og mat á verndargildi þeirra, hefur umsjón með C-hluta náttúruminjaskrár og gerir tillögur um skráningar í hann í samráði við fagráð náttúruminjaskrár, sbr. 15. gr., sem og tillögur um minjar sem ástæða þykir til að setja á framkvæmdaáætlun.]1) Stofnunin ber ábyrgð á vöktun í samræmi við ákvæði laganna og skipuleggur framkvæmd hennar, veitir umsagnir samkvæmt lögum þessum, sinnir fræðslu og veitir ráðherra ráðgjöf um náttúruverndarmál.
[Náttúrustofum er heimilt að annast einstök verkefni á sviði náttúruverndar, svo sem fræðslu, vöktun og eftirlit, í samræmi við samninga sem ráðherra er heimilt að gera skv. 10. gr. laga nr. 60/1992, um Náttúrufræðistofnun Íslands og náttúrustofur.
Umhverfisstofnun er heimilt að gera samninga við sveitarfélög, einstaka landeigendur eða rétthafa lands um verkefni á sviði náttúruverndar á svæðum sem ekki hafa hlotið friðlýsingu, friðun eða vernd samkvæmt ákvæðum laga þessara en teljast sérstök sakir landslags, gróðurfars eða dýralífs.]1)
Ráðherra kveður í reglugerð nánar á um verkefni Umhverfisstofnunar og Náttúrufræðistofnunar Íslands, þar á meðal fræðsluhlutverk þeirra. [Ráðherra getur í reglugerð kveðið nánar á um heimildir til samningagerðar skv. 5. mgr.]1)
   1)L. 109/2015, 3. gr.
14. gr. Náttúruverndarnefndir.
Á vegum hvers sveitarfélags starfar þriggja til sjö manna náttúruverndarnefnd sem sveitarstjórn kýs til fjögurra ára í senn, sbr. þó 3. mgr. 37. gr. sveitarstjórnarlaga, nr. 138/2011. Sveitarstjórn ákveður fjölda nefndarmanna. Sveitarstjórn velur jafnframt formann og setur nefndinni erindisbréf. Varamenn skulu kosnir með sama hætti. Sveitarstjórnir greiða kostnað sem hlýst af störfum náttúruverndarnefnda nema öðruvísi sé ákveðið. Umhverfisstofnun skal tilkynnt eftir hverjar sveitarstjórnarkosningar um kjör í náttúruverndarnefndir. Sveitarfélög geta haft samvinnu við nágrannasveitarfélög um starfrækslu náttúruverndarnefnda.
Náttúruverndarnefndir skulu vera sveitarstjórnum til ráðgjafar um náttúruverndarmál. Skulu þær stuðla að náttúruvernd hver á sínu svæði, m.a. með fræðslu og umfjöllun um framkvæmdir og starfsemi sem líklegt er að hafi áhrif á náttúruna, og gera tillögur um úrbætur til sveitarstjórna og Umhverfisstofnunar.
Náttúruverndarnefndir skulu leita aðstoðar og ráðgjafar Umhverfisstofnunar þegar ástæða er til. Stofnunin, fulltrúar náttúruverndarnefnda og forstöðumenn náttúrustofa skulu halda a.m.k. einn sameiginlegan fund á ári. Náttúruverndarnefndir skulu veita Umhverfisstofnun yfirlit yfir störf sín með skýrslu í lok hvers árs.
Ráðherra setur í reglugerð nánari ákvæði um hlutverk náttúruverndarnefnda og tengsl þeirra við náttúrustofur samkvæmt lögum um Náttúrufræðistofnun Íslands og náttúrustofur, nr. 60/1992.
15. gr. Ráðgjafarnefnd og fagráð náttúruminjaskrár.
Ráðherra skipar ráðgjafarnefnd náttúruminjaskrár til fimm ára í senn. Skal nefndin skipuð sjö fulltrúum. Samband íslenskra sveitarfélaga tilnefnir þrjá fulltrúa en Umhverfisstofnun, Náttúrufræðistofnun Íslands og það ráðuneyti sem fer með atvinnumál og jarðrænar auðlindir skipa einn fulltrúa hver. Ráðherra skipar formann án tilnefningar. Varamenn skulu skipaðir með sama hætti. Hlutverk ráðgjafarnefndar er að vera ráðherra til ráðgjafar um gerð tillögu til þingsályktunar um framkvæmdaáætlun (B-hluta) náttúruminjaskrár. Það ráðuneyti sem fer með umhverfismál annast umsýslu vegna starfs nefndarinnar. Kostnaður við störf ráðgjafarnefndar greiðist úr ríkissjóði.
Ráðherra skipar fagráð náttúruminjaskrár til fimm ára í senn. Skal ráðið skipað [sjö]1) fulltrúum. Umhverfisstofnun, [Land og skógur],2)1) Hafrannsóknastofnun, Minjastofnun Íslands, Samtök náttúrustofa og náttúru- og umhverfisverndarsamtök tilnefna einn fulltrúa hver. Ráðherra skipar formann nefndarinnar án tilnefningar. Varamenn skulu skipaðir með sama hætti. Fulltrúar í fagráði náttúruminjaskrár og varamenn þeirra skulu hafa háskólamenntun á sviði náttúrufræða nema fulltrúi Minjastofnunar Íslands sem skal vera fornleifafræðingur eða hafa sambærilega menntun sem lýtur að varðveislu menningarminja. Fagráð náttúruminjaskrár skal vera Náttúrufræðistofnun Íslands til ráðgjafar um gerð tillögu um minjar á náttúruminjaskrá …3). Náttúrufræðistofnun Íslands annast umsýslu vegna starfs fagráðsins.
   1)L. 113/2015, 11. gr. 2)L. 66/2023, 7. gr. 3)L. 109/2015, 4. gr.
16. gr. Umhverfisþing.
Ráðherra skal boða til umhverfisþings að loknum hverjum alþingiskosningum og síðan tveimur árum síðar.
Á umhverfisþingi skal fjalla um umhverfis- og náttúruvernd og sjálfbæra þróun. Til umhverfisþings skal boða alþingismenn, fulltrúa stofnana ríkis og sveitarfélaga, fulltrúa samtaka í atvinnulífi, fulltrúa samtaka landeigenda og fulltrúa frjálsra félagasamtaka sem hafa náttúru- og umhverfisvernd og sjálfbæra þróun á stefnuskrá sinni.
Seta á þinginu er ólaunuð, en hlutaðeigandi aðilar greiða kostnað fulltrúa. Annar nauðsynlegur kostnaður af þinghaldinu greiðist úr ríkissjóði samkvæmt ákvörðun ráðherra.

IV. kafli. Almannaréttur, útivist og umgengni.
17. gr. Réttindi og skyldur almennings.
Almenningi er heimil för um landið og dvöl þar í lögmætum tilgangi. Rétti þessum fylgir skylda til að ganga vel um náttúru landsins.
Á ferð sinni um landið skulu menn sýna landeiganda og öðrum rétthöfum fulla tillitssemi, virða hagsmuni þeirra, m.a. vegna búpenings og ræktunar, þar á meðal skógræktar og landgræðslu, og fylgja leiðbeiningum þeirra og fyrirmælum varðandi ferð og umgengni um landið.
Fara skal eftir merktum leiðum og skipulögðum stígum og vegum eftir því sem auðið er, hlífa girðingum, fara um hlið eða stiga þegar þess er kostur og ef farið er um lokuð hlið skal loka þeim eftir að gengið hefur verið um þau. Forðast skal að valda öðrum óþægindum og truflun með hávaða. Skylt er að gæta fyllsta hreinlætis og skilja ekki eftir [úrgang í náttúrunni en úrgangur skal meðhöndlaður samkvæmt ákvæðum laga um meðhöndlun úrgangs].1)
Sérstök aðgát skal höfð í nánd við búsmala, selalátur, varplönd fugla, veiðisvæði og veiðistaði. Forðast skal að eyða eða spilla gróðri með mosa-, lyng- eða hrísrifi eða á annan hátt.
Almenningi er frjáls för um vegi …2) þar sem akstur er heimill samkvæmt [skrá yfir vegi í náttúru Íslands],2) sbr. 32. gr., með þeim takmörkunum og skilyrðum sem kveðið er á um í lögum þessum og í vegalögum, og reglugerðum settum eftir þeim.
För manna um landið er ekki á ábyrgð eiganda lands eða rétthafa að öðru leyti en því sem leiðir af ákvæðum annarra laga og almennum skaðabótareglum.
   1)L. 38/2023, 1. gr. 2)L. 109/2015, 5. gr.
18. gr. Umferð gangandi manna.
Mönnum er heimilt, án sérstaks leyfis landeiganda eða rétthafa, að fara gangandi, á skíðum, skautum og óvélknúnum sleðum eða á annan sambærilegan hátt um óræktað land og dveljast þar. [Á eignarlandi í byggð er eiganda eða rétthafa þó heimilt að takmarka eða banna með merkingum við hlið og göngustiga umferð manna og dvöl á afgirtu óræktuðu landi.]1)
För um ræktað land, sbr. 20. tölul. 5. gr., og dvöl þar er háð samþykki eiganda þess eða rétthafa. [Þrátt fyrir að skógræktarsvæði teljist ræktað land í skilningi laga þessara er för um svæðið og dvöl þar ekki háð samþykki eiganda þess eða rétthafa eftir að fyrstu stigum skógræktar er lokið.]1)
   1)L. 109/2015, 6. gr.
19. gr. Umferð hjólreiðamanna.
Þegar farið er á reiðhjólum um landið skal fylgt vegum og skipulögðum reiðhjólastígum eins og kostur er.
[Ráðherra getur í reglugerð sett nánari ákvæði um umferð hjólreiðamanna.]1)
   1)L. 109/2015, 7. gr.
20. gr. Umferð ríðandi manna.
Þegar farið er ríðandi um landið skal fylgt skipulögðum reiðstígum eins og kostur er. Bannað er að reka [hross]1) yfir gróið land þannig að náttúruspjöll hljótist af eða hætta skapist á náttúruspjöllum.
Á ferð um hálendi og önnur lítt gróin svæði skulu menn hafa tiltækt nægilegt aðflutt fóður fyrir hross sín.
Heimilt er mönnum, að fengnu leyfi eiganda eða rétthafa eignarlands þegar við á, að slá upp aðhöldum eða næturhólfum fyrir hross, enda valdi það ekki spjöllum á náttúru landsins. Á hálendi skal þeim valinn staður á ógrónu landi sé þess kostur.
Þegar farið er á hestum um eða höfð viðdvöl með hross á náttúruverndarsvæði, sbr. XIV. kafla, þar sem starfandi er landvörður eða umsjónaraðili skal haft samráð við hann.
[Ráðherra getur í reglugerð sett nánari ákvæði um umferð ríðandi manna og rekstur hrossa.]1)
   1)L. 109/2015, 8. gr.
21. gr. Umferð um vötn.
[Um umferð um vötn fer samkvæmt ákvæðum vatnalaga, nr. 15/1923.]1)
   1)L. 109/2015, 9. gr.
22. gr. Heimild til að tjalda.
[Við alfaraleið í byggð er heimilt, sbr. þó 2. málsl. 1. mgr. 18. gr., að tjalda hefðbundnum viðlegutjöldum til einnar nætur á óræktuðu landi, sé tjaldsvæði ekki í næsta nágrenni, en leita skal leyfis landeiganda eða annars rétthafa áður en tjaldað er nærri bústöðum manna eða bæ og ætíð ef um fleiri en þrjú tjöld er að ræða eða ef tjaldað er til fleiri en einnar nætur.]1)
Við alfaraleið í óbyggðum, hvort heldur er á eignarlandi eða þjóðlendu, er heimilt að setja niður hefðbundin viðlegutjöld.
[Utan þéttbýlis skal leita leyfis landeiganda eða annars rétthafa ef nota á tjaldvagna, fellihýsi, hjólhýsi, húsbíla og annan sambærilegan búnað utan skipulagðra tjaldsvæða.
Utan alfaraleiðar, hvort heldur er á eignarlandi eða þjóðlendu, er heimilt að tjalda hefðbundnum viðlegutjöldum nema annað sé tekið fram í sérreglum sem kunna að gilda um viðkomandi landsvæði.]1)
Á ræktuðu landi, sbr. 20. tölul. 5. gr., má aðeins slá upp tjöldum með leyfi eiganda þess eða rétthafa.
Þegar tjaldað er skal ætíð virða ákvæði 31. gr. um bann við akstri utan vega og gæta þess að valda ekki skemmdum á vettvangi.
   1)L. 109/2015, 10. gr.
23. gr. Takmarkanir á heimild til að tjalda.
Eigandi lands eða rétthafi getur takmarkað eða bannað að tjöld séu reist þar sem veruleg hætta er á að náttúra landsins geti beðið tjón af.
Hafi eigandi lands eða rétthafi útbúið sérstakt tjaldsvæði á landi sínu er honum heimilt að beina fólki þangað og taka gjald fyrir veitta þjónustu þar. Sé tjaldsvæði í næsta nágrenni eignarlandsins getur eigandinn einnig beint fólki þangað.
24. gr. Skipulegar hópferðir.
Þegar skipulagðar eru hópferðir um eignarlönd í byggð eða þar sem ónæði gæti valdið við nytjar skal hafa samráð við eiganda lands eða rétthafa um umferð manna og dvöl á landi hans.
Eftir því sem við verður komið skal tjalda á skipulögðum tjaldsvæðum sé gert ráð fyrir að gista í tjöldum í slíkum ferðum.
25. gr. [Takmörkun umferðar í óbyggðum.
Umhverfisstofnun getur í verndarskyni, að fenginni tillögu hlutaðeigandi sveitarfélags, [Lands og skógar]1) eða landeiganda eða að eigin frumkvæði, takmarkað umferð eða lokað svæðum í óbyggðum ef hætta er á verulegu tjóni af völdum ágangs á svæði. Slíkar ákvarðanir eru háðar staðfestingu ráðherra og skal birta þær með auglýsingu í B-deild Stjórnartíðinda. Stofnunin skal ávallt hafa samráð við hlutaðeigandi sveitarfélag, landeiganda og aðra hagsmunaaðila áður en tillaga samkvæmt ákvæði þessu er send til ráðherra. Ákvörðun samkvæmt þessari málsgrein skal endurmeta árlega.]2)
   1)L. 66/2023, 7. gr. 2)L. 109/2015, 11. gr.
[25. gr. a. Takmörkun umferðar vegna ágangs.
Ef veruleg hætta er á tjóni af völdum mikillar umferðar eða vegna sérstaklega viðkvæms ástands náttúru getur Umhverfisstofnun ákveðið að takmarka umferð eða loka viðkomandi svæði tímabundið fyrir ferðamönnum að fenginni tillögu hlutaðeigandi sveitarfélags, [Lands og skógar]1) eða landeiganda eða að eigin frumkvæði. Samráð skal haft um slíka ákvörðun við hlutaðeigandi sveitarfélag og fulltrúa ferðaþjónustu og útivistarfólks sem ætla má að hyggi á ferðir um svæðið. Ef um eignarland er að ræða skal ætíð haft samráð við eiganda lands eða rétthafa áður en ákvörðun er tekin. Takmörkunin eða lokunin skal að jafnaði ekki standa lengur en tvær vikur en ef nauðsyn krefur er heimilt að framlengja hana, að fenginni staðfestingu ráðherra. Ákvörðun samkvæmt þessari grein skal birta í dagblöðum og útvarpi og á vefsíðum Umhverfisstofnunar og Vegagerðarinnar.]2)
   1)L. 66/2023, 7. gr. 2)L. 109/2015, 12. gr.
26. gr. Girðingar.
Óheimilt er að setja niður girðingu á vatns-, ár- eða sjávarbakka þannig að hindri umferð gangandi manna. Ef mannvirki hindrar för um bakka skal sem kostur er séð fyrir göngustíg kringum mannvirkið og að bakkanum aftur. Þegar girða þarf yfir forna þjóðleið eða skipulagðan göngu-, hjólreiða- eða reiðstíg skal sá sem girðir hafa þar hlið á girðingu. Heimilt er að hafa göngustiga í stað hliðs þegar girt er yfir skipulagðan göngustíg.
Skylt er að halda girðingu svo vel við að mönnum og skepnum stafi ekki hætta af. Að öðru leyti fer um girðingar, viðhald þeirra og upptöku eftir girðingarlögum, vegalögum og eftir atvikum öðrum lögum.
27. gr. Tínsla berja, sveppa, fjallagrasa, jurta og fjörugróðurs.
Í þjóðlendum er öllum heimilt að tína ber, sveppi, fjallagrös og jurtir og einnig skeldýr og söl, þang, þara og annan fjörugróður í fjörum.
Í eignarlöndum er tínsla berja, sveppa, fjallagrasa, jurta, skeldýra og fjörugróðurs háð leyfi eiganda lands eða rétthafa. Þó er mönnum heimilt að tína til neyslu á vettvangi.
Heimildir skv. 1. og 2. mgr. ná ekki til jurta í A- og B-hluta náttúruminjaskrár.
[Ráðherra er heimilt að setja í reglugerð ákvæði um tínslu berja, sveppa, fjallagrasa, jurta og fjörugróðurs í atvinnuskyni, m.a. reglur um sjálfbæra nýtingu, og að tilkynna skuli Náttúrufræðistofnun Íslands um magn og tegund þess sem tínt er og tínslustað. Umhverfisstofnun er heimilt að banna eða takmarka tínslu einstakra tegunda eða tínslu á afmörkuðum svæðum ef það er nauðsynlegt vegna verndunar einstakra tegunda eða til að koma í veg fyrir ofnýtingu svæða. Ákvarðanir um bann eða takmarkanir á tínslu einstakra tegunda eða tínslu á afmörkuðum svæðum skulu háðar staðfestingu ráðherra og skulu birtar með auglýsingu í B-deild Stjórnartíðinda.]1)
   1)L. 109/2015, 13. gr.
28. gr. Meðferð elds.
Óheimilt er að kveikja eld á víðavangi þar sem almannahætta getur stafað af eða hætt er gróðri, dýralífi eða mannvirkjum. Skylt er hverjum þeim sem ferðast um að gæta ýtrustu varkárni í meðferð elds og eldunartækja.
Sá sem verður þess var að eldur er laus á víðavangi skal tafarlaust kveðja til slökkvilið eða aðra tiltæka hjálp.
Sá sem veldur tjóni með meðferð elds á víðavangi þannig að saknæmt sé ber fébótaábyrgð á því tjóni sem af hlýst.
Heimilt er ráðherra að kveða í reglugerð nánar á um meðferð elds samkvæmt þessari grein.
Brot gegn ákvæði 1. málsl. 1. mgr. varðar refsingu, sbr. 90. gr.
29. gr. Úrlausn um ólögmætar hindranir.
Eiganda lands eða rétthafa er óheimilt að hindra almenning í að njóta þeirra réttinda sem mælt er fyrir um í þessum kafla. Sá sem verður var við hindranir sem hann telur brjóta gegn þessum réttindum getur krafist úrlausnar Umhverfisstofnunar um þær. Sama rétt hafa útivistarsamtök og náttúru- og umhverfisverndarsamtök. Úrlausn Umhverfisstofnunar má skjóta til ráðherra.
Umhverfisstofnun getur beitt úrræðum skv. 87. gr. til að knýja á um að ólögmætar hindranir séu fjarlægðar. Stofnunin getur einnig lagt fyrir eiganda eða rétthafa að setja stiga eða hlið á girðingu ef hún hindrar för fólks sem heimil er samkvæmt ákvæðum kaflans, t.d. um vatns-, ár- eða sjávarbakka. Umhverfisstofnun skal hafa samráð við byggingarfulltrúa viðkomandi sveitarfélags vegna aðgerða sem einnig kunna að falla undir valdsvið hans.
30. gr. Heimildir til að bæta aðstöðu til útivistar.
Til stuðnings við útivist geta sveitarfélög, Umhverfisstofnun eða einstakar náttúruverndarnefndir gengist fyrir að halda opnum göngustígum, strandsvæðum til sjóbaða, vatnsbökkum og öðrum stígum og svæðum sem ástæða er til að halda opnum til að greiða fyrir því að almenningur fái notið náttúrunnar; enn fremur sett upp göngubrýr, hlið og göngustiga og afmarkað tjaldsvæði og gert annað það er þurfa þykir í þessu skyni. Heimildin nær einnig til þess að merkja leiðir á óræktuðu landi, nema svæðum þar sem umferð er takmörkuð skv. 2. málsl. 1. mgr. 18. gr. Þess skal gætt við undirbúning framkvæmda að þær falli sem best að svipmóti lands.
Framkvæmdir samkvæmt þessari grein eru háðar samþykki eiganda eða rétthafa lands. Þó er samþykki ekki skilyrði fyrir merkingu leiða á óræktuðu landi en áskilið að samráð sé haft við eiganda lands eða rétthafa.

V. kafli. Akstur utan vega.
31. gr. Akstur utan vega.
Bannað er að aka vélknúnum ökutækjum utan vega. Þó er heimilt að aka slíkum tækjum á jöklum og snævi þakinni jörð utan vega utan þéttbýlis svo fremi jörð sé frosin eða snjóþekjan traust og augljóst að ekki sé hætta á náttúruspjöllum. Heimilt er að leggja vélknúnum ökutækjum [bílbreidd frá vegi]1) ef það veldur ekki náttúruspjöllum eða slysahættu, þó þannig að samræmist ákvæðum umferðarlaga og fyrirmælum yfirvalda um umferðaröryggi.
[Þrátt fyrir ákvæði 1. málsl. 1. mgr. er við akstur vegna starfa við landbúnað heimilt, ef nauðsyn krefur, að aka utan vega á landi sem sérstaklega er nýtt til landbúnaðar ef ekki hljótast af því náttúruspjöll. Við eftirleitir er bændum heimilt að sækja sauðfé inn á miðhálendið á léttum vélknúnum ökutækjum, svo sem fjórhjólum, enda verði þeim gripum ekki náð með öðru móti og ekki talin hætta á náttúruspjöllum. Einnig er heimilt, ef nauðsyn krefur, að aka vélknúnum ökutækjum utan vega vegna starfa við landgræðslu og heftingu landbrots, vegalagnir, línulagnir og lagningu annarra veitukerfa, björgunarstörf, lögreglustörf, sjúkraflutninga, rannsóknir, landmælingar og landbúnað, enda sé ekki unnt að vinna viðkomandi störf á annan hátt. Heimilt er, ef nauðsyn krefur og með sérstöku leyfi Umhverfisstofnunar, að aka vélknúnum ökutækjum utan vega vegna starfa við viðhald skála og neyðarskýla og vegna kvikmyndagerðar, enda sé ekki unnt að vinna viðkomandi störf á annan hátt.]1)
Ráðherra skal, að fengnum tillögum Umhverfisstofnunar, kveða í reglugerð á um undanþágur frá banni skv. 1. málsl. 1. mgr.
[Umhverfisstofnun er]2) heimilt að veita undanþágur vegna annarra sérstakra aðstæðna, svo sem fötlunar, og skal í reglugerð samkvæmt grein þessari kveða á um nánari skilyrði fyrir veitingu þeirra.
[Sé óvissa um hvort undanþága frá banni við akstri utan vega geti valdið mögulegum alvarlegum eða óafturkræfum náttúruspjöllum skal umsækjandi um undanþágu afla sérfræðiálits um mat á því hvaða áhrif á náttúruna undanþágan getur haft. Heimilt er að binda undanþáguna skilyrðum til að draga úr óæskilegum áhrifum á náttúruna. Við mat á því hvað teljast óæskileg áhrif skal taka mið af verndarmarkmiðum 2. og 3. gr., sbr. 9. gr.]1)
Í þeim tilvikum sem heimild er til aksturs utan vega er ökumanni skylt að gæta sérstakrar varkárni og forðast að valda náttúruspjöllum. Þeim sem nýta slíka heimild, öðrum en bændum, er skylt að halda skrá um akstur sinn utan vega og veita Umhverfisstofnun aðgang að þeirri skrá þegar óskað er.
Ráðherra getur í reglugerð, að fengnum tillögum Umhverfisstofnunar og í samráði við útivistarsamtök og ferðaþjónustusamtök, takmarkað eða bannað akstur á jöklum og snævi þakinni jörð þar sem hætta er á náttúruspjöllum eða óþægindum fyrir aðra sem þar eru á ferð.
Ólögmætur akstur utan vega varðar refsingu, sbr. 90. gr.
Sérreglur um takmörkun á akstri utan vega í auglýsingu um friðlýsingu svæðis eða í [stjórnunar- og verndaráætlun]3) fyrir svæðið ganga framar undanþágum frá banni við akstri utan vega skv. 1. og 2. mgr.
   1)L. 109/2015, 14. gr. 2)L. 6/2021, 1. gr. 3)L. 109/2015, 3. gr.
32. gr. [Skrá yfir vegi í náttúru Íslands.
Vegagerðin skal halda skrá í stafrænum kortagrunni um vegi aðra en þjóðvegi í náttúru Íslands þar sem umferð vélknúinna ökutækja er heimil, sbr. 2. mgr. 7. gr. vegalaga, nr. 80/2007.
Sveitarfélög gera tillögu að skrá skv. 1. mgr. innan sinna marka við gerð aðalskipulags og hlýtur hún samþykkt samhliða afgreiðslu aðalskipulags eða breytinga á aðalskipulagi, sbr. 32. og 36. gr. skipulagslaga, nr. 123/2010. Sveitarfélögum er einnig heimilt að gera tillögu skv. 1. málsl. við gerð svæðisskipulags, sbr. 21. gr. skipulagslaga. Slík vegaskrá er jafnframt háð samþykki Umhverfisstofnunar, eða annarra stjórnvalda þjóðgarða þegar við á, á landsvæðum sem liggja innan friðlýstra svæða og þjóðgarða. Skipulagsstofnun ber að sjá til þess að Vegagerðinni berist upplýsingar um vegaskrá í viðkomandi sveitarfélagi til skráningar og birtingar í vegaskrá skv. 1. mgr. þegar aðalskipulag hefur verið staðfest. Við gerð skrárinnar skulu sveitarfélög hafa samráð við Umhverfisstofnun eða önnur stjórnvöld þjóðgarða ef við á, Vegagerðina, [Land og skóg],1) Landmælingar Íslands, samtök útivistarfélaga, náttúru- og umhverfisverndarsamtök, Bændasamtök Íslands og Samtök ferðaþjónustunnar.
Við mat á því hvort tilteknir vegir skuli tilgreindir í vegaskrá skv. 1. mgr. skal sérstaklega líta til þess hvort akstur á þeim sé líklegur til að raska viðkvæmum gróðri, valda jarðvegsrofi, hafa neikvæð áhrif á landslag, víðerni og ásýnd lands eða hafa að öðru leyti í för með sér náttúruspjöll. Einnig má líta til þess hvort um greinilegan og varanlegan veg sé að ræða, hvort löng hefð sé fyrir akstri á honum og hvort umferð á tilteknum vegi skuli takmarka við ákveðnar gerðir ökutækja, viss tímabil, náttúrufarslegar aðstæður eða við akstur vegna ákveðinna starfa.
Upplýsingar um heimila vegi í vegaskrá fela ekki í sér að þeir séu færir öllum vélknúnum ökutækjum og leiða ekki til ábyrgðar ríkis eða sveitarfélaga á viðhaldi þeirra.
Ráðherra kveður í reglugerð2) nánar á um gerð og birtingu skrár yfir vegi í náttúru Íslands samkvæmt þessari grein. Birta skal í B-deild Stjórnartíðinda auglýsingu um vegaskrá og breytingar á henni. Eftir útgáfu kortagrunns skv. 1. mgr. skulu útgefendur vegakorta, þar á meðal stafrænna korta fyrir GPS-tæki og álíka búnað, sjá til þess að upplýsingar á kortum þeirra séu svo sem kostur er í samræmi við vegaskrá skv. 1. mgr. Útgefendum korta, þ.m.t. stafrænna korta, er skylt að skrá á kort sín eða í ítarefni sem þeim fylgir útgáfunúmer og útgáfutíma vegaskrárinnar sem nýtt er og upplýsingar um aðgang að nýjustu útgáfu kortagrunnsins, t.d. með vefslóð. Ef á þessu verður alvarlegur misbrestur er Umhverfisstofnun heimilt að krefjast þess með skriflegri áskorun að útgefendur hætti dreifingu vegakorta sem veita rangar upplýsingar um heimildir til aksturs vélknúinna ökutækja á vegum samkvæmt ákvæði þessu og að þeir innkalli þau frá öðrum dreifingaraðilum. Verði útgefendur ekki við áskorun stofnunarinnar innan tilskilins frests er henni heimilt að beita dagsektum í þessu skyni, sbr. 3. mgr. 87. gr.]3)
   1)L. 66/2023, 7. gr. 2)Rg. 260/2018. 3)L. 109/2015, 15. gr.

VI. kafli. Náttúruminjaskrá.
33. gr. Náttúruminjaskrá.
Ráðherra gefur út náttúruminjaskrá á fimm ára fresti og birtir með auglýsingu í Stjórnartíðindum þegar Alþingi hefur samþykkt þingsályktun um framkvæmdaáætlun. Ráðherra getur ákveðið að í auglýsingunni verði vísað til rafrænnar útgáfu greinargerðar um ítarupplýsingar um minjar á skránni. Birta má hvenær sem er ákvarðanir um nýskráningu náttúruminja á skrána og ákvarðanir um friðlýsingu eða friðun.
Náttúruminjaskrá skiptist í þrjá hluta:
   1. [Friðlýst svæði.]1) A-hluti: Skrá yfir friðlýst svæði flokkuð eftir friðlýsingarflokkum, sbr. VIII. kafla …,1) og friðaðar vistgerðir, vistkerfi og tegundir, [sbr. IX. kafla, og önnur svæði vernduð samkvæmt sérlögum].1)
   2. [Framkvæmdaáætlun um friðlýsingar og friðun.]1) B-hluti: Framkvæmdaáætlun til næstu fimm ára, þ.e. skrá yfir þær náttúruminjar sem Alþingi hefur ákveðið að setja í forgang um friðlýsingu eða friðun á næstu fimm árum.
   3. [Aðrar mikilvægar náttúruminjar.]1) C-hluti: Skrá yfir aðrar náttúruminjar sem ástæða þykir til að friðlýsa eða friða.
Auk þess skal birta í [viðauka við]1) náttúruminjaskrá yfirlitskort sem sýna staðsetningu og útbreiðslu jarðminja og vistkerfa sem njóta sérstakrar verndar skv. [61. gr.]1)
Í náttúruminjaskrá skal náttúruminjum lýst, þar á meðal sérkennum þeirra, verndargildi og afmörkun. Skránni skal fylgja greinargerð þar sem koma skulu fram ítarupplýsingar um minjar á skránni.
   1)L. 109/2015, 16. gr.
34. gr. Endurskoðun náttúruminjaskrár.
Ráðherra annast endurskoðun náttúruminjaskrár, þar á meðal að leggja fram á Alþingi tillögu til þingsályktunar um framkvæmdaáætlun til næstu fimm ára í samráði við ráðgjafarnefnd náttúruminjaskrár.
1)
   1)L. 109/2015, 17. gr.
35. gr. Val minja á náttúruminjaskrá.
Til grundvallar vali svæða eða annarra náttúruminja í C-hluta náttúruminjaskrár skal liggja mat á verndargildi þeirra og verndarþörf. Við valið skal taka mið af markmiðsákvæðum 1.–3. gr. Þegar verndargildi er metið skal m.a. leggja áherslu á auðgi, fjölbreytni, fágæti, stærð svæða og samfellu, upprunaleika og vísindalegt, menningarlegt, fagurfræðilegt og táknrænt gildi.
Við gerð framkvæmdaáætlunar (B-hluta) skal lögð áhersla á að byggja upp skipulegt net verndarsvæða til að stuðla að því að verndarmarkmið 2. og 3. gr. náist. Við val minja á áætlunina skal, auk þeirra þátta sem taldir eru upp í 1. mgr., líta til eftirtalinna atriða:
   a. hversu mikil hætta er á að minjunum verði raskað,
   b. hvers konar minjum brýnast er að bæta í net verndarsvæða hverju sinni,
   c. gildis minjanna miðað við aðrar í sama flokki náttúruminja,
   d. mikilvægis svæðis til útivistar,
   e. annarra hagsmuna sem varða svæðið.
Að því er varðar vistgerðir skal jafnframt taka tillit til þess:
   a. hvort vistgerðin er mikilvæg fyrir friðaðar tegundir,
   b. hvort vistgerðin gegnir veigamiklu hlutverki í viðhaldi sterkra stofna mikilvægra tegunda,
   c. hvort vistgerðin er í útrýmingarhættu eða yfirvofandi hættu samkvæmt útgefnum válistum,
   d. hvort verulegur hluti útbreiðslusvæðis vistgerðarinnar í Evrópu eða á heimsvísu er á Íslandi.
Að því er varðar tegundir skal jafnframt taka tillit til þess:
   a. hvort tegundin er í útrýmingarhættu eða yfirvofandi hættu samkvæmt útgefnum válistum,
   b. hvort tegundin er ábyrgðartegund,
   c. hvort um er að ræða einlenda tegund eða sérstök afbrigði sem einungis er að finna hér á landi.
Ráðherra felur Umhverfisstofnun að meta nauðsynlegar verndarráðstafanir á svæðum sem til greina kemur að setja á framkvæmdaáætlun og kostnað við þær.
36. gr. Kynning og málsmeðferð.
Ráðherra leggur fram tillögu að endurskoðaðri náttúruminjaskrá og skal Umhverfisstofnun annast kynningu á þeim þætti hennar sem snýr að tillögu að framkvæmdaáætlun og nýskráningum í C-hluta. Í tillögu að framkvæmdaáætlun skal gerð grein fyrir helstu áhrifum hennar á þau svæði sem hún tekur til og væntanlegum takmörkunum sem hún mun hafa í för með sér.
[Tillagan skal auglýst í Lögbirtingablaði, á vefmiðlum og með öðrum hætti eftir því sem við á.]1) Í auglýsingu skal tilgreina hvar tillagan sé aðgengileg og skal öllum gefinn kostur á að gera athugasemdir við hana innan ákveðins frests sem skal ekki vera skemmri en átta vikur frá birtingu auglýsingar. Tekið skal fram í auglýsingu hvert skuli skila athugasemdum. Tillagan skal jafnframt send sveitarstjórnum, náttúruverndarnefndum og náttúrustofum til umsagnar sem og öðrum opinberum aðilum og hagsmunasamtökum eftir því sem ástæða þykir til. Einnig skal senda tillöguna þeim aðilum sem eiga sérstakra hagsmuna að gæta vegna hennar. Skal umsagnarfrestur vera jafnlangur og getið er í auglýsingu um tillöguna.
Eftir að kynningartíma lýkur tekur Umhverfisstofnun saman umsögn um framkomnar athugasemdir og skilar til ráðherra. Umhverfisstofnun skal gera þeim aðilum sem gerðu athugasemdir við tillöguna grein fyrir umsögn sinni um þær.
Fara skal með tillögur um einstakar nýskráningar í C-hluta náttúruminjaskrár svo sem greinir í 2. og 3. mgr.
Að lokinni kynningu og málsmeðferð skv. 1.–3. mgr. leggur ráðherra fram á Alþingi þingsályktunartillögu um framkvæmdaáætlun.
Ráðherra getur í reglugerð sett nánari fyrirmæli um náttúruminjaskrá, m.a. um efni greinargerðar, birtingu skrárinnar og endurskoðun.
   1)L. 6/2021, 2 gr.
37. gr. Réttaráhrif skráningar minja á náttúruminjaskrá.
Um réttaráhrif friðlýsingar er kveðið á í VII. og VIII. kafla. Um réttaráhrif friðunar vistgerða, vistkerfa og tegunda er kveðið á í [IX. kafla].1)
Ráðherra er heimilt að kveða á um tímabundið bann við framkvæmdum eða nýtingu sem skaðað getur verndargildi náttúruminja sem teknar eru á framkvæmdaáætlun (B-hluta). Bannið gildir í þrjá mánuði. Ráðherra er að þeim tíma loknum heimilt að ítreka bannið með sérstakri ákvörðun og gildir það þá þar til auglýsing um friðlýsingu eða friðun hefur verið birt en verði ekki af friðlýsingu eða friðun innan [eins árs]1) frá hinu upphaflega banni fellur það niður. Um undanþágu frá banni samkvæmt þessari málsgrein fer skv. 41. gr. að breyttu breytanda. Um náttúruminjar á B-hluta náttúruminjaskrár gilda að öðru leyti ákvæði 3. og 4. mgr.
[Forðast ber að raska svæðum eða náttúrumyndunum sem skráðar hafa verið á C-hluta náttúruminjaskrár nema almannahagsmunir krefjist þess og annarra kosta hafi verið leitað.]1) Skylt er að afla framkvæmdaleyfis, eða eftir atvikum byggingarleyfis, sbr. skipulagslög og lög um mannvirki, vegna framkvæmda sem hafa í för með sér slíka röskun. Áður en leyfi er veitt skal leita umsagnar Umhverfisstofnunar, Náttúrufræðistofnunar Íslands og viðkomandi náttúruverndarnefndar nema fyrir liggi staðfest aðalskipulag og samþykkt deiliskipulag [eða eftir atvikum staðfest raflínuskipulag]2) þar sem umsagnir skv. 1. og 2. mgr. 68. gr. liggja fyrir. Við afgreiðslu umsókna um leyfi skal gæta ákvæða 4.–6. mgr. [61. gr.]1)
Sýna skal sérstaka aðgæslu gagnvart vistgerðum, vistkerfum og tegundum á C-hluta náttúruminjaskrár til að koma í veg fyrir að náttúruleg útbreiðslusvæði eða búsvæði minnki og verndarstaða þeirra versni.
Ríkissjóður skal hafa forkaupsrétt að jörðum og öðrum landareignum sem eru að hluta eða öllu leyti á náttúruminjaskrá að þeim aðilum frágengnum sem veittur er forkaupsréttur með jarðalögum. Skal frestur ríkissjóðs til að svara forkaupsréttartilboði vera 60 dagar frá því að tilboðið barst. Að öðru leyti gilda um forkaupsréttinn ákvæði jarðalaga.
   1)L. 109/2015, 18. gr. 2)L. 35/2023, 20. gr.

VII. kafli. Friðlýsing svæða.
38. gr. Friðlýsing.
Til að stuðla að markmiðum laga þessara getur ráðherra friðlýst landsvæði, einstakar náttúrumyndanir, náttúruminjar í hafi, vatnasvæði og heildstæð vatnakerfi í samræmi við ákvæði þessa kafla, sbr. og VIII. kafla …1). Samráð skal haft við þann ráðherra sem fer með málefni sem varða stjórn á nýtingu auðlinda hafsins og hafsbotnsins um friðlýsingu náttúruminja í hafi sem haft getur áhrif á nýtingu fiskstofna eða annarra lifandi auðlinda hafsins eða hafsbotnsins.
Ákvarðanir um friðlýsingar skal ráðherra byggja á framkvæmdaáætlun náttúruminjaskrár, sbr. 33. gr. Það gildir þó ekki um friðlýsingu skv. [53. gr.]1) Ráðherra er heimilt að ákveða friðlýsingu með samþykki landeiganda og viðkomandi sveitarfélags þótt ekki sé gert ráð fyrir henni á framkvæmdaáætlun. Áður skulu friðlýsingaráformin þó kynnt í samræmi við 2. og 3. mgr. 36. gr. [með þeirri undantekningu að frestur til að gera athugasemdir við friðlýsingaráformin skal vera að lágmarki fjórar vikur].2) [Í kynningu skal að lágmarki tilgreina markmið og tilgang fyrirhugaðrar friðlýsingar.]2)
Hvers konar athafnir eða framkvæmdir sem ganga gegn markmiði friðlýsingar og geta skaðað verndargildi friðlýstra náttúruminja eru óheimilar nema samkvæmt undanþágu, sbr. 41. gr.
Það varðar refsingu skv. 90. gr. að spilla friðlýstum náttúruminjum.
   1)L. 109/2015, 19. gr. 2)L. 6/2021, 3. gr.
39. gr. Undirbúningur friðlýsingar.
Umhverfisstofnun annast undirbúning friðlýsingar, sbr. þó 2. mgr. 52. gr. Leita skal samráðs við Hafrannsóknastofnun við undirbúning friðlýsingar í hafi og við Minjastofnun Íslands við undirbúning friðlýsingar landslagsverndarsvæðis á grundvelli menningarlegs gildis.
Umhverfisstofnun skal gera drög að friðlýsingarskilmálum og leggja fyrir landeigendur og aðra rétthafa lands, viðkomandi sveitarfélög og aðra sem hagsmuna eiga að gæta. Jafnframt skal kynna landeigendum og öðrum rétthöfum lands rétt til bóta skv. 42. gr. Frestur til að gera athugasemdir við fyrirhugaða friðlýsingu skal vera [sex vikur].1) [Stofnunin skal í kjölfarið vísa málinu til ráðherra með tillögum að friðlýsingarskilmálum og gera grein fyrir hvort náðst hafi samkomulag um friðlýsinguna við hlutaðeigandi aðila.]2)
[Umhverfisstofnun er heimilt að semja við landeiganda, rétthafa lands eða lögaðila um að hann taki þátt í umönnun friðlýsts svæðis með því að annast þar tilteknar aðgerðir gegn þóknun.]2) Slíka samninga er einnig heimilt að gera við sveitarfélög og náttúru- og umhverfisverndarsamtök. Samningar samkvæmt þessari málsgrein eru háðir staðfestingu ráðherra.
Ákvörðun um friðlýsingu skal tekin í formi auglýsingar sem birt skal í B-deild Stjórnartíðinda. Auglýsing felur í sér stjórnvaldsákvörðun gagnvart landeigendum og öðrum rétthöfum þess landsvæðis sem friðlýsing tekur til. Skal gætt ákvæða stjórnsýslulaga við undirbúning og birtingu hennar gagnvart þessum aðilum.
   1)L. 6/2021, 4. gr.; sjá einnig brbákv. 2)L. 109/2015, 20. gr.
40. gr. Efni auglýsingar um friðlýsingu.
Í auglýsingu um friðlýsingu skal gera grein fyrir markmiði með friðlýsingu, þeim náttúruminjum sem stefnt er að því að varðveita og verndargildi þeirra. Auglýsingu um friðlýsingu svæðis skal fylgja kort sem sýnir [hnitsetta]1) afmörkun þess. Við afmörkun svæðis skal taka mið af markmiði friðlýsingarinnar. Ef um er að ræða verndarsvæði í hafi skal jafnframt tiltaka hvort friðlýsingin nái til hafsbotns, lífríkis og/eða vatnsbols. Í auglýsingu skal gera grein fyrir því hvernig friðlýsingin stuðli að því að ná markmiðum laganna og eftir atvikum uppfylla skuldbindingar Íslands samkvæmt alþjóðasamningum.
Innan þeirra marka sem hverjum friðlýsingarflokki eru sett getur ráðherra í auglýsingu kveðið nánar á um takmarkanir sem leiðir af friðlýsingunni, m.a. á umferðarrétti, notkun veiðiréttar og framkvæmdum. Heimilt er ráðherra að ákveða að afla skuli leyfis Umhverfisstofnunar til athafna og framkvæmda sem áhrif geta haft á verndargildi viðkomandi svæðis, og um heimild stofnunarinnar til að setja skilyrði fyrir slíkum leyfum, ef það er nauðsynlegt til að tryggja að markmið verndarinnar náist. Setja má mismunandi reglur fyrir einstaka hluta friðlýsts svæðis. Ráðherra getur falið Umhverfisstofnun að setja reglur um umferðarrétt manna í [stjórnunar- og verndaráætlun]2) fyrir viðkomandi svæði, sbr. 81. gr., sem og um heimildir til að tjalda. Hafi verið gerður samningur skv. 3. mgr. 39. gr. skal geta þess í auglýsingu.
   1)L. 109/2015, 21. gr. 2)L. 109/2015, 3. gr.
41. gr. Undanþága frá ákvæðum friðlýsingar.
[Umhverfisstofnun getur, að fenginni umsögn]1) Náttúrufræðistofnunar Íslands og viðkomandi náttúruverndarnefndar, veitt undanþágu frá ákvæðum friðlýsingar:
   a. ef það stríðir ekki verulega gegn markmiði friðlýsingarinnar og hefur óveruleg áhrif á verndargildi þeirra náttúruminja sem friðlýsingin beinist að, eða
   b. ef öryggissjónarmið eða mjög brýnir samfélagshagsmunir krefjast þess.
Umsókn um undanþágu skv. 1. mgr. skal fylgja greinargerð um áhrif fyrirhugaðra athafna eða framkvæmdar á verndargildi náttúruminjanna. Við mat skv. b-lið 1. mgr. skal leggja áherslu á þýðingu viðkomandi svæðis í neti verndarsvæða og eftir atvikum hvort unnt er að stofna samsvarandi verndarsvæði annars staðar. Heimilt er að binda heimild til undanþágu skilyrðum sem þykja nauðsynleg til að draga úr neikvæðum áhrifum framkvæmdarinnar á verndargildi minjanna. Ef framkvæmd leiðir til þess að verndargildi friðlýsts svæðis fer forgörðum er heimilt að krefja framkvæmdaraðila, að því marki sem sanngjarnt er, um greiðslu kostnaðar vegna stofnunar nýs verndarsvæðis.
   1)L. 6/2021, 5. gr.
42. gr. Réttur til bóta.
[Hindri friðlýsing eða ákvörðun skv. 2. mgr. 37. gr. fyrirhugaða nýtingu landeiganda eða rétthafa lands á landinu eða geri hana til muna erfiðari, umfram það sem teljast má til almennra takmarkana eignarréttar, skal landeigandi eða rétthafi lands eiga rétt á bótum fyrir fjárhagslegt tjón sem hann verður fyrir og getur sýnt fram á að sé verulega umfram þær takmarkanir sem má finna í sambærilegum friðlýsingum eða ákvörðunum.]1)
Landeigendur og aðrir rétthafar sem telja sig eiga rétt til bóta skv. 1. mgr. skulu bera fram bótakröfu við ráðherra innan þriggja mánaða frá birtingu ákvörðunar um friðlýsingu eða ákvörðunar skv. 2. mgr. 37. gr. Ráðherra getur að beiðni hlutaðeigandi ákveðið að framlengja frestinn.
Ef ekki næst samkomulag um bætur skal ákveða þær með eignarnámsmati.
   1)L. 109/2015, 22. gr.
43. gr. Heimild til eignarnáms.
Ráðherra er heimilt að taka eignarnámi lönd, mannvirki og réttindi til að framkvæma friðlýsingu samkvæmt lögum þessum. Um framkvæmd eignarnáms og ákvörðun bóta fer eftir almennum reglum.
44. gr. Afnám eða breyting friðlýsingar.
Afnám friðlýsingar eða breyting sem felur í sér að dregið er úr vernd viðkomandi náttúruminja er aðeins heimil:
   a. ef verndargildi minjanna eða svæðisins hefur rýrnað svo að forsendur eru ekki lengur fyrir friðlýsingunni eða
   b. ef mjög brýnir samfélagshagsmunir krefjast þess.
Ráðherra tekur ákvörðun um afnám eða breytingu friðlýsingar en áður skal liggja fyrir mat á áhrifum hennar. Leita skal umsagnar Náttúrufræðistofnunar Íslands, Umhverfisstofnunar, viðkomandi náttúruverndarnefndar, náttúruverndarsamtaka og eftir atvikum annarra fagstofnana. Við mat skv. b-lið 1. mgr. skal leggja áherslu á þýðingu friðlýsts svæðis í neti verndarsvæða og hvort unnt er að stofna samsvarandi verndarsvæði annars staðar. Einnig skal taka mið af skuldbindingum Íslands samkvæmt alþjóðasamningum.
Ákvörðun um afnám eða breytingu friðlýsingar samkvæmt þessari grein skal auglýst í B-deild Stjórnartíðinda.

VIII. kafli. Flokkar friðlýstra svæða.
45. gr. Náttúruvé.
Friðlýsa má svæði sem náttúruvé til að vernda náttúruleg þróunarferli, vistkerfi, fjölbreytni eða ákveðnar tegundir og/eða jarðfræðileg fyrirbæri sem eru sérstök eða einstök á lands- eða heimsvísu eða í Evrópu eða óvenjuviðkvæm.
Friðlýsingin skal miða að því að standa vörð um náttúrulegt ástand svæðisins og þróun þess á eigin forsendum. Náttúruvé eiga að geta þjónað sem viðmiðunarsvæði fyrir vísindarannsóknir og vöktun.
Heimilt er að takmarka mjög aðgang að náttúruvéum og banna allar athafnir sem spillt geta markmiði verndarinnar.
1)
   1)L. 109/2015, 23. gr.
46. gr. Óbyggð víðerni.
Friðlýsa má sem óbyggð víðerni stór landsvæði þar sem ummerkja mannsins gætir lítið sem ekkert og náttúran fær að þróast án álags af mannlegum umsvifum.
Friðlýsingin skal miða að því að varðveita einkenni svæðisins, t.d. að viðhalda fjölbreyttu og óvenjulegu landslagi, víðsýni og/eða vernda heildstæð stór vistkerfi, og tryggja að núlifandi og komandi kynslóðir geti notið þar einveru og náttúrunnar án truflunar af mannvirkjum eða umferð vélknúinna farartækja.
1)
   1)L. 109/2015, 24. gr.
47. gr. Þjóðgarðar.
Friðlýsa má sem þjóðgarða stór náttúrusvæði sem eru lítt snortin og hafa að geyma sérstætt eða dæmigert lífríki, jarðminjar og/eða landslag. Þegar tekin er ákvörðun um stofnun þjóðgarðs skal einnig líta til mikilvægis svæðisins í menningarlegu eða sögulegu tilliti.
Friðlýsingin skal miða að því að vernda heildstæð náttúruleg vistkerfi, jarðminjar, landslag og menningarminjar sem einkenna svæðið og tryggja aðgang almennings að því til útivistar og til þess að kynnast náttúru og sögu svæðisins. Leggja skal áherslu á fræðslu og upplýsingar í þessu skyni.
Í þjóðgörðum eru allar athafnir og framkvæmdir sem hafa varanleg áhrif á náttúru svæðisins bannaðar nema þær séu nauðsynlegar til að markmið friðlýsingarinnar náist. Frjálsa för fólks samkvæmt almannarétti er aðeins hægt að takmarka á afmörkuðum svæðum í þjóðgörðum þar sem það er nauðsynlegt til að vernda plöntur, dýr, menningarminjar eða jarðminjar.
Landsvæði þjóðgarða skulu vera í ríkiseign nema sérstakar ástæður mæli með öðru og um það náist samkomulag milli ráðherra og landeigenda.
48. gr. Náttúruvætti.
Friðlýsa má einstakar náttúrumyndanir sem ástæða þykir til að varðveita sökum fræðilegs gildis, fegurðar eða sérkenna og kallast þær náttúruvætti. Náttúruvætti geta t.d. verið fossar, eldstöðvar, hellar og drangar, svo og fundarstaðir steingervinga, sjaldgæfra steinda, bergtegunda og berggerða, eða lífræn fyrirbæri sem eru einstök og skera sig úr umhverfinu. Friðlýsingin skal jafnframt ná til svæðis kringum náttúrumyndanirnar svo sem nauðsynlegt er til þess að þær fái notið sín.
49. gr. Friðlönd.
Friðlýsa má afmörkuð landsvæði sem friðlönd til að vernda tilteknar vistgerðir og búsvæði og styrkja verndun tegunda lífvera sem eru sjaldgæfar eða í hættu samkvæmt útgefnum válistum eða til að vernda lífríki sem er sérstaklega fjölbreytt eða sérstætt.
Í auglýsingu um friðlýsingu er heimilt að kveða á um aðgerðir sem nauðsynlegar eru til að hlúa að og mæta þörfum tegunda sem verndin beinist að eða til að viðhalda búsvæðum eða vistgerðum. Takmarka má umferð um friðlönd á vissum tímum árs eða á tilteknum stöðum ef það er nauðsynlegt til að ná markmiði friðlýsingarinnar.
50. gr. Landslagsverndarsvæði.
Friðlýsa má landsvæði til verndar landslagi sem:
   a. þykir sérlega verðmætt vegna fagurfræðilegs og/eða menningarlegs gildis,
   b. talið er sérstætt eða fágætt á svæðis-, lands- eða heimsvísu eða
   c. skipar mikilvægan sess í vitund þjóðarinnar.
Friðlýsingin skal miða að því að varðveita sérkenni og einkenni landslagsins, fagurfræðilegt og menningarlegt gildi þess. Ef um er að ræða svæði þar sem hefðbundnar nytjar eru forsenda fyrir því að varðveita einkenni landslagsins skal friðlýsingin jafnframt miða að því að tryggja að þeim verði haldið við.
Halda má áfram starfsemi sem stunduð er á svæðinu en gæta skal ákvæða 1. málsl. 2. mgr. við útfærslu og þróun hennar. Mannvirki sem heimilað er að reisa á svæðinu skal skipuleggja og hanna þannig að þau falli sem best að svipmóti lands. Ekki er heimilt að takmarka för gangandi manna um landslagsverndarsvæði umfram það sem leiðir af ákvæðum IV. kafla.
[50. gr. a. Verndarsvæði með sjálfbærri nýtingu náttúruauðlinda.
Friðlýsa má landsvæði til verndar vistkerfum og búsvæðum ásamt þeim menningarlegu gildum sem tengjast þeim og hefðbundnum nytjum náttúruauðlinda. Viðmið um friðlýsingu slíkra svæða skal vera að þau séu stór, að mestu leyti náttúruleg en hluti þeirra nýttur á sjálfbæran hátt.
Markmið með verndun svæða samkvæmt grein þessari er hófsamleg og sjálfbær nýting náttúruauðlinda sem ekki er iðnvædd og samrýmist náttúruvernd.]1)
   1)L. 109/2015, 25. gr.
51. gr. Náttúruminjar í hafi.
Ákvæði VII. og VIII. kafla gilda einnig, eftir því sem við á, um náttúruminjar í hafi.
52. gr. Fólkvangar.
Að frumkvæði hlutaðeigandi sveitarfélags eða sveitarfélaga og að fengnu áliti Umhverfisstofnunar er heimilt að friðlýsa landsvæði til útivistar og almenningsnota sem fólkvang. Skal verndun svæðisins miða að því að auðvelda almenningi aðgang að náttúru og tengdum menningarminjum í nánd við þéttbýli til útivistar, náttúruskoðunar og fræðslu.
Umhverfisstofnun annast undirbúning stofnunar fólkvangs í samvinnu við viðkomandi sveitarfélag eða sveitarfélög.
1)
   1)L. 109/2015, 26. gr.
[53. gr.]1) Friðlýsing svæða í verndarflokki verndar- og orkunýtingaráætlunar.
Svæði sem falla í verndarflokk verndar- og orkunýtingaráætlunar sem Alþingi hefur samþykkt skal friðlýsa gagnvart orkuvinnslu.
Friðlýsingin felur í sér að orkuvinnsla er óheimil á viðkomandi svæði.
   1)L. 109/2015, 27. gr.
[54. gr.]1) Starfsemi og framkvæmdir utan friðlýsts svæðis.
Ef starfsemi eða framkvæmdir utan friðlýsts svæðis, sem leyfisskyldar eru samkvæmt öðrum lögum, geta haft áhrif á verndargildi friðlýsta svæðisins skal taka mið af því við ákvörðun um veitingu leyfis. Leita skal umsagnar Umhverfisstofnunar áður en leyfi er veitt. Setja má skilyrði til að koma í veg fyrir skaða af starfseminni eða framkvæmdunum á hinu friðlýsta svæði. Um aðra starfsemi og framkvæmdir gildir aðgæsluskylda skv. 6. gr.
   1)L. 109/2015, 27. gr.
55. gr.1) Friðlýsing heilla vatnakerfa.
Heimilt er ráðherra að friðlýsa heil vatnakerfi, þar á meðal lindasvæði og lítt snortin og ómiðluð vatnasvið. Áskilið er að viðkomandi svæði hafi ekki verið flokkað í nýtingarflokk eða biðflokk verndar- og orkunýtingaráætlunar.
Friðlýsing getur m.a. miðað að því að varðveita vatnslindir til framtíðar, tryggja náttúrulega ferla og vatna- og vistfræðilega samfellu á tilteknu vatnasviði og standa vörð um ásýnd og vistfræðilegt þjónustuhlutverk vatnasviða.
Óheimilt er að nýta svæði sem friðlýst eru samkvæmt þessari grein til orkuframleiðslu og allar framkvæmdir sem raskað geta viðkomandi vatnakerfi eru bannaðar. Ráðherra getur sett nánari ákvæði um framkvæmdir, vatnstöku og aðra nýtingu í auglýsingu, sbr. 40. gr.
   1)Í 27. gr. frumvarpsins sem varð að lögum nr. 109/2015 sagði að 55. gr. laga nr. 60/2013, í IX. kafli laganna, félli brott. Við meðferð málsins á Alþingi var hætt við að fella greinina brott, en heiti kaflans breytt í friðun vistkerfa, vistgerða og tegunda. Í ljósi annarra breytinga á IX. kafla á greinin ekki lengur heima í þeim kafla. Í stað þess að vera fremst í IX. kafla er greinin því færð aftast í VIII. kafla, um flokka friðlýstra svæða, þar sem hún á efnislega betur heima.

IX. kafli. [Friðun vistkerfa, vistgerða og tegunda.]1)
   1)L. 109/2015, 27. gr.
[56. gr.]1) Friðun vistkerfa, vistgerða og tegunda.
Til að ná markmiðum a-, b- eða c-liðar 2. gr. er ráðherra heimilt að gefa út auglýsingu um friðun tiltekinna vistkerfa, vistgerða eða tegunda og skal hún birt í B-deild Stjórnartíðinda. Friðun getur náð til landsins alls eða til afmarkaðra landsvæða eða hafsvæða. Í auglýsingunni getur ráðherra afmarkað að öðru leyti umfang friðunarinnar og kveðið nánar á um takmarkanir sem af henni leiðir. Í auglýsingu um friðun tegundar getur ráðherra m.a. mælt fyrir um vernd búsvæða hennar. Samráð skal haft við þann ráðherra sem fer með málefni sem varða stjórn á nýtingu auðlinda hafsins og hafsbotnsins um friðun sem haft getur áhrif á nýtingu fiskstofna eða annarra lifandi auðlinda hafsins eða hafsbotnsins.
Ákvörðun um friðun skv. 1. mgr. skal ráðherra byggja á framkvæmdaáætlun náttúruminjaskrár, sbr. 33. gr. Ef sérstakar aðstæður skapast sem leiða til skyndilegrar hnignunar vistkerfis, vistgerðar eða tegundar þannig að verulega víki frá markmiðum a-, b- eða c-liðar 2. gr. er Náttúrufræðistofnun Íslands skylt, í samráði við fagráð náttúruminjaskrár, að taka til skoðunar hvort leggja skuli til friðun viðkomandi vistkerfis, vistgerðar eða tegundar. Að fenginni tillögu Náttúrufræðistofnunar Íslands getur ráðherra gefið út auglýsingu í samræmi við 1. mgr. en áður skulu friðunaráformin þó kynnt í samræmi við 2. og 3. mgr. 36. gr.
Ráðherra getur fellt úr gildi auglýsingu um friðun ef vísindaleg gögn sýna fram á að verndarstaða viðkomandi vistkerfis, vistgerðar eða tegundar hefur batnað þannig að samræmist markmiði 2. gr.
   1)L. 109/2015, 28. gr.
[57. gr.]1) Réttaráhrif friðunar.
Öllum er skylt að sýna sérstaka aðgæslu og forðast að raska svæðum þar sem friðað vistkerfi eða friðaða vistgerð er að finna, skaða friðaðar tegundir eða raska búsvæðum þeirra. Náttúrufræðistofnun Íslands skal miðla upplýsingum til almennings um einkenni og útbreiðslusvæði friðaðra vistkerfa og vistgerða og einkenni og búsvæði friðaðra tegunda.
Við töku hvers kyns ákvarðana sem áhrif geta haft á friðuð vistkerfi, vistgerðir eða tegundir skulu stjórnvöld sýna sérstaka aðgát svo ekki verði gengið gegn markmiðum friðunarinnar. Áður en tekin er ákvörðun um framkvæmd sem felur í sér röskun friðaðs vistkerfis, friðaðrar vistgerðar eða búsvæðis friðaðrar tegundar, t.d. með veitingu framkvæmdaleyfis eða byggingarleyfis, skal leita umsagnar Náttúrufræðistofnunar Íslands, [Umhverfisstofnunar]1) og viðkomandi náttúruverndarnefndar.
Við ákvarðanatöku skv. 2. mgr. skal leggja áherslu á mikilvægi framkvæmdastaðarins með tilliti til útbreiðslu og verndarstöðu vistkerfisins, vistgerðarinnar eða tegundarinnar í heild og hvort fullnægjandi vernd náist með því að vernda eða byggja upp aðra staði þar sem vistkerfið, vistgerðina eða tegundina er að finna. Framkvæmdaraðili skal taka sanngjarnan þátt í kostnaði við slíkar aðgerðir. Heimilt er að binda leyfi skilyrðum sem miða að því að koma í veg fyrir eða draga úr röskun friðaðs vistkerfis eða vistgerðar eða búsvæðis friðaðrar tegundar.
Senda skal …1) Umhverfisstofnun afrit af útgefnu leyfi til framkvæmda sem fela í sér skerðingu á friðuðu vistkerfi eða vistgerð eða búsvæði friðaðrar tegundar.
   1)L. 109/2015, 28. gr.
[58. gr.]1) Undanþága frá ákvæðum auglýsingar um friðun.
Telji landeigandi eða rétthafi að ákvæði auglýsingar um friðun valdi sér verulegu tjóni eða óhæfilegum vandkvæðum við nýtingu lands síns getur hann sótt um undanþágu ráðherra frá þeim eða farið fram á að viðkomandi svæði verði friðlýst sem friðland í samræmi við 49. gr. Ráðherra skal leita umsagnar Umhverfisstofnunar, Náttúrufræðistofnunar Íslands og viðkomandi náttúruverndarnefndar um umsókn um undanþágu. Við afgreiðslu undanþágu skal leggja áherslu á þýðingu viðkomandi svæðis fyrir vistkerfið, vistgerðina eða tegundina sem í hlut á og eftir atvikum hvort unnt er að byggja upp samsvarandi verndarsvæði annars staðar.
[Sé óvissa um hvort undanþága samkvæmt ákvæði þessu hafi í för með sér alvarleg eða óafturkræf áhrif á viðkomandi vistkerfi, vistgerð eða tegund sem friðuð er skal umsækjandi um undanþágu afla sérfræðiálits um mögulegt og verulegt tjón sem veiting undanþágunnar gæti valdið. Ráðherra er heimilt að binda undanþáguheimild skilyrðum sem þykja nauðsynleg til að draga úr slíkum áhrifum. Ráðherra skal við ákvörðun um undanþágu taka mið af verndarmarkmiðum 2. og 3. gr., sbr. 9. gr.]1)
   1)L. 109/2015, 28. gr.
[59. gr.]1) Aðgerðaáætlun og samningar um umönnun.
Ef aðgerða er þörf til að ná ákjósanlegri verndarstöðu friðaðs vistkerfis, vistgerðar eða tegundar, sbr. 2. gr., eða viðhalda henni skal ráðherra leggja fram aðgerðaáætlun innan 12 mánaða frá gildistöku auglýsingar um friðun.
Heimilt er Umhverfisstofnun að semja við einstaka landeigendur eða rétthafa [lands eða sveitarfélög]1) um að þeir taki þátt í umönnun friðaðs vistkerfis, vistgerðar eða tegundar með því að annast tilteknar aðgerðir gegn þóknun. Slíka samninga er einnig heimilt að gera við náttúru- og umhverfisverndarsamtök. Samningar samkvæmt þessari málsgrein eru háðir staðfestingu ráðherra.
   1)L. 109/2015, 28. gr.
[60. gr.]1) Steindir og steingervingar.
Ráðherra getur, að fenginni tillögu Umhverfisstofnunar og Náttúrufræðistofnunar Íslands og umsögn þess ráðuneytis sem fer með málefni sem varða jarðrænar auðlindir, mælt í reglugerð fyrir um vernd steinda, m.a. um heimild Umhverfisstofnunar til að banna eða takmarka töku ákveðinna tegunda þeirra úr föstum jarðlögum ef það er nauðsynlegt til að tryggja vernd þeirra. Ákvarðanir um bann eða takmarkanir á töku ákveðinna tegunda þeirra úr föstum jarðlögum skulu háðar staðfestingu ráðherra og skulu birtar með auglýsingu í B-deild Stjórnartíðinda.
Óheimilt er að nema brott eða losa steingervinga af fundarstað. Ráðherra getur þó að fenginni umsögn Umhverfisstofnunar og Náttúrufræðistofnunar Íslands veitt undanþágu frá ákvæði þessu í þágu jarðfræðirannsókna og til töku sýna fyrir gestastofur og söfn.
Brot gegn ákvæði 2. mgr. og brottnám steinda úr föstum jarðlögum sem brýtur í bága við ákvörðun Umhverfisstofnunar skv. 1. mgr. varðar refsingu, sbr. 90. gr.
   1)L. 109/2015, 28. gr.

X. kafli. [Sérstök vernd tiltekinna vistkerfa, jarðminja o.fl.]1)
   1)L. 109/2015, 28. gr.
[61. gr.]1) Sérstök vernd tiltekinna vistkerfa og jarðminja.
Eftirtalin vistkerfi njóta sérstakrar verndar í samræmi við markmið 2. gr., sbr. og c-lið 3. gr.:
   a. votlendi, svo sem hallamýrar, flóar, flæðimýrar, rústamýrar, [20.000 m2]1) að flatarmáli eða stærri, stöðuvötn og tjarnir, 1.000 m2 að flatarmáli eða stærri, og sjávarfitjar og leirur,
   b. [sérstæðir eða vistfræðilega mikilvægir birkiskógar og leifar þeirra þar sem eru m.a. gömul tré].1)
Eftirtaldar jarðminjar njóta sérstakrar verndar í samræmi við markmið 3. gr.:
   a. eldvörp, eldhraun, gervigígar og hraunhellar sem myndast hafa eftir að jökull hvarf af landinu á síðjökultíma,
   b. [fossar og nánasta umhverfi þeirra að því leyti að sýn að þeim spillist ekki, hverir og aðrar heitar uppsprettur ásamt lífríki sem tengist þeim og virkri ummyndun og útfellingum, þar á meðal hrúðri og hrúðurbreiðum],1)
   c.1)
[Forðast ber að raska vistkerfum og jarðminjum sem taldar eru upp í 1. og 2. mgr. nema brýna nauðsyn beri til.]1) Skylt er að afla framkvæmdaleyfis, eða eftir atvikum byggingarleyfis, sbr. skipulagslög og lög um mannvirki, vegna framkvæmda sem hafa í för með sér slíka röskun. Áður en leyfi er veitt skal leyfisveitandi leita umsagnar [Umhverfisstofnunar]1) og viðkomandi náttúruverndarnefndar nema fyrir liggi staðfest aðalskipulag og samþykkt deiliskipulag [eða eftir atvikum staðfest raflínuskipulag]2) þar sem umsagnir skv. 1. og 2. mgr. 68. gr. liggja fyrir. …1)
Við mat á leyfisumsókn skal líta til verndarmarkmiða 2. og 3. gr. og jafnframt huga að mikilvægi minjanna og sérstöðu í íslensku og alþjóðlegu samhengi.
Ákveði leyfisveitandi að heimila framkvæmd skal hann rökstyðja þá ákvörðun sérstaklega fari hún í bága við [umsagnir]1) umsagnaraðila. Heimilt er að binda leyfi skilyrðum sem þykja nauðsynleg til að draga úr áhrifum framkvæmdarinnar á þau náttúrufyrirbæri sem verða fyrir röskun.
Senda skal …1) Umhverfisstofnun afrit af útgefnu leyfi.
Náttúrufræðistofnun Íslands skal halda skrár yfir náttúrufyrirbæri sem talin eru upp í 1. og 2. mgr. önnur en birkiskóga en [Land og skógur]3) heldur skrá yfir þá. [Stofnanirnar skulu birta skrárnar, auk þess sem þær eru birtar sem viðauki við náttúruminjaskrá.]1)
   1)L. 109/2015, 28. gr. 2)L. 35/2023, 20. gr. 3)L. 66/2023, 7. gr.
[62. gr.]1) Vernd bakkagróðurs.
Við vatnsnýtingu og framkvæmdir í eða við vötn skal leitast við að viðhalda náttúrulegum bakkagróðri við ár og stöðuvötn og haga mannvirkjum og framkvæmdum þannig að sem minnst röskun verði á bökkum og næsta umhverfi vatnsins.
   1)L. 109/2015, 27. gr.

XI. kafli. [Innflutningur og dreifing lifandi framandi lífvera.]1)
   1)L. 109/2015, 29. gr.
63. gr. Innflutningur lifandi framandi lífvera.
[Óheimilt er að flytja inn og dreifa lifandi framandi lífverum nema með leyfi Umhverfisstofnunar. [Til innflutnings lifandi dýra eða plantna skal jafnframt afla leyfis Matvælastofnunar í samræmi við lög um innflutning dýra, lög um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim eða lög um varnir gegn sjúkdómum og meindýrum á plöntum.]1)
[Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. er heimilt að flytja inn eftirfarandi lífverur án leyfis Umhverfisstofnunar:
   a. Búfé.
   b. Framandi plöntutegundir sem hafa verið notaðar til garðyrkju, túnræktar, jarðræktar, landgræðslu og skógræktar.
   c. Tegundir sem ráðherra hefur ákveðið með reglugerð að flytja megi inn án leyfis, sbr. 6. mgr.
Með umsókn um leyfi skv. 1. mgr. skal fylgja áhættumat sem umsækjandi hefur aflað hjá óháðum aðila og skal þar m.a. koma fram mat á hættu á því hvort viðkomandi lífverur séu ágengar og þeim áhrifum sem það kann að hafa á líffræðilega fjölbreytni. Umsókninni skal jafnframt fylgja greinargerð um þau áhrif sem gera má ráð fyrir að dreifing eða möguleg útbreiðsla dreifingarinnar hafi á lífríkið og líffræðilegan fjölbreytileika.]1)]2)
Umhverfisstofnun skal leita umsagnar sérfræðinganefndar skv. [5. mgr.]1) um umsóknir um leyfi skv. 1. mgr. Óheimilt er að veita leyfi ef ástæða er til að ætla að innflutningurinn [eða dreifingin]2) ógni eða hafi veruleg áhrif á líffræðilega fjölbreytni. Umhverfisstofnun getur bundið leyfi skilyrðum sem draga úr hættu á því að innflutningurinn [eða dreifingin]2) hafi áhrif á lífríkið.
Ráðherra skipar til fjögurra ára í senn sex manna nefnd sérfræðinga sem skal vera stjórnvöldum til ráðgjafar um innflutning og ræktun framandi tegunda og dreifingu lifandi lífvera. [Náttúrufræðistofnun Íslands, Landbúnaðarháskóli Íslands, Líf- og umhverfisvísindastofnun Háskóla Íslands, [Hafrannsóknastofnun og Land og skógur tilnefna einn fulltrúa hver]3).]4) Ráðherra skipar formann án tilnefningar. Varamenn skulu skipaðir með sama hætti.
Ráðherra setur í reglugerð nánari fyrirmæli um innflutning [og dreifingu]2) framandi tegunda, þar á meðal um áhættumat og um þau sjónarmið sem leggja skal til grundvallar við mat á því hvort leyfi skv. 1. mgr. skuli veitt, svo og um störf sérfræðinganefndar skv. [5. mgr.]1) Ráðherra getur að fengnum tillögum sérfræðinganefndarinnar ákveðið í reglugerð að banna innflutning [og dreifingu]2) tiltekinna framandi tegunda og skal hann birta þar skrá yfir þær. Á sama hátt getur ráðherra ákveðið að vissar tegundir megi flytja inn án leyfis skv. [2. mgr.]1) og skal hann einnig birta skrá yfir þær. [Ráðherra setur í reglugerð nánari fyrirmæli um umsóknir og fylgigögn með umsóknum.]1)
   1)L. 71/2021, 19. gr. 2)L. 109/2015, 29. gr. 3)L. 66/2023, 7. gr. 4)L. 113/2015, 12. gr.
64. gr. [Móttaka og afgreiðsla umsókna.
Afhenda skal Matvælastofnun umsóknir um leyfi skv. 63. gr. ásamt fylgigögnum. Matvælastofnun skal framsenda umsóknir um innflutningsleyfi fyrir framandi lífverur ásamt fylgigögnum til Umhverfisstofnunar til meðferðar samkvæmt lögum þessum. Umhverfisstofnun metur hvort umsókn um innflutningsleyfi falli undir lög þessi.
Umsókn um leyfi til innflutnings á framandi lífverum skal afgreidd samhliða umsókn til Matvælastofnunar um leyfi til innflutnings á grundvelli laga um innflutning dýra eða laga um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim. Hvor stofnun fyrir sig skal tilkynna umsækjanda hvort umsókn telst fullnægjandi. Þegar Matvælastofnun og Umhverfisstofnun hafa lokið vinnslu umsóknar skal tilkynna umsækjanda um niðurstöður beggja stofnana.]1)
   1)L. 71/2021, 20. gr.
65. gr. Aðgæsluskylda.
Sá sem ber ábyrgð á innflutningi lifandi framandi lífvera sem ekki er ætlað að dreifa skal gæta sérstakrar varúðar og grípa til allra þeirra ráðstafana sem sanngjarnt verður talið svo koma megi í veg fyrir að lífverurnar sleppi og dreifist.
Sá sem ber ábyrgð á dreifingu lifandi lífvera skal gæta sérstakrar varúðar til að koma í veg fyrir að dreifingin dragi úr líffræðilegri fjölbreytni lífríkisins sem fyrir er.
Sá sem stundar starfsemi sem getur haft í för með sér að til landsins berist óviljandi lifandi framandi lífverur, eða að þær dreifist út í náttúruna, skal grípa til ráðstafana sem sanngjarnt er að ætlast til í því skyni að koma í veg fyrir innflutning þeirra og dreifingu.
66. gr. Tengsl við önnur lög.
Ákvæði 63. …1) gr. gilda ekki um erfðabreyttar lífverur, sbr. lög um erfðabreyttar lífverur, nr. 18/1996, og lifandi smitefni, sbr. sóttvarnalög, nr. 19/1997.
Ákvæði um leyfisskyldu í 63. …1) gr. hafa ekki áhrif á fyrirmæli annarra laga um leyfisskyldu vegna innflutnings og dreifingar lífvera nema það sé sérstaklega tekið fram.
   1)L. 109/2015, 29. gr.
67. gr. Aðgerðir vegna ágengra framandi lífvera.
Ef ástæða er til að ætla að framandi lífverur ógni líffræðilegri fjölbreytni og hafi veruleg áhrif á lífríkið getur Umhverfisstofnun, að fenginni umsögn sérfræðinganefndar skv. [5. mgr.]1) 63. gr., gripið til aðgerða til að koma böndum á og hefta útbreiðslu þeirra eða uppræta þær. Heimildin nær ekki til dýra og plantna sem heyra undir lög nr. 85/2000, um framkvæmd samnings um alþjóðaverslun með tegundir villtra dýra og plantna sem eru í útrýmingarhættu.
Aðgerðir skv. 1. mgr. geta ef nauðsynlegt er náð til þess að takmarka útbreiðslu ágengra framandi lífvera á eignarlöndum eða útrýma þeim. Við töku ákvörðunar um aðgerðir samkvæmt þessari málsgrein skal gæta ákvæða stjórnsýslulaga og hafa skal samráð við landeiganda, og eftir atvikum aðra rétthafa, um framkvæmd aðgerðanna.
Umhverfisstofnun getur samið við sveitarfélög eða félagasamtök um að annast þær aðgerðir sem hér um ræðir, að hluta eða í heild.
   1)L. 71/2021, 21. gr.

XII. kafli. Skipulagsgerð, framkvæmdir og fleira.
68. gr. Gerð skipulagsáætlana.
Leita skal umsagnar Umhverfisstofnunar og viðkomandi náttúruverndarnefnda við gerð svæðis-, [raflínu-]1) og aðalskipulagsáætlana og verulegar breytingar á þeim.
Við gerð deiliskipulags á náttúruverndarsvæðum, á svæðum sem njóta sérstakrar verndar skv. [61. gr.]2) og [umhverfismatsskýrslu]3) framkvæmdaraðila vegna mats á umhverfisáhrifum skal leita umsagnar Umhverfisstofnunar, Náttúrufræðistofnunar Íslands og viðkomandi náttúruverndarnefnda.
Framkvæmdaáætlun náttúruminjaskrár er bindandi við gerð skipulagsáætlana. Sveitarstjórnir skulu, þegar við á, samræma gildandi svæðis-, aðal- og deiliskipulagsáætlanir framkvæmdaáætluninni innan fjögurra ára frá samþykkt hennar, sbr. þó 4. mgr.
Sveitarstjórnum er heimilt að fresta skipulagsákvörðun samkvæmt framkvæmdaáætlun í allt að tíu ár, þó einungis gagnvart þeim svæðum sem fjallað er um í [53. gr.]2) að frestunarheimild í 2. mgr. 7. gr. laga nr. 48/2011 hafi ekki verið nýtt. Skal tilkynna slíka ákvörðun til Skipulagsstofnunar innan árs frá samþykkt framkvæmdaáætlunar.
   1)L. 35/2023, 20. gr. 2)L. 109/2015, 30. gr. 3)L. 111/2021, 38. gr.
69. gr. Hönnun mannvirkja.
Við hönnun vega, virkjana, verksmiðja og annarra mannvirkja skal þess gætt að þau falli sem best að svipmóti lands. Við mat á umhverfisáhrifum og afgreiðslu leyfisumsókna vegna slíkra framkvæmda skal taka afstöðu til þessa atriðis.
70. gr. Ræktun.
Við túnrækt, skógrækt, uppgræðslu lands, skjólbeltagerð og aðra ræktun skal þess gætt að hún falli sem best að heildarsvipmóti lands og raski ekki náttúru- og menningarminjum. Við gerð áætlana, mat á umhverfisáhrifum og afgreiðslu umsókna vegna leyfisskyldrar ræktunar skal taka afstöðu til þessara atriða.
71. gr. Áletranir á náttúrumyndanir.
Hvers konar áletranir á náttúrumyndanir eru óheimilar og varða refsingu skv. 90. gr.
72. gr. Auglýsingar utan þéttbýlis.
Óheimilt er að setja upp auglýsingar meðfram vegum eða annars staðar utan þéttbýlis. Þó er heimilt, að uppfylltum ákvæðum annarra laga, að setja upp látlausar auglýsingar um atvinnurekstur eða þjónustu eða vörur á þeim stað þar sem starfsemin eða framleiðslan fer fram. Við hönnun slíkra auglýsinga skal þess gætt að þær falli sem best að svipmóti lands.
Ráðherra setur í reglugerð nánari ákvæði um efni greinarinnar og úrskurðar um vafaatriði.
Uppsetning auglýsinga meðfram vegum eða annars staðar utan þéttbýlis sem uppfylla ekki skilyrði 2. málsl. 1. mgr. eða reglugerðar skv. 2. mgr. varðar refsingu, sbr. 90. gr.
73. gr. Eignir í hirðuleysi.
Óheimilt er að skilja eftir í hirðuleysi skip, bifreiðar, önnur tæki, áhöld, girðingaleifar eða aðra ámóta hluti eða láta byggingar eða önnur mannvirki grotna niður þannig að telja verði til lýta eða spjalla á náttúru.
[73. gr. a. Kortlagning óbyggðra víðerna.
Ráðherra er heimilt að setja reglugerð um kortlagningu óbyggðra víðerna. Í reglugerðinni skal m.a. kveða á um þau viðmið og forsendur sem liggja til grundvallar kortlagningunni.
Kort með upplýsingum um óbyggð víðerni skal vera til upplýsinga fyrir stjórnvöld við stefnumótun um verndun landslags og aðra landnotkun.]1)
   1)L. 6/2021, 6. gr.

XIII. kafli. Vöktun og eftirlit.
74. gr. Vöktun.
Náttúrufræðistofnun Íslands ber ábyrgð á vöktun lykilþátta íslenskrar náttúru að því marki sem hún er ekki falin öðrum stofnunum með lögum [eða reglum settum á grundvelli þeirra].1)
Náttúrufræðistofnun Íslands vinnur heildstæða áætlun um vöktun, sbr. 1. mgr., og skipuleggur framkvæmd hennar. Vöktunaráætlun fyrir friðlýst svæði skal [vera unnin í samráði við Umhverfisstofnun og]1) vera hluti [stjórnunar- og verndaráætlunar]2) viðkomandi svæðis. Stofnunin getur haft samstarf við aðra aðila um vöktun. Henni er jafnframt heimilt að fela hæfum aðilum, svo sem náttúrustofum, að annast tiltekna þætti vöktunar en um það skal gera samning þar sem m.a. er kveðið á um umfang verkefnisins og eftir atvikum um greiðslur fyrir það.
Náttúrufræðistofnun Íslands ber ábyrgð á birtingu niðurstaðna vöktunar og miðlar upplýsingum um þær.
   1)L. 109/2015, 31. gr. 2)L. 109/2015, 3. gr.
75. gr. Eftirlit Umhverfisstofnunar.
Umhverfisstofnun hefur eftirlit með framkvæmd laga þessara.
Í eftirlitshlutverki Umhverfisstofnunar felst m.a.:
   a. eftirlit með því að náttúru landsins sé ekki spillt með athöfnum, framkvæmdum eða rekstri, að svo miklu leyti sem slíkt eftirlit er ekki falið öðrum með sérstökum lögum,
   b. eftirlit með náttúruverndarsvæðum, þ.m.t. með framkvæmdum á friðlýstum svæðum sem stofnunin hefur veitt leyfi eða undanþágu til,
   c. eftirlit með því að almannaréttur sé virtur,
   d. eftirlit með umferð og umgengni á svæðum í óbyggðum í samvinnu við önnur stjórnvöld,
   e. eftirlit, í samvinnu við önnur stjórnvöld, með því að reglur um akstur utan vega séu virtar,
   f. eftirlit, í samvinnu við önnur stjórnvöld, með innflutningi lifandi framandi lífvera og dreifingu lifandi lífvera.
Ráðherra setur í reglugerð nánari ákvæði um eftirlit Umhverfisstofnunar.
76. gr. Sérstakt eftirlit með framkvæmdum.
Telji Umhverfisstofnun nauðsynlegt að haldið verði uppi sérstöku eftirliti með framkvæmdum skal gera um það samkomulag við framkvæmdaraðila og viðkomandi sveitarstjórn. Í samkomulaginu skal taka mið af innra eftirliti við framkvæmdina og eftirliti annarra opinberra aðila. Þar skulu kostnaðarliðir áætlaðir eins og mögulegt er hverju sinni og ber framkvæmdaraðila að endurgreiða Umhverfisstofnun útlagðan kostnað við eftirlitið. Rísi ágreiningur milli aðila um efni samkomulagsins eða greiðslur fyrir eftirlitið sker ráðherra úr.
Að fengnum tillögum Umhverfisstofnunar setur ráðherra gjaldskrá um kostnað við eftirlit með framkvæmdum. Þar skal m.a. kveðið á um umfang opinbers eftirlits og ákvörðun eftirlitsgjalda sem taka mið af innra eftirliti þeirra fyrirtækja sem eftirlitið beinist að.
77. gr. Eftirlit með ástandi svæða í óbyggðum.
Umhverfisstofnun skal fylgjast með ástandi svæða í óbyggðum. Stofnuninni er heimilt að fela náttúrustofum, einstökum sveitarfélögum, náttúruverndarnefndum, einstaklingum eða lögaðilum að annast slíkt eftirlit með tilteknum svæðum. Um það skal gera samning sem ráðherra staðfestir. Í samningnum skal m.a. kveðið á um greiðslur fyrir eftirlitið, menntun eftirlitsmanna, skýrslugerð og annað sem máli skiptir.
Umhverfisstofnun skal gefa ráðherra skýrslu um ástand svæða í óbyggðum á þriggja ára fresti. Í skýrslunni skal koma fram hvort einhver svæði séu í hættu, t.d. vegna ágangs, og hvort grípa þurfi til ráðstafana, t.d. með lokun svæðis. Stofnunin skal birta niðurstöður skýrslunnar með auglýsingu í dagblöðum og á heimasíðu sinni.
Ráðherra kveður í reglugerð nánar á um eftirlit samkvæmt þessari grein og um efni skýrslu.
78. gr. Upplýsingaskylda og aðgangur.
Eftirlitsaðilar samkvæmt lögum þessum geta krafið aðila sem eftirlit beinist að um allar upplýsingar sem nauðsynlegar eru við framkvæmd eftirlitsins.
Landeigendur og aðrir rétthafar lands skulu veita þeim sem sinna vöktun og eftirliti samkvæmt lögum þessum nauðsynlegan aðgang að landi sínu.

XIV. kafli. Umsjón og eftirlit með náttúruverndarsvæðum.
79. gr. Yfirumsjón og ábyrgð á eftirliti.
Umhverfisstofnun hefur yfirumsjón með náttúruverndarsvæðum og ber ábyrgð á eftirliti með þeim nema annað sé tekið fram í lögum. Ráðherra getur falið stofnuninni umsjón með öðrum svæðum sem sérstök þykja sakir landslags, jarðminja, gróðurfars eða dýralífs.
Umhverfisstofnun gefur ráðherra árlega skýrslu um ástand náttúruverndarsvæða í umsjá stofnunarinnar.
80. gr. Landverðir.
Á náttúruverndarsvæðum starfa landverðir og eftir atvikum aðrir starfsmenn. Landverðir annast daglegan rekstur og umsjón, eftir atvikum í samræmi við [stjórnunar- og verndaráætlun],1) sbr. 81. gr., sinna fræðslu og fara með eftirlit, sbr. 84. gr.
Ráðherra setur í reglugerð,2) að fengnum tillögum Umhverfisstofnunar, nánari ákvæði um menntun og starfsskyldur þeirra sem starfa á náttúruverndarsvæðum.
Umhverfisstofnun skal halda námskeið í landvörslu í samræmi við reglugerð ráðherra, sbr. 2. mgr. Umhverfisstofnun er heimilt að taka gjald fyrir námskeið í landvörslu og próftöku sem þátttakendur greiða. Upphæð gjalds má ekki vera hærri en sá kostnaður sem hlýst af námskeiðshaldi og vinnu vegna próftöku. Ráðherra setur gjaldskrá að fengnum tillögum Umhverfisstofnunar og skal hún birt í B-deild Stjórnartíðinda.
   1)L. 109/2015, 3. gr. 2)Rg. 190/2019.
81. gr. [Stjórnunar- og verndaráætlun.]1)
Umhverfisstofnun ber ábyrgð á að gerð sé [stjórnunar- og verndaráætlun]1) fyrir friðlýst svæði. Stofnunin getur falið hæfum aðilum að annast undirbúning eða gerð tillögu að [stjórnunar- og verndaráætlun]1) og skal gerður um það samningur þar sem m.a. er kveðið nánar á um umfang verkefnisins og greiðslur fyrir það. Tillaga að [stjórnunar- og verndaráætlun]1) skal liggja fyrir innan 12 mánaða frá gildistöku friðlýsingar.
Í [stjórnunar- og verndaráætlun]1) skal m.a. fjallað um landnýtingu, landvörslu, vöktun, [uppbyggingu],2) fræðslu og miðlun upplýsinga, [verndaraðgerðir]2) og aðgengi ferðamanna, þar á meðal aðgengi fatlaðs fólks. Ef ekki hafa verið settar sérstakar reglur um umferð manna og dvöl á viðkomandi svæði í auglýsingu um friðlýsingu er heimilt að setja slíkar reglur í [stjórnunar- og verndaráætlun]1) svo og reglur um önnur atriði er greinir í IV. kafla.
[Stjórnunar- og verndaráætlun]1) skal gerð í samvinnu við eigendur svæðisins, Náttúrufræðistofnun Íslands, viðkomandi sveitarstjórnir og eftir atvikum aðrar fagstofnanir og hagsmunaaðila. Tillögu að [stjórnunar- og verndaráætlun]1) skal auglýsa opinberlega og skulu athugasemdir við hana hafa borist innan sex vikna frá birtingu auglýsingarinnar. Áætlunin er háð staðfestingu ráðherra og skal staðfesting og gildistaka áætlunarinnar auglýst í B-deild Stjórnartíðinda.
[Stjórnunar- og verndaráætlun]1) skal endurskoða eftir því sem tilefni er til.
   1)L. 109/2015, 3. gr. 2)L. 109/2015, 32. gr.
82. gr. Rekstur þjóðgarða.
Í hverjum þjóðgarði samkvæmt lögum þessum skal starfa þjóðgarðsvörður sem er starfsmaður Umhverfisstofnunar. Þjóðgarðsverðir skulu hafa sérþekkingu og reynslu sem nýtist þeim í starfi.
Þjóðgarðsvörður annast daglegan rekstur og umsjón þjóðgarðs í samræmi við [stjórnunar- og verndaráætlun],1) sér um fræðslu og fer með eftirlit í samræmi við 84. gr. Þjóðgarðsvörður ræður annað starfsfólk þjóðgarðsins, þar á meðal landverði, og skipuleggur starf þess.
Ráðherra er heimilt að stofna þjóðgarðsráð með þátttöku hlutaðeigandi sveitarstjórna, stofnana og eftir atvikum félagasamtaka á sviði náttúruverndar og ferðaþjónustu til að vera þjóðgarðsverði til ráðgjafar um málefni þjóðgarðsins.
Þjóðgarðsvörður og þjóðgarðsráð taka þátt í gerð og endurskoðun [stjórnunar- og verndaráætlunar]1) fyrir þjóðgarðinn.
   1)L. 109/2015, 3. gr.
83. gr. Rekstur fólkvanga.
Sveitarfélög sem standa að stofnun fólkvangs annast umsjón hans og rekstur og bera af því allan kostnað að því leyti sem ekki koma til framlög úr ríkissjóði. Skal kostnaði skipt í hlutfalli við íbúatölu sveitarfélaganna næsta ár á undan. Hætti sveitarfélag þátttöku í undirbúningi að stofnun fólkvangs er því skylt að greiða áfallinn kostnað hlutfallslega.
Sveitarfélög sem standa saman að rekstri fólkvangs skulu gera með sér samvinnusamning og stofna samvinnunefnd sem starfar í samráði við Umhverfisstofnun. Í samvinnusamningi skal kveðið á um fjölda nefndarmanna og starfshætti nefndarinnar. Ef ekki er öðruvísi ákveðið ræður afl atkvæða. Þegar um er að ræða atriði sem hafa sérstakan kostnað í för með sér fer þó um atkvæðisrétt eftir greiðsluhlutföllum aðila, sbr. 1. mgr.
84. gr. Eftirlit á náttúruverndarsvæðum.
Landverðir, þjóðgarðsverðir og aðrir starfsmenn náttúruverndarsvæða hafa eftirlit með því að virt séu ákvæði laga þessara og aðrar reglur sem um svæðin gilda. Þeir annast samskipti við lögreglu og önnur eftirlitsstjórnvöld vegna brota á lögum og reglum.
Landvörðum, þjóðgarðsvörðum og þeim sem falið er eftirlit á grundvelli 2. mgr. 85. gr. er heimilt að vísa af viðkomandi náttúruverndarsvæði hverjum þeim sem brýtur gegn ákvæðum laganna eða reglum sem um svæðið gilda.
85. gr. Umsjón falin öðrum.
Umhverfisstofnun getur falið einstaklingum, sveitarfélögum eða öðrum lögaðilum umsjón og rekstur náttúruverndarsvæða að þjóðgörðum undanskildum. Gera skal sérstakan samning um umsjón og rekstur svæðanna sem ráðherra staðfestir. Til grundvallar samningi um umsjón friðlýsts svæðis skal liggja [stjórnunar- og verndaráætlun]1) fyrir svæðið. Í samningnum skal m.a. kveða á um réttindi og skyldur samningsaðila, menntun starfsmanna og gjaldtöku, sbr. 2. mgr. 92. gr. Samningur samkvæmt þessu ákvæði felur ekki í sér vald til töku stjórnvaldsákvarðana.
Heimilt er að fela umsjónaraðila skv. 1. mgr. eftirlit skv. 84. gr. á umsjónarsvæðinu og skal þá í samningi kveðið nánar á um eftirlitið, valdheimildir og upplýsingagjöf til Umhverfisstofnunar.
Umhverfisstofnun hefur eftirlit með því að umsjónar-, rekstrar- og eftirlitsaðili uppfylli samningsskuldbindingar.
Ákvæði 1. mgr. greinar þessarar gildir ekki um rekstur fólkvanga.
   1)L. 109/2015, 3. gr.
86. gr. Gestastofur.
Umhverfisstofnun er heimilt að stofna og reka gestastofur á náttúruverndarsvæðum eftir því sem ákveðið er í fjárlögum hverju sinni. Hafa skal samstarf við náttúrustofur um rekstur gestastofa þegar við á. Gera skal sérstakan samning um samstarfið …1)
Umhverfisstofnun getur falið einstaklingum, sveitarfélögum eða öðrum lögaðilum umsjón og rekstur gestastofa. Um slíkt skal gera sérstakan samning sem ráðherra staðfestir þar sem m.a. er nánar kveðið á um réttindi og skyldur samningsaðila.
   1)L. 109/2015, 33. gr.

XV. kafli. Þvingunarúrræði og viðurlög.
87. gr. Áskorun, fyrirmæli um úrbætur, dagsektir o.fl.
Ef brotið er gegn fyrirmælum laga þessara eða stjórnvaldsfyrirmæla sem sett eru á grundvelli þeirra getur Umhverfisstofnun beint áskorun til viðkomandi aðila um að láta af ólögmætri athöfn eða athafnaleysi.
Umhverfisstofnun getur lagt fyrir framkvæmdaraðila sem valdið hefur náttúruspjöllum með framkvæmd, sem brýtur í bága við ákvæði laganna, stjórnvaldsfyrirmæla sem sett eru á grundvelli þeirra eða leyfa sem stofnunin veitir samkvæmt lögunum, að bæta úr þeim, t.d. að afmá jarðrask og lagfæra gróðurskemmdir. Ef um er að ræða framkvæmd sem framkvæmdaleyfi eða byggingarleyfi hefur verið veitt til skal Umhverfisstofnun hafa samráð við skipulagsfulltrúa eða byggingarfulltrúa viðkomandi sveitarfélags áður en slík fyrirmæli eru gefin út. Veita skal hæfilegan frest til úrbóta. Krafa um úrbætur má ekki vera ósanngjörn með tilliti til kostnaðar, eðlis og umfangs tjónsins og stöðu og sakar hins brotlega. Ákvæði þessarar málsgreinar gilda ekki um umhverfistjón sem fellur undir lög um umhverfisábyrgð.
Ef aðili verður ekki við áskorun eða fyrirmælum Umhverfisstofnunar samkvæmt lögum þessum innan tiltekins frests er heimilt að ákveða honum dagsektir, allt að 500.000 kr., þar til úr er bætt. Dagsektir renna í ríkissjóð. Ráðherra getur í reglugerð breytt upphæð dagsekta í samræmi við verðlagsþróun. Dagsektir má innheimta með fjárnámi.
Heimilt er að láta vinna verk á kostnað hins vinnuskylda ef fyrirmæli um framkvæmd eru vanrækt og skal sá kostnaður þá greiddur til bráðabirgða úr ríkissjóði sem innheimtir hann síðar hjá hlutaðeigandi. Kostnað má innheimta með fjárnámi.
88. gr. Stöðvun athafna og framkvæmda.
Umhverfisstofnun, þar á meðal landvörðum og þjóðgarðsvörðum, er heimilt að stöðva fólk og farartæki ef það er nauðsynlegt til að koma í veg fyrir brot á ákvæðum laga þessara um umferð. Sömu heimild hafa þeir sem falið er eftirlit á náttúruverndarsvæði á grundvelli 2. mgr. 85. gr. en þá aðeins innan viðkomandi svæðis.
Umhverfisstofnun er heimilt að stöðva framkvæmdir og athafnir sem brjóta gegn lögum þessum ef áskorun skv. 1. mgr. 87. gr. er ekki sinnt. Ef um er að ræða framkvæmd sem er framkvæmdaleyfis- eða byggingarleyfisskyld skal Umhverfisstofnun hafa samráð við skipulagsfulltrúa eða byggingarfulltrúa viðkomandi sveitarfélags áður en heimildinni er beitt.
Umhverfisstofnun er heimilt að stöðva tafarlaust:
   a. framkvæmd eða athöfn sem leyfisskyld er samkvæmt lögum þessum en hafin hefur verið án þess að leyfi sé fengið fyrir henni,
   b. framkvæmd eða athöfn ef Umhverfisstofnun telur að af henni stafi yfirvofandi hætta á verulegu tjóni á náttúru Íslands og að aðgerð þoli enga bið. Stöðvun samkvæmt þessum staflið getur gilt í allt að tvær vikur.
Ef þörf krefur er lögreglu skylt að aðstoða við stöðvun athafna og framkvæmda samkvæmt þessari grein.
89. gr. Breyting og afturköllun leyfis.
Umhverfisstofnun getur afturkallað leyfi samkvæmt lögum þessum ef skilyrðum þeirra er ekki fullnægt. Áður skal stofnunin veita leyfishafa skriflega aðvörun og frest til úrbóta.
Umhverfisstofnun er heimilt að breyta skilyrðum leyfis, setja ný skilyrði eða afturkalla leyfi ef það er nauðsynlegt til að koma í veg fyrir verulegt, ófyrirséð tjón á náttúru Íslands.
Þegar tekin er ákvörðun á grundvelli 2. mgr. skal taka tillit til kostnaðar sem breyting eða afturköllun hefur í för með sér fyrir leyfishafa og annarra áhrifa, jákvæðra og neikvæðra, sem af ákvörðuninni mun leiða.
90. gr. Refsiábyrgð.
Það varðar mann sektum eða fangelsi allt að tveimur árum ef:
   a. hann framkvæmir eða aðhefst í heimildarleysi nokkuð það sem leyfis eða undanþágu er krafist til samkvæmt lögum þessum eða stjórnvaldsfyrirmælum settum á grundvelli þeirra,
   b. hann brýtur ákvæði …1) 1. mgr. 28. gr., 31. gr., 4. mgr. 38. gr., 62. gr., 71. gr. eða 72. gr. eða stjórnvaldsfyrirmæli sett á grundvelli þeirra.
Nú hljótast af broti skv. 1. mgr. alvarleg spjöll á náttúru landsins og skal maður þá sæta sektum, að lágmarki 350.000 kr., eða fangelsi allt að fjórum árum, nema brot teljist meiri háttar svo að það varði refsingu skv. 179. gr. almennra hegningarlaga. Lágmarksfjárhæð sekta skal taka mánaðarlegum breytingum samkvæmt vísitölu neysluverðs.
Brot skv. 1. og 2. mgr. varða mann refsiábyrgð ef þau eru framin af ásetningi eða gáleysi.
Gera má lögaðila sekt vegna brots skv. 1. eða 2. mgr. óháð sök fyrirsvarsmanns lögaðilans, starfsmanns hans eða annars á hans vegum í starfsemi lögaðilans. Verður lögaðila gerð refsing þó að ekki verði staðreynt hver þessara aðila hafi átt í hlut. Refsiábyrgð stjórnvalda er bundin sömu skilyrðum, enda hafi verið framið brot skv. 1. eða 2. mgr. í starfsemi sem telst vera sambærileg starfsemi einkaaðila.
Tilraun til brota og hlutdeild í brotum skv. 1. og 2. mgr. eru manni refsiverð eftir því sem segir í almennum hegningarlögum.
Þegar alvarleg spjöll verða á náttúru landsins við framningu brots skv. 31. gr. eða brot gegn því ákvæði telst sérlega vítavert að öðru leyti má gera upptækt með dómi vélknúið ökutæki sem notað hefur verið við framningu brots, [nema ökumaður hafi notað ökutækið í algeru heimildarleysi].1) Ökutæki sem gert er upptækt skal vera eign ríkissjóðs. Hafi einhver beðið tjón við brotið skal hann þó eiga forgang til andvirðisins ef bætur fást ekki á annan hátt.
   1)L. 109/2015, 34. gr.

XVI. kafli. Ýmis ákvæði.
91. gr. Ágreiningur um framkvæmd laganna.
Ákvarðanir Umhverfisstofnunar skv. …1) 63. …1) gr. sæta kæru til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála. Um aðild, kærufrest, málsmeðferð og annað sem varðar kæruna fer samkvæmt lögum um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála.
Aðrar ákvarðanir sem lúta að framkvæmd laga þessara og ráðherra tekur ekki sjálfur eða staðfestir sæta kæru til ráðherra sem kveður upp endanlegan úrskurð á stjórnsýslustigi. Kærurétt eiga þeir sem eiga lögvarða hagsmuni tengda hinni kærðu ákvörðun og náttúru- og umhverfisverndarsamtök og útivistarsamtök sem varnarþing eiga á Íslandi, enda séu félagsmenn samtakanna 30 eða fleiri og það samrýmist tilgangi samtakanna að gæta þeirra hagsmuna sem kæran lýtur að.
   1)L. 6/2021, 7. gr.
92. gr. Gjaldtaka.
Umhverfisstofnun er heimilt að innheimta gjald fyrir afgreiðslu leyfisumsókna sem stofnunin annast og þær undanþágur sem hún veitir samkvæmt lögum þessum. Gjaldið skal vera í samræmi við gjaldskrá sem ráðherra hefur staðfest og birt er í B-deild Stjórnartíðinda. Gjaldið má ekki vera hærra en sem nemur kostnaði við afgreiðslu erindisins.
Umhverfisstofnun eða sá aðili sem falinn hefur verið rekstur náttúruverndarsvæðis getur ákveðið gjald fyrir veitta þjónustu. Rekstraraðili náttúruverndarsvæðis getur enn fremur ákveðið sérstakt gjald fyrir aðgang að svæðinu ef spjöll hafa orðið af völdum ferðamanna eða hætta er á slíkum spjöllum og skal tekjum af því varið til eftirlits, lagfæringar og uppbyggingar svæðisins eða aðkomu að því.
Eigi síðar en í ágúst ár hvert skal Umhverfisstofnun leggja fyrir ráðherra til staðfestingar skrá yfir gjöld skv. 2. mgr. sem stofnunin hyggst innheimta næsta ár á eftir. Staðfesti ráðherra gjaldskrána skal hún birt í B-deild Stjórnartíðinda.
Ráðherra getur ákveðið nánara fyrirkomulag gjaldtöku í reglugerð.
93. gr. Náttúruverndarsjóður.
Hlutverk náttúruverndarsjóðs er að stuðla að náttúruvernd og umönnun friðaðra og friðlýstra náttúruminja og auka fræðslu um náttúruvernd og náttúrufar.
Ráðherra skipar náttúruverndarsjóði fjögurra manna stjórn til tveggja ára í senn. Samband íslenskra sveitarfélaga, Umhverfisstofnun og náttúru- og umhverfisverndarsamtök skulu tilnefna einn fulltrúa hver en ráðherra skipar formann án tilnefningar. Stjórnin ber ábyrgð á umsýslu sjóðsins og úthlutar styrkjum úr honum. Ráðherra setur sjóðnum sérstakar úthlutunarreglur. Ef atkvæði í stjórn falla jafnt hefur formaður oddaatkvæði.
Tekjur náttúruverndarsjóðs eru:
   a. framlag ríkissjóðs eftir því sem ákveðið er í fjárlögum,
   b. önnur framlög.
Kostnaður við rekstur náttúruverndarsjóðs greiðist úr ríkissjóði.
94. gr. Gildistaka.
[Lög þessi öðlast gildi 15. nóvember 2015.]1)
2)
Reglugerðir og önnur stjórnvaldsfyrirmæli, sem sett eru samkvæmt eldri lögum, skulu halda gildi sínu að svo miklu leyti sem þau fara ekki í bága við lög þessi.3)
   1)L. 34/2015, 1. gr. 2)L. 109/2015, 35. gr. 3)Sjá nú: Rg. 205/1973, sbr. 640/1982 og 941/2011. Augl. 433/1993. Augl. 120/1994. Rg. 513/1995. Augl. 631/1995, sbr. 78/2002. Augl. 457/1996. Augl. 326/1999. Rg. 583/2000, sbr. 651/2010, 398/2011 og 505/2011. Augl. 249/2001. Rg. 568/2001, sbr. 928/2005. Augl. 606/2001. Augl. 549/2002. Augl. 591/2002. Augl. 663/2002. Augl. 181/2003. Augl. 162/2005. Rg. 528/2005, sbr. 497/2007. Augl. 1150/2005. Augl. 50/2006. Augl. 480/2006, sbr. augl. 319/2011. Augl. 523/2006. Augl. 510/2007. Augl. 534/2007. Augl. 1064/2007. Augl. 164/2009. Augl. 395/2009. Augl. 396/2009. Augl. 398/2009. Augl. 877/2009. Augl. 878/2009. Augl. 264/2011. Augl. 265/2011. Augl. 266/2011. Augl. 338/2011. Augl. 850/2011. Augl. 851/2011. Rg. 941/2011. Augl. 296/2012.
95. gr. Breytingar á öðrum lögum.
Ákvæði til bráðabirgða.
   1.1)
   2. Ráðherra skal eigi síðar en [2017]1) leggja fyrir Alþingi í fyrsta sinn þingsályktunartillögu um framkvæmdaáætlun, sbr. 13. gr. Þegar Alþingi hefur samþykkt framkvæmdaáætlun skal ráðherra gefa í fyrsta sinn út náttúruminjaskrá skv. 33. gr. [Þar til ráðherra gefur út náttúruminjaskrá skv. 33. gr. skal gildandi náttúruminjaskrá halda gildi sínu en um minjar á skránni, aðrar en þær sem eru friðlýstar, skal fara samkvæmt ákvæðum 67. gr. laga um náttúruvernd, nr. 44/1999, þar til endurmati verndargildis þeirra minja hefur verið lokið í samræmi við 3. tölul.]1) Þrátt fyrir ákvæði 1. málsl. 2. mgr. 38. gr. er ráðherra heimilt að friðlýsa og friða náttúruminjar sem teknar hafa verið á náttúruverndaráætlun, sbr. 1. mgr. 65. gr. laga um náttúruvernd, nr. 44/1999, sem Alþingi hefur staðfest. [Hafi náðst samkomulag um friðlýsingu eða friðun náttúruminja skv. 58. gr. laga nr. 44/1999 er ráðherra heimilt að ljúka þeim þó svo að ekki hafi verið gefinn þriggja mánaða frestur til að gera athugasemdir við fyrirhugaða friðlýsingu skv. 2. mgr. 39. gr. laga þessara.]1)
   3. Ráðherra skal láta endurskoða ákvæði gildandi friðlýsinga og eftir atvikum endurmeta verndargildi þeirra minja sem standa á gildandi náttúruminjaskrá. Skal að því stefnt að verkinu verði lokið eigi síðar en í árslok [2021].1)
   4. Gerð [stjórnunar- og verndaráætlana]2) fyrir svæði sem friðlýst hafa verið samkvæmt eldri lögum skal lokið eigi síðar en tíu árum frá gildistöku laga þessara.
   5. […3)
   6. Þar til sveitarfélög hafa gert breytingar á aðalskipulagi sínu, eða eftir atvikum svæðisskipulagi, í samræmi við ákvæði 2. mgr. 32. gr. og Vegagerðin hefur birt í vegaskrá viðkomandi vegi í náttúru Íslands sem heimilt er að aka, aðra en þjóðvegi, er heimilt að aka vélknúnum ökutækjum á greinilegum vegum í náttúru Íslands sem eru að staðaldri notaðir til umferðar vélknúinna ökutækja. Skilyrði fyrir akstri á slíkum vegum er að aksturinn falli að skilyrðum 3. mgr. 32. gr. Vinnu samkvæmt ákvæði þessu skal lokið fyrir árslok 2020.
   Þegar Vegagerðin hefur birt vegaskrá skv. 32. gr. skal ráðherra endurskoða ákvæði V. kafla um akstur utan vega með tilliti til reynslunnar af framkvæmd þeirra.
   7. Ráðherra, í samráði við hlutaðeigandi ráðherra, skal láta vinna frumvarp um ný ákvæði er taki til stýringar á ferðaþjónustunni með hliðsjón af reglum um almannarétt og á grundvelli náttúruverndar og nauðsynlegrar auðlindastýringar sem nýting ferðaþjónustunnar á náttúrunni hefur óhjákvæmilega í för með sér. Stefnt skal að því að ráðherra leggi fram frumvarp þess efnis í síðasta lagi á haustþingi 2017.]1)
   [8. Fyrstu kortlagningu óbyggðra víðerna alls landsins skv. 73. gr. a skal vera lokið fyrir 1. júní 2023.]4)
   1)L. 109/2015, 37. gr. 2)L. 109/2015, 3. gr. 3)L. 71/2021, 22. gr. 4)L. 6/2021, 8. gr.