Lagasafn.  Íslensk lög 17. janúar 2026.  Útgáfa 157a.  Prenta í tveimur dálkum.


Lög um tekjustofna sveitarfélaga

1995 4 30. janúar


Upphaflega l. 91/1989. Tóku gildi 1. janúar 1990. Breytt með: L. 124/1989 (tóku gildi 1. jan. 1990). L. 7/1990 (tóku gildi 28. febr. 1990).
Endurútgefin, sbr. 18. gr. l. 7/1990, sem l. 90/1990. Tóku gildi 8. október 1990. Breytt með: L. 92/1991 (tóku gildi 1. júlí 1992). L. 124/1993 (tóku gildi 30. des. 1993). L. 152/1994 (tóku gildi 1. jan. 1995).
Endurútgefin, sbr. 11. gr. l. 124/1993, sem l. 4/1995. Tóku gildi 13. febrúar 1995. Breytt með: L. 148/1995 (tóku gildi 1. jan. 1996). L. 79/1996 (tóku gildi 1. jan. 1997 nema 5. og 7. gr. sem tóku gildi 19. júní 1996 og 6. gr. sem tók gildi 1. jan. 1998; komu til framkvæmda skv. fyrirmælum í 8. gr.). L. 122/1996 (tóku gildi 16. des. 1996). L. 144/2000 (tóku gildi 30. nóv. 2000). L. 60/2002 (tóku gildi 17. maí 2002). L. 167/2002 (tóku gildi 30. des. 2002; komu til framkvæmda skv. fyrirmælum í 3. gr.). L. 67/2004 (tóku gildi 18. júní 2004). L. 129/2004 (tóku gildi 31. des. 2005). L. 136/2004 (tóku gildi 1. jan. 2005). L. 140/2005 (tóku gildi 1. jan. 2006). L. 167/2007 (tóku gildi 1. jan. 2008). L. 83/2008 (tóku gildi 1. jan. 2009 nema 22. gr. sem tók gildi 20. júní 2008). L. 173/2008 (tóku gildi 1. jan. 2009; komu til framkvæmda skv. fyrirmælum í 20. gr.). L. 6/2009 (tóku gildi 5. mars 2009). L. 136/2009 (tóku gildi 1. jan. 2010). L. 77/2010 (tóku gildi 1. júlí 2010). L. 162/2010 (tóku gildi 1. jan. 2011). L. 165/2010 (tóku gildi og komu til framkvæmda skv. fyrirmælum í 69. gr.). L. 126/2011 (tóku gildi 30. sept. 2011). L. 180/2011 (tóku gildi 30. des. 2011). L. 56/2012 (tóku gildi 27. júní 2012). L. 80/2012 (tóku gildi 1. jan. 2013). L. 139/2012 (tóku gildi 1. jan. 2013). L. 6/2013 (tóku gildi 1. jan. 2013, birt í Stjtíð. 13. febr. 2013). L. 139/2013 (tóku gildi 31. des. 2013 nema 1.–2., 9., 13.–14., 16.–17., 22. og 27.–29. gr. sem tóku gildi 1. jan. 2014; komu til framkvæmda skv. fyrirmælum í 30. gr.). L. 56/2014 (tóku gildi 4. júní 2014). L. 125/2014 (tóku gildi 31. des. 2014 nema 6., 8., 13.–18., 21.–25. og 29. gr. sem tóku gildi 1. jan. 2015; komu til framkvæmda skv. fyrirmælum í 30. gr.). L. 135/2014 (tóku gildi 31. des. 2014). L. 72/2015 (tóku gildi 21. júlí 2015). L. 88/2015 (tóku gildi 1. jan. 2016). L. 115/2015 (tóku gildi 16. des. 2015). L. 125/2015 (tóku gildi 1. jan. 2016 nema 2., 4.–5., 8., 24., 31., 37., 45., 48.–52., 54.–55. og 57.–58. gr. sem tóku gildi 31. des. 2015 og a–d-liður 1. gr., 6.–7., 13. og 15. gr. sem tóku gildi 1. jan. 2017; komu til framkvæmda skv. fyrirmælum í 59. gr.). L. 75/2016 (tóku gildi 1. jan. 2017). L. 78/2016 (tóku gildi 1. júlí 2016). L. 126/2016 (tóku gildi 1. jan. 2017 nema 1., 2., c-liður 8., 9., 18., r-liður 19., 20., 22.–24., 28., 29., 41., 58., 60. og 61. gr. sem tóku gildi 31. des. 2016, s-liður 19. gr. sem tók gildi 1. apríl 2017 og 10. gr. sem tók gildi 1. sept. 2017; komu til framkvæmda skv. fyrirmælum í 62. gr.). L. 43/2017 (tóku gildi 17. júní 2017). L. 9/2018 (tóku gildi 24. febr. 2018). L. 37/2018 (tóku gildi 1. okt. 2018). L. 132/2018 (tóku gildi 1. jan. 2019). L. 150/2018 (tóku gildi 8. jan. 2019). L. 150/2019 (tóku gildi 31. des. 2019). L. 157/2019 (tóku gildi 4. jan. 2020). L. 25/2020 (tóku gildi 1. apríl 2020). L. 37/2020 (tóku gildi 23. maí 2020). L. 22/2021 (tóku gildi 31. mars 2021). L. 86/2021 (tóku gildi 1. jan. 2022 nema brbákv. sem tók gildi 8. júlí 2021). L. 87/2021 (tóku gildi 1. jan. 2022). L. 96/2021 (tóku gildi 10. júlí 2021). L. 107/2021 (tóku gildi 1. jan. 2022; komu til framkvæmda skv. fyrirmælum í 43. gr.). L. 36/2022 (tóku gildi 1. júlí 2022). L. 84/2022 (tóku gildi 14. júlí 2022). L. 129/2022 (tóku gildi 1. jan. 2023 nema a-liður 31. gr. sem tók gildi 1. mars 2023 og 37. og 60. gr. sem tóku gildi 31. des. 2022; komu til framkvæmda skv. fyrirmælum í 68. gr., sbr. einnig brbákv. í s.l.). L. 18/2023 (tóku gildi 12. apríl 2023). L. 45/2023 (tóku gildi 1. jan. 2024 nema 8. gr. og b-liður 9. gr. sem tóku gildi 21. júní 2023; um lagaskil sjá nánar 11. gr.). L. 100/2023 (tóku gildi 1. jan. 2024 nema 31., 32. og 38. gr. sem tóku gildi 30. des. 2023; komu til framkvæmda skv. fyrirmælum í 39. gr.). L. 4/2024 (tóku gildi 15. febr. 2024). L. 42/2024 (tóku gildi 22. maí 2024). L. 75/2024 (tóku gildi 6. júlí 2024). L. 127/2024 (tóku gildi 1. jan. 2025 nema 44. gr. sem tók gildi 27. nóv. 2024). L. 17/2025 (tóku gildi 30. apríl 2025). L. 56/2025 (tóku gildi 1. jan. 2026 nema e-liður 1. tölul. 24. gr. og brbákv. I sem tóku gildi 29. júlí 2025).

Ef í lögum þessum er getið um ráðherra eða ráðuneyti án þess að málefnasvið sé tilgreint sérstaklega eða til þess vísað, er átt við innviðaráðherra eða innviðaráðuneyti sem fer með lög þessi. Upplýsingar um málefnasvið ráðuneyta skv. forsetaúrskurði.

I. kafli. Almenn ákvæði.
1. gr.
Tekjustofnar sveitarfélaga eru þessir:
   a. Fasteignaskattur.
   b. […1)]2)
   c. Útsvör.
Fer um tekjustofna þessa samkvæmt því er lög þessi ákveða.
   1)L. 56/2025, 24. gr. 2)L. 157/2019, 1. gr.
2. gr.
Auk tekna skv. 1. gr. hafa sveitarfélög tekjur af eignum sínum, eigin atvinnurekstri og stofnunum sem reknar eru í almenningsþágu, svo sem vatnsveitum, rafmagnsveitum, hitaveitum o.fl., enn fremur ýmsar aðrar tekjur, svo sem af holræsagjaldi, lóðarleigu, leyfisgjöldum, [úthlutuðum framlögum úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga]1) o.fl., allt eftir því sem lög og reglugerðir mæla fyrir um.
Sveitarstjórn getur ákveðið að gjalddagar vatnsskatts, holræsagjalds og lóðarleigu skuli vera þeir sömu og gjalddagar fasteignaskatts og jafnframt að innheimtu þeirra verði hagað á sama hátt og innheimtu fasteignaskatts, sbr. 4. gr., [og skal [Húsnæðis- og mannvirkjastofnun]2) gera nauðsynlegar breytingar á [fasteignaskrá]3) í þessu skyni].4)
   1)L. 56/2025, 24. gr. 2)L. 36/2022, 15. gr. 3)L. 83/2008, 24. gr. 4)L. 140/2005, 1. gr.

II. kafli. Um fasteignaskatt.
3. gr.
[Leggja skal árlega fasteignaskatt á allar fasteignir sem metnar eru í fasteignamati 31. desember á næstliðnu ári samkvæmt [fasteignaskrá],1) sbr. þó 4. mgr. 4. gr. og 5. gr.
Stofn til álagningar fasteignaskatts á allar fasteignir skal vera fasteignamat þeirra.
Sveitarstjórn ákveður fyrir lok árs skatthlutfall næsta árs innan þeirra marka sem greinir í a- og c-lið. Skatthlutfall skal vera sem hér segir:
   a. Allt að 0,5% af fasteignamati:
   Íbúðir og íbúðarhús ásamt lóðarréttindum, erfðafestulönd í dreifbýli og jarðeignir, útihús og mannvirki á bújörðum sem tengd eru landbúnaði, [hesthús],2) öll hlunnindi og sumarbústaðir ásamt lóðarréttindum.
   b. 1,32% af fasteignamati ásamt lóðarréttindum:
   Sjúkrastofnanir samkvæmt lögum um heilbrigðisþjónustu, skólar, heimavistir, leikskólar, íþróttahús og bókasöfn.
   c. Allt að 1,32% af fasteignamati, ásamt lóðarréttindum:
   Allar aðrar fasteignir, svo sem iðnaðar-, skrifstofu- og verslunarhúsnæði, fiskeldismannvirki, veiðihús og mannvirki sem nýtt eru fyrir ferðaþjónustu.
Heimilt er sveitarstjórn að hækka um allt að 25% hundraðshluta þá sem tilgreindir eru í a- og c-liðum 3. mgr. þessarar greinar, öðrum eða báðum stafliðum.
Í sveitarfélagi þar sem bæði er þéttbýli og dreifbýli er sveitarstjórn heimilt að undanþiggja fasteignir í dreifbýli og sumarhús álagi á fasteignaskatt skv. 4. mgr.]3)
   1)L. 83/2008, 24. gr. 2)L. 56/2012, 1. gr., sbr. einnig brbákv. í s.l. 3)L. 140/2005, 2. gr.
4. gr.
[[Sveitarstjórn annast álagningu fasteignaskatts. Skal hún fara fram í fasteignaskrá og er sveitarstjórn heimilt að senda tilkynningu þess efnis rafrænt.]1) Innheimtu skattsins getur sveitarstjórn falið sérstökum innheimtuaðila. Ráðherra getur sett nánari ákvæði í reglugerð um framkvæmd álagningar.
Eigandi greiðir skattinn nema um leigujarðir, leigulóðir eða önnur samningsbundin jarðarafnot sé að ræða. Þá greiðist skatturinn af ábúanda eða notanda.
Verði ágreiningur um gjaldstofn skv. 3. gr. skal vísa honum til úrskurðar [Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar].2) Þeim úrskurði má skjóta til yfirfasteignamatsnefndar. Verði ágreiningur um gjaldskyldu sker yfirfasteignamatsnefnd úr. Úrskurðum nefndarinnar má skjóta til dómstóla.
Sveitarstjórn ákveður fjölda gjalddaga fasteignaskatts fyrir upphaf árs en heimilt er sveitarstjórn að ákveða að skatturinn greiðist allur á einum gjalddaga ef álagning er undir tiltekinni fjárhæð. Fasteignaskattur leggst á nýjar lóðir og ný mannvirki í hlutfalli við ársálagningu frá næstu mánaðamótum eftir að þau eru skráð og metin í [fasteignaskrá]3) í samræmi við upplýsingar sem [Húsnæðis- og mannvirkjastofnun]2) lætur sveitarstjórnum í té. Fasteignaskattur fellur niður næstu mánaðamót eftir að mannvirki er afskráð í [fasteignaskrá].3)
Eindagi fasteignaskatts er þrjátíu dögum eftir gjalddaga og fellur allur skattur ársins í gjalddaga ef vanskil verða.]4)
   1)L. 132/2018, 6. gr. 2)L. 36/2022, 15. gr. 3)L. 83/2008, 24. gr. 4)L. 140/2005, 3. gr.
5. gr.
[Undanþegnar fasteignaskatti eru eftirtaldar fasteignir ásamt lóðarréttindum:
   a. kirkjur og bænahús íslensku þjóðkirkjunnar og annarra trúfélaga [og samkomuhús skráðra lífsskoðunarfélaga]1) sem hlotið hafa skráningu [þess ráðuneytis er fer með málefni þjóðkirkjunnar];2)
   b. safnahús, að því leyti sem þau eru ekki rekin í ágóðaskyni;
   c. hús erlendra ríkja, að svo miklu leyti sem þau eru notuð af sendimönnum þeirra í milliríkjaerindum, og hús alþjóðastofnana, eftir því sem kveðið er á um í alþjóðasamningum sem Ísland er aðili að og öðlast hafa stjórnskipulegt gildi hér á landi.
Sveitarstjórn er heimilt að veita styrki til greiðslu fasteignaskatts af fasteignum þar sem fram fer starfsemi sem ekki er rekin í ágóðaskyni, svo sem menningar-, íþrótta-, æskulýðs- og tómstundastarfsemi og mannúðarstörf. Skylt er sveitarstjórn að setja reglur um beitingu þessa ákvæðis.
Nú eru hús þau sem um ræðir í 1. og 2. mgr. jafnframt notuð til annars en að framan greinir, svo sem til veitinga- eða verslunarreksturs eða til íbúðar fyrir aðra en húsverði, og ber sveitarstjórn þá að leggja á og innheimta fasteignaskatt í réttu hlutfalli við slík afnot.
Heimilt er sveitarstjórn að lækka eða fella niður fasteignaskatt sem tekjulitlum elli- og örorkulífeyrisþegum er gert að greiða. Skylt er sveitarstjórn að setja reglur um beitingu þessa ákvæðis, svo sem um tekjumörk, tekjuflokka og hvort lækkun er í formi fastrar krónutölu eða hlutfalls af fasteignaskatti.
Heimilt er sveitarstjórn að lækka eða fella niður fasteignaskatt af bújörðum á meðan þær eru nýttar til búskapar og af útihúsum í sveitum ef þau eru einungis nýtt að hluta eða standa ónotuð. Skylt er sveitarstjórn að setja reglur um beitingu þessa ákvæðis.]3)
   1)L. 6/2013, 14. gr. 2)L. 126/2011, 206. gr. 3)L. 140/2005, 4. gr.
6. gr.
[Ef afnotum fasteignar, sem metin er sem ein heild, er á þann veg háttað að greiða ber fasteignaskatt af henni samkvæmt fleiri en einum gjaldflokki, sbr. 3. mgr. 3. gr. laganna, ákveður byggingarfulltrúi hlutfallslega skiptingu milli gjaldflokka.]1)
   1)L. 140/2005, 5. gr.
7. gr.
Fasteignaskattinum fylgir lögveð í fasteign þeirri, sem hann er lagður á, og skal ásamt dráttarvöxtum í tvö ár frá gjalddaga ganga fyrir öllum öðrum veðkröfum er á eigninni hvíla. Ef hús brennur eftir að skatturinn er fallinn í gjalddaga er sami forgangsréttur fyrir honum í brunabótafjárhæð hússins.

III. kafli. 1)
   1)L. 56/2025, 24. gr.

IV. kafli. Um útsvör.
19. gr.
Þeir menn, sem skattskyldir eru samkvæmt ákvæðum I. kafla [laga90/2003, um tekjuskatt],1) skulu greiða útsvar af tekjum sínum til sveitarfélags eftir því sem nánar er kveðið á um í lögum þessum.
   1)L. 129/2004, 104. gr.
20. gr.
Hver maður, útsvarsskyldur samkvæmt lögum þessum, skal greiða útsvar í einu sveitarfélagi og fellur það óskipt til þess.
Þeir menn, sem um ræðir í 1. gr., sbr. 5. og 6. gr., [laga90/2003, um tekjuskatt],1) skulu greiða útsvar til þess sveitarfélags þar sem þeir áttu lögheimili …2) á tekjuárinu. [Hafi einstaklingur átt lögheimili í fleiri en einu sveitarfélagi á tekjuárinu skal leggja á hann útsvar sem skiptist hlutfallslega eftir búsetutíma og skal útsvarshlutfall fyrir hvert búsetutímabil fara eftir því sem viðkomandi sveitarstjórn ákveður skv. 1. mgr. 24. gr. og ef við á 6. mgr. 24. gr.]2)
Þeir menn, sem um ræðir í 3. gr. [laga90/2003, um tekjuskatt],1) skulu greiða útsvar til þess sveitarfélags þar sem þeir öfluðu mestra tekna sinna á tekjuárinu.
   1)L. 129/2004, 105. gr. 2)L. 165/2010, 32. gr.
21. gr.
Stofn til álagningar útsvars skal vera hinn sami og tekjuskattsstofn, sbr. [1. og 3. tölul. 61. gr. laga90/2003, um tekjuskatt].1)
Ákvæði [61.–64. gr. laga90/2003, um tekjuskatt],1) skulu gilda um ákvörðun útsvarsstofns eftir því sem við getur átt.
Lækki [ríkisskattstjóri]2) tekjuskattsstofn skv. [65. gr. laga90/2003, um tekjuskatt],1) skal útsvarsstofn lækka um sömu fjárhæð.
   1)L. 129/2004, 106. gr. 2)L. 136/2009, 79. gr.
22. gr.
[Ríkisskattstjóri]1) annast álagningu útsvars.
Ákvæði VIII.–XIV. kafla [laga90/2003, um tekjuskatt],2) [og laga um innheimtu opinberra skatta og gjalda]3) gilda um útsvar eftir því sem við á nema öðruvísi sé ákveðið í lögum þessum.
   1)L. 136/2009, 79. gr. 2)L. 129/2004, 107. gr. 3)L. 150/2019, 22. gr.
23. gr.
Útsvar skal vera ákveðinn hundraðshluti af tekjum hvers almanaksárs, en má þó eigi vera hærra en [14,97%]1) og eigi lægra en [12,44%]2) af útsvarsstofni og skal sami hundraðshluti lagður á tekjur allra manna í hverju sveitarfélagi.
Útsvar af þeim tekjum barna, sem um ræðir í [2. og 3. mgr. 64. gr. laga90/2003, um tekjuskatt],3) skal vera 2% af tekjum umfram það lágmark sem tilgreint er í 2. mgr. 67. gr. sömu laga.
   1)L. 100/2023, 37. gr. 2)L. 165/2010, 33. gr. 3)L. 129/2004, 108. gr.
24. gr.
Sveitarstjórn skal ákveða fyrir 1. desember ár hvert hvaða hundraðshluti verði lagður á tekjur manna á næsta ári, sbr. 1. mgr. 23. gr. þessara laga, svo og 1. mgr. 9. gr. laga um staðgreiðslu opinberra gjalda.
Ákvörðun sveitarstjórnar skal tilkynna [því ráðuneyti er fer með tekjuöflun ríkisins]1) eigi síðar en 15. desember á sama ári.
Skil á staðgreiðslufé til sveitarfélagsins skulu vera sami hundraðshluti og álagningarhlutfallið skv. 1. mgr.
Sá hundraðshluti, sem sveitarstjórn hefur ákveðið, skal notaður við gerð fjárhagsáætlunar næsta árs og vera endanlegt álagningarhlutfall útsvars í sveitarfélaginu, sbr. þó 5. og 6. mgr.
Nú kemur í ljós að tekjur sveitarsjóðs hrökkva ekki fyrir útgjöldum og er þá sveitarstjórn heimilt að hækka útsvar frá því er ákveðið var skv. 1. mgr. um allt að 10%. Á sama hátt getur sveitarstjórn lækkað útsvar um allt að 10%.
Ef sveitarfélag kemst í fjárþröng er sveitarstjórn heimilt að leggja sérstakt álag á útsvör ársins, sbr. 90. gr. sveitarstjórnarlaga.
Tilkynning um breytingar á útsvari, sbr. 5. og 6. mgr., skal senda [ríkisskattstjóra]2) eigi síðar en 31. mars á álagningarári.
   1)L. 126/2011, 206. gr. 2)L. 136/2009, 80. gr.
25. gr.
Sveitarstjórn er heimilt að taka til greina umsókn manna um lækkun eða niðurfellingu álagðs útsvars þegar svo stendur á sem segir í [1. mgr. 65. gr. laga90/2003, um tekjuskatt],1) telji hún ástæðu til að veita frekari lækkun en [ríkisskattstjóri]2) veitti við afgreiðslu á umsókn um lækkun útsvarsstofns. Á sama hátt getur sveitarstjórn lækkað eða fellt niður álagt útsvar þeirra sem nutu bóta [skv. [III. og IV. kafla laga um almannatryggingar]3) og lögum um slysatryggingar almannatrygginga].4)
[Ríkisskattstjóri]2) skal veita sveitarstjórn aðgang að skattframtölum hlutaðeigandi einstaklinga, svo og veita henni þær upplýsingar sem nauðsynlegar teljast. Sveitarstjórn skal tilkynna lækkun útsvars til [ríkisskattstjóra],2) innheimtuaðila og hlutaðeigandi einstaklings.
Þeim sem sveitarstjórn felur að annast störf þessi er bannað, að viðlagðri ábyrgð eftir ákvæðum almennra hegningarlaga um brot í opinberu starfi, að skýra óviðkomandi mönnum frá því er þeir komast að í störfum sínum og varðar hagi skattaðila.
   1)L. 129/2004, 109. gr. 2)L. 136/2009, 79. gr. 3)L. 18/2023, 23. gr. 4)L. 88/2015, 25. gr.
26. gr.
[Ríkisskattstjóri semur skrá um álagt útsvar í hverju sveitarfélagi að lokinni álagningu.]1) Ríkisskattstjóri gerir síðan innheimtuskrá og sendir hana til sveitarstjórnar og innheimtuaðila, sbr. nánar ákvæði VIII. kafla laga um staðgreiðslu opinberra gjalda.
   1)L. 136/2009, 81. gr.
27. gr.
Sveitarstjórn getur falið sérstökum innheimtuaðila að annast innheimtu útsvara. Réttindi og skyldur sem innheimtumenn sveitarsjóða hafa lögum samkvæmt, svo og allar heimildir sem þeim eru veittar til þess að framfylgja innheimtunni, skulu falla til þessara aðila.
Hver gjaldandi skal á tekjuárinu inna af hendi bráðabirgðagreiðslu upp í útsvar samkvæmt ákvæðum laga um staðgreiðslu opinberra gjalda.
Þeir gjaldendur, sem reynast skulda útsvar að lokinni álagningu opinberra gjalda, sbr. 98. gr. [laga90/2003, um tekjuskatt],1) skulu greiða það sem vangoldið er á sömu gjalddögum og eftirstöðvar tekjuskatts, sbr. [4. mgr. 112. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt].1)
Ákvæði [1.–3. mgr. 112. gr. laga90/2003, um tekjuskatt],1) um fyrirframgreiðslu tekjuskatts, skulu gilda um þann hluta útsvars sem stafar af öðrum tekjum en launatekjum.
Sé útsvar hækkað eftir álagningu fellur viðbótarfjárhæðin í gjalddaga 10 dögum eftir að gjaldanda var tilkynnt um hækkunina.
Þeim erlendu ríkisborgurum eða ríkisfangslausu mönnum, er fengið hafa dvalar- eða landvistarleyfi hér á landi um tiltekinn tíma, er skylt að gera skil á útsvari sínu á sama tíma og kveðið er á um skil á tekjuskatti, sbr. [7. mgr. 112. gr. laga90/2003, um tekjuskatt].1)
Áfrýjun útsvarsákvörðunar eða deila um útsvarsskyldu frestar hvorki eindaga útsvars né leysir gjaldanda undan álögum sem beitt er vegna vangreiðslu þess. Ef útsvar er lækkað eða fellt niður með úrskurði eða dómi skal endurgreiðsla þegar fara fram.
   1)L. 129/2004, 110. gr.
28. gr.
Útsvör skulu greidd á tekjuári samkvæmt lögum um staðgreiðslu opinberra gjalda eftir því sem við á. Greiðslur á tekjuári eru til bráðabirgða en endanleg álagning fer fram eftir á og getur því komið til endurgreiðslu eða viðbótarkröfu frá sveitarstjórn.
[Ráðuneyti er fer með tekjuöflun ríkisins]1) sér um endurgreiðslu fyrir hönd sveitarfélaga í samræmi við ákvæði laga um staðgreiðslu opinberra gjalda, en gjaldendur skulu greiða viðbótarkröfu frá sveitarstjórn í samræmi við ákvæði 3.–7. mgr. 27. gr. Ákvæði [2. mgr. 122. gr. laga90/2003, um tekjuskatt],2) um verðbætur, skulu eiga við um endurgreiðslur og viðbótarkröfur þær sem hér um ræðir.
Um innheimtu, dráttarvexti og innheimtuúrræði gilda ákvæði þessara laga eftir því sem við getur átt, sbr. og 2. mgr. 37. gr. laga um staðgreiðslu opinberra gjalda.
[Ákvæði 11. gr. laga um innheimtu opinberra skatta og gjalda gildir um launaafdrátt vegna útsvars.]3)
   1)L. 126/2011, 206. gr. 2)L. 129/2004, 111. gr. 3)L. 150/2019, 22. gr.
29. gr.
Gjaldandi, sem ofgreitt hefur útsvar til launagreiðanda, getur krafið hlutaðeigandi sveitarstjórn um það sem ofgreitt kann að vera og skiptir ekki máli hvort launagreiðandi hefur staðið skil á fénu eða ekki.
Sveitarstjórn getur ekki krafið gjaldanda um útsvar er launagreiðandi hefur haldið eftir af launum gjaldandans þó að launagreiðandinn hafi ekki staðið skil á fénu til sveitarstjórnar.
30. gr.
Um ábyrgð á greiðslu útsvars gilda ákvæði [116. gr. laga90/2003, um tekjuskatt].1)
   1)L. 129/2004, 112. gr.
31. gr.
Sveitarstjórnir, sem hlut eiga að máli, hafa sama rétt og gjaldendur til að kæra útsvarsálagningu til [ríkisskattstjóra]1) og áfrýja úrskurðum til yfirskattanefndar.
   1)L. 136/2009, 79. gr.

V. kafli. Ýmis ákvæði.
32. gr.
Séu gjöld samkvæmt lögum þessum eigi greidd innan mánaðar frá gjalddaga skal greiða sveitarstjórn dráttarvexti af því sem gjaldfallið er. Með gjalddaga í þessu sambandi er átt við reglulega gjalddaga skv. 4. mgr. 4. gr. og 3. og 5. mgr. 27. gr., en gjaldfelling vegna vangreiðslu á hluta skv. 5. mgr. 4. gr. og 4. mgr. 27. gr. hefur ekki áhrif á dráttarvaxtaútreikning. Um dráttarvexti gilda ákvæði III. kafla vaxtalaga,25/1987.
Nú verður ljóst þegar álagningu sveitarsjóðsgjalda lýkur eða við endurákvörðun þeirra að gjaldandi hefur greitt meira en endanlegu álögðu gjaldi nemur og skal þá endurgreiða það sem ofgreitt var ásamt vöxtum fyrir það tímabil sem féð var í vörslu sveitarstjórnar. [Skulu vextir þessir vera jafnháir hæstu vöxtum óbundinna sparireikninga á hverjum tíma.]1)
   1)L. 148/1995, 6. gr.
33. gr.
Gjöld samkvæmt lögum þessum, svo og dráttarvexti, má taka lögtaki.
34. gr.
Ríkisstjórninni er heimilt að gera samninga við stjórnir annarra ríkja um gagnkvæmar ívilnanir á útsvörum þeirra erlendra og íslenskra aðila sem eftir gildandi útsvarslögum ríkjanna eiga að greiða útsvar af sömu tekjum bæði á Íslandi og í einhverju öðru ríki.
Nú er eigi fyrir hendi samningur við annað ríki um að komast hjá tvísköttun á tekjur skv. 1. mgr. og einstaklingur, sem útsvarsskyldur er hér á landi skv. 19. gr., greiðir til opinberra aðila í öðru ríki útsvar af tekjum sínum sem útsvarsskyldar eru hér á landi og er þá ríkisskattstjóra heimilt, samkvæmt umsókn hlutaðeigandi einstaklings …,1) að lækka útsvar hans hér á landi með hliðsjón af þessum útsvarsgreiðslum hans.
   1)L. 136/2009, 82. gr.
35. gr.
Ráðherra er heimilt að setja með reglugerð nánari ákvæði um framkvæmd laga þessara.1)
   1)Rg. 542/1989, sbr. 395/1990. Rg. 1160/2005 (um fasteignaskatt).

Ákvæði til bráðabirgða.
I.1)
   1)L. 157/2019, 8. gr.
[II. …]1)
   1)L. 79/1996, 7. gr.
[III. …]1)
   1)L. 79/1996, 7. gr., sbr. l. 122/1996, 5. gr.
[IV.1)]2)
   1)L. 157/2019, 8. gr. 2)L. 79/1996, 7. gr.
[V.–VI.1)]2)
   1)L. 157/2019, 8. gr. 2)L. 144/2000, 7. gr.
[VII.1)]2)
   1)L. 157/2019, 8. gr. 2)L. 167/2002, 2. gr.
[VIII.1)]2)
   1)L. 157/2019, 8. gr. 2)L. 140/2005, 7. gr.
[IX.1)]2)
   1)L. 157/2019, 8. gr. 2)L. 173/2008, 4. gr.
[X.1)]2)
   1)L. 157/2019, 8. gr. 2)L. 6/2009, 1. gr.
[XI.–XIV.1)]2)
   1)L. 157/2019, 8. gr. 2)L. 165/2010, 34. gr.
[XV.1)]2)
   1)L. 56/2025, 24. gr. 2)L. 180/2011, 5. gr.
[XVI.1)]2)
   1)L. 157/2019, 8. gr. 2)L. 139/2013, 26. gr.
[XVII.1)]2)
   1)L. 157/2019, 8. gr. 2)L. 135/2014, 2. gr.
[XVIII.1)]2)
   1)L. 157/2019, 8. gr. 2)L. 43/2017, 1. gr.
[XIX.1)]2)
   1)L. 56/2025, 24. gr. 2)L. 157/2019, 10. gr.
[XX.1)]2)
   1)L. 56/2025, 24. gr. 2)L. 25/2020, 14. gr.
[XXI.1)]2)
   1)L. 56/2025, 24. gr. 2)L. 37/2020, 6. gr.
[XXII.
Þrátt fyrir ákvæði 7. gr. fylgir fasteignaskatti skv. c-lið 3. mgr. 3. gr., vegna áranna 2020–2022, lögveð í fasteign þeirri sem hann er lagður á, ásamt dráttarvöxtum í fjögur ár frá gjalddaga, sem skal ganga fyrir öllum öðrum veðkröfum er á eigninni hvíla.]1)
   1)L. 22/2021, 3. gr.
[XXIII.1)]2)
   1)L. 56/2025, 24. gr. 2)L. 22/2021, 3. gr.
[XXIV.1)]2)
   1)L. 56/2025, 24. gr. 2)L. 96/2021, 10. gr.
[XXV.1)]2)
   1)L. 56/2025, 24. gr. 2)L. 86/2021, 27. gr.
[XXVI.1)]2)
   1)L. 56/2025, 24. gr. 2)L. 84/2022, 1. gr.
[XXVII.1)]2)
   1)L. 56/2025, 24. gr. 2)L. 129/2022, 67. gr.
[XXVIII.1)]2)
   1)L. 56/2025, 24. gr. 2)L. 100/2023, 38. gr.
[XXIX.
Þrátt fyrir 3. gr. er bæjarstjórn Grindavíkurbæjar heimilt að falla frá álagningu fasteignaskatts, í heild eða að hluta, á árinu [2025]1) vegna óvissu af völdum náttúruhamfara sem ógna öryggi íbúa sveitarfélagsins. Bæjarstjórn Grindavíkurbæjar er jafnframt heimilt að gera greinarmun á fasteignum þegar fasteignaskattur er felldur niður í heild eða að hluta á grundvelli eftirfarandi atriða:
   1. Í hvaða flokk fasteignir falla skv. 3. mgr. 3. gr.
   2. Staðsetningar fasteigna í þéttbýli eða dreifbýli.
   3. Staðsetningar fasteigna á hættusvæðum sem skilgreind eru af Veðurstofu Íslands.]2)
   1)L. 17/2025, 1. gr. 2)L. 4/2024, 1. gr.
[XXX.
Þrátt fyrir 4. mgr. 4. gr. er bæjarstjórn Grindavíkurbæjar heimilt að fresta hverjum gjalddaga fasteignaskatts sveitarfélagsins á árinu [2025]1) um sex mánuði.]2)
   1)L. 17/2025, 1. gr. 2)L. 4/2024, 1. gr.
[XXXI.
Þrátt fyrir 7. gr. fylgir fasteignaskatti í Grindavíkurbæ á [árunum 2024 og 2025]1) lögveð í fasteign þeirri sem hann er lagður á, ásamt dráttarvöxtum í fjögur ár frá gjalddaga, sem skal ganga fyrir öllum öðrum veðkröfum er á eigninni hvíla.]2)
   1)L. 17/2025, 2. gr. 2)L. 4/2024, 1. gr.
[XXXII.1)]2)
   1)L. 56/2025, 24. gr. 2)L. 4/2024, 1. gr.
[XXXIII.1)]2)
   1)L. 56/2025, 24. gr. 2)L. 4/2024, 1. gr.
[XXXIV.
Við tekjur Jöfnunarsjóðs skv. 8. gr. a á árunum 2024–2027 bætist árlegt framlag úr ríkissjóði sem Jöfnunarsjóður úthlutar til þeirra sveitarfélaga sem bjóða öllum nemendum upp á gjaldfrjálsar skólamáltíðir í grunnskólum.
Framlag skv. 1. mgr. skal skiptast hlutfallslega á milli sveitarfélaga eftir heildarnemendafjölda í grunnskólum í hverju sveitarfélagi 1. janúar skólaárið á undan og greiðist mánaðarlega til sveitarfélaga frá 1. ágúst 2024 til loka árs 2027, að undanskildum júlímánuði ár hvert. Ef ekki kemur til úthlutunar til sveitarfélags á grundvelli ákvæðisins skal reiknað framlag Jöfnunarsjóðs til viðkomandi sveitarfélags endurgreitt ríkissjóði.
Ákveði sveitarfélag að taka gjald fyrir skólamáltíðir á grundvelli 23. gr. laga um grunnskóla,91/2008, eftir að Jöfnunarsjóður hefur úthlutað framlagi til þess á grundvelli 1. og 2. mgr., skal sveitarfélagið endurgreiða Jöfnunarsjóði úthlutað framlag til þess fyrir það tímabil sem sveitarfélagið hefur tekið gjald fyrir skólamáltíðir, og skal fjárhæðin renna í ríkissjóð. Sama á við ef sjálfstætt rekinn grunnskóli, sem gert hefur þjónustusamning við sveitarfélag á grundvelli 43. gr. a laga um grunnskóla, ákveður að taka gjald fyrir skólamáltíðir.
Jöfnunarsjóði er heimilt að halda eftir öðrum framlögum sjóðsins til sveitarfélags hafi sveitarfélagið fengið ofgreitt framlag, sbr. 3. mgr.
Ráðherra skal skipa starfshóp skipaðan einum fulltrúa ráðherra sem fer með sveitarstjórnarmál, sem jafnframt er formaður, einum fulltrúa ráðherra sem fer með málefni grunnskóla og tveimur fulltrúum Sambands íslenskra sveitarfélaga sem skal leggja mat á nýtingu og áhrif framlags skv. 1. mgr. Meðal annars skal meta áhrif á markmið um að auka jöfnuð og draga úr fátækt meðal barna, hvort allir árgangar nýti sér gjaldfrjálsar skólamáltíðir og hver sé ávinningur einstakra sveitarfélaga og landshluta. Þá skal meta reynslu og ánægju nemenda og foreldra. Niðurstaða hópsins skal liggja fyrir eigi síðar en 30. júní 2025.]1)
   1)L. 75/2024, 1. gr.
[XXXV.
Þrátt fyrir d-lið 11. gr. skal fasteignaskattsframlag til Grindavíkurbæjar á árinu 2025 miðað við að sveitarfélagið fái 1,37% af því heildarfjármagni sem kemur til úthlutunar til sveitarfélaga á árinu 2025 á grundvelli ákvæðisins.]1)
   1)L. 56/2025, 24. gr.

[Viðauki. 1)]2)
   1)L. 56/2025, 24. gr. 2)L. 157/2019, 11. gr.