Lagasafn.  Íslensk lög 12. apríl 2024.  Útgáfa 154b.  Prenta í tveimur dálkum.


Lög um fjármálafyrirtæki

2002 nr. 161 20. desember


Ferill málsins á Alþingi.   Frumvarp til laga.

Tóku gildi 1. janúar 2003. EES-samningurinn: IX. viðauki tilskipun 85/611/EBE, 86/635/EBE, 93/22/EBE, 95/26/EB, 2000/12/EB og 2000/43/EB. Breytt með: L. 4/2004 (tóku gildi 6. febr. 2004). L. 129/2004 (tóku gildi 31. des. 2005). L. 130/2004 (tóku gildi 1. jan. 2005, sjá nánar um lagaskil í 21. gr.; EES-samningurinn: IX. viðauki tilskipun 2002/87/EB og 2001/24/EB). L. 67/2006 (tóku gildi 24. júní 2006). L. 108/2006 (tóku gildi 1. nóv. 2006 skv. augl. C 1/2006). L. 170/2006 (tóku gildi 1. jan. 2007). L. 55/2007 (tóku gildi 3. apríl 2007). L. 111/2007 (tóku gildi 1. nóv. 2007; EES-samningurinn: IX. viðauki tilskipun 2004/39/EB). L. 144/2007 (tóku gildi 29. des. 2007). L. 88/2008 (tóku gildi 1. jan. 2009 nema brbákv. VII sem tók gildi 21. júní 2008). L. 96/2008 (tóku gildi 24. júní 2008). L. 125/2008 (tóku gildi 7. okt. 2008). L. 129/2008 (tóku gildi 15. nóv. 2008). L. 44/2009 (tóku gildi 22. apríl 2009). L. 61/2009 (tóku gildi 31. maí 2009). L. 74/2009 (tóku gildi 14. júlí 2009). L. 76/2009 (tóku gildi 16. júlí 2009). L. 98/2009 (tóku gildi 1. okt. 2009 nema 69. og 70. gr. sem tóku gildi 1. jan. 2010). L. 125/2009 (tóku gildi 30. des. 2009). L. 65/2010 (tóku gildi 27. júní 2010). L. 75/2010 (tóku gildi 26. júní 2010 nema 2. mgr. 8. gr., 10. gr. og 13. gr. sem tóku gildi 1. jan. 2011, 3. mgr. 39. gr. sem tók gildi 1. júlí 2011 og 4. mgr. 39. gr. sem tók gildi skv. fyrirmælum í 5. tölul. í brbákv. II). L. 127/2010 (tóku gildi 12. okt. 2010). L. 132/2010 (tóku gildi 17. nóv. 2010). L. 162/2010 (tóku gildi 1. jan. 2011). L. 32/2011 (tóku gildi 14. apríl 2011). L. 78/2011 (tóku gildi 29. júní 2011). L. 119/2011 (tóku gildi 29. sept. 2011). L. 120/2011 (tóku gildi 1. des. 2011; EES-samningurinn: IX. viðauki tilskipun 2007/64/EB). L. 126/2011 (tóku gildi 30. sept. 2011). L. 146/2011 (tóku gildi 26. okt. 2011). L. 72/2012 (tóku gildi 4. júlí 2012 nema 7. gr. sem tók gildi 15. júlí 2012). L. 77/2012 (tóku gildi 5. júlí 2012). L. 17/2013 (tóku gildi 1. apríl 2013; EES-samningurinn: IX. viðauki tilskipun 2009/110/EB). L. 47/2013 (tóku gildi 11. apríl 2013). L. 29/2014 (tóku gildi 8. apríl 2014). L. 57/2015 (tóku gildi 17. júlí 2015; komu til framkvæmda skv. fyrirmælum í 44. gr.). L. 58/2015 (tóku gildi 17. júlí 2015). L. 59/2015 (tóku gildi 17. júlí 2015). L. 107/2015 (tóku gildi 6. nóv. 2015; komu til framkvæmda skv. fyrirmælum í 6. gr.). L. 116/2015 (tóku gildi 19. des. 2015). L. 34/2016 (tóku gildi 19. maí 2016). L. 96/2016 (tóku gildi 21. sept. 2016). L. 23/2017 (tóku gildi 23. maí 2017). L. 61/2017 (tóku gildi 21. júní 2017). L. 94/2017 (tóku gildi 31. des. 2017). L. 34/2018 (tóku gildi 17. maí 2018). L. 54/2018 (tóku gildi 22. júní 2018). L. 90/2018 (tóku gildi 15. júlí 2018; EES-samningurinn: XI. viðauki reglugerð 2016/679). L. 8/2019 (tóku gildi 22. febr. 2019 nema 3. gr. og a-liður 6. gr. sem tóku gildi 1. jan. 2020). L. 91/2019 (tóku gildi 1. jan. 2020 nema 133. gr. sem tók gildi 16. júlí 2019). L. 94/2019 (tóku gildi 1. jan. 2020 nema 46. gr. sem tekur gildi skv. fyrirmælum í 55. gr.; EES-samningurinn: XXII. viðauki tilskipun 2014/56/ESB, reglugerð 537/2014). L. 121/2019 (tóku gildi 24. okt. 2019 nema 3. gr. og 1.–3. tölul. 5. gr. sem tóku gildi 1. febr. 2020, sbr. augl. A 6/2020, og 4., 5. og 7. tölul. 5. gr. sem tóku ekki gildi; komu til framkvæmda skv. fyrirmælum í 4. gr.). L. 137/2019 (tóku gildi 31. des. 2019). L. 45/2020 (tóku gildi 4. júní 2020; EES-samningurinn: IX. viðauki tilskipun 2011/61/ESB, 2013/14/ESB). L. 70/2020 (tóku gildi 1. sept. 2020). L. 11/2021 (tóku gildi 1. jan. 2022). L. 19/2021 (tóku gildi 1. sept. 2021). L. 38/2021 (tóku gildi 21. maí 2021; EES-samningurinn: XXII. viðauki tilskipun 2014/59/ESB, IX. viðauki tilskipun 2017/2399). L. 44/2021 (tóku gildi 5. júní 2021 nema 1.–4. gr. sem tóku gildi 28. júní 2021). L. 82/2021 (tóku gildi 7. júlí 2021; EES-samningurinn: IX. viðauki reglugerð 2017/2358, 2017/2359). L. 115/2021 (tóku gildi 1. sept. 2021 nema 39. gr. sem tók gildi 1. nóv. 2021 og 5. mgr. 48. gr. sem tók gildi 28. febr. 2023; um lagaskil sjá 147. gr.; EES-samningurinn: IX. viðauki tilskipun 2014/65/ESB, 2016/1034, reglugerð 600/2014, 2016/1033, 2017/565, 2017/567). L. 116/2021 (tóku gildi 1. sept. 2021; um lagaskil sjá 136. gr.; EES-samningurinn: IX. viðauki tilskipun 2007/16/EB, 2009/65/EB, 2013/14/ESB, 2014/91/ESB, 2010/78/ESB). L. 38/2022 (tóku gildi 1. júlí 2022 nema 76. gr., a-liður 82. gr., d-liður 177. gr., d-liður 206. gr. og 65. gr. sem tóku gildi skv. fyrirmælum í 215. gr. EES-samningurinn: IX. viðauki reglugerð 575/2013, 2015/62, 2016/1014, 2017/2188, 2017/2395, 2019/630, 2019/876, 2020/873). L. 50/2022 (tóku gildi 8. júlí 2022; EES-samningurinn: IX. viðauki reglugerð 2017/2294, 2019/1011, 2021/527, 2019/2115, 2018/1717, tilskipun 2014/51/ESB, XXII. viðauki tilskipun 2004/25/EB). L. 80/2022 (tóku gildi 14. júlí 2022 nema b-liður 2. mgr. 170. gr., b-liður 1. mgr. 171. gr. hvað varðar samevrópska u-rýmisþjónustu og c-liður 1. mgr. 171. gr. sem tóku gildi 26. jan. 2023 og d-liður 258. gr. sem tók gildi 1. jan. 2023; EES-samningurinn: XIII. viðauki reglugerð 2027/97, 889/2002, tilskipun 2000/79/EB, 2009/12/EB). L. 7/2023 (tóku gildi 1. mars 2023; EES-samningurinn: tilskipun 2019/2162, reglugerð 2019/2160, 2021/424). L. 10/2023 (tóku gildi 29. mars 2023). L. 63/2023 (tóku gildi 8. júlí 2023; EES-samningurinn: IX. viðauki tilskipun 2019/879).

Ef í lögum þessum er getið um ráðherra eða ráðuneyti án þess að málefnasvið sé tilgreint sérstaklega eða til þess vísað, er átt við fjármála- og efnahagsráðherra eða fjármála- og efnahagsráðuneyti sem fer með lög þessi. Upplýsingar um málefnasvið ráðuneyta skv. forsetaúrskurði er að finna hér.

I. kafli. [Almenn ákvæði.]1)
   1)L. 38/2022, 5. gr.
1. gr. [Markmið.]1)
[Tilgangur laga þessara er að tryggja að fjármálafyrirtæki séu rekin á heilbrigðan og eðlilegan hátt með hagsmuni viðskiptavina, hluthafa, stofnfjáreigenda og alls þjóðarbúsins að leiðarljósi.]2)
1)
   1)L. 38/2022, 1. gr. 2)L. 75/2010, 1. gr.
[1. gr. a. Gildissvið.
Lög þessi gilda um innlend fjármálafyrirtæki, eignarhaldsfélög á fjármálasviði, blönduð eignarhaldsfélög í fjármálastarfsemi og blönduð eignarhaldsfélög og um starfsemi erlendra fjármálafyrirtækja, eignarhaldsfélaga á fjármálasviði, blandaðra eignarhaldsfélaga í fjármálastarfsemi og blandaðra eignarhaldsfélaga hér á landi. Ákvæði laganna sem eiga við um verðbréfafyrirtæki gilda einnig um staðbundin fyrirtæki og fyrirtæki skv. 8. mgr. 14. gr. a. Ákvæði 18. gr., C-hluta VII. kafla, A-hluta XII. kafla, 104. og 105. gr. laga þessara og reglugerðar (ESB) nr. 575/2013 gilda þó ekki um fyrirtæki skv. 2. málsl. nema annað sé tekið fram.
Lögin gilda ekki um seðlabanka, póstgíróstofnanir eða þá aðila sem taldir eru upp í 4.–24. tölul. 5. mgr. 2. gr. tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 2013/36/ESB. Þó skal beita ákvæðum laga þessara um starfsemi þvert á landamæri innan Evrópska efnahagssvæðisins og samstæðueftirlit um póstgíróstofnanir og þá aðila sem taldir eru upp í 4.–24. tölul. 5. mgr. 2. gr. tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 2013/36/ESB líkt og þeir væru fjármálastofnanir. Málsgrein þessi gildir ekki um Byggðastofnun og Lánasjóð sveitarfélaga ohf.]1)
   1)L. 38/2022, 2. gr.
[[1. gr. b.]1) Orðskýringar.
[Í lögum þessum merkir:
   [1. Fjármálafyrirtæki: Lánastofnun eða verðbréfafyrirtæki.
   2. Lánastofnun: Fyrirtæki sem starfar við að taka á móti innlánum eða öðrum endurgreiðanlegum fjármunum frá almenningi og veita lán fyrir eigin reikning.
   3. Verðbréfafyrirtæki: Verðbréfafyrirtæki samkvæmt lögum um markaði fyrir fjármálagerninga, að frátöldum lánastofnunum, staðbundnum fyrirtækjum og fyrirtækjum skv. 8. mgr. 14. gr. a.
   4. Staðbundið fyrirtæki: Fyrirtæki sem stundar viðskipti fyrir eigin reikning á mörkuðum fyrir staðlaða framvirka samninga, valrétti eða aðrar afleiður og á lausafjármörkuðum, eingöngu í þeim tilgangi að verja stöður á afleiðumörkuðum, eða það stundar viðskipti fyrir reikning annarra sem eiga aðild að sömu mörkuðum og þar sem gert er ráð fyrir að uppgjörsaðilar ábyrgist að staðið verði við samninga sem slíkt fyrirtæki gerir.]1)
   5. [Fjármálasamsteypa: Fjármálasamsteypa samkvæmt lögum um viðbótareftirlit með fjármálasamsteypum.]2)
   6. Framkvæmdastjóri: Einstaklingur sem stjórn fjármálafyrirtækis ræður til þess að standa fyrir rekstri þess í samræmi við ákvæði laga um hlutafélög eða laga þessara, burt séð frá starfsheiti að öðru leyti.
   7. [Lykilstarfsmaður: Starfsmaður fjármálafyrirtækis, annar en framkvæmdastjóri, sem stöðu sinnar vegna getur haft veruleg áhrif á stefnu fyrirtækisins.]1)
   8. Kaupauki: Starfskjör starfsmanns fjármálafyrirtækis sem að jafnaði eru skilgreind með tilliti til árangurs og eru ekki þáttur í föstum starfskjörum starfsmanns þar sem endanleg fjárhæð eða umfang þeirra liggur ekki fyrir með nákvæmum hætti fyrir fram.
   9.–11.1)
   12. Útibú: Starfsstöð sem lögum samkvæmt er háð fjármálafyrirtæki, sem hún er hluti af, og annast með beinum hætti öll eða hluta þeirra viðskipta sem fjármálafyrirtæki stundar. [Allar starfsstöðvar, sem komið hefur verið á fót í einu aðildarríki á vegum lánastofnunar sem hefur aðalskrifstofu sína í öðru aðildarríki, teljast eitt útibú.]1)
   13.–18.1)
   19. Hlutdeildarfélag: Félag sem fjármálafyrirtæki hefur veruleg áhrif á eða þar sem beinn eða óbeinn eignarhluti nemur 20% eða meira af atkvæðisrétti eða hlutafé.
   20. Venslaðir aðilar: Til venslaðra aðila teljast tengdir aðilar samkvæmt settum reikningsskilareglum, sbr. lög um ársreikninga. Til venslaðra aðila geta einnig talist aðrir aðilar sem Fjármálaeftirlitið metur að eigi beinna og skyldra hagsmuna að gæta vegna starfsemi fjármálafyrirtækis.
   21.–25.1)
   26. Aðildarríki: Ríki sem er aðili að samningnum um Evrópska efnahagssvæðið, aðili að stofnsamningi Fríverslunarsamtaka Evrópu eða Færeyjar.
   27.–45.1)
   46. Móðurfélag í efsta þrepi samstæðu á Evrópska efnahagssvæðinu: Móðurfélag sem er móðurfélag á Evrópska efnahagssvæðinu, móðureignarhaldsfélag á fjármálasviði á Evrópska efnahagssvæðinu eða blandað móðureignarhaldsfélag í fjármálastarfsemi á Evrópska efnahagssvæðinu.
   47.1)
   [[48.]3) Greiðslujöfnunarsamningur: Samningur sem felur í sér að unnt er að umreikna samrættar kröfur eða skuldbindingar fjármálafyrirtækis og viðsemjanda þess í eina jafnaða kröfu, þ.m.t. samningur um greiðslujöfnun til uppgjörs.]4)
   [49. Innri aðferð: Innramatsaðferðin skv. 1. mgr. 143. gr., eiginlíkansaðferðin skv. 221. gr., eigin matsaðferðin skv. 225. gr., þróuðu mæliaðferðirnar skv. 2. mgr. 312. gr., eiginlíkansaðferðin skv. 283. og 363. gr. og innri virðingaraðferðin skv. 3. mgr. 259. gr. reglugerðar (ESB) nr. 575/2013.
   50. Kerfisáhætta: Hætta á truflun á fjármálakerfinu sem gæti haft verulegar neikvæðar afleiðingar fyrir fjármálakerfið og raunhagkerfið.
   51. Raunverulegur eigandi: Raunverulegur eigandi samkvæmt lögum um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka.
   52. Þriðjaríkissamstæða: Samstæða þar sem móðurfélagið er með staðfestu í ríki utan Evrópska efnahagssvæðisins.]1)
[Önnur hugtök hafa í lögum þessum þá merkingu sem í reglugerð (ESB) nr. 575/2013 greinir.]1)
[Til að tryggja að kröfurnar eða eftirlitsheimildirnar sem mælt er fyrir um í lögum þessum gildi á samstæðu- eða undirsamstæðugrunni í samræmi við lögin skulu hugtökin fjármálafyrirtæki, móðurstofnun í aðildarríki, móðurstofnun á Evrópska efnahagssvæðinu og móðurfélag einnig ná yfir:
   1. Eignarhaldsfélög á fjármálasviði og blönduð eignarhaldsfélög í fjármálastarfsemi sem hafa hlotið samþykki í samræmi við B-hluta VI. kafla.
   2. Tilnefnd fjármálafyrirtæki sem eru undir yfirráðum móðureignarhaldsfélags á fjármálasviði á Evrópska efnahagssvæðinu, blandaðs móðureignarhaldsfélags í fjármálastarfsemi á Evrópska efnahagssvæðinu, móðureignarhaldsfélags á fjármálasviði í aðildarríki eða blandaðs móðureignarhaldsfélags í fjármálastarfsemi í aðildarríki, ef viðkomandi móðurfélag þarf ekki samþykki, sbr. 2. mgr. 49. gr. b.
   3. Eignarhaldsfélög á fjármálasviði, blönduð eignarhaldsfélög í fjármálastarfsemi eða fjármálafyrirtæki sem bera ábyrgð á því að farið sé að kröfum laga þessara á samstæðugrunni skv. 4. tölul. 3. mgr. 49. gr. g.]1)]5)]6)
   1)L. 38/2022, 3. gr. 2)L. 61/2017, 34. gr. 3)L. 54/2018, 1. gr. 4)L. 34/2018, 1. gr. 5)L. 96/2016, 1. gr. 6)L. 75/2010, 2. gr.
[1. gr. c. Lögfesting.
Ákvæði reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 575/2013 frá 26. júní 2013 um varfærniskröfur að því er varðar lánastofnanir og verðbréfafyrirtæki og um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 648/2012, sem er birt á bls. 1 í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 12 frá 27. febrúar 2020, hafa lagagildi hér á landi með þeim aðlögunum sem leiðir af ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 79/2019 frá 29. mars 2019, sem er birt á bls. 1 í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 99 frá 12. desember 2019, og bókun 1 við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, sbr. lög um Evrópska efnahagssvæðið, nr. 2/1993, þar sem bókunin er lögfest, með breytingum samkvæmt:
   1. Framseldri reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2015/62 frá 10. október 2014 um breytingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 575/2013 að því er varðar vogunarhlutfallið, sem er birt á bls. 303 í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 26 frá 21. apríl 2022.
   2. Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2016/1014 frá 8. júní 2016 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 575/2013 að því er varðar undanþágur fyrir seljendur hrávöru, sem er birt á bls. 342 í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 50 frá 23. júlí 2020.
   3. Framseldri reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/2188 frá 11. ágúst 2017 um breytingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 575/2013 að því er varðar undanþágu á kröfum vegna eiginfjárgrunns að því er varðar tiltekin sértryggð skuldabréf, sem er birt á bls. 30 í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 49 frá 22. júlí 2021.
   4. Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2017/2395 frá 12. desember 2017 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 575/2013 að því er varðar umbreytingarfyrirkomulag til að milda áhrifin á eiginfjárgrunn vegna innleiðingar IFRS-staðals 9 og fyrir meðhöndlun tiltekinna áhættuskuldbindinga opinberra aðila gefnum upp í heimagjaldmiðli aðildarríkis sem stórra áhættuskuldbindinga, sem er birt á bls. 94 í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 42 frá 25. júní 2020.
   5. Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/630 frá 17. apríl 2019 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 575/2013 að því er varðar lágmarkstryggingavernd fyrir tapi vegna vanefndra áhættuskuldbindinga, sem er birt á bls. 22 í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 19 frá 18. mars 2021, með þeim aðlögunum sem leiðir af ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 16/2020 frá 7. febrúar 2020, sem er birt í auglýsingu nr. 4/2022 í C-deild Stjórnartíðinda.
   6. Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/876 frá 20. maí 2019 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 575/2013 að því er varðar vogunarhlutfall, hlutfall stöðugrar nettófjármögnunar, kröfur um eiginfjárgrunn og hæfar skuldbindingar, útlánaáhættu mótaðila, markaðsáhættu, áhættuskuldbindingar gagnvart miðlægum mótaðilum, áhættuskuldbindingar gagnvart sjóðum um sameiginlega fjárfestingu, stórar áhættuskuldbindingar, skýrslugjafarskyldu og birtingarkröfur og reglugerð (ESB) nr. 648/2012, sem er birt á bls. 8 í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 29 frá 5. maí 2022, með þeim aðlögunum sem leiðir af ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 301/2021 frá 29. október 2021, sem er birt í auglýsingu nr. 4/2022 í C-deild Stjórnartíðinda.
   [7. Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/2160 frá 27. nóvember 2019 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 575/2013 að því er varðar áhættuskuldbindingar í formi sértryggðra skuldabréfa, sem er birt á bls. 163–168 í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 63 frá 29. september 2022.]1)
   [8.]1) Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2020/873 frá 24. júní 2020 um breytingu á reglugerðum (ESB) nr. 575/2013 og (ESB) 2019/876 að því er varðar vissar aðlaganir til að bregðast við COVID-19-faraldrinum, sem er birt á bls. 234 í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 29 frá 5. maí 2022, með þeim aðlögunum sem leiðir af ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 301/2021 frá 29. október 2021, sem er birt í auglýsingu nr. 4/2022 í C-deild Stjórnartíðinda.
   [9. Framseldri reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/424 frá 17. desember 2019 um breytingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 575/2013 að því er varðar óhefðbundna staðalaðferð vegna markaðsáhættu, sem er birt á bls. 79–93 í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 70 frá 27. október 2022.]1)
Í lögum þessum er vísað til reglugerðar (ESB) nr. 575/2013 með breytingum skv. 1. mgr. sem reglugerðar (ESB) nr. 575/2013.
Seðlabanki Íslands er lögbært yfirvald í skilningi reglugerðar (ESB) nr. 575/2013 og fer Fjármálaeftirlitið með þau verkefni sem því eru falin. Skilavald samkvæmt lögum um skilameðferð lánastofnana og verðbréfafyrirtækja fer með þau verkefni sem skilastjórnvöldum eru falin skv. 2. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar.]2)
   1)L. 7/2023, 24. gr. 2)L. 38/2022, 4. gr.

II. kafli. [Starfsleyfi lánastofnunar.]1)
   1)L. 38/2022, 16. gr.
A. Veiting starfsleyfis.
2. gr. Starfsleyfisveitandi.
Fjármálaeftirlitið veitir [lánastofnunum]1) starfsleyfi samkvæmt lögum þessum. [Lánastofnun]1) er heimilt að hefja starfsemi þegar [hún]1) hefur fengið starfsleyfi Fjármálaeftirlitsins.
[Fjármálaeftirlitið skal hafa samráð við lögbær yfirvöld í öðrum aðildarríkjum við mat á umsókn um starfsleyfi [lánastofnunar]1) sem er:
   a. dótturfélag fjármálafyrirtækis eða vátryggingafélags með starfsleyfi í öðru aðildarríki,
   b. dótturfélag móðurfélags fjármálafyrirtækis eða vátryggingafélags með starfsleyfi í öðru aðildarríki, eða
   c. undir yfirráðum aðila, einstaklings eða lögaðila, sem hefur [yfirráð]1) í fjármálafyrirtæki eða vátryggingafélagi í öðru aðildarríki.
Samráð skv. 2. mgr. skal m.a. taka til upplýsinga um hæfi hluthafa og stjórnenda, [sbr. 42. gr. a og 52. gr.]1)
Samráð skv. 2. mgr. gildir jafnframt um viðvarandi eftirlit með því að starfsskilyrði séu uppfyllt.
2)]3)
   1)L. 38/2022, 6. gr. 2)L. 75/2010, 4. gr. 3)L. 130/2004, 1. gr.
3. gr. [Leyfisskyld starfsemi.
Einungis lögaðilar sem hafa starfsleyfi sem lánastofnanir mega starfa við að taka við innlánum eða öðrum endurgreiðanlegum fjármunum frá almenningi.
Um aðrar starfsheimildir lánastofnana fer skv. IV. kafla, eftir því sem nánar greinir í starfsleyfi þeirra.]1)
   1)L. 38/2022, 7. gr.
4. gr. [Tegundir starfsleyfa.
Lánastofnun getur fengið starfsleyfi sem viðskiptabanki, sparisjóður eða lánafyrirtæki.]1)
   1)L. 38/2022, 8. gr.
5. gr. Umsókn.
Umsókn um starfsleyfi skal vera skrifleg og henni skulu fylgja:
   1. Upplýsingar um tegund starfsleyfis sem sótt er um, sbr. 4. gr., leyfisskylda starfsemi, sbr. 1. mgr. 3. gr., og aðra starfsemi sem fyrirhuguð er, sbr. IV. kafla.
   2. Samþykktir félags.
   3. Upplýsingar um starfsskipulag þar sem m.a. komi fram upplýsingar um hvernig fyrirhugaðri starfsemi verði sinnt.
   4. Upplýsingar um innra skipulag fyrirtækisins, þ.m.t. eftirlits- og starfsreglur.
   5. Viðskipta- og rekstraráætlun þar sem m.a. komi fram fyrirhugaður vöxtur og uppbygging eigin fjár.
   6. [Upplýsingar um stofnendur, hluthafa eða stofnfjáreigendur, sem ráða beint eða óbeint yfir virkum eignarhlut, og hlutfallslegt eignarhald hvers þeirra. Fari enginn með virkan eignarhlut skal upplýsa um 20 stærstu hluthafa eða stofnfjáreigendur.]1)
   7. Upplýsingar um stjórnarmenn, framkvæmdastjóra og aðra stjórnendur.
   8. Staðfesting endurskoðanda á innborgun hlutafjár eða stofnfjár.
   [9. Upplýsingar um samstæðu sem fyrirtækið tilheyrir, þar á meðal móðurfélög, eignarhaldsfélög á fjármálasviði og blönduð eignarhaldsfélög í fjármálastarfsemi í samstæðunni.]1)
   [10.]1) Upplýsingar um náin tengsl fyrirtækisins við einstaklinga eða lögaðila, sbr. […1) 3. mgr. 7. gr.]2)
   [11.]1) Aðrar viðeigandi upplýsingar sem Fjármálaeftirlitið ákveður.
   1)L. 38/2022, 9. gr. 2)L. 96/2016, 3. gr.
6. gr. Veiting starfsleyfis.
Ákvörðun Fjármálaeftirlitsins um veitingu starfsleyfis skal tilkynnt umsækjanda skriflega svo fljótt sem unnt er og eigi síðar en þremur mánuðum eftir að fullbúin umsókn barst. Fjármálaeftirlitið skal tilkynna umsækjanda um það þegar umsókn telst fullnægjandi.
Í starfsleyfi skal koma fram til hvaða tegundar leyfið tekur, sbr. 4. gr., hvaða starfsleyfisskylda starfsemi heimilt er að stunda á grundvelli þess og hvaða aðra starfsemi fyrirhugað er að stunda skv. IV. kafla. […1) [Lánastofnun],1) sem hyggst auka við starfsemi sína þannig að hún taki til annarrar starfsemi skv. IV. kafla sem fellur ekki undir starfsleyfi [hennar],1) skal sækja um leyfi til Fjármálaeftirlitsins til að stunda þá starfsemi.]2)
[Lánastofnun]1) er óheimilt að hefja starfsemi fyrr en hlutafé eða stofnfé hefur verið greitt að fullu í reiðufé.
Fjármálaeftirlitið skal birta tilkynningar um starfsleyfi [lánastofnana]1) í Lögbirtingablaði.
[Fjármálaeftirlitið skal tilkynna Evrópsku bankaeftirlitsstofnuninni um starfsleyfi sem það veitir lánastofnunum.]1)
   1)L. 38/2022, 10. gr. 2)L. 111/2007, 3. gr.
7. gr. Synjun starfsleyfis.
[Fullnægi umsókn eða umsækjandi ekki skilyrðum laga þessara, þar á meðal um eftirlitskerfi með áhættu og hæfi stjórnarmanna, framkvæmdastjóra og eigenda virkra eignarhluta, að mati Fjármálaeftirlitsins skal það synja um starfsleyfi.]1)
Synjun Fjármálaeftirlitsins á umsókn skal rökstudd og tilkynnt umsækjanda innan þriggja mánaða frá móttöku fullbúinnar umsóknar. Synjun skal þó alltaf hafa borist umsækjanda tólf mánuðum frá móttöku umsóknar. [Við mat á umsókn um veitingu starfsleyfis er óheimilt að byggja mat á umsókninni, eða synjun, á sjónarmiðum um þarfir á fjármálamarkaði hér á landi.]2)
[Starfsleyfi skal ekki veitt ef náin tengsl umsækjanda við einstaklinga eða lögaðila hindra eftirlit með fyrirtækinu af hálfu Fjármálaeftirlitsins. Hið sama á við ef lög eða reglur ríkis utan Evrópska efnahagssvæðisins sem gilda um slíka tengda aðila eða vandkvæði tengd framkvæmd þeirra hindra eftirlit.]1)
   1)L. 38/2022, 11. gr. 2)L. 57/2015, 3. gr.
8. gr. [Skrá yfir lánastofnanir.]1)
Fjármálaeftirlitið skal halda skrá yfir [lánastofnanir]1) og útibú þeirra þar sem fram koma allar helstu upplýsingar um hlutaðeigandi fyrirtæki. [Tilkynna skal Fjármálaeftirlitinu, fyrir fram ef við á, um allar breytingar á áður veittum upplýsingum, þar á meðal upplýsingum um stjórn eða framkvæmdastjóra, um fjölgun eða fækkun útibúa og ef [lánastofnun]1) uppfyllir ekki lengur skilyrði fyrir veitingu starfsleyfis.]2)
   1)L. 38/2022, 12. gr. 2)L. 111/2007, 4. gr.
B. Afturköllun starfsleyfis.
9. gr. Ástæður afturköllunar.
Fjármálaeftirlitið getur afturkallað starfsleyfi [lánastofnunar]1) í heild eða að hluta:
   1. hafi fyrirtækið fengið starfsleyfið á grundvelli rangra upplýsinga eða á annan óeðlilegan hátt,
   2. [fullnægi fyrirtækið ekki varfærniskröfunum sem settar eru fram í 3., 4. eða 6. hluta reglugerðar (ESB) nr. 575/2013, að frátöldum ákvæðum 92. gr. a og 92. gr. b reglugerðarinnar, eða kröfum Fjármálaeftirlitsins skv. 1. eða 10. tölul. 3. mgr. 107. gr. a],1)
   3. nýti fyrirtækið ekki starfsleyfið innan tólf mánaða frá því að það var veitt, afsali sér ótvírætt leyfinu eða hætti starfsemi í meira en sex mánuði samfellt,
   4. fullnægi hluthafar, stjórnarmenn og stjórnendur fyrirtækis ekki þeim hæfisskilyrðum sem fram koma í [42. gr. a og 52. gr.],1)
   5. [ef náin tengsl fyrirtækisins við einstaklinga eða lögaðila eða lög eða reglur ríkis utan Evrópska efnahagssvæðisins sem gilda um slíka tengda aðila eða vandkvæði tengd framkvæmd þeirra hindra eftirlit með fyrirtækinu af hálfu Fjármálaeftirlitsins],1)
   6. [hafi ráðstafanir sem gripið hefur verið til á grundvelli ákvæða [107. gr. c – 107. gr. e]1) um tímanleg inngrip Fjármálaeftirlitsins …2) ekki skilað árangri eða hafi verið kveðinn upp úrskurður um slit fyrirtækisins skv. XII. kafla],3)
   7. brjóti fyrirtækið að öðru leyti alvarlega eða ítrekað gegn lögum þessum, reglum, samþykktum eða reglugerðum settum samkvæmt þeim,
   [8. uppfylli [fyrirtækið]1) ekki lengur þau lögbundnu skilyrði sem það þurfti að uppfylla til þess að hljóta starfsleyfi,
   9. geti [fyrirtækið]1) ekki sýnt fram á að það geti staðið við skuldbindingar sínar gagnvart lánardrottnum og/eða innlánseigendum,
   10. [brjóti fyrirtækið gegn skyldu til þess að viðhalda kerfisáhættuauka skv. 86. gr. g og takmarkanir á grundvelli G-hluta X. kafla hafa ekki náð tilætluðum árangri],1)]4)
   [11. brjóti fyrirtækið alvarlega eða ítrekað gegn lögum um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka].1)
Áður en til afturköllunar kemur skv. 1. mgr. skal fyrirtækinu veittur hæfilegur frestur til úrbóta sé unnt að koma úrbótum við að mati Fjármálaeftirlitsins.
[Þrátt fyrir afturköllun starfsleyfis skv. 6. tölul. 1. mgr. er [[bráðabirgðastjórnanda],2) slitastjórn við slitameðferð [lánastofnunar]1) eða skiptastjóra við gjaldþrotaskipti á búi [hennar]1)]5) heimilt, með samþykki og undir eftirliti Fjármálaeftirlitsins, að annast áfram tiltekna leyfisbundna starfsemi að svo miklu leyti sem hún er nauðsynleg vegna bústjórnar og ráðstöfunar hagsmuna þrotabús.]6)
Fjármálaeftirlitinu er heimilt að banna [lánastofnun]1) að stunda tiltekna starfsemi sem [henni]1) er heimil skv. IV. kafla. Um slíkt bann gilda ákvæði 1. og 2. mgr.
   1)L. 38/2022, 13. gr. 2)L. 70/2020, 103. gr. 3)L. 54/2018, 2. gr. 4)L. 57/2015, 4. gr. 5)L. 44/2009, 1. gr. 6)L. 129/2008, 1. gr.
10. gr. [Tilkynning um afturköllun og slit lánastofnunar.]1)
[Fjármálaeftirlitið skal tilkynna stjórn lánastofnunar um afturköllun á starfsleyfi hennar. Það skal jafnframt senda Evrópsku bankaeftirlitsstofnuninni tilkynninguna ásamt ástæðum fyrir afturkölluninni og birta tilkynninguna í Lögbirtingablaði og auglýsa í fjölmiðlum. Starfræki fyrirtækið útibú eða þjónustustarfsemi í öðru aðildarríki skal Fjármálaeftirlitið einnig senda lögbærum yfirvöldum í því ríki tilkynninguna án tafar.]1)
Ef starfsleyfi [lánastofnunar]1) er afturkallað skal fyrirtækinu slitið og fer um slitin samkvæmt ákvæðum XII. kafla.
   1)L. 38/2022, 14. gr.
[10. gr. a. [Takmörkun á starfsemi lánastofnunar.]1)
Fjármálaeftirlitinu er heimilt að takmarka starfsemi einstakra starfsstöðva [lánastofnana]1) telji það sérstaka ástæðu til. Því er enn fremur heimilt að setja einstaka starfsstöðvum [lánastofnunar]1) sérstök skilyrði fyrir áframhaldandi starfsemi. Þá er Fjármálaeftirlitinu heimilt að takmarka tímabundið starfsemi [lánastofnunar]1) sem [henni]1) er heimilt að stunda, í heild eða hluta, hvort sem hún er starfsleyfisskyld eða ekki, telji [það]2) sérstaka ástæðu til.
Áður en gripið er til takmörkunar skv. 1. mgr. skal viðkomandi [lánastofnun]1) gefinn kostur á að koma við úrbótum sé það unnt að mati Fjármálaeftirlitsins. …1) Veiti [lánastofnunin]1) þjónustu í öðru aðildarríki skal tilkynning um efni [ákvörðunar skv. 1. mgr. og rökstuðningur sendur lögbæru yfirvaldi]1) í því ríki.]3)
   1)L. 38/2022, 15. gr. 2)L. 91/2019, 35. gr. 3)L. 75/2010, 6. gr.

III. kafli. Stofnun og starfsemi.
11. gr. [Búsetuskilyrði stofnenda lánastofnunar.]1)
Einungis einstaklingar og lögaðilar búsettir hér á landi geta verið stofnendur [lánastofnana].1)
[Ríkisborgarar og lögaðilar annarra ríkja innan Evrópska efnahagssvæðisins og aðildarríkja Fríverslunarsamtaka Evrópu svo og Færeyingar og lögaðilar í Færeyjum eru undanþegnir búsetuskilyrðum 1. mgr.]2) [Ráðherra]3) er heimilt að veita ríkisborgurum annarra ríkja sömu undanþágu.
   1)L. 38/2022, 17. gr. 2)L. 108/2006, 75. gr. 3)L. 126/2011, 355. gr.
12. gr. [Heiti lánastofnunar.]1)
[Lánastofnunum er einum heimilt að nota í firma sínu eða til nánari skýringar á starfsemi sinni orðin „lánastofnun“, „banki“, „viðskiptabanki“, „fjárfestingarbanki“, „sparisjóður“ og „lánafyrirtæki“, ein sér eða samtengd öðrum orðum, í samræmi við starfsleyfi sitt.]1)
Sé hætta á að villst verði á nöfnum [erlendrar og innlendrar lánastofnunar]1) sem starfa hér á landi getur Fjármálaeftirlitið krafist þess að annað fyrirtækjanna verði auðkennt sérstaklega.
[Lánastofnun]1) má ekki auðkenna starfsemi sína á þann hátt að unnt sé að líta svo á að um Seðlabanka Íslands geti verið að ræða.
   1)L. 38/2022, 18. gr.
13. gr. [Rekstrarform lánastofnunar.]1)
[Viðskiptabanki og lánafyrirtæki]1) skal starfa sem hlutafélag. Um rekstrarform sparisjóða gilda ákvæði VIII. kafla.
   1)L. 38/2022, 19. gr.
14. gr. [Stofnframlag lánastofnunar.
Við veitingu starfsleyfis skal lágmark innborgaðs stofnframlags lánastofnunar vera jafnvirði 5 milljóna evra (EUR) í íslenskum krónum. [Stofnframlag skal samanstanda af einum eða fleiri liðum sem um getur í a–e-lið 1. mgr. 26. gr. reglugerðar (ESB) nr. 575/2013.]1)
[Þrátt fyrir 1. mgr. getur stofnframlag sparisjóðs sem hefur ekki starfsheimildir skv. 7.–9., 11. og 12. tölul. 1. mgr. 20. gr. og veitir ekki þjónustu erlendis að lágmarki numið jafnvirði 1 millj. evra (EUR) í íslenskum krónum.]1)
Sé [stofnframlag]1) skv. 1. eða 2. mgr. skráð í íslenskum krónum skal miða við opinbert viðmiðunargengi (kaupgengi) eins og það er skráð hverju sinni.
Óski lánastofnun eftir nýju starfsleyfi skal bókfært eigið fé í stað [stofnframlags]1) ekki nema lægri fjárhæð en kveðið er á um í 1. eða 2. mgr. eða 14. gr. a.
Eiginfjárgrunnur lánastofnunar …1) má á hverjum tíma eigi nema lægri fjárhæð en kveðið er á um í 1. eða 2. mgr.
[Seðlabanka Íslands]2) er heimilt að setja nánari reglur um framkvæmd þessarar greinar.
[Ráðherra er heimilt að breyta fjárhæðum samkvæmt þessari grein með reglugerð til samræmis við undirgerðir sem framkvæmdastjórn Evrópusambandsins samþykkir með stoð í 146. gr. tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 2013/36/ESB.]1)]3)
   1)L. 38/2022, 20. gr. 2)L. 91/2019, 34. gr. 3)L. 96/2016, 7. gr.
[14. gr. a. [Stofnframlag verðbréfafyrirtækja og skyldra fyrirtækja.]1)
Við veitingu starfsleyfis skal lágmark innborgaðs stofnframlags verðbréfafyrirtækis [og staðbundins fyrirtækis]2) vera eins og það er tilgreint í þessari grein. [Stofnframlag skal samanstanda af einum eða fleiri liðum sem um getur í a–e-lið 1. mgr. 26. gr. reglugerðar (ESB) nr. 575/2013.]1)
[Stofnframlag]1) verðbréfafyrirtækis skal að lágmarki nema jafnvirði 730 þúsund evra (EUR) í íslenskum krónum.
Þrátt fyrir 2. mgr. getur [stofnframlag]1) verðbréfafyrirtækis að lágmarki numið jafnvirði 125 þúsund evra (EUR) í íslenskum krónum ef verðbréfafyrirtækið uppfyllir eftirfarandi skilyrði:
   1. Það hefur ekki starfsheimildir skv. [c- og f-lið [16. tölul.]3) 1. mgr. 4. gr. laga um markaði fyrir fjármálagerninga].4)
   2. Það hefur starfsheimild skv. [a-lið [67. tölul.]3) 1. mgr. 4. gr. laga um markaði fyrir fjármálagerninga og a.m.k. eina af starfsheimildum skv. a-, b- og d-lið [16. tölul.]3) 1. mgr. 4. gr. sömu laga].4)
[Fjármálaeftirlitið getur heimilað verðbréfafyrirtæki, sem fellur undir 3. mgr., með leyfi til að framkvæma fyrirmæli varðandi fjármálagerninga fyrir hönd viðskiptavina, að varðveita slíka fjármálagerninga fyrir eigin reikning séu eftirfarandi skilyrði uppfyllt:
   1. Slíkar stöður í fjármálagerningum megi einungis rekja til þess að ekki hafi tekist að mæta fyrirmælum viðskiptavina nákvæmlega.
   2. Heildarmarkaðsverðmæti fjármálagerninga samkvæmt þessari málsgrein fari ekki yfir 15% af stofnframlagi verðbréfafyrirtækisins.
   3. Ákvæði 92.–95. gr. og 4. hluta reglugerðar (ESB) nr. 575/2013 séu uppfyllt.
   4. Um sé að ræða ráðstafanir til bráðabirgða sem takmarkast við það tímamark sem nauðsynlegt er til að framkvæma fyrirmælin.]1)
Þrátt fyrir 2. og 3. mgr. getur [stofnframlag]1) verðbréfafyrirtækis að lágmarki numið jafnvirði 50 þúsund evra (EUR) í íslenskum krónum ef verðbréfafyrirtæki hefur ekki starfsheimild skv. [c- og f-lið [16. tölul.]3) 1. mgr. 4. gr. laga um markaði fyrir fjármálagerninga og a-lið [67. tölul.]3) 1. mgr. 4. gr. sömu laga].4)
[Heimild verðbréfafyrirtækis til að fjárfesta í fjármálagerningum utan veltubókar í því skyni að ávaxta eigið fé sitt telst ekki til heimildar skv. c-lið 16. tölul. 1. mgr. 4. gr. laga um markaði fyrir fjármálagerninga, nr. 115/2021, hvað 3. og 5. mgr. þessarar greinar varðar.]1)
[Stofnframlag]1) staðbundins fyrirtækis skal að lágmarki nema jafnvirði 50 þúsund evra (EUR) í íslenskum krónum ef það veitir þjónustu í öðru ríki á Evrópska efnahagssvæðinu skv. 36. og/eða 37. gr.
[Fyrirtæki sem annast móttöku og miðlun fyrirmæla frá viðskiptavinum um einn eða fleiri fjármálagerninga, framkvæmd fyrirmæla fyrir hönd viðskiptavina, eignastýringu og/eða fjárfestingarráðgjöf, sbr. a-, b-, d- og e-lið 16. tölul. 1. mgr. 4. gr. laga um markaði fyrir fjármálagerninga, nr. 115/2021, en stundar ekki aðra fjárfestingarþjónustu eða fjárfestingarstarfsemi samkvæmt sama tölulið og hefur ekki heimild til vörslu eða umsýslu í tengslum við einn eða fleiri fjármálagerninga fyrir reikning viðskiptavinar, sbr. a-lið 67. tölul. sömu málsgreinar, né til að halda peningum eða verðbréfum viðskiptavina sinna af öðrum sökum og má því aldrei koma sér í skuld við þá, skal hafa:
   a. stofnframlag að lágmarki jafnvirði 50 þús. evra (EUR) í íslenskum krónum,
   b. starfsábyrgðartryggingu sem tekur til alls Evrópska efnahagssvæðisins eða aðra sambærilega tryggingu til að mæta bótakröfum vegna vanrækslu í starfi sem nemur að lágmarki 1 millj. evra (EUR) fyrir hverja kröfu og samtals 1,5 millj. evra (EUR) á ári fyrir allar kröfur eða
   c. samsetningu stofnframlags og starfsábyrgðartryggingar sem veitir sambærilega tryggingu og þá sem um getur í a- eða b-lið.
Þrátt fyrir 8. mgr. skal fyrirtæki samkvæmt málsgreininni sem er á skrá yfir vátryggingamiðlara samkvæmt lögum um dreifingu vátrygginga, nr. 62/2019, hafa:
   a. stofnframlag að lágmarki jafnvirði 25 þús. evra (EUR) í íslenskum krónum,
   b. starfsábyrgðartryggingu sem tekur til alls Evrópska efnahagssvæðisins eða aðra sambærilega tryggingu til að mæta bótakröfum vegna vanrækslu í starfi sem nemur að lágmarki 500 þús. evrum (EUR) fyrir hverja kröfu og samtals 750 þús. evrum (EUR) á ári fyrir allar kröfur eða
   c. samsetningu stofnframlags og starfsábyrgðartryggingar sem veitir sambærilega tryggingu og þá sem um getur í a- eða b-lið.]1)
Sé [stofnframlag]1) skráð í íslenskum krónum skal miða við opinbert viðmiðunargengi (kaupgengi) eins og það er skráð hverju sinni.
Óski fyrirtæki samkvæmt þessari grein eftir nýju starfsleyfi skal bókfært eigið fé í stað [stofnframlags]1) ekki nema lægri fjárhæð en kveðið er á um í þessari grein eða 14. gr.
Eiginfjárgrunnur fyrirtækis samkvæmt þessari grein má á hverjum tíma eigi nema lægri fjárhæð en kveðið er á um í [2.–9. mgr.]1)
[Seðlabanka Íslands]5) er heimilt að setja nánari reglur um framkvæmd þessarar greinar.
[Ráðherra er heimilt að breyta fjárhæðum samkvæmt þessari grein með reglugerð til samræmis við undirgerðir sem framkvæmdastjórn Evrópusambandsins samþykkir með stoð í 146. gr. tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 2013/36/ESB.]1)]6)
   1)L. 38/2022, 21. gr. 2)L. 116/2021, 137. gr. 3)L. 50/2022, 26. gr. 4)L. 115/2021, 148. gr. 5)L. 91/2019, 34. gr. 6)L. 96/2016, 8. gr.
15. gr. [Höfuðstöðvar lánastofnunar.]1)
[Lánastofnun],1) sem fengið hefur starfsleyfi skv. 6. gr., skal hafa höfuðstöðvar sínar hér á landi.
   1)L. 38/2022, 22. gr.
16. gr. Endurskoðunardeild.
[Í fjármálafyrirtæki skal starfa endurskoðunardeild sem annast innri endurskoðun. Innri endurskoðunardeild skal starfa óháð öðrum deildum í skipulagi fjármálafyrirtækis og er hún hluti af skipulagi þess og þáttur í eftirlitskerfi þess. Starfsmenn innri endurskoðunardeildar skulu sameiginlega búa yfir nægjanlegri þekkingu og reynslu til þess að takast á við verkefni deildarinnar og skal starfsmannafjöldinn endurspegla stærð fjármálafyrirtækis og starfsemi þess. Starfsmenn innri endurskoðunardeildar mega ekki vera hluthafar í viðkomandi fjármálafyrirtæki. [[Seðlabanka Íslands]1) er heimilt að setja reglur sem kveða nánar á um starfsemi innri endurskoðunardeildar.]2)
Stjórn fjármálafyrirtækis skal ráða forstöðumann endurskoðunardeildar fyrirtækis sem fer með innri endurskoðun í umboði hennar. Hann skal hafa sérþekkingu á sviði innri endurskoðunar, hafa lokið háskólaprófi sem nýtist í starfi og búa yfir nægilegri reynslu til þess að geta sinnt starfi sínu. Hann má ekki hafa verið úrskurðaður gjaldþrota eða hafa í tengslum við atvinnurekstur hlotið dóm fyrir refsiverðan verknað samkvæmt almennum hegningarlögum, samkeppnislögum, lögum um hlutafélög, lögum um einkahlutafélög, lögum um bókhald, lögum um ársreikninga, lögum um gjaldþrotaskipti o.fl. og ákvæðum laga um staðgreiðslu opinberra gjalda, svo og sérlögum sem gilda um aðila sem lúta opinberu eftirliti með fjármálastarfsemi. Fjármálaeftirlitið getur hvenær sem er tekið hæfi forstöðumanns innri endurskoðunardeildar til sérstakrar skoðunar telji [það]3) tilefni til.
Innri endurskoðun skal reglulega gera stjórn og endurskoðunarnefnd grein fyrir starfsemi sinni. Skylt er að taka þær athugasemdir sem forstöðumaður innri endurskoðunar metur mikilvægar fyrir á stjórnarfundum og færa til bókar. Forstöðumaður innri endurskoðunardeildar hefur rétt til setu á stjórnarfundum þar sem athugasemdir hans eru á dagskrá.
Eigi sjaldnar en árlega skal innri endurskoðun gera Fjármálaeftirlitinu grein fyrir niðurstöðum kannana sinna. Auk þess skal innri endurskoðun tilkynna Fjármálaeftirlitinu sérstaklega og án tafar þær athugasemdir sem gerðar hafa verið og sendar stjórn.
Fjármálaeftirlitið getur, með hliðsjón af eðli og umfangi rekstrar einstakra fjármálafyrirtækja, veitt undanþágu frá starfrækslu innri endurskoðunardeildar eða frá einstökum þáttum starfsemi þeirra og sett þeim fyrirtækjum sérstök skilyrði sem slíka undanþágu fá.]4)
   1)L. 91/2019, 34. gr. 2)L. 96/2016, 9. gr. 3)L. 91/2019, 35. gr. 4)L. 75/2010, 8. gr.
17. gr.1)
   1)L. 38/2022, 23. gr.
[17. gr. a. Uppfærð skuldbindingaskrá.
Fjármálafyrirtæki skal halda sérstaka skrá um alla þá sem njóta lánafyrirgreiðslu þess. Til lánafyrirgreiðslu samkvæmt þessari grein teljast beinar lánveitingar til viðkomandi, kaup á skuldabréfum útgefnum af viðkomandi, kaup á eignasafni annars lánveitanda þar sem er að finna kröfu á viðkomandi og hvers konar önnur fyrirgreiðsla sem jafna má til lánafyrirgreiðslu, enda nemi brúttóskuld viðkomandi við fjármálafyrirtækið að lágmarki 300 millj. kr.
Fjármálafyrirtæki skal senda Fjármálaeftirlitinu uppfærða skrá miðað við hver mánaðamót. Skal skráin greinast í nöfn og kennimerki lántakenda. Enn fremur skal senda sambærilega skrá um aðila í nánum tengslum, [venslaða aðila]1) og hópa tengdra viðskiptamanna, að svo miklu leyti sem þeir aðilar eru ekki á fyrrnefndri skrá. Að öðru leyti gilda ákvæði laga þessara og ákvæði laga um opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi um meðferð upplýsinga sem skráin hefur að geyma.
[Seðlabanki Íslands]2) getur sett nánari reglur um innihald skrárinnar.]3)
   1)L. 96/2016, 10. gr. 2)L. 91/2019, 36. gr. 3)L. 75/2010, 10. gr.
[17. gr. b. Skylda lántaka til að veita upplýsingar.
Telji Fjármálaeftirlitið að lántökur einstaks aðila, sem er á skuldbindingaskrá skv. 17. gr. a og lýtur ekki opinberu eftirliti með fjármálastarfsemi, geti haft kerfislæg áhrif er því heimilt að krefja viðkomandi um upplýsingar um skuldbindingar hans. Til skuldbindinga samkvæmt þessari grein teljast beinar lántökur, ádregnar lánalínur, útgáfa á skuldaskjölum viðkomandi, kaup á skuldatryggingu eða greiðsluvátryggingu vegna lántöku, kaup- og söluréttur og hvers konar önnur fyrirgreiðsla, innan eða utan efnahagsreiknings, sem viðkomandi hefur notið og jafna má til lánafyrirgreiðslu eða ábyrgðar.
Neiti aðili að láta Fjármálaeftirlitinu í té upplýsingar skv. 1. mgr. getur Fjármálaeftirlitið fyrirskipað eftirlitsskyldum aðilum að ekki verði um frekari fyrirgreiðslu af hálfu eftirlitsskyldra aðila við viðkomandi að ræða. Sama á við ef upplýsingagjöf viðkomandi er ófullnægjandi. …1)]2)
   1)L. 38/2022, 24. gr. 2)L. 75/2010, 10. gr.
[17. gr. c. Skráning viðskipta og skjalfesting ferla.
Fjármálafyrirtæki skulu skrá öll viðskipti sín og skjalfesta stefnur, kerfi og ferla sem falla undir lög þessi [og önnur lög sem gilda um fjármálafyrirtæki]1) með hætti sem gerir Fjármálaeftirlitinu kleift að sannreyna öllum stundum að farið sé að lögunum.]2)
   1)L. 7/2023, 25. gr. 2)L. 38/2022, 25. gr.
18. gr. [Upplýsingaskylda fjármálafyrirtækis.
Fjármálafyrirtæki skal upplýsa opinberlega um áhættu, áhættustýringu og [eigin- og lausafjárstöðu fyrirtækisins og önnur atriði sem um getur í 8. hluta reglugerðar (ESB) nr. 575/2013].1) Fjármálaeftirlitinu er heimilt að ákveða tíðni slíkrar upplýsingagjafar, hvenær upplýsingarnar skuli birtar og að þær skuli birta í sérstökum miðli, öðrum en ársreikningum fjármálafyrirtækja. Fjármálaeftirlitið getur krafist þess að móðurfélag fjármálafyrirtækis birti árlega, annaðhvort að fullu eða með tilvísun, lýsingu á uppbyggingu samstæðu fyrirtækisins og upplýsingar um stjórnarhætti og skipurit þess. …1)]2)
   1)L. 38/2022, 26. gr. 2)L. 96/2016, 11. gr.
19. gr. Góðir viðskiptahættir og venjur.
[Fjármálafyrirtæki skal starfa í samræmi við eðlilega og heilbrigða viðskiptahætti og venjur á fjármálamarkaði.
[Seðlabanki Íslands]1) setur reglur2) um hvað teljist eðlilegir og heilbrigðir viðskiptahættir fjármálafyrirtækja samkvæmt lögum þessum. [Í reglunum skal m.a. kveðið á um almenn samskipti fjármálafyrirtækja við viðskiptavini sína, upplýsingagjöf til viðskiptavina og meðhöndlun kvartana.]3)
3)
[Fjármálafyrirtæki skal tilgreina á vefsíðu nöfn og hlutfallslegt eignarhald allra þeirra sem eiga umfram 1% hlutafjár eða stofnfjár í fyrirtækinu á hverjum tíma. Fjármálafyrirtæki hefur fjóra daga til þess að uppfæra vefsíðuna frá því að eignarhald á hlut breytist. Sé lögaðili eigandi hlutafjár eða stofnfjár umfram 1% skal jafnframt koma fram hvaða einstaklingur eða einstaklingar séu raunverulegir eigendur viðkomandi lögaðila. …4)]5)]6)
   1)L. 91/2019, 36. gr. 2)Rgl. 353/2022. 3)L. 57/2015, 6. gr. 4)L. 38/2022, 27. gr. 5)L. 47/2013, 3. gr. 6)L. 75/2010, 12. gr.
[19. gr. a. [Úrskurðaraðilar.]1)
Fjármálafyrirtæki skal hafa aðgengilegar upplýsingar um úrskurðar- og réttarúrræði viðskiptavina sinna ef ágreiningur rís milli viðskiptavinar og fjármálafyrirtækis, m.a. um málskot til [úrskurðaraðila samkvæmt lögum um úrskurðaraðila á sviði neytendamála].1)
1)]2)
   1)L. 19/2021, 4. gr. 2)L. 75/2010, 13. gr.
[19. gr. b. Upplýsingar um viðskiptamenn.
Fjármálafyrirtæki skulu setja sér reglur um hvernig haldið er utan um upplýsingar um einstaka viðskiptamenn. Í þeim skal koma fram hvaða starfsmenn hafi aðgengi að upplýsingunum starfs síns vegna, hvernig staðið skuli að miðlun upplýsinga til innra eftirlits, eftirlitsstjórnvalda og lögreglu og hvernig eftirliti með framkvæmd reglnanna er háttað. Reglurnar skulu vera aðgengilegar viðskiptavinum.]1)
   1)L. 75/2010, 14. gr.

IV. kafli. Starfsheimildir.
A. [Lánastofnanir.]1)
   1)L. 38/2022, 32. gr.
20. gr. [Starfsheimildir lánastofnana.]1)
Starfsemi viðskiptabanka og sparisjóða getur tekið til eftirfarandi þátta:
   1. Móttöku innlána og annarra endurgreiðanlegra fjármuna frá almenningi.
   2. Útlánastarfsemi, m.a.:
   a. neytendalána,
   b. [fasteignalána],1)
   c. kröfukaupa og kaupa skuldaskjala og
   d. viðskiptalána.
   3. Fjármögnunarleigu.
   [4. Greiðsluþjónustu samkvæmt lögum um greiðsluþjónustu.
   5. Útgáfu og umsýslu greiðsluskjala, svo sem ferðatékka og víxla.]2)
   6. [Að veita ábyrgðir og lánsloforð.]1)
   7. [Viðskipta fyrir eigin reikning eða fyrir reikning viðskiptavina með]:1)
   a. greiðsluskjöl á peningamarkaði (ávísanir, víxla, önnur sambærileg greiðsluskjöl o.s.frv.),
   b. erlendan gjaldeyri,
   c. [staðlaða framvirka samninga og valrétti (vilnanir)],1)
   d. gengisbundin bréf og vaxtabréf og
   e. verðbréf.
   8. [Þátttöku í útboðum verðbréfa og þjónustustarfsemi sem tengist slíkum útboðum.]1)
   9. [Ráðgjafar til fyrirtækja um fjármagnsskipan, áætlanagerð og skyld mál og ráðgjafar og þjónustu varðandi samruna fyrirtækja og kaup á þeim.]1)
   10. Peningamiðlunar.
   11. [Eignastýringar og ráðgjafar.]3)
   12. Vörslu og [umsýslu]3) verðbréfa.
   13. Upplýsinga um lánstraust (lánshæfi).
   14. Útleigu geymsluhólfa.
   [15. Útgáfu rafeyris.]4)
[Viðskiptabönkum og sparisjóðum er skylt að veita þjónustu skv. 1. og 2. tölul. 1. mgr.]1)
Starfsemi lánafyrirtækja getur tekið til 1.–[15. tölul.]1) 1. mgr. að því undanskildu að lánafyrirtækjum er óheimilt að taka á móti innlánum.
[Viðskiptabankar, sparisjóðir með stofnframlag skv. 1. mgr. 14. gr. og lánafyrirtæki geta haft heimildir til fjárfestingarþjónustu og fjárfestingarstarfsemi og viðbótarþjónustu samkvæmt lögum um markaði fyrir fjármálagerninga.]1)
[Lánastofnunum sem ekki er heimilt að eiga viðskipti fyrir eigin reikning skv. 7. tölul. 1. mgr. er þrátt fyrir það heimilt að fjárfesta í fjármálagerningum utan veltubókar í því skyni að ávaxta eigið fé sitt.]1)
   1)L. 38/2022, 28. gr. 2)L. 120/2011, 81. gr. 3)L. 96/2016, 12. gr. 4)L. 57/2015, 7. gr.
21. gr. Önnur þjónustustarfsemi og hliðarstarfsemi.
[Lánastofnunum]1) er heimilt að sinna annarri þjónustustarfsemi sem er í eðlilegum tengslum við heimildir þeirra skv. 20. gr.
Auk þjónustu skv. 20. gr. er [lánastofnunum]1) heimilt að stunda hliðarstarfsemi, enda sé hún í eðlilegu framhaldi af fjármálaþjónustu fyrirtækisins. Ákvæði 1. málsl. þessarar málsgreinar tekur einnig til þess þegar fjármálafyrirtæki á eignarhlut í eða er þátttakandi í annarri atvinnustarfsemi. Senda skal tilkynningu til Fjármálaeftirlitsins ef fyrirhugað er að stunda starfsemi samkvæmt þessari málsgrein. Með slíkri tilkynningu skulu fylgja upplýsingar um hina fyrirhuguðu starfsemi sem Fjármálaeftirlitið metur fullnægjandi. Hafi Fjármálaeftirlitið ekki gert athugasemd við hina fyrirhuguðu starfsemi innan eins mánaðar frá því að fullnægjandi tilkynning berst skal litið svo á að heimilt sé að hefja starfsemina. Fjármálaeftirlitið getur krafist þess að starfsemin sé stunduð í sérstöku félagi, en skal þá tilkynna viðkomandi aðila um þá ákvörðun sína innan fyrrgreinds frests. Sé vanrækt að senda tilkynningu samkvæmt þessari málsgrein getur Fjármálaeftirlitið bannað starfsemina eða krafist þess að hún sé stunduð í sérstöku félagi.
[Lánastofnunum]1) er heimilt samkvæmt sérstökum samningi að fengnu samþykki Fjármálaeftirlitsins að taka að sér að veita póstþjónustu fyrir hönd aðila sem leyfi hefur til að veita slíka þjónustu. [Þeim er enn fremur heimilt að veita þjónustu í umboði annarra, svo sem vátryggingafélaga, lífeyrissjóða og annarra fjármálafyrirtækja, enda telji Fjármálaeftirlitið þá starfsemi hvorki skerða möguleika þeirra til þess að veita þjónustu samkvæmt starfsleyfi sínu né skerða möguleika þess til að hafa eftirlit með starfseminni. Skal Fjármálaeftirlitinu tilkynnt fyrir fram um áform viðkomandi svo að mat þess geti legið fyrir áður en veiting þjónustunnar hefst.]2)
   1)L. 38/2022, 29. gr. 2)L. 76/2009, 1. gr.
22. gr. Tímabundin starfsemi og yfirtaka eigna.
[Lánastofnunum]1) er því aðeins heimilt að stunda aðra starfsemi en þá sem um getur í þessum kafla að það sé tímabundið og í þeim tilgangi að ljúka viðskiptum eða til að endurskipuleggja starfsemi viðskiptaaðila. [Tilkynning, ásamt rökstuðningi, hér að lútandi skal send Fjármálaeftirlitinu. Hafi [lánastofnun],1) eða dótturfélag [hennar],1) þurft að grípa til aðgerða skv. 1. málsl. og tekið yfir a.m.k. 40% eignarhlut í viðskiptaaðila sínum skulu ákvæði [II. og IV. kafla laga um upplýsingaskyldu útgefenda verðbréfa og flöggunarskyldu]2) gilda um viðskiptaaðilann eftir því sem við á. Fjármálaeftirlitinu er heimilt að veita undanþágu frá ákvæði 3. málsl. enda sé fjárhagslegri endurskipulagningu lokið innan sex mánaða frá því að [lánastofnun],1) eða dótturfélag [hennar],1) hóf starfsemina. Fjármálaeftirlitið metur hvort fjárhagsleg skilyrði 1. málsl. séu uppfyllt og skal endurskipulagningu lokið áður en 12 mánuðir eru liðnir frá því að starfsemi skv. 1. málsl. hófst. Fjármálaeftirlitið getur framlengt tímafrest skv. 5. málsl. og skal í umsókn rökstutt hvaða atvik hindra sölu.]3)
[Lánastofnunum]1) er heimilt að yfirtaka eignir til að tryggja fullnustu kröfu. Eignirnar skulu seldar jafnskjótt og hagkvæmt er.
   1)L. 38/2022, 30. gr. 2)L. 115/2021, 148. gr. 3)L. 75/2010, 16. gr.
23. gr. Heimildir til vátryggingastarfsemi.
Viðskiptabönkum, sparisjóðum [[með stofnframlag skv. 1. mgr.]1) 14. gr.]2) og lánafyrirtækjum er heimilt að reka vátryggingafélag í sérstöku félagi.
   1)L. 38/2022, 31. gr. 2)L. 77/2012, 4. gr.
B. …
   1)L. 38/2022, 33. gr.
C. [Eignarhlutir í fyrirtækjum og lánveitingar.]1)
   1)L. 38/2022, 38. gr.
28. gr.1)
   1)L. 38/2022, 34. gr.
[28. gr. a. Takmörkun á stöðutöku viðskiptabanka og sparisjóða.
Beinar og óbeinar stöður kerfislega mikilvægs viðskiptabanka eða sparisjóðs í fjármálagerningum, að frátöldum skuldabréfum utan veltubókar, og hrávörum mega ekki vera svo miklar að samanlögð eiginfjárþörf viðskiptabankans eða sparisjóðsins vegna staðanna samkvæmt viðmiðum sem Fjármálaeftirlitið birtir skv. [3. tölul. 1. mgr. 107. gr. i],1) með tilliti til áhættuþátta sem fjallað er um í [reglugerð (ESB) nr. 575/2013],1) sé umfram 15% af eiginfjárgrunni hans. Með beinni stöðu er átt við eignarhald viðskiptabanka eða sparisjóðs á fjármálagerningi eða hrávöru. Með óbeinni stöðu er átt við að áhætta viðskiptabanka eða sparisjóðs af óhagstæðum breytingum á virði fjármálagernings eða hrávöru sé sambærileg því að hann ætti hana sjálfur. Hlutfallið skal reiknað á samstæðugrunni með dótturfélögum viðskiptabanka eða sparisjóðs.
Fjármálaeftirlitið getur veitt tímabundna undanþágu frá hámarki skv. 1. mgr. ef það þjónar hagsmunum eigenda tryggðra innstæðna eða styður við fjármálastöðugleika.
Seðlabanki Íslands setur reglur2) um framkvæmd þessarar greinar, þar á meðal um hvað telst til óbeinnar stöðu. Í reglunum má kveða á um birtingu upplýsinga um hlutfall skv. 1. mgr.]3)
   1)L. 38/2022, 35. gr. 2)Rgl. 1592/2021. 3)L. 11/2021, 1. gr.
29. gr. Eigin hlutir.
[Samanlagður eignarhlutur fjármálafyrirtækis og dótturfélaga þess má ekki nema hærri fjárhæð að nafnverði en 10% af nafnverði innborgaðs hlutafjár eða stofnfjár fyrirtækisins. Eignist viðkomandi meira af hlutafénu eða stofnfénu vegna lúkningar viðskipta, sbr. 22. gr., skal slíkt tilkynnt Fjármálaeftirlitinu án tafar. Fjármálaeftirlitið getur veitt allt að þriggja mánaða frest til að koma eignarhlutnum niður í lögmælt mark. Um heimildir fjármálafyrirtækis til að eignast eigin hluti gilda að öðru leyti ákvæði VIII. kafla [laga um hlutafélög].1)
Við útreikning skv. 1. málsl. 1. mgr. skal taka tillit til framvirkra kaup- og sölusamninga og annarra afleiðusamninga sem fjármálafyrirtæki hefur gert um eigin hlutabréf.]2)
   1)L. 96/2016, 17. gr. 2)L. 75/2010, 19. gr.
[29. gr. a. [Lánveitingar, þar á meðal til venslaðra aðila.]1)
Fjármálafyrirtæki eða dótturfélögum þess er óheimilt að veita lán sem eru tryggð með veði í hlutabréfum eða stofnfjárbréfum útgefnum af því. Sama gildir um aðra samninga sé undirliggjandi áhætta á eigin bréf. [Seðlabanka Íslands]2) er heimilt að gefa út reglur sem undanskilja tiltekna samninga banni skv. 2. málsl. enda auki þeir ekki útlánaáhættu fjármálafyrirtækis.
[Fjármálafyrirtæki er óheimilt að veita stjórnarmanni, framkvæmdastjóra, lykilstarfsmanni eða þeim sem á virkan eignarhlut í því, og [nánum fjölskyldumeðlimum þeirra eða aðila]1) í nánum tengslum við framangreinda aðila, lán eða aðra fyrirgreiðslu nema gegn traustum tryggingum. Með fyrirgreiðslu er átt við lánveitingu, verðbréfaeign, eignarhluti, veittar ábyrgðir fjármálafyrirtækis, afleiðusamninga og aðrar skuldbindingar gagnvart fjármálafyrirtæki eða lánveitingu til þriðja aðila með tryggingu í fjármálagerningum útgefnum af einum eða fleiri aðilum sem eiga virkan eignarhlut í því eða [nánum fjölskyldumeðlimum þeirra eða aðila]1) í nánum tengslum við þá. Samtala láns og annarrar fyrirgreiðslu sem heimilt er að veita hverjum og einum [aðila og nánum fjölskyldumeðlimum hans og aðila í nánum tengslum við þá]1) skv. 1. málsl. má hæst vera 200 millj. kr. að teknu tilliti til takmarkana [skv. 4. hluta reglugerðar (ESB) nr. 575/2013].3) Viðskipti fjármálafyrirtækis við eigendur virkra eignarhluta, [[stjórnarmenn]3) og nána fjölskyldumeðlimi þeirra],1) eða aðila í nánum tengslum við þá, skulu lúta sömu reglum og viðskipti við almenna viðskiptamenn í sambærilegum viðskiptum. Um viðskipti framkvæmdastjóra og lykilstarfsmanna við fjármálafyrirtækið fer skv. 2. mgr. 57. gr. Takmörkun 1. málsl. á lánum eða öðrum fyrirgreiðslum gildir ekki um lánveitingar til eigenda virkra eignarhluta ef eigandi virks eignarhlutar er ríki eða sveitarfélag. Lán eða fyrirgreiðsla skv. 1. málsl. tekur ekki til innláns í eigu annars fjármálafyrirtækis.
[Seðlabanki Íslands]4) setur reglur5) um útreikning láns eða annarrar fyrirgreiðslu skv. 2. mgr., um hvað teljist til traustrar tryggingar, um hámarksfjárhæðir lána eða annarra fyrirgreiðslna án trygginga …1) og um tryggingar sem heimila að farið sé yfir fjárhæð skv. 2. mgr. Fjármálaeftirlitinu er heimilt að veita undanþágur fyrir því að fara yfir fjárhæð skv. 3. málsl. 2. mgr. í sérstökum tilvikum [og er Seðlabanka Íslands heimilt að kveða nánar á um slík tilvik í reglum skv. 1. málsl.]6)]7)
[Seðlabanki Íslands]4) setur reglur um með hvaða hætti lán sem eru tryggð með hlutabréfum eða stofnfjárbréfum annars fjármálafyrirtækis koma til útreiknings á áhættu- og eiginfjárgrunni og í mati á eiginfjárþörf til að tryggja að ekki sé hætta á að lánveitingin skapi kerfislæga áhættu í fjármálakerfinu. Reglurnar taki einnig til þess með hvaða hætti meta skal lán sem eru tryggð með veði í eignasöfnum, svo sem vörslureikningum og verðbréfasjóðum, sem innihalda hlutabréf eða stofnfjárbréf, hvort sem þau eru útgefin af fjármálafyrirtækinu sjálfu eða öðrum fjármálafyrirtækjum, þannig að samræmist ákvæðum 1. mgr. og 1. málsl. þessarar málsgreinar.
Ákvæði 1. og 2. mgr. gilda um lánveitingar dótturfélaga eftir því sem við á.
[Um lánveitingar til venslaðra aðila, annarra en þeirra sem fjallað er um í 2. og 3. mgr., fer skv. 5. mgr. 107. gr.]1)]8)
   1)L. 96/2016, 18. gr. 2)L. 91/2019, 34. gr. 3)L. 38/2022, 36. gr. 4)L. 91/2019, 36. gr. 5)Rgl. 247/2017. 6)L. 91/2019, 37. gr. 7)L. 57/2015, 9. gr. 8)L. 75/2010, 20. gr.
[29. gr. b – 30. gr. a.1)
   1)L. 38/2022, 37. gr.

V. kafli. Starfsemi fjármálafyrirtækja á milli landa.
A. Starfsemi erlendra fjármálafyrirtækja hér á landi.
31. gr. [Útibú lánastofnana innan EES.]1)
[Erlend lánastofnun, sem hefur staðfestu og starfsleyfi í öðru ríki innan Evrópska efnahagssvæðisins, getur stofnsett útibú hér á landi tveimur mánuðum eftir að Fjármálaeftirlitið hefur fengið tilkynningu um fyrirhugaða starfsemi frá lögbæru yfirvaldi í heimaríki fyrirtækisins. Heimilt er að stofnsetja útibúið fyrr með samþykki Fjármálaeftirlitsins. Útibúinu er heimilt að stunda hverja þá starfsemi sem lög þessi taka til, enda sé hún fyrirtækinu heimil í heimaríki þess. Fjármálaeftirlitið skal upplýsa erlendu lánastofnunina um skilyrði sem starfsemin er háð og sett hafa verið í þágu almannahagsmuna, ef þörf krefur. Svissneskar og færeyskar lánastofnanir geta stofnað útibú með þeim hætti sem segir í þessari málsgrein enda séu sömu kröfur gerðar til þeirra og lánastofnana með staðfestu í ríki innan Evrópska efnahagssvæðisins og gerður hafi verið samstarfssamningur á milli Seðlabanka Íslands og lögbærra svissneskra eða færeyskra yfirvalda.]1)
2)
Fjármálaeftirlitið gengur úr skugga um eftirlit með hinu erlenda fyrirtæki í heimaríkinu, starfsheimildir þess og starfsemi.
Ákvæði [laga um hlutafélög]2) varðandi útibú erlendra hlutafélaga eiga ekki við um útibú skv. 1. mgr.
   1)L. 38/2022, 39. gr. 2)L. 96/2016, 24. gr.
[31. gr. a. Mikilvægt útibú erlends fjármálafyrirtækis á Íslandi.
Starfræki fjármálafyrirtæki með staðfestu í öðru ríki á Evrópska efnahagssvæðinu, annað en verðbréfafyrirtæki skv. 95. gr. reglugerðar (ESB) nr. 575/2013, útibú hér á landi getur Fjármálaeftirlitið lagt fram beiðni til eftirlitsaðila á samstæðugrunni eða lögbærs yfirvalds í heimaríki fjármálafyrirtækisins um að útibúið teljist mikilvægt. Beiðnin skal vera rökstudd, einkum með tilliti til:
   1. Þess hvort hlutur útibúsins í innlánum á Íslandi sé meiri en 2%.
   2. Líklegra áhrifa tímabundinnar stöðvunar eða lokunar á starfsemi fjármálafyrirtækisins á kerfislæga lausafjárstöðu og greiðslu-, greiðslujöfnunar- og uppgjörskerfi á Íslandi.
   3. Stærðar og mikilvægis útibúsins með tilliti til fjölda viðskiptavina innan banka- eða fjármálakerfis Íslands.
Fjármálaeftirlitið skal leitast við að komast að sameiginlegri niðurstöðu með viðkomandi yfirvaldi um hvort útibú teljist mikilvægt. Ef ekki næst sameiginleg niðurstaða innan tveggja mánaða frá móttöku beiðni frá Fjármálaeftirlitinu skv. 1. mgr. skal Fjármálaeftirlitið ákveða innan næstu tveggja mánaða hvort útibúið teljist mikilvægt. Við ákvörðunina skal það taka tillit til skoðana og fyrirvara viðkomandi yfirvalds. Fjármálaeftirlitið skal rökstyðja ákvörðunina og senda viðkomandi yfirvaldi.
Hafi lögbært yfirvald fjármálafyrirtækis með staðfestu í öðru ríki á Evrópska efnahagssvæðinu sem starfrækir mikilvægt útibú hér á landi ekki haft samráð við Fjármálaeftirlitið um ráðstafanir fyrirtækisins til að tryggja að viðbragðsáætlun til að bregðast við lausafjárvanda geti komið til tafarlausra framkvæmda þegar það hefur þýðingu fyrir lausafjáráhættu í íslenskum krónum, eða ef Fjármálaeftirlitið telur ráðstafanirnar ekki fullnægjandi, getur Fjármálaeftirlitið vísað málinu til Evrópsku bankaeftirlitsstofnunarinnar eða Eftirlitsstofnunar EFTA, eftir því sem við á, til samræmis við 19. gr. reglugerðar (ESB) nr. 1093/2010, sbr. lög um evrópskt eftirlitskerfi á fjármálamarkaði.]1)
   1)L. 38/2022, 40. gr.
32. gr. [Þjónusta lánastofnunar innan EES án stofnunar útibús.]1)
[Erlendri lánastofnun],1) sem hefur staðfestu og starfsleyfi í öðru ríki innan Evrópska efnahagssvæðisins, er heimilt að veita þjónustu samkvæmt lögum þessum hér á landi án stofnunar útibús. Ekki er heimilt að hefja slíka þjónustu fyrr en Fjármálaeftirlitið hefur fengið tilkynningu þar að lútandi frá lögbærum yfirvöldum í heimaríki fyrirtækisins. Heimildir til að veita þjónustu hér á landi erlendis frá samkvæmt þessari grein verða þó aldrei víðtækari en starfsheimildir fyrirtækisins í heimaríki þess. [[Svissneskar og færeyskar lánastofnanir]1) geta veitt þjónustu samkvæmt þessari grein enda séu sömu kröfur gerðar til þeirra og [lánastofnana]1) með staðfestu í ríki innan Evrópska efnahagssvæðisins og gerður hafi verið samstarfssamningur á milli [Seðlabanka Íslands]2) og lögbærra svissneskra eða færeyskra yfirvalda.]3)
   1)L. 38/2022, 41. gr. 2)L. 91/2019, 38. gr. 3)L. 108/2006, 77. gr.
[32. gr. a. Þjónusta eða stofnun útibús hjá fjármálastofnun innan EES.
Erlend fjármálastofnun, sem er dótturfélag lánastofnunar eða sameiginlegt dótturfélag tveggja eða fleiri lánastofnana og hefur staðfestu í öðru ríki innan Evrópska efnahagssvæðisins, og dótturfélag slíkrar fjármálastofnunar getur stofnsett útibú hér á landi eða veitt þjónustu hér á landi án stofnunar útibús sem fyrirtækinu er heimil í heimaríki þess. Svissneskar og færeyskar fjármálastofnanir og dótturfélög þeirra geta stofnað útibú eða veitt þjónustu án stofnunar útibús með þeim hætti sem segir í þessari grein enda séu sömu kröfur gerðar til þeirra og fjármálastofnana eða dótturfélaga þeirra með staðfestu í ríki innan Evrópska efnahagssvæðisins og gerður hafi verið samstarfssamningur á milli Seðlabanka Íslands og lögbærra svissneskra eða færeyskra yfirvalda.
Heimild skv. 1. mgr. er háð því að eftirtalin skilyrði séu uppfyllt og að Fjármálaeftirlitinu hafi borist staðfesting lögbærs yfirvalds í heimaríki móðurfélags eða -félaga þess efnis:
   1. Fjármálastofnunin lýtur lögum annars aðildarríkis og móðurfélagið eða -félögin hafa starfsleyfi sem lánastofnanir í sama aðildarríki.
   2. Umrædd starfsemi fer í reynd fram á yfirráðasvæði þessa sama aðildarríkis.
   3. Móðurfélagið eða -félögin fara með a.m.k. 90% af atkvæðamagni því sem fylgir hlutum í fjármálastofnuninni.
   4. Móðurfélagið eða -félögin uppfylla kröfur Fjármálaeftirlitsins um heilbrigða og trausta stjórnun fjármálastofnunarinnar og hafa jafnframt lýst því yfir, með samþykki lögbærra yfirvalda í heimaríki þeirra, að þau beri óskipta ábyrgð á þeim skuldbindingum sem fjármálastofnunin stofnar til.
   5. Dótturfélagið heyrir undir eftirlit á samstæðugrunni sem móðurfélagið eða sérhvert móðurfélaganna lýtur til samræmis við 3. kafla VII. bálks tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 2013/36/ESB og 2. kafla II. bálks 1. hluta reglugerðar (ESB) nr. 575/2013, einkum hvað snertir eiginfjárkröfur skv. 92. gr., stórar áhættuskuldbindingar skv. 4. hluta og virka eignarhluti utan fjármálageirans skv. 89. og 90. gr. reglugerðarinnar.
Ákvæði laga um hlutafélög varðandi útibú erlendra hlutafélaga eiga ekki við um útibú skv. 1. mgr.]1)
   1)L. 38/2022, 42. gr.
33. gr. [Útibú lánastofnana utan EES.
Fjármálaeftirlitið getur heimilað lánastofnun með staðfestu í ríki utan Evrópska efnahagssvæðisins að opna útibú hér á landi. Skilyrði fyrir veitingu slíks leyfis er að fyrirtækið hafi leyfi til að stunda starfsemi í heimaríki sínu hliðstæða þeirri sem það hyggst stunda hér á landi og að sú starfsemi sé háð sambærilegu eftirliti í heimaríkinu.
Útibú lánastofnunar með staðfestu í ríki utan Evrópska efnahagssvæðisins skal a.m.k. árlega veita Fjármálaeftirlitinu upplýsingar um:
   1. Heildareignir sem svara til starfsemi útibúsins.
   2. Aðgengi útibúsins að lausafjáreignum, einkum í íslenskum krónum.
   3. Eiginfjárgrunn sem er til umráða fyrir útibúið.
   4. Innstæðutryggingakerfi sem stendur eigendum innstæðna hjá útibúinu til boða.
   5. Áhættustýringu útibúsins.
   6. Stjórnarhætti útibúsins og lykilstarfsmenn.
   7. Endurbótaáætlanir sem útibúið heyrir undir.
   8. Annað sem Fjármálaeftirlitið telur nauðsynlegt til að hafa heildstætt eftirlit með starfsemi útibúsins.
Fjármálaeftirlitið skal upplýsa Evrópsku bankaeftirlitsstofnunina um:
   1. Leyfi sem það veitir lánastofnunum með staðfestu í ríkjum utan Evrópska efnahagssvæðisins til að opna útibú hér á landi og breytingar á áður veittum leyfum.
   2. Heildareignir og -skuldir útibúa lánastofnana með staðfestu í ríkjum utan Evrópska efnahagssvæðisins hér á landi.
   3. Heiti þriðjaríkissamstæðna sem útibú tilheyra.]1)
   1)L. 38/2022, 43. gr.
34. gr. [Úrræði vegna starfsemi erlendra lánastofnana.
Fjármálaeftirlitinu er heimilt að krefja erlendar lánastofnanir sem hafa útibú á Íslandi um skýrslu með reglulegu millibili um starfsemi sína á Íslandi í þeim tilgangi að afla upplýsinga eða tölfræði eða vegna framkvæmdar ákvæða laga þessara um mikilvæg útibú, einkum til að meta hvort útibú sé mikilvægt, eða eftirlits samkvæmt þessari grein. Fjármálaeftirlitinu er heimilt að krefja útibú erlendra lánastofnana með heimild til að veita fjárfestingarþjónustu eða stunda fjárfestingarstarfsemi um allar nauðsynlegar upplýsingar til að meta hvort útibúið fylgi viðeigandi reglum um fjárfestavernd og gegnsæi viðskipta.
Ef Fjármálaeftirlitið hefur, á grundvelli upplýsinga frá lögbæru yfirvaldi í heimaríki erlendrar lána- eða fjármálastofnunar með starfsemi hérlendis, hvort sem er með eða án útibús, rökstudda ástæðu til að ætla að hún brjóti gegn ákvæðum laga þessara eða annarra laga, eða að veruleg hætta sé á því, skal Fjármálaeftirlitið gera lögbæra yfirvaldinu í heimaríkinu aðvart. Ef lögbæra yfirvaldið í heimaríkinu grípur ekki til fullnægjandi ráðstafana til að stöðva ólögmæta háttsemi fyrirtækisins eða Fjármálaeftirlitið telur að yfirvaldið muni ekki gera það getur Fjármálaeftirlitið leitað aðstoðar Evrópsku bankaeftirlitsstofnunarinnar eða Eftirlitsstofnunar EFTA, eftir því sem við á, til samræmis við 19. gr. reglugerðar (ESB) nr. 1093/2010, sbr. lög um evrópskt eftirlitskerfi á fjármálamarkaði.
Áður en ferli skv. 2. mgr. er lokið er Fjármálaeftirlitinu heimilt að grípa til bráðabirgðaaðgerða ef brýna nauðsyn ber til í því skyni að viðhalda fjármálastöðugleika til að verja verulega heildarhagsmuni innlánseigenda, fjárfesta og viðskiptamanna lánastofnunar á Íslandi. Þær geta falið í sér frestanir á greiðslum enda feli þær ekki í sér að lánardrottnar lánastofnunar hér á landi njóti betri meðferðar en lánardrottnar í öðrum aðildarríkjum. Fjármálaeftirlitið skal fella bráðabirgðaaðgerðir úr gildi þegar þeirra er ekki lengur þörf eða ef yfirvöld í heimaríki lánastofnunarinnar taka ákvörðun um endurskipulagningu fjárhags hennar. Fjármálaeftirlitið skal upplýsa Eftirlitsstofnun EFTA, Evrópsku bankaeftirlitsstofnunina og lögbær yfirvöld hlutaðeigandi aðildarríkja um bráðabirgðaaðgerðir samkvæmt þessari málsgrein án ástæðulausrar tafar.
Fjármálaeftirlitinu er heimilt að banna erlendri lánastofnun að stunda starfsemi hér á landi hafi hlutaðeigandi fyrirtæki brotið gróflega eða ítrekað gegn ákvæðum laga þessara eða samþykktum og reglum settum samkvæmt þeim eða gegn ákvæðum annarra laga um fjármálafyrirtæki, enda hafi ekki tekist að binda enda á framangreind brot með úrræðum samkvæmt lögum þessum.
Ef erlend lánastofnun sem hefur starfsemi hérlendis er svipt starfsleyfi skal Fjármálaeftirlitið grípa til viðeigandi ráðstafana til að koma í veg fyrir að fyrirtækið stundi frekari viðskipti hérlendis og vernda hagsmuni innlánseigenda.
Um málsmeðferð samkvæmt þessari grein fer eftir ákvæðum samnings um Evrópska efnahagssvæðið eftir því sem við á.]1)
   1)L. 38/2022, 44. gr.
35. gr. Reglugerð.
[Ráðherra getur sett reglugerð um heimildir erlendra lánastofnana til starfsemi hér á landi og innlendra lánastofnana erlendis. Í reglugerðinni má m.a. kveða á um eftirlit með og nánari kröfur til útibúa og umboðsskrifstofa erlendra lánastofnana, um heimildir fjármálastofnana og dótturfélaga lánastofnana til að stunda fjármálastarfsemi hér á landi og um heimildir innlendra fjármálastofnana til að stunda fjármálastarfsemi erlendis.]1)
   1)L. 38/2022, 45. gr.
B. Starfsemi innlendra fjármálafyrirtækja erlendis.
36. gr. Tilkynning um stofnun útibús.
[[Innlendar lánastofnanir]1) sem hyggjast starfrækja útibú í öðru ríki á Evrópska efnahagssvæðinu, í aðildarríki Fríverslunarsamtaka Evrópu eða Færeyjum skulu tilkynna það Fjármálaeftirlitinu fyrir fram.]2)
Tilkynningu skv. 1. mgr. skulu fylgja upplýsingar um í hvaða ríki fyrirhugað sé að stofna útibú, lýsing á …1) skipulagi þess og fyrirhugaðri starfsemi og upplýsingar um heimilisfang útibúsins og nöfn stjórnenda þess.
[Ef Fjármálaeftirlitið bannar ekki stofnun útibús skv. 4. mgr. skal það eigi síðar en þremur mánuðum frá því að því bárust upplýsingar skv. 2. mgr. senda þær til lögbærra yfirvalda gistiríkis. Jafnframt skal Fjármálaeftirlitið senda lögbærum yfirvöldum gistiríkis upplýsingar um fjárhæð og samsetningu eiginfjárgrunns fyrirtækisins og eiginfjárkröfur til þess skv. 92. gr. reglugerðar (ESB) nr. 575/2013.]1) Hlutaðeigandi fyrirtæki skal samtímis tilkynnt að framangreindar upplýsingar hafi verið sendar.
Fjármálaeftirlitið getur bannað stofnun útibús skv. 1. mgr. ef það hefur réttmæta ástæðu til að ætla að [stjórnun eða fjárhagsstaða]3) hlutaðeigandi [lánastofnunar]1) sé ekki nægilega traust. Fyrirtækinu skal tilkynnt afstaða Fjármálaeftirlitsins svo fljótt sem auðið er og eigi síðar en þremur mánuðum frá móttöku fullnægjandi upplýsinga skv. 2. mgr. [Fjármálaeftirlitið skal tilkynna Eftirlitsstofnun EFTA og Evrópsku bankaeftirlitsstofnuninni um slík bönn.]1)
[Lánastofnun]1) skal tilkynna Fjármálaeftirlitinu [og lögbærum yfirvöldum þess ríkis þar sem hún starfrækir útibú skriflega]1)4) um hverjar þær breytingar sem kunna að verða á áður veittum upplýsingum skv. 2. mgr. eigi síðar en einum mánuði áður en fyrirhugaðar breytingar koma til framkvæmda. …1) [Jafnframt skal tilkynna Fjármálaeftirlitinu um fyrirhugaða lokun útibúsins innan framangreinds frests.]3)
   1)L. 38/2022, 46. gr. 2)L. 108/2006, 78. gr. 3)L. 75/2010, 22. gr. 4)L. 47/2013, 5. gr.
[36. gr. a. Mikilvægt útibú innan EES.
Fjármálaeftirlitið skal viðurkenna og fara eftir ákvörðun lögbærs yfirvalds í öðru aðildarríki um að útibú íslensks fjármálafyrirtækis í því ríki teljist mikilvægt.
Fjármálaeftirlitið skal:
   1. Láta lögbæru yfirvaldi mikilvægs útibús íslensks fjármálafyrirtækis í té upplýsingar skv. 4. og 5. tölul. 1. mgr. 109. gr. x og eiga í samstarfi við yfirvaldið við framkvæmd 3. tölul. 1. mgr. 109. gr. c.
   2. Láta lögbæra yfirvaldinu í té upplýsingar um niðurstöður mats á áhættu fyrirtækisins skv. 80. gr. og, eftir atvikum, 109. gr. d að því marki sem þær varða viðkomandi útibú.
   3. Tilkynna lögbæra yfirvaldinu um ákvarðanir sem Fjármálaeftirlitið tekur skv. 3. mgr. 107. gr. a að því marki sem þær varða viðkomandi útibú.
   4. Eiga samráð við lögbæra yfirvaldið um ráðstafanir fyrirtækisins skv. 9. mgr. 78. gr. h til að tryggja að viðbragðsáætlun til að bregðast við lausafjárvanda geti komið til tafarlausra framkvæmda þegar það hefur þýðingu fyrir lausafjáráhættu í gjaldeyri þess aðildarríkis þar sem útibúið er.
Fjármálaeftirlitið skal koma á fót og stýra samstarfshópi með lögbærum yfirvöldum sem hafa eftirlit með mikilvægum útibúum íslensks fjármálafyrirtækis í öðrum aðildarríkjum til þess að greiða fyrir samstarfi skv. 2. mgr. og 109. gr. v, enda eigi 109. gr. j ekki við. Fjármálaeftirlitið skal í samráði við önnur lögbær yfirvöld í starfshópnum setja skrifleg viðmið um vinnutilhögun hans. Fjármálaeftirlitið stýrir fundum samstarfshóps og boðar til hans þau yfirvöld sem hann varðar. Það skal tilkynna öllum meðlimum samstarfshóps fyrir fram um fundi með dagskrá. Fjármálaeftirlitið skal svo fljótt sem auðið er upplýsa meðlimi samstarfshóps um ákvarðanir sem teknar eru á fundum og til hvaða aðgerða er gripið.]1)
   1)L. 38/2022, 47. gr.
37. gr. Tilkynning um þjónustu án stofnunar útibús.
[Hyggist [lánastofnun]1) veita þjónustu samkvæmt þessum lögum í öðru ríki á Evrópska efnahagssvæðinu, í aðildarríki Fríverslunarsamtaka Evrópu eða Færeyjum, án stofnunar útibús, skal tilkynna það Fjármálaeftirlitinu fyrir fram.]2) [Í tilkynningu skal koma fram hvaða ríki á í hlut og í hverju fyrirhuguð starfsemi sé fólgin, og þegar [lánastofnun]1) hyggst veita þjónustu á grundvelli laga [um markaði fyrir fjármálagerninga]3) skal tilkynna um það hvort fyrirtæki hyggst nota fasta umboðsmenn.]4)
Eigi síðar en einum mánuði frá móttöku tilkynningar skv. 1. mgr. framsendir Fjármálaeftirlitið tilkynninguna til lögbærra [yfirvalda]1) í viðkomandi ríki ásamt staðfestingu á því að starfsleyfi [lánastofnunarinnar]1) heimili fyrirhugaða starfsemi.
Fjármálaeftirlitið getur lagt bann við starfsemi samkvæmt þessari grein ef það hefur réttmæta ástæðu til að ætla að [stjórnun eða fjárhagsstaða]5) hlutaðeigandi [lánastofnunar]1) sé ekki nægilega traust. Fyrirtækinu skal tilkynnt afstaða Fjármálaeftirlitsins svo fljótt sem auðið er.
Breytingar á áður tilkynntum atriðum samkvæmt þessari grein skulu tilkynntar Fjármálaeftirlitinu …6) eigi síðar en einum mánuði áður en þær koma til framkvæmda. [Fjármálaeftirlitið skal tilkynna lögbærum yfirvöldum þess ríkis þar sem [lánastofnunin]1) veitir þjónustu um breytingar á áður veittum upplýsingum.]6)
   1)L. 38/2022, 48. gr. 2)L. 108/2006, 79. gr. 3)L. 115/2021, 148. gr. 4)L. 57/2015, 11. gr. 5)L. 75/2010, 23. gr. 6)L. 47/2013, 6. gr.
[37. gr. a. Tilkynning um stofnun útibús eða þjónustu fjármálastofnunar án stofnunar útibús.
Innlend fjármálastofnun sem er dótturfélag lánastofnunar eða sameiginlegt dótturfélag tveggja eða fleiri lánastofnana sem hyggst starfrækja útibú eða veita þjónustu án stofnunar útibús samkvæmt lögum þessum í öðru ríki á Evrópska efnahagssvæðinu, í aðildarríki Fríverslunarsamtaka Evrópu eða Færeyjum skal tilkynna það Fjármálaeftirlitinu fyrir fram. Sama gildir um dótturfélag slíkrar fjármálastofnunar.
Tilkynningu skv. 1. mgr. skulu fylgja upplýsingar skv. 2. mgr. 36. gr. ef til stendur að starfrækja útibú en upplýsingar skv. 2. málsl. 1. mgr. 37. gr. ef til stendur að veita þjónustu án stofnunar útibús.
Fjármálaeftirlitið skal sannreyna hvort þeim skilyrðum sem um getur í 1. mgr. 32. gr. a sé fullnægt og láta fjármálastofnuninni eða dótturfélaginu í té staðfestingu þar að lútandi. Ef skilyrðunum er fullnægt skal Fjármálaeftirlitið jafnframt tilkynna lögbærum yfirvöldum hlutaðeigandi ríkis um fjárhæð og samsetningu eiginfjárgrunns fjármálastofnunarinnar og fjárhæð áhættugrunns lánastofnunar sem er móðurfélag fjármálastofnunarinnar, eins og áhættugrunnurinn er reiknaður skv. 3. og 4. mgr. 92. gr. reglugerðar (ESB) nr. 575/2013.
Fjármálaeftirlitið getur bannað starfsemi skv. 1. mgr. ef það hefur réttmæta ástæðu til að ætla að stjórnun eða fjárhagsstaða hlutaðeigandi fjármálastofnunar eða dótturfélags hennar sé ekki nægilega traust. Fyrirtækinu skal tilkynnt afstaða Fjármálaeftirlitsins svo fljótt sem auðið er.
Breytingar á áður tilkynntum atriðum samkvæmt þessari grein skulu tilkynntar Fjármálaeftirlitinu eigi síðar en einum mánuði áður en þær koma til framkvæmda. Fjármálaeftirlitið skal tilkynna lögbærum yfirvöldum þess ríkis þar sem fjármálastofnunin eða dótturfélag hennar veitir þjónustu um breytingar á áður veittum upplýsingum.]1)
   1)L. 38/2022, 49. gr.
38. gr. Starfsemi utan EES.
Hyggist [lánastofnun]1) hefja starfsemi í ríki utan Evrópska efnahagssvæðisins skal það tilkynnt Fjármálaeftirlitinu fyrir fram ásamt lýsingu á fyrirhugaðri starfsemi og öðrum upplýsingum sem Fjármálaeftirlitið telur nauðsynlegar þar að lútandi.
Fjármálaeftirlitið getur bannað starfsemi skv. 1. mgr. ef það hefur réttmæta ástæðu til að ætla að [stjórnun eða fjárhagsstaða]2) hlutaðeigandi [lánastofnunar]1) sé ekki nægilega traust. Fyrirtækinu skal tilkynnt afstaða Fjármálaeftirlitsins svo fljótt sem auðið er.
   1)L. 38/2022, 50. gr. 2)L. 75/2010, 24. gr.
39. gr. Kaup á hlutum í erlendu fjármálafyrirtæki.
[Hyggist lánastofnun]1) kaupa eða fara með virkan eignarhlut í erlendu fjármálafyrirtæki skal það tilkynnt Fjármálaeftirlitinu fyrir fram. Fjármálaeftirlitið getur lagt bann við slíku [ef erlenda fjármálafyrirtækið er utan Evrópska efnahagssvæðisins og réttmæt ástæða er]2) til að ætla að upplýsingagjöf með starfseminni eða samstæðunni verði ekki nægilega [traust eða eftirlit]3) með henni torveldað. Fyrirtækinu skal tilkynnt afstaða Fjármálaeftirlitsins svo fljótt sem auðið er …1)
   1)L. 38/2022, 51. gr. 2)L. 115/2021, 148. gr. 3)L. 75/2010, 25. gr.
[39. gr. a. Ráðstafanir vegna brota.
Ef lögbært yfirvald í öðru aðildarríki þar sem íslenskt fjármálafyrirtæki eða fjármálastofnun er með starfsemi tilkynnir Fjármálaeftirlitinu um að það hafi rökstudda ástæðu til að ætla að fyrirtækið brjóti gegn ákvæðum laga eða stjórnvaldsfyrirmæla sem innleiða tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2013/36/ESB eða reglugerð (ESB) nr. 575/2013, eða að veruleg hætta sé á því, skal Fjármálaeftirlitið tafarlaust gera ráðstafanir til að tryggja að fyrirtækið fari eftir ákvæðunum. Fjármálaeftirlitið skal tilkynna lögbæra yfirvaldinu um ráðstafanirnar.]1)
   1)L. 38/2022, 52. gr.

VI. kafli. Eignarhlutir og meðferð þeirra.
[A. Virkir eignarhlutir í lánastofnunum.]1)
   1)L. 38/2022, 66. gr.
40. gr. [Tilkynning til Fjármálaeftirlitsins.
Aðili sem hyggst eignast, einn sér eða í samstarfi við aðra, virkan eignarhlut í lánastofnun skal tilkynna Fjármálaeftirlitinu fyrir fram um áform sín. Hið sama á við hyggist aðili, einn sér eða í samstarfi við aðra, auka svo við virkan eignarhlut sinn að hlutafé, stofnfé eða atkvæðisréttur hans nái eða fari yfir 20%, 30% eða 50% eða nemi svo stórum hluta að lánastofnun verði talin dótturfélag hans.
Með virkum eignarhlut er átt við beina eða óbeina hlutdeild í lánastofnun sem nemur 10% eða meira af hlutafé, stofnfé eða atkvæðisrétti, eða aðra hlutdeild sem gerir kleift að hafa veruleg áhrif á stjórnun viðkomandi lánastofnunar. Við mat á því hvort hlutdeild í lánastofnun feli í sér virkan eignarhlut skal atkvæðisréttur ákvarðaður til samræmis við III. kafla laga um upplýsingaskyldu útgefenda verðbréfa og flöggunarskyldu, nr. 20/2021, eftir því sem við getur átt. Ekki skal telja með hlutafé, stofnfé eða atkvæðisrétt sem fjármálafyrirtæki á vegna sölutryggingar í tengslum við útgáfu fjármálagerninga og/eða útboð fjármálagerninga skv. f-lið 16. tölul. 1. mgr. 4. gr. laga um markaði fyrir fjármálagerninga, nr. 115/2021, enda séu þessi réttindi ekki nýtt eða notuð á annan hátt til að hlutast til um stjórnun útgefandans og ráðstafað innan árs frá öflun.
Samstarf skal vera talið á milli aðila ef þeir hafa gert með sér samkomulag um að einn eða fleiri saman nái virkum eignarhlut í lánastofnun, hvort sem samkomulagið er formlegt eða óformlegt, skriflegt, munnlegt eða með öðrum hætti. Samstarf skal alltaf talið vera fyrir hendi þegar um eftirfarandi tengsl er að ræða, nema sýnt sé fram á hið gagnstæða:
   1. Hjón, aðilar í skráðri sambúð og börn hjóna eða aðila í skráðri sambúð. Foreldrar og börn teljast enn fremur aðilar í samstarfi.
   2. Tengsl milli aðila sem fela í sér bein eða óbein yfirráð annars aðilans yfir hinum eða ef tvö eða fleiri félög eru beint eða óbeint undir yfirráðum sama aðila. Taka skal tillit til tengsla aðila skv. 1., 3. og 4. tölul.
   3. Félög sem aðili á með beinum eða óbeinum hætti verulegan eignarhlut í, þ.e. aðili á með beinum eða óbeinum hætti a.m.k. 20% hluta atkvæðisréttar í viðkomandi félagi. Félag, móðurfélag þess, dótturfélög og systurfélög teljast í samstarfi. Taka skal tillit til tengsla aðila skv. 1., 2. og 4. tölul.
   4. Tengsl á milli félags og stjórnarmanna þess og félags og framkvæmdastjóra þess.]1)
   1)L. 38/2022, 53. gr.
[40. gr. a.1)]2)
   1)L. 75/2010, 27. gr. 2)L. 67/2006, 12. gr.
41. gr. [Upplýsingar í tilkynningu.
[Tilkynning til Fjármálaeftirlitsins skv. 40. gr. skal vera skrifleg og henni skulu fylgja upplýsingar um eftirfarandi]:1)
   1. Nafn og heimili þess sem hyggst eignast eða auka við virkan eignarhlut.
   2. Nafn [þeirrar lánastofnunar]1) sem fyrirhugað er að fjárfesta í.
   3. Stærð þess hlutar eða atkvæðisréttar sem fyrirhugað er að fjárfesta í.
   4. Áform um breytingar á verkefnum eða stjórnendum [lánastofnunar].1)
   5. Fjármögnun fjárfestingarinnar.
   6. Fjárhagsstaða þess sem hyggst eignast eða auka við virkan eignarhlut.
   7. Núverandi og fyrirhuguð viðskiptatengsl þess sem hyggst eignast eða auka við virkan eignarhlut við hlutaðeigandi [lánastofnun].1)
   8. Reynsla þess sem hyggst eignast eða auka við virkan eignarhlut af fjármálastarfsemi.
   9. Eignarhald, stjórnarseta eða önnur þátttaka þess sem hyggst eignast eða auka við virkan eignarhlut í starfsemi annarra lögaðila.
   10. Refsingar sem sá sem hyggst eignast eða auka við virkan eignarhlut hefur verið dæmdur til að sæta og hvort viðkomandi sæti rannsókn.
   11. Náin tengsl þess sem hyggst eignast eða auka við virkan eignarhlut við aðra lögaðila.
   12. [Annað sem Fjármálaeftirlitið telur nauðsynlegt og skal fylgja tilkynningu samkvæmt tilmælum sem það hefur birt opinberlega.]1)
Sé sá sem hyggst eignast eða auka við virkan eignarhlut lögaðili skulu upplýsingar skv. 1. mgr. eiga við um lögaðilann sjálfan, stjórnarmenn hans, framkvæmdastjóra og þá einstaklinga og lögaðila sem eiga virkan eignarhlut í lögaðilanum. Skal þá enn fremur upplýst um endurskoðanda lögaðilans. …1) Fjármálaeftirlitinu er heimilt að veita undanþágur frá skilum á upplýsingum þessum hafi lögaðili ekki tök á að afla þeirra eða ef sá sem hyggst eignast eða auka við virkan eignarhlut lýtur opinberu fjármálaeftirliti í öðru ríki og unnt er að afla sambærilegra upplýsinga frá eftirlitsstjórnvaldi þess ríkis. Sama á við ef aðilinn lýtur eftirliti Fjármálaeftirlitsins.
[Fjármálaeftirlitið getur krafist þess að upplýsingar samkvæmt þessari grein séu studdar gögnum.]1)]2)
   1)L. 38/2022, 54. gr. 2)L. 75/2010, 28. gr.
42. gr. [Matstímabil.
Eigi síðar en tveimur virkum dögum eftir móttöku tilkynningar skv. 40. gr., sbr. 41. gr., skal Fjármálaeftirlitið staðfesta skriflega móttöku hennar. Hið sama á við um móttöku viðbótarupplýsinga skv. 2. mgr. Í staðfestingu skal koma fram fyrir hvaða dag megi vænta niðurstöðu Fjármálaeftirlitsins.
Telji Fjármálaeftirlitið að afla þurfi ítarlegri upplýsinga en þeirra sem upp eru taldar í 1. mgr. 41. gr. frá þeim sem hyggst eignast eða auka við virkan eignarhlut getur það skriflega krafið viðkomandi um þær. Slík krafa skal sett fram eigi síðar en fimmtíu virkum dögum eftir staðfestingu á móttöku tilkynningar.
Fjármálaeftirlitið hefur sextíu virka daga frá staðfestingu á móttöku tilkynningar með upplýsingum skv. 41. gr. til þess að meta hvort það telur þann sem hyggst eignast eða auka við virkan eignarhlut hæfan til að fara með eignarhlutinn. Sé óskað eftir viðbótarupplýsingum frá viðkomandi, sbr. 2. mgr., bætist bið eftir upplýsingum við dagafjölda skv. 1. málsl., þó ekki umfram tuttugu virka daga, eða þrjátíu virka daga ef sá sem hyggst eignast eða auka við virkan eignarhlut er staðsettur í ríki utan Evrópska efnahagssvæðisins eða lýtur ekki opinberu fjármálaeftirliti innan Evrópska efnahagssvæðisins. Fjármálaeftirlitinu er heimilt að óska aftur eftir frekari upplýsingum. Slík beiðni lengir ekki framangreinda tímafresti.
Liggi niðurstaða Fjármálaeftirlitsins ekki fyrir innan matstímabils skv. 3. mgr. skal litið svo á að Fjármálaeftirlitið geri ekki athugasemdir við fyrirætlanir þess sem hyggst eignast eða auka við virkan eignarhlut í hlutaðeigandi lánastofnun.]1)
   1)L. 38/2022, 55. gr.
[42. gr. a. Mat á hæfi.
Fjármálaeftirlitið leggur mat á hvort sá sem hyggst eignast eða auka við virkan eignarhlut sé hæfur til að eiga eignarhlutinn með tilliti til heilbrigðs og trausts reksturs lánastofnunar og líklegra áhrifa hans á lánastofnunina og hvort fjármögnun fyrirhugaðs virks eignarhlutar sé traust. Skal mat Fjármálaeftirlitsins grundvallast á öllum eftirfarandi atriðum:
   1. Orðspori þess sem hyggst eignast eða auka við virkan eignarhlut.
   2. Orðspori, þekkingu, hæfni og reynslu stjórnarmanna og framkvæmdastjóra lánastofnunarinnar komi til hinna fyrirhuguðu kaupa eða aukningar virks eignarhlutar.
   3. Fjárhagslegu heilbrigði þess sem hyggst eignast eða auka við virkan eignarhlut í fjármálafyrirtækinu, einkum með tilliti til þess reksturs sem lánastofnunin hefur, eða mun hafa, með höndum.
   4. Hvort ætla megi að eignarhald þess sem hyggst eignast eða auka við virkan eignarhlut muni hafa áhrif á hvort hlutaðeigandi lánastofnun muni fylgja varfærniskröfum samkvæmt lögum og reglum sem um starfsemi hennar gilda. Við mat á því skal m.a. horft til þess hvort staða lánastofnunarinnar í samstæðu félaga sem hún mun tilheyra kunni að mati Fjármálaeftirlitsins að hindra eðlilegar eftirlitsaðgerðir, upplýsingaskipti við önnur lögbær yfirvöld eða skiptingu ábyrgðar milli lögbærra yfirvalda.
   5. Hvort ætla megi að fyrirhugað eignarhald tengist peningaþvætti eða fjármögnun hryðjuverka, eða tilraun til slíks athæfis, eða geti aukið líkur á slíku athæfi innan hlutaðeigandi lánastofnunar.
Ef sá sem hyggst eignast eða auka við virkan eignarhlut er fjármálafyrirtæki, vátryggingafélag eða rekstrarfélag verðbréfasjóða með starfsleyfi í öðru aðildarríki eða móðurfélag slíks aðila eða einstaklingur eða lögaðili sem hefur yfirráð yfir slíkum aðila skal Fjármálaeftirlitið hafa samráð við viðeigandi lögbær yfirvöld við mat sitt. Fjármálaeftirlitið skal að eigin frumkvæði veita viðkomandi yfirvöldum upplýsingar sem eru nauðsynlegar fyrir mat þeirra og verða án ástæðulausrar tafar við óskum um frekari upplýsingar sem skipta máli fyrir matið.]1)
   1)L. 38/2022, 56. gr.
[42. gr. b. Mat samhliða umsókn eignarhaldsfélags um samþykki.
Fari mat á hæfi skv. 42. gr. a fram samhliða mati á umsókn eignarhaldsfélags á fjármálasviði eða blandaðs eignarhaldsfélags í fjármálastarfsemi um samþykki skv. B-hluta þessa kafla skal Fjármálaeftirlitið hafa samráð við eftirlitsaðila á samstæðugrunni og lögbært yfirvald í því aðildarríki þar sem eignarhaldsfélagið á fjármálasviði eða blandaða eignarhaldsfélagið í fjármálastarfsemi hefur staðfestu við matið.
Matstímabil skv. 3. mgr. 42. gr. lengist um þann tíma sem tekur að afgreiða umsókn eignarhaldsfélags á fjármálasviði eða blandaðs eignarhaldsfélags í fjármálastarfsemi um samþykki og ekki skemur en 21 virkan dag.]1)
   1)L. 38/2022, 56. gr.
43. gr. [Tilkynning til aðila sem telst ekki hæfur.
Telji Fjármálaeftirlitið þann sem hyggst eignast eða auka við virkan eignarhlut ekki hæfan til þess að fara með eignarhlutinn skal það tilkynna viðkomandi um það. [Hafi Fjármálaeftirlitið óskað eftir upplýsingum skv. 42. gr. og þær ekki borist innan þeirra tímamarka sem tilgreind eru í ákvæðinu eða þær eru ófullnægjandi að mati Fjármálaeftirlitsins getur Fjármálaeftirlitið tekið ákvörðun á grundvelli fyrirliggjandi upplýsinga.]1) Fjármálaeftirlitið skal rökstyðja niðurstöðu sína fyrir viðkomandi.
Niðurstaða Fjármálaeftirlitsins skv. 1. mgr. skal vera skrifleg og tilkynnt þeim sem hyggst eignast eða auka við virkan eignarhlut eigi síðar en tveimur virkum dögum eftir að niðurstaðan lá fyrir [og innan matstímabils skv. 3. mgr. 42. gr.]2) [Í niðurstöðunni skal greint frá sjónarmiðum og fyrirvörum sem lögbært yfirvald þess sem hyggst eignast eða auka við virkan eignarhlut hefur látið í ljós við samráð skv. 2. mgr. 42. gr. a.]2)]3)
   1)L. 57/2015, 14. gr. 2)L. 38/2022, 57. gr. 3)L. 75/2010, 30. gr.
44. gr. [Dráttur. Endurnýjun tilkynningar.
[Fjármálaeftirlitið getur sett öflun eða aukningu virks eignarhlutar frest sem það getur framlengt.]1) Hafi sá sem hyggst eignast eða auka við virkan eignarhlut eigi ráðist í þær fjárfestingar sem hann hafði tilkynnt Fjármálaeftirlitinu innan [þess frests]1) skal hann tilkynna því að nýju um fyrirhugaða fjárfestingu sína. Ákvæði 40.–43. gr. gilda þá um þá tilkynningu og viðbrögð Fjármálaeftirlitsins við henni.]2)
   1)L. 38/2022, 58. gr. 2)L. 75/2010, 31. gr.
45. gr. [Tilkynning ekki send.
Nú tilkynnir aðili sem hyggst eignast eða auka við virkan eignarhlut Fjármálaeftirlitinu ekki um fyrirhuguð kaup sín eða aukningu á virkum eignarhlut, þrátt fyrir að honum sé það skylt skv. 40. gr., og fellur þá niður atkvæðisréttur sem fylgir þeim hlutum sem eru umfram [leyfileg mörk]1). Fjármálaeftirlitið tilkynnir viðkomandi [lánastofnun]1) um brottfall atkvæðisréttarins fái [það]2) vitneskju um kaupin eða aukninguna. Skal Fjármálaeftirlitið krefjast þess að hlutaðeigandi sendi inn tilkynningu í samræmi við ákvæði 41. gr. Um málsmeðferð fer að öðru leyti skv. 41.–43. gr. Geri Fjármálaeftirlitið ekki athugasemdir við að viðkomandi aðili eignist eða auki við virkan eignarhlut öðlast hann atkvæðisrétt í samræmi við eignarhlut sinn. Berist tilkynning hlutaðeigandi [og upplýsingar skv. 41. gr.]1) ekki innan fjögurra vikna frá því að Fjármálaeftirlitið krafðist tilkynningar getur það krafist þess að hann selji þann hluta eignarhlutarins sem er umfram [leyfileg mörk].1) Fjármálaeftirlitið setur tímamörk í því skyni og skal fresturinn ekki vera skemmri en tveir mánuðir.]3)
   1)L. 38/2022, 59. gr. 2)L. 91/2019, 35. gr. 3)L. 75/2010, 32. gr.
46. gr. [Óhæfur aðili eignast hlut.
[Eignist aðili eða auki við virkan eignarhlut þrátt fyrir að Fjármálaeftirlitið hafi komist að þeirri niðurstöðu að hann sé ekki hæfur til að eignast eða auka við hlut sinn fellur niður atkvæðisréttur sem fylgir þeim hlut sem er umfram leyfileg mörk. Fjármálaeftirlitið tilkynnir viðkomandi lánastofnun um brottfall atkvæðisréttarins fái það vitneskju um kaupin eða aukninguna. Viðkomandi aðila er skylt að selja þann hluta eignarhlutarins sem er umfram leyfileg mörk. Fjármálaeftirlitið setur tímamörk í því skyni og skal fresturinn ekki vera skemmri en tveir mánuðir.]1)]2)
   1)L. 38/2022, 60. gr. 2)L. 75/2010, 33. gr.
[46. gr. a.1)]2)
   1)L. 57/2015, 15. gr. 2)L. 75/2010, 34. gr.
47. gr. [Tilkynning eiganda um aðilaskipti.
Hyggist eigandi virks eignarhlutar draga svo úr hlutafjár- eða stofnfjáreign sinni eða atkvæðisrétti að hann eigi ekki virkan eignarhlut eftir það skal hann tilkynna það Fjármálaeftirlitinu [skriflega]1) fyrir fram og einnig hver eignarhlutur [eða atkvæðisréttur]1) hans muni verða. Fari eignarhluturinn [eða atkvæðisrétturinn]1) niður fyrir 20%, …2) [30%],1) 50% eða svo mikið að [lánastofnun]1) hættir að vera [dótturfélag]2) hlutaðeigandi skal það einnig tilkynnt. Sama á við ef hlutfallslegur eignarhlutur eða atkvæðisréttur rýrnar vegna hlutafjár- eða stofnfjáraukningar.]3)
   1)L. 38/2022, 61. gr. 2)L. 57/2015, 16. gr. 3)L. 75/2010, 35. gr.
48. gr. [[Tilkynning lánastofnunar um aðilaskipti.]1)
Þegar hlutafjár- eða stofnfjáreign [eða atkvæðisréttur]1) í [lánastofnun]1) fer yfir eða undir þau mörk sem tilgreind eru í 40. gr. skal stjórn [hennar]1) tilkynna Fjármálaeftirlitinu um það án ástæðulauss dráttar.
Eigi sjaldnar en einu sinni á ári skal [lánastofnun sem tekin hefur verið til viðskipta á skipulegum markaði]1) tilkynna Fjármálaeftirlitinu um þá hluthafa sem eiga virkan eignarhlut í [henni]1) og um hlutafjáreign hvers þeirra. Sama á við um eigendur stofnfjár.]2)
   1)L. 38/2022, 62. gr. 2)L. 75/2010, 36. gr.
49. gr. [[Upplýsingaskylda og viðvarandi mat á hæfi eiganda virkra eignarhluta.]1)
Fjármálaeftirlitið getur krafist hvers konar gagna og upplýsinga frá einstaklingum eða lögaðilum sem eiga eða fara með eignarhlut í [lánastofnun]2) í því skyni að meta hvort þeir falli undir tilkynningarskyldu [skv. 40. gr. eða]1) hvort þeir teljist hæfir til að fara með virkan eignarhlut samkvæmt þessum kafla. Fjármálaeftirlitið getur krafist sömu upplýsinga frá einstaklingum eða lögaðilum sem hafa selt eignarhlut eða haft milligöngu um viðskipti með eignarhlut. Lagaákvæði um þagnarskyldu takmarka ekki skyldu til þess að veita upplýsingar og aðgang að gögnum.
[Teljist einstaklingur eða lögaðili ekki lengur hæfur til þess að fara með virkan eignarhlut eða fer þannig með hlut sinn að það sé líklegt til að skaða heilbrigðan og traustan rekstur lánastofnunar er heimilt að veita hæfilegan frest til úrbóta sé það unnt að mati Fjármálaeftirlitsins. Verði úrbótum ekki við komið eða líði frestur sem Fjármálaeftirlitið hefur veitt skv. 1. málsl. tilkynnir Fjármálaeftirlitið aðilanum og viðkomandi lánastofnun um brottfall atkvæðisréttar aðilans umfram lágmark þess sem telst virkur eignarhlutur. Honum er þá jafnframt skylt að selja þann hluta eignarhlutarins sem er umfram þau mörk. Fjármálaeftirlitið setur tímamörk í því skyni og skal fresturinn ekki vera skemmri en tveir mánuðir.]2)]3)
   1)L. 57/2015, 17. gr. 2)L. 38/2022, 63. gr. 3)L. 75/2010, 37. gr.
[49. gr. a. Raunverulegur eigandi.
Leiki vafi á því, að mati Fjármálaeftirlitsins, hver sé eða verði raunverulegur eigandi virks eignarhlutar skal það tilkynna þeim sem sendi tilkynningu skv. 40. gr. eða fjármálafyrirtækinu sjálfu, ef ekki næst til þess sem tilkynnti, að eftirlitið telji viðkomandi ekki hæfan til þess að fara með eignarhlutinn.]1)
   1)L. 75/2010, 38. gr.
[B. Samþykki eignarhaldsfélaga.]1)
   1)L. 38/2022, 64. gr.
[49. gr. b. Skylda til að sækja um samþykki.
Móðureignarhaldsfélög á fjármálasviði í aðildarríki, blönduð móðureignarhaldsfélög í fjármálastarfsemi í aðildarríki, móðureignarhaldsfélög á fjármálasviði á Evrópska efnahagssvæðinu og blönduð móðureignarhaldsfélög í fjármálastarfsemi á Evrópska efnahagssvæðinu skulu sækja um samþykki samkvæmt þessum hluta VI. kafla. Önnur eignarhaldsfélög á fjármálasviði og blönduð eignarhaldsfélög í fjármálastarfsemi skulu sækja um samþykki ef þess er krafist að þau fari að lögum þessum á undirsamstæðugrunni.
Eignarhaldsfélag á fjármálasviði eða blandað eignarhaldsfélag í fjármálastarfsemi þarf þó ekki samþykki ef:
   1. Meginstarfsemi þess, eða meginstarfsemi þess að því er varðar fjármálafyrirtæki eða fjármálastofnanir ef um er að ræða blandað eignarhaldsfélag í fjármálastarfsemi, felst í því að afla eignarhluta í dótturfélögum.
   2. Það hefur ekki verið tilgreint sem skilaeining í neinni samstæðu innan skilameðferðar samstæðu í samræmi við skilastefnuna sem skilavaldið hefur ákvarðað samkvæmt lögum um skilameðferð lánastofnana og verðbréfafyrirtækja.
   3. Lánastofnun sem er dótturfélag þess er tilnefnd sem ábyrg fyrir því að tryggja að samstæðan fari að varfærniskröfum á samstæðugrunni og fær öll nauðsynleg úrræði og heimildir að lögum til að gegna þessum skyldum með skilvirkum hætti.
   4. Það tekur ekki þátt í ákvörðunum um stjórnun, rekstur eða fjármál sem hafa áhrif á samstæðuna eða dótturfélög hennar sem eru fjármálafyrirtæki eða fjármálastofnanir.
   5. Engar hindranir eru á skilvirku eftirliti með samstæðunni á samstæðugrunni.]1)
   1)L. 38/2022, 64. gr.
[49. gr. c. Umsókn.
Umsókn um samþykki skal beint til Fjármálaeftirlitsins ef það er eftirlitsaðili á samstæðugrunni eða ef umsækjandi er með staðfestu á Íslandi. Umsókn skal jafnframt beint til eftirlitsaðila á samstæðugrunni eða lögbærs yfirvalds í því aðildarríki þar sem umsækjandi er með staðfestu, ef það er annað stjórnvald en Fjármálaeftirlitið.
Umsókn skulu fylgja upplýsingar um:
   1. Skipulag samstæðunnar sem eignarhaldsfélagið á fjármálasviði eða blandaða eignarhaldsfélagið í fjármálastarfsemi er hluti af, dótturfélög hennar og, eftir atvikum, móðurfélög og staðsetningu og tegund starfsemi sem hver og ein eining innan samstæðunnar stundar.
   2. Tilnefningu a.m.k. tveggja einstaklinga sem stýra í reynd eignarhaldsfélaginu á fjármálasviði eða blandaða eignarhaldsfélaginu í fjármálastarfsemi og um hlítingu við kröfur um hæfi stjórnarmanna og framkvæmdastjóra.
   3. Hlítingu við kröfur um hæfi eigenda virkra eignarhluta ef eignarhaldsfélagið á fjármálasviði eða blandaða eignarhaldsfélagið í fjármálastarfsemi er með dótturfélag sem er lánastofnun.
   4. Innra skipulag og verkaskiptingu innan samstæðunnar.
   5. Annað sem gæti verið nauðsynlegt fyrir mat skv. 2. mgr. 49. gr. b og 49. gr. d.]1)
   1)L. 38/2022, 64. gr.
[49. gr. d. Skilyrði fyrir samþykki.
Eingöngu má veita eignarhaldsfélagi á fjármálasviði eða blönduðu eignarhaldsfélagi í fjármálastarfsemi samþykki ef öll eftirfarandi skilyrði eru uppfyllt:
   1. Innra fyrirkomulag og verkaskipting innan samstæðunnar er fullnægjandi til að uppfylla kröfur laga þessara á samstæðu- eða undirsamstæðugrunni og stuðlar einkum að því að:
   a. samræma starfsemi allra dótturfélaga eignarhaldsfélagsins á fjármálasviði eða blandaða eignarhaldsfélagsins í fjármálastarfsemi, þ.m.t., ef nauðsyn krefur, með fullnægjandi verkaskiptingu á meðal dótturfélaga sem eru fjármálafyrirtæki,
   b. koma í veg fyrir eða stýra árekstrum innan samstæðunnar,
   c. framfylgja um alla samstæðuna stefnu fyrir samstæðuna sem móðureignarhaldsfélag á fjármálasviði eða blandað móðureignarhaldsfélag í fjármálastarfsemi hefur samþykkt.
   2. Skipulag samstæðunnar sem eignarhaldsfélagið á fjármálasviði eða blandaða eignarhaldsfélagið í fjármálastarfsemi er hluti af hindrar ekki skilvirkt eftirlit með fjármálafyrirtækjum sem eru dóttur- eða móðurfélög að því er varðar skuldbindingar þeirra á eininga-, samstæðu- og, þegar við á, undirsamstæðugrunni. Við mat á því skal einkum taka tillit til:
   a. stöðu eignarhaldsfélagsins á fjármálasviði eða blandaða eignarhaldsfélagsins í fjármálastarfsemi í marglaga samstæðu,
   b. uppbyggingar eignarhalds,
   c. hlutverks eignarhaldsfélagsins á fjármálasviði eða blandaða eignarhaldsfélagsins í fjármálastarfsemi innan samstæðunnar.
   3. Farið sé að kröfum um hæfi eigenda virkra eignarhluta og hæfi stjórnarmanna og framkvæmdastjóra.]1)
   1)L. 38/2022, 64. gr.
[49. gr. e. Samráð eftirlitsaðila.
Fjármálaeftirlitið skal hafa náið samráð við eftirlitsaðila á samstæðugrunni eða lögbært yfirvald í því aðildarríki þar sem eignarhaldsfélag á fjármálasviði eða blandað eignarhaldsfélag í fjármálastarfsemi hefur staðfestu við mat á því hvort félaginu beri að sækja um samþykki og hvort skilyrði fyrir samþykki séu uppfyllt og til hvaða úrræða eigi að grípa ef svo er ekki. Eftirlitsaðilinn á samstæðugrunni skal senda lögbæra yfirvaldinu mat sitt og stjórnvöldin skulu gera allt sem í þeirra valdi stendur til að komast að sameiginlegri niðurstöðu innan tveggja mánaða frá viðtöku þess. Ef um er að ræða blandað eignarhaldsfélag í fjármálastarfsemi skal ákvörðunin jafnframt tekin með eftirlitsstjórnvaldi fjármálasamsteypunnar, sbr. 25. gr. laga um viðbótareftirlit með fjármálasamsteypum, nr. 61/2017.
Ef ekki næst sameiginleg niðurstaða skal Fjármálaeftirlitið bíða með að taka ákvörðun og vísa málinu til Evrópsku bankaeftirlitsstofnunarinnar, Evrópsku vátrygginga- og lífeyrissjóðaeftirlitsstofnunarinnar eða Eftirlitsstofnunar EFTA, eftir því sem við á, í samræmi við 19. gr. reglugerðar (ESB) nr. 1093/2010, sbr. lög um evrópskt eftirlitskerfi á fjármálamarkaði. Fjármálaeftirlitið skal taka sameiginlega ákvörðun með hinu stjórnvaldinu í samræmi við ákvörðun Eftirlitsstofnunar EFTA. Fjármálaeftirlitið skal ekki vísa málinu til Evrópsku bankaeftirlitsstofnunarinnar, Evrópsku vátrygginga- og lífeyrissjóðaeftirlitsstofnunarinnar eða Eftirlitsstofnunar EFTA eftir lok tveggja mánaða tímabilsins eða eftir að náðst hefur sameiginleg ákvörðun.]1)
   1)L. 38/2022, 64. gr.
[49. gr. f. Afgreiðsla umsóknar.
Fjármálaeftirlitið skal, ef það er eftirlitsaðili á samstæðugrunni, tilkynna umsækjanda um hvort umsókn um samþykki sé samþykkt innan fjögurra mánaða frá viðtöku fullnægjandi umsóknar, þó eigi síðar en sex mánuðum frá viðtöku umsóknar. Ákvörðunin skal vera skjalfest og rökstudd.]1)
   1)L. 38/2022, 64. gr.
[49. gr. g. Ráðstafanir ef samþykkis er ekki aflað.
Fjármálaeftirlitið skal fylgjast með því að eignarhaldsfélag á fjármálasviði eða blandað eignarhaldsfélag í fjármálastarfsemi sem heyrir undir eftirlit þess á samstæðugrunni uppfylli ávallt skilyrði fyrir samþykki skv. 49. gr. d eða sé undanþegið skyldu til að afla samþykkis skv. 2. mgr. 49. gr. b. Félagið skal veita Fjármálaeftirlitinu þær upplýsingar sem nauðsynlegar eru til að fylgjast með skipulagi samstæðunnar og því að skilyrði 49. gr. d eða, ef við á, 2. mgr. 49. gr. b séu ávallt uppfyllt. Fjármálaeftirlitið skal deila upplýsingunum með lögbæru yfirvaldi í því aðildarríki þar sem félagið er með staðfestu, ef það er annað stjórnvald en Fjármálaeftirlitið.
Ef skilyrði 49. gr. d eru ekki uppfyllt, og 2. mgr. 49. gr. b á ekki við, skal Fjármálaeftirlitið grípa til viðeigandi ráðstafana gagnvart eignarhaldsfélaginu á fjármálasviði eða blandaða eignarhaldsfélaginu í fjármálastarfsemi til að tryggja eða koma aftur á virku samstæðueftirliti og tryggja hlítingu við kröfur laga þessara á samstæðugrunni. Ef um er að ræða blandað eignarhaldsfélag í fjármálastarfsemi skulu eftirlitsráðstafanirnar einkum taka tillit til áhrifa á fjármálasamsteypuna.
Eftirlitsráðstafanir skv. 2. mgr. geta falið í sér:
   1. Að fella tímabundið úr gildi atkvæðisrétt sem fylgir eignarhlut eignarhaldsfélagsins á fjármálasviði eða blandaða eignarhaldsfélagsins í fjármálastarfsemi í fjármálafyrirtæki sem er dótturfélag þess.
   2. Kröfu um úrbætur.
   3. Kröfu um að eignarhaldsfélagið á fjármálasviði eða blandaða eignarhaldsfélagið í fjármálastarfsemi yfirfæri hlutdeild sína í fjármálafyrirtæki sem er dótturfélag þess til hluthafa sinna.
   4. Að fela tímabundið öðru eignarhaldsfélagi á fjármálasviði, blönduðu eignarhaldsfélagi í fjármálastarfsemi eða fjármálafyrirtæki innan samstæðunnar að bera ábyrgð á því að farið sé að kröfum laga þessara á samstæðugrunni.
   5. Takmörkun eða bann við útgreiðslum eða vaxtagreiðslum til hluthafa.
   6. Kröfu um að eignarhaldsfélagið á fjármálasviði eða blandaða eignarhaldsfélagið í fjármálastarfsemi selji eða minnki eignarhluti sína í fjármálafyrirtækjum eða öðrum aðilum á fjármálamarkaði.
   7. Kröfu um að eignarhaldsfélagið á fjármálasviði eða blandaða eignarhaldsfélagið í fjármálastarfsemi leggi fram áætlun um hvernig það muni án tafar hlíta að nýju kröfum laga þessara.]1)
   1)L. 38/2022, 64. gr.
[C. Milligöngumóðurfélag innan EES.]1)
   1)L. 38/2022, 65. gr. C-hluti (49. gr. h – 49. gr. k) tók gildi 30. des. 2023 gagnvart fjármálafyrirtækjum sem uppfylltu skilyrði a-liðar 65. gr. 27. júní 2019, sbr. 215. gr. s.l.
[49. gr. h. Skylda til að hafa milligöngumóðurfélag innan EES.
Tvö eða fleiri fjármálafyrirtæki á Evrópska efnahagssvæðinu, sem tilheyra sömu þriðjaríkissamstæðu, skulu hafa sameiginlegt milligöngumóðurfélag sem er með staðfestu á Evrópska efnahagssvæðinu.
Skylda skv. 1. mgr. gildir ekki ef heildarvirði eigna þriðjaríkissamstæðunnar á Evrópska efnahagssvæðinu er minna en jafnvirði 40 milljarða evra. Heildarvirðið skal reiknað sem samtala:
   1. Heildarvirðis eigna hvers fjármálafyrirtækis innan þriðjaríkissamstæðunnar á Evrópska efnahagssvæðinu samkvæmt samstæðuefnahagsreikningi, eða efnahagsreikningi hvers fyrirtækis ef samstæðuefnahagsreikningi er ekki fyrir að fara.
   2. Heildarvirðis eigna hvers útibús þriðjaríkissamstæðunnar með leyfi til að starfa á Evrópska efnahagssvæðinu á grundvelli tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 2013/36/ESB eða 2014/65/ESB eða reglugerðar (ESB) nr. 600/2014.]1)
   1)L. 38/2022, 65. gr.
[49. gr. i. Tvö milligöngumóðurfélög innan EES.
Fjármálaeftirlitið getur heimilað fjármálafyrirtækjum skv. 1. mgr. 49. gr. h að hafa tvö milligöngumóðurfélög á Evrópska efnahagssvæðinu ef stofnsetning eins milligöngumóðurfélags:
   a. samræmdist ekki reglum eða kröfum eftirlitsaðila í ríki utan Evrópska efnahagssvæðisins þar sem endanlegt móðurfélag þriðjaríkissamstæðunnar hefur aðalskrifstofu sína um aðgreiningu starfsemi, eða
   b. gerði skilabærni óskilvirkari en ef um væri að ræða tvö milligöngumóðurfélög að mati lögbærs skilavalds milligöngumóðurfélagsins á Evrópska efnahagssvæðinu.]1)
   1)L. 38/2022, 65. gr.
[49. gr. j. Form milligöngumóðurfélags innan EES.
Milligöngumóðurfélag á Evrópska efnahagssvæðinu skal hafa starfsleyfi sem lánastofnun eða samþykki sem eignarhaldsfélag á fjármálasviði eða blandað eignarhaldsfélag í fjármálastarfsemi.
Ef ekkert fjármálafyrirtækjanna skv. 1. mgr. 49. gr. h er lánastofnun, eða ef setja verður á fót annað milligöngumóðurfélag á Evrópska efnahagssvæðinu í tengslum við fjárfestingarstarfsemi til að hlíta reglum eða kröfum um aðgreiningu starfsemi skv. a-lið 49. gr. i, má milligöngumóðurfélagið eða annað þeirra þó vera með starfsleyfi sem verðbréfafyrirtæki.]1)
   1)L. 38/2022, 65. gr.
[49. gr. k. Upplýsingagjöf til Evrópsku bankaeftirlitsstofnunarinnar.
Fjármálaeftirlitið skal tilkynna Evrópsku bankaeftirlitsstofnuninni um:
   1. Heiti eftirlitsskyldra fjármálafyrirtækja sem tilheyra þriðjaríkissamstæðu sem starfar hér á landi og heildarvirði eigna þeirra.
   2. Heiti útibúa með leyfi til að starfa hér á landi á grundvelli laga þessara eða laga um markaði fyrir fjármálagerninga sem tilheyra þriðjaríkissamstæðu sem starfar hér á landi og heildarvirði eigna þeirra.
   3. Heiti og form milligöngumóðurfélaga á Evrópska efnahagssvæðinu sem eru sett á fót hér á landi og heiti þriðjaríkissamstæðna sem þau tilheyra.]1)
   1)L. 38/2022, 65. gr.

VII. kafli. [Stjórn, stjórnarhættir og starfsmenn.]1)
   1)L. 57/2015, 26. gr.
[A. Almenn ákvæði.]1)
   1)L. 38/2022, 68. gr.
50. gr. Almennt ákvæði.
[Fjármálafyrirtæki skal hafa traust fyrirkomulag stjórnarhátta sem felur í sér skýrt stjórnskipulag með vel skilgreindri, gagnsærri og samræmdri skiptingu ábyrgðar, skilvirk ferli til að sannreyna, stjórna, fylgjast með og tilkynna um áhættuþætti sem það stendur eða kann að standa frammi fyrir og fullnægjandi innra eftirlitskerfi, þ.m.t. traust stjórnunar- og bókhaldsfyrirkomulag og starfskjarastefnu og framkvæmd hennar sem er í samræmi við og stuðlar að traustri og skilvirkri áhættustýringu.
Fyrirkomulag, ferli og kerfi skv. 1. mgr. skulu vera heildstæð og í réttu hlutfalli við eðli, umfang og flækjustig áhættunnar í viðskiptalíkani og starfsemi fyrirtækisins.]1)
Um stjórn fjármálafyrirtækis gilda ákvæði laga um hlutafélög, enda sé ekki á annan veg mælt í lögum þessum. [Þó gildir 2. mgr. 101. gr. laga um hlutafélög, nr. 2/1995, ekki um fjármálafyrirtæki.]1)
   1)L. 38/2022, 67. gr.
[B. Samsetning, hæfisskilyrði og störf stjórnar og framkvæmdastjóra.]1)
   1)L. 38/2022, 80. gr.
51. gr. Fjöldi stjórnarmanna.
[Stjórn lánastofnunar skal skipuð eigi færri en fimm mönnum. Stjórn verðbréfafyrirtækis skal skipuð eigi færri en þremur mönnum.]1)
[Skipa skal varamenn í stjórn fjármálafyrirtækis. Varamenn í stjórn fjármálafyrirtækis skulu vera tveir hið minnsta.]2)
   1)L. 38/2022, 69. gr. 2)L. 47/2013, 7. gr.
52. gr. Hæfisskilyrði stjórnar og framkvæmdastjóra.
[Stjórnarmenn skulu vera búsettir í aðildarríki eða ríki sem er aðili að Efnahags- og framfarastofnuninni (OECD). Framkvæmdastjóri skal vera búsettur í aðildarríki. [Ríkisborgarar aðildarríkja eru undanþegnir búsetuskilyrðum.]1) Fjármálaeftirlitinu er heimilt að veita [ríkisborgurum annarra ríkja]1) undanþágu frá búsetuskilyrðum.
[Fjármálafyrirtæki, eignarhaldsfélag á fjármálasviði og blandað eignarhaldsfélag í fjármálastarfsemi skal ávallt tryggja að stjórnarmenn og framkvæmdastjóri:
   1. Séu lögráða.
   2. Séu fjárhagslega sjálfstæðir og hafi ekki verið úrskurðaðir gjaldþrota á síðustu fimm árum.
   3. Hafi gott orðspor og hafi ekki í tengslum við atvinnurekstur hlotið dóm á síðustu tíu árum fyrir refsiverðan verknað samkvæmt almennum hegningarlögum, samkeppnislögum, lögum um hlutafélög, lögum um einkahlutafélög, lögum um bókhald, lögum um ársreikninga, lögum um gjaldþrotaskipti o.fl., lögum um staðgreiðslu opinberra gjalda og lögum um gjaldeyrismál, svo og sérlögum sem gilda um aðila sem lúta opinberu eftirliti með fjármálastarfsemi.
   4. Búi yfir fullnægjandi þekkingu, hæfni og reynslu til að sinna skyldum sínum.]2)
2) [Stjórnarmenn og framkvæmdastjórar skulu verja fullnægjandi tíma í störf sín í þágu fjármálafyrirtækis.]3)
[Stjórn og framkvæmdastjóri fjármálafyrirtækis skulu búa yfir fjölbreyttri reynslu og sameiginlega búa yfir fullnægjandi þekkingu, hæfni og reynslu til að skilja þá starfsemi sem viðkomandi fjármálafyrirtæki stundar, þ.m.t. helstu áhættuþætti. Fjármálafyrirtæki skal setja sér stefnu um hvernig það hyggst stuðla að því að einstaklingar með fjölbreytta reynslu gegni störfum stjórnarmanna og framkvæmdastjóra. Fjármálaeftirlitið skal safna upplýsingum um slíkar stefnur og framkvæmd þeirra og senda þær til Evrópsku bankaeftirlitsstofnunarinnar.]2)
[Seðlabanki Íslands setur nánari reglur4) um hæfisskilyrði stjórnarmanna og framkvæmdastjóra, þar á meðal um hvað felst í fullnægjandi þekkingu, hæfni og reynslu, góðu orðspori og fjárhagslegu sjálfstæði, og um hvernig staðið skuli að hæfismati.]5)2)
Fjármálafyrirtæki skal verja fullnægjandi fjármunum og mannafla til þess að kynna starfsemi fjármálafyrirtækisins fyrir stjórnarmanni [og framkvæmdastjóra]2) og tryggja að [þeir]2) hljóti viðeigandi þjálfun til [starfans].2)
Fjármálafyrirtæki skal tilkynna Fjármálaeftirlitinu um skipan og síðari breytingar á stjórn og framkvæmdastjóra og skulu tilkynningunni fylgja fullnægjandi upplýsingar til að hægt sé að meta hvort skilyrðum greinar þessarar og 52. gr. a sé fullnægt.
Framkvæmdastjórar og stjórnarmenn þurfa á hverjum tíma að uppfylla hæfisskilyrði þessarar greinar og 52. gr. a og reglna settra skv. 5. mgr. Fjármálaeftirlitið getur á hverjum tíma tekið hæfi framkvæmdastjóra og stjórnarmanna til sérstakrar skoðunar [og vikið framkvæmdastjóra og stjórnarmanni frá uppfylli hann ekki hæfisskilyrði. Fjármálaeftirlitið skal staðreyna hvort hæfisskilyrði séu uppfyllt þegar það hefur rökstuddan grun um peningaþvætti eða fjármögnun hryðjuverka eða telur hættu á að slíkt viðgangist í tengslum við fjármálafyrirtæki].2)]6)
   1)L. 10/2023, 1. gr. 2)L. 38/2022, 70. gr. 3)L. 8/2019, 1. gr. 4)Rgl. 150/2017. 5)L. 82/2021, 64. gr. 6)L. 57/2015, 18. gr.
[52. gr. a. Önnur störf stjórnarmanna.
1) Stjórnarmenn fjármálafyrirtækis mega hvorki eiga sæti í stjórn annars eftirlitsskylds aðila eða aðila sem er í nánum tengslum við hann né vera starfsmenn eða endurskoðendur annars eftirlitsskylds aðila eða aðila í nánum tengslum við hann. Stjórnarmenn fjármálafyrirtækis mega einungis sinna þeim lögmannsstörfum fyrir annað fjármálafyrirtæki sem ekki geta valdið hættu á hagsmunaárekstrum á milli félaganna tveggja eða á fjármálamarkaði. Hyggist stjórnarmaður taka að sér lögmannsstörf fyrir annað fjármálafyrirtæki skal hann fá skriflegt samþykki stjórnar fjármálafyrirtækisins sem hann er stjórnarmaður í fyrir því að hann megi taka að sér umrætt starf, tilkynna Fjármálaeftirlitinu um starfið sem hann hyggst taka að sér og upplýsa Fjármálaeftirlitið um eðli starfsins og umfang þess. Stjórnarmaður ber sönnunarbyrði um að lögmannsstarf sem hann tekur að sér fyrir annað fjármálafyrirtæki brjóti ekki gegn ákvæði þessu. Fjármálaeftirlitið getur krafist hvers konar gagna og upplýsinga frá stjórnarmanni í því skyni að meta hvort brotið hafi verið gegn ákvæðinu.
Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. getur stjórnarmaður eða starfsmaður fjármálafyrirtækis tekið sæti í stjórn annars fjármálafyrirtækis, vátryggingafélags eða fjármálasamsteypu eða aðila í nánum tengslum við framangreinda aðila ef um er að ræða félag sem er að hluta eða öllu leyti í eigu fjármálafyrirtækisins eða félag sem er að hluta eða öllu leyti í eigu félags með yfirráð í fjármálafyrirtækinu. Sama gildir um lögmann móðurfélags.
Stjórnarseta skv. 2. mgr. skal háð því að hún skapi ekki, að mati Fjármálaeftirlitsins, hættu á hagsmunaárekstrum á fjármálamarkaði. Í þessu sambandi skal m.a. horft til eignarhalds aðila og tengsla félagsins sem um ræðir við aðra aðila á fjármálamarkaði, svo og hvort tengslin geti skaðað heilbrigðan og traustan rekstur fjármálafyrirtækisins.
[Stjórnarmenn fjármálafyrirtækis mega ekki vera starfsmenn fyrirtækisins.]2)]3)
   1)L. 8/2019, 2. gr. 2)L. 38/2022, 71. gr. 3)L. 57/2015, 19. gr.
[[52. gr. b.]1) Stjórn fjármálafyrirtækis boðar til aðalfundar félagsins.
Stjórn fjármálafyrirtækis skal boða til aðalfundar í samræmi við lög, samþykktir eða ákvörðun aðalfundar. Nú boðar stjórn ekki til fundar í samræmi við 1. málsl. og skal þá Fjármálaeftirlitið boða til hans að kröfu stjórnarmanns, framkvæmdastjóra, endurskoðanda eða aðila sem er atkvæðisbær á aðalfundi. Fjármálaeftirlitið tilnefnir fundarstjóra í þeim tilvikum og skal stjórn afhenda honum skrá yfir þá sem eru atkvæðisbærir, gerðabók aðalfunda og endurskoðunarbók. Félagið greiðir kostnað við aðalfundinn.]2)
   1)L. 57/2015, 19. gr. 2)L. 75/2010, 40. gr.
[[52. gr. c.]1) [Tilkynning um samstæðu.]2)
Stjórn móðurfélags ber að tilkynna Fjármálaeftirlitinu þegar mynduð er félagasamstæða og fjármálafyrirtæki öðlast yfirráð í öðru félagi. Einnig skal tilkynna verulegar breytingar á skipulagi samstæðu þegar þær ganga í gildi.]3)
   1)L. 57/2015, 19. gr. 2)L. 38/2022, 72. gr. 3)L. 75/2010, 40. gr.
[[52. gr. d.]1) [Tilkynning um framhald á starfsemi.]2)
Stjórn og framkvæmdastjóri skulu án tafar gera Fjármálaeftirlitinu viðvart hafi þeir vitneskju um málefni sem hafa úrslitaþýðingu fyrir áframhaldandi starfsemi félagsins.]3)
   1)L. 57/2015, 19. gr. 2)L. 38/2022, 73. gr. 3)L. 75/2010, 40. gr.
[52. gr. e. Tilkynning um brot gegn varfærniskröfum og um að fyrirtæki sé á fallanda fæti.
Stjórn eða framkvæmdastjóri skal tilkynna Fjármálaeftirlitinu án tafar uppfylli fjármálafyrirtæki ekki þær varfærniskröfur sem kveðið er á um í lögum þessum og stjórnvaldsfyrirmælum sem sett eru á grundvelli þeirra. Stjórn eða framkvæmdastjóri skal tilkynna Fjármálaeftirlitinu án tafar ef líklegt er að fjármálafyrirtæki muni á næstu tólf mánuðum ekki uppfylla þær varfærniskröfur sem kveðið er á um í lögum þessum og stjórnvaldsfyrirmælum. Stjórn fjármálafyrirtækis skal greina Fjármálaeftirlitinu frá því til hvaða ráðstafana hún hyggst grípa til að koma starfsemi í lögmætt horf. Stjórn lánastofnunar, verðbréfafyrirtækis, fjármálastofnunar eða eignarhaldsfélaga sem falla undir gildissvið laga um skilameðferð lánastofnana og verðbréfafyrirtækja skal þegar í stað tilkynna Fjármálaeftirlitinu ef líkur eru á að fyrirtækið teljist vera á fallanda fæti í skilningi þeirra laga.
Er tilkynning berst skv. 1. málsl. 1. mgr. er Fjármálaeftirlitinu heimilt að veita fjármálafyrirtæki frest í allt að sex mánuði til að koma starfsemi í lögmætt horf. Séu til þess ríkar ástæður er Fjármálaeftirlitinu heimilt að framlengja þann frest í allt að sex mánuði í viðbót.
Er tilkynning berst skv. 1. og 2. málsl. 1. mgr. getur Fjármálaeftirlitið krafist þess að stjórn fjármálafyrirtækis afhendi greinargerð og önnur gögn um úrbætur og ráðstafanir á grundvelli 1. mgr. Greinargerð og gögnum skal skilað til Fjármálaeftirlitsins innan tímamarka sem Fjármálaeftirlitið ákveður.
Ákvæði þetta takmarkar á engan hátt aðrar heimildir Fjármálaeftirlitsins samkvæmt lögum þessum, þ.m.t. heimildir í 9. gr., 107. gr. a – 107. gr. e og XII. kafla.
Ef Fjármálaeftirlitinu berst tilkynning skv. 4. málsl. 1. mgr. skal það upplýsa skilavaldið um tilkynninguna og aðgerðir skv. 82. gr. c og 107. gr. a – 107. gr. e ef það hefur gripið eða hyggst grípa til þeirra.]1)
   1)L. 38/2022, 74. gr.
[[52. gr. f.]1) Takmörkun á öðrum störfum framkvæmdastjóra og stjórnarmanns.
[Stjórnarmanni og framkvæmdastjóra í kerfislega mikilvægu fjármálafyrirtæki hér á landi eða á alþjóðavísu er óheimilt að taka að sér störf í stjórnareiningum annarra félaga komi það niður á getu hans til að sinna störfum sínum fyrir fjármálafyrirtækið með fullnægjandi hætti. Heildarfjöldi félaganna að meðtöldu fjármálafyrirtækinu skal vera innan eftirfarandi marka]:1)
   a. fjögur félög, ef eingöngu er um að ræða stjórnarsetu, eða
   b. tvö félög þar sem viðkomandi sinnir stjórnarsetu og eitt þar sem um er að ræða starf framkvæmdastjóra.
[Stjórnar- og framkvæmdastjórastöður hjá tveimur eða fleiri félögum teljast aðeins til þátttöku í einu félagi skv. 2. málsl. 1. mgr. ef félögin tilheyra sömu samstæðu eða sama stofnanaverndarkerfi skv. 7. mgr. 113. gr. reglugerðar (ESB) nr. 575/2013 eða ef fjármálafyrirtækið fer með virkan eignarhlut í báðum eða öllum félögum.]1)
Takmarkanir skv. 1. mgr. taka hvorki til starfa í stjórnareiningum félaga sem eru ekki rekin í atvinnuskyni að meginstefnu til né til einstaklings sem settur er í starf framkvæmdastjóra eða í stjórn fjármálafyrirtækis fyrir hönd ríkisins …1)
Framkvæmdastjóra í kerfislega mikilvægu fjármálafyrirtæki hér á landi eða á alþjóðavísu er óheimilt að taka að sér störf í stjórnareiningum annarra félaga nema með leyfi stjórnar. …
Fjármálaeftirlitinu er heimilt, að teknu tilliti til umfangs og eðlis þeirra starfa sem framkvæmdastjóri eða stjórnarmaður gegnir eða vegna sérstakra aðstæðna, að veita undanþágu frá 1. mgr. og heimila setu í stjórn eins félags til viðbótar. [Fjármálaeftirlitið skal reglulega upplýsa Evrópsku bankaeftirlitsstofnunina um slíkar undanþágur.]1)]2)
   1)L. 38/2022, 75. gr. 2)L. 8/2019, 3. gr.
53. gr. [Tilnefningarnefnd.
Kerfislega mikilvægt fjármálafyrirtæki skal starfrækja tilnefningarnefnd.
Hluthafafundur skal skipa tilnefningarnefnd eða ákveða hvernig hún skuli skipuð. Að minnsta kosti þriðji hver nefndarmaður í tilnefningarnefnd skal vera stjórnarmaður í viðkomandi fjármálafyrirtæki og aldrei færri en einn.
Tilnefningarnefnd skal:
   1. Tilnefna einstaklinga til stjórnarsetu fyrir hluthafafund.
   2. Meta a.m.k. árlega skipulag, stærð, samsetningu og árangur stjórnar og framkvæmdastjóra og gera tillögur að úrbótum til stjórnar þegar við á.
   3. Meta a.m.k. árlega og gefa stjórn skýrslu um þekkingu, hæfni og reynslu einstakra stjórnarmanna og stjórnar í heild og framkvæmdastjóra.
   4. Meta a.m.k. árlega stefnu fyrirtækisins um ráðningu framkvæmdastjóra og stjórnenda sem svara beint til framkvæmdastjóra og gera tillögur að úrbótum til stjórnar þegar við á.
Við val á tilnefningum skv. 1. tölul. 3. mgr. skal tilnefningarnefnd horfa til:
   1. Hæfiskrafna til stjórnarmanna.
   2. Þess að stjórnarmenn hafi fjölbreytta þekkingu og reynslu.
   3. Kynjajafnvægis.
Tilnefningarnefnd skal við tilnefningar skv. 1. tölul. 3. mgr. og önnur störf sín leitast við að koma í veg fyrir að einn einstaklingur eða lítill hópur einstaklinga verði ráðandi við ákvarðanatöku stjórnar á kostnað fyrirtækisins í heild.
Tilnefningarnefnd skal hafa aðgang að fjármunum, ytri ráðgjöf og öðrum aðföngum sem hún þarf til að gegna störfum sínum.
Grein þessi gildir ekki ef tilnefningar allra stjórnarmanna falla undir ákvæði 7. gr. laga um Bankasýslu ríkisins, nr. 88/2009.]1)
   1)L. 38/2022, 76. gr. Greinin tók gildi 1. júlí 2023 gagnvart fjármálafyrirtækjum, rekstraraðilum og rekstrarfélögum sem höfðu þegar haldið aðalfund vegna yfirstandandi reikningsárs 1. júlí 2022, sbr. 215. gr. s.l.
54. gr. [Framkvæmd starfa stjórnar, ábyrgð hennar og verkaskipting stjórnar og framkvæmdastjóra.
Stjórn fjármálafyrirtækis ber ábyrgð á starfsemi og stefnumótun félagsins sem og áhættustefnu og að til staðar sé virkt kerfi innra eftirlits sem samræmist lögum þessum og reglum settum með stoð í þeim. Stjórn ber ábyrgð á að fullnægjandi eftirlit sé viðhaft með bókhaldi og að meðferð fjármuna félagsins sé í samræmi við lög og reglur sem um starfsemina gilda. Stjórn ber jafnframt ábyrgð á að stjórnarhættir og innra skipulag stuðli að skilvirkri og varfærinni stjórn fyrirtækisins, aðskilnaði starfa og að komið sé í veg fyrir hagsmunaárekstra. [Stjórn skal a.m.k. árlega endurmeta stjórnarhætti félagsins og bregðast við annmörkum sem koma í ljós.]1)
[Stjórnarmaður og framkvæmdastjóri skulu starfa af heiðarleika, heilindum og fagmennsku. Þeir skulu vera sjálfstæðir í hugsun þannig að stjórnarmenn geti með skilvirkum hætti metið, gagnrýnt og haft eftirlit með ákvarðanatöku framkvæmdastjóra og framkvæmdastjóri með ákvarðanatöku stjórnenda sem svara beint til hans.]1)
Í samþykktum fjármálafyrirtækis skal kveðið á um verkaskiptingu stjórnar og framkvæmdastjóra. Stjórn skal hafa skilvirkt eftirlit með [framkvæmdastjóra félagsins, þar á meðal því að hann]1) starfi eftir lögum og reglum.
Stjórn skal setja sér starfsreglur þar sem nánar er kveðið á um framkvæmd starfa stjórnarinnar. Í reglum þessum skal fjallað sérstaklega um heimildir stjórnar til að taka ákvarðanir um einstök viðskipti, framkvæmd reglna um sérstakt hæfi stjórnarmanna, meðferð stjórnar á upplýsingum um einstaka viðskiptamenn, setu stjórnarmanna í stjórnum dótturfélaga og hlutdeildarfélaga og framkvæmd reglna um meðferð viðskiptaerinda stjórnarmanna. Stjórn fjármálafyrirtækis skal senda Fjármálaeftirlitinu afrit af reglunum innan 14 daga frá því að þær eru settar eða þeim er breytt.
Stjórnarformanni í fjármálafyrirtæki er óheimilt að taka að sér önnur störf fyrir félagið en þau sem teljast eðlilegur hluti starfa hans sem stjórnarformanns, að undanskildum einstökum verkefnum sem félagsstjórnin felur honum að vinna fyrir sig.
[Stjórn skal hafa eftirlit með upplýsingagjöf og samskiptum félagsins.]1)
Fjármálafyrirtæki skal fylgja viðurkenndum leiðbeiningum um stjórnarhætti fyrirtækja. [Í því skyni skal fjármálafyrirtækið m.a. birta árlega yfirlýsingu um stjórnarhætti fyrirtækisins í sérstökum kafla í ársreikningi eða ársskýrslu og gera grein fyrir stjórnarháttum sínum og starfskjarastefnu á vef fyrirtækisins, þar á meðal því hvernig það fari að ákvæðum þessa kafla, og birta þar yfirlýsingu um stjórnarhætti sína.]1) Þar skal koma fram á vefsíðu fjármálafyrirtækis eða í ársreikningi þess hvernig fjármálafyrirtæki uppfyllir kröfur um stjórnarhætti samkvæmt lögum þessum.
[[Seðlabanka Íslands]2) er heimilt að setja reglur um stjórnarhætti fjármálafyrirtækja.]3)]4)
   1)L. 38/2022, 77. gr. 2)L. 91/2019, 34. gr. 3)L. 96/2016, 26. gr. 4)L. 57/2015, 20. gr.
[54. gr. a. Hlutverk stjórnar vegna áhættustýringar.
Stjórn fjármálafyrirtækis skal samþykkja áhættustefnu, áhættuvilja og framkvæmd áhættustýringar, sbr. [77. gr. a og 77. gr. b],1) og tryggja að innri ferlar vegna áhættustýringar séu yfirfarnir eigi sjaldnar en árlega. Til slíkra ferla teljast m.a. ferlar er varða áhættutöku og takmörkun á þeirri áhættu sem hefur, eða kann að hafa, áhrif á starfsemi fyrirtækis.
Stjórn fjármálafyrirtækis skal við störf sín verja hæfilegum tíma í að fjalla um helstu áhættuþætti í starfsemi fyrirtækisins. Stjórn skal tryggja að nægjanlegum fjármunum og tíma sé varið í virka áhættustýringu og áhættumat þannig að innan fyrirtækisins sé yfirsýn yfir helstu áhættuþætti. Einnig skal stjórn, eftir atvikum, hafa eftirlit með mati á eignum félagsins, notkun innri líkana og notkun mats frá lánshæfismatsfyrirtækjum.]2)
   1)L. 38/2022, 78. gr. 2)L. 57/2015, 21. gr.
55. gr. Þátttaka stjórnarmanna í meðferð mála.
Stjórn fjármálafyrirtækis skal ekki taka þátt í ákvörðunum um einstök viðskipti, nema umfang þeirra sé verulegt miðað við stærð fyrirtækisins. Einstakir stjórnarmenn skulu ekki hafa afskipti af ákvörðunum um einstök viðskipti.
Stjórnarmenn fjármálafyrirtækis skulu ekki taka þátt í meðferð máls ef mál varðar:
   1. viðskipti þeirra sjálfra eða fyrirtækja sem þeir sitja í stjórn hjá, eru fyrirsvarsmenn fyrir eða eiga að öðru leyti verulegra hagsmuna að gæta í; eða
   2. viðskipti samkeppnisaðila þeirra aðila sem ræðir um í 1. tölul.
Hið sama skal gilda um viðskipti aðila sem eru tengdir stjórnarmönnum persónulega eða fjárhagslega.
Viðskiptaerindi stjórnarmanna, sem og fyrirtækja sem þeir eru í fyrirsvari fyrir, skulu lögð fyrir stjórn fjármálafyrirtækis, eða stjórnarformann félags, til samþykktar eða synjunar. Stjórn fjármálafyrirtækis er þó heimilt að setja almennar reglur um afgreiðslu slíkra mála þar sem fyrir fram er ákveðið hvaða viðskiptaerindi þurfi, og þurfi ekki, sérstaka umfjöllun stjórnar áður en til afgreiðslu þeirra kemur, sbr. 54. gr.
56. gr. Þátttaka starfsmanna í atvinnurekstri.
Framkvæmdastjóra fjármálafyrirtækis er óheimilt að sitja í stjórn atvinnufyrirtækis og taka þátt í atvinnurekstri að öðru leyti. [Stjórn fyrirtækis getur veitt heimild til slíks á grundvelli reglna sem fjármálafyrirtæki setur og sendir Fjármálaeftirlitinu afrit af.]1) Eignarhlutur í fyrirtæki telst þátttaka í atvinnurekstri, nema um sé að ræða óverulegan hlut sem ekki veitir bein áhrif á stjórnun þess. Um stjórnarsetu framkvæmdastjóra í [dótturfélagi]1) eða hlutdeildarfélagi fjármálafyrirtækisins, og um heimildir annarra starfsmanna til þátttöku í atvinnurekstri, fer samkvæmt reglum settum samkvæmt ákvæðum 54. gr.
   1)L. 57/2015, 22. gr.
57. gr. [Viðskipti stjórnarmanna og starfsmanna við fjármálafyrirtæki.]1)
[[Fjármálafyrirtæki skal setja reglur um viðskipti sín við [stjórnarmenn],1) framkvæmdastjóra og lykilstarfsmenn og senda Fjármálaeftirlitinu afrit af reglunum innan 14 daga frá því að þær eru staðfestar af stjórn.]2) Samningur fjármálafyrirtækis um lán, ábyrgðir, kauprétt eða sambærileg viðskipti við [stjórnarmann eða]1) framkvæmdastjóra er háður samþykki stjórnar fyrirtækisins. Ákvörðun um slíkt skal bókuð og tilkynnt Fjármálaeftirlitinu. [Ákvæði þessarar greinar gilda einnig um maka, börn og foreldra stjórnarmanns eða framkvæmdastjóra fjármálafyrirtækis og fyrirtæki sem stjórnarmaður, framkvæmdastjóri eða maki, barn eða foreldri hans á virkan eignarhlut í, gegnir í stöðu stjórnarmanns, framkvæmdastjóra eða stjórnanda sem svarar beint til framkvæmdastjóra eða getur af öðrum sökum haft veruleg áhrif á.].1)
[Um viðskipti fjármálafyrirtækis og starfsmanna þess, eða aðila í nánum tengslum við þá, fer samkvæmt reglum sem stjórn fjármálafyrirtækis setur og birtar skulu opinberlega.]2) Skulu þau …2) lúta sömu reglum og viðskipti við almenna viðskiptamenn í sambærilegum viðskiptum.]3)
   1)L. 38/2022, 79. gr. 2)L. 57/2015, 23. gr. 3)L. 75/2010, 42. gr.
[C. Starfskjör.]
   1)L. 38/2022, 83. gr.
[57. gr. a. Starfskjarastefna.
Fjármálafyrirtæki skal setja sér starfskjarastefnu.
Starfskjarastefna fjármálafyrirtækis og framkvæmd hennar skal tryggja, að því marki sem við á, að teknu tilliti til stærðar, skipulags, eðlis og flækjustigs í starfsemi fyrirtækisins, að:
   1. Starfskjör stjórnarmanna og starfsmanna:
   a. samræmist og stuðli að traustri og skilvirkri áhættustýringu og hvetji ekki til áhættusækni umfram áhættuvilja fyrirtækisins,
   b. samræmist viðskiptaáætlun, markmiðum, gildum og langtímahagsmunum fyrirtækisins og feli í sér ráðstafanir til að forðast hagsmunaárekstra.
   2. Stjórnarmenn og starfsmenn fái greidd sömu laun fyrir jafngild eða jafnverðmæt störf óháð kyni.
   3. Starfskjör stjórnarmanna og starfsmanna sem hafa eftirlit með höndum taki mið af þeirra eigin verksviði en ekki árangri þeirra rekstrareininga sem þeir hafa eftirlit með.
Starfskjarastefna skal greina á milli:
   1. Fastra starfskjara, sem skulu fyrst og fremst endurspegla viðeigandi starfsreynslu og ábyrgð samkvæmt starfslýsingu.
   2. Kaupauka, sem skal endurspegla sjálfbæran og áhættuveginn árangur og árangur umfram kröfur til starfsmanns samkvæmt starfslýsingu.
Stjórn fjármálafyrirtækis skal reglubundið meta hvort starfskjarastefna samræmist þessari grein og hafa eftirlit með framkvæmd hennar. Að minnsta kosti árlega skal fara fram óháð miðlægt innra mat á því hvort starfskjör samræmist starfskjarastefnu og verklagsreglum og öðrum viðmiðum sem stjórn hefur samþykkt varðandi starfskjör.]1)
   1)L. 38/2022, 81. gr.
[57. gr. b. Kaupauki.
Fjármálafyrirtæki skal tryggja, að því marki sem við á, að teknu tilliti til stærðar, skipulags, eðlis og flækjustigs í starfsemi fyrirtækisins, að kaupaukar til starfsmanna:
   1. Taki mið af árangri viðkomandi starfsmanns, bæði fjárhagslegum og ófjárhagslegum, og þeirrar einingar sem hann tilheyrir og fyrirtækisins í heild.
   2. Taki mið af nægum árafjölda til að endurspegla langtímaárangur og að greiðslu þeirra sé dreift yfir tímabil sem tekur mið af sveiflum í afkomu og áhættu fyrirtækisins.
   3. Takmarki ekki möguleika fyrirtækisins til að styrkja eiginfjárgrunn sinn.
   4. Séu ekki tryggðir óháðir árangri nema á fyrsta ári í starfi og þá því aðeins að fyrirtækið búi yfir traustum eiginfjárgrunni.
   5. Séu í viðeigandi hlutfalli við föst starfskjör þannig að unnt sé að starfrækja sveigjanlega stefnu um greiðslu kaupauka og eftir atvikum ekki greiða út neinn kaupauka og aldrei umfram 25% af föstum starfskjörum.
   6. Séu ekki greiddir í tengslum við uppsögn starfssamnings nema það endurspegli frammistöðu í starfi og umbuni ekki misferli.
   7. Séu ekki greiddir til að bæta nýjum starfsmanni bóta- eða starfslokagreiðslur sem hann verður af samkvæmt fyrri starfssamningi nema það samræmist langtímahagsmunum fyrirtækisins og fyrirtækið haldi eftir, fresti, árangurstengi og krefjist endurgreiðslu kaupaukans þegar við á.
   8. Taki mið af áhættu fyrirtækisins nú og síðar, fjármagnskostnaði og kostnaði við að viðhalda lausu fé til að mæta kaupaukagreiðslum.
   9. Sæti úthlutun innan fyrirtækisins sem tekur mið af áhættuþáttum nú og síðar.
   10. Samanstandi a.m.k. að hálfu leyti af hlutabréfum, hlutabréfatengdum gerningum eða jafngildum gerningum sem ekki eru ígildi reiðufjár, gerningum skv. 52. eða 63. gr. reglugerðar (ESB) nr. 575/2013 eða öðrum gerningum sem má breyta að fullu í gerninga almenns eigin fjár þáttar 1 eða niðurfæra og sem endurspegla lánshæfi fyrirtækisins við áframhaldandi rekstur og eru viðeigandi til greiðslu kaupauka; viðeigandi varðveislustefna skal gilda um gerninga samkvæmt þessum tölulið til að samræma hvata starfsmanna og langtímahagsmuni fyrirtækisins.
   11. Sæti því að vera haldið eftir að verulegu leyti, a.m.k. að fjórum tíundu eða sex tíundu hlutum ef kaupauki nemur mjög hárri fjárhæð, í tímabil sem tekur mið af sveiflum í afkomu, eðli og áhættu fyrirtækisins og verksviði viðkomandi starfsmanns og er eigi skemmra en fjögur ár eða fimm ár ef um er að ræða framkvæmdastjóra eða stjórnanda sem svarar beint til framkvæmdastjóra í kerfislega mikilvægu fjármálafyrirtæki; kaupauki sem er haldið eftir skal ekki ávinnast hraðar en í hlutfalli við þann hluta frestsins sem er liðinn.
   12. Séu aðeins greiddir út eða ávinnist ef það er sjálfbært í ljósi fjárhagsstöðu fyrirtækisins og réttlætanlegt með tilliti til árangurs fyrirtækisins og viðkomandi rekstrareiningar og starfsmanns.
   13. Ávinnist ekki nema að takmörkuðu leyti eða séu að verulegu leyti afturkallanlegir ef þeir hafa áunnist en ekki verið greiddir út ef afkomu fyrirtækisins hrakar verulega.
   14. Séu endurkræfir, samkvæmt viðmiðum sem fyrirtækið skal setja sér, ef þeir hafa þegar verið greiddir út og viðkomandi starfsmaður tók þátt í eða bar ábyrgð á háttsemi sem olli fyrirtækinu verulegu tjóni eða brást starfsskyldum sínum verulega.
   15. Séu ekki liður í stefnu fyrirtækisins um öflun lífeyrisréttinda nema það samræmist viðskiptaáætlun, markmiðum, gildum og langtímahagsmunum fyrirtækisins og þá aðeins veittir í formi gerninga skv. 10. tölul. sem fyrirtækið heldur eftir í a.m.k. fimm ár.
   16. Séu ekki greiddir út í gegnum einingar eða með aðferðum sem greiða fyrir því að farið sé á svig við lög þessi.
10. og 11. tölul. 1. mgr. og fyrirmæli 15. tölul. um að kaupaukar séu í formi gerninga skv. 10. tölul. sem fyrirtækið haldi eftir í a.m.k. fimm ár gilda ekki um:
   1. Fyrirtæki sem teljast ekki stór fjármálafyrirtæki skv. 146. tölul. 1. mgr. 4. gr. reglugerðar (ESB) nr. 575/2013 og sem áttu á einingargrunni að meðaltali minna en jafnvirði 5 milljarða evra síðastliðin fjögur reikningsár.
   2. Starfsmenn sem fá ekki árlegan kaupauka umfram jafnvirði 50 þús. evra; 11. tölul. 1. mgr. gildir þó ef kaupauki er umfram 10% af föstum starfskjörum.
Allt að fjórðungur kaupauka má bera vexti að því tilskildu að hann sé greiddur með gerningum sem er haldið eftir í a.m.k. fimm ár.
Starfsmönnum er óheimilt að afla sér trygginga eða annarra áhættuvarna sem grafa undan því markmiði kaupaukakerfis að hagsmunir þeirra og fyrirtækisins fari saman.
Óheimilt er að veita stjórnarmönnum og starfsmönnum sem starfa við áhættustýringu, innri endurskoðun eða regluvörslu kaupauka.
Seðlabanki Íslands getur sett nánari reglur um kaupaukakerfi. Í reglunum má m.a. kveða á um skilgreiningu fastra starfskjara og kaupauka, markmið kaupaukakerfis, árangurs- og áhættumat, innra eftirlit, ráðningarkaupauka, frestun, lækkun, afturköllun eða endurkröfu kaupauka, vexti skv. 3. mgr. og upplýsingagjöf og gagnsæi.]1)
   1)L. 38/2022, 81. gr.
[57. gr. c. Fjármálafyrirtæki sem nýtur góðs af sérstökum stuðningi hins opinbera.
Fjármálafyrirtæki sem nýtur góðs af sérstökum stuðningi hins opinbera skal endurskoða starfskjör stjórnarmanna og starfsmanna til að tryggja trausta áhættustýringu og langtímavöxt fyrirtækisins, meðal annars, eftir atvikum, með því að takmarka starfskjör stjórnarmanna og framkvæmdastjóra. Kaupaukar skulu takmarkast við hóflegt hlutfall af hreinum tekjum fyrirtækisins þar til fyrirtækið býr yfir traustum eiginfjárgrunni og þarfnast ekki frekari stuðnings hins opinbera. Framkvæmdastjóra skal á sama tímabili ekki greiddur kaupauki nema sérstök rök standi til þess.]1)
   1)L. 38/2022, 81. gr.
[[57. gr. d.]1) Starfslokasamningur.
Fjármálafyrirtæki er óheimilt að gera starfslokasamning við framkvæmdastjóra eða lykilstarfsmann nema hagnaður hafi verið af rekstri fyrirtækisins samfellt síðustu þrjú ár starfstíma hans. Með starfslokasamningi í grein þessari er átt við hvers konar samninga sem gerðir eru á milli framkvæmdastjóra eða lykilstarfsmanns annars vegar og fjármálafyrirtækis hins vegar og kunna að færa þeim sem lætur af störfum hlunnindi eða réttindi umfram hefðbundnar launagreiðslur í uppsagnarfresti.
Hafi hagnaður verið af rekstri fyrirtækisins samfellt síðustu þrjú ár er heimilt að gera starfslokasamninga við þá sem tilgreindir eru í 1. mgr. Slíkir samningar skulu vera í formi beinna launagreiðslna og ekki vara lengur en í 12 mánuði eftir starfslok. Um starfslokasamning sem gerður hefur verið fyrir gildistöku laga þessara en ekki komið til framkvæmda gilda ákvæði greinar þessarar.
Heimilt er í reglugerð að kveða nánar á um skilyrði og framkvæmd starfslokasamninga. Sérstaklega skal gera grein fyrir slíkum samningum í skýringum með ársreikningi.]2)
   1)L. 38/2022, 81. gr. 2)L. 75/2010, 43. gr.
[57. gr. e. Starfskjaranefnd.
Kerfislega mikilvægt fjármálafyrirtæki skal starfrækja starfskjaranefnd.
Starfskjaranefnd skal skipuð þannig að hún geti lagt faglegt og sjálfstætt mat á starfskjarastefnu og framkvæmd hennar og hvata til að stýra áhættu og eigin- og lausafjárstöðu. A.m.k. þrír stjórnarmenn skulu sitja í nefndinni og skal einn þeirra gegna formennsku.
Starfskjaranefnd ber ábyrgð á:
   1. Undirbúningi ákvarðana um starfskjör, þ.m.t. þeirra ákvarðana sem hafa áhrif á áhættu og áhættustýringu fyrirtækisins og þeirra ákvarðana sem stjórn eða framkvæmdastjóri tekur, með hætti sem tekur tillit til langtímahagsmuna hluthafa, fjárfesta og annarra hagsmunaaðila fyrirtækisins og almannahagsmuna.
   2. Umsjón með starfskjörum yfirmanna áhættustýringar og regluvörslu.
Starfræki fjármálafyrirtæki ekki starfskjaranefnd ber stjórn ábyrgð á umsjón með starfskjörum yfirmanna áhættustýringar og regluvörslu, sbr. 2. tölul. 3. mgr.]1)
   1)L. 38/2022, 82. gr. Greinin tók gildi 1. júlí 2023 gagnvart fjármálafyrirtækjum, rekstraraðilum og rekstrarfélögum sem höfðu þegar haldið aðalfund vegna yfirstandandi reikningsárs 1. júlí 2022, sbr. 215. gr. s.l.
[57. gr. f. Upplýsingar um starfskjör.
Fjármálaeftirlitið skal safna upplýsingum:
   1. Sem birtar eru í samræmi við g–i- og k-lið 1. mgr. 450. gr. reglugerðar (ESB) nr. 575/2013 og upplýsingum sem fjármálafyrirtæki veita um mun á launum kynjanna og nýta þær upplýsingar til viðmiðunar um starfskjaraþróun og -framkvæmd.
   2. Um fjölda einstaklinga í hverju fjármálafyrirtæki sem fá jafnvirði 1 millj. evra eða meira í laun á hverju reikningsári og um starfsskyldur þeirra, þau rekstrarsvið sem þeir starfa við og helstu þætti starfskjara þeirra, þar á meðal föst starfskjör, kaupauka og lífeyrisframlög.
Fjármálaeftirlitið skal senda Evrópsku bankaeftirlitsstofnuninni upplýsingar skv. 1. mgr.]1)
   1)L. 38/2022, 82. gr.
[D. Þagnarskylda.]1)
   1)L. 38/2022, 86. gr.
58. gr. Þagnarskylda.
Stjórnarmenn fjármálafyrirtækis, framkvæmdastjórar, endurskoðendur, starfsmenn og hverjir þeir sem taka að sér verk í þágu fyrirtækisins eru bundnir þagnarskyldu um allt það sem þeir fá vitneskju um við framkvæmd starfa síns og varðar viðskipta- eða einkamálefni viðskiptamanna þess, nema skylt sé að veita upplýsingar samkvæmt lögum. Þagnarskyldan helst þótt látið sé af starfi.
Sá sem veitir viðtöku upplýsingum af því tagi sem um getur í 1. mgr. er bundinn þagnarskyldu með sama hætti og þar greinir. Sá aðili sem veitir upplýsingar skal áminna viðtakanda um þagnarskylduna.
59. gr.1)
   1)L. 38/2022, 84. gr.
60. gr. Samþykki viðskiptamanns til miðlunar trúnaðarupplýsinga.
Heimilt er að miðla til utanaðkomandi aðila þeim upplýsingum um viðskiptamenn sem um getur í 58. gr. að fengnu skriflegu samþykki þess er í hlut á. Í samþykki skal koma fram til hvaða upplýsinga það tekur, til hvaða aðila er heimilt að miðla upplýsingum á grundvelli þess og í hvaða tilgangi upplýsingunum er miðlað.
[60. gr. a. Tilkynningar starfsmanna um brot í starfsemi fjármálafyrirtækis.
Fjármálafyrirtæki skal hafa ferla til að taka við og fylgja eftir tilkynningum starfsmanna þess um brot, möguleg brot og tilraunir til brota á lögum og stjórnvaldsfyrirmælum sem gilda um starfsemi fjármálafyrirtækisins. Ferlarnir skulu vera aðskildir frá öðrum ferlum innan fyrirtækisins.
Einstaklingur sem tekur við tilkynningum skv. 1. mgr. og sér um vinnslu þeirra skal búa við sjálfstæði í störfum og tryggt skal að hann hafi nægilegt vald, fjárveitingar og heimildir til að afla gagna og upplýsinga sem honum eru nauðsynlegar til að hann geti sinnt skyldum sínum.
Vinnsla og meðferð persónuupplýsinga skal vera í samræmi við lög um persónuvernd og [vinnslu]1) persónuupplýsinga.
[Seðlabanka Íslands]2) er heimilt að setja nánari reglur um framkvæmd 1. og 2. mgr., þ.m.t. um viðtöku og vinnslu tilkynninga.]3)
   1)L. 90/2018, 54. gr. 2)L. 91/2019, 34. gr. 3)L. 23/2017, 1. gr.
[60. gr. b. Vernd starfsmanns vegna tilkynningar um brot í starfsemi fjármálafyrirtækis.
Þeir sem falið hefur verið að taka við tilkynningum skv. 60. gr. a og sjá um vinnslu þeirra eru bundnir þagnarskyldu um persónugreinanlegar upplýsingar sem koma fram í tilkynningunum. Þagnarskyldan gildir gagnvart öðrum starfsmönnum fyrirtækisins og einnig utanaðkomandi aðilum. Þó er heimilt að miðla upplýsingum sem lúta þagnarskyldu til Fjármálaeftirlitsins og til lögreglu.
Fjármálafyrirtæki skal vernda starfsmann sem í góðri trú hefur tilkynnt um brot skv. 60. gr. a gegn því að hann sæti misrétti sem rekja má til tilkynningar hans. Sama gildir um tilkynningar til Fjármálaeftirlitsins skv. 13. gr. a laga um opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi.
Ef fjármálafyrirtæki brýtur gegn skyldu sinni skv. 2. mgr. skal það greiða starfsmanni skaðabætur samkvæmt almennum reglum. Þetta tekur bæði til …1) fjártjóns og miska.
Skyldur og réttindi samkvæmt þessari grein eru ófrávíkjanleg og óheimilt er að takmarka þau í ráðningarsamningi á milli starfsmanns og fyrirtækis.]2)
   1)L. 38/2022, 85. gr. 2)L. 23/2017, 1. gr.

VIII. kafli. Sparisjóðir.
[A. Sparisjóðir – sameiginleg ákvæði.]1)
   1)L. 77/2012, 5. gr.
[61. gr. Sparisjóður.
Til þess að fá starfsleyfi sem sparisjóður og eiga samvinnu um sameiginlega markaðsstarfsemi skal fjármálafyrirtæki skilgreina í samþykktum sínum samfélagslegt hlutverk sitt og hlíta ákvæðum 63. gr. um ráðstöfun hagnaðar og arðgreiðslur. Sparisjóður skal afmarka samfélagslegt hlutverk sitt við tiltekið landsvæði, í lögum þessum nefnt starfssvæði.
1)]2)
   1)L. 38/2022, 87. gr. 2)L. 77/2012, 5. gr.
[62. gr. Rekstrarform.
Sparisjóður getur verið sjálfseignarstofnun samkvæmt ákvæðum þessa kafla eða hlutafélag. Sparisjóður skal tilgreina rekstrarform í heiti sínu. Nægilegt er að tilgreining rekstrarforms sé gerð með skammstöfun, nota skal skammstöfunina „ses.“ fyrir sjálfseignarstofnun en ákvæði [laga um hlutafélög]1) gilda um tilgreiningu á rekstrarformi hlutafélags.]2)
   1)L. 96/2016, 28. gr. 2)L. 77/2012, 5. gr.
[63. gr. Ráðstöfun hagnaðar.
Sparisjóður skal ráðstafa að lágmarki 5% af hagnaði liðins árs fyrir skatt, [að undanskildum þeim hagnaði sem skapast við niðurfellingu skulda við fjárhagslega endurskipulagningu],1) til samfélagslegra verkefna á starfssvæði sínu. Sundurliða skal þau verkefni sem sparisjóðurinn hefur stutt í skýringum með ársreikningi þess árs þegar ráðstöfun fer fram og tiltaka móttakendur framlaga.
Ráðherra sá sem fer með málefni fjármálamarkaðar getur gefið út reglugerð til nánari skýringa á því hvað teljast samfélagsleg verkefni samkvæmt þessari grein.]2)
   1)L. 47/2013, 9. gr. 2)L. 77/2012, 5. gr.
[64. gr. Viðskipti með hluti í sparisjóði.
Sparisjóðir skulu setja sér reglur um viðskipti með hluti í sparisjóðnum, stofnfjárbréf eða hlutabréf, sem samþykktar skulu af Fjármálaeftirlitinu. Því er heimilt að gefa út leiðbeinandi tilmæli um slík viðskipti.]1)
   1)L. 77/2012, 5. gr.
[65. gr. Samstarf sparisjóða.
Sparisjóðum er heimilt að hafa samstarf m.a. um eftirfarandi verkefni, enda sé slíkt gert á almennum viðskiptalegum forsendum:
   1. ráðgjöf um áhættustýringu,
   2. rekstur upplýsingakerfa,
   3. öryggiseftirlit,
   4. starfsemi innri endurskoðunardeilda,
   5. bakvinnslu, bókhald, greiningu og skýrslugerð til eftirlitsstofnana,
   6. lögfræðiráðgjöf, samninga og samskipti við birgja,
   7. vöruþróun og markaðssamstarf um sameiginleg vörumerki,
   8. fræðslu og upplýsingagjöf,
   9. innlenda og erlenda greiðslumiðlun og þjónustu við erlend viðskipti.
Í þeim tilfellum að fleiri en einn sparisjóður hafa falið einum og sama aðila verkefni skv. 1. mgr. skulu gerðir samningar á milli hvers einstaks sparisjóðs og þess sem veitir þjónustuna. Slíkir samningar víkja ekki til hliðar skyldum þeim sem hver einstakur sparisjóður ber gagnvart lögum og reglum, eftirlitsaðilum, stofnfjáreigendum, hluthöfum eða öðrum.
Rísi ágreiningur um hvort starfsemi falli undir 1. mgr. sker Samkeppniseftirlitið úr.]1)
   1)L. 77/2012, 5. gr.
[B. Sjálfseignarstofnun sem sparisjóður.]1)
   1)L. 77/2012, 6. gr.
[66. gr. Sjálfseignarstofnun.
Um sjálfseignarstofnun sem er sparisjóður gilda ákvæði laga um hlutafélög, nr. 2/1995, að því leyti sem ekki eru settar sérstakar reglur í lögum þessum. Ákvæði laga um sjálfseignarstofnanir sem stunda atvinnurekstur eiga ekki við um sjálfseignarstofnun sem er sparisjóður.]1)
   1)L. 77/2012, 6. gr.
[67. gr. Samþykktir.
Í samþykktum sjálfseignarstofnunar sem er sparisjóður skulu vera ákvæði sem varða sérstaklega hlutaðeigandi sparisjóð, svo sem:
   1. heiti sparisjóðs,
   2. heimili sparisjóðs og varnarþing,
   3. tilgang,
   4. samfélagslegt hlutverk hans og starfssvæði,
   5. heildarupphæð stofnfjár og skiptingu í stofnfjárhluti,
   6. kosningu sparisjóðsstjórnar, störf hennar og kjörtímabil,
   7. hvernig boðað skuli til funda stofnfjáreigenda,
   8. hvaða mál skuli taka fyrir á aðalfundi,
   9. hvert skuli vera reikningsár sparisjóðsins,
   10. hvernig staðið skuli að breytingum á samþykktum,
   11. hvort stofnfjáreigendur skuli sæta innlausn á hlutum sínum að nokkru leyti eða öllu og eftir hvaða reglum,
   12. hvort stofnfjáreigendur njóti forgangsréttar til áskriftar við aukningu stofnfjár,
   13. slit á sparisjóði og ráðstöfun eigin fjár í því sambandi.
Ekki er heimilt að veita tilteknum stofnfjáreigendum sérréttindi.]1)
   1)L. 77/2012, 6. gr.
[68. gr. Stjórnun og fjárhagsleg réttindi tengd stofnfé.
Fundur stofnfjáreigenda er æðsta vald í málefnum sjálfseignarstofnunar og kýs honum stjórn. Stofnfjáreigendur fara með atkvæði í samræmi við hlutdeild sína í útgefnu stofnfé að frádregnu stofnfé sem kann að vera í eigu sjálfseignarstofnunarinnar.
Stjórn ræður sparisjóðsstjóra sem er framkvæmdastjóri sparisjóðsins og ber ábyrgð á daglegum rekstri hans.
Stofnfjáreigendur bera ekki ábyrgð á skuldbindingum sparisjóðs umfram stofnfé sitt og eiga ekki hlutdeild í öðru eigin fé sparisjóðs en bókfærðu stofnfé eins og það er á hverjum tíma. Stofnfjáreigendum er óheimilt að ganga á óráðstafað eigið fé við ákvörðun arðs, sbr. 63. gr., eða ganga að óráðstöfuðu fé sjálfseignarstofnunarinnar með öðrum hætti, svo sem með innlausn eða kaupum sjálfseignarstofnunarinnar á eigin stofnfjárhlutum á hærra verði en nafnverði.]1)
   1)L. 77/2012, 6. gr.
[69. gr. Stofnfé og stofnfjárbréf.
Stjórn sparisjóðs sem er sjálfseignarstofnun gefur út stofnfjárbréf til þeirra sem skráðir eru fyrir stofnfjárhlutum. Stofnfjárbréf má ekki afhenda fyrr en hlutur er að fullu greiddur.
Stofnfjárbréf skulu hljóða á nafn og tilgreina:
   1. heiti sparisjóðs og heimilisfang,
   2. númer og fjárhæð hlutar,
   3. nafn, heimilisfang og kennitölu stofnfjáreiganda,
   4. útgáfudag stofnfjárbréfs,
   5. sérstök atriði er varða réttindi og skyldur stofnfjáreigenda.
Stjórnin skal færa skrá yfir stofnfjáreigendur og skal hún aðgengileg öllum. Sparisjóðsstjórn skal uppfæra skrána þegar breytingar verða á eignarhaldi stofnfjárbréfa. Stofnfjáreigandi öðlast réttindi samkvæmt stofnfjárbréfi við skráningu í stofnfjáreigendaskrá.
Stofnfjárbréf er heimilt samkvæmt ákvörðun stjórnar félagsins að gefa út með rafrænum hætti í verðbréfamiðstöð í samræmi við lög um rafræna eignarskráningu verðbréfa.
Framsal og önnur ráðstöfun stofnfjárbréfa í sparisjóði er heimil án takmarkana, sbr. þó ákvæði VI. kafla.]1)
   1)L. 77/2012, 6. gr.
[70. gr. Hækkun stofnfjár og endurmat.
Fundur stofnfjáreigenda getur samþykkt aukningu stofnfjár í viðkomandi sparisjóði með útgáfu nýrra stofnfjárhluta. Til þess að heimilt sé að fjalla um aukningu stofnfjár á aðalfundi eða sérstökum fundi stofnfjáreigenda skal hafa verið boðað til fundarins með a.m.k. tveggja vikna fyrirvara. Í fundarboði skal gera grein fyrir tillögu stjórnar um útgáfu nýrra stofnfjárhluta, þ.m.t. um heildarfjölda hluta, nafnverð hluta og útboðsgengi, greiðslukjör, ef einhver eru, áskriftartíma og áskriftarrétt. Lágmarksverð nýrra stofnfjárhluta skal vera jafnhátt og nafnverð stofnfjárhluta í viðkomandi sparisjóði.
Aðalfundur stofnfjáreigenda getur samþykkt, að tillögu sparisjóðsstjórnar, að arði til stofnfjáreigenda skuli að hluta eða að öllu leyti varið til hækkunar á nafnverði stofnfjárhluta í sparisjóðnum. Ekki er þó heimilt að hækka nafnverð stofnfjárhluta umfram verðlagsbreytingar miðað við vísitölu neysluverðs frá útgáfu stofnfjárhlutanna.
Ef sparisjóður hefur gefið út nýtt stofnfé og hafi verið greitt meira en nafnverð fyrir útgáfuna skal fé það sem greitt var umfram nafnverð fært á yfirverðsreikning stofnfjár að frádregnum kostnaði sparisjóðsins af útgáfunni. Hann telst með óráðstöfuðu eigin fé sparisjóðs.]1)
   1)L. 77/2012, 6. gr.
[71. gr. Lækkun stofnfjár.
Að tillögu stjórnar sparisjóðs getur fundur stofnfjáreigenda tekið ákvörðun um lækkun stofnfjár til jöfnunar taps sem ekki verður jafnað á annan hátt. Til þess að heimilt sé að fjalla um lækkun stofnfjár á fundi stofnfjáreigenda skal hafa verið boðað til fundarins með a.m.k. tveggja vikna fyrirvara. Í fundarboði skal gera grein fyrir tillögu um lækkun stofnfjár. Fyrir slíkri ákvörðun þarf samþykki 2/3 hluta atkvæða sem mætt er fyrir á fundi stofnfjáreigenda. Í fundarboði skal greina frá ástæðum fyrir lækkuninni og hvernig hún á að fara fram. Fjármálaeftirlitinu skal tilkynnt fyrir fram um fyrirhugaða lækkun stofnfjár.
Ákvörðun fundar stofnfjáreigenda um lækkun skv. 1. mgr. tekur gildi þegar Fjármálaeftirlitið hefur samþykkt hana.
Ekki þarf að innkalla kröfur vegna lækkunar stofnfjár samkvæmt þessari grein.]1)
   1)L. 77/2012, 6. gr.
[72. gr. Samruni.
Heimilt er að sameina sparisjóð sem er sjálfseignarstofnun við annan sparisjóð eða fjármálafyrirtæki þannig að sjálfseignarstofnuninni verði slitið.
Ef sparisjóður sem er sjálfseignarstofnun er sameinaður annarri sjálfseignarstofnun skal endurgjald til stofnfjáreigenda hans vera í samræmi við hlutdeild stofnfjár í eigin fé sparisjóðsins eins og það var samkvæmt efnahagsreikningi við sameininguna. Ef fyrir hendi er eigið fé umfram stofnfé í sparisjóðnum, hér nefnt óráðstafað eigið fé, skal það leggjast óskert við óráðstafað eigið fé hins sameinaða sparisjóðs. Sé um neikvætt óráðstafað eigið fé að ræða í sparisjóði sem sameinast annarri sjálfseignarstofnun skal stofnfé lækkað til jöfnunar á því áður en til samruna kemur. Við samrunann má óráðstafað eigið fé sameinaðs sparisjóðs ekki verða lægra en samanlagt jákvætt óráðstafað eigið fé þeirra sparisjóða var fyrir samruna.
Ef sparisjóður sem er sjálfseignarstofnun er sameinaður hlutafélagi með yfirtöku, þannig að hlutafélagið er yfirtökufélag, skal sjálfseignarstofnuninni slitið. Skal endurgjald til stofnfjáreigenda í hinum yfirtekna sparisjóði vera í samræmi við hlutdeild stofnfjár í eigin fé sparisjóðsins. Ef í yfirteknum sparisjóði er jákvætt óráðstafað eigið fé skal endurgjald fyrir það lagt í sérstaka sjálfseignarstofnun. Endurgjaldi fyrir hinn yfirtekna sparisjóð skal þá skipt milli stofnfjáreigenda og sjálfseignarstofnunar miðað við hlutfall þeirra í heildar eigin fé sparisjóðsins. Skal endurgjald til sjálfseignarstofnunarinnar vera í formi peningagreiðslu eða með skuldabréfi til ekki lengri tíma en 10 ára. Óháður aðili skal leggja mat á verðmæti endurgjalds sem fara skal til sjálfseignarstofnunar, með tilliti til þess hvort það sé sanngjarnt, eðlilegt og í réttu hlutfalli miðað við verðmæti endurgjalds sem koma skal í hlut stofnfjáreigenda. Skal Fjármálaeftirlitið staðfesta matið. Stjórn yfirtekins sparisjóðs skal annast um að stofna sjálfseignarstofnun samkvæmt þessari grein og setja henni skipulagsskrá sem skal staðfest sameiginlega af ráðherra er fer með sveitarstjórnarmál og ráðherra er fer með fræðslumál. Sjálfseignarstofnun þessi skal hafa þann tilgang að rækja og stuðla að framgangi þeirra samfélagslegu verkefna sem samþykktir yfirtekins sparisjóðs kveða á um. Í stjórn sjálfseignarstofnunar samkvæmt þessari málsgrein skulu eiga sæti einn fulltrúi sveitarfélaga á starfssvæði sparisjóðsins, einn fulltrúi skipaður af ráðherra er fer með sveitarstjórnarmál, sem skal vera formaður stjórnar, og einn fulltrúi tilnefndur af ráðherra er fer með fræðslumál. Ráðherra sem fer með sveitarstjórnarmál getur skipað fulltrúa sveitarfélaga í stjórn sjálfseignarstofnunarinnar berist ekki sameiginleg tilnefning frá þeim innan frests sem hann hefur sett þeim til að tilnefna sameiginlega stjórnarmann.
Stjórn yfirtekins sparisjóðs getur einnig, í stað þess að stofna sjálfseignarstofnun, gert tillögu um ráðstöfun á endurgjaldi fyrir óráðstafað eigið fé sparisjóðsins beint til samfélagslegra verkefna sparisjóðsins. Tillaga stjórnar um slíka ráðstöfun skal staðfest sameiginlega af ráðherra er fer með sveitarstjórnarmál og ráðherra er fer með fræðslumál.
Ekki er heimilt að samþykkja samruna og slíta yfirteknum sparisjóði fyrr en stjórn sjálfseignarstofnunar hefur verið skipuð eða tillaga um ráðstöfun á óráðstöfuðu eigin fé hefur verið staðfest.
Um samruna sparisjóða fer að öðru leyti eftir ákvæðum 106. gr., þ.m.t. ef sparisjóður sem er sjálfseignarstofnun yfirtekur fjármálafyrirtæki sem er hlutafélag.]1)
   1)L. 77/2012, 6. gr.
[73. gr. Breyting sjálfseignarstofnunar í hlutafélag.
Að tillögu sparisjóðsstjórnar getur fundur stofnfjáreigenda ákveðið með 2/3 hlutum greiddra atkvæða, svo og samþykki stofnfjáreigenda sem ráða yfir minnst 2/3 hlutum þess stofnfjár sem farið er með atkvæði fyrir á fundinum, að breyta rekstrarformi sparisjóðs úr sjálfseignarstofnun í hlutafélag.
Skal breyting sjálfseignarstofnunar í hlutafélag framkvæmd þannig að sjálfseignarstofnunin sameinist hlutafélagi sem hún hefur áður stofnað í því skyni. Við samrunann tekur hlutafélagið við rekstri sparisjóðsins, öllum eignum hans og skuldum, réttindum og skuldbindingum og skal sjálfseignarstofnuninni slitið.
Hlutafélag sem sparisjóðurinn stofnar skv. 2. mgr. skal uppfylla ákvæði 61. gr. Ákvæði 1. málsl. 2. mgr. 3. gr. laga nr. 2/1995, um hlutafélög, gilda ekki um fjölda stofnenda í hlutafélagi skv. 2. mgr. Ákvæði 1. mgr. 20. gr. sömu laga um lágmarksfjölda hluthafa gilda ekki um hlutafélag skv. 2. mgr. fram að því að breyting sparisjóðs í hlutafélag skv. 2. mgr. á sér stað.
Við breytingu sjálfseignarstofnunar í hlutafélag samkvæmt þessari grein heldur starfsleyfi sparisjóðsins gildi sínu.
Samruni vegna breytingar sjálfseignarstofnunar í hlutafélag skal að öðru leyti fara eftir ákvæðum 3. mgr. 72. gr. og 106. gr.]1)
   1)L. 77/2012, 6. gr.
74.–76. gr.1)
   1)L. 76/2009, 12. gr.
77. gr.1)
   1)L. 75/2010, 44. gr.

IX. kafli. [Meðhöndlun áhættuþátta í starfsemi fjármálafyrirtækis.]1)
   1)L. 57/2015, 27. gr.
[77. gr. a. Eftirlitskerfi með áhættu.
Fjármálafyrirtæki skal á hverjum tíma hafa yfir að ráða tryggu eftirlitskerfi með áhættu í tengslum við alla starfsemi sína. Hjá fjármálafyrirtæki skulu vera til staðar fullnægjandi innri ferlar til að meta nauðsynlega stærð, samsetningu og innri dreifingu eiginfjárgrunns með hliðsjón af þeirri áhættu sem starfsemin felur í sér hverju sinni, m.a. við álagssviðsmyndir, þar á meðal þær sem álagspróf skv. 2. mgr. leiða í ljós. Innri ferlarnir skulu endurmetnir reglulega til að tryggja að þeir séu fullnægjandi með hliðsjón af eðli, umfangi og margbreytileika starfseminnar.
Fjármálafyrirtæki ber að framkvæma regluleg álagspróf og skjalfesta forsendur og niðurstöður þeirra. Niðurstöður álagsprófa skulu vera á dagskrá næsta stjórnarfundar eftir að niðurstaða þeirra liggur fyrir.
Innri ferlar fjármálafyrirtækis skv. 1. mgr. skulu, eftir því sem við á, taka til áhættuþátta skv. 78. gr. a – 78. gr. i. Fjármálafyrirtæki skal hafa verkferla sem tryggja upplýsingaskipti á milli áhættustýringar og stjórnar vegna allra helstu áhættuþátta í starfsemi félagsins og breytinga á þeim.
Eftirlitskerfi með áhættu skal einnig taka til og innihalda innri ferla um hvers konar viðskipti við blandað eignarhaldsfélag og dótturfélög þess sé það blandað eignarhaldsfélag móðurfélags fjármálafyrirtækis.
Grein þessi gildir um móðurstofnanir í aðildarríkjum að því marki sem leiðir af 2. og 3. þætti 2. kafla II. bálks 1. hluta reglugerðar (ESB) nr. 575/2013. Dótturfélag sem er fjármálafyrirtæki skal fara eftir grein þessari á undirsamstæðugrunni ef það, eða móðurfélag þess ef það er eignarhaldsfélag á fjármálasviði eða blandað eignarhaldsfélag í fjármálastarfsemi, hefur dótturfélag í ríki utan Evrópska efnahagssvæðisins sem er fjármálafyrirtæki, fjármálastofnun eða rekstrarfélag verðbréfasjóða eða á hlutdeild í slíku félagi.
Fjármálaeftirlitið getur veitt fjármálafyrirtæki undanþágu frá kröfum samkvæmt grein þessari að uppfylltum skilyrðum 10. gr. reglugerðar (ESB) nr. 575/2013.]1)
   1)L. 38/2022, 88. gr.
[77. gr. b. Áhættustýring.
Fjármálafyrirtæki skal starfrækja áhættustýringu í einingu sem er óháð öðrum starfseiningum þess, ef það á við, að teknu tilliti til stærðar, eðlis og umfangs rekstrar fyrirtækisins, og þess hversu margþætt starfsemi þess er. Fjármálafyrirtæki skal tryggja að áhættustýring hafi nægilegt vald, fjárveitingar og heimildir, m.a. til þess að afla gagna og upplýsinga sem nauðsynlegar eru í starfsemi áhættustýringar.
Áhættustýring skal sjá til þess að greining, mæling og skýrslugjöf um áhættu í starfsemi fjármálafyrirtækis fari fram og sé fullnægjandi, þ.m.t. skýrslur til stjórnenda og eftirlitsaðila. Áhættustýring skal taka virkan þátt í mótun áhættustefnu fjármálafyrirtækis og hafa aðkomu að viðameiri ákvörðunum um áhættustýringu. Áhættustýring skal hafa heildstæða yfirsýn yfir helstu áhættuþætti í starfsemi fjármálafyrirtækis.
Framkvæmdastjóri ræður yfirmann áhættustýringar. Yfirmaður áhættustýringar skal búa við sjálfstæði sem stjórnandi og hafa umsjón með og bera ábyrgð á þeirri einingu þar sem áhættustýring fjármálafyrirtækis fer fram. Tryggt skal að yfirmaður áhættustýringar hafi milliliðalausan aðgang að stjórn. Yfirmaður áhættustýringar skal leggja fyrir áhættunefnd stjórnar, eða stjórn fyrirtækisins sé áhættunefnd ekki til staðar, skýrslu um framkvæmd áhættustýringar svo oft sem þurfa þykir, þó eigi sjaldnar en árlega. Láti yfirmaður áhættustýringar af störfum skal það tilkynnt Fjármálaeftirlitinu. Yfirmanni áhættustýringar verður hvorki sagt upp störfum né hann færður til í starfi nema að fengnu samþykki stjórnar.
Ef starfsemi fjármálafyrirtækis réttlætir ekki sérstakt stöðugildi yfirmanns áhættustýringar getur Fjármálaeftirlitið heimilað að annar háttsettur starfsmaður hafi umsjón með áhættustýringu fjármálafyrirtækisins, að því tilskildu að engir hagsmunaárekstrar séu til staðar. Við slíkt mat skal Fjármálaeftirlitið hafa hliðsjón af eðli og umfangi starfsemi fyrirtækisins og því hversu margþætt hún er. Seðlabanka Íslands er heimilt, í reglum settum skv. 5. mgr., að kveða á um hvenær starfsemi fjármálafyrirtækis réttlætir að ekki sé til staðar sérstakt stöðugildi yfirmanns áhættustýringar.
Seðlabanki Íslands getur sett reglur um framkvæmd áhættustýringar, stöðu þeirra sem framkvæma áhættustýringu í skipuriti fjármálafyrirtækja og um eftirlitskerfi vegna áhættuþátta í starfsemi fjármálafyrirtækja.]1)
   1)L. 38/2022, 88. gr.
[78. gr. Áhættunefnd.
[Fjármálafyrirtæki skal starfrækja áhættunefnd. Nefndin skal að lágmarki skipuð þremur mönnum. Nefndarmenn skulu vera stjórnarmenn í viðkomandi fyrirtæki og búa yfir nægilegri þekkingu og hæfni til að skilja að fullu og hafa eftirlit með áhættustefnu og áhættuvilja félagsins. Áhættunefnd skal sinna ráðgjafar- og eftirlitshlutverki fyrir stjórn fyrirtækisins, m.a. vegna mótunar áhættustefnu og áhættuvilja fyrirtækisins, og aðstoða stjórnina við eftirlit með framkvæmd framkvæmdastjóra og stjórnenda sem svara beint til framkvæmdastjóra á áhættustefnu fyrirtækisins.]1)
Áhættunefnd skal hafa aðgang að þeim upplýsingum og gögnum sem nefndin telur sig þurfa til starfa sinna [og geta leitað aðstoðar áhættustýringar viðkomandi fyrirtækis og sótt utanaðkomandi sérfræðiráðgjöf].1)
Áhættunefnd skal m.a. kanna hvort hvatar sem falist geta í starfskjarastefnu fjármálafyrirtækis, þar á meðal [kaupaukum],2) samræmist áhættustefnu fyrirtækisins [og taki að öðru leyti nægjanlegt tillit til áhættu, eigin fjár, lauss fjár og þess hversu líklegar tekjur eru og tímasetningar þeirra]1) og yfirfara hvort kjör á eignum og skuldbindingum, þar á meðal á innlánum og útlánum, sem boðin eru viðskiptavinum fjármálafyrirtækis taki að fullu mið af viðskiptalíkani og áhættustefnu fyrirtækisins. Ef kjör endurspegla ekki áhættuna samkvæmt viðskiptalíkani og áhættustefnu fyrirtækisins skal áhættunefnd leggja fram úrbótaáætlun til stjórnar.
[Fjármálaeftirlitið getur, með hliðsjón af stærð, eðli og umfangi rekstrar fjármálafyrirtækis, og því hversu margþætt starfsemi fyrirtækisins er, heimilað fjármálafyrirtæki að sameina störf áhættunefndar og endurskoðunarnefndar skv. IX. kafla A í lögum um ársreikninga, nr. 3/2006. Nefndarmenn sameinaðrar nefndar skulu búa yfir nægilegri þekkingu og hæfni til að sinna verkefnum sem annars hefðu verið falin hvorri nefnd fyrir sig.]1)
Fjármálaeftirlitið getur, með hliðsjón af stærð, eðli og umfangi rekstrar fjármálafyrirtækis, og því hversu margþætt starfsemi fyrirtækisins er, veitt undanþágu frá starfrækslu áhættunefndar eða frá einstökum þáttum í starfsemi áhættunefndar. Fjármálaeftirlitinu er heimilt að skilyrða undanþágu til fjármálafyrirtækja. Starfsskyldur áhættunefndar skv. 2. og 3. mgr. skulu þá að breyttu breytanda hvíla á stjórn fjármálafyrirtækis.]3)
   1)L. 38/2022, 89. gr. 2)L. 96/2016, 29. gr. 3)L. 57/2015, 27. gr.
[78. gr. a. Útlána- og mótaðilaáhætta.
Fjármálafyrirtæki skal byggja lánveitingar sínar á traustum og vel skilgreindum viðmiðum og tryggja að ferlar vegna samþykktar, breytinga, endurnýjunar og endurfjármögnunar lánveitinga, eða hvers kyns skilmálabreytinga þeirra, séu til staðar.
Fjármálafyrirtæki skal beita eigin aðferðafræði sem gerir því kleift að meta útlánaáhættu af áhættuskuldbindingum einstakra [viðskiptamanna],1) verðbréfum, verðbréfuðum stöðum og útlánasafni í heild. Eigin aðferðafræði skal ekki eingöngu eða athugasemdalaust byggjast á mati lánshæfismatsfyrirtækja. Þegar fjármálafyrirtæki byggir eiginfjárútreikninga sína á einkunn matsfyrirtækis, eða eftir atvikum á því að áhættuskuldbinding hafi ekki hlotið einkunn, skal það ekki undanskilið því að nýta aðrar viðeigandi upplýsingar við mat á [innri ráðstöfun eiginfjárgrunns].1)
Fjármálafyrirtæki skal nota skilvirk kerfi og aðferðir við stýringu útlánasafns og hafa eftirlit með áhættuskuldbindingum fjármálafyrirtækis, þ.m.t. greiningu á vanefndum, virðisbreytingum og varúðarniðurfærslum.
Dreifing útlánasafns fjármálafyrirtækis skal vera fullnægjandi með tilliti til þeirra markaða sem fyrirtækið starfar á og útlánastefnu þess.
[[Seðlabanka Íslands]2) er heimilt að setja reglur3) um meðhöndlun útlána- og mótaðilaáhættu og útfæra nánar skyldur fjármálafyrirtækis samkvæmt þessari grein.]4)]5)
   1)L. 38/2022, 90. gr. 2)L. 91/2019, 34. gr. 3)Rgl. 1680/2023. 4)L. 96/2016, 30. gr. 5)L. 57/2015, 27. gr.
[78. gr. b. Eftirstæð áhætta.
Fjármálafyrirtæki skal, m.a. með …1) stefnu og ferlum, meðhöndla og stýra þeirri áhættu sem verður eftir þegar viðurkenndar aðferðir þess við mildun útlánaáhættu reynast ekki jafnárangursríkar og vænst var.
[[Seðlabanka Íslands]2) er heimilt að setja reglur um meðhöndlun eftirstæðrar áhættu og útfæra nánar skyldur fjármálafyrirtækis samkvæmt þessari grein.]3)]4)
   1)L. 38/2022, 91. gr. 2)L. 91/2019, 34. gr. 3)L. 96/2016, 31. gr. 4)L. 57/2015, 27. gr.
[78. gr. c. Samþjöppunaráhætta.
Fjármálafyrirtæki skal, m.a. með …1) stefnu og ferlum, meðhöndla og stýra samþjöppunaráhættu sem verður til vegna sérhvers mótaðila fyrirtækisins. Undir mótaðila falla m.a. hópar tengdra viðskiptamanna, miðlægir mótaðilar, mótaðilar í sömu grein innan sama geira hagkerfisins, á sama landsvæði eða í sömu atvinnugrein eða aðilar sem framleiða sömu hrávöru. Við mat og greiningu á samþjöppunaráhættu skal taka mið af aðferðum við mildun útlánaáhættu sem og áhættu sem tengist stórum, óbeinum áhættuskuldbindingum, m.a. vegna trygginga fyrir áhættuskuldbindingum frá einum útgefanda.
[[Seðlabanka Íslands]2) er heimilt að setja reglur um meðhöndlun samþjöppunaráhættu og útfæra nánar skyldur fjármálafyrirtækis samkvæmt þessari grein.]3)]4)
   1)L. 38/2022, 91. gr. 2)L. 91/2019, 34. gr. 3)L. 96/2016, 32. gr. 4)L. 57/2015, 27. gr.
[78. gr. d. Áhætta vegna verðbréfunar.
Fjármálafyrirtæki skal, m.a. með …1) stefnu og ferlum, meta og meðhöndla áhættu, þ.m.t. orðsporsáhættu, vegna verðbréfunar, þar sem fyrirtækið er fjárfestir, útgefandi eða umsýsluaðili slíkra gerninga. Fjármálafyrirtæki skal jafnframt tryggja að efnahagslegt inntak viðskiptanna endurspeglist að fullu í áhættumati og ákvörðunum stjórnenda.
Fjármálafyrirtæki sem er útgefandi verðbréfunar á áhættuskuldbindingum vegna veltufjármögnunar með ákvæðum um heimild til greiðslu fyrir gjalddaga skal hafa til staðar lausafjáráætlun þar sem tekið er tillit til áætlaðra afborgana og afborgana fyrir gjalddaga.
[[Seðlabanka Íslands]2) er heimilt að setja reglur um meðhöndlun áhættu vegna verðbréfunar og útfæra nánar skyldur fjármálafyrirtækis samkvæmt þessari grein.]3)]4)
   1)L. 38/2022, 91. gr. 2)L. 91/2019, 34. gr. 3)L. 96/2016, 33. gr. 4)L. 57/2015, 27. gr.
[78. gr. e. Markaðsáhætta.
Fjármálafyrirtæki skal hafa …1) stefnu og ferla til að greina, mæla og stýra öllum verulegum þáttum sem orsaka markaðsáhættu og áhrifum af henni.
Í þeim tilvikum þegar skortstaða gjaldfellur á undan gnóttstöðu skal fjármálafyrirtæki gera ráðstafanir svo að tryggt sé að ekki skapist lausafjárskortur.
Fjármálafyrirtæki skal hafa yfir að ráða nægu eigin fé til þess að mæta öllum verulegum markaðsáhættuþáttum sem ekki eru meðhöndlaðir sérstaklega við útreikning á lögbundnum eiginfjárkröfum.
[Fjármálafyrirtæki sem hefur við útreikning á eiginfjárkröfum vegna stöðuáhættu skv. 2. kafla í IV. bálki 3. hluta reglugerðar (ESB) nr. 575/2013 jafnað stöður sínar í hlutabréfum sem mynda hlutabréfavísitölu á móti stöðum í framtíðarsamningum eða öðrum afurðum sem tengjast vísitölunni skal hafa yfir að ráða nægu eigin fé til þess að mæta hættu á tapi vegna þess að virði afurðanna breytist ekki að fullu í takt við hlutabréfin sem mynda vísitöluna. Fjármálafyrirtæki skal einnig hafa yfir að ráða nægu eigin fé til þess að mæta áhættu vegna gagnstæðra staðna í framtíðarsamningum sem eru tengdir sömu hlutabréfavísitölu en eru ekki með sama líftíma eða samsetningu.
Fjármálafyrirtæki sem nýtir heimild 345. gr. reglugerðar (ESB) nr. 575/2013 skal hafa yfir að ráða nægu eigin fé til þess að mæta hættu á tapi á tímabilinu á milli upphaflegrar skuldbindingar og næsta viðskiptadags.]1)
[[Seðlabanka Íslands]2) er heimilt að setja reglur um meðhöndlun markaðsáhættu og útfæra nánar skyldur fjármálafyrirtækis samkvæmt þessari grein.]3)]4)
   1)L. 38/2022, 92. gr. 2)L. 91/2019, 34. gr. 3)L. 96/2016, 34. gr. 4)L. 57/2015, 27. gr.
[78. gr. f. Vaxtaáhætta vegna viðskipta utan veltubókar.
[Fjármálafyrirtæki skal, með innri ferlum eða staðlaðri aðferð eða einfaldaðri staðlaðri aðferð í samræmi við reglur skv. 10. tölul. 1. mgr. 117. gr. b, greina, meta, stýra og milda áhættu vegna mögulegra vaxtabreytinga sem hafa áhrif á bæði hagrænt virði eigin fjár og hreinar vaxtatekjur vegna viðskipta utan veltubókar. Fjármálaeftirlitið getur krafist þess að fyrirtækið noti stöðluðu aðferðina ef innri ferlar fyrirtækisins eru ekki fullnægjandi. Fjármálaeftirlitið getur krafist þess að lítið og einfalt fjármálafyrirtæki, sbr. 145. tölul. 1. mgr. 4. gr. reglugerðar (ESB) nr. 575/2013, noti stöðluðu aðferðina ef einfaldaða staðlaða aðferðin mætir ekki nægjanlega vaxtaáhættu vegna viðskipta fyrirtækisins utan veltubókar.
Fjármálafyrirtæki skal hafa stefnu og ferla til að greina og vakta áhættu vegna mögulegra breytinga á vaxtaálagi sem hefur áhrif á bæði hagrænt virði eigin fjár og hreinar vaxtatekjur vegna viðskipta þess utan veltubókar.]1)
[[Seðlabanka Íslands]2) er heimilt að setja reglur um meðhöndlun vaxtaáhættu vegna viðskipta utan veltubókar og útfæra nánar skyldur fjármálafyrirtækis samkvæmt þessari grein.]3)]4)
   1)L. 38/2022, 93. gr. 2)L. 91/2019, 34. gr. 3)L. 96/2016, 35. gr. 4)L. 57/2015, 27. gr.
[78. gr. g. Rekstraráhætta.
Fjármálafyrirtæki skal hafa …1) stefnu og ferla til að meta og stýra rekstraráhættu, þ.m.t. vegna [líkana, útvistunar]1) og fátíðra atburða sem geta haft alvarlegar afleiðingar. Fjármálafyrirtæki skal í þessum tilgangi tilgreina hvað telst til rekstraráhættu.
Fjármálafyrirtæki skal hafa viðbragðsáætlun og áætlun um samfelldan rekstur til að tryggja áframhaldandi starfsemi sína og takmörkun á tjóni ef alvarleg röskun verður á starfsemi fyrirtækisins.
[[Seðlabanka Íslands]2) er heimilt að setja reglur um meðhöndlun rekstraráhættu og útfæra nánar skyldur fjármálafyrirtækis samkvæmt þessari grein.]3)]4)
   1)L. 38/2022, 94. gr. 2)L. 91/2019, 34. gr. 3)L. 96/2016, 36. gr. 4)L. 57/2015, 27. gr.
[78. gr. h. Lausafjáráhætta.
Fjármálafyrirtæki skal hafa áætlanir, stefnu, …1) verkferla, aðferðir og kerfi til að greina, meta, stýra og fylgjast með lausafjáráhættu sem nær yfir viðeigandi tíma, þ.m.t. innan dags, til að tryggja að fyrirtækið búi yfir nægu lausu fé. Slíkar áætlanir, stefnur, ferlar og kerfi skulu sniðin að starfsemi sviða, útibúa og lögaðila innan samstæðu fjármálafyrirtækis og þeim gjaldmiðlum sem þau eiga í viðskiptum með. Áætlanir, stefnur, ferlar og kerfi skulu einnig fela í sér fullnægjandi ráðstöfun fjármuna vegna kostnaðar, ávinnings og áhættu, og skulu taka mið af áhættusniði, umfangi og áhættuþoli. Þá skulu áætlanir, stefnur, ferlar og kerfi taka mið af því hversu margþætt starfsemi fjármálafyrirtækisins er og endurspegla mikilvægi fjármálafyrirtækisins í hverju aðildarríki sem það hefur starfsemi í. Fjármálafyrirtæki skal upplýsa allar viðeigandi starfseiningar fyrirtækisins um áhættuþol þess.
Fjármálafyrirtæki skal móta áhættusnið vegna lausafjáráhættu sem skal taka mið af eðli, umfangi og því hversu margþætt starfsemi fjármálafyrirtækisins er.
Fjármálafyrirtæki skal þróa aðferðafræði til að greina, mæla, stýra og fylgjast með fjármögnunarstöðum. Í aðferðafræðinni skal tekið tillit til mikilvægs fjárstreymis, núverandi og áætlaðs, sem stafar af eignum, skuldum og liðum utan efnahagsreiknings, þ.m.t. skilyrtum skuldbindingum og hugsanlegum áhrifum af orðsporsáhættu.
Fjármálafyrirtæki skal greina á milli veðsettra og kvaðalausra eigna sem eru tiltækar á hverjum tíma, einkum ef neyðarástand ríkir. Jafnframt skal taka mið af staðsetningu eignanna, bæði hvað varðar það ríki þar sem eignarréttindi eru skráð og það hvaða lögaðili fer með eignarhald á eignunum. Fjármálafyrirtæki skal fylgjast með hvort og hvernig eignir eru tiltækar.
Fjármálafyrirtæki skal taka mið af lögbundnum og rekstrarlegum takmörkunum á mögulegum millifærslum á lausu fé og kvaðalausum eignum milli [aðila]1) bæði hérlendis og erlendis.
[Fjármálafyrirtæki skal kappkosta að nota fleiri en eina aðferð til að milda áhættu við lausafjárstýringu, þar á meðal ýmis mörk og lausafjárforða svo að fyrirtækið geti staðið af sér margvíslega álagsatburði.]1) Jafnframt skal fjármálafyrirtæki kappkosta að fjármögnun, og aðgangur að henni, sé nægjanlega dreifð. Tilhögun lausafjárstýringar skal endurskoðuð reglulega.
Fjármálafyrirtæki skal kanna áhrif af ólíkum sviðsmyndum á lausafjárstöðu sína og mildun áhættu og skulu forsendur sem liggja til grundvallar ákvörðunum um fjármögnun fyrirtækisins endurskoðaðar a.m.k. árlega. [Í því skyni skulu sviðsmyndirnar einkum taka tillit til liða utan efnahagsreiknings og annarra óvissra skuldbindinga, þ.m.t. eininga um sérverkefni á sviði verðbréfunar eða annarra eininga um sérverkefni samkvæmt reglugerð (ESB) nr. 575/2013 sem fjármálafyrirtækið kemur að sem umsýsluaðili eða veitir verulegan lausafjárstuðning.]1)
Fjármálafyrirtæki skal í sviðsmyndunum kanna áhrif vegna einstakra fyrirtækja sem og vegna markaðarins í heild auk þess að kanna blandaðar sviðsmyndir. Við athugun skal tekið mið af ólíkum tímabilum og mismunandi álagsaðstæðum.
Fjármálafyrirtæki skal aðlaga áætlanir sínar, stefnur og mörk vegna lausafjáráhættu og þróa skilvirka viðbragðsáætlun með tilliti til niðurstaðna úr sviðsmyndum sem tilteknar eru í 7. mgr. til að bregðast við lausafjárvanda. Í áætluninni skal koma fram hvernig fjármálafyrirtæki hyggst mæta lausafjárskorti, þ.m.t. í útibúum í öðrum aðildarríkjum þar sem það hefur starfsemi. Fjármálafyrirtæki skal prófa áætlunina a.m.k. árlega og uppfæra hana með hliðsjón af niðurstöðum úr þeim sviðsmyndum sem tilteknar eru í 7. mgr. Framkvæmdastjóri fjármálafyrirtækis skal samþykkja áætlunina og tryggja að innri ferlar séu í samræmi við kröfur ákvæðisins. Fjármálafyrirtæki skal gera ráðstafanir til að tryggja að viðbragðsáætlun geti komið til tafarlausrar framkvæmdar. Viðskiptabankar, sparisjóðir og aðrar lánastofnanir skulu í þeim tilgangi vera með fullnægjandi tryggingar vegna fjármögnunar frá seðlabanka. Í þessu felst m.a. að vera með tryggingar í sömu erlendu gjaldmiðlum og áhættuskuldbindingar fjármálafyrirtækisins sjálfs, sérstaklega þar sem slíkt kann að vera nauðsynlegt vegna starfsemi fyrirtækisins bæði hérlendis og erlendis.
[[Seðlabanka Íslands]2) er heimilt að setja reglur …3) um meðhöndlun lausafjáráhættu og útfæra nánar skyldur fjármálafyrirtækis samkvæmt þessari grein.]4)]5)
   1)L. 38/2022, 95. gr. 2)L. 91/2019, 34. gr. 3)L. 91/2019, 39. gr. 4)L. 96/2016, 37. gr. 5)L. 57/2015, 27. gr.
[78. gr. i. Áhætta vegna óhóflegrar vogunar.
Fjármálafyrirtæki skal hafa …1) stefnu og ferla til að greina, stýra og vakta áhættu sem hlýst af óhóflegri vogun. Á meðal áhættuvísa um óhóflega vogun er útreikningur vogunarhlutfalls og misræmi á milli eigna og skuldbindinga fjármálafyrirtækis.
Fjármálafyrirtæki skal meðhöndla áhættu vegna óhóflegrar vogunar með varfærnum hætti og taka tillit til mögulegrar aukinnar áhættu vegna lækkunar á eigin fé vegna vænts eða innleysts taps í samræmi við gildandi reikningsskilareglur. Í því augnamiði skal fjármálafyrirtæki geta staðið af sér ólíka álagsatburði sem tengdir eru áhættu af óhóflegri vogun.
[[Seðlabanka Íslands]2) er heimilt að setja reglur um meðhöndlun áhættu vegna óhóflegrar vogunar og útfæra nánar skyldur fjármálafyrirtækis samkvæmt þessari grein.]3)]4)
   1)L. 38/2022, 96. gr. 2)L. 91/2019, 34. gr. 3)L. 96/2016, 38. gr. 4)L. 57/2015, 27. gr.
[79. gr. Eftirlit með meðhöndlun áhættuþátta.
Fjármálaeftirlitið hefur eftirlit með því að fjármálafyrirtæki fari eftir þeim kröfum og skyldum sem kveðið er á um í [78. gr. a – 78. gr. i]1) og skal fylgjast með því að fyrirtæki meðhöndli sérhvern áhættuþátt sem þar greinir í samræmi við ákvæðin og komi …2) innri ferlum fjármálafyrirtækis í framkvæmd. …3)
1)]4)
   1)L. 91/2019, 40. gr. 2)L. 38/2022, 96. gr. 3)L. 96/2016, 39. gr. 4)L. 57/2015, 27. gr.
[80. gr. Könnunar- og matsferli og álagspróf Fjármálaeftirlitsins.
Stjórn og framkvæmdastjóri fjármálafyrirtækis skulu reglulega leggja mat á tegund, dreifingu og fjárhæð eiginfjárþarfar fyrirtækisins með hliðsjón af áhættustigi þess, þ.m.t. áhættu sem felst í, eða getur hlotist af, starfsemi þess.
Fjármálaeftirlitið skal kanna og meta fyrirkomulag og aðferðir fjármálafyrirtækis við mat á áhættu til að uppfylla kröfur laga og stjórnvaldsfyrirmæla sem sett eru á grundvelli þeirra. Við athugunina skal Fjármálaeftirlitið m.a. kanna stefnur og innri ferla, sbr. 3. mgr. [77. gr. a],1) og framkvæmd þeirra hjá fjármálafyrirtækinu. Við könnun og mat ber Fjármálaeftirlitinu að horfa til þeirra viðmiða sem fram koma í 81. gr., eftir því sem við á.
Könnun og mat skv. 2. mgr. skal ná yfir allar skyldur og kröfur sem gerðar eru til fjármálafyrirtækis samkvæmt lögum þessum og stjórnvaldsfyrirmælum sem sett eru með stoð í þeim. Fjármálaeftirlitið skal við matið leggja áherslu á eftirfarandi þætti:
   a. áhættu sem fjármálafyrirtæki stendur frammi fyrir eða gæti staðið frammi fyrir,
   b.1)
   c. áhættu sem álagspróf leiða í ljós, með hliðsjón af eðli, umfangi og því hversu margþætt starfsemi fjármálafyrirtækisins er.
Á grundvelli könnunar og mats skv. 2. og 3. mgr. ákvarðar Fjármálaeftirlitið hvort fyrirkomulag, ráðstafanir og aðferðir fjármálafyrirtækis, ásamt innri ferlum og framkvæmd þeirra, séu fullnægjandi, hvort stjórnarhættir séu traustir og hvort eiginfjárgrunnur og [lausafjárstaða]1) sé fullnægjandi með hliðsjón af þeirri áhættu sem felst í starfseminni. …2)
Fjármálaeftirlitið ákveður tíðni og umfang könnunar og mats með tilliti til stærðar fjármálafyrirtækis, kerfislegs mikilvægis, eðlis, umfangs og þess hversu margþætt starfsemin er. Matið skal uppfært a.m.k. árlega hjá fjármálafyrirtækjum sem talin eru upp í 2. mgr. 82. gr.
[Fjármálaeftirlitið getur sniðið könnun og mat að fjármálafyrirtækjum með svipað áhættusnið, þó þannig að tekið sé tilhlýðilegt tillit til þeirrar áhættu sem hvert fyrirtæki stendur frammi fyrir. Fjármálaeftirlitið skal tilkynna Evrópsku bankaeftirlitsstofnuninni um slíkt verklag.]1)
Fjármálaeftirlitið skal framkvæma álagspróf á fjármálafyrirtækjum í tengslum við könnunar- og matsferli. Slík álagspróf skulu framkvæmd árlega og oftar ef Fjármálaeftirlitið telur slíkt nauðsynlegt, en þó með hliðsjón af tíðni og umfangi könnunar og mats skv. 5. mgr. [Fjármálaeftirlitinu er heimilt að birta niðurstöður álagsprófa eða senda þær til Evrópsku bankaeftirlitsstofnunarinnar í þeim tilgangi að hún birti niðurstöður þeirra.]1)
[Fjármálaeftirlitið skal upplýsa Evrópsku bankaeftirlitsstofnunina um hvernig könnunar- og matsferli þess gengur fyrir sig og hvernig það endurspeglast í ákvörðunum þess sem byggjast á ferlinu.
Fjármálaeftirlitið skal tafarlaust tilkynna Evrópsku bankaeftirlitsstofnuninni um niðurstöður könnunar og mats eða álagsprófs sem leiðir í ljós að fjármálafyrirtæki getur valdið kerfisáhættu skv. 23. gr. reglugerðar (ESB) nr. 1093/2010, sbr. lög um evrópskt eftirlitskerfi á fjármálamarkaði.
Fjármálaeftirlitið skal tafarlaust upplýsa Evrópsku bankaeftirlitsstofnunina ef könnun og mat, einkum á stjórnarháttum, viðskiptalíkani og annarri starfsemi fyrirtækisins, gefur tilefni til að ætla að peningaþvætti eða fjármögnun hryðjuverka hafi viðgengist í tengslum við fjármálafyrirtæki, gerð hafi verið tilraun til þess eða að hætta sé á því og grípa til viðeigandi ráðstafana.]1)]3)
   1)L. 38/2022, 97. gr. 2)L. 91/2019, 41. gr. 3)L. 96/2016, 40. gr.
[81. gr. Tæknileg viðmið vegna könnunar- og matsferlis Fjármálaeftirlitsins.
Könnun og mat Fjármálaeftirlitsins skv. 80. gr. skal auk útlána-, markaðs- og rekstraráhættu [a.m.k.]1) ná til eftirfarandi þátta í starfsemi fjármálafyrirtækis:
   a. [álagsprófa skv. 177. gr. reglugerðar (ESB) nr. 575/2013 fjármálafyrirtækja sem beita innramatsaðferð til að meta útlánaáhættu],1)
   b. [samþjöppunaráhættu skv. 78. gr. c laga þessara og 4. hluta reglugerðar (ESB) nr. 575/2013],1)
   c. hvort aðferðir og innri ferlar, sem notuð eru til að stýra þeirri eftirstæðu áhættu sem mildun útlánaáhættu fjármálafyrirtækis nær ekki til, séu áreiðanleg og viðeigandi,
   d. athugunar á hvort eiginfjárframlag vegna eigna sem hafa verið verðbréfaðar sé nægjanlegt með tilliti til hagræns inntaks þeirra og þess áhættustigs sem hefur áunnist við yfirfærslu áhættu,
   e. áhættustýringar og áhættumælinga vegna lausafjáráhættu, þ.m.t.:
   1. mismunandi sviðsmyndagreiningar,
   2. stýringar þátta til mildunar lausafjáráhættu, einkum með hliðsjón af magni, samsetningu og gæðum [lausafjárforða]1) og
   3. að virk [viðbragðsáætlun]1) sé til staðar,
   f. áhrifa af áhættudreifingu og hvernig áhættudreifing er metin í áhættustýringarkerfum,
   g. niðurstaðna álagsprófa fjármálafyrirtækis sem notar innri líkön til að reikna eiginfjárkröfu vegna markaðsáhættu [skv. 5. kafla í IV. bálki 3. hluta reglugerðar (ESB) nr. 575/2013],1)
   h. landfræðilegrar staðsetningar áhættuskuldbindinga,
   i. [viðskiptalíkans].1)
Fjármálaeftirlitið skal reglulega meta framkvæmd lausafjárstýringar fjármálafyrirtækis og áhættu tengda henni og stuðla að því að fyrirtækið þrói trausta aðferðafræði fyrir lausafjárstýringu í samræmi við e-lið 1. mgr. Við framkvæmd matsins skal Fjármálaeftirlitið horfa til mikilvægis fjármálafyrirtækisins á fjármálamarkaði …2)
Fjármálaeftirlitið skal fylgjast með því hvort fjármálafyrirtæki veitir óbeinan stuðning við verðbréfun. Hafi fjármálafyrirtæki oftar en einu sinni veitt óbeinan stuðning við verðbréfun skal Fjármálaeftirlitið grípa til viðeigandi ráðstafana í samræmi við [107. gr. a].1)
Í tengslum við 4. mgr. 80. gr. skal Fjármálaeftirlitið meta hvort breytingar á virðismati staðna eða eignasafna í veltubók, [sbr. 105. gr. reglugerðar (ESB) nr. 575/2013],1) geri fjármálafyrirtæki kleift að selja eða verja eignir á skömmum tíma án þess að verða fyrir umtalsverðu tapi miðað við eðlilegar markaðsaðstæður.
Við könnun og mat skal Fjármálaeftirlitið athuga áhrif [vaxtaáhættu]1) vegna liða utan veltubókar. [Fjármálaeftirlitið skal beita heimildum skv. 107. gr. a eða krefjast breytinga á forsendum við mat á áhrifum vaxtabreytinga á hagrænt virði eigin fjár fjármálafyrirtækis, eins og það er reiknað skv. 78. gr. f, öðrum en þeim forsendum sem greinir í reglum skv. 12. tölul. 1. mgr. 117. gr. b, ef skyndileg og óvænt breyting á vöxtum hefur þau áhrif að hagrænt virði eigin fjár fyrirtækisins lækkar um meira en 15% af eiginfjárþætti 1 samkvæmt einhverri af sex áfallasviðsmyndum eftirlitsaðila eða að hreinar vaxtatekjur fyrirtækisins lækka verulega samkvæmt annarri af tveimur áfallasviðsmyndum eftirlitsaðila. Fjármálaeftirlitinu er það þó ekki skylt ef það telur, á grundvelli könnunarinnar og matsins, að stýring fyrirtækisins á vaxtaáhættu vegna viðskipta utan veltubókar sé fullnægjandi og að áhættan sé ekki óhófleg.]1)
Við könnun og mat skal Fjármálaeftirlitið meta áhættu vegna óhóflegrar vogunar fjármálafyrirtækis, m.a. með hliðsjón af vogunarhlutfalli þess [skv. 429. gr. reglugerðar (ESB) nr. 575/2013].1) Við mat Fjármálaeftirlitsins á kerfum og ferlum fjármálafyrirtækis til að stýra áhættu vegna vogunar skal einnig taka mið af viðskiptalíkani fjármálafyrirtækisins.
Fjármálaeftirlitið skal kanna og meta stjórnarhætti, [menningu og gildi fjármálafyrirtækis og getu og hæfni stjórnarmanna og framkvæmdastjóra]1) fjármálafyrirtækis til að sinna skyldum sínum. Fjármálaeftirlitið skal taka mið af nauðsynlegum gögnum til þess að framkvæma könnun og mat samkvæmt ákvæði þessu, þar á meðal fundargerðum, fundardagskrám og öðrum fundargögnum stjórnar og undirnefnda og niðurstöðum úr frammistöðumati stjórnar [og framkvæmdastjóra].1)]3)
   1)L. 38/2022, 98. gr. 2)L. 91/2019, 42. gr. 3)L. 96/2016, 40. gr.
[82. gr. Eftirlitsáætlun.
Fjármálaeftirlitið skal a.m.k. árlega gera áætlun um eftirlit með fjármálafyrirtækjum. Við gerð eftirlitsáætlunar skal horft til þess hvað könnunar- og matsferli skv. 80. og 81. gr. felur í sér. Í eftirlitsáætlun skal m.a. kveðið á um eftirtalin atriði:
   a. með hvaða hætti Fjármálaeftirlitið hyggst framfylgja lögbundnum verkefnum og nýta tilföng, þ.m.t. mannafla og fjármuni,
   b. hvaða fjármálafyrirtæki sæti auknu eftirliti, sbr. 3. mgr., og til hvaða ráðstafana [verði]1) gripið til að sinna því eftirliti og
   c. tíma- og verkáætlun um vettvangsathuganir á starfsstöðvum fjármálafyrirtækis, þ.m.t. í útibúum og dótturfélögum innan og utan Evrópska efnahagssvæðisins.
Eftirlitsáætlun skal ná til eftirfarandi fjármálafyrirtækja:
   a. þeirra fjármálafyrirtækja þar sem könnun og mat skv. 80. gr. eða álagspróf skv. [7. mgr.]1) 80. gr. og a- og g-lið 1. mgr. 81. gr. gefa til kynna að veruleg áhætta felist í starfseminni sem ógnað geti fjárhagsstöðu þeirra eða að fjármálafyrirtæki brjóti gegn eða uppfylli ekki skilyrði laga þessara eða stjórnvaldsfyrirmæla sem sett eru með stoð í þeim,
   b.1)
   c. fjármálafyrirtækja sem Fjármálaeftirlitið telur nauðsynlegt að undirgangist árlega skoðun.
Fjármálaeftirlitinu er heimilt að grípa til eftirtalinna aðgerða til að fylgja eftir niðurstöðum könnunar- og matsferlis skv. 80. gr.:
   a. fjölga vettvangsathugunum á starfsstöðvum fjármálafyrirtækis,
   b. koma á fastri viðveru stofnunarinnar á starfsstöðvum fjármálafyrirtækis,
   c. krefjast aukinnar og/eða tíðari upplýsingagjafar,
   d. taka viðskipta- og/eða rekstraráætlun fjármálafyrirtækis til nánari eða tíðari athugunar og
   e. gangast fyrir ítarlegri skoðun á mikilvægum áhættuþáttum í starfsemi fjármálafyrirtækis.
[Við gerð eftirlitsáætlunar skal Fjármálaeftirlitið taka tillit til upplýsinga sem lögbær yfirvöld í aðildarríkjum þar sem íslenskt fjármálafyrirtæki hefur útibú hafa látið því í té og varða mat á áhættu fyrirtækisins eða fjármálastöðugleika í viðkomandi ríki.]1)]2)
   1)L. 38/2022, 99. gr. 2)L. 96/2016, 40. gr.

[IX. kafli A. Endurbótaáætlun.]1)
   1)L. 54/2018, 5. gr.
[82. gr. a. Endurbótaáætlun lánastofnunar og verðbréfafyrirtækis.
Lánastofnanir og verðbréfafyrirtæki með stofnframlag skv. 2. mgr. 14. gr. a skulu gera endurbótaáætlun sem skal a.m.k. innihalda eftirfarandi atriði:
   1. Aðgerðir sem lánastofnun eða verðbréfafyrirtæki hyggst grípa tímanlega til, og það verklag sem viðhafa skal, komi upp rekstrarerfiðleikar hjá fyrirtæki sem geta haft veruleg áhrif á fjárhagsstöðu þess eða starfsemi, þ.m.t. ef aðstæður eru þannig að beita þurfi tímanlegum inngripum skv. [107. gr. c].1)
   2. Sviðsmyndir sem gera ráð fyrir rekstrarerfiðleikum hjá lánastofnun eða verðbréfafyrirtæki ásamt áföllum í fjármálakerfinu og hagkerfinu sem geta haft áhrif á rekstur eða starfsemi viðkomandi fyrirtækis.
   3. Þegar við á, greiningu á því hvenær og undir hvaða kringumstæðum lánastofnanir geta óskað eftir lausafjárfyrirgreiðslu frá [seðlabanka].2) Ekki skal gera ráð fyrir annars konar opinberum fjárstuðningi í endurbótaáætlun.
Stjórn lánastofnunar eða verðbréfafyrirtækis skal samþykkja endurbótaáætlunina og afhenda hana Fjármálaeftirlitinu. Lánastofnanir og verðbréfafyrirtæki skulu uppfæra endurbótaáætlun að lágmarki árlega en oftar ef breytingar verða á rekstri fyrirtækjanna eða ef annað í starfsemi þeirra veldur verulegum breytingum á áætluninni. Fjármálaeftirlitið getur krafist þess að endurbótaáætlun sé uppfærð oftar en árlega.
[Skilavald í skilningi laga um skilameðferð lánastofnana og verðbréfafyrirtækja skal hafa aðgang að endurbótaáætlun lánastofnana og verðbréfafyrirtækja og greina hvort aðgerðir í henni geti haft skaðleg áhrif á skilabærni viðkomandi fyrirtækis …3). Skilavaldið getur lagt til við Fjármálaeftirlitið að fjalla um þau áhrif.
Seðlabanki Íslands skal setja reglur4) þar sem m.a. er kveðið á um nánari kröfur um innihald endurbótaáætlana skv. 1. mgr. og endurbótaáætlun samstæðu skv. 82. gr. d.]2)
Ráðherra skal setja reglugerð5) þar sem m.a. er kveðið á um nánari kröfur um innihald endurbótaáætlana skv. 1. mgr. og endurbótaáætlun samstæðu skv. 82. gr. d.]6)
   1)L. 38/2022, 100. gr. 2)L. 70/2020, 103. gr. 3)L. 63/2023, 36. gr. 4)Rgl. 666/2021. 5)Rg. 780/2021. 6)L. 54/2018, 5. gr.
[82. gr. b. Mat á endurbótaáætlun.
Fjármálaeftirlitið leggur mat á hvort endurbótaáætlun sé í samræmi við ákvæði 82. gr. a. Auk þess skal Fjármálaeftirlitið leggja mat á hvort sýnt hafi verið fram á eftirfarandi:
   1. að verklag í endurbótaáætlun og aðgerðir séu líklegar til að viðhalda eða rétta af fjárhagslega stöðu fyrirtækis eða samstæðu þess og tryggja heilbrigðan rekstur, og
   2. að líklegt sé að áætluninni megi hrinda hratt í framkvæmd þegar óróleiki er á fjármálamörkuðum og að með innleiðingu áætlunarinnar megi draga úr neikvæðum áhrifum á fjármálakerfið, þ.m.t. þegar fleiri lánastofnanir eða verðbréfafyrirtæki þurfa að virkja endurbótaáætlun sína á sama tíma.
Við mat á endurbótaáætlun skal horfa til þess hvernig eigið fé lánastofnunar eða verðbréfafyrirtækis er samsett og hvernig fjármögnun er háttað með hliðsjón af starfsemi, skipulagi og áhættusniði.
[Seðlabanki Íslands skal setja reglur1) þar sem fram koma lágmarksviðmið sem líta ber til við mat á efnisþáttum skv. 1. mgr.]2)
Ráðherra skal setja reglugerð þar sem fram koma lágmarksviðmið sem Fjármálaeftirlitinu ber að líta til við mat á efnisþáttum skv. 1. mgr.]3)
   1)Rgl. 666/2021. 2)L. 70/2020, 103. gr. 3)L. 54/2018, 5. gr.
[82. gr. c. Málsmeðferð og aðgerðir vegna ágalla við mat á endurbótaáætlun.
Fjármálaeftirlitið skal innan sex mánaða frá móttöku endurbótaáætlunar ljúka mati á áætluninni og tilkynna lánastofnun eða verðbréfafyrirtæki telji það verulega ágalla vera á áætluninni.
Lánastofnun og verðbréfafyrirtæki skulu, innan tveggja mánaða frá móttöku tilkynningar Fjármálaeftirlitsins skv. 1. mgr., bæta úr ágöllum á endurbótaáætluninni. Fjármálaeftirlitinu er heimilt að framlengja þann frest um einn mánuð sé þess óskað. Ef úrbætur eru ófullnægjandi að mati Fjármálaeftirlitsins getur það krafist þess að gerðar verði tilgreindar breytingar á áætluninni innan hæfilegs frests sem Fjármálaeftirlitið ákveður.
Ef lánastofnun eða verðbréfafyrirtæki afhendir ekki endurskoðaða endurbótaáætlun innan tímafrests skv. 2. mgr. eða ef Fjármálaeftirlitið telur að endurskoðuð áætlun sé ekki fullnægjandi skal Fjármálaeftirlitið krefjast þess að lánastofnun eða verðbréfafyrirtæki, innan hæfilegs frests, geri tillögur að breytingum á starfsemi sinni til þess að ráða bót á þeim ágöllum sem eru að mati Fjármálaeftirlitsins á endurbótaáætluninni.
Geri lánastofnun eða verðbréfafyrirtæki ekki tillögur að breytingu á starfsemi sinni innan tímafrests skv. 3. mgr., eða teljist tillögur sem gerðar eru ófullnægjandi, er Fjármálaeftirlitinu heimilt, að teknu tilliti til alvarleika ágallanna, að krefjast þess að lánastofnun eða verðbréfafyrirtæki grípi til einhverra eftirfarandi aðgerða:
   1. Dragi úr áhættusniði, þar á meðal lausafjáráhættu.
   2. Tryggi að til staðar sé traust og tímanleg endurfjármögnun.
   3. Endurskoði stefnu og skipulag fyrirtækisins eða samstæðu þess.
   4. Breyti fjármögnunaráætlunum sínum til þess að bæta viðnámsþrótt kjarnastarfsemi og [nauðsynlegrar starfsemi].1)
   5. Breyti stjórnskipulagi og viðskiptaáætlunum fyrirtækisins.
Ef við á skal Fjármálaeftirlitið hafa samráð við lögbær yfirvöld aðildarríkja þar sem mikilvæg útibú fyrirtækisins eru staðsett.]2)
   1)L. 70/2020, 103. gr. 2)L. 54/2018, 5. gr.
[82. gr. d. Endurbótaáætlun samstæðu.
Móðurfélag í efsta þrepi samstæðu á Evrópska efnahagssvæðinu skal gera og uppfæra endurbótaáætlun samstæðu. [Ef Fjármálaeftirlitið er eftirlitsaðili á samstæðugrunni skal það móttaka endurbótaáætlun og áframsenda til lögbærra yfirvalda dótturfélaga og mikilvægra útibúa, samstæðuskilavalds og skilastjórnvalda dótturfélaga.]1)
Endurbótaáætlunin skal ná til samstæðu í heild og tilgreina aðgerðir sem grípa getur þurft til hjá móðurfélaginu og einstökum dótturfélögum þess. Endurbótaáætlun samstæðu skal samþykkt af stjórn móðurfélagsins.
Endurbótaáætlun samstæðu skal taka mið af þeim efnisatriðum sem fram koma í 82. gr. a. Endurbótaáætlun samstæðu skal einnig innihalda upplýsingar sem varða samninga um fjárstuðning innan samstæðu skv. [109. gr. o],2) hafi slíkir samningar verið gerðir.
Fjármálaeftirlitið getur krafist þess að lánastofnanir og verðbréfafyrirtæki sem eru dótturfélög félaga skv. 1. málsl. 1. mgr. geri sjálfstæða endurbótaáætlun skv. 82. gr. a. Ef móðurfélag er staðsett í öðru aðildarríki skal Fjármálaeftirlitið leitast við að taka sameiginlega ákvörðun með lögbærum yfirvöldum um endurbótaáætlun dótturfélags. Ef lögbært yfirvald hefur vísað ákvörðun eftirlitsaðila á samstæðugrunni til Eftirlitsstofnunar EFTA eða Evrópsku bankaeftirlitsstofnunarinnar skal Fjármálaeftirlitið fresta ákvörðun sinni um að dótturfélag geri sjálfstæða endurbótaáætlun og taka ákvörðun um það í samræmi við ákvörðun Eftirlitsstofnunar EFTA, sbr. 7. mgr.
Mat á endurbótaáætlun samstæðu skal grundvallast á 82. gr. b. Málsmeðferð og aðgerðir vegna ágalla á endurbótaáætlun samstæðu skulu grundvallast á 82. gr. c. Ef Fjármálaeftirlitið telst eftirlitsaðili á samstæðugrunni skal tilkynningum skv. 82. gr. c beint til móðurfélags samstæðu.
Við mat á endurbótaáætlun samstæðu skal Fjármálaeftirlitið leitast við að taka sameiginlega ákvörðun með lögbærum yfirvöldum. Ef sameiginleg ákvörðun liggur ekki fyrir innan fjögurra mánaða frá því að Fjármálaeftirlitið, sem eftirlitsaðili á samstæðugrunni, sendi endurbótaáætlun til viðeigandi lögbærra yfirvalda skv. 1. mgr., skal það taka sjálfstæða ákvörðun um áætlunina. Fjármálaeftirlitið skal tilkynna móðurfélagi og lögbærum yfirvöldum um ákvörðunina.
Fjármálaeftirlitið skal fresta ákvörðun sinni hafi eitthvert þeirra lögbæru yfirvalda sem aðild eiga að málinu vísað ákvörðun eftirlitsaðila á samstæðugrunni, þ.m.t. Fjármálaeftirlitsins ef við á, til Eftirlitsstofnunar EFTA eða til Evrópsku bankaeftirlitsstofnunarinnar í samræmi við lög nr. 24/2017, fyrir lok tímafrests skv. 6. mgr. og skal Fjármálaeftirlitið í þeim tilvikum bíða ákvörðunar sem Eftirlitsstofnun EFTA kann að taka á grundvelli [reglugerðar (ESB) nr. 1093/2010, sbr. lög um evrópskt eftirlitskerfi á fjármálamarkaði].2) Ákvörðun Fjármálaeftirlitsins skal vera í samræmi við ákvörðun Eftirlitsstofnunar EFTA.]3)
   1)L. 70/2020, 103. gr. 2)L. 38/2022, 101. gr. 3)L. 54/2018, 5. gr.
[82. gr. e. Einföld endurbótaáætlun.
Fjármálaeftirlitið ákveður hvort lánastofnun eða verðbréfafyrirtæki skv. 1. málsl. 1. mgr. 82. gr. a sé heimilt að gera einfalda endurbótaáætlun. Skilyrði slíkrar ákvörðunar eru að rekstrarerfiðleikar lánastofnunar eða verðbréfafyrirtækis og eftir atvikum slitameðferð fyrirtækjanna hafi ekki í för með sér verulega neikvæð áhrif á fjármálakerfið, aðrar lánastofnanir eða verðbréfafyrirtæki, miðlun fjármagns í fjármálakerfinu eða hagkerfið.
Fjármálaeftirlitið getur hvenær sem er fallið frá ákvörðun um einfalda endurbótaáætlun skv. 1. mgr.
[Seðlabanki Íslands setur reglur1) um viðmið vegna ákvörðunar um einfalda endurbótaáætlun skv. 1. mgr.]2)]3)
   1)Rgl. 666/2021. 2)L. 70/2020, 103. gr. 3)L. 54/2018, 5. gr.
[82. gr. f. Vísar í endurbótaáætlun.
Lánastofnun og verðbréfafyrirtæki skv. 1. málsl. 1. mgr. 82. gr. a skulu í endurbótaáætlun tilgreina vísa er gefa til kynna hvenær og þá til hvaða aðgerða þörf er á að grípa á grundvelli endurbótaáætlunar. Vísarnir skulu ákveðnir í samræmi við starfsemi fyrirtækjanna og taka mið af innri sem ytri aðstæðum og fjárhagsstöðu fyrirtækis. Vísarnir skulu þannig framsettir að auðvelt sé að hafa yfirsýn yfir hvenær þeir gefa til kynna að viðbragða sé þörf. Vísarnir skulu sæta reglubundinni vöktun fyrirtækis og skal endurbótaáætlun tilgreina hvernig vöktun þeirra er háttað.
Jafnvel þótt vísar gefi ekki til kynna að þörf sé á að grípa til aðgerða getur stjórn lánastofnunar eða verðbréfafyrirtækis eigi að síður gripið til þeirra aðgerða sem fram koma í endurbótaáætlun og stjórn telur viðeigandi með tilliti til aðstæðna. Stjórn getur einnig ákveðið, telji hún það viðeigandi með tilliti til aðstæðna, að grípa ekki til aðgerða þó að vísar gefi annað til kynna.
Ákvörðun stjórnar skv. 2. mgr. skal án tafar tilkynnt Fjármálaeftirlitinu ásamt rökstuðningi.
1)
[Seðlabanka Íslands er heimilt]1) að setja reglur um þá vísa sem að lágmarki skal fjalla um í endurbótaáætlun.]2)
   1)L. 91/2019, 44. gr. 2)L. 54/2018, 5. gr.
[82. gr. g.1)
   1)L. 70/2020, 103. gr.

X. kafli. [Eiginfjáraukar.]1)
   1)L. 38/2022, 102. gr.
[A. Sameiginleg ákvæði.]1)
   1)L. 38/2022, 102. gr.
[83. gr. Samanlögð krafa um eiginfjárauka.
Til viðbótar við lágmark eiginfjárgrunns skv. 1. mgr. 92. gr. reglugerðar (ESB) nr. 575/2013 skal fjármálafyrirtæki hafa eiginfjárauka í samræmi við þennan kafla. Sé fjármálafyrirtæki skylt að viðhalda einum eða fleiri þeirra eiginfjárauka sem kveðið er á um í þessum kafla myndar sú skylda samanlagða kröfu um eiginfjárauka. Fyrst myndast skylda til þess að viðhalda eigin fé til þess að uppfylla eiginfjárkröfu vegna kerfisáhættuauka, þá eiginfjárauka fyrir kerfislega mikilvæg fjármálafyrirtæki, síðan sveiflujöfnunarauka og að lokum verndunarauka.]1)
   1)L. 38/2022, 102. gr.
[83. gr. a. Samsetning eiginfjárauka.
Til eiginfjárauka er einungis heimilt að telja eiginfjárliði sem teljast til almenns eigin fjár þáttar 1 skv. 2. kafla I. bálks 2. hluta reglugerðar (ESB) nr. 575/2013.]1)
   1)L. 38/2022, 102. gr.
[83. gr. b. Bann við tvítalningu.
Óheimilt er að tvítelja eiginfjárliði með því að nýta eigið fé sem er viðhaldið til að uppfylla samanlagða kröfu um eiginfjárauka til að mæta:
   1. Lágmarkskröfu um eiginfjárgrunn skv. 1. mgr. 92. gr. reglugerðar (ESB) nr. 575/2013.
   2. Kröfu um hærri eiginfjárgrunn skv. 1. tölul. 3. mgr. 107. gr. a, sem lögð er á til að mæta annarri áhættu en hættunni á of mikilli vogun.
   3. Tilkynntu eiginfjárálagi skv. 107. gr. b, sem er ætlað að mæta annarri áhættu en hættunni á of mikilli vogun.
Óheimilt er að tvítelja eiginfjárliði með því að nýta eigið fé sem er viðhaldið til að uppfylla einstakan þátt samanlagðrar kröfu um eiginfjárauka til að mæta öðrum þætti samanlagðrar kröfu um eiginfjárauka.]1)
   1)L. 38/2022, 102. gr.
[83. gr. c. Samverkan eiginfjárauka.
Eigi bæði eiginfjárauki fyrir kerfislega mikilvæg fjármálafyrirtæki á alþjóðavísu og eiginfjárauki fyrir kerfislega mikilvæg fjármálafyrirtæki á landsvísu við skulu þeir ekki lagðir saman heldur skal aðeins sá hærri gilda.
Samanlagt hlutfall kerfisáhættuauka og eiginfjárauka fyrir kerfislega mikilvægt fjármálafyrirtæki má ekki vera hærra en 5% af stofni skv. D–F-hluta þessa kafla nema með samþykki fastanefndar EFTA-ríkjanna.]1)
   1)L. 38/2022, 102. gr.
[83. gr. d. Samstæðugrunnur.
Eiginfjárauka fyrir kerfisleg mikilvæg fjármálafyrirtæki á alþjóðavísu skal viðhaldið á samstæðugrunni. Seðlabanki Íslands getur með reglum kveðið á um að öðrum eiginfjáraukum skuli viðhaldið á samstæðu-, undirsamstæðu- eða einingargrunni, eftir því sem við á.]1)
   1)L. 38/2022, 102. gr.
[83. gr. e. Undanþága fyrir verðbréfafyrirtæki.
Kafli þessi gildir ekki um verðbréfafyrirtæki sem hafa ekki leyfi til viðskipta með fjármálagerninga fyrir eigin reikning og sölutryggingar í tengslum við útgáfu fjármálagerninga og/eða útboð fjármálagerninga, sbr. c- og f-lið 16. tölul. 1. mgr. 4. gr. laga um markaði fyrir fjármálagerninga, nr. 115/2021.
Verðbréfafyrirtæki er undanskilið skyldu til þess að viðhalda verndunar- og sveiflujöfnunarauka að eftirtöldum skilyrðum uppfylltum:
   1. Ársverk fyrirtækisins eru færri en 250.
   2. Ársvelta fyrirtækisins samkvæmt ársreikningi er ekki meiri en jafnvirði 50 millj. evra í íslenskum krónum eða eignir samkvæmt ársreikningi eru ekki meiri en jafnvirði 43 millj. evra í íslenskum krónum.]1)
   1)L. 38/2022, 102. gr.
[B. Verndunarauki]1)
   1)L. 38/2022, 102. gr.
[84. gr. Skylda til að viðhalda verndunarauka.
Fjármálafyrirtæki skal viðhalda eiginfjárauka sem nefnist verndunarauki.]1)
   1)L. 38/2022, 102. gr.
[84. gr. a. Hlutfall.
Verndunarauki skal nema 2,5% af áhættugrunni skv. 3. mgr. 92. gr. reglugerðar (ESB) nr. 575/2013.]1)
   1)L. 38/2022, 102. gr.
[C. Sveiflujöfnunarauki.]1)
   1)L. 38/2022, 102. gr.
[85. gr. Skylda til að viðhalda sveiflujöfnunarauka.
Seðlabanki Íslands getur með reglum1) sem hann setur að undangengnu samþykki fjármálastöðugleikanefndar kveðið á um að fjármálafyrirtæki skuli viðhalda eiginfjárauka sem nefnist sveiflujöfnunarauki.]2)
   1)Rgl. 256/2023. 2)L. 38/2022, 102. gr.
[85. gr. a. Hlutfall.
Sveiflujöfnunarauki skal jafngilda áhættugrunni fjármálafyrirtækis skv. 3. mgr. 92. gr. reglugerðar (ESB) nr. 575/2013 margfölduðum með vegnu meðaltali hlutfalls sveiflujöfnunarauka í þeim ríkjum þar sem útlánaáhættuskuldbindingar fyrirtækisins eru. Ekki ber þó að margfalda með hærra hlutfalli en 2,5% vegna útlánaáhættuskuldbindinga í öðru ríki þar sem hlutfallið er hærra en 2,5%, sbr. þó 85. gr. b.
Vægi hvers ríkis í vegnu meðaltali hlutfalls sveiflujöfnunarauka skal jafngilda hlutfalli eiginfjárkrafna til fjármálafyrirtækis skv. II. og IV. bálki í 3. hluta reglugerðar (ESB) nr. 575/2013 vegna útlánaáhættuskuldbindinga í viðkomandi ríki af eiginfjárkröfum til fyrirtækisins vegna allra útlánaáhættuskuldbindinga þess. Til áhættuskuldbindinga samkvæmt þessari grein skal telja alla flokka áhættuskuldbindinga, aðra en þá sem um getur í a–f-lið 112. gr. reglugerðar (ESB) nr. 575/2013, sem eru háðir:
   1. Eiginfjárkröfum vegna útlánaáhættu skv. II. bálki 3. hluta reglugerðar (ESB) nr. 575/2013.
   2. Eiginfjárkröfum vegna sértækrar áhættu skv. 2. kafla IV. bálks 3. hluta reglugerðar (ESB) nr. 575/2013 eða aukinnar vanskila- og tilfærsluáhættu skv. 5. kafla IV. bálks 3. hluta sömu reglugerðar, enda sé áhættuskuldbinding í veltubók.
   3. Eiginfjárkröfum skv. 5. kafla II. bálks 3. hluta reglugerðar (ESB) nr. 575/2013, enda sé áhættuskuldbinding í formi verðbréfunar.
Sveiflujöfnunarauki vegna áhættuskuldbindinga hér á landi skal almennt nema 0–2,5% af áhættugrunni skv. 3. mgr. 92. gr. reglugerðar (ESB) nr. 575/2013 en má þó vera hærri ef áhættuþættir sem liggja til grundvallar mati á gildi sveiflujöfnunarauka gefa tilefni til. Hlutfallið skal vera margfeldi af 0,25 prósentustigum.
Hlutfall sveiflujöfnunarauka skal taka mið af sveiflutengdri kerfisáhættu. Við mat á henni skal litið til skuldasveiflu, einkum fráviks hlutfalls skulda af vergri landsframleiðslu frá langtímaleitni, áhættu sem stafar af óhóflegum vexti skulda á Íslandi og annarra viðeigandi þátta. Tekið skal tillit til sérkenna íslensks efnahags.
Seðlabankinn skal a.m.k. ársfjórðungslega endurskoða hlutfall sveiflujöfnunarauka.]1)
   1)L. 38/2022, 102. gr.
[85. gr. b. Viðurkenning á sveiflujöfnunarauka í öðru ríki sem er hærri en 2,5%.
Í reglum Seðlabanka Íslands skv. 85. gr. má kveða á um að fjármálafyrirtæki skuli við útreikning á sveiflujöfnunarauka margfalda með hærra hlutfalli en 2,5% vegna útlánaáhættuskuldbindinga í ríki þar sem hlutfallið er hærra en 2,5%.
Seðlabankinn skal birta á vef sínum upplýsingar um viðurkenningu á hlutfalli yfir 2,5%. Birtar skulu upplýsingar um a.m.k. hvert hlutfallið sé og ríkið þar sem það gildir. Ef viðurkenningin felur í sér að hlutfall sveiflujöfnunarauka hækkar skal koma fram hvenær hækkunin taki gildi. Ef hækkun á að taka gildi innan tólf mánaða skal greint frá þeim óvenjulegu aðstæðum sem réttlæta það, sbr. 1. mgr. 85. gr. d.]1)
   1)L. 38/2022, 102. gr.
[85. gr. c. Hlutfall sveiflujöfnunarauka vegna ríkja utan Evrópska efnahagssvæðisins.
Í reglum Seðlabanka Íslands skv. 85. gr. má kveða á um hlutfall sveiflujöfnunarauka vegna áhættuskuldbindinga fjármálafyrirtækja í ríkjum utan Evrópska efnahagssvæðisins. Hafi viðkomandi ríki þegar ákvarðað og birt hlutfall sveiflujöfnunarauka vegna áhættuskuldbindinga í því ríki getur Seðlabankinn þó ekki kveðið á um annað hlutfall nema Seðlabankinn telji hlutfallið í viðkomandi ríki ekki fullnægjandi til að vernda fjármálafyrirtæki gegn áhættu sem stafar af óhóflegum vexti skulda í ríkinu. Seðlabankinn skal ekki mæla fyrir um lægra hlutfall en gildir í viðkomandi ríki nema hlutfallið í ríkinu sé hærra en 2,5%.
Seðlabankinn skal birta á vef sínum upplýsingar um ákvörðun hlutfalls skv. 1. mgr. Birtar skulu upplýsingar um a.m.k. hlutfallið og ríkið sem það gildir um og rökstuðningur fyrir hlutfallinu. Ef hlutfall sveiflujöfnunarauka er hækkað skal koma fram hvenær hækkunin taki gildi. Ef hækkun á að taka gildi innan tólf mánaða skal greint frá þeim óvenjulegu aðstæðum sem réttlæta það, sbr. 1. mgr. 85. gr. d.]1)
   1)L. 38/2022, 102. gr.
[85. gr. d. Gildistaka breytinga á hlutfalli.
Hækkun á sveiflujöfnunarauka skal taka gildi eigi síðar en tólf mánuðum eftir birtingu upplýsinga um hækkunina. Hækkunin skal ekki taka gildi innan tólf mánaða nema óvenjulegar aðstæður réttlæti það.
Hækkun á sveiflujöfnunarauka í ríki utan Evrópska efnahagssvæðisins tekur gildi gagnvart innlendum fjármálafyrirtækjum tólf mánuðum frá birtingu í viðkomandi ríki. Það gildir þótt hækkunin taki gildi fyrr í viðkomandi ríki.
Lækkun á sveiflujöfnunarauka skal taka gildi þegar í stað.]1)
   1)L. 38/2022, 102. gr.
[85. gr. e. Birting upplýsinga um sveiflujöfnunarauka.
Seðlabanki Íslands skal birta á vef sínum eftirfarandi upplýsingar samhliða ákvörðun eða endurskoðun á sveiflujöfnunarauka:
   1. Gildandi hlutfall sveiflujöfnunarauka.
   2. Viðeigandi hlutfall skulda af vergri landsframleiðslu og frávik þess frá langtímaleitni.
   3. Mat á þáttum skv. 4. mgr. 85. gr. a sem ákvörðun sveiflujöfnunarauka styðst við.
   4. Rökstuðning fyrir hlutfalli sveiflujöfnunarauka.
Ef hlutfall sveiflujöfnunarauka er hækkað skal koma fram hvenær hækkunin taki gildi. Ef hækkun á að taka gildi innan tólf mánaða skal greint frá þeim óvenjulegu aðstæðum sem réttlæta það, sbr. 1. mgr. 85. gr. d.
Ef hlutfall sveiflujöfnunarauka er lækkað skal greint frá tímabili sem ekki er áætlað að hlutfallið hækki og rökstuðningi fyrir þeirri áætlun. Áætlunin er þó ekki bindandi.]1)
   1)L. 38/2022, 102. gr.
[85. gr. f. Tilkynning til Evrópska kerfisáhætturáðsins.
Seðlabanki Íslands skal tilkynna Evrópska kerfisáhætturáðinu um breytingar á hlutfalli sveiflujöfnunarauka. Tilkynningunni skulu fylgja upplýsingar skv. 85. gr. e.]1)
   1)L. 38/2022, 102. gr.
[D. Eiginfjárauki fyrir kerfislega mikilvæg fjármálafyrirtæki á alþjóðavísu.]1)
   1)L. 38/2022, 102. gr.
[86. gr. Skylda til að viðhalda eiginfjárauka fyrir kerfislega mikilvæg fjármálafyrirtæki á alþjóðavísu.
Seðlabanki Íslands getur með reglum sem hann setur að undangengnu samþykki fjármálastöðugleikanefndar kveðið á um að fjármálafyrirtæki sem telst kerfislega mikilvægt á alþjóðavísu skv. 86. gr. b skuli viðhalda eiginfjárauka fyrir kerfislega mikilvæg fjármálafyrirtæki á alþjóðavísu.]1)
   1)L. 38/2022, 102. gr.
[86. gr. a. Hlutfall.
Eiginfjárauki fyrir kerfislega mikilvægt fjármálafyrirtæki á alþjóðavísu skal nema 1–3,5% af áhættugrunni skv. 3. mgr. 92. gr. reglugerðar (ESB) nr. 575/2013. Hann skal vera 1% ef fyrirtæki er í lægsta flokki skv. 3. mgr. 86. gr. b og hækka línulega um a.m.k. hálft prósentustig fyrir hvern flokk þar fyrir ofan að 3,5%. Hækkun frá og með fimmta flokki þarf þó ekki að vera línuleg.]1)
   1)L. 38/2022, 102. gr.
[86. gr. b. Afmörkun á kerfislega mikilvægum fjármálafyrirtækjum á alþjóðavísu.
Fjármálastöðugleikanefnd Seðlabanka Íslands ákveður hvort fjármálafyrirtæki, sem ekki er dótturfélag móðurstofnunar á Evrópska efnahagssvæðinu, móðureignarhaldsfélags á fjármálasviði á Evrópska efnahagssvæðinu eða blandaðs móðureignarhaldsfélags í fjármálastarfsemi á Evrópska efnahagssvæðinu, skuli teljast, á samstæðugrunni, kerfislega mikilvægt á alþjóðavísu. Sama gildir um samstæðu undir stjórn móðurstofnunar á Evrópska efnahagssvæðinu, móðureignarhaldsfélags á fjármálasviði á Evrópska efnahagssvæðinu eða blandaðs móðureignarhaldsfélags í fjármálastarfsemi á Evrópska efnahagssvæðinu.
Mat skv. 1. mgr. skal taka mið af eftirfarandi viðmiðum, sem skulu hvert hafa jafnt vægi og samanstanda af mælanlegum vísum:
   1. Stærð samstæðunnar.
   2. Samtengingu samstæðunnar við fjármálakerfið.
   3. Hvort þjónustan eða fjármálalegu innviðirnir sem samstæða veitir séu í boði annars staðar.
   4. Flækjustigi samstæðunnar.
   5. Starfsemi samstæðunnar yfir landamæri, þ.m.t. milli aðildarríkja og milli aðildarríkis og ríkis sem ekki er aðildarríki.
Fjármálastöðugleikanefnd skal úthluta hverri einingu, sem hún ákveður að skuli teljast kerfislega mikilvæg á alþjóðavísu, heildarstigafjölda á grundvelli viðmiða skv. 2. mgr. Nefndin skal raða einingunni í einn af a.m.k. fimm flokkum á grundvelli stigagjafarinnar. Nefndin getur þó ákveðið að færa einingu í hærri eða lægri flokk en leiðir af stigagjöfinni ef hún telur það endurspegla betur kerfislegt mikilvægi hennar á alþjóðavísu.
Seðlabankinn skal birta og tilkynna viðkomandi einingum, Evrópska kerfisáhætturáðinu og Evrópsku bankaeftirlitsstofnuninni um heiti kerfislega mikilvægra eininga á alþjóðavísu og þann flokk sem þau raðast í skv. 3. mgr. Tilkynningunni til Evrópska kerfisáhætturáðsins skal fylgja ítarlegur rökstuðningur fyrir ákvörðun um færslu um flokk skv. 3. málsl. 3. mgr.
Fjármálastöðugleikanefnd skal endurskoða a.m.k. árlega afmörkun á kerfislega mikilvægum fjármálafyrirtækjum á alþjóðavísu og röðun þeirra í flokk skv. 3. mgr.]1)
   1)L. 38/2022, 102. gr.
[E. Eiginfjárauki fyrir kerfislega mikilvæg fjármálafyrirtæki á landsvísu.]1)
   1)L. 38/2022, 102. gr.
[86. gr. c. Skylda til að viðhalda eiginfjárauka fyrir kerfislega mikilvæg fjármálafyrirtæki á landsvísu.
Seðlabanki Íslands getur með reglum sem hann setur að undangengnu samþykki fjármálastöðugleikanefndar kveðið á um að fjármálafyrirtæki sem telst kerfislega mikilvægt á landsvísu skv. 86. gr. e skuli viðhalda eiginfjárauka fyrir kerfislega mikilvæg fjármálafyrirtæki á landsvísu.]1)
   1)L. 38/2022, 102. gr.
[86. gr. d. Hlutfall.
Eiginfjárauki fyrir kerfislega mikilvægt fjármálafyrirtæki á landsvísu skal nema 0–3% af áhættugrunni skv. 3. mgr. 92. gr. reglugerðar (ESB) nr. 575/2013. Hlutfallið má þó vera hærra en 3% með samþykki fastanefndar EFTA-ríkjanna.
Hlutfall eiginfjárauka fyrir kerfislega mikilvægt fjármálafyrirtæki á landsvísu skal taka mið af því hversu kerfislega mikilvægt fjármálafyrirtæki er á landsvísu, sbr. 86. gr. e. Þess skal gætt að eiginfjáraukinn hafi ekki í för með sér óhóflega skaðleg áhrif á allt eða hluta fjármálakerfis annarra aðildarríkja eða á Evrópska efnahagssvæðinu í heild sem hindra starfsemi innri markaðar Evrópska efnahagssvæðisins.
Eiginfjárauki sem gildir á eininga- eða undirsamstæðugrunni fyrir kerfislega mikilvægt fjármálafyrirtæki á landsvísu sem er dótturfélag kerfislega mikilvægs aðila á alþjóðavísu eða kerfislega mikilvægs aðila á landsvísu sem er fjármálafyrirtæki eða samstæða undir stjórn móðurstofnunar á Evrópska efnahagssvæðinu og ber að viðhalda eiginfjárauka fyrir kerfislega mikilvægt fjármálafyrirtæki á landsvísu á samstæðugrunni skal ekki vera hærri en samtala:
   1. Hlutfalls eiginfjárauka fyrir kerfislega mikilvægt fjármálafyrirtæki á alþjóðavísu eða fyrir kerfislega mikilvægt fjármálafyrirtæki á landsvísu sem gildir um samstæðuna, hvort sem hærra er.
   2. 1% af áhættugrunni skv. 3. mgr. 92. gr. reglugerðar (ESB) nr. 575/2013.
Seðlabanki Íslands skal endurskoða a.m.k. árlega hlutfall eiginfjárauka fyrir kerfislega mikilvæg fjármálafyrirtæki á landsvísu.]1)
   1)L. 38/2022, 102. gr.
[86. gr. e. Afmörkun á kerfislega mikilvægum fjármálafyrirtækjum á landsvísu.
Fjármálastöðugleikanefnd Seðlabanka Íslands ákveður hvort fjármálafyrirtæki skuli teljast, á einingar-, undirsamstæðu- eða samstæðugrunni, eftir því sem við á, kerfislega mikilvægt á landsvísu með tilliti til þess hvort það sé þess eðlis að starfsemi þess geti haft áhrif á fjármálastöðugleika. Sama gildir um samstæðu undir stjórn móðurstofnunar á Evrópska efnahagssvæðinu, móðureignarhaldsfélags á fjármálasviði á Evrópska efnahagssvæðinu, blandaðs móðureignarhaldsfélags í fjármálastarfsemi á Evrópska efnahagssvæðinu, móðurstofnunar í aðildarríki, móðureignarhaldsfélags á fjármálasviði í aðildarríki eða blandaðs móðureignarhaldsfélags í fjármálastarfsemi í aðildarríki.
Mat skv. 1. mgr. skal taka mið af a.m.k. eftirfarandi viðmiðum:
   1. Stærð.
   2. Mikilvægi fyrir efnahag Evrópska efnahagssvæðisins eða Íslands.
   3. Umfangi starfsemi yfir landamæri.
   4. Samtengingu fjármálafyrirtækisins eða samstæðunnar við fjármálakerfið.
Seðlabankinn skal birta og tilkynna viðkomandi einingum, Evrópska kerfisáhætturáðinu og Evrópsku bankaeftirlitsstofnuninni um heiti kerfislega mikilvægra eininga á landsvísu.
Fjármálastöðugleikanefnd skal endurskoða a.m.k. árlega afmörkun á kerfislega mikilvægum fjármálafyrirtækjum á landsvísu.]1)
   1)L. 38/2022, 102. gr.
[86. gr. f. Tilkynning til Evrópska kerfisáhætturáðsins.
Seðlabanki Íslands skal tilkynna Evrópska kerfisáhætturáðinu um fyrirhugaða setningu eða endurskoðun eiginfjárauka fyrir kerfislega mikilvæg fjármálafyrirtæki á landsvísu. Tilkynningin skal send mánuði fyrir setningu eða endurskoðun, þó þremur mánuðum áður ef hlutfallið er hærra en 3%. Tilkynningin skal lýsa ítarlega:
   1. Hvers vegna eiginfjáraukinn er talinn líklegur til að draga úr þeirri áhættu sem honum er ætlað að mæta með skilvirkum og hóflegum hætti.
   2. Mati á líklegum jákvæðum og neikvæðum áhrifum af eiginfjáraukanum á innri markað Evrópska efnahagssvæðisins.
   3. Fyrirhuguðu hlutfalli eiginfjáraukans.]1)
   1)L. 38/2022, 102. gr.
[F. Kerfisáhættuauki]1)
   1)L. 38/2022, 102. gr.
[86. gr. g. Skylda til að viðhalda kerfisáhættuauka.
Seðlabanki Íslands getur með reglum sem hann setur að undangengnu samþykki fjármálastöðugleikanefndar kveðið á um að fjármálafyrirtæki skuli viðhalda eiginfjárauka sem nefnist kerfisáhættuauki.
Í reglunum má takmarka skyldu til að viðhalda kerfisáhættuauka við einn eða fleiri flokka fjármálafyrirtækja.]1)
   1)L. 38/2022, 102. gr.
[86. gr. h. Hlutfall.
Kerfisáhættuauki skal nema 0–3% af áhættugrunni skv. 3. mgr. 92. gr. reglugerðar (ESB) nr. 575/2013 eða einstökum flokkum áhættuskuldbindinga skv. 86. gr. i. Hlutfallið má þó, þegar ríkar ástæður eru til, vera hærra en 3% með samþykki ráðherra. Það má þó ekki vera hærra en 5% nema einnig sé aflað samþykkis fastanefndar EFTA-ríkjanna. Hlutfallið skal vera margfeldi af 0,5 prósentustigum.
Hlutfall kerfisáhættuauka skal taka mið af kerfisáhættu sem er ekki mætt með reglugerð (ESB) nr. 575/2013 eða eiginfjáraukum skv. C-, D- eða E-hlutum þessa kafla. Þess skal gætt að kerfisáhættuaukinn hafi ekki í för með sér óhóflega skaðleg áhrif á allt eða hluta fjármálakerfis annarra aðildarríkja eða á Evrópska efnahagssvæðinu í heild sem hindra starfsemi innri markaðar Evrópska efnahagssvæðisins.
Í reglum Seðlabanka Íslands skv. 86. gr. g má kveða á um mismunandi hlutfall kerfisáhættuauka fyrir mismunandi flokka fjármálafyrirtækja og áhættuskuldbindinga. Hlutfall kerfisáhættuauka fyrir áhættuskuldbindingar í öðrum aðildarríkjum skal þó vera hið sama fyrir öll aðildarríkin, nema þegar um er að ræða viðurkenningu á kerfisáhættuauka í öðru aðildarríki skv. 86. gr. j.
Seðlabankinn skal endurskoða a.m.k. annað hvert ár hlutfall kerfisáhættuauka.]1)
   1)L. 38/2022, 102. gr.
[86. gr. i. Flokkar áhættuskuldbindinga.
Í reglum Seðlabanka Íslands skv. 86. gr. g má kveða á um að kerfisáhættuauki reiknist af einum eða fleiri eftirfarandi flokkum áhættuskuldbindinga:
   1. Allar áhættuskuldbindingar á Íslandi.
   2. Eftirfarandi tegundir áhættuskuldbindinga á Íslandi:
   a. allar smásöluáhættuskuldbindingar vegna einstaklinga sem eru tryggðar með íbúðarhúsnæði,
   b. allar áhættuskuldbindingar vegna lögaðila sem eru tryggðar með veði í atvinnuhúsnæði,
   c. allar áhættuskuldbindingar vegna lögaðila að undanskildum þeim sem tilgreindar eru í b-lið,
   d. allar áhættuskuldbindingar vegna einstaklinga að undanskildum þeim sem tilgreindar eru í a-lið.
   3. Allar áhættuskuldbindingar í öðrum aðildarríkjum.
   4. Tegundir áhættuskuldbindinga skv. 2. tölul. í öðrum aðildarríkjum eingöngu svo að mögulegt sé að viðurkenna hlutfall eiginfjárauka sem annað aðildarríki hefur ákvarðað í samræmi við 86. gr. j.
   5. Áhættuskuldbindingar í ríkjum utan Evrópska efnahagssvæðisins.
   6. Undirtegundir áhættuskuldbindinga skv. 2. tölul.]1)
   1)L. 38/2022, 102. gr.
[86. gr. j. Viðurkenning á kerfisáhættuauka í öðru aðildarríki.
Í reglum Seðlabanka Íslands skv. 86. gr. g má kveða á um að fjármálafyrirtæki skuli viðhalda kerfisáhættuauka vegna áhættuskuldbindinga í öðru aðildarríki sem samsvari hlutfalli kerfisáhættuauka sem viðkomandi ríki hefur ákveðið telji Seðlabankinn það við hæfi að teknu tilliti til upplýsinga um kerfisáhættuaukann frá viðkomandi aðildarríki.
Kerfisáhættuauki skv. 1. mgr. bætist við kerfisáhættuauka skv. 86. gr. h ef þeim er ætlað að mæta hvor sinni áhættu. Ef þeim er ætlað að mæta sömu áhættu gildir einvörðungu hærri kerfisáhættuaukinn.
Seðlabankinn skal tilkynna Evrópska kerfisáhætturáðinu um viðurkenningu á kerfisáhættuauka í öðru aðildarríki.
Seðlabankinn getur óskað eftir því að Evrópska kerfisáhætturáðið setji fram tilmæli skv. 16. gr. reglugerðar (ESB) nr. 1092/2010 til eins eða fleiri aðildarríkja um að viðurkenna kerfisáhættuauka hér á landi.]1)
   1)L. 38/2022, 102. gr.
[86. gr. k. Tilkynning til Evrópska kerfisáhætturáðsins og annarra yfirvalda um kerfisáhættuauka.
Seðlabanki Íslands skal tilkynna Evrópska kerfisáhætturáðinu um fyrirhugaða setningu eða endurskoðun kerfisáhættuauka. Tilkynning skal send mánuði áður en Seðlabankinn birtir upplýsingar skv. 86. gr. l ef hlutfall kerfisáhættuaukans, að frátöldum kerfisáhættuauka í öðru aðildarríki sem hefur verið viðurkenndur skv. 86. gr. j, er ekki hærra en 3%. Í tilkynningunni skal lýsa ítarlega:
   1. Kerfisáhættu á Íslandi.
   2. Ástæðum þess að kerfisáhætta ógnar stöðugleika fjármálakerfisins á Íslandi og réttlætir hlutfall kerfisáhættuaukans.
   3. Hvers vegna kerfisáhættuaukinn er talinn líklegur til að draga úr áhættunni með skilvirkum og hóflegum hætti.
   4. Mati á líklegum jákvæðum og neikvæðum áhrifum af kerfisáhættuaukanum á innri markað Evrópska efnahagssvæðisins.
   5. Fyrirhuguðu hlutfalli eða hlutföllum kerfisáhættuauka, til hvaða áhættuskuldbindinga hann eigi að taka og hvaða fjármálafyrirtæki eigi að viðhalda honum.
   6. Af hverju kerfisáhættuauki sem gildir um allar áhættuskuldbindingar tvítaki ekki virkni eiginfjárauka fyrir kerfislega mikilvægt fjármálafyrirtæki á landsvísu.
Í tilkynningunni skal greint frá því ef kerfisáhættuauki á að taka til áhættuskuldbindinga í ríkjum utan Evrópska efnahagssvæðisins.
Ef hækka á kerfisáhættuauka þannig að hann verði hærri en 3% og allt að 5% skal í tilkynningunni óskað eftir áliti fastanefndar EFTA-ríkjanna. Ef álit fastanefndarinnar er neikvætt skal Seðlabankinn fara eftir álitinu eða gefa upp ástæður fyrir því að gera það ekki.
Ef fjármálafyrirtæki sem fyrirhugað er að skylda til að viðhalda kerfisáhættuauka er dótturfélag félags með staðfestu í öðru aðildarríki skal í tilkynningunni óskað eftir áliti Evrópska kerfisáhætturáðsins og framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, eða fastanefndar EFTA-ríkjanna ef félagið er með staðfestu í aðildarríki Fríverslunarsamtaka Evrópu. Seðlabankinn skal jafnframt senda tilkynningu skv. 1. mgr. til lögbærra yfirvalda í því aðildarríki. Leggist kerfisáhætturáðið, framkvæmdastjórnin eða fastanefndin og yfirvöld móðurfélagsins gegn fyrirhuguðum kerfisáhættuauka getur Seðlabankinn vísað málinu til Evrópsku bankaeftirlitsstofnunarinnar eða Eftirlitsstofnunar EFTA, eftir því sem við á, og óskað eftir aðstoð hennar í samræmi við 19. gr. reglugerðar (ESB) nr. 1093/2010, sbr. lög um evrópskt eftirlitskerfi á fjármálamarkaði. Setningu reglna um viðkomandi áhættuskuldbindingar skal frestað meðan beðið er niðurstöðu Eftirlitsstofnunar EFTA.]1)
   1)L. 38/2022, 102. gr.
[86. gr. l. Birting upplýsinga um kerfisáhættuauka.
Seðlabanki Íslands skal birta á vef sínum eftirfarandi upplýsingar um ákvörðun eða endurskoðun á kerfisáhættuauka:
   1. Hlutfall kerfisáhættuauka.
   2. Fjármálafyrirtæki sem ber að viðhalda kerfisáhættuauka.
   3. Áhættuskuldbindingar sem kerfisáhættuauki tekur til.
   4. Rökstuðning fyrir hlutfalli kerfisáhættuauka.
   5. Hvenær fjármálafyrirtækjum beri að viðhalda kerfisáhættuauka.
   6. Í hvaða löndum áhættuskuldbindingar sem kerfisáhættuauki miðast við eru.
Rökstuðningur fyrir hlutfalli kerfisáhættuauka, sbr. 4. tölul. 1. mgr., skal ekki birtur ef það gæti teflt stöðugleika fjármálakerfisins í tvísýnu.]1)
   1)L. 38/2022, 102. gr.
[G. Ráðstafanir til að varðveita eigið fé.]1)
   1)L. 38/2022, 102. gr.
[86. gr. m. Takmarkanir á úthlutun vegna kröfu um eiginfjárauka.
Fjármálafyrirtæki sem uppfyllir samanlagða kröfu um eiginfjárauka er eftirfarandi úthlutun óheimil ef hún hefði þau áhrif að það uppfyllti ekki lengur kröfuna:
   1. Arðgreiðsla með reiðufé.
   2. Úthlutun á jöfnunarhlutabréfum sem hafa verið greidd að fullu eða að hluta eða öðrum fjármagnsgerningum skv. a-lið 1. mgr. 26. gr. reglugerðar (ESB) nr. 575/2013.
   3. Innlausn eða kaup á eigin hluta- eða stofnfjárbréfum eða öðrum fjármagnsgerningum skv. a-lið 1. mgr. 26. gr. reglugerðar (ESB) nr. 575/2013.
   4. Endurgreiðsla vegna innborgaðs hluta- eða stofnfjár eða annarra fjármagnsgerninga skv. a-lið 1. mgr. 26. gr. reglugerðar (ESB) nr. 575/2013.
   5. Úthlutun á liðum skv. b–e-lið 1. mgr. 26. gr. reglugerðar (ESB) nr. 575/2013.
Fjármálafyrirtæki sem uppfyllir ekki samanlagða kröfu um eiginfjárauka er óheimilt að grípa til eftirfarandi ráðstafana áður en hámarksúthlutunarfjárhæð skv. 86. gr. n hefur verið reiknuð út:
   1. Úthlutun skv. 1. mgr.
   2. Stofna til skuldbindingar um að greiða kaupauka eða greiða kaupauka ef stofnað var til skuldbindingar til greiðslu á þeim tíma þegar fjármálafyrirtækið uppfyllti ekki samanlagða kröfu um eiginfjárauka.
   3. Greiða af gerningi viðbótar eigin fjár þáttar 1.
Fjármálafyrirtæki sem uppfyllir ekki samanlagða kröfu um eiginfjárauka er óheimil úthlutun skv. 2. mgr. umfram hámarksúthlutunarfjárhæð skv. 86. gr. n.
Takmarkanir samkvæmt þessari grein gilda aðeins um úthlutanir sem lækka almennt eigið fé þáttar 1 eða hagnað fjármálafyrirtækis. Þær gilda ekki ef frestun úthlutunar fæli í sér vanefnd eða gæti leitt til ógjaldfærnimeðferðar fjármálafyrirtækisins.]1)
   1)L. 38/2022, 102. gr.
[86. gr. n. Hámarksúthlutunarfjárhæð uppfylli fyrirtæki ekki kröfu um eiginfjárauka.
Fjármálafyrirtæki sem uppfyllir ekki samanlagða kröfu um eiginfjárauka skal reikna út hámarksúthlutunarfjárhæð og tilkynna Fjármálaeftirlitinu um fjárhæðina.
Hámarksúthlutunarfjárhæð skal fundin með því að margfalda samtölu skv. 3. mgr. með stuðli skv. 4. mgr. Frá hámarksúthlutunarfjárhæð skal draga fjárhæð sem leiðir af ráðstöfunum skv. 2. mgr. 86. gr. m.
Samtala vegna hámarksúthlutunarfjárhæðar skal samanstanda af:
   a. hagnaði samkvæmt árshlutauppgjöri sem ekki er talinn til almenns eigin fjár þáttar 1 skv. 2. mgr. 26. gr. reglugerðar (ESB) nr. 575/2013 að frádregnum úthlutunum vegna ráðstafana skv. 2. mgr. 86. gr. m,
   b. að viðbættum hagnaði ársins sem ekki er talinn til almenns eigin fjár þáttar 1 skv. 2. mgr. 26. gr. reglugerðar (ESB) nr. 575/2013 að frádregnum úthlutunum vegna ráðstafana skv. 2. mgr. 86. gr. m
   c. og að frádreginni þeirri fjárhæð sem yrði greidd í skatt ef hagnaði skv. a- og b-lið væri haldið eftir.
Stuðull vegna hámarksúthlutunarfjárhæðar ræðst af hlutfalli almenns eigin fjár þáttar 1 sem fjármálafyrirtæki viðheldur og er ekki nýtt til að mæta eiginfjárkröfu skv. a-, b- eða c-lið 1. mgr. 92. gr. reglugerðar (ESB) nr. 575/2013 eða viðbótareiginfjárkröfu skv. 1. tölul. 3. mgr. 107. gr. a vegna annarrar áhættu en hættunnar á of mikilli vogun af samanlagðri kröfu um eiginfjárauka sem hér segir:
   1. Ef hlutfallið er lægra en 25% er stuðullinn 0.
   2. Ef hlutfallið er a.m.k. 25% en lægra en 50% er stuðullinn 0,2.
   3. Ef hlutfallið er a.m.k. 50% en lægra en 75% er stuðullinn 0,4.
   4. Ef hlutfallið er a.m.k. 75% er stuðullinn 0,6.]1)
   1)L. 38/2022, 102. gr.
[86. gr. o. Tilkynningarskylda og gagnaskil uppfylli fyrirtæki ekki kröfu um eiginfjárauka.
Fjármálafyrirtæki sem uppfyllir ekki samanlagða kröfu um eiginfjárauka og hefur í hyggju að greiða út af hagnaði eða ráðstöfun skv. 2. mgr. 86. gr. m skal tilkynna Fjármálaeftirlitinu um það.
Í tilkynningu skulu koma fram eftirfarandi upplýsingar:
   1. Fjárhæð eiginfjárgrunns fjármálafyrirtækis sundurliðuð með eftirfarandi hætti:
   a. almennt eigið fé þáttar 1,
   b. viðbótar eigið fé þáttar 1,
   c. eiginfjárþáttur 2.
   2. Hagnaður samkvæmt árshluta- og ársuppgjöri.
   3. Hámarksúthlutunarfjárhæð skv. 86. gr. n.
   4. Fjárhæð sem fjármálafyrirtæki hyggst greiða út, sundurliðuð með eftirfarandi hætti:
   a. arðgreiðslur,
   b. kaup á eigin bréfum,
   c. greiðslur af gerningum viðbótar eigin fjár þáttar 1,
   d. greiðslur kaupauka, hvort sem er á grundvelli nýrrar skuldbindingar eða skuldbindingar sem stofnað var til á þeim tíma þegar fjármálafyrirtækið uppfyllti ekki samanlagða kröfu um eiginfjárauka.]1)
   1)L. 38/2022, 102. gr.
[86. gr. p. Takmarkanir á úthlutun vegna kröfu um vogunarauka.
Fjármálafyrirtæki sem uppfyllir kröfu um vogunarauka skv. 1. mgr. a 92. gr. reglugerðar (ESB) nr. 575/2013 er eftirfarandi úthlutun óheimil ef hún hefði þau áhrif að það uppfyllti ekki lengur kröfuna:
   1. Arðgreiðsla með reiðufé.
   2. Úthlutun á jöfnunarhlutabréfum, sem hafa verið greidd að fullu eða að hluta, eða öðrum fjármagnsgerningum skv. a-lið 1. mgr. 26. gr. reglugerðar (ESB) nr. 575/2013.
   3. Innlausn eða kaup á eigin hluta- eða stofnfjárbréfum eða öðrum fjármagnsgerningum skv. a-lið 1. mgr. 26. gr. reglugerðar (ESB) nr. 575/2013.
   4. Endurgreiðsla vegna innborgaðs hluta- eða stofnfjár eða annarra fjármagnsgerninga skv. a-lið 1. mgr. 26. gr. reglugerðar (ESB) nr. 575/2013.
   5. Úthlutun á liðum skv. b–e-lið 1. mgr. 26. gr. reglugerðar (ESB) nr. 575/2013.
Fjármálafyrirtæki sem uppfyllir ekki kröfuna um vogunarauka er óheimilt að grípa til eftirfarandi ráðstafana áður en hámarksúthlutunarfjárhæð vegna vogunarauka skv. 86. gr. q hefur verið reiknuð út:
   1. Framkvæma úthlutun í tengslum við almennt eigið fé þáttar 1.
   2. Stofna til skuldbindingar um að greiða kaupauka eða greiða kaupauka ef stofnað var til skuldbindingar til greiðslu á þeim tíma þegar fjármálafyrirtækið uppfyllti ekki kröfu um vogunarauka.
   3. Greiða af gerningi viðbótar eigin fjár þáttar 1.
Fjármálafyrirtæki sem uppfyllir ekki kröfuna um vogunarauka er óheimil úthlutun skv. 2. mgr. umfram hámarksúthlutunarfjárhæð vegna vogunarauka skv. 86. gr. q.
Takmarkanir samkvæmt þessari grein gilda aðeins um úthlutanir sem lækka eiginfjárþátt 1 eða hagnað fjármálafyrirtækis. Þær gilda ekki ef frestun úthlutunar fæli í sér vanefnd eða gæti leitt til ógjaldfærnimeðferðar fjármálafyrirtækisins.]1)
   1)L. 38/2022, 102. gr.
[86. gr. q. Hámarksúthlutunarfjárhæð uppfylli fyrirtæki ekki kröfu um vogunarauka.
Fjármálafyrirtæki sem uppfyllir ekki kröfu um vogunarauka skv. 1. mgr. a 92. gr. reglugerðar (ESB) nr. 575/2013 skal reikna út hámarksúthlutunarfjárhæð vegna vogunarauka og tilkynna Fjármálaeftirlitinu um fjárhæðina.
Hámarksúthlutunarfjárhæð skal fundin með því að margfalda samtölu skv. 3. mgr. með stuðli skv. 4. mgr. Frá hámarksúthlutunarfjárhæð skal draga fjárhæð sem leiðir af ráðstöfunum skv. 2. mgr. 86. gr. p.
Samtala vegna hámarksúthlutunarfjárhæðar skal samanstanda af:
   a. hagnaði samkvæmt árshlutauppgjöri sem ekki er talinn til almenns eigin fjár þáttar 1 skv. 2. mgr. 26. gr. reglugerðar (ESB) nr. 575/2013 að frádregnum úthlutunum vegna ráðstafana skv. 2. mgr. 86. gr. p,
   b. að viðbættum hagnaði ársins sem ekki er talinn til almenns eigin fjár þáttar 1 skv. 2. mgr. 26. gr. reglugerðar (ESB) nr. 575/2013 að frádregnum úthlutunum vegna ráðstafana skv. 2. mgr. 86. gr. p
   c. og að frádreginni þeirri fjárhæð sem yrði greidd í skatt ef hagnaði skv. a- og b-lið væri haldið eftir.
Stuðull vegna hámarksúthlutunarfjárhæðar ræðst af hlutfalli eiginfjárþáttar 1 sem fjármálafyrirtæki viðheldur og er ekki nýttur til að mæta kröfum skv. d-lið 1. mgr. 92. gr. reglugerðar (ESB) nr. 575/2013 eða viðbótareiginfjárkröfu skv. 1. tölul. 3. mgr. 107. gr. a vegna hættunnar á of mikilli vogun af kröfu um vogunarauka skv. 1. mgr. a 92. gr. sömu reglugerðar sem hér segir:
   1. Ef hlutfallið er lægra en 25% er stuðullinn 0.
   2. Ef hlutfallið er a.m.k. 25% en lægra en 50% er stuðullinn 0,2.
   3. Ef hlutfallið er a.m.k. 50% en lægra en 75% er stuðullinn 0,4.
   4. Ef hlutfallið er a.m.k. 75% er stuðullinn 0,6.]1)
   1)L. 38/2022, 102. gr.
[86. gr. r. Tilkynningarskylda og gagnaskil uppfylli fyrirtæki ekki kröfu um vogunarauka.
Fjármálafyrirtæki sem uppfyllir ekki kröfu um vogunarauka skv. 1. mgr. a 92. gr. reglugerðar (ESB) nr. 575/2013 og hefur í hyggju að greiða út af hagnaði eða ráðstöfun skv. 2. mgr. 86. gr. p skal tilkynna Fjármálaeftirlitinu um það.
Í tilkynningu skulu koma fram eftirfarandi upplýsingar:
   1. Fjárhæð eiginfjárgrunns fjármálafyrirtækis sundurliðuð með eftirfarandi hætti:
   a. almennt eigið fé þáttar 1,
   b. viðbótar eigið fé þáttar 1.
   2. Hagnaður samkvæmt árshluta- og ársuppgjöri.
   3. Hámarksúthlutunarfjárhæð vegna vogunarauka skv. 86. gr. q.
   4. Fjárhæð sem fjármálafyrirtæki hyggst greiða út, sundurliðuð með eftirfarandi hætti:
   a. arðgreiðslur,
   b. kaup á eigin bréfum,
   c. greiðslur af gerningum viðbótar eigin fjár þáttar 1,
   d. greiðslur kaupauka, hvort sem er á grundvelli nýrrar skuldbindingar eða skuldbindingar sem stofnað var til á þeim tíma þegar fjármálafyrirtækið uppfyllti ekki kröfuna um vogunarauka.]1)
   1)L. 38/2022, 102. gr.
[86. gr. s. Áætlun um verndun eigin fjár.
Uppfylli fjármálafyrirtæki ekki samanlagða kröfu um eiginfjárauka eða kröfu um vogunarauka skv. 1. mgr. a 92. gr. reglugerðar (ESB) nr. 575/2013 skal stjórn þess útbúa og afhenda Fjármálaeftirlitinu áætlun um verndun eigin fjár í samræmi við fyrirmæli þessarar greinar.
Áætlun um verndun eigin fjár skal a.m.k. innihalda:
   1. Áætlun um tekjur og gjöld fyrirtækisins og spá um þróun efnahagsreiknings þess.
   2. Upplýsingar um til hvaða úrræða fyrirtækið muni grípa til þess að hækka eiginfjárhlutfall sitt.
   3. Tímasetta áætlun um það hvernig fyrirtækið ráðgerir að hækka eiginfjárhlutfall sitt þannig að það uppfylli á ný samanlagða kröfu um eiginfjárauka eða kröfu um vogunarauka.
   4. Aðrar upplýsingar sem Fjármálaeftirlitið telur nauðsynlegar til þess að leggja mat á áætlunina.
Áætlun um verndun eigin fjár skal afhent Fjármálaeftirlitinu innan fimm virkra daga frá því að ljóst var að fjármálafyrirtæki uppfyllti ekki samanlagða kröfu um eiginfjárauka eða kröfu um vogunarauka. Fjármálaeftirlitið getur veitt fimm virkra daga viðbótarfrest til að afhenda áætlunina.
Fjármálaeftirlitið leggur mat á áætlunina í samræmi við fyrirmæli þessarar greinar. Áætlun um verndun eigin fjár skal samþykkt ef talið er líklegt að hún komi því til leiðar að fjármálafyrirtæki nái að uppfylla samanlagða kröfu um eiginfjárauka eða kröfu um vogunarauka innan viðeigandi tímamarka.
Samþykki Fjármálaeftirlitið ekki áætlunina á grundvelli 4. mgr. skal það:
   a. mæla fyrir um að fjármálafyrirtækið auki eiginfjárgrunn sinn um tilskilin mörk innan tímafrests sem Fjármálaeftirlitið ákveður og/eða
   b. takmarka frekar útgreiðslur umfram það sem kveðið er á um í 86. gr. m eða 86. gr. p.]1)
   1)L. 38/2022, 102. gr.

XI. kafli. Ársreikningur, endurskoðun og samstæðureikningsskil.
87. gr. Samning ársreiknings og undirritun.
Stjórn og framkvæmdastjóri fjármálafyrirtækis skulu semja ársreikning fyrir hvert reikningsár. Ársreikningur skal hafa að geyma rekstrarreikning, efnahagsreikning, fjárstreymisyfirlit og skýringar. Enn fremur skal semja skýrslu stjórnar sem ásamt ársreikningi mynda eina heild. Reikningsár fjármálafyrirtækja er almanaksárið.
Ársreikningur skal undirritaður af stjórn og framkvæmdastjórum fjármálafyrirtækja. Hafi stjórnarmaður eða framkvæmdastjóri fjármálafyrirtækis mótbárur fram að færa gegn ársreikningi skal hann gera grein fyrir því í áritun sinni.
[Eftirfarandi upplýsingar skulu vera í ársreikningi:
   a. Launagreiðslur og hvers konar greiðslur eða hlunnindi félagsins til hvers og eins stjórnarmanns og framkvæmdastjóra,
   b. heildargreiðslur og hlunnindi lykilstarfsmanna auk upplýsinga um fjölda þeirra,
   c. nöfn og ríkisfang allra þeirra sem eiga umfram 1% hlutafjár eða stofnfjár í lok reikningsárs. Sé viðkomandi lögaðili skal jafnframt koma fram hver sé raunverulegur eigandi viðkomandi lögaðila …1) ,
   [d. nöfn dótturfélaga, starfsemi þeirra og hvar starfsemi fer fram; einnig skal birta yfirlit yfir staðsetningu útibúa og hvar félagið veitir þjónustustarfsemi án stofnunar útibús í öðrum ríkjum,
   e. yfirlit yfir hvers konar styrki eða niðurgreiðslur, og fjárhæð þeirra, sem félagið hefur þegið frá hinu opinbera á reikningsárinu,
   f. arðsemi eigna í lykiltölum ársreikningsins; með arðsemi eigna er átt við hagnað félagsins eftir skatta sem hlutfall af meðalstöðu eigna á tímabilinu samkvæmt efnahagsreikningi.]2)]3)
   1)L. 38/2022, 103. gr. 2)L. 57/2015, 29. gr. 3)L. 47/2013, 10. gr.
[87. gr. a Birting upplýsinga um starfsemi í einstökum ríkjum.
Í skýringum í árs- eða samstæðureikningi skulu vera upplýsingar á samstæðugrunni um eftirfarandi þætti á næstliðnu reikningsári í hverju ríki þar sem fjármálafyrirtæki hefur starfsstöð:
   1. Heiti, eðli starfsemi og landfræðilega staðsetningu.
   2. Veltu.
   3. Fjölda ársverka.
   4. Hagnað eða tap fyrir skatt.
   5. Skatt á hagnað eða tap.
   6. Opinbera styrki eða ívilnanir.]1)
   1)L. 38/2022, 104. gr.
88. gr. Góð reikningsskilavenja.
Ársreikningur skal gefa glögga mynd af fjárhagsstöðu og rekstrarafkomu fjármálafyrirtækis. Hann skal gerður í samræmi við lög, reglur og góða reikningsskilavenju og innihalda m.a. rekstrarreikning, efnahagsreikning og skýringar og upplýsingar um liði utan efnahagsreiknings.
[Seðlabanki Íslands]1) setur reglur2) að höfðu samráði við reikningsskilaráð um uppsetningu ársreiknings, innihald einstakra liða rekstrar- og efnahagsreiknings og liða utan efnahagsreiknings og skýringar og mat á einstökum liðum.
Fjármálaeftirlitið skal sjá til þess í samráði við reikningsskilaráð að á hverjum tíma liggi fyrir skilgreining á góðri reikningsskilavenju við gerð ársreiknings og árshlutareiknings fjármálafyrirtækis.
   1)L. 91/2019, 36. gr. 2)Rgl. 834/2003. Rgl. 102/2004. Rgl. 1240/2020.
89. gr. Skýrsla stjórnar.
Í skýrslu stjórnar skal koma fram yfirlit yfir starfsemi hlutaðeigandi fjármálafyrirtækis á árinu, svo og upplýsingar um atriði sem mikilvæg eru við mat á fjárhagslegri stöðu hlutaðeigandi fyrirtækis og afkomu þess á reikningsárinu er ekki koma fram í ársreikningnum.
Í skýrslu stjórnar skal enn fremur upplýst um eftirfarandi:
   1. atburði eftir uppgjörsdag sem hafa verulega þýðingu,
   2. væntanlega þróun fyrirtækisins og
   3. aðgerðir sem hafa þýðingu fyrir framtíðarþróun þess.
Skýrsla stjórnar skal veita upplýsingar um fjölda starfsmanna að meðaltali á reikningsárinu og heildarfjárhæð launa, þóknana eða annarra greiðslna til starfsmanna, framkvæmdastjóra, stjórnar og annarra í þjónustu hlutaðeigandi fjármálafyrirtækis. Sé um ágóðahlut að ræða til stjórnar eða framkvæmdastjóra skal hann sérgreindur. Í skýrslu stjórnar skal upplýst um fjölda hluthafa eða stofnfjáreigenda í lok reikningsárs. Að öðru leyti gilda ákvæði [laga um hlutafélög]1) eftir því sem við á.
Stjórnir skulu í skýrslu sinni gera tillögu um ráðstöfun á hagnaði hlutaðeigandi fyrirtækis eða jöfnun taps.
   1)L. 96/2016, 52. gr.
90. gr. Endurskoðun.
Ársreikningur fjármálafyrirtækis skal endurskoðaður af endurskoðanda eða endurskoðunarfélagi. …1)
2)
Kjósa skal sama aðila sem endurskoðanda í móður-, systur- og dótturfélagi ef þess er nokkur kostur. Í móðurfélagi skal endurskoðandi jafnframt endurskoða samstæðureikninginn.
[Endurskoðendur félags eiga rétt á að sitja stjórnar- og félagsfundi í fjármálafyrirtæki og er skylt að mæta á aðalfundi.]3)
   1)L. 38/2022, 105. gr. 2)L. 94/2019, 56. gr. 3)L. 75/2010, 48. gr., sbr. einnig brbákv. I í s.l.
91. gr.1)
   1)L. 38/2022, 106. gr.
92. gr. [Upplýsinga- og tilkynningarskylda endurskoðanda.
Endurskoðanda er skylt að veita Fjármálaeftirlitinu upplýsingar um framkvæmd og niðurstöður endurskoðunar sé þess óskað.
Endurskoðanda er skylt að gera Fjármálaeftirlitinu tafarlaust viðvart fái hann vitneskju, í starfi sínu fyrir fjármálafyrirtækið eða aðila sem er í nánum tengslum við það, um atriði eða ákvarðanir sem:
   a. [líkur eru á að feli]1) í sér veruleg brot á löggjöf sem gildir um starfsemi fjármálafyrirtækisins eða hvers konar brot sem koma til skoðunar á grundvelli 9. gr.,
   b. kunna að hafa áhrif á áframhaldandi starfsemi fjármálafyrirtækisins, þ.m.t. atriði sem hafa verulega þýðingu fyrir fjárhagsstöðu hlutaðeigandi fjármálafyrirtækis,
   c. leitt geta til þess að endurskoðandi mundi synja um áritun eða gera fyrirvara við ársreikning fjármálafyrirtækisins.
Endurskoðandi skal gera stjórn fjármálafyrirtækis viðvart um tilkynningu skv. 2. mgr. nema rík ástæða sé til þess að gera það ekki.
Upplýsingar sem endurskoðandi veitir Fjármálaeftirlitinu samkvæmt ákvæðum þessarar greinar teljast ekki brot á lögbundinni eða samningsbundinni þagnarskyldu endurskoðanda.
[Fari endurskoðandi ekki eftir 2. mgr. getur Fjármálaeftirlitið krafist þess að fjármálafyrirtæki kjósi annan endurskoðanda.]1)]2)
   1)L. 38/2022, 107. gr. 2)L. 8/2019, 5. gr.
93. gr. Góð endurskoðunarvenja.
Fjármálaeftirlitið skal sjá til þess í samráði við Félag löggiltra endurskoðenda og aðra hlutaðeigandi aðila að á hverjum tíma liggi fyrir skilgreining á góðri endurskoðunarvenju við endurskoðun hjá fjármálafyrirtækjum. [Seðlabanki Íslands]1) setur reglur2) um endurskoðun fjármálafyrirtækja.
Að öðru leyti en fram kemur í lögum þessum gilda um endurskoðun fjármálafyrirtækja ákvæði VII. kafla laga nr. 144/1994, um ársreikninga, með áorðnum breytingum.
Ákvæði 1. mgr. eiga einnig við um [dótturfélög]3) fjármálafyrirtækis, svo og eignarhaldsfélag á fjármálasviði eða blandað eignarhaldsfélag …3) og [dótturfélög]3) slíkra félaga.
   1)L. 91/2019, 36. gr. 2)Rgl. 532/2003. 3)L. 57/2015, 30. gr.
94. gr. Sérstök endurskoðun.
Fjármálaeftirlitið getur látið fara fram sérstaka endurskoðun hjá fjármálafyrirtæki telji eftirlitið ástæðu til að ætla að endurskoðað reikningsuppgjör gefi ekki glögga mynd af fjárhagsstöðu og rekstrarafkomu fyrirtækisins. Fjármálaeftirlitinu er heimilt að láta hlutaðeigandi fyrirtæki bera kostnaðinn af slíkri endurskoðun.
Ákvæði 1. mgr. eiga einnig við um [dótturfélög]1) fjármálafyrirtækis, svo og eignarhaldsfélag á fjármálasviði eða blandað eignarhaldsfélag …1) og [dótturfélög]1) slíkra félaga.
   1)L. 57/2015, 31. gr.
95. gr. Skil og birting ársreiknings.
Endurskoðaður og undirritaður ársreikningur fjármálafyrirtækis ásamt skýrslu stjórnar skal sendur Fjármálaeftirlitinu innan tíu daga frá undirritun en í síðasta lagi þremur mánuðum eftir lok reikningsárs.
Hafi á aðalfundi verið samþykktar breytingar á undirrituðum ársreikningi skal breyttur ársreikningur sendur Fjármálaeftirlitinu innan tíu daga frá aðalfundi og gerð grein fyrir þeim breytingum sem gerðar hafa verið.
Ársreikningur fjármálafyrirtækis ásamt skýrslu stjórnar skal liggja frammi á afgreiðslustað hlutaðeigandi fyrirtækis og afhentur hverjum viðskiptaaðila sem þess óskar innan tveggja vikna frá samþykkt aðalfundar.
96. gr. Árshlutauppgjör.
Fjármálafyrirtæki skulu semja og birta árshlutauppgjör í samræmi við reglur1) sem [Seðlabanki Íslands]2) setur.
Fjármálaeftirlitið getur veitt undanþágu frá ákvæðum um gerð árshlutauppgjörs.
   1)Rgl. 834/2003. 2)L. 91/2019, 36. gr.
97. gr. Samstæðureikningsskil.
1)
1)
1)
1)
1)
1)
1)
1)
Ákvæði 87.–92. gr. og 95.–96. gr. gilda eftir því sem við á bæði fyrir samstæðu, þar sem [móðurfélag]1) er fjármálafyrirtæki eða eignarhaldsfélag á fjármálasviði, og fyrir einstök fyrirtæki samstæðunnar.
[Seðlabanki Íslands]2) setur að höfðu samráði við reikningsskilaráð nánari reglur3) um gerð samstæðureikningsskila fyrir samstæðu fyrirtækja þar sem [móðurfélagið]1) er fjármálafyrirtæki eða eignarhaldsfélag á fjármálasviði.
[Seðlabanki Íslands]2) getur sett reglur um samstæðuuppgjör fyrir samstæðu fyrirtækja þar sem [móðurfélagið]1) er blandað eignarhaldsfélag.
   1)L. 57/2015, 32. gr. 2)L. 91/2019, 36. gr. 3)Rgl. 834/2003.

XII. kafli. [Endurskipulagning fjárhags, slit og samruni fjármálafyrirtækja.]1)
   1)L. 130/2004, 12. gr.
[A. [Endurskipulagning fjárhags lánastofnana og verðbréfafyrirtækja.]1)]2)
   1)L. 70/2020, 103. gr. 2)L. 130/2004, 9. gr.
[98. gr. Endurskipulagning fjárhags.
Með endurskipulagningu fjárhags [lánastofnunar og verðbréfafyrirtækis]1) er átt við ráðstafanir sem ætlað er að viðhalda fjárhagslegri stöðu lánastofnunar [og verðbréfafyrirtækis]1) eða koma henni í eðlilegt horf og gætu haft áhrif á áður fengin réttindi þriðja aðila, þ.m.t. ráðstafanir sem fela í sér hugsanlega greiðslustöðvun, frestun fullnusturáðstafana eða lækkun á kröfum. Sé lánastofnun [og verðbréfafyrirtæki]1) með höfuðstöðvar á Íslandi er með endurskipulagningu fjárhags átt við heimild til greiðslustöðvunar og heimild til að leita nauðasamnings samkvæmt lögum um gjaldþrotaskipti o.fl., nr. 21/1991. [Við endurskipulagningu fjárhags er heimilt að grípa til skilaaðgerða samkvæmt lögum um skilameðferð lánastofnana og verðbréfafyrirtækja.]2)
Lög um gjaldþrotaskipti o.fl., nr. 21/1991, gilda um heimild lánastofnunar [og verðbréfafyrirtækis]1) til að leita greiðslustöðvunar og nauðasamnings og framkvæmd slíkra ráðstafana enda sé ekki á annan veg mælt í lögum þessum.
[Hafi fjármálafyrirtæki verið veitt heimild til greiðslustöðvunar er nægilegt að birta fundarboð skv. 2. mgr. 13. gr. og 5. mgr. 17. gr. laga um gjaldþrotaskipti o.fl. með auglýsingu sem birt er í að minnsta kosti tveimur dagblöðum hér á landi og í hverju þeirra ríkja þar sem útibú hafa verið rekin.]3)
[…4)
Þegar lánastofnun eða verðbréfafyrirtæki undirgengst endurskipulagningu fjárhags eða slitameðferð [í framhaldi af skilameðferð samkvæmt lögum]2) um skilameðferð lánastofnana og verðbréfafyrirtækja skulu ákvæði þeirra laga gilda um þagnarskyldu vegna samráðs við lögbær yfirvöld í öðrum aðildarríkjum.]1)]5)
   1)L. 70/2020, 103. gr. 2)L. 63/2023, 36. gr. 3)L. 44/2009, 3. gr. Þrátt fyrir ákvæði a-liðar þeirrar greinar skal 3. mgr. 98. gr. laga nr. 161/2002, sbr. 2. gr. laga nr. 129/2008, gilda áfram í upphaflegri mynd gagnvart fjármálafyrirtækjum sem njóta heimildar til greiðslustöðvunar við gildistöku l. 44/2009, þar á meðal um framlengingu heimildar til greiðslustöðvunar, sbr. l. 44/2009, 10. gr. 4)L. 38/2022, 108. gr. 5)L. 130/2004, 9. gr.
[99. gr. Fjárhagsleg endurskipulagning lánastofnunar [eða verðbréfafyrirtækis]1) með höfuðstöðvar á Íslandi og útibú í öðru EES-ríki.
[Nú veitir dómstóll hér á landi lánastofnun [eða verðbréfafyrirtæki]1) heimild til greiðslustöðvunar eða til að leita nauðasamninga og skal þá sú heimild ná sjálfkrafa til allra útibúa sem lánastofnunin [eða verðbréfafyrirtækið]1) starfrækir í öðru aðildarríki.]2)
Um réttaráhrif, málsmeðferð og framkvæmd ákvörðunarinnar skal fara að íslenskum lögum, með eftirtöldum frávikum:
   a. Vinnusamningur skal fara eftir lögum þess ríkis sem um vinnusamninginn og vinnusambandið gilda.
   b. Samningur um notkun eða kaup fasteignar skal fara eftir lögum þess ríkis þar sem fasteignin er staðsett.
   c. Réttur lánastofnunar [eða verðbréfafyrirtækis]1) vegna fasteignar, skips eða [loftfars]3) skal fara eftir lögum þess ríkis þar sem opinber skráning hefur farið fram.
   d. [Heimild til endurskipulagningar fjárhags fjármálafyrirtækis hefur ekki áhrif á eignarrétt, þar á meðal veðrétt, lánardrottna eða annarra yfir eignum sem staðsettar eru í öðru aðildarríki. Hið sama gildir um réttinn til að ráðstafa veðsettri eign, hvort heldur með framsali eða öðrum hætti, og réttinn til að taka við arði af eigninni. Skal litið svo á að réttindi sem skráð eru í opinbera skrá og njóta réttarverndar gagnvart þriðja manni teljist til eignarréttar í skilningi ákvæðisins.]4)
   e. Hafi lánastofnun [eða verðbréfafyrirtæki]1) keypt eign með eignarréttarfyrirvara hefur heimild lánastofnunar [eða verðbréfafyrirtækis]1) til endurskipulagningar fjárhags ekki áhrif á réttindi seljanda sem byggist á fyrirvaranum, enda sé eignin í öðru aðildarríki.
   f. Hafi lánastofnun [eða verðbréfafyrirtæki]1) selt eign skal heimild til endurskipulagningar fjárhags ekki hafa áhrif á réttindi kaupanda, enda sé eignin í öðru aðildarríki og afhending hafi farið fram þegar heimild er veitt.
   g. Um lögmæti ráðstöfunar lánastofnunar [eða verðbréfafyrirtækis]1) á fasteign, skipi eða [loftfar]3) sem háð er opinberri skráningu, svo og framseljanlegum verðbréfum eða öðrum verðbréfum sem skráð eru í verðbréfamiðstöð, fer eftir lögum þess ríkis þar sem eign er eða þar sem hin opinbera skráning hefur farið fram.
   h. Um réttaráhrif úrskurðar um endurskipulagningu fjárhags á málshöfðun vegna eignar eða annarra réttinda sem lánastofnun [eða verðbréfafyrirtæki]1) hefur látið af hendi [sem hafin var fyrir uppkvaðningu úrskurðar um endurskipulagningu fjárhags]5) fer eftir lögum þess aðildarríkis þar sem málið var höfðað.
   i. Um fullnustu eignarréttinda, þ.m.t. veðréttinda yfir fjármálagerningum, sem eru rafrænt skráð fer eftir lögum þess ríkis þar sem skráningin fer fram.
   j. [Samningur um skuldajöfnuð á grundvelli greiðslujöfnunarsamnings sem gerður hefur verið áður en fjárhagsleg endurskipulagning fjármálafyrirtækis hefst fer eftir lögum þess aðildarríkis sem um samninginn gilda, [sbr. þó 69. og 72. og 73. gr. laga um skilameðferð lánastofnana og verðbréfafyrirtækja].1) Jafnframt hefur lánardrottinn rétt til þess að krefjast skuldajöfnunar kröfu sinnar gagnvart kröfu fjármálafyrirtækis, enda sé skuldajöfnun heimil samkvæmt lögum þess aðildarríkis sem gilda um kröfu fjármálafyrirtækisins. Réttur til skuldajöfnunar skv. 2. málsl. takmarkast þó af rétti fjármálafyrirtækis til þess að krefjast ógildingar eða riftunar eftir reglum laga um samningsgerð, umboð og ógilda löggerninga, nr. 7/1936, eða XX. kafla laga um gjaldþrotaskipti o.fl., nr. 21/1991.]6)
   k. Endurkaupasamningur fer eftir lögum þess ríkis sem um samninginn gilda, sbr. þó ákvæði i-liðar, [69., 72. og 73. gr. laga um skilameðferð lánastofnana og verðbréfafyrirtækja].1)
   l. Viðskipti á skipulegum [markaði]7) skulu fara eftir lögum þess ríkis sem gilda um samninginn um þau viðskipti, sbr. þó ákvæði i-liðar.
   m. Um greiðslu- og uppgjörsfyrirmæli í greiðslu- og uppgjörskerfum fer eftir lögum þess ríkis sem gilda um viðkomandi kerfi.
   n. [Þrátt fyrir ákvæði d- og e-liðar er heimilt að beita ákvæðum III. kafla laga um samningsgerð, umboð og ógilda löggerninga, nr. 7/1936, um ógilda löggerninga, nema lög gistiríkis heimili ekki slíkt. Hið sama á við reglur XX. kafla laga um gjaldþrotaskipti o.fl., nr. 21/1991. Löggerningur verður þó ekki ógiltur ef sá sem hag hefur af því að slíkur gerningur haldi gildi sínu leggur fram fullnægjandi sönnun um að um löggerninginn eigi að gilda lög annars ríkis og að þar sé ekki að finna ógildingar- eða riftunarreglu sem tekur til þess tilviks sem um ræðir.]6)
Dómstóll skal sjá til þess að Fjármálaeftirlitinu verði tilkynnt þegar í stað um framkomna beiðni lánastofnunar [eða verðbréfafyrirtækis]1) um heimild til greiðslustöðvunar eða til að leita nauðasamnings. Fjármálaeftirlitið skal koma upplýsingum um beiðnina og ákvörðun um hana til lögbærra yfirvalda og kröfuhafa lánastofnunarinnar [eða verðbréfafyrirtækisins]1) í viðkomandi ríkjum í samræmi við reglur8) sem ráðherra setur.
Lögboðnar tilkynningar til þekktra erlendra kröfuhafa lánastofnunar [eða verðbréfafyrirtækis]1) í tengslum við greiðslustöðvun eða nauðasamninga skulu vera í samræmi við reglur8) sem ráðherra setur.
[Ákvæði 5. mgr. 35. gr. laga um skilameðferð lánastofnana og verðbréfafyrirtækja gildir um tilkynningar skv. 2. málsl. 3. mgr. og 4. mgr. þessarar greinar ef lánastofnun eða verðbréfafyrirtæki hefur verið tekið til skilameðferðar á grundvelli þeirra laga.]1)]9)
   1)L. 70/2020, 103. gr. 2)L. 108/2006, 80. gr. 3)L. 80/2022, 268. gr. 4)L. 78/2011, 1. gr. 5)L. 32/2011, 1. gr. 6)L. 34/2018, 2. gr. 7)L. 115/2021, 148. gr. 8)Rg. 872/2006, sbr. 747/2013. 9)L. 130/2004, 9. gr.
[100. gr. Fjárhagsleg endurskipulagning lánastofnunar [eða verðbréfafyrirtækis]1) með höfuðstöðvar erlendis en útibú á Íslandi.
[Útibúi sem starfrækt er hérlendis af lánastofnun [eða verðbréfafyrirtæki]1) með höfuðstöðvar í öðru aðildarríki verður ekki veitt sjálfkrafa heimild til endurskipulagningar fjárhags hér á landi. Nú tekur lögbært yfirvald í öðru aðildarríki ákvörðun um endurskipulagningu fjárhags lánastofnunar [eða verðbréfafyrirtækis]1) sem hefur starfsleyfi og staðfestu í því ríki og tekur þá ákvörðunin sjálfkrafa til útibúa sem lánastofnunin [eða verðbréfafyrirtækið]1) starfrækir hér á landi.]2)
[Nú er talin þörf á endurskipulagningu fjárhags íslensks útibús lánastofnunar [eða verðbréfafyrirtækis]1) með staðfestu í öðru aðildarríki og skal þá tilkynna slíkt til Fjármálaeftirlitsins.]2) Fjármálaeftirlitið skal koma tilkynningu á framfæri við eftirlitsstjórnvöld heimaríkis.
Um réttaráhrif, málsmeðferð og framkvæmd ákvörðunarinnar skal fara að lögum heimaríkisins með þeim takmörkunum er greinir í 2. mgr. 99. gr.
Nú er sett fram beiðni um heimild til greiðslustöðvunar eða um heimild til að leita nauðasamninga á grundvelli 2. mgr. 6. gr. laga um gjaldþrotaskipti o.fl. vegna útibús sem lánastofnun [eða verðbréfafyrirtæki],1) með staðfestu í ríki utan Evrópska efnahagssvæðisins, starfrækir hér á landi. Skal héraðsdómari þá gera Fjármálaeftirlitinu viðvart um beiðnina. Ef viðkomandi lánastofnun [eða verðbréfafyrirtæki]1) starfrækir útibú í öðrum ríkjum á Evrópska efnahagssvæðinu skal Fjármálaeftirlitið tilkynna eftirlitsstjórnvöldum í þeim ríkjum um beiðnina. Dómstólar skulu leitast við að samræma aðgerðir með yfirvöldum annarra gistiríkja.]3)
   1)L. 70/2020, 103. gr. 2)L. 108/2006, 81. gr. 3)L. 130/2004, 9. gr.
[100. gr. a.1)]2)
   1)L. 70/2020, 103. gr. 2)L. 125/2008, 5. gr.
[B.]1) Slit.
   1)L. 130/2004, 9. gr.
[101. gr.]1) [Skilyrði og upphaf slitameðferðar.
Bú fjármálafyrirtækis verður ekki tekið til gjaldþrotaskipta eftir almennum reglum.
Fjármálafyrirtæki skal tekið til slita:
   1. eftir kröfu Fjármálaeftirlitsins hafi það afturkallað starfsleyfi fyrirtækisins eða synjað því um frest skv. [2. mgr. [52. gr. e]2)]3) eða frestur samkvæmt því ákvæði er á enda án þess að fyrirtækið hafi aukið eigið fé sitt fram yfir það lágmark sem mælt er fyrir um í [reglugerð (ESB) nr. 575/2013],2)
   2. eftir kröfu Fjármálaeftirlitsins, stjórnar fyrirtækisins eða [bráðabirgðastjórnanda]4) ef skylt er að slíta því samkvæmt samþykktum þess,
   3. eftir kröfu stjórnar fyrirtækisins eða [bráðabirgðastjórnanda]4) ef það getur ekki staðið í fullum skilum við lánardrottna sína þegar kröfur þeirra falla í gjalddaga og ekki verður talið sennilegt að greiðsluörðugleikar þess muni líða hjá innan skamms tíma,
   4. eftir kröfu stjórnar fyrirtækisins og að fengnu samþykki Fjármálaeftirlitsins ef ákveðið hefur verið að slíta því á hluthafafundi eða fundi stofnfjáreigenda, enda hafi tillaga um slit verið samþykkt þar með minnst 2/3 hlutum greiddra atkvæða og af hluthöfum eða stofnfjáreigendum sem ráða yfir minnst 2/3 hlutum þess hlutafjár eða stofnfjár sem farið var með atkvæði fyrir á fundi.
Kröfu um slit fjármálafyrirtækis skal beint til héraðsdóms í því umdæmi þar sem það yrði sótt í einkamáli á heimilisvarnarþingi sínu. Krafan skal gerð úr garði og með hana farið fyrir dómi eins og kröfu um gjaldþrotaskipti.
Þegar dómsúrlausn hefur gengið um að fjármálafyrirtæki sé tekið til slita skipar héraðsdómari því slitastjórn sem í skulu sitja allt að fimm menn. Við skipun hennar tekur hún við þeim réttindum og skyldum sem stjórn fyrirtækisins og hluthafafundur eða fundur stofnfjáreigenda höfðu á hendi, sbr. þó 3. mgr. 103. gr. Að því leyti sem ekki er mælt fyrir á annan veg í lögum þessum gilda reglur um skiptastjóra við gjaldþrotaskipti um slitastjórn, störf hennar og þá menn sem eiga sæti í henni. [Þeir menn sem eiga sæti í slitastjórn …4) skulu einnig uppfylla hæfisskilyrði [2. mgr. og 1. málsl. 5. mgr. 52. gr. og 52. gr. a].5)]6)
Við slit fjármálafyrirtækis skal frestdagur ákveðinn eftir sömu reglum og gilda við gjaldþrotaskipti, en þó þannig að hann getur jafnframt ráðist af þeim degi sem Fjármálaeftirlitið hefur veitt fyrirtækinu frest skv. [2. mgr. [52. gr. e]2)],3) [það hefur verið tekið til skilameðferðar skv. 35. gr. laga um skilameðferð lánastofnana og verðbréfafyrirtækja]4) eða ella af því að héraðsdómi berst krafa um slit skv. 2. mgr. ef ekkert hefur áður gerst til að marka frestdag.
[Ákvæði 2. mgr. gilda ekki ef fjármálafyrirtæki hefur verið tekið til skilameðferðar samkvæmt lögum um skilameðferð lánastofnana og verðbréfafyrirtækja.]4)]7)
   1)L. 130/2004, 9. gr. 2)L. 38/2022, 109. gr. 3)L. 54/2018, 9. gr. 4)L. 70/2020, 103. gr. 5)L. 57/2015, 33. gr. 6)L. 78/2011, 2. gr. 7)L. 44/2009, 5. gr. Þrátt fyrir 5. mgr. ákvæðisins skal frestdagur við slitameðferð á fjármálafyrirtæki ráðast af 2. mgr. ákvæðis til bráðabirgða í lögum nr. 129/2008 þegar það getur átt við, sbr. l. 44/2009, brbákv. III.
[101. gr. a. Sérstakt eftirlit Fjármálaeftirlitsins.
Fjármálaeftirlitið hefur eftirlit með rekstri fjármálafyrirtækis sem er stýrt af slitastjórn, óháð því hvort viðkomandi fyrirtæki hefur starfsleyfi eða takmarkað starfsleyfi eða hvort starfsleyfi þess hefur verið afturkallað. Dótturfélag fjármálafyrirtækis í slitameðferð sem heldur utan um eignir þess skal jafnframt heyra undir eftirlit Fjármálaeftirlitsins. Eftirlitið nær meðal annars til viðskiptahátta þess sem felur meðal annars í sér að framganga þess gagnvart viðskiptavinum skal vera í samræmi við það sem almennt tíðkast hjá fjármálafyrirtækjum með gilt starfsleyfi.
Viðskipti og ráðstöfun eigna fjármálafyrirtækis sem stýrt er af slitastjórn eða viðskipti slitastjórnar við einstaka aðila sem sitja í slitastjórn, eða aðila í nánum tengslum við slíkan aðila, skulu fara að reglum um eðlilega og heilbrigða viðskiptahætti og venjur. Fjármálaeftirlitið skal, að eigin frumkvæði eða á grundvelli ábendinga kröfuhafa, hafa eftirlit með slíkum viðskiptum.
Neitun á kröfu Fjármálaeftirlitsins um afhendingu gagna getur varðað brottrekstri úr slitastjórn. Hið sama á við fullnægi maður sem sæti á í slitastjórn ekki almennum hæfisskilyrðum sem um hann gilda. Fjármálaeftirlitið skal bera slíka kröfu undir héraðsdóm sem skal taka málið til úrskurðar þegar í stað.
Fjármálaeftirlitinu er heimilt að beina kröfu til héraðsdóms um að víkja skuli slitastjórn frá í heild eða að hluta í þeim tilvikum þegar viðkomandi slitastjórn telst ekki hafa unnið störf sín í samræmi við 1. og 2. mgr. þessarar greinar eða eftir atvikum samkvæmt öðrum lagaákvæðum. Héraðsdómur skal taka málið til úrskurðar þegar í stað.
1)]2)
   1)L. 70/2020, 103. gr. 2)L. 78/2011, 3. gr.
[102. gr.]1) [Meðferð krafna o.fl.
Við slit fjármálafyrirtækis gilda sömu reglur og við gjaldþrotaskipti um gagnkvæma samninga þess og kröfur á hendur því að öðru leyti en því að dómsúrskurður um að það sé tekið til slita leiðir ekki sjálfkrafa til þess að kröfur á hendur því falli í gjalddaga. [Við slit fjármálafyrirtækis gilda reglur 74. gr. laga um gjaldþrotaskipti o.fl., meðal annars um að sá sem hvorki vissi né mátti vita um slitin getur unnið rétt á hendur fjármálafyrirtækinu vegna ráðstafana fram til þess að tilkynning er birt um slitin. Skal þá litið svo á að þeim sem í hlut á hafi ekki verið kunnugt um að slit hafi verið hafin, ef slík tilkynning hefur ekki farið fram, nema sýnt sé fram á annað. Skal jafnframt litið svo á að þeim sem í hlut á hafi verið kunnugt um að slit hafi verið hafin, hafi slík tilkynning farið fram, nema sýnt sé fram á annað.]2)
Þegar fjármálafyrirtæki hefur verið skipuð slitastjórn skal hún tafarlaust gefa út og fá birta í Lögbirtingablaði innköllun vegna slitanna. Um efni innköllunar, kröfulýsingarfrest og tilkynningar eða auglýsingar vegna erlendra kröfuhafa skal beitt sömu reglum og við gjaldþrotaskipti.
[[Við slit á fjármálafyrirtæki gilda …3) reglur laga um skilameðferð lánastofnana og verðbréfafyrirtækja, [sbr. einnig XVII. kafla laga um gjaldþrotaskipti o.fl.]3) um forgang og rétthæð krafna.]4)
Að því leyti sem rétthæð krafna getur ráðist samkvæmt lögum um gjaldþrotaskipti o.fl. af þeim tíma sem úrskurður er kveðinn upp um að bú sé tekið til gjaldþrotaskipta skal miða á sama hátt við úrskurð um að fjármálafyrirtæki sé tekið til slita.]5)
Ákvæði XVIII. kafla og 5. þáttar laga um gjaldþrotaskipti o.fl. gilda um meðferð krafna á hendur fjármálafyrirtæki við slit þess, þar á meðal um áhrif þess að kröfu sé ekki lýst, en fundir slitastjórnar til að fjalla um viðurkenningu lýstra krafna nefnast kröfuhafafundir. Telji slitastjórn við lok kröfulýsingarfrests að líkur séu til að eignir fyrirtækisins nægi að fullu fyrir skuldum þess er henni að svo stöddu ekki skylt að taka afstöðu til þess hvar einstakar kröfur kunni að standa í réttindaröð.
Þegar kröfulýsingarfrestur er á enda skal slitastjórn leggja mat á hvort horfur séu á að eignir fjármálafyrirtækis nægi til að standa við skuldbindingar þess. Skýrsla um þetta mat skal lögð fram og kynnt á fyrsta kröfuhafafundi eftir lok kröfulýsingarfrests.
Að loknum fyrsta kröfuhafafundi eftir lok kröfulýsingarfrests er slitastjórn heimilt í einu lagi eða mörgu að greiða viðurkenndar kröfur [skv. 109.–112. gr. laga um gjaldþrotaskipti o.fl., nr. 21/1991],2) að hluta eða að fullu að því marki sem tryggt er að eignir fjármálafyrirtækisins hrökkvi til að minnsta kosti jafnhárrar greiðslu allra annarra krafna sem standa eins í réttindaröð og ekki hefur endanlega verið hafnað við slitin. Þess skal þá gætt að allir kröfuhafar sem fara með viðurkenndar kröfur í sömu stöðu í réttindaröð fái greiðslu á sama tíma, en frá því má þó víkja með samþykki þeirra sem ekki fá greitt eða samkvæmt ákvörðun slitastjórnar ef kröfuhafi býðst til að gefa eftir kröfu sína gegn greiðslu hennar að hluta, sem víst má telja að sé lægri að tiltölu en aðrir jafnstæðir kröfuhafar munu fá á síðari stigum, þar á meðal að teknu tilliti til þess hvort kröfur þeirra beri vexti fram að greiðslu. [Nú neytir slitastjórn heimildar samkvæmt framansögðu til að greiða kröfur að hluta eða fullu en ekki hefur verið til lykta leiddur ágreiningur um viðurkenningu kröfu, sem þeim gæti staðið jafnfætis í réttindaröð, og skal þá slitastjórn leggja á sérstakan geymslureikning fjárhæð sem svarar til greiðslu á þeirri kröfu eða upp í hana eins og sú greiðsla gæti hæst orðið samkvæmt kröfugerð hlutaðeigandi kröfuhafa. [Þegar endanleg niðurstaða hefur fengist um ágreininginn skal hlutdeild þeirrar kröfu í innstæðu geymslureikningsins ásamt hlutdeild í áföllnum vöxtum greidd kröfuhafanum að því leyti sem krafan hefur verið viðurkennd, en fé sem eftir kann að standa skal renna aftur til fjármálafyrirtækisins. Fari hlutagreiðslur fram í fleiri en einum gjaldmiðli má stofna sérstakan geymslureikning fyrir hvern gjaldmiðil. Við hverja hlutagreiðslu sem fram fer með innborgun inn á sérstaka geymslureikninga skal senda kröfuhafa sem greiðslu fær tilkynningu, en með innborgun inn á slíkan reikning telst hlutagreiðsla til viðkomandi kröfuhafa hafa farið fram. Með sérstökum geymslureikningi í skilningi ákvæðisins er átt við fjárvörsluinnlánsreikning á nafni fjármálafyrirtækisins sem stofnaður er í því skyni að leggja hlutagreiðslur inn á.]2)]6)]7)
   1)L. 130/2004, 9. gr. 2)L. 78/2011, 4. gr. 3)L. 63/2023, 36. gr. 4)L. 38/2021, 17. gr. 5)L. 70/2020, 103. gr. 6)L. 75/2010, 50. gr. 7)L. 44/2009, 6. gr.
[103. gr.]1) [Ráðstöfun hagsmuna fjármálafyrirtækis o.fl.
Við slit fjármálafyrirtækis ráðstafar slitastjórn hagsmunum þess eftir sömu reglum og gilda um bústjórn skiptastjóra við gjaldþrotaskipti með þeim frávikum sem leiðir af ákvæðum þessarar greinar. Rísi ágreiningur um slíkar ráðstafanir skal leyst úr honum eftir fyrirmælum laga um gjaldþrotaskipti o.fl. [Þrátt fyrir ákvæði 4. mgr. 77. gr. laga um gjaldþrotaskipti o.fl. er heimilt á kröfuhafafundi að taka ákvörðun um ábyrgðarleysi manna sem eiga sæti í slitastjórn fjármálafyrirtækis í slitum, sbr. 4. mgr. 101. gr., vegna ráðstafana skv. 4. málsl. 2. mgr. þessarar greinar. Kröfuhafi sem greiðir atkvæði gegn ráðstöfun skv. 4. málsl. 2. mgr. eða kemur afstöðu sinni á annan sannanlegan hátt á framfæri við slitastjórn áður en ákvörðun er tekin á kröfuhafafundi er óbundinn af slíkri ákvörðun um ábyrgðarleysi.]2)
Slitastjórn skal hafa að markmiði að fá sem mest fyrir eignir fjármálafyrirtækis, þar á meðal með því að bíða eftir þörfum efndatíma á útistandandi kröfum þess fremur en að koma þeim fyrr í verð, nema sýnt megi telja að hagsmunir kröfuhafa og eftir atvikum hluthafa eða stofnfjáreigenda séu meiri af því að ráðstafa slíkum réttindum á fyrri stigum til að ljúka megi slitameðferð. [Í sama skyni er slitastjórn heimilt að ávaxta eignirnar með fjárfestingum í skuldaskjölum útgefnum af viðskiptabönkum eða sparisjóðum, verðbréfum og peningamarkaðsgerningum sem eitt eða fleiri ríki innan Evrópska efnahagssvæðisins eða sveitarfélög þeirra, alþjóðlegar stofnanir, sem eitt eða fleiri þessara ríkja eru aðilar að, eða ríki utan Evrópska efnahagssvæðisins gefa út eða ábyrgjast.]2) Í þessum tilgangi er slitastjórn heimilt að virða að vettugi ályktun kröfuhafafundar sem hún telur andstæða þessu markmiði. [Þrátt fyrir ákvæði XIX. kafla laga um gjaldþrotaskipti o.fl. er slitastjórn heimilt að ráðstafa eignum og öðrum réttindum fjármálafyrirtækis með viðskiptum við Seðlabanka Íslands eða á annan hátt, sbr. ákvæði til bráðabirgða III í lögum um Seðlabanka Íslands, eftir atvikum án endurgjalds, til að ljúka megi slitameðferð ef telja má að það þjóni hagsmunum kröfuhafa og eftir atvikum hluthafa eða stofnfjáreigenda. Skal slitastjórn tilkynna fyrir fram um slíka ráðstöfun á fundi með kröfuhöfum í samræmi við 3. málsl. 3. mgr. Slitastjórn er einnig heimilt að láta fjármálafyrirtæki gangast undir frekari fjárskuldbindingar svo fremi sem það er til að ljúka megi slitameðferð með nauðasamningi og sýnt má telja að það sé í samræmi við hagsmuni kröfuhafa og eftir atvikum hluthafa eða stofnfjáreigenda.]2)
Slitastjórn skal boða til kröfuhafafundar í sama skyni og skiptastjóri heldur skiptafundi um bústjórn við gjaldþrotaskipti. Hafi slitastjórn komist að þeirri niðurstöðu í skýrslu skv. [6. mgr. 102. gr.]3) að horfur séu á að eignir fjármálafyrirtækis muni nægja fyrir skuldbindingum þess skal slitastjórn samhliða kröfuhafafundum efna til funda með hluthöfum eða stofnfjáreigendum til að kanna hug þeirra um ráðstöfun hagsmuna þess. [Slitastjórn …3) er jafnframt skylt að kynna kröfuhöfum um allar umtalsverðar ráðstafanir sem varða sölu eða ráðstöfun eigna eða annarra réttinda fjármálafyrirtækis á fundum sem slitastjórn boðar til með almennum hætti.]4)
[Ef ekki er sýnt að eignir fjármálafyrirtækis muni nægja til að efna skuldbindingar þess að fullu má krefjast riftunar eftir sömu reglum og gilda um riftun ráðstafana við gjaldþrotaskipti. Gilda þá öll ákvæði XX. kafla laga um gjaldþrotaskipti o.fl., nr. 21/1991, við slitameðferðina með sama hætti og við gjaldþrotaskipti en þó þannig að frestur til að höfða riftunarmál skv. 1. mgr. 148. gr. sömu laga skal vera [30 mánuðir]5) í stað sex mánaða. [Mál sem slitastjórn höfðar á grundvelli þessa ákvæðis skulu þingfest fyrir þeim héraðsdómi þar sem fjármálafyrirtæki var tekið til slita skv. 3. og 4. mgr. 101. gr.]5)]6)]7)
   1)L. 130/2004, 9. gr. 2)L. 59/2015, 1. gr. 3)L. 70/2020, 103. gr. 4)L. 78/2011, 5. gr. 5)L. 146/2011, 1. gr. 6)L. 132/2010, 1. gr. 7)L. 44/2009, 7. gr.
[103. gr. a. Lok slitameðferðar.
Hafi slitastjórn lokið greiðslu allra viðurkenndra krafna á hendur fjármálafyrirtæki og eftir atvikum tekið frá fé til greiðslu krafna sem ágreiningur stendur um og komið eignum þess eftir þörfum í verð lýkur hún slitameðferð með því annaðhvort:
   1. að láta fyrirtækið aftur í hendur hluthafa eða stofnfjáreigenda ef fundur þeirra sem slitastjórn hefur boðað til hefur samþykkt með atkvæðum þeirra sem ráða yfir að minnsta kosti 2/3 hlutum hlutafjár eða stofnfjár að fyrirtækið taki upp starfsemi á ný og kjörin hefur verið ný stjórn til að taka við því úr höndum slitastjórnar, enda hafi Fjármálaeftirlitið veitt samþykki sitt til þess og fyrirtækið fullnægir öðrum skilyrðum laga til að hefja aftur starfsemi, eða
   2. að greiða hluthöfum eða stofnfjáreigendum út eignarhlut þeirra af eftirstöðvum eigna samkvæmt frumvarpi til úthlutunar sem gert skal eftir ákvæðum XXII. kafla og 5. þáttar laga um gjaldþrotaskipti o.fl., en sé um sparisjóð að ræða skal þó eignum, sem standa eftir að lokinni greiðslu stofnfjárhluta, varið eftir samþykktum hans og er óheimilt að ráðstafa þeim til stofnfjáreigenda …1)
Ljúka má slitameðferð samkvæmt því sem segir í 1. tölul. 1. mgr. þótt ekki sé lokið greiðslu allra viðurkenndra krafna ef þeir kröfuhafar sem hafa ekki enn fengið fullnustu samþykkja það.
Nægi eignir fjármálafyrirtækis ekki til fullrar greiðslu krafna sem ekki hefur endanlega verið hafnað við slitameðferð getur slitastjórn þegar hún telur tímabært leitað nauðasamnings til að ljúka henni. Skal slitastjórn þá gera frumvarp að nauðasamningi eftir reglum 36. gr. laga um gjaldþrotaskipti o.fl. og boða til kröfuhafafundar til að bera það undir atkvæði. [Frumvarp að nauðasamningi skal taka til allra eigna fjármálafyrirtækis og hafa að geyma tímasetta áætlun um heildaruppgjör eigna þess. Slitastjórn er heimilt að víkja frá fyrirmælum 1. og 2. tölul. 1. mgr. 36. gr. laga um gjaldþrotaskipti o.fl. þannig að heimilt er að bjóða fram greiðslu sem háð verður fyrirvörum um innheimtu og innlausn eigna fjármálafyrirtækis, enda sé slíkra fyrirvara skýrt getið í frumvarpi að nauðasamningi. Slitastjórn er jafnframt heimilt skv. 2. mgr. 36. gr. laga um gjaldþrotaskipti o.fl., sbr. 3. mgr. 29. gr. sömu laga, að leggja til í frumvarpi að nauðasamningi að fjárhæð samningskrafna sem fást greiddar að fullu geti samtals numið allt að fjórðungi af heildargreiðslum sem boðnar eru fram í frumvarpi að nauðasamningi. Í frumvarpi að nauðasamningi má einnig kveða á um að gefnir verði út nýir hlutir [eða stofnfé]2) í fjármálafyrirtækinu sem greiða megi með skuldajöfnun tiltekins hluta kröfu er samþykkt hefur verið við slitameðferðina og sem þáttur í efndum nauðasamnings. Ef sýnt er að eignir fjármálafyrirtækis nægja ekki til að standa við skuldbindingar þess að mati slitastjórnar skv. [6. mgr. 102. gr.],3) sbr. 4. mgr. 103. gr., er heimilt í tengslum við slíka tillögu um hækkun hlutafjár að lækka að fullu eldra skráð hlutafé án endurgjalds til hluthafa og án þess að innköllun eða tilkynningar til hluthafa fari fram samkvæmt ákvæðum VII. kafla laga um hlutafélög.]4) [Sama gildir að breyttu breytanda um fjármálafyrirtæki í slitameðferð sem starfaði áður sem sparisjóður í rekstrarformi sjálfseignarstofnunar. Séu heimildir 6.–8. málsl. nýttar til þess að gefa út nýja hluti eða stofnfé í fjármálafyrirtækinu í slitameðferð sem greiða á með skuldajöfnun tiltekins hluta kröfu, er samþykkt hefur verið við slitameðferðina og sem þáttur í efndum nauðasamnings, gildir 4. mgr. 101. gr. um störf slitastjórnar þangað til hluthafafundur eða fundur stofnfjáreigenda hefur farið fram í félaginu og kosið nýja stjórn í félaginu.]2) [Eftir því sem átt getur við fara nauðasamningsumleitanir að öðru leyti eftir ákvæðum 2. mgr. 149. gr. og 151.–153. gr. laga um gjaldþrotaskipti o.fl., þó með því fráviki að frestur skv. 1. mgr. 51. gr. sömu laga skal vera átta vikur, en slitastjórn gegnir þá því hlutverki sem skiptastjóri hefði annars á hendi og heldur kröfuhafafundi við þessar umleitanir.]5) [Í frumvarpi að nauðasamningi fjármálafyrirtækis er slitastjórn einnig heimilt að víkja frá 4. mgr. 30. gr. laga um gjaldþrotaskipti o.fl. þannig að litið verði til stöðu krafna við lok kröfulýsingarfrests, án tillits til framsals þeirra fram að þeim tíma.]4) [Slitastjórn er heimilt að gera tillögu að því á kröfuhafafundi að einungis þeir kröfuhafar sem skráðir eru í kröfuskrá á þeim degi sem frumvarp að nauðasamningi er lagt fram, eða við seinna tímamark og fram að því að atkvæðagreiðsla um frumvarp að nauðasamningi fer fram, hafi heimild til þess að greiða atkvæði um frumvarp að nauðasamningi. Verði aðilaskipti að kröfu í búið eftir það tímamark sem miðað er við hefur nýr kröfuhafi þó heimild til þess að greiða atkvæði um frumvarp að nauðasamningi ef hann tilkynnir slitastjórn um kröfuhafaskiptin og afhendir gögn sem sanna framsal kröfunnar. Hið sama gildir að breyttu breytanda um rétt til móttöku greiðslu samkvæmt ákvæðum frumvarps að nauðasamningi eftir að frumvarpið hefur verið staðfest.]2) Fáist frumvarp að nauðasamningi samþykkt skal slitastjórn leita staðfestingar hans eftir reglum IX. kafla sömu laga. [Slitameðferð telst lokið í samræmi við ákvæði þessarar málsgreinar þegar nauðasamningur hefur verið staðfestur, nema 1. mgr. eigi við. Um efndir á skuldbindingum við kröfuhafa fer eftir efni nauðasamnings.]2) [[Frumvarp að nauðasamningi fjármálafyrirtækis telst samþykkt ef því er greitt sama hlutfall atkvæða eftir fjárhæðum krafna atkvæðismanna, sem taka þátt í atkvæðagreiðslu, og eftirgjöf af samningskröfum á að nema samkvæmt frumvarpinu, þó að lágmarki 60 og að hámarki 85 hundraðshlutar þeirra atkvæða.]2) Jafnframt er áskilið [samþykki 60 hundraðshluta]4) atkvæða þeirra atkvæðismanna sem greiða atkvæði um nauðasamninginn.2) [Samningskröfuhafa sem fer með fyrirsvar vegna safns krafna á hendur skuldara er heimilt að veita einum eða fleiri aðilum umboð til þess að fara með atkvæði vegna kröfu sinnar. Heimilt er í þessu skyni að skipta atkvæði samningskröfuhafans samkvæmt yfirlýsingu hans þar um.]4)]6) [Við atkvæðagreiðslu um frumvarp að nauðasamningi fjármálafyrirtækis má víkja frá skilyrði 1. mgr. 50. gr. laga um gjaldþrotaskipti o.fl. um að atkvæði sé greitt skriflega á annan hátt en í kröfulýsingu, og dugir þá að atkvæði sé sent rafrænt og hafi sannanlega borist slitastjórn áður en fundur um atkvæðagreiðslu hefst. Skal slitastjórn bóka um slík atkvæði sem borist hafa í fundargerð skv. 4. mgr. 50. gr. laga um gjaldþrotaskipti o.fl.]4)
[Með kröfu um staðfestingu nauðasamnings fjármálafyrirtækis skal, auk þeirra gagna sem getið er um í 2. mgr. 54. gr. laga um gjaldþrotaskipti o.fl., fylgja mat Seðlabanka Íslands á efnahagslegum áhrifum frumvarps að nauðasamningi og áhrifum þess á stöðugleika í gengis- og peningamálum og á fjármálastöðugleika. Héraðsdómari skal hafna kröfu fjármálafyrirtækis um staðfestingu nauðasamnings skv. 1. mgr. 57. gr. laga um gjaldþrotaskipti o.fl. ef í vottorði Seðlabanka Íslands kemur fram að frumvarpið teljist raska stöðugleika í gengis- og peningamálum og/eða fjármálastöðugleika.
Í frumvarpi að nauðasamningi fjármálafyrirtækis má kveða á um að kröfur skv. 109.–112. gr. laga um gjaldþrotaskipti o.fl. verði fyrst greiddar af eignum fjármálafyrirtækis, þrátt fyrir ákvæði 2. mgr. 153. gr. þeirra laga, áður en til greiðslu samningskrafna kemur, án þess að fullnægjandi trygging sé sett fyrir greiðslu þeirra eða að hlutaðeigandi samþykki skriflega að nauðasamningur verði staðfestur án þess.
Hafi ágreiningur um kröfu, sem lýst hefur verið skv. 112.–113. gr. laga um gjaldþrotaskipti o.fl., ekki verið til lykta leiddur við staðfestingu nauðasamnings er slitastjórn heimilt að leggja nauðasamningsgreiðslu, eins og sú greiðsla gæti hæst orðið samkvæmt kröfugerð hlutaðeigandi kröfuhafa, inn á fjárvörsluinnlánsreikning og/eða vörslureikning á nafni fyrirtækisins sem stofnaður er í því skyni að leggja nauðasamningsgreiðslur inn á. Nýti slitastjórn sér slíka heimild skal senda kröfuhafa sem fær greiðslu tilkynningu og telst slitastjórn þá hafa innt nauðasamningsgreiðslu af hendi til viðkomandi kröfuhafa. Þegar endanleg niðurstaða hefur fengist um ágreininginn skal hlutdeild þeirrar kröfu í innstæðu fjárvörsluinnlánsreikningsins og/eða vörslureikningsins ásamt hlutdeild í áföllnum vöxtum greidd kröfuhafanum að því leyti sem krafan hefur verið viðurkennd, en fé og/eða verðbréf sem eftir kunna að standa skulu renna aftur til fyrirtækisins. Fari hlutagreiðslur fram í fleiri en einum gjaldmiðli má stofna sérstakan reikning fyrir hvern gjaldmiðil. Ef nauðasamningsgreiðslu verður að öðru leyti ekki komið til kröfuhafa í samræmi við ákvæði nauðasamnings vegna atvika er varða kröfuhafann getur slitastjórn efnt samninginn með greiðslu inn á fjárvörsluinnlánsreikning og/eða vörslureikning og að öðru leyti í samræmi við heimildir þessarar málsgreinar. [Sé vegna eðlis nauðasamningsgreiðslu ekki unnt að leggja hana inn á fjárvörslureikning og/eða vörslureikning er slitastjórn heimilt að grípa til annarra ráðstafana sem tryggja að nauðasamningsgreiðsla berist kröfuhöfum þegar ágreiningur hefur verið til lykta leiddur eða þegar kröfuhafi getur tekið við nauðasamningsgreiðslu. Gera skal grein fyrir slíkum ráðstöfunum í frumvarpi til nauðasamnings og þegar ráðstafanir hafa verið framkvæmdar telst nauðasamningsgreiðsla hafa verið innt af hendi til viðkomandi kröfuhafa.]2)]4)
Nú liggur fyrir að eignir fjármálafyrirtækis nægi ekki til að standa að fullu við skuldbindingar þess og slitastjórn telur sýnt að ekki verði forsendur til að leita nauðasamnings [skv. 3.–6. mgr.]4) eða frumvarp að honum hefur ekki fengist samþykkt eða hafnað hefur verið kröfu um staðfestingu hans og skal þá slitastjórn krefjast þess fyrir héraðsdómi, þar sem hún var skipuð til starfa, að bú fyrirtækisins verði tekið til gjaldþrotaskipta. Það sama getur kröfuhafi gert ef krafa hans hefur verið viðurkennd við slitameðferð og annaðhvort hafa nauðasamningsumleitanir slitastjórnar ekki borið árangur eða hann sýnir fram á að ekki séu lagaskilyrði til að leita nauðasamnings eða sá fjöldi kröfuhafa sé andvígur honum að útilokað sé að tekist geti að koma honum fram miðað við fyrirliggjandi upplýsingar um fjárhag fyrirtækisins. Til að hafa slíka kröfu uppi verður þó kröfuhafi að sýna fram á að hann hafi lögvarða hagsmuni af því að koma fram gjaldþrotaskiptum fremur en að fyrirtæki verði áfram í slitameðferð.
Sé bú fjármálafyrirtækis tekið til gjaldþrotaskipta skal það standa óraskað sem gert hefur verið við slitameðferð varðandi kröfur á hendur fyrirtækinu, þar á meðal innköllun til kröfuhafa og meðferð lýstra krafna, en skiptastjóri skal fá birta auglýsingu í Lögbirtingablaði um að búið hafi verið tekið til gjaldþrotaskipta. Um gjaldþrotaskiptin fer annars eftir almennum reglum að öðru leyti en því að ákvæði 2. mgr. 103. gr. gilda þar að breyttu breytanda, auk þess sem sá dagur sem dómsúrlausn gekk um að fjármálafyrirtækið væri tekið til slita skal við gjaldþrotaskiptin svara að því er varðar réttaráhrif til þess dags sem úrskurður gekk um þau.]7)
   1)L. 76/2009, 14. gr. 2)L. 107/2015, 4. gr. 3)L. 70/2020, 103. gr. 4)L. 59/2015, 2. gr. 5)L. 116/2015, 1. gr. 6)L. 78/2011, 6. gr. 7)L. 44/2009, 8. gr.
[104. gr. [Slit á lánastofnun eða verðbréfafyrirtæki með höfuðstöðvar á Íslandi og útibú í öðru EES-ríki.]1)
[Nú tekur dómstóll hér á landi ákvörðun um slit lánastofnunar [eða verðbréfafyrirtækis …2)]1) sem hefur staðfestu og starfsleyfi hér á landi og skal þá sú heimild ná sjálfkrafa til allra útibúa sem [fyrirtækið]1) starfrækir í öðrum aðildarríkjum.]3) Um réttaráhrif, málsmeðferð og framkvæmd ákvörðunarinnar skal fara að íslenskum lögum með þeim takmörkunum er greinir í 2. mgr. 99. gr.
Dómstóll skal sjá til þess að Fjármálaeftirlitinu verði tilkynnt þegar í stað um ákvörðun um slit.
[Ef [fyrirtæki skv. 1. mgr.]1) starfrækir útibú í öðrum aðildarríkjum skal Fjármálaeftirlitið koma upplýsingum um beiðnina til lögbærra yfirvalda í viðkomandi ríkjum í samræmi við reglur4) er ráðherra setur.]3)
[Nú er þekktur kröfuhafi [fyrirtækis skv. 1. mgr.]1) búsettur í öðru aðildarríki og skal þá skiptastjóri án tafar tilkynna honum um upphaf skiptanna.]3) Í tilkynningunni skal greina frá kröfulýsingarfresti, hvert beina skuli kröfulýsingu og afleiðingum vanlýsingar í samræmi við reglur4) sem ráðherra setur.]5)
   1)L. 115/2021, 148. gr. 2)L. 38/2022, 110. gr. 3)L. 108/2006, 82. gr. 4)Rg. 872/2006. 5)L. 130/2004, 11. gr.
[105. gr. [Slit á lánastofnun eða verðbréfafyrirtæki með höfuðstöðvar erlendis en útibú á Íslandi.]1)
[Útibúi sem starfrækt er hérlendis af lánastofnun [eða verðbréfafyrirtæki …2)]1) með höfuðstöðvar í öðru aðildarríki verður ekki veitt sjálfstæð heimild til slita hér á landi. Nú tekur lögbært yfirvald í öðru aðildarríki ákvörðun um slit [fyrirtækis]1) sem hefur aðsetur og staðfestu í því ríki og tekur þá ákvörðunin sjálfkrafa til útibúa sem [fyrirtækið]1) starfrækir hér á landi. Með slitum á [fyrirtækjum]1) samkvæmt þessari grein er átt við sameiginlega málsmeðferð sem stjórnvöld eða dómsmálayfirvöld í öðru aðildarríki hefja og hafa eftirlit með og hefur að markmiði að selja eignir undir eftirliti þessara aðila.]3)
Um réttaráhrif, málsmeðferð og framkvæmd ákvörðunarinnar skal fara að lögum heimaríkisins með þeim takmörkunum er greinir í 2. mgr. 99. gr.
Nú er sett fram krafa um gjaldþrotaskipti á grundvelli 2. mgr. 6. gr. laga um gjaldþrotaskipti o.fl. vegna útibús sem lánastofnun [eða verðbréfafyrirtæki …2)]1) með staðfestu í ríki utan Evrópska efnahagssvæðisins starfrækir hér á landi og skal héraðsdómari þá gera Fjármálaeftirlitinu viðvart um kröfuna. Ef viðkomandi [fyrirtæki]1) starfrækir útibú í öðrum ríkjum á Evrópska efnahagssvæðinu skal Fjármálaeftirlitið tilkynna eftirlitsstjórnvöldum í þeim ríkjum um kröfuna.]4)
   1)L. 115/2021, 148. gr. 2)L. 38/2022, 110. gr. 3)L. 108/2006, 83. gr. 4)L. 130/2004, 11. gr.
[C.]1) Samruni.
   1)L. 130/2004, 9. gr.
[106. gr.]1)
[Samruni fjármálafyrirtækis við annað fyrirtæki er aðeins heimill að fengnu samþykki Fjármálaeftirlitsins. Yfirfærsla einstaka rekstrarhluta fjármálafyrirtækis til annars fyrirtækis með öðrum hætti, svo sem sölu, er einnig háð samþykki Fjármálaeftirlitsins. Með rekstrarhluta er í ákvæði þessu átt við starfhæfa einingu innan fjármálafyrirtækis, t.d. útibú.
Samruni fjármálafyrirtækis við annað fyrirtæki er aðeins heimill ef ákvörðun þar að lútandi hefur hlotið samþykki hluthafafundar eða fundar stofnfjáreigenda í yfirtekna fyrirtækinu með minnst 2/3 hlutum greiddra atkvæða og samþykki hluthafa eða stofnfjáreigenda í yfirtekna fyrirtækinu sem ráða yfir minnst 2/3 hlutum þess hlutafjár eða stofnfjár sem farið er með atkvæði fyrir á hluthafafundum eða fundum stofnfjáreigenda. Ef hið yfirtekna fyrirtæki er alfarið í eigu yfirtökufélags þarf ekki að koma til atkvæðagreiðslu skv. 1. málsl. þessarar málsgreinar í yfirtekna félaginu.]2)
3)
Um samruna fjármálafyrirtækja gilda að öðru leyti ákvæði laga um hlutafélög eftir því sem við getur átt og samningar hlutaðeigandi aðila.
Fjármálafyrirtæki, sem er slitið vegna samruna, er ekki skylt að gefa út innköllun til lánardrottna eða halda eignum sínum aðgreindum. Breyting á eignaskráningu í veðmálabókum vegna samruna fjármálafyrirtækja er undanþegin stimpilgjöldum.
[Fjármálaeftirlitið skal auglýsa samruna og yfirfærslu rekstrarhluta fjármálafyrirtækja í Lögbirtingablaði. Í auglýsingu skal tilgreina hvenær samruninn eða yfirfærslan tekur gildi, nöfn hlutaðeigandi fyrirtækja, frest til að gera athugasemdir við yfirfærslu innlánsreikninga, hugsanlegar breytingar á greiðslustöðum skuldaskjala og annað sem kunngera þarf viðskiptamönnum sérstaklega.]2)
Við samruna tveggja eða fleiri fjármálafyrirtækja skal eigið fé, sem verður til við samruna, ekki vera lægra en samanlagt eigið fé hlutaðeigandi fyrirtækja á þeim tíma sem samruni átti sér stað, enda hafi lágmarki skv. 14. gr. [og 14. gr. a]4) ekki verið náð. …3)
   1)L. 130/2004, 11. gr. 2)L. 96/2008, 11. gr. 3)L. 77/2012, 7. gr. 4)L. 38/2022, 111. gr.

XIII. kafli. Eftirlit.
A. Almennar eftirlitsheimildir.
[107. gr.]1) [Eftirlitsskyld starfsemi og heimildir til að afla upplýsinga.]2)
[Fjármálaeftirlitið hefur eftirlit með [framkvæmd laga þessara, þar á meðal]2) starfsemi fjármálafyrirtækja og [fjármálastofnana]3) sem fellur undir ákvæði laga þessara, svo og starfsemi innlendra fjármálafyrirtækja [og fjármálastofnana]2) erlendis, nema annað leiði af lögum eða alþjóðasamningum sem Ísland er aðili að. Jafnframt fer Fjármálaeftirlitið með eftirlit með [dótturfélögum],4) [hlutdeildarfélögum]2) og sjóðum sem stunda starfsemi þá sem talin er upp í IV. kafla að því marki sem nauðsynlegt er vegna eftirlitsskyldrar starfsemi, auk eftirlits með eigendum virkra eignarhluta skv. VI. kafla. Um eftirlitið fer samkvæmt ákvæðum laga þessara og laga um opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi.
[Fjármálaeftirlitið hefur eftirlit með starfsemi eignarhaldsfélags á fjármálasviði, blandaðs eignarhaldsfélags og blandaðs eignarhaldsfélags í fjármálastarfsemi sem stofnsett eru eða starfa hér á landi. Eftirlit Fjármálaeftirlitsins sem eftirlitsaðila á samstæðugrunni nær til starfsemi eignarhaldsfélags á fjármálasviði, blandaðs eignarhaldsfélags og blandaðs eignarhaldsfélags í fjármálastarfsemi, móðurfélags slíkra félaga og dótturfélaga þeirra, þegar þau eru staðsett í öðru ríki, og getur eftirlitið þá verið í samstarfi og samráði [við lögbær yfirvöld]2) í viðkomandi aðildarríki í samræmi við [C-hluta þessa kafla]2)].5)]6)
Fjármálaeftirlitið getur krafist hvers konar gagna og upplýsinga frá [dótturfélögum]4) eða [hlutdeildarfélögum]2) eða öðrum aðilum sem teljast í nánum tengslum við fjármálafyrirtæki, enda telji Fjármálaeftirlitið upplýsingarnar nauðsynlegar í eftirliti sínu með viðkomandi fjármálafyrirtæki.
Fjármálaeftirlitið getur krafist hvers konar gagna og upplýsinga frá [eignarhaldsfélögum á fjármálasviði, blönduðum eignarhaldsfélögum og dótturfélögum slíkra félaga],5) enda telji Fjármálaeftirlitið upplýsingarnar nauðsynlegar í eftirliti sínu með fjármálafyrirtækjum sem eru dótturfélög þessara eignarhaldsfélaga.
[Fjármálaeftirlitið fylgist með viðskiptum fjármálafyrirtækis við dóttur- og hlutdeildarfélög þess, félög sem hafa yfirráð yfir eða eiga hlutdeild í fjármálafyrirtækinu og við önnur dóttur- og hlutdeildarfélög þeirra félaga. Jafnframt skal Fjármálaeftirlitið fylgjast með viðskiptum fjármálafyrirtækis við einstaklinga sem eiga 20% hlut eða stærri í framangreindum félögum. [Viðskiptin skulu lúta sömu reglum og viðskipti við almenna viðskiptamenn í sambærilegum viðskiptum.]3) Fjármálafyrirtæki skulu skila Fjármálaeftirlitinu skýrslu um [öll umtalsverð viðskipti sín við blönduð eignarhaldsfélög sem eru móðurfélög þeirra og önnur dótturfélög blönduðu eignarhaldsfélaganna, önnur en þau sem um getur í 394. gr. reglugerðar (ESB) nr. 575/2013, og um önnur viðskipti samkvæmt málsgrein þessari]2) eftir nánari ákvörðun þess. Séu viðskiptin við fyrirtæki eða einstaklinga í öðrum ríkjum fer um samstarf eftirlitsstjórnvalda eftir alþjóðasamningum sem Ísland er aðili að og samstarfssamningum sem [Seðlabanki Íslands]7) gerir á grundvelli þeirra.
Fjármálaeftirlitið getur að ósk eftirlitsstjórnvalda í öðru ríki staðreynt upplýsingar frá aðilum hér á landi sem falla undir viðbótareftirlit með fjármálasamsteypum. Viðkomandi eftirlitsstjórnvöldum er heimilt að taka þátt í vinnu við að staðreyna slíkar upplýsingar.]8)
Telji Fjármálaeftirlitið að starfsemi samkvæmt lögum þessum sé stunduð án tilskilinna leyfa getur það krafist gagna og upplýsinga hjá viðkomandi aðilum eða hjá eftirlitsskyldum aðilum sem nauðsynleg eru til að ganga úr skugga um hvort svo sé. Getur það krafist þess að slíkri starfsemi sé hætt þegar í stað. Jafnframt er því heimilt að birta opinberlega nöfn aðila sem taldir eru bjóða þjónustu án tilskilinna leyfa.
Heimilt er að beita ákvæðum laga um opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi um dagsektir, [vettvangskönnun]5) og leit og hald á gögnum við upplýsingaöflun og eftirlit samkvæmt þessari grein.
2)
   1)L. 130/2004, 11. gr. 2)L. 38/2022, 112. gr. 3)L. 96/2016, 53. gr. 4)L. 57/2015, 34. gr. 5)L. 54/2018, 10. gr. 6)L. 67/2006, 14. gr. 7)L. 91/2019, 36. gr. 8)L. 130/2004, 13. gr.
[107. gr. a. Valdheimildir vegna eftirlits.
Fjármálaeftirlitið skal krefjast þess að fjármálafyrirtæki grípi tímanlega til nauðsynlegra ráðstafana til úrbóta ef fyrirtækið uppfyllir ekki ákvæði laga þessara auk reglugerða og reglna sem settar eru með stoð í þeim.
Telji Fjármálaeftirlitið líklegt, byggt á gögnum eða upplýsingum sem það býr yfir, að fjármálafyrirtæki muni ekki innan næstu tólf mánaða uppfylla ákvæði laga þessara auk reglugerða og reglna sem settar eru með stoð í þeim, skal Fjármálaeftirlitið krefjast þess að fjármálafyrirtæki grípi tímanlega til nauðsynlegra ráðstafana til úrbóta. Úrbætur geta m.a. falið í sér beitingu heimilda samkvæmt þessari grein eða öðrum ákvæðum laganna sem nauðsynleg er til þess að bregðast við aðstæðum viðkomandi fjármálafyrirtækis.
Til að framfylgja kröfum eða fylgja eftir mati skv. 80. gr., 4. og 5. mgr. 81. gr., 3. mgr. 109. gr. ff og 1. og 2. mgr. þessarar greinar og reglugerðar (ESB) nr. 575/2013 er Fjármálaeftirlitinu heimilt að mæla fyrir um:
   1. Hærri eiginfjárgrunn en gerð er krafa um í reglugerð (ESB) nr. 575/2013.
   2. Endurbætur á innri ferlum, sbr. IX. kafla.
   3. Að fjármálafyrirtæki setji fram sérstaka áætlun um það hvernig fyrirtækið muni uppfylla kröfur laga þessara auk reglugerða og reglna sem settar eru með stoð í þeim, auk þess að setja fjármálafyrirtækjum tímafresti varðandi framkvæmd áætlunarinnar, þ.m.t. vegna fresta eða endurbóta sem unnar eru á áætluninni.
   4. Niðurfærslu á eignum við útreikning á eiginfjárgrunni.
   5. Hömlur á eða takmörkun á starfsemi fjármálafyrirtækis eða, eftir því sem við á, sölu eigna eða viðskiptaeininga sem skapa óhóflega áhættu.
   6. Að dregið sé úr áhættu sem starfsemi, viðskiptaafurðir eða kerfi fjármálafyrirtækis felur í sér, þ.m.t. vegna útvistaðrar starfsemi.
   7. Að fjármálafyrirtæki takmarki kaupauka við hlutfall af hreinum hagnaði þar sem útgreiðsla þeirra leiðir til ófullnægjandi eiginfjárgrunns.
   8. Að fjármálafyrirtæki noti hreinan hagnað til að styrkja eiginfjárgrunninn.
   9. Að arð- og vaxtagreiðslur til hluthafa, stofnfjáreigenda og eigenda gerninga viðbótar eigin fjár þáttar 1 skuli takmarkaðar eða bannaðar, enda feli það ekki í sér vanskil af hálfu fjármálafyrirtækis.
   10. Sérstakar kröfur um að viðhalda lausu fé, þ.m.t. vegna misræmis í líftíma eigna og skuldbindinga fjármálafyrirtækis.
   11. Aukin gagnaskil.
   12. Sértæka upplýsingagjöf til markaðar.
Fjármálaeftirlitið skal mæla fyrir um hærri eiginfjárgrunn skv. 1. tölul. 3. mgr. ef könnun og mat skv. 80. gr. eða 109. gr. ff leiðir í ljós að starfsemi fjármálafyrirtækis er með þeim hætti að:
   1. Fjármálafyrirtæki uppfyllir ekki skilyrði og kröfur skv. 50. gr., 77. gr. a eða 77. gr. b laga þessara eða 393. gr. reglugerðar (ESB) nr. 575/2013 og ólíklegt er að önnur eftirlitsúrræði dugi til að tryggja að svo verði innan hæfilegs tíma.
   2. Áhættuþáttum er ekki nægjanlega mætt með eiginfjárkröfum skv. 3., 4. og 7. hluta reglugerðar (ESB) nr. 575/2013, þó ekki ef áhættuþættir falla undir umbreytingarfyrirkomulag eða ákvæði um lagaskil.
   3. Ólíklegt er að breytingar á virðismati staðna eða eignasafna í veltubók geri fjármálafyrirtæki kleift að selja eða verja eignir á skömmum tíma án þess að verða fyrir umtalsverðu tapi miðað við eðlilegar markaðsaðstæður, sbr. 4. mgr. 81. gr.
   4. Í ljós kemur við mat skv. 3. mgr. 109. gr. ff að fjármálafyrirtæki uppfyllir ekki skilyrði fyrir notkun innri aðferða og líkur eru á því að það leiði til ófullnægjandi eiginfjárgrunns.
   5. Það kemur ekki á eða viðheldur ítrekað ekki eiginfjárgrunni sem mætir tilkynningu Fjármálaeftirlitsins um eiginfjárálag skv. 107. gr. b.
   6. Tilefni er til að hafa verulegar áhyggjur vegna annarra aðstæðna sem varða viðkomandi fjármálafyrirtæki sérstaklega.
Fjármálaeftirlitið skal tilkynna skilavaldi um kröfu um hærri eiginfjárgrunn skv. 1. tölul. 3. mgr. og tilkynningu um eiginfjárálag skv. 107. gr. b.
Eigið fé til að mæta kröfu um hærri eiginfjárgrunn skv. 1. tölul. 3. mgr. skal samsett með eftirfarandi hætti:
   1. Almennt eigið fé þáttar 1 skal að lágmarki nema 56,25% af viðbótarkröfunni.
   2. Eiginfjárþáttur 1 skal að lágmarki nema 75% af viðbótarkröfunni.
Eigið fé til að mæta kröfu um hærri eiginfjárgrunn skv. 1. tölul. 3. mgr. vegna óhóflegrar vogunar skal samanstanda af eiginfjárþætti 1.
Fjármálaeftirlitið getur krafist þess að eiginfjárþáttur 1 eða almennt eigið fé þáttar 1 nemi hærra hlutfalli en greinir í 6. og 7. mgr. ef aðstæður viðkomandi fjármálafyrirtækis krefjast þess.
Heimilt er að ákvarða sérstaka kröfu um laust fé fjármálafyrirtækis skv. 10. tölul. 3. mgr. sem skal taka mið af lausafjáráhættu sem það er eða kann að vera óvarið fyrir. Við mat á því hvort gera eigi sérstaka kröfu til fjármálafyrirtækis um laust fé skal taka tillit til eftirfarandi þátta:
   1. Viðskiptalíkans fyrirtækisins.
   2. Meðhöndlunar þess á lausafjáráhættu, m.a. á grundvelli 78. gr. h.
   3. Niðurstöðu könnunar- og matsferlis og álagsprófs á grundvelli 80. gr.
Fjármálaeftirlitið skal tilkynna Evrópsku bankaeftirlitsstofnuninni um aðgerðir sem það grípur til vegna ófullnægjandi ráðstafana fjármálafyrirtækis til að mæta lausafjáráhættu sem gæti ógnað stöðu fyrirtækisins eða valdið kerfisáhættu.]1)
   1)L. 38/2022, 113. gr.
[107. gr. b. Eiginfjárálag.
Fjármálaeftirlitið skal tilkynna fjármálafyrirtæki um eiginfjárálag sem það telur æskilegt, einkum á grundvelli álagsprófs skv. 7. mgr. 80. gr., að það hafi umfram það sem því ber skylda til samkvæmt lögum þessum og kröfum Fjármálaeftirlitsins skv. 107. gr. a til að mæta áhættu sem sú skylda mætir ekki nægjanlega.]1)
   1)L. 38/2022, 113. gr.
[107. gr. c. Tímanleg inngrip Fjármálaeftirlitsins.
Fjármálaeftirlitið getur beitt tímanlegum inngripum gagnvart lánastofnun eða verðbréfafyrirtæki með stofnframlag skv. 2. mgr. 14. gr. a ef:
   a. fyrirtækið brýtur gegn ákvæðum laga þessara eða stjórnvaldsfyrirmæla sem sett eru á grundvelli þeirra, þ.m.t. reglugerð (ESB) nr. 575/2013, eða
   b. líkur eru á því vegna versnandi fjárhagslegrar stöðu, þ.m.t. versnandi lausafjárstöðu, aukinnar vogunar, aukinna vanskila lántakenda eða samþjöppunar áhættuskuldbindinga, að fyrirtækið muni brjóta gegn lögum eða stjórnvaldsfyrirmælum skv. a-lið.
Ef aðstæður skv. a- eða b-lið 1. mgr. eru til staðar getur Fjármálaeftirlitið hrint í framkvæmd eða krafist þess að lánastofnun eða verðbréfafyrirtæki hrindi í framkvæmd a.m.k. einni eða fleiri af eftirfarandi aðgerðum:
   1. Grípi til aðgerða samkvæmt endurbótaáætlun eða uppfæri endurbótaáætlun og framkvæmi aðgerðir samkvæmt uppfærðri áætlun.
   2. Afhendi Fjármálaeftirlitinu tímasetta aðgerðaáætlun.
   3. Boði til hluthafafundar eða fundar stofnfjáreigenda. Verði ekki farið að þeirri kröfu getur Fjármálaeftirlitið boðað til hluthafafundar eða fundar stofnfjáreigenda. Í báðum tilvikum ákveður Fjármálaeftirlitið dagskrá fundarins og getur krafist þess að tiltekin mál verði tekin til umræðu og ákvörðunar.
   4. Víki einum eða fleiri stjórnarmönnum og/eða framkvæmdastjóra frá uppfylli þeir ekki kröfur skv. 52. gr., 52. gr. a og 54. gr.
   5. Afhendi Fjármálaeftirlitinu áætlun um samningaviðræður um endurskipulagningu á skuldum við lánardrottna.
   6. Breyti viðskiptastefnu fyrirtækisins.
   7. Breyti skipulagi fyrirtækisins.
Fjármálaeftirlitið skal veita fyrirtæki hæfilegan tímafrest til að ljúka við þær aðgerðir sem það hefur krafist skv. 2. mgr.
Við aðstæður skv. a- eða b-lið 1. mgr. er lánastofnun eða verðbréfafyrirtæki skylt að veita Fjármálaeftirlitinu allar þær upplýsingar sem þykja nauðsynlegar til að hægt sé að uppfæra skilaáætlun og meta eignir og skuldbindingar viðkomandi fyrirtækis og mögulega skilameðferð þess samkvæmt lögum um skilameðferð lánastofnana og verðbréfafyrirtækja. Skilavaldið skal hafa aðgang að þeim upplýsingum. Fjármálaeftirlitið skal þegar í stað upplýsa skilastjórnvöld lánastofnunar eða verðbréfafyrirtækis ef aðstæður eru þannig að heimilt sé að beita tímanlegum inngripum skv. 1. mgr.
Seðlabanka Íslands er heimilt að setja reglur sem skilgreina viðmið um hvenær Fjármálaeftirlitið getur beitt tímanlegum inngripum vegna versnandi fjárhagslegrar stöðu lánastofnana og verðbréfafyrirtækja skv. b-lið 1. mgr.]1)
   1)L. 38/2022, 113. gr.
[107. gr. d. Brottvikning stjórnar og framkvæmdastjóra við tímanleg inngrip.
Fjármálaeftirlitið getur vikið stjórn lánastofnunar eða verðbréfafyrirtækis skv. 1. málsl. 1. mgr. 107. gr. c frá, í heild eða að hluta, sem og framkvæmdastjóra hafi fyrirtækið brotið alvarlega gegn ákvæðum laga, stjórnvaldsfyrirmæla eða samþykkta fyrirtækis eða ef alvarlegar athugasemdir hafa verið gerðar við stjórnun þess.
Brottvikning Fjármálaeftirlitsins skv. 1. mgr. á einnig við ef fjárhagur lánastofnunar eða verðbréfafyrirtækis hefur versnað verulega eða aðgerðir skv. 107. gr. c hafa ekki eða eru ekki líklegar að mati Fjármálaeftirlitsins til að rétta af fjárhagslega stöðu fyrirtækis.]1)
   1)L. 38/2022, 113. gr.
[107. gr. e. Bráðabirgðastjórnandi.
Telji Fjármálaeftirlitið að brottvikning stjórnar og framkvæmdastjóra skv. 107. gr. d sé ekki fullnægjandi til að rétta af fjárhagslega stöðu lánastofnunar eða verðbréfafyrirtækis skv. 1. málsl. 1. mgr. 107. gr. c getur það skipað fyrirtækinu bráðabirgðastjórnanda.
Skipun bráðabirgðastjórnanda skv. 1. mgr. getur tekið til þess:
   a. að einn eða fleiri bráðabirgðastjórnendur leysi stjórn af í heild sinni, eða
   b. að einn eða fleiri bráðabirgðastjórnendur starfi með starfandi stjórn.
Ákvæði þessara laga og ákvæði um félagsstjórn í lögum um hlutafélög gilda eftir því sem við á um bráðabirgðastjórnanda sem skipaður er skv. a-lið 2. mgr. Ákvæði 63. og 68. gr. laga um hlutafélög, nr. 2/1995, gilda ekki um skipun bráðabirgðastjórnanda sem skipaður er skv. a-lið 2. mgr. og fundur stofnfjáreigenda eða hluthafa getur ekki leyst bráðabirgðastjórnanda frá störfum.
Skipi Fjármálaeftirlitið bráðabirgðastjórnanda skal í skipunarbréfi til hans, eftir því sem við á, kveða á um:
   1. Skipunartíma.
   2. Helstu verkefni.
   3. Skyldur.
   4. Valdsvið, bæði heimildir og takmarkanir.
   5. Hvaða ákvarðanir stjórn þarf að bera fyrir fram undir bráðabirgðastjórnanda, hafi hún ekki verið leyst frá störfum.
   6. Hvaða ákvarðanir bráðabirgðastjórnandi þarf að bera undir Fjármálaeftirlitið.
   7. Skýrsluskil til Fjármálaeftirlitsins.
Skipunartími bráðabirgðastjórnanda skal að hámarki vera eitt ár. Við sérstakar aðstæður er Fjármálaeftirlitinu heimilt að framlengja skipunartímann. Fjármálaeftirlitið getur hvenær sem er breytt skipun bráðabirgðastjórnanda skv. 2. mgr. og umboði hans skv. 4. mgr. eða leyst hann frá störfum.
Fjármálaeftirlitið leggur mat á hæfi bráðabirgðastjórnanda. Um hæfisskilyrði bráðabirgðastjórnanda fer skv. 52. gr. og 52. gr. a.
Bráðabirgðastjórnandi er einungis ábyrgur fyrir tjóni sem hann veldur í störfum sínum af ásetningi eða stórkostlegu gáleysi.]1)
   1)L. 38/2022, 113. gr.
[107. gr. f. Samningsákvæðum vikið til hliðar.
Ef Fjármálaeftirlitið grípur til aðgerða skv. 107. gr. c – 107. gr. e gagnvart lánastofnun eða verðbréfafyrirtæki skulu aðgerðirnar, þ.m.t. atburðir sem leiðir af þeim, hvorki samsvara vanefnd samkvæmt samningi um fjárhagslegar tryggingarráðstafanir né jafngilda úrskurði um heimild til greiðslustöðvunar, nauðasamningsumleitana eða gjaldþrotaskipta samkvæmt lögum um gjaldþrotaskipti o.fl. Ákvæði 1. málsl. er háð því skilyrði að fyrirtæki haldi áfram að efna meginskyldur samningssambands, þ.m.t. um greiðslu, afhendingu og veitingu tryggingarréttinda.
Efni fyrirtæki áfram meginskyldur samningssambands skv. 1. mgr. veita aðgerðir Fjármálaeftirlitsins skv. 107. gr. c – 107. gr. e samningsaðilum fyrirtækisins ekki sjálfkrafa rétt til að:
   1. Beita rétti til uppsagnar, gjaldfellingar, frestunar eða breytingar samningsskuldbindinga eða greiðslu- eða skuldajöfnunar á grundvelli samnings.
   2. Öðlast eignarhald, fá yfirráð eða ganga að tryggingarréttindum í eigu fyrirtækisins.
   3. Hafa áhrif á samningsbundin réttindi fyrirtækisins.
Ákvæði 1. og 2. mgr. gilda um samninga sem dótturfélag hefur gert og móðurfélag eða annað félag innan samstæðu ábyrgist eða styður á annan hátt. Ákvæði 1. og 2. mgr. gilda einnig um samninga á milli félaga innan samstæðu sem innihalda víxlvanefndarákvæði.]1)
   1)L. 38/2022, 113. gr.
[107. gr. g. Tímanleg inngrip á samstæðugrunni.
Ef skilyrði fyrir aðgerðum skv. 107. gr. c eða 107. gr. e eru fyrir hendi gagnvart móðurfélagi í efsta þrepi samstæðu á Evrópska efnahagssvæðinu, sem er staðsett hér á landi, skal Fjármálaeftirlitið sem eftirlitsaðili á samstæðugrunni ráðfæra sig við önnur lögbær yfirvöld innan samstarfshóps eftirlitsaðila og tilkynna Evrópsku bankaeftirlitsstofnuninni áður en gripið er til aðgerða gagnvart móðurfélaginu. Ákvörðun Fjármálaeftirlitsins um aðgerðir skal síðan tilkynnt lögbærum yfirvöldum í samstarfshópi eftirlitsaðila og Evrópsku bankaeftirlitsstofnunarinnar.
Ef Fjármálaeftirlitið móttekur, sem eftirlitsaðili á samstæðugrunni, tilkynningu frá lögbæru yfirvaldi dótturfélags í samræmi við 2. mgr. 107. gr. h skal það leggja fram mat sitt á því hvaða áhrif fyrirhugaðar aðgerðir hafa á samstæðu innan þriggja virkra daga frá móttöku tilkynningarinnar.
Þegar fleiri en eitt lögbært yfirvald innan samstarfshóps eftirlitsaðila vilja grípa til einnar eða fleiri aðgerða í samræmi við 107. gr. c eða 107. gr. e, gagnvart fleiri en einni lánastofnun eða verðbréfafyrirtæki innan samstæðu, skal Fjármálaeftirlitið, í samstarfi við önnur lögbær yfirvöld í samstarfshópnum, meta hvort viðeigandi sé að skipa sama bráðabirgðastjórnanda skv. 107. gr. e fyrir öll viðeigandi fyrirtæki eða samhæfa beitingu einnar eða fleiri aðgerða skv. 107. gr. c gagnvart einu eða fleiri af fyrirtækjunum.
Fjármálaeftirlitið skal leitast við að taka sameiginlega ákvörðun með viðeigandi lögbærum yfirvöldum í samstarfshópi eftirlitsaðila og skal sú ákvörðun liggja fyrir eigi síðar en fimm virkum dögum eftir að upplýsingar voru tilkynntar lögbærum yfirvöldum skv. 1. mgr.
Ef sameiginleg ákvörðun liggur ekki fyrir eftir samráð skv. 1. mgr. innan tímafrests skv. 4. mgr. skal Fjármálaeftirlitið taka ákvörðun um að beita einni eða fleiri aðgerðum skv. 107. gr. c eða 107. gr. e gagnvart móðurfélaginu. Fjármálaeftirlitið skal tilkynna móðurfélaginu og lögbærum yfirvöldum í samstarfshópi eftirlitsaðila um ákvörðunina.
Fjármálaeftirlitið skal fresta ákvörðunum skv. 1. og 5. mgr. ef eitthvert lögbært yfirvald í samstarfshópi eftirlitsaðila hefur vísað ákvörðun þess til Evrópsku bankaeftirlitsstofnunarinnar eða Eftirlitsstofnunar EFTA í samræmi við 19. gr. reglugerðar (ESB) nr. 1093/2010, sbr. lög um evrópskt eftirlitskerfi á fjármálamarkaði, fyrir lok tímabils samráðs skv. 1. mgr. eða tímafrests skv. 4. mgr., og bíða ákvörðunar sem Eftirlitsstofnun EFTA kann að taka. Ákvörðun Fjármálaeftirlitsins skal vera í samræmi við niðurstöðu Eftirlitsstofnunar EFTA.]1)
   1)L. 38/2022, 113. gr.
[107. gr. h. Tímanleg inngrip gagnvart dótturfélagi móðurfélags í efsta þrepi samstæðu á Evrópska efnahagssvæðinu.
Ef Fjármálaeftirlitið hefur eftirlit með einu eða fleiri dótturfélögum, sem eru lánastofnanir eða verðbréfafyrirtæki með stofnframlag skv. 2. mgr. 14. gr. a, skal það ráðfæra sig við eftirlitsaðila á samstæðugrunni og tilkynna Evrópsku bankaeftirlitsstofnuninni ef skilyrði skv. 107. gr. c eða 107. gr. e fyrir aðgerðum gagnvart dótturfélagi eru uppfyllt, áður en ákvörðun um beitingu aðgerðanna er tekin. Ákvörðun Fjármálaeftirlitsins um aðgerðir skal síðan tilkynnt eftirlitsaðilum á samstæðugrunni og viðeigandi lögbærum yfirvöldum í samstarfshópi eftirlitsaðila.
Fjármálaeftirlitinu er heimilt að taka ákvörðun um beitingu aðgerða skv. 107. gr. c eða 107. gr. e gagnvart dótturfélagi sem lýtur eftirliti þess skv. 1. mgr. ef ekki næst sameiginleg ákvörðun með eftirlitsaðila á samstæðugrunni og, ef við á, öðrum lögbærum yfirvöldum innan tímafrests skv. 4. mgr. 107. gr. g. Skal Fjármálaeftirlitið tilkynna dótturfélaginu um ákvörðunina. Fjármálaeftirlitið skal fresta því að hrinda ákvörðuninni í framkvæmd ef lögbært yfirvald hefur vísað ákvörðuninni til Evrópsku bankaeftirlitsstofnunarinnar eða Eftirlitsstofnunar EFTA í samræmi við 19. gr. reglugerðar (ESB) nr. 1093/2010, sbr. lög um evrópskt eftirlitskerfi á fjármálamarkaði, og bíða þeirrar ákvörðunar sem Eftirlitsstofnun EFTA kann að taka. Ákvörðun Fjármálaeftirlitsins skal vera í samræmi við niðurstöðu Eftirlitsstofnunar EFTA.]1)
   1)L. 38/2022, 113. gr.
[107. gr. i. Birting upplýsinga um varfærniskröfur.
Fjármálaeftirlitið skal reglubundið birta á vef sínum:
   1. Lög, stjórnvaldsfyrirmæli og leiðbeiningar sem varða varfærniskröfur.
   2. Upplýsingar um hvernig valkostir og svigrúm í varfærnisreglum Evrópska efnahagssvæðisins er nýtt.
   3. Almenn viðmið og aðferðafræði sem það styðst við vegna könnunar- og matsferlis, þ.m.t. viðmið um hvernig gætt sé meðalhófs.
   4. Tölfræði um framkvæmd varfærnisreglna, þar á meðal um fjölda og tegund stjórnsýsluviðurlaga og annarra eftirlitsúrræða vegna brota.
Fjármálaeftirlitið skal í tengslum við 5. hluta reglugerðar (ESB) nr. 575/2013 birta á vef sínum:
   1. Almenn viðmið og aðferðafræði sem það styðst við til að hafa eftirlit með því að farið sé að 405.–409. gr. reglugerðarinnar.
   2. Árlega samantekt á eftirliti og ráðstöfunum vegna brota gegn 405.–409. gr. reglugerðarinnar.
Ef Fjármálaeftirlitið veitir móðurfélagi undanþágu skv. 3. mgr. 7. gr. eða 1. mgr. 9. gr. reglugerðar (ESB) nr. 575/2013 skal það birta á vef sínum:
   1. Viðmiðanir sem það styðst við til að ákvarða að ekki séu fyrir hendi eða fyrirséðar neinar verulegar hömlur, lagalegar eða aðrar, á skjótri yfirfærslu eiginfjárgrunns eða endurgreiðslu skulda.
   2. Fjölda móðurfélaga sem njóta undanþágu og fjölda þeirra sem eiga dótturfélög í ríkjum utan Evrópska efnahagssvæðisins.
   3. Samantekt um:
   a. heildarfjárhæð eiginfjárgrunns á samstæðugrunni hjá móðurfélagi sem nýtur undanþágu sem er á hendi dótturfélaga í ríkjum utan Evrópska efnahagssvæðisins,
   b. hlutfall heildareiginfjárgrunns á samstæðugrunni hjá móðurfélagi sem nýtur undanþágu sem er á hendi dótturfélaga í ríkjum utan Evrópska efnahagssvæðisins,
   c. hlutfall heildareiginfjárgrunns sem er krafist skv. 92. gr. reglugerðarinnar á samstæðugrunni hjá móðurfélagi sem nýtur undanþágu sem er á hendi dótturfélaga í ríkjum utan Evrópska efnahagssvæðisins.]1)
   1)L. 38/2022, 113. gr.
[107. gr. j. Þagnarskylda.
Fjármálaeftirlitið er bundið þagnarskyldu samkvæmt lögum um Seðlabanka Íslands við framkvæmd laga þessara. Fjármálaeftirlitið má aðeins nýta upplýsingar sem háðar eru þagnarskyldu og aflað er við framkvæmd laga þessara til að fullnægja eftirlitsskyldum sínum, þar á meðal við ákvörðun viðurlaga, og í dómsmálum varðandi athafnir eftirlitsins.]1)
   1)L. 38/2022, 113. gr.
[108. gr.]1) [Rökstuðningur.
Fjármálaeftirlitið skal rökstyðja skriflega ákvarðanir um beitingu eftirlitsheimilda eða viðurlaga samkvæmt lögum þessum.]2)
   1)L. 130/2004, 11. gr. 2)L. 38/2022, 114. gr.
B. Eftirlit á samstæðugrundvelli.
[109. gr.]1) [Varfærniskröfur á samstæðugrunni.]2)
[Ákvæði VII., IX. og IX. kafla A skulu gilda um samstæðu þar sem móðurfélagið er fjármálafyrirtæki, blandað eignarhaldsfélag í fjármálastarfsemi eða eignarhaldsfélag á fjármálasviði. Móðurfélagið ber ábyrgð á framkvæmd þessa ákvæðis innan samstæðunnar. Ákvæði 52. gr. og 52. gr. a um hæfisskilyrði stjórnar og framkvæmdastjóra og önnur störf stjórnarmanna og ákvæði C-hluta VII. kafla um starfskjör gilda einnig um eignarhaldsfélög á fjármálasviði.]2)
2)
2)
Fjármálaeftirlitið getur ákveðið að ákvæði 1. mgr. þessarar greinar og [9. og 10. mgr. 97. gr.]3) gildi einnig fyrir önnur tilvik þegar um er að ræða fjármálafyrirtæki sem eitt og sér eða í samstarfi við annan aðila er í þannig eignatengslum við fyrirtæki að nauðsynlegt teljist að beita þessum ákvæðum.
[Fjármálaeftirlitið getur ákveðið að félag skuli teljast hluti af samstæðu fjármálafyrirtækis þegar fjármálafyrirtækið hefur ráðandi áhrif á félagið.]4)
Ákvæði 1. mgr. þessarar greinar og [9. og 10. mgr. 97. gr.]3) gilda ekki um fyrirtæki sem fjármálafyrirtæki hefur eignast tímabundið hlut í, annaðhvort til að tryggja fullnustu kröfu eða vegna endurskipulagningar þess fyrirtækis, né heldur um fyrirtæki sem starfrækja vátryggingastarfsemi. Fjármálaeftirlitið getur þó ákveðið að umrædd ákvæði skuli gilda.
Fjármálaeftirlitið getur veitt undanþágu frá ákvæðum 1. …2) mgr. þessarar greinar og [9. og 10. mgr. 97. gr.]3)
[Fjármálaeftirlitið getur undanþegið fjármálafyrirtæki skyldu til að fara eftir kröfum samkvæmt lögum þessum á einingargrunni hafi það veitt undanþágu skv. 7. gr. reglugerðar (ESB) nr. 575/2013.
Ákvæði VII. og IX. kafla gilda ekki á samstæðugrunni um dótturfélag sem fellur ekki undir gildissvið laga þessara og er með staðfestu í ríki utan Evrópska efnahagssvæðisins ef móðurstofnun þess á Evrópska efnahagssvæðinu getur sýnt Fjármálaeftirlitinu fram á að það væri andstætt lögum þess ríkis.
Ákvæði C-hluta VII. kafla gilda ekki á samstæðugrunni um dótturfélög á Evrópska efnahagssvæðinu sem falla undir aðra sértæka löggjöf um starfskjör eða dótturfélög utan Evrópska efnahagssvæðisins sem myndu gera það ef þau væru með staðfestu á Evrópska efnahagssvæðinu. Undanþága 1. málsl. á þó ekki við um starfsmenn dótturfélags sem fellur ekki undir gildissvið laga þessara og er eignastýringarfélag eða veitir þjónustu skv. b-, c-, d-, f- eða g-lið 16. tölul. 1. mgr. 4. gr. laga um markaði fyrir fjármálagerninga, nr. 115/2021, ef þeir gegna starfsskyldum sem hafa marktæk áhrif á áhættusnið eða starfsemi fjármálafyrirtækja sem tilheyra samstæðunni.]2)
   1)L. 130/2004, 11. gr. 2)L. 38/2022, 115. gr. 3)L. 130/2004, 15. gr. 4)L. 57/2015, 35. gr.
[109. gr. a. Lagaskil.
Þegar kröfur á grundvelli laga þessara og laga um viðbótareftirlit með fjármálasamsteypum um starfsemi blandaðs eignarhaldsfélags í fjármálastarfsemi eru sambærilegar er Fjármálaeftirlitinu, sé það eftirlitsaðili á samstæðugrunni, heimilt að höfðu samráði við lögbær yfirvöld, sbr. C-hluta þessa kafla, að ákveða að um eftirlit með félaginu fari í einstökum atriðum, eða að öllu leyti, eftir lögum um viðbótareftirlit með fjármálasamsteypum.
Þegar kröfur á grundvelli laga þessara og laga um vátryggingastarfsemi um starfsemi blandaðs eignarhaldsfélags í fjármálastarfsemi eru sambærilegar er Fjármálaeftirlitinu, sé það eftirlitsaðili á samstæðugrunni, heimilt, að höfðu samráði við samstæðueftirlitsaðila á vátryggingamarkaði ef hann er annar en Fjármálaeftirlitið, að ákveða að um eftirlit með félaginu fari í einstökum atriðum, eða að öllu leyti, eftir lögum þessum eða lögum um vátryggingastarfsemi eftir því hvort starfsemi á fjármála- eða vátryggingasviði telst mikilvægari í skilningi 4. gr. laga um viðbótareftirlit með fjármálasamsteypum, nr. 61/2017.
Fjármálaeftirlitið skal tilkynna Evrópsku bankaeftirlitsstofnuninni og Evrópsku vátrygginga- og lífeyrissjóðaeftirlitsstofnuninni um ákvarðanir skv. 1. og 2. mgr.]1)
   1)L. 38/2022, 116. gr.
[109. gr. b. Eftirlitsaðili á samstæðugrunni.
Fjármálaeftirlitið fer með eftirlit á samstæðugrunni með samstæðu sem lánastofnun tilheyrir ef móðurfélag hennar er:
   a. móðurlánastofnun í aðildarríki eða móðurlánastofnun á Evrópska efnahagssvæðinu sem Fjármálaeftirlitið hefur eftirlit með á einingargrunni eða
   b. móðurverðbréfafyrirtæki í aðildarríki, móðurverðbréfafyrirtæki á Evrópska efnahagssvæðinu, móðureignarhaldsfélag á fjármálasviði í aðildarríki, blandað móðureignarhaldsfélag í fjármálastarfsemi í aðildarríki, móðureignarhaldsfélag á fjármálasviði á Evrópska efnahagssvæðinu eða blandað móðureignarhaldsfélag í fjármálastarfsemi á Evrópska efnahagssvæðinu hafi Fjármálaeftirlitið eftirlit á einingargrunni með einni eða fleiri lánastofnunum sem eru dótturfélög þess og samtala niðurstöðutalna efnahagsreikninga þeirra er hærri en lánastofnana sem eru dótturfélög þess sem annað yfirvald hefur eftirlit með á einingargrunni.
Fjármálaeftirlitið fer með eftirlit á samstæðugrunni með samstæðu sem engin lánastofnun tilheyrir ef móðurfélag hennar er:
   a. móðurverðbréfafyrirtæki í aðildarríki eða móðurverðbréfafyrirtæki á Evrópska efnahagssvæðinu sem Fjármálaeftirlitið hefur eftirlit með á einingargrunni eða
   b. móðureignarhaldsfélag á fjármálasviði í aðildarríki, blandað móðureignarhaldsfélag í fjármálastarfsemi í aðildarríki, móðureignarhaldsfélag á fjármálasviði á Evrópska efnahagssvæðinu eða blandað móðureignarhaldsfélag í fjármálastarfsemi á Evrópska efnahagssvæðinu hafi Fjármálaeftirlitið eftirlit á einingargrunni með einu eða fleiri verðbréfafyrirtækjum sem eru dótturfélög þess og samtala niðurstöðutalna efnahagsreikninga þeirra er hærri en verðbréfafyrirtækja sem eru dótturfélög þess sem annað yfirvald hefur eftirlit með á einingargrunni.
B-liður 1. mgr. og b-liður 2. mgr. gilda einnig þegar kröfur gilda á samstæðugrunni skv. 3. eða 6. mgr. 18. gr. reglugerðar (ESB) nr. 575/2013.
Fjármálaeftirlitið getur, með samkomulagi við viðkomandi lögbær yfirvöld, ákveðið að annað lögbært yfirvald fari með eftirlit á samstæðugrunni með samstæðu en leiðir af 1. og 2. mgr. ef það endurspeglar betur hlutfallslegt mikilvægi starfsemi fjármálafyrirtækja innan samstæðunnar í viðkomandi aðildarríkjum eða tryggir betur samfellu í eftirliti. Viðkomandi móðurstofnun á Evrópska efnahagssvæðinu, móðureignarhaldsfélagi á fjármálasviði á Evrópska efnahagssvæðinu, blönduðu móðureignarhaldsfélagi í fjármálastarfsemi í Evrópusambandinu eða fjármálafyrirtæki með hæstu niðurstöðutölu efnahagsreiknings skal áður veittur andmælaréttur. Fjármálaeftirlitið skal án tafar tilkynna Eftirlitsstofnun EFTA og Evrópsku bankaeftirlitsstofnuninni um slíka ákvörðun.]1)
   1)L. 38/2022, 116. gr.
[109. gr. c. Samhæfing eftirlits með samstæðu.
Fari Fjármálaeftirlitið með eftirlit á samstæðugrunni skal það:
   1. Samhæfa öflun og miðlun upplýsinga, bæði við áframhaldandi rekstrarhæfi og neyðaraðstæður.
   2. Skipuleggja og samhæfa, í samráði við viðkomandi lögbær yfirvöld, eftirlit við áframhaldandi rekstrarhæfi, þ.m.t. eftirlit samkvæmt þessum kafla.
   3. Undirbúa, skipuleggja og samhæfa, í samráði við viðkomandi lögbær yfirvöld og seðlabanka ef þörf krefur, eftirlit við neyðaraðstæður, þ.m.t. vegna óhagstæðrar þróunar hjá viðkomandi fjármálafyrirtækjum eða fjármálamörkuðum almennt, í gegnum samskiptaleiðir vegna neyðarástands sem þegar eru fyrir hendi ef unnt er.
Fari Fjármálaeftirlitið með eftirlit á samstæðugrunni og getur ekki fullnægt skyldum sínum skv. 1. mgr. vegna ósamvinnuþýðni annars yfirvalds getur það leitað aðstoðar Evrópsku bankaeftirlitsstofnunarinnar eða Eftirlitsstofnunar EFTA, eftir því sem við á, til samræmis við 19. gr. reglugerðar (ESB) nr. 1093/2010, sbr. lög um evrópskt eftirlitskerfi á fjármálamarkaði. Sama gildir ef annað lögbært yfirvald fer með eftirlit á samstæðugrunni og Fjármálaeftirlitið telur það ekki sinna verkefnum sínum skv. 1. mgr.]1)
   1)L. 38/2022, 116. gr.
[109. gr. d. Sameiginlegar ákvarðanir.
Fari Fjármálaeftirlitið með eftirlit á samstæðugrunni með samstæðu þar sem móðurfélagið er móðurstofnun á Evrópska efnahagssvæðinu, móðureignarhaldsfélag á fjármálasviði á Evrópska efnahagssvæðinu eða blandað móðureignarhaldsfélag í fjármálastarfsemi og annað lögbært yfirvald með eftirlit á einingargrunni með fjármálafyrirtæki sem er dótturfélag í samstæðunni, eða fari Fjármálaeftirlitið með eftirlitið á einingargrunni og annað lögbært yfirvald með eftirlitið á samstæðugrunni, skal Fjármálaeftirlitið gera allt sem í valdi þess stendur til að ná fram sameiginlegri ákvörðun með viðkomandi lögbæru yfirvaldi, innan fjögurra mánaða frá því að eftirlitsaðilinn á samstæðugrunni leggur fram greiningu á áhættu samstæðunnar, um:
   1. Fyrirmæli um að samstæðan eða fjármálafyrirtæki sem tilheyrir henni skuli hafa hærri eiginfjárgrunn, sbr. 1. tölul. 3. mgr. 107. gr. a.
   2. Ráðstafanir vegna lausafjárstýringar, þ.m.t. sérstakar kröfur um laust fé, sbr. 10. tölul. 3. mgr. 107. gr. a.
   3. Tilkynningu um eiginfjárálag skv. 107. gr. b.
Fari Fjármálaeftirlitið með eftirlit á samstæðugrunni er því skylt að hafa samráð við Evrópsku bankaeftirlitsstofnunina áður en það tekur ákvörðun samkvæmt þessari grein fari annað lögbært yfirvald sem fer með eftirlit á einingargrunni með fjármálafyrirtæki í samstæðunni fram á það innan frests skv. 1. mgr. Ef annað lögbært yfirvald er eftirlitsaðili á samstæðugrunni getur Fjármálaeftirlitið innan frests skv. 1. mgr. farið fram á að það leiti samráðs við Evrópsku bankaeftirlitsstofnunina.
Náist ekki sameiginleg ákvörðun innan frests skv. 1. mgr. getur Fjármálaeftirlitið tekið einhliða ákvörðun um kröfur á samstæðu- eða einingargrunni, eftir því sem við á, en skal þó ávallt taka tillit til mats annarra lögbærra yfirvalda á áhættu samstæðunnar og dótturfélaga hennar og annarra viðhorfa og fyrirvara sem þau hafa lýst innan frests skv. 1. mgr. Hafi Fjármálaeftirlitið eða annað lögbært yfirvald vísað málinu til Evrópsku bankaeftirlitsstofnunarinnar eða Eftirlitsstofnunar EFTA í samræmi við 19. gr. reglugerðar (ESB) nr. 1093/2010, sbr. lög um evrópskt eftirlitskerfi á fjármálamarkaði, innan frests skv. 1. mgr. skal Fjármálaeftirlitið fresta ákvörðun sinni og bíða ákvörðunar sem Eftirlitsstofnun EFTA kann að taka. Ákvörðun Fjármálaeftirlitsins skal vera í samræmi við niðurstöðu Eftirlitsstofnunar EFTA. Fjármálaeftirlitið skal ekki vísa málinu til Evrópsku bankaeftirlitsstofnunarinnar eða Eftirlitsstofnunar EFTA ef frestur skv. 1. mgr. er liðinn eða sameiginleg ákvörðun liggur fyrir.
Ákvarðanir samkvæmt þessari grein skulu vera skriflegar og rökstuddar, m.a. með tilliti til áhættumats, viðhorfa og fyrirvara sem önnur viðkomandi lögbær yfirvöld hafa lýst innan frests skv. 1. mgr. Hafi verið haft samráð við Evrópsku bankaeftirlitsstofnunina skal greina frá því hvernig tekið hafi verið tillit til ráðlegginga hennar og öll markverð frávik frá þeim útskýrð. Fari Fjármálaeftirlitið með eftirlit á samstæðugrunni skal það senda ákvarðanirnar til viðkomandi lögbærra yfirvalda og móðurstofnunar á Evrópska efnahagssvæðinu.
Fjármálaeftirlitið skal viðurkenna ákvarðanir annarra lögbærra yfirvalda samkvæmt þessari grein að því er varðar samstæðu eða fjármálafyrirtæki sem þau hafa eftirlit með.
Ákvarðanir samkvæmt þessari grein skulu uppfærðar árlega. Þær skulu einnig uppfærðar sendi lögbært yfirvald dótturfélags móðurstofnunar á Evrópska efnahagssvæðinu, móðureignarhaldsfélags á fjármálasviði á Evrópska efnahagssvæðinu eða blandaðs móðureignarhaldsfélags í fjármálastarfsemi á Evrópska efnahagssvæðinu skriflega og rökstudda ósk þess efnis til eftirlitsaðilans á samstæðugrunni og er þá unnt að gera það í tvíhliða samstarfi þeirra yfirvalda.]1)
   1)L. 38/2022, 116. gr.
[109. gr. e. Upplýsingagjöf um samstæðu.
Fari Fjármálaeftirlitið með eftirlit á samstæðugrunni skal það veita öðrum hlutaðeigandi lögbærum yfirvöldum og Evrópsku bankaeftirlitsstofnuninni upplýsingar um náin tengsl samstæðu skv. 3. mgr. 7. gr., stjórnarhætti skv. 1. mgr. 50. gr. og kröfur á samstæðugrunni skv. 1. málsl. 1. mgr. 109. gr., einkum um lagalega og skipulagslega uppbyggingu samstæðunnar og stjórnarhætti hennar.]1)
   1)L. 38/2022, 116. gr.
[109. gr. f. Upplýsingagjöf við neyðaraðstæður.
Fari Fjármálaeftirlitið með eftirlit á samstæðugrunni skal það gera öðrum lögbærum yfirvöldum sem hafa eftirlit með samstæðu eða einingum innan hennar, Evrópsku bankaeftirlitsstofnuninni, Evrópska kerfisáhætturáðinu, Eftirlitsstofnun EFTA og viðkomandi seðlabönkum og ríkiseiningum sem bera ábyrgð á löggjöf um fjármálafyrirtæki, fjármálastofnanir og vátryggingafélög í aðildarríkjum og skoðunarmönnum sem starfa fyrir þeirra hönd viðvart eins fljótt og við verður komið um neyðarástand, þ.m.t. aðstæður skv. 18. gr. reglugerðar (ESB) nr. 1093/2010, sbr. lög um evrópskt eftirlitskerfi á fjármálamarkaði, eða óhagstæða þróun á mörkuðum sem getur teflt í tvísýnu lausafjárstöðu og stöðugleika fjármálakerfisins í aðildarríki þar sem einingar innan samstæðu hafa fengið starfsleyfi eða starfrækja mikilvæg útibú og veita allar upplýsingar sem þessir aðilar þurfa til að leysa verk sín af hendi, í gegnum samskiptaleiðir sem þegar eru fyrir hendi ef unnt er. Sama gildir, eftir því sem við á, starfræki íslenskt fjármálafyrirtæki mikilvægt útibú í öðru aðildarríki.]1)
   1)L. 38/2022, 116. gr.
[109. gr. g. Upplýsingaöflun frá öðrum yfirvöldum.
Fari Fjármálaeftirlitið með eftirlit á einingargrunni með fjármálafyrirtæki sem er dótturfélag móðurstofnunar á Evrópska efnahagssvæðinu skal það, þegar það þarfnast upplýsinga um aðferðir og aðferðafræði samkvæmt lögum þessum sem ætla má að hafi þegar verið veittar lögbæru yfirvaldi sem hefur eftirlit á samstæðugrunni með samstæðunni, leitast við að afla upplýsinganna frá því yfirvaldi.
Fari Fjármálaeftirlitið með eftirlit á samstæðugrunni skal það, þegar það þarfnast upplýsinga sem ætla má að hafi þegar verið veittar öðru lögbæru yfirvaldi sem hefur eftirlit á einingargrunni með einingu innan samstæðu, leitast við að afla upplýsinganna frá því yfirvaldi.]1)
   1)L. 38/2022, 116. gr.
[109. gr. h. Upplýsingaöflun frá móðurfélagi.
Fjármálaeftirlitið skal, að ósk lögbærs yfirvalds erlends fjármálafyrirtækis sem fer með eftirlit á samstæðugrunni, afla upplýsinga frá innlendu móðurfélagi samstæðunnar sem erlenda lögbæra yfirvaldið þarf til að sinna samstæðueftirlitinu. Fari Fjármálaeftirlitið með eftirlit á samstæðugrunni getur það farið fram á að lögbært yfirvald erlends móðurfélags samstæðunnar afli upplýsinga frá móðurfélaginu sem Fjármálaeftirlitið þarf til að sinna samstæðueftirlitinu.
Fjármálaeftirlitið getur farið fram á að erlent móðurfélag innlends fjármálafyrirtækis sem fellur ekki undir eftirlit á samstæðugrunni skv. 19. gr. reglugerðar (ESB) nr. 575/2013 veiti því upplýsingar sem kunna að auðvelda eftirlit þess með fjármálafyrirtækinu. Innlent móðurfélag fjármálafyrirtækis í öðru aðildarríki sem fellur ekki undir eftirlit á samstæðugrunni skv. 19. gr. reglugerðar (ESB) nr. 575/2013 skal verða við ósk lögbærs yfirvalds fjármálafyrirtækisins um upplýsingar sem kunna að auðvelda eftirlit þess með fjármálafyrirtækinu.]1)
   1)L. 38/2022, 116. gr.
[109. gr. i. Upplýsingaöflun frá dótturfélagi.
Fari Fjármálaeftirlitið með eftirlit á samstæðugrunni með fjármálafyrirtæki, eignarhaldsfélagi á fjármálasviði eða blönduðu eignarhaldsfélagi í fjármálastarfsemi getur Fjármálaeftirlitið krafið dótturfélag þess um upplýsingar sem það þarf vegna eftirlitsins þótt dótturfélagið heyri ekki undir samstæðueftirlitið.]1)
   1)L. 38/2022, 116. gr.
[109. gr. j. Samstarfshópur eftirlitsaðila.
Fari Fjármálaeftirlitið með eftirlit á samstæðugrunni skal það koma á fót samstarfshópi lögbærra yfirvalda sem hafa eftirlit með einingum innan samstæðunnar til að greiða fyrir samvinnu yfirvaldanna og samstarfi við yfirvöld í ríkjum utan Evrópska efnahagssvæðisins. Fjármálaeftirlitið skal bjóða lögbærum yfirvöldum sem bera ábyrgð á eftirliti með eignarhaldsfélagi á fjármálasviði, blönduðu eignarhaldsfélagi í fjármálastarfsemi, dótturfélögum móðurstofnunar á Evrópska efnahagssvæðinu, móðureignarhaldsfélagi á fjármálasviði á Evrópska efnahagssvæðinu eða blönduðu móðureignarhaldsfélagi í fjármálastarfsemi á Evrópska efnahagssvæðinu, lögbærum yfirvöldum í aðildarríkjum þar sem samstæða starfrækir mikilvæg útibú, seðlabönkum þar sem við á og eftirlitsaðilum í ríkjum utan Evrópska efnahagssvæðisins sem eru, að mati allra viðkomandi lögbærra yfirvalda, háðir fullnægjandi þagnarskyldu sæti í samstarfshópi. Fjármálaeftirlitið skal í samráði við önnur lögbær yfirvöld í starfshópnum setja skrifleg viðmið um vinnutilhögun hans.
Samstarfshópur eftirlitsaðila skal vera vettvangur fyrir:
   1. Skipti viðkomandi yfirvalda á upplýsingum innbyrðis og við Evrópsku bankaeftirlitsstofnunina til samræmis við 21. gr. reglugerðar (ESB) nr. 1093/2010, sbr. lög um evrópskt eftirlitskerfi á fjármálamarkaði.
   2. Skiptingu verka milli viðkomandi yfirvalda.
   3. Gerð eftirlitsáætlunar, sbr. 82. gr.
   4. Samhæfingu eftirlits eininga innan samstæðu, m.a. til að tryggja samræmda beitingu varfærniskrafna og til að forðast óþarfa tvítekningu eftirlitskrafna, þ.m.t. um upplýsingagjöf, og við neyðaraðstæður.
Fari Fjármálaeftirlitið með eftirlit á samstæðugrunni stýrir það fundum samstarfshóps og boðar til hans þau yfirvöld sem hann varðar. Það skal tilkynna öllum meðlimum samstarfshóps fyrir fram um fundi með dagskrá. Það skal svo fljótt sem auðið er upplýsa þá um ákvarðanir sem teknar eru á fundum og til hvaða aðgerða er gripið.
Fari Fjármálaeftirlitið með eftirlit á samstæðugrunni skal það upplýsa Evrópsku bankaeftirlitsstofnunina um starf samstarfshóps eftirlitsaðila.
Fjármálaeftirlitið getur leitað aðstoðar Evrópsku bankaeftirlitsstofnunarinnar eða Eftirlitsstofnunar EFTA, eftir því sem við á, vegna ágreinings við annað lögbært yfirvald um starf samstarfshóps eftirlitsaðila til samræmis við 19. gr. reglugerðar (ESB) nr. 1093/2010, sbr. lög um evrópskt eftirlitskerfi á fjármálamarkaði.]1)
   1)L. 38/2022, 116. gr.
[109. gr. k. Þriðjaríkissamstæða.
Fjármálaeftirlitið skal, ef við á, meta hvort fjármálafyrirtæki sem er dótturfélag fjármálafyrirtækis, eignarhaldsfélags á fjármálasviði eða blandaðs eignarhaldsfélags í fjármálastarfsemi í ríki utan Evrópska efnahagssvæðisins og heyrir ekki undir samstæðueftirlit lögbærs yfirvalds á Evrópska efnahagssvæðinu heyri undir samstæðueftirlit eftirlitsaðila í ríki utan Evrópska efnahagssvæðisins sem er jafngilt samstæðueftirliti samkvæmt lögum þessum. Slíkt mat skal fara fram að beiðni móðurfélagsins, einhvers af eftirlitsskyldu aðilunum sem fengið hafa starfsleyfi innan Evrópska efnahagssvæðisins eða að frumkvæði Fjármálaeftirlitsins. Við matið skal Fjármálaeftirlitið taka mið af leiðbeiningum frá evrópsku bankanefndinni og hafa samráð við Evrópsku bankaeftirlitsstofnunina.
Telji Fjármálaeftirlitið að jafngilt samstæðueftirlit eftirlitsaðila í ríki utan Evrópska efnahagssvæðisins sé ekki fyrir hendi skal það, í samráði við önnur viðkomandi lögbær yfirvöld, haga eftirliti með fjármálafyrirtækinu þannig að markmiðum eftirlits á samstæðugrunni sé náð. Fjármálaeftirlitið getur í því skyni krafist þess að komið verði á fót eignarhaldsfélagi á fjármálasviði eða blönduðu eignarhaldsfélagi í fjármálastarfsemi á Evrópska efnahagssvæðinu sem falli undir samstæðueftirlit með fjármálafyrirtækinu. Fjármálaeftirlitið skal tilkynna öðrum viðkomandi lögbærum yfirvöldum, Evrópsku bankaeftirlitsstofnuninni og Eftirlitsstofnun EFTA um ráðstafanir samkvæmt þessari málsgrein.
Fjármálaeftirlitið skal starfa náið með lögbærum yfirvöldum í öðrum aðildarríkjum sem hafa eftirlit með fjármálafyrirtækjum eða útibúum sem tilheyra sömu þriðjaríkissamstæðu og fjármálafyrirtæki eða útibú hér á landi í því skyni að tryggja að öll starfsemi samstæðunnar á Evrópska efnahagssvæðinu sæti heildstæðu eftirliti, koma í veg fyrir að kröfur til samstæðna séu sniðgengnar og til að koma í veg fyrir skaðleg áhrif á fjármálastöðugleika á Evrópska efnahagssvæðinu.]1)
   1)L. 38/2022, 116. gr.
[109. gr. l. Könnun og mat og beiting eftirlitsheimilda á samstæðugrunni.
Fjármálaeftirlitið skal annast könnun og mat og beita eftirlitsheimildum samkvæmt lögum þessum á samstæðugrunni ef það á við skv. II. bálki 1. hluta reglugerðar (ESB) nr. 575/2013.]1)
   1)L. 38/2022, 116. gr.
[109. gr. m. Upplýsingaskipti innan samstæðu.
Þrátt fyrir þagnarskyldu skv. 58. gr. mega fjármálafyrirtæki og aðrir lögaðilar sem heyra undir sama eftirlit á samstæðugrunni skiptast á upplýsingum sem þeir þurfa til að fullnægja eftirlitskröfum samkvæmt lögum þessum eða hliðstæðum kröfum í öðrum aðildarríkjum.]1)
   1)L. 38/2022, 116. gr.
[109. gr. n. Listi yfir eignarhaldsfélög sem Fjármálaeftirlitið hefur eftirlit með.
Fjármálaeftirlitið skal senda lögbærum yfirvöldum annarra aðildarríkja, Evrópsku bankaeftirlitsstofnuninni og Eftirlitsstofnun EFTA lista yfir eignarhaldsfélög á fjármálasviði og blönduð eignarhaldsfélög í fjármálastarfsemi skv. 11. gr. reglugerðar (ESB) nr. 575/2013 sem það hefur eftirlit með á samstæðugrunni.]1)
   1)L. 38/2022, 116. gr.
[[109. gr. o.]1) Samningur um fjárstuðning innan samstæðu.
Félögum innan samstæðu er heimilt að gera sérstakan samning um fjárstuðning innan samstæðu. Slíkir samningar mega vera á milli eftirtalinna félaga, tveggja eða fleiri:
   1. [Móðurstofnunar]2) í aðildarríki ef [hún]2) er lánastofnun eða verðbréfafyrirtæki með stofnframlag skv. 2. mgr. 14. gr. a.
   2. [Móðurstofnunar]2) á Evrópska efnahagssvæðinu ef [hún]2) er lánastofnun eða verðbréfafyrirtæki með stofnframlag skv. 2. mgr. 14. gr. a.
   3. Eignarhaldsfélags á fjármálasviði.
   4. Blandaðs eignarhaldsfélags.
   5. Blandaðs eignarhaldsfélags í fjármálastarfsemi.
   6. Móðureignarhaldsfélags á fjármálasviði á Evrópska efnahagssvæðinu.
   7. Blandaðs móðureignarhaldsfélags í fjármálastarfsemi á Evrópska efnahagssvæðinu.
   8. Móðureignarhaldsfélags á fjármálasviði í aðildarríki.
   9. Blandaðs móðureignarhaldsfélags í fjármálastarfsemi í aðildarríki.
   10. Dótturfélags í öðru aðildarríki eða í ríki utan Evrópska efnahagssvæðisins sem er lánastofnun eða verðbréfafyrirtæki með stofnframlag skv. 2. gr. 14. gr. a eða fjármálastofnun sem fellur undir eftirlit á samstæðugrunni hér á landi.
Ekki er hægt að gera samning um fjárstuðning innan samstæðu nema ætlunin sé að hann komi einungis til framkvæmda ef hægt er að beita tímanlegum inngripum gagnvart aðila samnings eftir að samningur hefur verið gerður.
Samningur um fjárstuðning innan samstæðu og það hvaða aðilar verða samningsaðilar slíkra samninga er háð fyrirframsamþykki Fjármálaeftirlitsins skv. [109. gr. p]2) og skal að öðru leyti vera í samræmi við þessa grein og [109. gr. p – 109. gr. t].2)
Samningur um fjárstuðning skal tilgreina reglur um útreikning á endurgjaldi sem tekur til allra viðskipta samkvæmt samningnum. Fjárhæð endurgjalds skal liggja fyrir áður en fjárstuðningur er veittur. Samningur um fjárstuðning skal samræmast eftirfarandi meginreglum:
   1. Hver og einn samningsaðili gengur sjálfviljugur til samninga.
   2. Samningsaðilar hafa eigin hag að leiðarljósi.
   3. Aðili sem veitir fjárstuðning skal hafa fullnægjandi upplýsingar frá viðtakanda fjárstuðnings áður en endurgjald fyrir fjárstuðning er ákvarðað og ákvörðun tekin um að veita fjárstuðninginn.]3)
   1)L. 38/2022, 116. gr. 2)L. 38/2022, 117. gr. 3)L. 54/2018, 13. gr.
[[109. gr. p.]1) Staðfesting samnings.
Móðurfélag í efsta þrepi samstæðu á Evrópska efnahagssvæðinu skal leita samþykkis og fá staðfestingu Fjármálaeftirlitsins á samningi um fjárstuðning innan samstæðu. Með umsókn skal fylgja afrit samnings, tilgreining á samningsaðilum og önnur gögn sem Fjármálaeftirlitið telur nauðsynleg til þess að taka afstöðu til umsóknarinnar. Fjármálaeftirlitið sendir afrit af umsókninni og viðeigandi gögn til …2) lögbærra yfirvalda þeirra félaga sem áætlað er að verði aðilar að samningnum.
Staðfesting Fjármálaeftirlitsins á samningi er háð því að öll skilyrði [109. gr. r]3) séu uppfyllt.
Fjármálaeftirlitið skal leitast við að taka sameiginlega ákvörðun með lögbærum yfirvöldum um umsókn um staðfestingu á samningi þar sem tekið skal tillit til þess hvaða áhrif samningurinn kann að hafa í þeim aðildarríkjum sem samstæðan starfar í. Sameiginleg ákvörðun skal liggja fyrir innan fjögurra mánaða frá því að fullbúin umsókn barst og skal hún tilkynnt umsækjanda ásamt rökstuðningi.
Ef sameiginleg ákvörðun liggur ekki fyrir innan tímamarka skv. 3. mgr. skal Fjármálaeftirlitið taka sjálfstæða ákvörðun um umsókn skv. 1. mgr. að teknu tilliti til mats lögbærra yfirvalda. Fjármálaeftirlitið skal tilkynna umsækjanda og lögbærum yfirvöldum um ákvörðunina.
Fjármálaeftirlitið skal fresta ákvörðun skv. 4. mgr. hafi eitthvert þeirra lögbæru yfirvalda sem aðild eiga að málinu vísað ákvörðun Fjármálaeftirlitsins til Eftirlitsstofnunar EFTA eða eftir atvikum Evrópsku bankaeftirlitsstofnunarinnar í samræmi við lög nr. 24/2017 fyrir lok tímafrests skv. 3. mgr. og skal Fjármálaeftirlitið í þeim tilvikum bíða ákvörðunar sem Eftirlitsstofnun EFTA kann að taka á grundvelli [reglugerðar (ESB) nr. 1093/2010].3) Ákvörðun Fjármálaeftirlitsins skal vera í samræmi við ákvörðun Eftirlitsstofnunar EFTA.]4)
   1)L. 38/2022, 116. gr. 2)L. 91/2019, 52. gr. 3)L. 38/2022, 118. gr. 4)L. 54/2018, 13. gr.
[[109. gr. q.]1) Samþykki hluthafa.
Að fenginni staðfestingu Fjármálaeftirlitsins skv. [109. gr. p]2) skulu allir aðilar samnings um fjárstuðning innan samstæðu leggja samninginn fyrir hluthafafund til samþykktar eða synjunar. Samningur telst bindandi fyrir fyrirtæki þegar hann hefur verið samþykktur á hluthafafundi.
Stjórn skal gera hluthöfum grein fyrir viðskiptum samkvæmt samningnum á hverju ári á aðalfundi félagsins.]3)
   1)L. 38/2022, 116. gr. 2)L. 38/2022, 119. gr. 3)L. 54/2018, 13. gr.
[[109. gr. r.]1) Skilyrði fyrir fjárstuðningi innan samstæðu.
Heimilt er að veita fjárstuðning skv. [109. gr. o]2) ef öll eftirfarandi skilyrði eru uppfyllt:
   1. Ástæða er til að ætla að fjárstuðningur sé mikilvægur til þess að leysa úr fjárhagserfiðleikum viðtakanda.
   2. Fjárstuðningi er ætlað að viðhalda eða rétta af fjárhag samstæðunnar eða félaga innan samstæðu, og í þágu þess sem veitir fjárstuðninginn.
   3. Fjárstuðningur er í samræmi við skilmála samningsins, þ.m.t. um endurgjald skv. 4. mgr. [109. gr. o].2)
   4. Verulegar líkur eru á því að endurgjald fyrir veittan fjárstuðning verði greitt.
   5. Fjárstuðningur stofnar ekki í hættu lausafjárstöðu eða gjaldfærni fyrirtækis sem veitir fjárstuðning.
   6. Fjárstuðningur ógnar ekki fjármálastöðugleika.
   7. Fyrirtæki sem veitir fjárstuðning uppfyllir allar kröfur laga þessara og stjórnvaldsfyrirmæla settra á grundvelli þeirra um eigið fé, laust fé og stórar áhættuskuldbindingar og ekki er fyrirsjáanlegt að fyrirtæki brjóti gegn lögum með veitingu fjárstuðnings. Fjármálaeftirlitið getur veitt undanþágu frá þessu skilyrði.
   [8. Fjárstuðningur veikir ekki grundvöll skilabærni samkvæmt lögum um skilameðferð lánastofnana og verðbréfafyrirtækja hjá því fyrirtæki sem veitir fjárstuðninginn.]3)
Skilyrði fyrir fjárstuðningi innan samstæðu skv. 1. mgr. skal afmarka nánar með [reglum4) Seðlabanka Íslands sem skulu a.m.k. kveða]3) á um nánari skilyrði skv. 1., 3. og 5. tölul. 1. mgr.]5)
   1)L. 38/2022, 116. gr. 2)L. 38/2022, 120. gr. 3)L. 70/2020, 103. gr. 4)Rgl. 666/2021. 5)L. 54/2018, 13. gr.
[[109. gr. s.]1) Ákvörðun um fjárstuðning.
Ákvörðun um að veita fjárstuðning sem byggist á samningi skv. 1. mgr. [109. gr. o]2) skal tekin af stjórn þess fyrirtækis sem veitir fjárstuðning. Ákvörðun stjórnar skal vera rökstudd og skulu markmið fjárstuðningsins koma fram. Þá skal sérstaklega gera grein fyrir því hvernig ákvörðunin samræmist skilyrðum skv. [109. gr. r].2)
Stjórn þess fyrirtækis sem fjárstuðningur beinist að skal taka ákvörðun um viðtöku fjárstuðningsins með þeim skilmálum sem leiðir af samningi skv. 1. mgr. [109. gr. o].2)
Stjórn fyrirtækis sem hyggst veita fjárstuðning skv. [109. gr. o]2) skal tilkynna það eftirfarandi aðilum áður en fjárstuðningur er veittur:
   1. Fjármálaeftirlitinu.
   2.3)
   3. Eftirlitsaðila á samstæðugrunni, ef hann er annar en Fjármálaeftirlitið.
   4. Lögbærum yfirvöldum í því aðildarríki þar sem viðtakandi fjárstuðningsins er staðsettur, ef þau eru önnur en þau sem koma fram í 1. eða 2. tölul.
   5. Eftir atvikum Eftirlitsstofnun EFTA og/eða Evrópsku bankaeftirlitsstofnuninni.
Með tilkynningu skv. 3. mgr. skal fylgja rökstudd ákvörðun stjórnar skv. 1. mgr. og nákvæm lýsing á fyrirhuguðum fjárstuðningi, þ.m.t. afrit af samningnum.
Fjármálaeftirlitið hefur að hámarki fimm virka daga frá því að fullbúin tilkynning skv. 3. mgr. barst til að hafna eða takmarka fjárstuðning innan samstæðu með rökstuddri ákvörðun. Höfnun eða takmörkun á fjárstuðningi skal grundvallast á því að skilyrði [109. gr. r]2) séu ekki uppfyllt. …3) Ákvörðun Fjármálaeftirlitsins um að heimila, hafna eða takmarka fjárstuðning innan samstæðu skal án tafar tilkynnt aðilum skv. 2.–5. tölul. 3. mgr.
Ef eftirlitsaðili á samstæðugrunni eða lögbær yfirvöld viðtakanda fjárstuðnings, þ.m.t. Fjármálaeftirlitið, fallast ekki á takmörkun eða synjun á fjárstuðningi geta viðkomandi yfirvöld innan tveggja daga frá móttöku tilkynningar vísað ágreiningi til Eftirlitsstofnunar EFTA eða eftir atvikum Evrópsku bankaeftirlitsstofnunarinnar í samræmi við lög nr. 24/2017.
Ef Fjármálaeftirlitið hvorki hafnar né takmarkar fjárstuðning innan samstæðu innan tímafrests skv. 5. mgr. er fyrirtæki heimilt að veita fjárstuðning í samræmi við tilkynningu skv. 3. mgr.
Ákvörðun stjórnar fyrirtækis um að veita fjárstuðning innan samstæðu skal tilkynnt til aðila skv. 1.–5. tölul. 3. mgr.
Ef Fjármálaeftirlitið, sem eftirlitsaðili á samstæðugrunni, hafnar eða takmarkar fjárstuðning innan samstæðu skv. 5. mgr., og endurbótaáætlun samstæðu skv. 82. gr. d gerir ráð fyrir slíkum fjárstuðningi, getur lögbært yfirvald í því aðildarríki þar sem fyrirtækið sem veita átti fjárstuðningi viðtöku er staðsett óskað eftir því að Fjármálaeftirlitið hafi frumkvæði að því að endurbótaáætlun samstæðu skv. 82. gr. d verði endurskoðuð, sbr. 82. gr. c. Ef endurbótaáætlun hefur verið gerð fyrir dótturfélag skv. 4. mgr. 82. gr. d og Fjármálaeftirlitið hefur hafnað eða takmarkað fjárstuðning innan samstæðu skv. 5. mgr. getur Fjármálaeftirlitið krafist þess að fyrirtæki uppfæri endurbótaáætlun og afhendi Fjármálaeftirlitinu.]4)
   1)L. 38/2022, 116. gr. 2)L. 38/2022, 121. gr. 3)L. 91/2019, 53. gr. 4)L. 54/2018, 13. gr.
[[109. gr. t.]1) Opinber birting.
Fyrirtæki skal greina frá því opinberlega hvort það er aðili að samningi um fjárstuðning innan samstæðu skv. [109. gr. o].2) Ef fyrirtæki er aðili að slíkum samningi skal það gera grein fyrir aðilum samnings og helstu ákvæðum samnings í samandregnu formi. Upplýsingar um samninginn skulu birtar árlega, þ.m.t. breytingar sem kunna að verða á skilmálum eða aðild að samningnum. Um opinbera birtingu gilda að öðru leyti ákvæði reglugerðar [(ESB) nr. 575/2013].2)
[Seðlabanki Íslands setur reglur3)]4) um innihald og form birtinga skv. 1. mgr.]5)
   1)L. 38/2022, 116. gr. 2)L. 38/2022, 122. gr. 3)Rgl. 376/2021. 4)L. 70/2020, 103. gr. 5)L. 54/2018, 13. gr.
[C. Samstarf við erlend yfirvöld.]1)
   1)L. 38/2022, 123. gr.
[109. gr. u. Samstarf innan evrópska eftirlitskerfisins á fjármálamarkaði.
Fjármálaeftirlitið skal við framkvæmd laga þessara og stjórnvaldsfyrirmæla sem sett eru á grundvelli þeirra taka tillit til samleitni á Evrópska efnahagssvæðinu að því er varðar eftirlitstæki og eftirlitsaðferðir við beitingu laga og stjórnsýslufyrirmæla sem samþykkt eru samkvæmt tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2013/36/ESB og reglugerð (ESB) nr. 575/2013. Í því skyni skal Fjármálaeftirlitið:
   1. Vinna náið með lögbærum yfirvöldum annarra aðildarríkja og Eftirlitsstofnun EFTA af heilindum og á grundvelli trausts og fullrar gagnkvæmrar virðingar, einkum til þess að tryggja viðeigandi og áreiðanlegt upplýsingaflæði milli þeirra.
   2. Vinna með og taka þátt í starfsemi Evrópsku bankaeftirlitsstofnunarinnar og eftir atvikum samstarfshópum eftirlitsaðila.
   3. Kappkosta að fara eftir viðmiðunarreglum, tilmælum og viðvörunum sem Evrópska bankaeftirlitsstofnunin eða Evrópska kerfisáhætturáðið gefur út skv. 16. gr. reglugerðar (ESB) nr. 1093/2010 eða 16. gr. reglugerðar (ESB) nr. 1092/2010, sbr. lög um evrópskt eftirlitskerfi á fjármálamarkaði.
   4. Hafa náið samstarf við Evrópska kerfisáhætturáðið.]1)
   1)L. 38/2022, 123. gr.
[109. gr. v. Samstarf við önnur lögbær yfirvöld.
Hafi íslenskt fjármálafyrirtæki með höndum starfsemi í öðru aðildarríki eða fjármálafyrirtæki frá öðru aðildarríki starfsemi á Íslandi, einkum ef það starfrækir útibú, skal Fjármálaeftirlitið eiga náið samstarf við lögbært yfirvald í viðkomandi aðildarríki um eftirlit með fyrirtækinu. Fjármálaeftirlitið skal láta því í té allar upplýsingar um stjórnun og eignarhald fyrirtækisins sem eru líklegar til að koma að gagni við eftirlitið og athugun á skilyrðum fyrir starfsleyfi, einkum varðandi lausafjárstöðu, gjaldfærni, innstæðutryggingar, takmarkanir á stórum áhættuskuldbindingum, aðra þætti sem geta haft áhrif á kerfisáhættu sem af fyrirtækinu stafar, stjórnunarkerfi, reikningsskil og innri eftirlitskerfi.
Hafi íslenskt fjármálafyrirtæki með höndum starfsemi í öðru aðildarríki skal Fjármálaeftirlitið tafarlaust upplýsa lögbært yfirvald í aðildarríkinu ef upp kemur lausafjárvandi hjá fyrirtækinu eða fyrirséð er að svo verði og láta yfirvaldinu í té upplýsingar um undirbúning og framkvæmd endurbótaáætlunar og eftirlitsráðstafanir sem gripið er til í því samhengi. Starfræki íslenska fjármálafyrirtækið útibú í ríkinu skal Fjármálaeftirlitið einnig tafarlaust veita lögbæra yfirvaldinu allar upplýsingar og niðurstöður varðandi lausafjáreftirlit með útibúinu sem skipta máli fyrir vernd innstæðueigenda eða fjárfesta í því ríki.
Telji Fjármálaeftirlitið að lögbært yfirvald í öðru aðildarríki þar sem íslenskt fjármálafyrirtæki hefur með höndum starfsemi hafi ekki gert viðeigandi ráðstafanir til að taka mið af upplýsingum frá Fjármálaeftirlitinu getur Fjármálaeftirlitið, að undangenginni tilkynningu þar um til yfirvaldsins og Evrópsku bankaeftirlitsstofnunarinnar, eða Eftirlitsstofnunar EFTA ef við á, gert viðeigandi ráðstafanir til að koma í veg fyrir brot til að vernda innstæðueigendur, fjárfesta og aðra sem nýta þjónustu eða til að standa vörð um stöðugleika fjármálakerfisins.
Ef Fjármálaeftirlitið er ósammála ráðstöfunum sem lögbært yfirvald í öðru aðildarríki grípur til vegna starfsemi íslensks fjármálafyrirtækis þar getur Fjármálaeftirlitið leitað aðstoðar Evrópsku bankaeftirlitsstofnunarinnar eða Eftirlitsstofnunar EFTA, eftir því sem við á, til samræmis við 19. gr. reglugerðar (ESB) nr. 1093/2010, sbr. lög um evrópskt eftirlitskerfi á fjármálamarkaði.
Fjármálaeftirlitið getur leitað aðstoðar Evrópsku bankaeftirlitsstofnunarinnar eða Eftirlitsstofnunar EFTA, eftir því sem við á, til samræmis við 19. gr. reglugerðar (ESB) nr. 1093/2010, sbr. lög um evrópskt eftirlitskerfi á fjármálamarkaði, hafi ósk þess um samstarf, einkum um upplýsingaskipti, við lögbært yfirvald í öðru aðildarríki verið hafnað eða ekki brugðist við henni innan hæfilegs frests.]1)
   1)L. 38/2022, 123. gr.
[109. gr. w. Samráð við önnur lögbær yfirvöld.
Fjármálaeftirlitið skal hafa samráð við önnur lögbær yfirvöld áður en það tekur ákvörðun um atriði sem hafa verulega þýðingu fyrir eftirlitshlutverk þeirra og varða:
   a. breytingar á eignarhaldi, skipulagi eða stjórnarháttum lánastofnana í samstæðu sem þarfnast samþykkis eða leyfis Fjármálaeftirlitsins eða
   b. umtalsverð viðurlög eða sérstakar ráðstafanir Fjármálaeftirlitsins, þ.m.t. krafa um hærri eiginfjárgrunn skv. 1. tölul. 3. mgr. 107. gr. a og takmörkun á notkun þróuðu mæliaðferðarinnar við útreikninga á kröfum vegna eiginfjárgrunns skv. 2. mgr. 312. gr. reglugerðar (ESB) nr. 575/2013.
Fjármálaeftirlitið skal ávallt hafa samráð við eftirlitsaðila á samstæðugrunni um viðurlög og ráðstafanir skv. b-lið 1. mgr.
Fjármálaeftirlitið getur ákveðið að hafa ekki samráð við önnur lögbær yfirvöld í brýnum málum eða þegar slíkt samráð getur teflt virkni ákvarðana í tvísýnu. Fjármálaeftirlitið skal þá strax að lokinni ákvörðun sinni tilkynna öðrum lögbærum yfirvöldum um hana.]1)
   1)L. 38/2022, 123. gr.
[109. gr. x. Upplýsingagjöf til annarra lögbærra yfirvalda.
Fjármálaeftirlitið skal að ósk annarra lögbærra yfirvalda veita þeim upplýsingar sem skipta máli fyrir framkvæmd starfa þeirra samkvæmt tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2013/36/ESB eða reglugerð (ESB) nr. 575/2013 og veita þeim að eigin frumkvæði nauðsynlegar upplýsingar. Upplýsingar um eftirfarandi teljast nauðsynlegar:
   1. Atriði sem geta haft veigamikil áhrif á mat á fjárhagslegu heilbrigði fjármálafyrirtækis eða fjármálastofnunar í viðkomandi aðildarríki.
   2. Rekstrarform og stjórnunarkerfi samstæðu og eininga sem tilheyra henni, þar á meðal mikilvægra útibúa, og lögbær yfirvöld þeirra.
   3. Aðferðir við öflun upplýsinga frá fjármálafyrirtækjum í samstæðu og sannprófun á þeim upplýsingum.
   4. Óhagstæða þróun hjá fjármálafyrirtækjum eða öðrum einingum í samstæðu sem gæti haft alvarleg áhrif á fjármálafyrirtækin.
   5. Umtalsverð viðurlög og sérstakar ráðstafanir sem Fjármálaeftirlitið grípur til samkvæmt lögum þessum, þ.m.t. krafa um hærri eiginfjárgrunn skv. 1. tölul. 3. mgr. 107. gr. a og takmörkun á notkun þróuðu mæliaðferðarinnar skv. 2. mgr. 312. gr. reglugerðar (ESB) nr. 575/2013.
Fari Fjármálaeftirlitið með eftirlit á samstæðugrunni með móðurstofnun á Evrópska efnahagssvæðinu og fjármálafyrirtækjum sem móðureignarhaldsfélög á fjármálasviði á Evrópska efnahagssvæðinu eða blönduð móðureignarhaldsfélög á fjármálasviði á Evrópska efnahagssvæðinu ráða yfir skal það veita öðrum lögbærum yfirvöldum sem hafa eftirlit með dótturfélögum þessara móðurfélaga í té allar viðeigandi upplýsingar. Við ákvörðun á umfangi viðeigandi upplýsinga skal Fjármálaeftirlitið taka tillit til mikilvægis þessara dótturfélaga í fjármálakerfum viðkomandi aðildarríkja.
Fjármálaeftirlitið skal tilkynna viðeigandi erlendum yfirvöldum um greiðslustöðvun, nauðasamninga og gjaldþrot innlendra lánastofnana sem reka útibú í öðrum ríkjum á Evrópska efnahagssvæðinu.
Fjármálaeftirlitið getur leitað aðstoðar Evrópsku bankaeftirlitsstofnunarinnar eða Eftirlitsstofnunar EFTA, eftir því sem við á, til samræmis við 19. gr. reglugerðar (ESB) nr. 1093/2010, sbr. lög um evrópskt eftirlitskerfi á fjármálamarkaði, veiti annað lögbært yfirvald því ekki nauðsynlegar upplýsingar eða hafni eða verði ekki innan hæfilegs tíma við ósk þess um samstarf, einkum varðandi upplýsingaskipti.]1)
   1)L. 38/2022, 123. gr.
[109. gr. y. Staðreynsla upplýsinga.
Fjármálaeftirlitið skal að ósk annars lögbærs yfirvalds staðreyna upplýsingar frá innlendu fjármálafyrirtæki, eignarhaldsfélagi á fjármálasviði, blönduðu eignarhaldsfélagi í fjármálastarfsemi, fjármálastofnun, félagi í hliðarstarfsemi, blönduðu eignarhaldsfélagi eða dótturfélagi skv. 109. gr. i eða 109. gr. bb, enda hafi Fjármálaeftirlitið heimild til þess. Fjármálaeftirlitið getur leyft viðkomandi yfirvaldi að staðreyna upplýsingarnar sjálft eða falið endurskoðanda eða öðrum sérfræðingi að gera það. Fjármálaeftirlitið getur farið fram á hið sama við annað lögbært yfirvald vegna erlends aðila skv. 1. málsl. eftir því sem við á.]1)
   1)L. 38/2022, 123. gr.
[109. gr. z. Athuganir.
Fjármálaeftirlitið getur framkvæmt athugun í útibúi fjármálafyrirtækis með staðfestu í öðru ríki innan Evrópska efnahagssvæðisins og krafið það um upplýsingar, að höfðu samráði við lögbært yfirvald í viðkomandi aðildarríki, ef það getur haft þýðingu fyrir fjármálastöðugleika hér á landi. Fjármálaeftirlitið skal upplýsa yfirvaldið um niðurstöður sem geta haft þýðingu fyrir mat á áhættu fyrirtækisins eða fjármálastöðugleika hér á landi.
Lögbærum yfirvöldum í ríki innan Evrópska efnahagssvæðisins er heimilt að framkvæma athugun í útibúum þarlendra fyrirtækja hér á landi að undangenginni tilkynningu þess efnis til Fjármálaeftirlitsins.
Gerist fjármálafyrirtæki, sem hlotið hefur starfsleyfi hér á landi og stundar starfsemi í öðru ríki innan Evrópska efnahagssvæðisins, brotlegt við lög þess ríkis, og lögbær yfirvöld þess ríkis grípa til ráðstafana sambærilegra þeim sem greinir í 34. gr., skal Fjármálaeftirlitið aðstoða þarlend lögbær yfirvöld við samskipti þeirra við stjórnendur hlutaðeigandi fjármálafyrirtækis.
Ákvæði þessarar greinar gilda um lögbær svissnesk og færeysk yfirvöld eftir því sem við á, enda liggi fyrir samstarfssamningur á milli þeirra og Seðlabanka Íslands.]1)
   1)L. 38/2022, 123. gr.
[109. gr. aa. Upplýsingagjöf til eftirlitsaðila og annarra aðila.
Fjármálaeftirlitinu er heimilt að veita eftirtöldum aðilum, hér á landi eða í öðrum ríkjum á Evrópska efnahagssvæðinu, upplýsingar sem þeir þurfa til að gegna störfum sínum þótt þær séu háðar þagnarskyldu ef um þær gildir hliðstæð þagnarskylda hjá viðkomandi aðila:
   1. Stofnunum Fríverslunarsamtaka Evrópu og hinum evrópsku eftirlitsstofnunum á fjármálamarkaði, sbr. lög um evrópskt eftirlitskerfi á fjármálamarkaði.
   2. Stjórnvöldum sem hafa eftirlit með fjármálafyrirtækjum eða öðrum aðilum á fjármálamarkaði eða eftirlit með fjármálamörkuðum, þar á meðal greiðslukerfum.
   3. Stjórnvöldum eða öðrum aðilum sem bera ábyrgð á að viðhalda stöðugleika fjármálakerfisins í aðildarríkjum með því að beita þjóðhagsvarúðarreglum.
   4. Stjórnvöldum eða öðrum aðilum sem fara með endurskipulagningarráðstafanir sem miða að því að vernda stöðugleika fjármálakerfisins.
   5. Stofnanaverndarkerfum skv. 7. mgr. 113. gr. reglugerðar (ESB) nr. 575/2013 og stjórnvöldum sem bera ábyrgð á eftirliti með þeim.
   6. Aðilum sem fjalla um slit eða gjaldþrot fjármálafyrirtækja eða hliðstæða meðferð og stjórnvöldum sem bera ábyrgð á eftirliti með þeim aðilum.
   7. Aðilum sem annast lögboðna endurskoðun á reikningum fjármálafyrirtækja, vátryggingafélaga og fjármálastofnana og stjórnvöldum sem bera ábyrgð á eftirliti með þeim aðilum.
   8. Stjórnvöldum sem hafa eftirlit með aðgerðum gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka og skrifstofum fjármálagreininga lögreglu.
   9. Stjórnvöldum eða öðrum aðilum sem bera ábyrgð á beitingu reglna um skipulagslegan aðskilnað innan bankasamstæðu.
   10. Aðilum sem stjórna innstæðutryggingakerfum eða bótakerfum fyrir fjárfesta.
   11. Aðilum sem hafa það hlutverk samkvæmt lögum að ljóstra upp um og rannsaka brot á félagarétti í því skyni að stuðla að stöðugu og öruggu fjármálakerfi.
   12. Seðlabönkum og öðrum stofnunum sem gegna svipuðu hlutverki á sviði peningamála þegar upplýsingarnar eiga við um framkvæmd lögboðinna verkefna þeirra, þ.m.t. framkvæmd peningamálastefnu og tengdra lausafjárráðstafana, eftirlit með greiðslu-, greiðslujöfnunar- og uppgjörskerfum og að standa vörð um fjármálakerfið.
   13. Greiðslujöfnunarstöðvum eða sambærilegum stofnunum sem er heimilt samkvæmt landslögum að annast greiðslujöfnunar- eða uppgjörsþjónustu ef upplýsingagjöfin er nauðsynleg til að tryggja snurðulausa starfsemi þessara stofnana í tengslum við vanskil eða hugsanleg vanskil af hálfu markaðsaðila.
Fjármálaeftirlitinu er heimilt að veita Alþjóðagjaldeyrissjóðnum og Alþjóðabankanum vegna áætlunar um mat á fjármálageiranum, Alþjóðagreiðslubankanum vegna megindlegra áhrifamata og Alþjóðafjármálastöðugleikaráðinu vegna eftirlitshlutverks þess upplýsingar sem stofnanirnar þurfa til að gegna störfum sínum þótt þær séu háðar þagnarskyldu ef um þær gildir hliðstæð þagnarskylda hjá viðkomandi stofnun. Veita má upplýsingarnar í samandregnu eða ópersónugreinanlegu formi að fenginni skýrt afmarkaðri beiðni sem tilgreinir hvað gert verði við upplýsingarnar og hvaða einstaklingar fái aðgang að þeim en ella má aðeins veita upplýsingarnar á starfsstöð Fjármálaeftirlitsins.
Fjármálaeftirlitið skal senda Evrópsku bankaeftirlitsstofnuninni heiti aðila skv. 5.–7. og 11. tölul. 1. mgr. hér á landi.
Seðlabanki Íslands má semja við eftirlitsstjórnvöld eða aðra aðila skv. 1. mgr. í ríkjum utan Evrópska efnahagssvæðisins um skipti á upplýsingum í þágu eftirlits, en þó því aðeins að gætt sé þagnarskyldu í samræmi við ákvæði þessarar greinar.
Upplýsingar sem fengnar eru frá lögbærum yfirvöldum annarra aðildarríkja samningsins um Evrópska efnahagssvæðið eða við vettvangsskoðun eða aðra athugun í öðru aðildarríki samningsins má aðeins afhenda með skýlausu samþykki yfirvaldanna sem afhentu upplýsingarnar eða lögbærra yfirvalda ríkisins þar sem athugunin fór fram og einungis til þeirra nota sem þau hafa samþykkt.]1)
   1)L. 38/2022, 123. gr.
[109. gr. bb. Samstarf við eftirlitsaðila á vátryggingamarkaði.
Fjármálaeftirlitið skal vinna náið með yfirvöldum í öðrum aðildarríkjum sem hafa eftirlit með vátryggingafélögum eða öðrum fyrirtækjum sem bjóða upp á fjárfestingarþjónustu sem er háð starfsleyfi og eru undir yfirráðum innlends fjármálafyrirtækis, eignarhaldsfélags á fjármálasviði, blandaðs eignarhaldsfélags í fjármálastarfsemi eða blandaðs eignarhaldsfélags, m.a. með upplýsingaskiptum. Sama máli gegnir ef innlent vátryggingafélag eða annað fyrirtæki sem býður upp á fjárfestingarþjónustu sem er háð starfsleyfi er undir yfirráðum fjármálafyrirtækis, eignarhaldsfélags á fjármálasviði, blandaðs eignarhaldsfélags í fjármálastarfsemi eða blandaðs eignarhaldsfélags í öðru aðildarríki.]1)
   1)L. 38/2022, 123. gr.
[109. gr. cc. Samstarf við eftirlitsstjórnvald fjármálasamsteypu.
Fjármálaeftirlitið skal, ef það fer með eftirlit á samstæðugrunni með samstæðu sem blandað eignarhaldsfélag í fjármálastarfsemi stýrir en annað yfirvald telst eftirlitsstjórnvald fjármálasamsteypunnar, sbr. 25. gr. laga um viðbótareftirlit með fjármálasamsteypum, nr. 61/2017, vinna náið með eftirlitsstjórnvaldinu á grundvelli skriflegs samkomulags. Sama máli gegnir ef Fjármálaeftirlitið telst eftirlitsstjórnvald fjármálasamsteypunnar en annað yfirvald fer með eftirlitið á samstæðugrunni.]1)
   1)L. 38/2022, 123. gr.
[109. gr. dd. Samstarf um varnir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka.
Fjármálaeftirlitið skal vinna náið með skrifstofum fjármálagreininga lögreglu og yfirvöldum sem hafa eftirlit með því að tilkynningarskyldir aðilar skv. 1. og 2. tölul. 1. mgr. 2. gr. tilskipunar (ESB) 2015/849, sbr. lög um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka, fari að þeirri tilskipun og veita þeim upplýsingar sem skipta máli fyrir verkefni þeirra samkvæmt þeirri tilskipun, tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2013/36/ESB og reglugerð (ESB) nr. 575/2013, enda hamli það ekki yfirstandandi rannsókn eða meðferð máls.]1)
   1)L. 38/2022, 123. gr.
[D. Eftirlit með notkun innri aðferða.]1)
   1)L. 38/2022, 123. gr.
[109. gr. ee. Heimild til að nota innri aðferðir.
Fjármálafyrirtækjum er heimilt, að fengnu samþykki Fjármálaeftirlitsins, að beita innri aðferðum við mat á áhættuþáttum í útreikningi á áhættugrunni.]1)
   1)L. 38/2022, 123. gr.
[109. gr. ff. Eftirlit með notkun innri aðferða.
Fjármálaeftirlitið skal a.m.k. árlega meta gæði innri aðferða fjármálafyrirtækja. Fjármálaeftirlitið skal einkum meta hvort þær feli í sér verulegt eða kerfisbundið vanmat á eiginfjárþörf og hvort óeðlilegur munur sé á eiginfjárkröfum samkvæmt mismunandi innri aðferðum. Fjármálaeftirlitið skal krefjast úrbóta ef svo er en gæta þess þó að þær leiði ekki til stöðlunar aðferða eða hjarðhegðunar eða feli í sér slæma hvata.
Fjármálaeftirlitið skal a.m.k. þriðja hvert ár meta hvort fjármálafyrirtæki sem hefur heimild til að beita innri aðferðum við ákvörðun eiginfjárkrafna fullnægi þeim kröfum sem heimildinni fylgja, m.a. með tilliti til breytinga á starfsemi fyrirtækisins og notkunar aðferðanna fyrir nýjar afurðir, og hvort tækni og framkvæmd fyrirtækisins samræmist viðurkenndri aðferðafræði.
Fullnægi fyrirtækið ekki lengur skilyrðum fyrir því að beita innri aðferðum við ákvörðun eiginfjárkrafna eða mæti innri aðferðir fyrirtækisins ekki með fullnægjandi hætti áhættu þess, og fyrirtækið getur ekki sýnt fram á að áhrif þess séu óveruleg, skal Fjármálaeftirlitið krefjast þess að fyrirtækið leggi fram tímasetta áætlun um úrbætur. Fjármálaeftirlitið skal krefjast breytinga á áætluninni ef það telur ólíklegt að hún leiði til þess að bætt verði með fullnægjandi hætti úr annmörkunum innan hæfilegs frests. Dugi slík áætlun ekki til skal Fjármálaeftirlitið gera viðeigandi ráðstafanir til að bæta úr annmörkunum, svo sem að krefjast hærri margföldunarstuðla eða viðbótareiginfjár, eða afturkalla heimild fyrirtækisins til að beita innri aðferðum við ákvörðun eiginfjárkrafna eða takmarka hana við þau svið þar sem fullnægjandi úrbótum verður komið við innan hæfilegs frests.
Ef afturvirkar prófanir á innri aðferðum skv. 366. gr. reglugerðar (ESB) nr. 575/2013 leiða í ljós fjölda frávika sem gefur til kynna að markaðsáhættulíkön fyrirtækisins séu ekki nægjanlega áreiðanleg skal Fjármálaeftirlitið krefjast úrbóta þegar í stað eða afturkalla heimild fyrirtækisins til að styðjast við viðkomandi líkön.]1)
   1)L. 38/2022, 123. gr.
[109. gr. gg. Hvatning til að þróa innri aðferðir.
Fjármálaeftirlitið skal hvetja fjármálafyrirtæki sem eru mikilvæg, með tilliti til stærðar, eðlis og umfangs rekstrar og þess hversu margþætt starfsemi þeirra er, til að þróa eigin hæfni, aðferðir og getu til að meta útlána- og útgefandaáhættu og auka notkun innramatsaðferða við útreikning á eiginfjárkröfum vegna útlánaáhættu ef áhættuskuldbindingar þeirra eru verulegar og þær hafa mikinn fjölda veigamikilla mótaðila.
Fjármálaeftirlitið skal hvetja fjármálafyrirtæki, að því marki sem það samræmist stærð þeirra, eðli og umfangi rekstrar og því hversu margþætt starfsemi þeirra er, til að þróa eigin hæfni, aðferðir og getu til að meta mótaðilaáhættu og auka notkun eigin líkana við útreikning á eiginfjárkröfum vegna mótaðilaáhættu vegna skuldagerninga í veltubók og vegna hættu á vanskilum og breytingum á lánshæfismati ef áhættuskuldbindingar þeirra vegna mótaðilaáhættu eru verulegar og þau eiga mikinn fjölda verulegra staðna í skuldagerningum mismunandi útgefenda.]1)
   1)L. 38/2022, 123. gr.
[109. gr. hh. Upplýsingar um notkun innri aðferða.
Fjármálafyrirtæki sem hefur leyfi til að nota innri aðferðir við útreikning á áhættuvegnum áhættuskuldbindingum eða eiginfjárkröfum skal a.m.k. árlega tilkynna Fjármálaeftirlitinu og Evrópsku bankaeftirlitsstofnuninni um niðurstöður útreikninga á áhættuskuldbindingum eða stöðum í viðmiðunareignasöfnum, að undanskildum útreikningum vegna rekstraráhættu. Það skal jafnframt greina Fjármálaeftirlitinu frá þeirri aðferðafræði sem útreikningarnir studdust við.
Kjósi Fjármálaeftirlitið að þróa sérstök eignasöfn skal það gera það í samráði við Evrópsku bankaeftirlitsstofnunina og tryggja að fjármálafyrirtæki greini frá niðurstöðum útreikninga aðskilið frá niðurstöðum útreikninga fyrir eignasöfn Evrópsku bankaeftirlitsstofnunarinnar.]1)
   1)L. 38/2022, 123. gr.

XIV. kafli. Viðurlög.
[110. gr.]1) [Stjórnvaldssektir.
[Fjármálaeftirlitið getur lagt stjórnvaldssektir á hvern þann sem brýtur gegn [eftirtöldum ákvæðum laga þessara og reglum settum á grundvelli þeirra]:2)
   1. 3. gr. um að starfsleyfisskyld starfsemi skuli ekki stunduð án starfsleyfis,
   2. 8. gr. um tilkynningar um breytingar á áður skráðum upplýsingum um fjármálafyrirtæki,
   3. 1. mgr. 12. gr. um einkarétt [lánastofnana]3) til að nota í firma sínu eða til nánari skýringar á starfsemi sinni heiti þeirrar tegundar [lánastofnana]3) sem fyrirtækið hefur starfsleyfi fyrir,
   4. …,3)
   5. 17. gr. a um skyldu til að halda sérstaka skuldbindingaskrá og upplýsingagjöf til Fjármálaeftirlitsins,
   6. 2. mgr. 17. gr. b um að eftirlitsskyldur aðili skuli fara að fyrirmælum Fjármálaeftirlitsins,
   [7. [18. gr. um að upplýsa skuli um áhættu, áhættustýringu og eigin- og lausafjárstöðu fyrirtækisins og önnur atriði sem um getur í 8. hluta reglugerðar (ESB) nr. 575/2013]3)],4)
   [8.]4) 1. og 2. mgr. 19. gr. um að starfa í samræmi við eðlilega og heilbrigða viðskiptahætti og venjur á fjármálamarkaði …2)3) [og 4. mgr. 19. gr. um að birta ekki eða uppfæra upplýsingar á vefsvæði um nöfn og ríkisfang þeirra sem eiga umfram 1% hlutafjár eða stofnfjár í fyrirtækinu],5)
   [9. 1. mgr. 19. gr. a um að hafa aðgengilegar upplýsingar um úrskurðar- og réttarúrræði],3)
   [10.]3) 2. mgr. 21. gr. um tilkynningarskyldu um hliðarstarfsemi,
   [11.]3) 22. gr. um tímabundna starfsemi og yfirtöku eigna,
   [12.]3)6)
   [13.]3) 29. gr. um eignarhald og tilkynningarskyldu til Fjármálaeftirlitsins,
   [14.]3) 1. og 2. mgr. 29. gr. a um bann við lánveitingum eða öðrum fyrirgreiðslum,
   15.–18.3)
   [19.]3) 1. mgr. 31. gr., 32. gr., [32. gr. a]3) og 33. gr. um starfsemi erlendra fjármálafyrirtækja hér á landi,
   [20.]3) 1. og 5. mgr. 36. gr., 1. og 4. mgr. 37. gr., [1. og 5. mgr. 37. gr. a],3) 1. mgr. 38. gr. og 39. gr. um starfsemi innlendra fjármálafyrirtækja erlendis,
   [21.]3) [1. mgr.]3) 40. gr. um tilkynningu um virkan eignarhlut,
   [22.]3)7)
   [23.]3) 47. gr. um tilkynningu eiganda [um aðilaskipti að virkum eignarhlut],3)
   [24.]3) [1. mgr. 48. gr. um tilkynningu lánastofnunar um aðilaskipti að virkum eignarhlut],3)
   [25. 2. mgr. 48. gr. um tilkynningu skráðrar lánastofnunar um eigendur virkra eignarhluta],3)
   [26.]3) 49. gr. [um upplýsingaskyldu og viðvarandi mat á hæfi eiganda virkra eignarhluta],7)
   [27. 1. mgr. 49. gr. b um skyldu eignarhaldsfélaga til að sækja um samþykki,
   28. 49. gr. d um skilyrði fyrir samþykki eignarhaldsfélaga,
   29. 1. mgr. 50. gr. um fyrirkomulag stjórnarhátta, ferli og kerfi.]3)
   [30.]3) [2., 3. og 5. mgr. 52. gr. og 52. gr. a]7) um hæfisskilyrði, setu stjórnarmanna í stjórn annars fjármálafyrirtækis og tilkynningarskyldu til Fjármálaeftirlitsins,
   [31.]3) [52. gr. c]7) um tilkynningu stjórnar móðurfélags,
   [32.]3) [52. gr. d]7) um tilkynningu stjórnar og framkvæmdastjóra til Fjármálaeftirlitsins,
   [33. 1. mgr. 52. gr. e um tilkynningu um brot gegn varfærniskröfum eða um að fyrirtæki sé á fallanda fæti],3)
   [[34.]3) 1. mgr. [52. gr. f]3) um takmarkanir á öðrum störfum stjórnarmanns eða framkvæmdastjóra],8)
   [35.]3)9)
   [36.]3) [1., 4. og 5. mgr. 54. gr. um skyldur stjórnar, starfsreglur og bann við starfandi stjórnarformanni],10)
   [37.]3) [1.–3. mgr.]7) 55. gr. um þátttöku stjórnarmanna fjármálafyrirtækja í meðferð mála,
   [38.]3) 56. gr. um þátttöku starfsmanna í atvinnurekstri,
   [39.]3) 57. gr. um starfsreglur,
   [40. 57. gr. a um starfskjarastefnu],3)
   [41.]3) [57. gr. b um kaupauka],3)
   [42. 57. gr. c um endurskoðun starfskjara og greiðslur kaupauka],3)
   [43.]3) [57. gr. d]3) um starfslokasamninga,
   [44.]3) 58. gr. um þagnarskyldu,
   [[45.]3) 60. gr. a um skyldu til að hafa ferla sem uppfylla skilyrði ákvæðisins,
   [46.]3) 1. mgr. 60. gr. b um þagnarskyldu vegna tilkynningar um brot í starfsemi fjármálafyrirtækis],11)
   [47.]3) [63. gr. um ráðstöfun [hagnaðar]3)],12)
   [48.]3) [64. gr. um að setja og fylgja reglum um viðskipti með hluti í sparisjóði],12)
   [49.]3) [2. mgr. 65. gr. um skyldur sparisjóðs],12)
   [50.]3) [3. mgr. 69. gr. um að halda og uppfæra skrá yfir stofnfjáreigendur],12)
   [51. 77. gr. a og 77. gr. b um eftirlitskerfi með áhættu vegna starfsemi blandaðra eignarhaldsfélaga og framkvæmd áhættustýringar,
   52. 78. gr. a um meðhöndlun útlána- og mótaðilaáhættu,
   53. 78. gr. c um meðhöndlun samþjöppunaráhættu,
   54. 78. gr. e um meðhöndlun markaðsáhættu,
   55. 78. gr. g um meðhöndlun rekstraráhættu,
   56. 78. gr. h um meðhöndlun lausafjáráhættu,
   57. 1. og 2. mgr. 82. gr. a um að gera endurbótaáætlun eða uppfæra hana,
   58. 86. gr. m laga þessara eða 28., 52. eða 63. gr. reglugerðar (ESB) nr. 575/2013 með því að inna af hendi greiðslur til eigenda gerninga sem eru hluti af eiginfjárgrunni fjármálafyrirtækis í andstöðu við ákvæðin.]3)
   [59.]3) 87. gr. um samningu og undirritun ársreiknings,
   [60.]3) 1. mgr. 88. gr. um góða reikningsskilavenju,
   [61.]3) 89. gr. um skýrslu stjórnar,
   [62.]3)3)
   [63.]3) 92. gr. um [upplýsinga- og tilkynningarskyldu]8) endurskoðanda,
   [64.]3) 95. gr. um skil ársreiknings til Fjármálaeftirlitsins,
   [65.]3) 106. gr. um samruna fjármálafyrirtækis við annað fyrirtæki eða einstaka rekstrarhluta þess,
   [66.]3) 107. gr. um eftirlitsheimildir Fjármálaeftirlitsins [og eftirlit á samstæðugrunni, þ.m.t. með því að hindra eftirlit, afhenda ekki gögn eða upplýsingar eða afhenda ófullnægjandi gögn eða upplýsingar],10)
   [67. 10. tölul. 3. mgr. 107. gr. a um sértæka kröfu um að viðhalda lausu fé],3)
   [[68.]3) 109. gr. um varfærniskröfur og eftirlit á samstæðugrunni …,3)
   [69.]3) 3. mgr. [109. gr. s]3) um að tilkynna Fjármálaeftirlitinu um fyrirhugaðan fjárstuðning innan samstæðu].10)
   [70. sátt milli Fjármálaeftirlitsins og aðila, sbr. 111. gr.,
   71. 3., 4., 6. eða 7. hluta reglugerðar (ESB) nr. 575/2013 eða 1. eða 10. tölul. 3. mgr. 107. gr. a laga þessara með því að móðurstofnun, móðureignarhaldsfélag á fjármálasviði eða blandað móðureignarhaldsfélag í fjármálastarfsemi grípi ekki til ráðstafana á samstæðu- eða undirsamstæðugrunni sem ákvæðin eða ákvarðanir á grundvelli þeirra áskilja,
   72. 395. gr. reglugerðar (ESB) nr. 575/2013 um takmarkanir á stórum áhættuskuldbindingum,
   73. 405. gr. reglugerðar (ESB) nr. 575/2013 um skilyrði fyrir því að bera útlánaáhættu vegna verðbréfaðrar stöðu,
   74. 412. gr., sbr. 460. gr., reglugerðar (ESB) nr. 575/2013 um kröfu um lausafjárhlutfall eða gegn kröfu um lausafjárhlutfall í reglum skv. 3. mgr. 117. gr. b, enda sé brot ítrekað eða viðvarandi,
   75. 413. gr., sbr. 428. gr. b, reglugerðar (ESB) nr. 575/2013 um kröfu um hlutfall stöðugrar fjármögnunar eða gegn kröfu um hlutfall stöðugrar fjármögnunar í reglum skv. 3. mgr. 117. gr. b,
   76. 7. hluta A reglugerðar (ESB) nr. 575/2013 um kröfur um skýrslugjöf,
   77. 8. hluta reglugerðar (ESB) nr. 575/2013 um upplýsingagjöf stofnana].3)
[[Fjármálaeftirlitið getur lagt stjórnvaldssektir á hvern þann sem hefur staðið að því að fyrirtæki fái starfsleyfi samkvæmt lögum þessum á grundvelli rangra upplýsinga eða á annan óeðlilegan hátt.
Sektir geta numið frá 100 þús. kr. til 800 millj. kr. Sektir sem lagðar eru á lögaðila geta þó verið hærri eða allt að 10% af heildarveltu samkvæmt síðasta samþykkta ársreikningi lögaðilans eða 10% af síðasta samþykkta samstæðureikningi ef lögaðili er hluti af samstæðu.]3)
Við ákvörðun sekta samkvæmt ákvæði þessu [og annarra stjórnsýsluviðurlaga og -ráðstafana vegna brota skv. 1. mgr. skal]3) tekið tillit til allra atvika sem máli skipta, þ.m.t. eftirfarandi:
   a. alvarleika brots,
   b. hvað brotið hefur staðið lengi,
   c. ábyrgðar hins brotlega …,3)
   d. fjárhagsstöðu hins brotlega,
   e. [ávinnings hins brotlega af broti eða taps sem hann forðast með broti],3)
   f. hvort brot hafi leitt til taps þriðja aðila,
   g. hvers konar mögulegra kerfislegra áhrifa brotsins,
   h. samstarfsvilja hins brotlega,
   i. fyrri brota og hvort um ítrekað brot er að ræða.
[Ákvarðanir um stjórnvaldssektir eru aðfararhæfar.]13) Sektir renna í ríkissjóð að frádregnum kostnaði við innheimtuna. Séu stjórnvaldssektir ekki greiddar innan mánaðar frá ákvörðun Fjármálaeftirlitsins skal greiða dráttarvexti af fjárhæð sektarinnar. Um ákvörðun og útreikning dráttarvaxta fer eftir lögum um vexti og verðtryggingu.
Stjórnvaldssektum [og öðrum stjórnsýsluviðurlögum]3) verður beitt óháð því hvort lögbrot eru framin af ásetningi eða gáleysi.
Ef einstaklingur eða lögaðili brýtur gegn lögum þessum eða reglum settum á grundvelli þeirra, og fyrir liggur að hann hafi hlotið fjárhagslegan ávinning af broti, er heimilt að ákvarða hinum brotlega sektarfjárhæð sem getur, þrátt fyrir [3. mgr.],3) orðið allt að tvöfaldri þeirri fjárhæð sem fjárhagslegur ávinningur hins brotlega nemur.]14)]15)]16)
   1)L. 130/2004, 11. gr. 2)L. 119/2011, 7. gr. 3)L. 38/2022, 124. gr. 4)L. 96/2016, 55. gr. 5)L. 47/2013, 13. gr. 6)L. 116/2021, 137. gr. 7)L. 57/2015, 36. gr. 8)L. 8/2019, 6. gr. 9)L. 115/2021, 148. gr. 10)L. 54/2018, 14. gr. 11)L. 23/2017, 2. gr. 12)L. 77/2012, 8. gr. 13)L. 91/2019, 54. gr. 14)L. 58/2015, 7. gr. 15)L. 75/2010, 52. gr. 16)L. 55/2007, 7. gr.
[110. gr. a. Svipting atkvæðisréttar.
Fjármálaeftirlitið getur tímabundið svipt hluthafa eða stofnfjáreiganda í fjármálafyrirtæki atkvæðisrétti í fyrirtækinu brjóti hann af sér með þeim hætti sem greinir í 1. eða 2. mgr. 110. gr.]1)
   1)L. 38/2022, 125. gr.
[110. gr. b. Bann við störfum hjá fjármálafyrirtæki.
Fjármálaeftirlitið getur tímabundið bannað einstaklingi sem brýtur af sér með þeim hætti sem greinir í 1. eða 2. mgr. 110. gr. eða brýtur gegn lögum um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka að starfa hjá fjármálafyrirtækjum.]1)
   1)L. 38/2022, 125. gr.
[110. gr. c. Brottvikning stjórnarmanns eða framkvæmdastjóra eignarhaldsfélags.
Fjármálaeftirlitinu er heimilt að víkja stjórnarmanni eða framkvæmdastjóra eignarhaldsfélags á fjármálasviði, blandaðs eignarhaldsfélags og blandaðs eignarhaldsfélags í fjármálastarfsemi frá störfum fyrir brot gegn ákvæðum XIII. kafla um eftirlit eða stjórnvaldsfyrirmælum settum á grundvelli kaflans.]1)
   1)L. 38/2022, 125. gr.
[111. gr.]1) [Sátt.]2)
[Hafi aðili gerst brotlegur við ákvæði laga þessara eða ákvarðanir Fjármálaeftirlitsins á grundvelli þeirra er Fjármálaeftirlitinu heimilt að ljúka málinu með sátt með samþykki málsaðila, enda sé ekki um að ræða meiri háttar brot sem refsiviðurlög liggja við. Sátt er bindandi fyrir málsaðila þegar hann hefur samþykkt og staðfest efni hennar með undirskrift sinni. [Seðlabanki Íslands]3) setur nánari reglur4) um framkvæmd ákvæðisins.]5)
   1)L. 130/2004, 11. gr. 2)L. 38/2022, 126. gr. 3)L. 91/2019, 36. gr. 4)Rgl. 326/2019. 5)L. 55/2007, 8. gr.
[112. gr.]1) [Réttur til að fella ekki á sig sök.]2)
[Í máli sem beinist að einstaklingi og lokið getur með álagningu [stjórnsýsluviðurlaga]2) eða kæru til lögreglu hefur maður, sem rökstuddur grunur leikur á að hafi gerst sekur um lögbrot, rétt til að neita að svara spurningum eða afhenda gögn eða muni nema hægt sé að útiloka að það geti haft þýðingu fyrir ákvörðun um brot hans. Fjármálaeftirlitið skal leiðbeina hinum grunaða um þennan rétt.]3)
   1)L. 130/2004, 11. gr. 2)L. 38/2022, 127. gr. 3)L. 55/2007, 9. gr.
[112. gr. a. [Frestur til að leggja á stjórnsýsluviðurlög.]1)
Heimild Fjármálaeftirlitsins til að leggja á [stjórnsýsluviðurlög]1) samkvæmt lögum þessum fellur niður þegar fimm ár eru liðin frá því að háttsemi lauk.
Frestur skv. 1. mgr. rofnar þegar Fjármálaeftirlitið tilkynnir aðila um upphaf rannsóknar á meintu broti. Rof frests hefur réttaráhrif gagnvart öllum sem staðið hafa að broti.]2)
   1)L. 38/2022, 128. gr. 2)L. 55/2007, 10. gr.
[112. gr. b. [Sektir og fangelsi allt að tveimur árum.]1)
[[Það varðar sektum eða fangelsi allt að tveimur árum, liggi þyngri refsing ekki við broti samkvæmt öðrum lögum, að brjóta gegn eftirtöldum ákvæðum laga þessara og reglum settum á grundvelli þeirra:]2)
   1. 3. gr. um að starfsleyfisskyld starfsemi skuli ekki stunduð án starfsleyfis,
   2. 2. mgr. 17. gr. b um upplýsingar til Fjármálaeftirlitsins,
   3. [1. og 2. mgr. 19. gr. um að starfa í samræmi við eðlilega og heilbrigða viðskiptahætti og venjur á fjármálamarkaði],3)
   4. 2. mgr. 21. gr. um tilkynningarskyldu um hliðarstarfsemi,
   5. 22. gr. um tímabundna starfsemi og yfirtöku eigna,
   6.4)
   7. 29. gr. um eignarhald og tilkynningarskyldu til Fjármálaeftirlitsins,
   8. 1. og 2. mgr. 29. gr. a um bann við lánveitingum eða öðrum fyrirgreiðslum,
   [9.3)
   10.3)],2)
   [11.]2)1)
   [12.]2) 1. mgr. 31. gr., 32. gr., [32. gr. a],3) og 33. gr. um starfsemi erlendra fjármálafyrirtækja hér á landi,
   [13.]2) [1. mgr.]3) 40. gr. um tilkynningu um virkan eignarhlut,
   [14.]2)5)
   [15.]2) 49. gr. [um upplýsingaskyldu og viðvarandi mat á hæfi eiganda virkra eignarhluta],5)
   [16. 1. mgr. 52. gr. e um tilkynningu um brot gegn varfærniskröfum eða um að fyrirtæki sé á fallanda fæti],3)
   [17.]3) [4. og 5. mgr.]5) 54. gr. um starfsreglur og bann við starfandi stjórnarformanni,
   [18.]3) 2. og 3. mgr. 55. gr. um þátttöku stjórnarmanna fjármálafyrirtækja í meðferð mála,
   [19.]3) 56. gr. um þátttöku starfsmanna í atvinnurekstri,
   [20.]3) 1. mgr. 57. gr. um viðskipti starfsmanna við fjármálafyrirtæki,
   [21. 57. gr. b um kaupauka,
   22. 57. gr. c um endurskoðun starfskjara og greiðslur kaupauka],3)
   [23.]3) [57. gr. d]3) um starfslokasamninga,
   [24.]3) 58. gr. um þagnarskyldu,
   [25.]3) [63. gr. um ráðstöfun [hagnaðar]3)],6)
   [26.]3)3)
   [27.]3)3)
   [28.]3) 87. gr. um samningu og undirritun ársreiknings,
   [29.]3) 1. mgr. 88. gr. um góða reikningsskilavenju,
   [30.]3) 89. gr. um skýrslu stjórnar,
   [31.]3)3)
   [[32.]3) 92. gr. um upplýsinga- og tilkynningarskyldu endurskoðanda],7)
   [[33.]3) 107. gr. um að hindra eftirlit eða veita villandi og/eða rangar upplýsingar].8)
   [34. 405. gr. reglugerðar (ESB) nr. 575/2013 um skilyrði fyrir því að bera útlánaáhættu vegna verðbréfaðrar stöðu,
   35. 7. hluta A reglugerðar (ESB) nr. 575/2013 um kröfur um skýrslugjöf,
   36. 8. hluta reglugerðar (ESB) nr. 575/2013 um upplýsingagjöf stofnana.]3)
Þá varðar það sömu refsingu að gefa vísvitandi rangar eða villandi upplýsingar um hagi fjármálafyrirtækis eða annað er það varðar, opinberlega eða til Fjármálaeftirlitsins, annarra opinberra aðila eða viðskiptamanna sinna.]9)]10)
   1)L. 58/2015, 8. gr. 2)L. 119/2011, 8. gr. 3)L. 38/2022, 129. gr. 4)L. 96/2016, 56. gr. 5)L. 57/2015, 37. gr. 6)L. 77/2012, 9. gr. 7)L. 8/2019, 7. gr. 8)L. 54/2018, 15. gr. 9)L. 75/2010, 53. gr. 10)L. 55/2007, 10. gr.
[112. gr. c. [Saknæmi o.fl.]1)
Brot gegn lögum þessum er varða sektum eða fangelsi varða refsingu hvort sem þau eru framin af ásetningi eða gáleysi.
Heimilt er að gera upptækan með dómi beinan eða óbeinan hagnað sem hlotist hefur af broti gegn ákvæðum laga þessara er varða sektum eða fangelsi.
Tilraun til brots eða hlutdeild í brotum samkvæmt lögum þessum er refsiverð eftir því sem segir í almennum hegningarlögum.
[Gera má lögaðila sekt fyrir brot á lögum þessum og reglum settum á grundvelli þeirra óháð því hvort sök verði sönnuð á tiltekinn fyrirsvarsmann lögaðilans, starfsmann hans eða annan aðila sem starfar á hans vegum. Hafi fyrirsvarsmaður lögaðilans, starfsmaður hans eða annar á hans vegum með saknæmum hætti brotið gegn lögum þessum eða reglum settum á grundvelli þeirra í starfsemi lögaðilans má gera honum refsingu, auk þess að gera lögaðilanum sekt.]2)]3)
   1)L. 38/2022, 130. gr. 2)L. 58/2015, 9. gr. 3)L. 55/2007, 10. gr.
[112. gr. d. [Kæra til lögreglu.]1)
[Brot gegn lögum þessum sæta aðeins rannsókn lögreglu að undangenginni kæru Fjármálaeftirlitsins.]2)
Varði meint brot á lögum þessum bæði [stjórnsýsluviðurlögum]1) og refsingu metur Fjármálaeftirlitið hvort mál skuli kært til lögreglu eða því lokið með stjórnvaldsákvörðun …3). Ef brot eru meiri háttar ber Fjármálaeftirlitinu að vísa þeim til lögreglu. Brot telst meiri háttar ef það lýtur að verulegum fjárhæðum, ef verknaður er framinn með sérstaklega vítaverðum hætti eða við aðstæður sem auka mjög á saknæmi brotsins. Jafnframt getur Fjármálaeftirlitið á hvaða stigi rannsóknar sem er vísað máli vegna brota á lögum þessum til [rannsóknar lögreglu].2) Gæta skal samræmis við úrlausn sambærilegra mála.
Með kæru Fjármálaeftirlitsins skulu fylgja afrit þeirra gagna sem grunur um brot er studdur við. Ákvæði IV.–VII. kafla stjórnsýslulaga gilda ekki um ákvörðun Fjármálaeftirlitsins um að kæra mál til lögreglu.
Fjármálaeftirlitinu er heimilt að láta lögreglu og ákæruvaldi í té upplýsingar og gögn sem [það]4) hefur aflað og tengjast þeim brotum sem tilgreind eru í 2. mgr. Fjármálaeftirlitinu er heimilt að taka þátt í aðgerðum lögreglu sem varða rannsókn þeirra brota sem tilgreind eru í 2. mgr.
Lögreglu og ákæruvaldi er heimilt að láta Fjármálaeftirlitinu í té upplýsingar og gögn sem hún hefur aflað og tengjast þeim brotum sem tilgreind eru í 2. mgr. Lögreglu er heimilt að taka þátt í aðgerðum Fjármálaeftirlitsins sem varða rannsókn þeirra brota sem tilgreind eru í 2. mgr.
Telji ákærandi að ekki séu efni til málshöfðunar vegna ætlaðrar refsiverðrar háttsemi sem jafnframt varðar stjórnsýsluviðurlögum getur hann sent eða endursent málið til Fjármálaeftirlitsins til meðferðar og ákvörðunar.]5)
   1)L. 38/2022, 131. gr. 2)L. 88/2008, 234. gr. 3)L. 91/2019, 56. gr. 4)L. 91/2019, 35. gr. 5)L. 55/2007, 10. gr.
[112. gr. e. Sektir og fangelsi allt að sex árum.
Það varðar sektum eða fangelsi allt að sex árum, liggi þyngri refsing ekki við broti samkvæmt öðrum lögum, að brjóta gegn [ákvæðum 4. hluta reglugerðar (ESB) nr. 575/2013 um takmarkanir á stórum áhættuskuldbindingum].1)]2)
   1)L. 38/2022, 132. gr. 2)L. 58/2015, 10. gr.
[112. gr. f. Tímabundið bann vegna brottvikningar stjórnar og framkvæmdastjóra.
Ef Fjármálaeftirlitið víkur stjórn lánastofnunar eða verðbréfafyrirtækis með stofnframlag skv. 2. mgr. 14. gr. a frá í heild eða að hluta eða framkvæmdastjóra skv. [107. gr. c]1) eða [107. gr. d]1) er Fjármálaeftirlitinu heimilt að banna hlutaðeigandi að taka tímabundið sæti í stjórn eða verða framkvæmdastjóri fyrirtækis eða einingar sem fellur undir gildissvið laga um skilameðferð lánastofnana og verðbréfafyrirtækja.]2)
   1)L. 38/2022, 133. gr. 2)L. 70/2020, 103. gr.
[112. gr. g. Birting ákvarðana um stjórnsýsluviðurlög.
Fjármálaeftirlitið skal birta á vef sínum ákvarðanir um stjórnsýsluviðurlög vegna brota gegn lögum þessum, þar á meðal um hver brotin eru og þá einstaklinga og lögaðila sem eru látnir sæta viðurlögum, án ástæðulausrar tafar eftir að viðkomandi aðilar hafa verið upplýstir um ákvarðanirnar. Ef ákvarðanirnar eru bornar undir dómstóla skal Fjármálaeftirlitið jafnframt birta upplýsingar um stöðu og niðurstöðu dómsmálanna. Upplýsingarnar skulu vera á vefnum í minnst fimm ár. Persónuupplýsingar skulu þó ekki vera á vefnum lengur en nauðsynlegt getur talist í samræmi við lög um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga.
Fjármálaeftirlitið skal fresta birtingu skv. 1. mgr. eða birta ákvarðanir án persónugreinanlegra auðkenna ef annað myndi valda viðkomandi einstaklingum eða lögaðilum tjóni sem væri ekki í eðlilegu samræmi við brotið eða stofnaði stöðugleika á fjármálamarkaði eða yfirstandandi rannsókn sakamáls í hættu.]1)
   1)L. 38/2022, 134. gr.
[112. gr. h. Upplýsingagjöf til Evrópsku bankaeftirlitsstofnunarinnar um stjórnsýsluviðurlög.
Fjármálaeftirlitið skal upplýsa Evrópsku bankaeftirlitsstofnunina um ákvarðanir um stjórnsýsluviðurlög vegna brota gegn lögum þessum og um dómsmál vegna þeirra og niðurstöður þeirra.]1)
   1)L. 38/2022, 134. gr.

XV. kafli. Ýmis ákvæði.
[113. gr.]1) Nafnskráning reikninga.
Innlánsreikningar, fjárvörslureikningar og geymsluhólf skulu skráð á nafn viðskiptamanns ásamt heimilisfangi hans og kennitölu.
   1)L. 130/2004, 11. gr.
[114. gr.]1) Glatað skilríki.
Glatist innlánsskilríki eða viðtökuskírteini er fjármálafyrirtæki hafa gefið út fyrir handveði eða geymslufé getur stjórn fjármálafyrirtækis stefnt til sín handhafa nefndra skjala með þriggja mánaða fyrirvara frá síðustu birtingu áskorunar sem birt skal þrisvar sinnum í Lögbirtingablaði.
Gefi enginn sig fram áður en fyrirvarinn er liðinn falla niður öll réttindi á hendur fjármálafyrirtækinu samkvæmt innlánsskilríkinu eða viðtökuskírteininu. Skal fjármálafyrirtæki þá, að ósk þess sem fengið hafði hið fyrra innlánsskilríki eða viðtökuskírteini afhent úr hlutaðeigandi fyrirtæki, gefa út nýtt honum til handa eða þeim sem sannar að hann leiði rétt sinn löglega frá þessum aðila og skal hið nýja skjal vera með sömu skilmálum og hið fyrra.
   1)L. 130/2004, 11. gr.
[115. gr.]1)2)
   1)L. 130/2004, 11. gr. 2)L. 38/2022, 135. gr.
[116. gr.]1) Undanþegnir sjóðir og undanþága frá rekstrarformi.
[Þrátt fyrir starfsheimildir Hafnabótasjóðs samkvæmt hafnalögum, nr. 61/2003, og Húsnæðissjóðs og Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar samkvæmt lögum um húsnæðismál, nr. 44/1998, teljast þessir aðilar ekki til fjármálafyrirtækja samkvæmt lögum þessum.]2)
Opinberir fjárfestingarlánasjóðir sem starfandi eru við gildistöku laga þessara eru undanþegnir skilyrði 13. gr. um að starfa sem hlutafélög.
[IX. kafli A um endurbótaáætlun gildir ekki um Byggðastofnun og Lánasjóð sveitarfélaga ohf. [X. kafli um eiginfjárauka gildir ekki um Byggðastofnun. Byggðastofnun og Lánasjóður sveitarfélaga ohf. eru undanþegin kröfum um reglubundin skýrsluskil um laust fé og stöðuga fjármögnun. Seðlabanki Íslands getur undanskilið Byggðastofnun og Lánasjóð sveitarfélaga ohf. öðrum kröfum um skýrsluskil samkvæmt lögum þessum eða stjórnvaldsfyrirmælum sem sett eru á grundvelli þeirra ef þau eru ekki nauðsynleg til að Fjármálaeftirlitið geti haft fullnægjandi eftirlit með þeim eða gegnt öðrum hlutverkum sínum, eftir atvikum með því að takmarka kröfur um tíðni eða umfang skýrsluskila frá Byggðastofnun og Lánasjóði sveitarfélaga ohf.]2)]3)
   1)L. 130/2004, 11. gr. 2)L. 38/2022, 136. gr. 3)L. 44/2021, 5. gr.
[116. gr. a.1)]2)
   1)L. 38/2022, 137. gr. 2)L. 57/2015, 38. gr.

XVI. kafli. Gildistaka o.fl.
[117. gr.]1) Innleiðing.
[Með lögum þessum eru tekin upp ákvæði tilskipana Evrópuþingsins og ráðsins 86/635/EBE um ársreikninga og samstæðureikninga banka og annarra fjármálastofnana, 2001/24/EB um endurskipulagningu og slit lánastofnana og 2013/36/ESB um aðgang að starfsemi lánastofnana og varfærniseftirlit með lánastofnunum og verðbréfafyrirtækjum og 4. gr. tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 2014/59/ESB sem kemur á ramma um endurreisn og skilameðferð lánastofnana og verðbréfafyrirtækja, að því er varðar einfaldar endurbótaáætlanir, sem og 5.–9. gr. og 19.–30. gr. sömu tilskipunar.]2)
   1)L. 130/2004, 11. gr. 2)L. 38/2022, 138. gr.
[117. gr. a. [Reglugerð ráðherra.
Ráðherra setur reglugerð til að innleiða undirgerðir sem framkvæmdastjórn Evrópusambandsins samþykkir með stoð í eftirtöldum ákvæðum tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 2013/36/ESB, með síðari breytingum, og útfæra ákvæði laga þessara:
   1. 145. gr. um framseldar gerðir.
   2. 146. gr. um framkvæmdargerðir.
Ráðherra setur reglugerð til að innleiða undirgerðir sem framkvæmdastjórn Evrópusambandsins samþykkir með stoð í eftirtöldum ákvæðum reglugerðar (ESB) nr. 575/2013:
   1. 4. mgr. 107. gr. um aðferðir við útlánaáhættu.
   2. 7. mgr. 114. gr. um áhættuskuldbindingar vegna ríkja eða seðlabanka.
   3. 4. mgr. 115. gr. um áhættuskuldbindingar vegna héraðsstjórna eða staðaryfirvalda.
   4. 5. mgr. 116. gr. um áhættuskuldbindingar vegna opinberra aðila.
   5. 2. mgr. 117. gr. um áhættuskuldbindingar vegna fjölþjóðlegra þróunarbanka.
   6. 2. mgr. 142. gr. um skilgreiningar.
   7. 391. gr. um skilgreiningu á stofnun að því er varðar stórar áhættuskuldbindingar.
   8. 1. og 2. mgr. 456. gr. um framseldar gerðir.
   9. 457. gr. um tæknilegar breytingar og leiðréttingar.
   10. 459. gr. um varfærniskröfur.
   11. 461. gr. a um óhefðbundna staðalaðferð að því er varðar markaðsáhættu.
   12. 3. mgr. 497. gr. um kröfu vegna eiginfjárgrunns að því er varðar áhættuskuldbindingar vegna miðlægra mótaðila.1)
   13. 4. mgr. 503. gr. um kröfur vegna eiginfjárgrunns í tengslum við áhættuskuldbindingar í formi sértryggðra skuldabréfa.]2)]3)
   1)Rg. 860/2022. 2)L. 38/2022, 139. gr. 3)L. 57/2015, 40. gr.
[117. gr. b. [Reglur Seðlabanka Íslands.
Seðlabanki Íslands setur reglur1) til að innleiða undirgerðir sem framkvæmdastjórn Evrópusambandsins samþykkir með stoð í eftirtöldum ákvæðum tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 2013/36/ESB, með síðari breytingum, og útfæra ákvæði laga þessara:
   1. 2. og 3. mgr. 8. gr. um starfsleyfi.
   2. 9. mgr. 22. gr. um tilkynningu og mat á fyrirhuguðum yfirtökum.
   3. 5. og 6. mgr. 35. gr. um tilkynningarskyldu og víxlverkun milli lögbærra yfirvalda.
   4. 5. og 6. mgr. 36. gr. um upphaf starfsemi.
   5. 4. og 5. mgr. 39. gr. um málsmeðferð við tilkynningu.
   6. 6. og 7. mgr. 50. gr. um samstarf um eftirlit.
   7. 4. og 5. mgr. 51. gr. um mikilvæg útibú.
   8. 4. mgr. 77. gr. um innri aðferðir við útreikning á kröfum vegna eiginfjárgrunns.
   9. 7. og 8. mgr. 78. gr. um eftirlitsviðmiðanir innri aðferða við útreikning á kröfum vegna eiginfjárgrunns.
   10. 5. mgr. 84. gr. um vaxtaáhættu sem verður til við viðskipti önnur en veltubókarviðskipti.
   11. 2. mgr. 94. gr. um breytilega þætti starfskjara.
   12. 5. mgr. a 98. gr. um tæknilegar viðmiðanir fyrir eftirlitsúttekt og mat.
   13. 5. mgr. 113. gr. um sameiginlegar ákvarðanir um varfærniskröfur er varða tilteknar stofnanir.
   14. 4. og 5. mgr. 116. gr. um samstarfshópa eftirlitsaðila.
   15. 4. mgr. 120. gr. um eftirlit með blönduðum eignarhaldsfélögum í fjármálastarfsemi.
   16. 18. mgr. 131. gr. um kerfislega mikilvægar stofnanir á alþjóðavísu og aðrar kerfislega mikilvægar stofnanir.
   17. 7. mgr. 140. gr. um útreikning á hlutföllum sveiflujöfnunarauka.
   18. 3. mgr. 143. gr. um almennar kröfur um upplýsingagjöf.
Seðlabanki Íslands setur reglur2) til að innleiða undirgerðir sem framkvæmdastjórn Evrópusambandsins samþykkir með stoð í eftirtöldum ákvæðum reglugerðar (ESB) nr. 575/2013:
   1. 4. mgr. 4. gr. um aðstæður þar sem skilyrði varðandi hóp tengdra viðskiptavina eru uppfyllt.
   2. 9. mgr. 18. gr. um aðferðir við gerð samstæðureikningsskila.
   3. 8. mgr. 20. gr. um sameiginlegar ákvarðanir um varfærniskröfur.
   4. 4. mgr. 26. gr. um liði í almennu eigin fé þáttar 1.
   5. 2. mgr. 27. gr. um fjármagnsgerninga gagnkvæmra félaga, samvinnufélaga, sparisjóða eða svipaðra stofnana í almennu eigin fé þáttar 1.
   6. 5. mgr. 28. gr. um gerninga almenns eigin fjár þáttar 1.
   7. 6. mgr. 29. gr. um fjármagnsgerninga útgefna af gagnkvæmum félögum, samvinnufélögum, sparisjóðum og svipuðum stofnunum.
   8. 2. mgr. 32. gr. um hugtakið söluhagnaður sem um getur í a-lið 1. mgr. 32. gr. reglugerðar (ESB) nr. 575/2013.
   9. 4. mgr. 33. gr. um nána samsvörun á milli virðis skuldabréfa og virðis eigna eins og um getur í c-lið 3. mgr. 33. gr. reglugerðar (ESB) nr. 575/2013.
   10. 2., 3. og 4. mgr. 36. gr. um frádrátt frá liðum í almennu eigin fé þáttar 1.
   11. 2. mgr. 41. gr. um frádrátt eigna réttindatengds lífeyrissjóðs.
   12. 6. mgr. 49. gr. um skilyrðin fyrir beitingu útreikningsaðferða sem um getur í I. viðauka, II. hluta tilskipunar 2002/87/EB með tilliti til valmöguleika við frádrátt sem um getur í 1. mgr. 49. gr. reglugerðar (ESB) nr. 575/2013.
   13. 2. mgr. 52. gr. um viðbótareiginfjárgerninga þáttar 1.
   14. 7. mgr. 72. gr. b um hæfa skuldbindingargerninga.
   15. 7. mgr. 73. gr. um skilyrði þess að vísitölur teljist uppfylla skilyrði um breiðar markaðsvísitölur að því er varðar 4. mgr. 73. gr. reglugerðar (ESB) nr. 575/2013.
   16. 4. mgr. 76. gr. um vísitölueignarhluti í fjármagnsgerningum.
   17. 5. mgr. 78. gr. um leyfi eftirlitsyfirvalda fyrir lækkun eiginfjárgrunns.
   18. 3. mgr. 78. gr. a um leyfi fyrir lækkun hæfra skuldbindingargerninga.
   19. 2. mgr. 79. gr. um tímabundna undanþágu frá frádrætti frá eiginfjárgrunni.
   20. 2. mgr. 83. gr. um viðurkennt viðbótar eigið fé þáttar 1 og eiginfjárþátt 2 sem sérstakur verðbréfunaraðili gefur út.
   21. 4. mgr. 84. gr. um hlutdeildir minni hluta sem falla undir samanlagt almennt eigið fé þáttar 1.
   22. 4. mgr. 97. gr. um eiginfjárgrunn byggðan á föstum kostnaði.
   23. 14. mgr. 105. gr. um kröfur varðandi varfærið mat.
   24. 4. mgr. 110. gr. um meðferð leiðréttingar á útlánaáhættu.
   25. 4. mgr. 124. gr. um áhættuskuldbindingar tryggðar með veði í fasteignum.
   26. 4. mgr. 132. gr. a um aðferðir við útreikning á fjárhæðum áhættuveginna áhættuskuldbindinga sjóða um sameiginlega fjárfestingu.
   27. 1. og 3. mgr. 136. gr. um vörpun lánshæfismats frá utanaðkomandi lánshæfismatsfyrirtæki.
   28. 5. mgr. 143. gr. um heimild til að nota innramatsaðferðina.
   29. 2. mgr. 144. gr. um mat lögbærra yfirvalda á umsókn um notkun innramatsaðferða.
   30. 6. mgr. 148. gr. um skilyrði fyrir því að taka upp innramatsaðferðina í mismunandi flokkum áhættuskuldbindinga og rekstrareininga.
   31. 3. mgr. 150. gr. um skilyrði fyrir beitingu aðferðar að hluta til skv. a-, b- og c-lið 1. mgr. 150. gr. reglugerðar (ESB) nr. 575/2013.
   32. 9. mgr. 153. gr. um fjárhæðir áhættuveginna áhættuskuldbindinga í tengslum við áhættuskuldbindingar vegna fyrirtækja, stofnana og ríkja og seðlabanka.
   33. 8. mgr. 164. gr. um mat á gildi vegna taps að gefnum vanefndum.
   34. 3. mgr. 173. gr. um mat á heilleika flokkunarferlis.
   35. 6. mgr. 178. gr. um mikilvægismörk lánaskuldbindinga sem komnar eru fram yfir gjalddaga.
   36. 3. mgr. 180. gr. um kröfur vegna mats á líkum á vanefndum.
   37. 3. mgr. 181. gr. um kröfur í tengslum við eigið mat á tapi að gefnum vanefndum.
   38. 4. mgr. 182. gr. um kröfur í tengslum við eigið mat á breytistuðlum.
   39. 6. mgr. 183. gr. um skilyrði fyrir viðurkenningu skilyrtra ábyrgða.
   40. 10. mgr. 194. gr. um meginreglur varðandi viðurkenningu aðferða til mildunar útlánaáhættu.
   41. 8. mgr. 197. gr. um hæfa tryggingu í tengslum við allar aðferðir.
   42. 9. mgr. 221. gr. um notkun eiginlíkansaðferðarinnar í tengslum við rammasamninga um skuldajöfnun.
   43. 270. gr. um vörpun lánshæfismats.
   44. 5. mgr. 277. gr. um tengingu viðskipta við áhættuflokka.
   45. 3. mgr. 279. gr. a um deltastuðul eftirlits.
   46. 4. mgr. 312. gr. um leyfi og tilkynningar varðandi þróuðu mæliaðferðina.
   47. 5. mgr. 314. gr. um samþætta notkun mismunandi aðferða.
   48. 3. mgr. 316. gr. um aðferðafræðina við að reikna út viðeigandi mælikvarða.
   49. 3. mgr. 318. gr. um skilyrði beitingar meginreglna um kortlagningu viðskiptasviða.
   50. 9. mgr. 325. gr. um útreikning á kröfum vegna eiginfjárgrunns að því er varðar markaðsáhættu.
   51. 5. mgr. 325. gr. u um kröfur vegna eiginfjárgrunns að því er varðar eftirstæða áhættuþætti.
   52. 8. mgr. 325. gr. w um brúttófjárhæðir skyndilegra vanefnda.
   53. 3. mgr. 325. gr. ap um tilgreiningu á nýjum mörkuðum og þróuðum hagkerfum í tengslum við áhættuvogir fyrir hlutabréfaáhættu.
   54. 8. og 9. mgr. 325. gr. az um notkun óhefðbundinna eigin líkana.
   55. 7. mgr. 325. gr. bd um seljanleikatímabil.
   56. 3. mgr. 325. gr. be um mat á gerð líkana fyrir áhættuþætti.
   57. 9. mgr. 325. gr. bf um kröfur um afturvirkar prófanir og margföldunarþætti.
   58. 4. mgr. 325. gr. bg um kröfur um úthlutun á hagnaði og tapi.
   59. 3. mgr. 325. gr. bk um útreikning á áhættumati sem byggt er á álagssviðsmynd.
   60. 12. mgr. 325. gr. bp um kröfur vegna eigin líkans fyrir vanskilaáhættu.
   61. 3. mgr. 329. gr. um valrétti og kauprétti.
   62. 3. mgr. 341. gr. um skilgreiningu á hugtakinu markaður skv. 2. mgr. 341. gr. reglugerðar (ESB) nr. 575/2013.
   63. 1. mgr. 344. gr. um hlutabréfavísitölur.
   64. 6. mgr. 352. gr. um útreikning á hreinni heildargjaldeyrisstöðu.
   65. 3. mgr. 354. gr. um gjaldmiðla með nána fylgni.
   66. 4. mgr. 358. gr. um sérstaka gerninga.
   67. 4. mgr. 363. gr. um leyfi til að nota eigin líkön.
   68. 5. mgr. 382. gr. um verklagsreglur um að undanskilja viðskipti við ófjárhagslega mótaðila með staðfestu í þriðja landi frá kröfum vegna eiginfjárgrunns að því er varðar leiðréttingaráhættu vegna útlánavirði.
   69. 7. mgr. 383. gr. um þróuðu mæliaðferðirnar.
   70. 8. og 9. mgr. 390. gr. um útreikning á áhættuskuldbindingarvirði.
   71. 4. mgr. 394. gr. um viðmið fyrir auðkenningu á skuggabankastarfsemi skv. 2. mgr. 394. gr. reglugerðar (ESB) nr. 575/2013.
   72. 2. og 3. mgr. 410. gr. um samræmd skilyrði fyrir beitingu.
   73. 3. mgr. og 3. mgr. a 415. gr. um skýrslugjöf um lausafjárstöðu.
   74. 4. og 5. mgr. 419. gr. um gjaldmiðla með takmarkanir á tiltækileika lausafjáreigna.
   75. 10. mgr. 422. gr. um hlutlægar viðmiðanir að því er varðar útstreymi lausafjár.
   76. 3. mgr. 423. gr. um hugtakið mikilvægi og aðferðir til að mæla viðbótarútstreymi.
   77. 6. mgr. 425. gr. um hlutlægar viðmiðanir að því er varðar innstreymi lausafjár.
   78. 426. gr. um uppfærslu framtíðarlausafjárkrafna.
   79. 7. og 9. mgr. 430. gr. um skýrslugjöf um varfærniskröfur og fjárhagsupplýsingar.
   80. 6. mgr. 430. gr. b um skýrslugjöf að því er varðar markaðsáhættu.
   81. 434. gr. a um samræmd snið fyrir upplýsingagjöf.
   82. 1. og 3. mgr. 460. gr. um laust fé.
   83. 6. mgr. 481. gr. um viðbótarsíur og frádrátt.
   84. 3. mgr. 487. gr. um liði sem eru undanskildir frá beitingu eldri reglna í liðum almenns eigin fjár þáttar 1 eða liðum viðbótar eigin fjár þáttar 1 í öðrum þáttum eiginfjárgrunns.
   85. 5. mgr. 492. gr. um umbreytingarákvæði vegna birtingar upplýsinga um eiginfjárgrunn.
   86. 3. mgr. 495. gr. um meðferð á fjárhæðum áhættuskuldbindinga vegna hlutabréfa samkvæmt innramatsaðferðinni.
Seðlabanka Íslands er heimilt að setja reglur um laust fé og stöðuga fjármögnun fjármálafyrirtækja. Í reglunum er heimilt að kveða á um lágmark og meðaltal lauss fjár og lágmark stöðugrar fjármögnunar í íslenskum krónum og erlendum gjaldmiðlum og í þeim má ákveða að mismunandi ákvæði gildi um einstaka flokka fjármálafyrirtækja.
Seðlabanka Íslands er heimilt að kveða á um3) hvernig val- og heimildarákvæðum samkvæmt reglugerð (ESB) nr. 575/2013 er beitt með setningu reglna.]4)]5)
   1)Rgl. 787/2022. Rgl. 790/2022. Rgl. 791/2022. Rgl. 792/2022. Rgl. 794/2022. Rgl. 886/2022. Rgl. 887/2022. Rgl. 1165/2022. Rgl. 771/2023. Rgl. 1090/2023. Rgl. 1681/2023. 2)Rgl. 790/2022. Rgl. 793/2022. Rgl. 1162/2022. Rgl. 1520/2022. Rgl. 1698/2022. Rgl. 1701/2022. Rgl. 396/2023. Rgl. 772/2023. Rgl. 1091/2023. Rgl. 1680/2023. Rgl. 1681/2023. Rgl. 323/2024. 3)Rgl. 789/2022. 4)L. 38/2022, 140. gr. 5)L. 57/2015, 40. gr.
[117. gr. c.1)]2)
   1)L. 38/2022, 141. gr. 2)L. 96/2016, 58. gr.
[118. gr.]1) Gildistaka.
Lög þessi öðlast gildi 1. janúar 2003. 2)
   1)L. 130/2004, 11. gr. 2)L. 57/2015, 41. gr.
[119. gr.]1)
   1)L. 130/2004, 11. gr.
[120. gr.]1)
   1)L. 130/2004, 11. gr.

Ákvæði til bráðabirgða.
I.1)
   1)L. 38/2022, 142. gr.
II.1)
   1)L. 38/2022, 142. gr.
III.
[Við setningu reglna skv. 117. gr. b er Seðlabanka Íslands heimilt að vísa til birtingar á reglugerðum í Stjórnartíðindum Evrópusambandsins á ensku. Nýti Seðlabanki Íslands þessa heimild skal hann gera enskar útgáfur reglugerðanna aðgengilegar á vef sínum.]1)
   1)L. 38/2022, 143. gr.
IV.1)
   1)L. 75/2010, 55. gr.
[V.1)]2)
   1)L. 38/2022, 142. gr. 2)L. 44/2009, brbákv. II.
[VI.1)]2)
   1)Ákvæðið féll úr gildi 31. des. 2020 skv. 8. mgr. 2)L. 44/2009, brbákv. IV.
VII.–XIII.1)
   1)L. 38/2022, 142. gr.